Heimskringla - 08.03.1933, Side 5
WINNIPEG, 8. MARZ 1933
HEIMSKRINGLA
5. SCÐA
veröld þá er ekki vert að kvarta
eða draga niður seglin. Stæðstu
sigrarnir hafa verið unnir í
veröldinni þegar útlitið hefir
verið sem ískyggilegast og jafn-
vel minsta von um sigur, og
máske upp af rústum þessara
hörmunga tíma spretti margt
fagurt, sem mann varla dreymir
um. Eitt er eg viss um, það
beygir ekki viljaþrek þitt, né
skerðir söngrödd þína hina
fögru.
Með ósk um farsæld og sigur
á framtíðarbrautinni, og með
kærustu kveðju frá mér og mín-
um.
G. J. Oleson.
UTAN ÚR HEIMI.
Er kreppunni að linna?
....Norskt blað birtir eftir ára-
mótin greinar frá fréttariturum
sínum víðsvegar um heim, um
fjármálaástand þjóðanna. Mjög
eru skýrslur þessar sitt á hvað,
en sums staðar líta menn bjart-
ari augum á framtíðina nú um
áramótin en t. d, um næstliðin
áramót.
* * *
Frá Þýzkalandi er það sagt,
að birta taki nú yfir þýzkum
atvinnuvegum. Framleiðslan er
tekin að aukast, svo sem fram-
leiðsla kola, járns og ýmsra
vörutegunda, er notaðar eru til
daglegra þarfa.
* * *
f Sviss eru horfur heldur ó-
tryggari. Þar taka menn ekki
ákveðnar til orða en svo, að
menn vonist eftir, að bati sá,
sem fundist hafi í einstöku
iðngreinum, komi brátt í ljós
á flieri sviðum.
I
Odýr Eldiviður
Fyrir hverskonar veðráttu. Spar
ar yður dollara ef þér kaupið
beztu tegund. (Jr undirlögum
námunnar. Mylsnulaus.
BIENFAIT MINE
Lump eða Cobble
$5.50
IWESTERN DOMINION
Lump eða Cobble
j $6.25
i HALLIDAY
2 » BROS., LTD.
J SfMAR:
l 25 337 --37 722
Jón Ólafsson
Sími 31 783 Winnipeg, Man.
í
I
!
(
I
f Frakklandi gerði kreppan
seint vart við sig. En hún varð
brátt þungbær. Nú er sagt að
rofað hafi þar til tvo síðustu
mánuðina fyrir áramótin.
* * *
Indverjar hafa thekjuafgang
á fjárlögum sínum og ágætan
verzlunarjöfnuð. Nú er þar
sæmilegur friður í landinu.
Samstarfið við Breta fer batn-
andi og er þess vænst, að sjálf-
stjórn Indlands sé nú ekki
langt undan’ landi.
* * *
í Ástralíu hafa verið batn-
andi horfur síðan í haust, og
verzlun meiri 1932 en árið áður.
—Mbl.
BRÉF FRÁ KÍNA
(Ólafur Ólafsson trúboði í Kína
hefir beðið Hkr. fyrir bréf
þetta til birtingar).
Þeim, sem fylgst hafa með í
skrifum mínum til kristniboð-
sveina undanfarin þrjú ár, mun
hafa þótt að nokkurrar óvissu
gætti þar um framtíð okkar
sem kristniboða í Kína.
Um tíma leit helst út fyrir að
okkur væri ofaukið hér, á okk-
ar gömlu stöðvum, er ræningja
og kommúnistaherir þrengdu að
á alla vegu. Kínasambandið
norska þarfna^ist alls ekki að-
stoðar okkar, er helmingur
stöðva þess lágu í eyði en
kristniboðarnir þó jafnmargir
og endranær. Um líkt leiti
bárust okkur margar áskoran-
ir, (sumar mjög ákveðnar), um
að hverfa heim aftur til íslands
og starfa þar um stundar sakir
a. m. k. Óþarft er að nefna
hér á hvaða rökum áskoranir
þessar voru bygðar. En ykkur
mun skiljast að þetta tvent,
erfiðar aðstæður hér eystra en
á hinn bóginn góð starfsskil-
yrði heima á íslandi, verði það
að verkum, að við vorum um
tíma á tveim áttum.
Persónulega óskuðum við
einskis annars fremur, en að
geta orðið að sem mestu liði
heima á ættjörðinni, en hins-
vegar gátum við ekki efast um
að Hann, sem hefir kallað okk-
ur til þjónustu á meðal heið-
ingjanna fyrst og fremst, mundi
opna okkur dyr og opinbera
vilja sinn í þessu efni.
Nú munu bréf frá okkur og
greinir hafa borið það með sér,
að við höfum ekki þurft hingað
tii að standa auðum höndum.
Aðstæðurnar hafa að vísu oft
verið erfiðar, en sýnilegur ár-
angur kristniboðs hefir sjald-
“Vertu viss með að legga
peninga ávísan innan í” -f
Notið Royal Bank peningaávísanir þegar þér
viljið senda peninga áhættulaust með pósti. Þær
eru gefnar út á öllum stærðum upp í $100. og
borganlegar allstaðar í Canada, Bandaríkjunum
og Brezku eyjunum — í dollurum eða pundum.
Fáanlegar í öllum fitbúum bankans
The Royal BanR
of Canada
Höfuðstóll og varasjóður $74,155,106
Samtals eignir yfir $700,000,000
Við andlátsfregn
Þorbj'örns Bjarnarsonar Skálds
Til minnis um þig, vinur, eg mæli þessi orð,
— við máttum báðir útlegðina kanna, —
Með sannleikann í Ijóðum þú lýstir Vestur-storð;
en launin smá, eg veit, að þetta sanna.
Því þeir, sem hafa vitið og vilja hugsa rétt,
— það villir um þá flesta í þessum heimi, —
Með þagnarmerkjum fjöldans er saga þeirra sett;
þó sannleikann hér aðeins nokkra dreymi.
Þó fólkið sé hér mentað, það* finnur þetta eitt,
að fyrirmyndir geyma liðnar tíðir. '
Að þora að hugsa sjálfstætt, það var svo fáum veitt
og vonir þeirra eins og kólna’ um síðir.
Um öræfi og vegleysur að leggja’ í sannleiks leit,
og láta til vor fréttir þaðan berast.
— Að rita þeirra sögu, það vandasamt ég veit,
það vita fáir hvað þar er að gerast.
Og heilsuleysi og fátæktin, þar fylgja flestum þeim,
sem fara vilja sínar eigin leiðir.
Við þekkjum svona flestir þá græðgi í gróðans heim,
á glapstigu sem allan fjöldann seyðir.
Og það vlar þetta, vinur, sem særði þína sál;
og söngur þinn varð þrumustormi líkur.
Og móðurmálið hjá þér varð' beitt, sern bezta stál,
þars blóðug sárin hylja rændar flíkur.
En vesturheimskan íslenzka, hún er hér söm við sig:
og syngur um það lof í öllum blöðum,
og yfirlætið birtist, hún eignast hafi þig
á íslenzkunnar fátækustu stöðum.
Og vinir þínir drúpa í helgri hugar þögn,
og hugsa um þig, vinur! ekki dáinn!
Því sorgin skerpir trúna á sérstök andleg mögn.
Á sálu þinni rætist eilíf þráin!
Þú fyrirgefur, vinur, hvað fátækt þetta varð,
þér fylgir hugur andans huldu leiðir.
í hópinn þann, sem yrkir, er höggvið stærsta skarð,
og hinum bráðum tímalengdin eyðir.
SigurSur Jóhannsson.
an verið hér meiri en einmitt
þenna erfiða reynslu tíma, eins
og sj ámá af breéfum til kristni-
boðsveina t. d. nr. XXX og nr.
XXXIV.
Eg get ekki munað að við
nokkurn tíma höfum tekið von-
glaðari til starfa að haustinu
en nú. Þær fjölskyldur sam-
verkamannanna okkar norsku,
sem á síðast liðnu vori fluttust
til Kuling, eru allar komnar
aftur. Eftir að ræningja og
kommúnistaherirnir hafa ýmist
verið gereyddir eða reknir til
fjarlægari landshluta, hefir nú
verið hægt að hefja starf aftur
á kristniboðsstöðvunum öllum,
sem við urðum að yfirgefa um
tíma.
Eg kom hingað til Tengchow
með fjölskyldu mína snemma í
september. Þetta langa ferða-
lag var enginn leikur þótt börn-
—
LANDNEMINN
(Hann reis upp úr gröf sinni eftir 50 ár.)
Hann reis upp úr gröfinni hraustur og hress
og hristi’ af sér fimtuga mold,
og svipurinn ljómaði’ af þakklæti þess
að þyngdu’ ekki tuskur né hold.
Við svefninnn og friðinn í fimmtíu ár
hve fagurt var draumlandið hans!:
því niðjarnir uxu til frægðar og fjár
í faðmi hins algóða lands.
Hann mundi hvað glíman var lamandi’ og löng
við lífið á þessari jörð,
hve brekkan var örðug, hve brött og hve þröng
var brautin, sem honum var gjörð.
Hve fjöldamörg vonin í fæðingu dó,
hve förlaðiset hamingju leit. —
En eitt var í fyrndinni þungbærast þó,
og það var — að dæmast á sveit.
Því fanst honum sjálfsagt að flýja þann dóm
og flytja sig vestur um haf. —
Þó elskaði’ hann jafnan hvert einasta blóm,
sem fslandi hamingjan gaf.
Hve landneminn átti hér örþrönga skó,
það einungis skaparinn veit;
en ánægður var hann og þakklátur þó,
að þurfa’ ekki’ að dæmast á sveit.
Ef bróðir hans átti’ ekki björg eða hús,
ef brauðvana systur hans kól,
þá bauð hann þeim seinasta bitann sinn fús
og bygði þeim sæmilegt skjól.
Við sjálfan sig mælti hann, er mintist hann þess,
hve mannlega skldi’ ’hann við hold.
“Nú rís ég úr gröfinni hraustur og hress
og hristi’ af mér fimtuga mold.
r > —
Hve sæl verður stundin! Að sækja þá heim,
og sjá þeirra eining og völd,
því drottinn mér leyfði að dvelja með þeim
í dag — eftir hálfnaða öld.”
Og það var að sjá, sem hann þyldi’ ekki við,
hann þaut eins og örskot af stað;
en signdi sig áður að íslenzkum sið —
Hún amma hans kendi’ honum það.
Á fólkið sitt alskygnum augum hann leit. —
En ánægju svipurinn hvarf,
því dugandi menn sá hann dæmda á sveit
og drukkinn út landnemans arf.
Hann vatt sér í gröfina, vafði sig mold
og vonbrigði hnykluðu brár----------
Hann dreymir nú kvalið og klæðlítið hold
í komandi fimtíu ár.
Si,g. Júl. Jóhannesson.
in séu ekki nema þrjú og það
yngsta orðið árs gamalt.
Þið getið séð okkur í hugan-
um, er við leggjum af stað frá
Kúling. Pjönkurnar höfum við
bundið í 40-50 punda bagga.
Burðarmennirnir eru komnir
þrefalt fleiri en við þörfnumst.
Þeir fara að skifta farangrin-
um á milli sín og semur þá á-
líka vel og hröfnum um hræ.
Þeir sækjast eftir þyngstu
böggunum, enda er þeim borg-
að eftir vigt og geta þeir þá
unnið sér inn margföld dag-
laun á nokkrum klukkustund-
um. En mannúðlegra hefði
verið að leggja þessar þungu
klyfar á íslénska burðarklára.
Svo leggja þeir af stað með lang
ar stengur um þvera öxl og
hanga baggar á stangarendun-
um. Við rekum svo lestina,
eldri börnin tvö í einum burð-
arstól en konan með yngsta
barnið í öðrum, og eg aftastur
fótgangandi. Frá rótum fjalls-
ins ökum við í bifreið og erum
nokkrum klukkustundum síðar
komin um borð í enskt farþega-
flutningsskip. Við komum til
Hankow daginn eftir síðla en
ferðumst þaðan með járnbraut
nokkur hundru,ð^km. norður í
Honan hérað. Síðasta spott-
ann, frá járnbrautinni og til
Tengchow, ökum við í bifreið,
en það eru 250 km.' Vegna
rigninga vegalengd ekki bílfær
fyr en eftir 8 daga bið.
Fyrsta vikan hér gekk í nefndar
störf og því næst varð eg að
sækja kirkju og trúboðsþingið
í Lachokow. Þegar þetta er
skrifað hefi eg hjólað snöggva
ferð til útstöðvanna, en þessa
viku höldum við útbreiðslu eða
trúboðs samkomum hér í bæn-
um þrjár á dag.
íslensk blöð hafa sagt það
mikið frá óeirðunum norður í
Mansjúriu að ykkur kemur
varla á óvart þótt ekki verði
úr ferðalagi mínu þangað að
sinna. — Bið eg ykkur svo
virða á betri veg að fljótskrift
hefir orðið á þessu bréfi, en
úr því get eg ef til vill bætt
síðar.
Tengchow, 10—10—3
Ólafur Ólafsson.
Innköllunarmenn Heimskringlu:
f CANADA:
Arnes.....................
Amaranth .................
Antler....................
Árborg ...................
Baldur....................
Beckville ................
Belmont ..................
Bredenbury................
Brown .. •• •• •• •• •• ••
Calgary...................
Churchbridge..............
Cypress River.............
Dafoe, Sask., ............
Ebor Station................
Elfros....................
.. F. Finnbogason
... J. B. Tb’!h,f'rsson
.. .. Maenús Tait
.. G. O. Einarsson
. Sigtr. Sigvaldason
.... Björn Þórðarson
........G. J. Oleson
....H. O. Loptsson
Thorst. J. Gíslason
Grímur S. Grímsson
. Magnús Hinriksson
.. .. Páll Anderson
.... S. S. Anderson
.. .. Ásm. Johnson
J. H. Goodniundsson
Eriksdale ..........................•>... Ólafur Hallsson
Foam Lake............................. . •• John Janusson
Gimli................................................. K. Kjemested
Geysir................................ Tím. Böðvarsson
Glenboro....................................G. J. Oleson
Hayland..................................Sig. B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa.........0 bc*i ................Gestur S. Vídal
Hove....................................Andrés Skagfeld
Húsavík.................................John Kernested
Innisfail .......................... Hannes J. Hiinfjörð
Kandahar ................................ S. S. Anderson
Keewatin . .•.........................................Sam Magnússon
Kristnes................................Rósm. Árnason
Langruth, Man............................... B. Eyjólfsson
Leslie................................Th. Guðmundsson
Lundar .................................... Sig. Jónsson
Markerville ......................... Hannes J. Húnfjörð
Mozart, Sask................................ Jens Elíasson
Oak Point...............................Andrés Skagfeld
Otto, Man...................................Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Poplar Park.............................Sig. Sigurðsson
Red Deer ........................ Hannes J. Húnfjörð
Reykjavík................................... Árni Pálsson
Riverton ............................. Björn Hjðrieifsson
Silver Bay .........................•••• Ólafur Hallsson
Selkirk..................................... Jón ólafsson
Siglunes...................................Guðm. Jónsson
Steep Rock ................................. Fred Snædal
Stony Hill, Man.............................Björn Hördal
Swan River............................. Halldór Egilsson
Tantallon...............................Guðm. Ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Víðir...................................Aug. Einarsson
Vogar...................................Guðm. Jónsson
Vancouver, B. C ......................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.................-..........
Winnipeg Beach..........................John Kernested
Wynyard.................................S. S. Anderson
f BANDARTKJUNUM:
Akra ....................................Jón K. Einarsson
Bantry.................................... E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash........................ John W. Johnson
Blaine, Wash................................ K. Goodman
Cavalier .............................. Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg.............................Hannes Björnsson
Garðar.....................................S. M. Breiðfjörð
Grafton..................................Mrs. E. Eastman
Hallson....................................Jón K. Einarsson
Ivanhoe..................................G. A. Dalmaúa
Milton......................................F. G. Vatnsdal
Minneota.................................C. V. Dalmann
Mountain...............................Hannes Björnsson
Pembina..............................Þorbjöm Bjarnarson
Point Roberts ........................... Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. MiddaJ, 6723—21st Ave. N. W.
Svold ................................. Jón K. Einarsson
Upham..................................... E. J. Breiðfjörð
TheViking Press, Limited
Winnipeg, Manitoba
/
/