Heimskringla - 22.02.1933, Blaðsíða 3
WINNIPEG 22. FEBR. 1933
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA.
Phone 22 »»S I'hone 25 2.T.
HOTELCORONA
20 Itoomfi With Bath
Hot and Cold Water in Bvery
Room. — $1.50 per day and up
Monthly and Weekly Rates
on Request
Cor. Main & Notre Dame East
WINNIPEG, CANADA
S. og færði rök fyrir sínu máli.
Var það ekki annara en lækna
að leggja nokkurn dóm á deilu-
atriðin, enda um “mjTkan skóg
að villast.’’
Þá tók próf. Guðm. Thorodd-
sen til máls. Hann hagaði máli
sínu á þann veg, að hann tók
flesta aðalkafla bókarinnar
hvem fyrir sig og lagði jafn-
framt spurningar fyrir doktors-
efnið, eða bað um frekari upp-
lýsingar um vafa-atriði. Svar-
aði doktorsefnið jafnóðum. Nú
var það bæði að bókin var löng
og efnið margbrotið, enda var
þetta löng viðureign.
Þó bæði J. Hj. S. og G. Th.
hefðu ýmislegt að athuga við
mörg atriði, þá lofuðu þeir höf.
fyrir áhuga hans, dugnað og
lærdóm.
Að lokum þakkaði doktors-
efnið fyrir góð orð í sinn garð
og óskaði háskólanum ails góðs
gengis.
G. H. mælti síðast nokkur
orð. Kvað hann bók H. H. vera
“Menetekel” fyrir íslenzka
lækna og sýna hvað þeir gætu
gert þrátt fyrir alt annríki, að
hún væri háskólanum til sóma
en ómissandi handbók fyrir
lækna ,hér og erlendis, sem
fást við þessi efni. Afhenti hann
síðan Halldóri Hansen doktors-
skjalið.
GULLLIÐ OG SUÐUR-AFRiKA
Það þótti tíðindum sæta þeg-
ar Suður-Afríku lýðveldið hvarf
frá gullinnlausn um áramótin,
en þetta kom þó ekki á óvart
þeim, sem fylgst höfðu með í
stjórnmáladeilunum þar og fjár-
málunum. En tíðindum sætti
þetta vegna þess, að þar sem
Suður-Afríka framleiðir landa
mest af gulli, þá hefir það sér-
staka þýðingu fyrir hana að
gullið haldi kaupmagni sínu.
Hver hækkun gullverðsins eyk-
ur gildi Randnámanna, því að
fyrir hverja únzu af gulli, sem
þaðan kemur, fæst þá meira af
vörum en áður. Og þetta er á-
stæðan til þess að Suður-Afríka
hóf aftur gullinnlausn, rétt eft-
ir stríðið, að ráðum dr. Kem-
merers og annara. og hóf að slá
gullmynt í myntsláttunni í Pre-
toría.
Þegar Bretar hófu aftur gull-
innlausn árið 1925, var aðeins
um að ræða mótað gull, en
gullmynt var engin í umferð.
Einu gullpeningarnir — sover-
eigns og half-sovereigns — er
slegnir hafa verið eftir stríðið,
hafa komið frá myntsláttunni
í Pretoria. En þegar Bretar
hurfu aftur frá gullinnlausn
haustið 1931, var því spáð, og
menn biuggust við því í Lond-
on, að Suður-Afríka mundi fara
að dæmi þeirra. En forsætis-
ráðherrann, Herzog hershöfð-
ingi, er foringi hollenzka flokks-
ins og sá flokkur kærir sig ekk-
ert um að fvlgja Bretum, hvorki
í stjóríimálum né fjármálum,
enda þótt Suður-Afríka taki alt
af lán í London, þegar hún er
í fjárþröng. Afleiðingin af því,
að Suður-Afríka fór ekki að
dæmi Breta varð sú, að seinustu
fimtán mánuði var suður-afrík
anska guilpundið í hærra verði
heldur en enska pundið og verð
ið var jafn stopult og breytilegt
eins og gildi ameríska dollars-
ins gagnvart pundinu.
Bændurnir í Suður-Afríku
og flestir þeirra eru af hol-
lenzku bergi brotnir, gerðust
brátt órólegir, því að verðfall
varð gífurlegt á útflutnings-
vöru þeirra, sérstaklega ull og
ávöxtum, Herzog forsætisráð-
herra greip þá til verndartolla
og verðlauna fyrir útflutning,
pn ve-ndartollarnir urðu til þess
að hækka verð á iðnaðarvörum
og öllum öðrum vörum, sem
Búar verða að flytja inn. Út-
flutningsfirmu urðu að selja
vörur sínar með gangverði á
Heimsmarkaðinum, en framleið
endur urðu að kaupa erlendar
vörur með uppskrúfuðu verði,
vegna tollanna. Búar framleiða
t. d. ekki nóg af hveiti og kart-
öflum handa sjálfum sér, og
verndartollamir hafa nú hækk-
að verðið svo rnjög,, að fyrir
eitt sterlingspund er hægt að
fá helmingi meira hveiti, eða
þrisvar sinnum meiri kartöflur
í Englandi, heldur en fyrir eitt
gullpund í Suður-Afríku. Fatn-
aður og allar iðnaðarvörur eru
líka miklu dýrari í Suður-Afríku
en á Englandi, þrátt fyrir það
enska pundið er lækkað um
nær 30 prósent, í hlutfalli við
suður-afríkanska pundið.
Nýskeð kom út ritgerð í Jo-
hannesburg um fjármálaástand
ið í Suður-Afríku. Höfundurinn
er nafnkunnur þjóðhagsfræð-
ingur og hefir lagt mikið fé í
gullnámur og landbúnað. Hann
segir að betri hafi orðið útkom-
an á rekstri þeirrar gullnámu,
sem hann á í, árið 1932, heldur
en nokkru öðru ári síðan 1913.
En á hinn bóginn “eiga allar
iðngreinir, demantanámurnar
og kolanámurnar í vök að verj-
ast, og bændur hafa aldrei ver-
ið jafn aðþrengdir og nú”. —
Hann lætur þess síðan getið,
að gullnámið sé ein helzta
tékjulind ríkisins. Árið 1931 var
hagnaður af gullgreftinum 11
Yz miljón gullpunda, en af því
runnu 3Vá miljón í ríkissjóð.
Afganginn fengu hluthafar í
Suður-Afríku og á Englandi.
Árið 1928 sagði embættismað-
ur í fjármálaráðuneyti Suður-
Afríku, að þriðjungurinn af öll-
um tekjum ríkisins kæmi beint
og óbeint frá Rand-gullnámun-
um. Seinna fór hagfræðis pró-
fessor að rannsaka þetta, og
komst hann að þeirri niðurstöðu
að um helmingur af öllum tekj-
um ríkis og bæjarsjóða kæmi
beint eða óbeint frá gullnám-
unum.
Sú hefir orðið raunin á í Suð-
ur-Afríku, eins og alstaðar ann-
arstaðar, að útgjöld ríkissjóðs
hafa farið hækkandi — úr 12
miijón punda árið 1912 upp í
35 miljónir punda árið sem leið.
Síðan 1910 hafa ríkisskuldir
hækkað úr 158 í 274 miljónir
punda. íbúar ríkisins eru taldir
aðeins 8Í4 miljón, en þar af
eru 6,400,000 blökkumanna.
Útlitið er ískyggilegt, því að
þrátt fyrir bættar vélar og
vinnuaöferðir til þess að ná í
málma djúpt í jörðu, lítur svo
út sem Randnámurnar sé bráð-
um þurausnar að gulli, og fram-
leiðsian hlýtur innan skamms
að fara minkandi. Og þegar
fram í sækir, verður Suður-
Afríka að treysta mest á það,
sem hún getur flutt út af ull, á-
vöxtum, kolum, kvikfénaði o. s.
frv.
Enn verður ekki sagt um það
hvort stjórnin getur setið við
völd áfram, eða hvernig hún
ætlar að viðhalda genginu, ef
hún situr áfram. Framsýnir
menn þóttust þegar fyrir
nokkru sjá að hverju fór, og
byrjuðu þá þegar að breyta fé
sínu í breska seðla eða annan
erlendan gjaldeyri. “Flóttinn frá
afríkanska pundinu” byrjaði, og
menn tóku út gull í stríðum
straumum í bönkunum tíl þess
að geyma það. Þess vegna var
það að stjórnin tók þá ákvörð-
un “að leysa Reservbankann
undan þeirri skyldu “að leysa
inn seðla með gulli”, svo að
viðhöfð sé hennar eigin orð. Að
vígu þarf þetta ekki að þýða hið
sama og það, að Suður-Afríka
hætti við gullmyntfót. Eftir
áramótin var hægt að kaupa
100 ensk pund fyrir 70 Suður-
Afríkupund. Getur stjórnin því
staðið sig við að lækka gull-
gengi seðla sinna um 30% og
taka síðan aftur upp gullinn-
lausn. — Lesb. Mbl.
.iUAIPRO I i liv A iSLANDI.
-.tir Bjarna AgL.stsson Meehle
Öllum, sem nokkra þekkingu
hafa á skíðaíþrótt, kemur sam-
an um það, að hún sé bæði
skemtileg og gagnleg. En við
skulum nú fyrst líta á skemti-
legu hliðina. Það má með sanni
segja, að engin íþrótt, sem bor-
ist hefir hingað til lands, hafi
náð svo mikilli útbreiðslu á svo
skömmum tíma eins ög þessi
hressandi og fjöruga íþrótt, og
gefur þessi mikli áhuga ís-
lenzkra æskumanna vonir um
góðan árangur áður en langt
um líður. Það var fyrst á ár-
inu 1929, að áhugi fyrir skíða-
íþrótt fór að vakna meðal ís-
lendinga, og þessi áhugi Ihefir
stöðugt farið vaxandi og lang-
mestur var hann í fyrra vetur.
Það er von mín að þessi vax-
andi áhugi nái hámarki sínu inn
an fárra ára, og þá geta íslend-
ingar fyrst séð, hvaða þýðingu
það hefir fyrir þjóð að eiga
góða og áhugasama skíðamenn.
Við eigum ekki að vera svo stolt
ir, að við ekki veitum móttöku
þessu töfrandi seiðmagni og
bjarta brosi, sem hin snævi
þöktu íslenzku fjöll senda okk-
ur frá hausti til vors. Suður-
Evrópuþjóðirnar kunnu að meta
snjóinn. Þær þyrpast í stórhóp-
um norður í snjóinn á veturna
og æfa sig þar kappsamlega á
skíöum. En þeir, sem ekki hafa
tima eða peninga til að ferð-
ast þangað norður, þeir æfa sig
heimafyrir. Slíkir skíðamenn
eru hverri þjóð til sóma. En
við sem hér á íslandi höfum snjó
dag eftir dag, viku eftir viku,
og jafnvel mánuð eftir mánuð,
við förum ekki nema einu sinni
eða tvisvar, flestir þó líklega
aldrei, á skíði allan veturinn.
Nei, heldur vill æskulýðurinn
labba fram og aftur með hend-
urnar í vösunum og sígarettu
í munnvikinu. Það eru margir
sem halda því fram, að sundið
sé sú nytsamasta og bezta í-
þrótt, og ef til vill er það rétt.
En eg vil setja skíðaíþróttuna
jafnhátt sundinu og þær íþrótt-
ir eru líka að vissu leyti skyld-
ar. Eins og sundið, reynir skíða
íþróttin á allan líkamann, bæði
brjóst, handleggi, læri og fót-
leggi, og fyrir skólafólk eða
yfirleitt fólk, sem hefir miklar
kyrsetur, eru þessar tvær íþrótt
ir bráðnauðsynlegar ekki sízt
skíðaíþróttin.
Fyrir skömmu ræddi eg um
skíðaíþróttina við nokkra ís-
lenzka drengi. Einn þeirra
spurði mig hvort skíðaíþróttin
gæti ekki verið hættuleg. Eg
svaraði: “Mitt álit er að hún
sé í raun og veru hættuminni
en flestar aðrar íþróttir, sé hún
rétt með farin.” “En hvað er
þá að misnota skíðaíþróttina?”
spyr einn þeirra. — “Að mis-
nota skíðaíþróttina er að byrja
of geyst, ætla sér of mikið á
meðan maður hefir ekki feng-
ið fult vald yfir skíðunum.” —
Það er eflaust miklu hættu-
legra fyrir unglinga, að sitja
inni á kaffihúsum kvöld eftir
kvöld, og anda þar að sér öllum
þeim reyk og öllu því ólofti, er
þar er, og svo er slíkt að mis-
nota sjálfan sig.
Eg ætla að koma með eitt
lítið dæmi um það, hvaða fjár-
hagslega þýðingu það getur
haft að vera góður skíðamað-
ur. Það var 15. janúar 1928,
að skíðamótið í Holmenkollen
átti að fara fram. Þar voru
samankomnir allir beztu skíða-
menn Noregs, og þar á meðal
Sigmund Ruud. 9,000 áhorfend-
ur voru viðstaddir. Kl. 9.30 var
lagt af stað í 30 km. skíða-
göngu. Þátttakendur voru 115.
Sigmund var sá 70. í röðinni
þegar lagt var af stað, en sá
10., þegar kpmið var að marki,
og rann skeiðið á skemstum
tíma. Ólafur krónprins var sá
8. í röðinni. Klukkan tvö fóru
fram skíðastökk. Sigmund var
þar einnig fremstur. Stökk 59
metra. — “Kvenbikarinn” fékk
hann einnig fyrir fegurst stökk,
og að lokum fékk hann kon-
ungsbikarinn, sem eru dýrmæt-
ustu og beztu verðlaun, sem
hægt er að fá. Hann hafði nú
fengið verðlaun sem svaraði til
1100 kr. í peningum, og mega
það heita góð daglaun. — Þeir,
sem vilja kallast góðir skíða-
menn, þurfa að stunda bæði
skíðagöngu og stökk. Nú skal
eg drepa ögn á ýmsar aðferð-
ir og reglur, sem byrjendur
þurfa að hafa í huga:
1. Það fyrsta, sem læra þarf
er að halda rétt á stöfunum og
læra að beita þeirn.
2. Að læra að nota bæði gang
skíði og stökkskíði.
3. Ganga hratt og liðlega á
jafnsléttu og á móti brekkunni,
og að vera fljótur að stöðva
sig og snúa sér við.
4. Vel skal gæta þess að hafa
góða og trausta skó og fataút-
búnað, um útlitið gerir minna
til.
En mesti vandinn er þó að
bera rétt á skíðin, eftir því
hvernig færðin er.
Það er eins ástatt fyrir manni
sem er að byrja að fara á skíð-
um, og á góð skíði, og manni,
sem á góð verkfæri og kann
ekki að fara með þau. Hvað
vantar? þekkinguna á meðferð
verkfæranna. Þannig er því var-
ið með skíðamanninn, hann
vantar góðan kennara. í flest-
um löndum, t. d. í Alpafjöllun-
um, hefir hver flokkur sinn
kennara og oftast nær þann
sama ár eftir ár, og þá geng-
ur lærdómurinn eins og í sögu.
Eins og eg hefi drepiö á hér
að framan, er það nauðsynlegt
að kunna eitthvað á skíðum og
kunna að fara með þau. Það
kemur svo iðulega fyrir að bíl-
ar og hestvagnar komast ekki
fyrir snjó. Tökum eitt dæmi:
Fjölskylda býr uppi á afskekt-
um bæ. Einhver heimilismaður
verður alvarlega veikur, svo að
sækja verður lækni. Úti er klof-
snjór, ófært bílum og gangandi
mönnum. Hvað á að taka til
bragðs? Það eina sem hjálpað
gat í þessu tilfelli var að fara
á skíðum, og ef til vill eru eng-
in skíði til á bænum. Annað
dæmi: Það er líka uppi í sveit
á afskektum bæ. Það þarf að
fara til næsta bæjar að ná í
mat. Úti er blindbylur og mik-
ill snjór yfir öllu. Húsbóndinn
leggur af stað í þeirri von að
ná til næsta bæjar, en sökum
þess að færðin er svo vond
gangandi manni, gefst hann
upp og verður úti, og það jafn-
vel ekki nema hundrað metra
frá bænum. Á þessum tveim
dæmum má sjá, hverju þýðingu
skíða íþróttin getur haft, og þeir
sem ekki eru þegar byrjaðir að
æfa sig á skíðum, ættu að
byrja strax í vetur.
Mbl.
BETRA EN MORFÍN
Dr. Walter C. Alvarez, sem er
læknir við Mayoslækningastofu
í Rochester í Minnesota líefir
nýlega ritað lofgrein um nýtt
kvalastillandi meðal ,sem nefn-
ist Dehydromorphinone hydro-
clorid og er fimm sinnum áhrifa
meira heldur en morfin og þó ó-
skaðlegt öllum mönnum, því að
það hefir ekki hin lamandi á-
hrif með sljóleika eftirköstum
morfínsins.
Meðal þetta var fundið upp í
önole-efnasmiðju í Þýskalandi
1926, en hefir verið lítt notað
þangað til læknar í Vesturheimi
kyntust því. Þeir nota það nú
mikið, sérstaklega við sjúklinga
sem þjást af ólæknandi krabba-
meini. '
f grein dr. Alvarez, sem birt-
ist í “Literary Digest”, segir að
meðal þetta stöðvi þjáningar
miklu fljótar og öruggar heldur
en morffn, og sjúklingar, sem
neyti þess, geti verið á fótum
og gengið að vinnu sinni. Lækn-
ingakraft hefir það engan, nema
ef vera skyldi að með því væri
hægt að venja menn af ofnautn
morfíns, og væri það til mikillar
blessunar fyrir mannkynið.
KÍNVERSKIR HERMENN
VERÐA ÚTI
Samkvæmt frétt frá Tokio
hefir japanskt herlið fundið 380
Kínverja sem frosið höfðu í hel
í Mansjúríu við landamæri
Þér sem notiS
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
Birgðir: Henry Ave. East
Phone: 26 356
Skrifstofa:
5. gðlfl, Bank of Hamilton
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
Kóreu. Kínverjar þessir höfðu
verið í bardögum við Japana
og flúið undan þeim upp á fjalla
tind einn. %Þar hófu þeir skot-
hríð á Japana og stóð hún því-
nær látlaust í hálfan mánuð. En
síðan komu kuldar miklir f
Mansjúríu og hætti þá skothríð-
in. Kínverjar sem fundust, lágu
flestir með byssur sínar í skot-
stellingum.
SKRITLUR
Hjálpræðisherskona kom í
fangelsi til þess að tala um
fyrir föngunum. Hún sagði við
einn þeirra: Er það ekki vegna
áfengis ástríðu að þér eruð
hér?.
Fanginn glápti á hana um
stund og mælti svo reiður: Lít
eg sVo heimskulega út að mér
hafi getað dottið í hug að þessi
hola væri veitingastofa?
* * *
Þétur litli (er að virða fyrir
sér nýju loðkápu mömmu sinn-
ar). Ósköp hefir vesalings skepn
an orðið að líða til þess að þú
gætir fengið þessa kápu.
Mamma: Svei, Pétur að þú
skulir tala svona um hann
pabba þinn.
ÍSLENDINGAMOT
Þjóðræknisdeildarinnar “FRÓN”
FIMTUDAGINN 23. FEpRÚAR, 1933.
í Goodtemplarahúsinu
SKEMTISKRÁ:
1. Ávarp forseta.
2. Isl. Söngvar (sex stúlkur í íslenzkum búning)
Undir stjórn Miss S. Halldórsson
3. Duet — Mr. og Mrs. Alex Johnson
4. Ræða — Séra Jónas A. Sigurðsson
5. Einsöngur — Mrs. B. H. Olson
6. Kvæði — Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
7. Elinsöngur — Mr. Ó. N. Kárdal v
8. Double Quartette — Undir stjórn B. Thorlákssons
9. Veitingar.
10. Dans (Nýju og gömlu dansarnir)
Inngangseyrir: 75c Byrjar kl. 8. e. h.
Prentun
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VKING PRESS LTD
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
^ Sími 86-5S7
\