Heimskringla - 31.05.1933, Page 3
WINNIPEG, 31. MAÍ 1933
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA.
Phone 22 »3S Phone 25 237
HOTELCORONA
20 Rooms Wlth Rath
Hot and Cold Water tn Bvery
Room. — $1.50 per day and up.
Monthly and Weekly Rates
on Request
Cor. Main & Notre Dame East
WINNIPEG, CANADA
Hin sem eru á lífi, eru Gísli í
Livemore, Calif., Sigurður í Ver-
non, B.C., Guðlaugur í Marker-
ville, Valdimar, og dóttir, Hall-
dóra; er hún búsett að Red Deer
«
gift H. Johnstone, enskum
manni Guðlaugur og Valdimar
hjálpsöm í öllum félagsmálum, eiga enskar konur, búsettir að
og elskulegasta kona heim að | Markerville, Valdimar á höfuð-
sækja. Fáum konum hefi eg bóli föðursins.
mætt, sem taka henni fram — I Að minnast samferðamanna
ef nokkrum. Þegar hún fór var er ganga úr lesta-ferð lífs, án
henni hadið kveðjusamsæti í þess að gera þá að dýrðlingi í
Blaine af Fríkirkjusöfnuði. Eg dánarheimum, er að feta í fót-
var þar ekki — en veit, að það spor sagna ritara vorra á fyrri
hefir verið í 'sama anda og öldum, og vér dáum þá fyrir.
kveðjusamsæti það er manni Jón Sveinsson tilheyrði engum
hennar var haldið. Það var. kirkjuflokkssöfnuði eða stjórn-
fyllilega verðskuldað. málaflokki en hann gaf meira
Megi Guð og gæfan blessa í þarfir safnaðarmála og mis-
framtíð þeirra hjóna og barna j sionera, en margan grunar,
þeirra, er sameiginleg ósk hinna meðan eg var ritari og
mörgu vina þeirra hér vestra.
M. J. B.
* * *
Blaine Journal:
Flytur þá frétt fimtudaginn
20. apr. s. 1. að ungfrú Elizabet
dóttir Magnúsar Kaupmanns
Þórðarsonar í Blaine (Þórðar
meðan eg
féhirðir Alberta safnaðarins, frá
frá bvrjun og að dánar dægri.
Var hann skilvísasti á tillög sín, |
meðlimur Lestrarfélagsins. “Ið- j
unn” og las manna mest eldri
og yngri bækur þess, og kunni
margt úr þeim í bundnu sem
óbundnu máli utan bókar. Hann !
frá Hattardal) og hr. J. A. Key, gladdi hina fátæku fjármuna-
frá Fletcher, Oklahoma voru lega, er hann hafði aldrei í há-
gefin saman af sr. Erling K.
Ólafsson í Resurrection Lúter-
sku kirkjunni í Juneau, Alaska,
sem hann þjónar, 2 apr. s. 1.
Ungfrú Elizabet útskrifaðist af
mælum. Afskiftalítill um sveita
eða héraðs mál, og því vinsæll,
en Þóra ekkjan hans er var
höfuð prýði bónda síns, lét
skíra, ferma og uppfræða
Blaine háskóla, seinna frá, börn þeirra að lúterskum sið.
Washington State College í Fyrir 3 árum bygði Jón þeim
Pullman, og seinna frá Grays
Harbor Business College. Mað-
ur hennar J. A. Key er og stud-
hjónum snoturt elli-heimili að
Markerville, þar er Þóra hefir
2 kýr og stórt hænsnabú, situr
ent frá Eastern Oklahoma Col- þar í ástsæld af börnum og
lege í Wilburton. Mrs. J. A. Key barnabörnum sínum og öllum
hefir verið hjá systur sinni og héraðs búum og líður ljómandi
tengdabróðir Kristínu og Erl-
ing K. ólafsson í Juneau s. 1.
ár. Blaðið getur þess að hr.
Key sé félagi í Pantorium
Cleaners. Allir vinir þeirra óska
þeim hinum ungu hjónum góðr-
ar framtíðar.
M. J. B.
JÓN SVEINSON
fæddur 26. apríl 1858
dáinn 11. maí 1933
Jón var fæddur að Brautar-
holti á Kjalarnesi í Gullbringu-
sýslu. Voru foreldrar hans
Sveinn Guðnason og Margrét,
er þar voru búsett. Er mér
ætt hans ókunn og systkina,
hvert að eru lífs eða liðin. Jón
fluttist einn ættmanna sinna j an troðfull og fjöldi fólks fylgd-
vel.
Jón heitinn var hin síðari ár
bilaður á heilsu af brjóstveiki
(lungnatæring) og dó úr
lungnabólgu. Hin síðari missiri ’
var hann þjáður af þvagteppu.'
Mun því verið hafa hvíldin kær.
Útfarar athöfn fór fram frá
kirkjunni í Markerville, séra P.
Nyholm, danskur lúterskur
prestur stóð fyrir hinni prest-
legu athöfn. Séra Pétur Hjálms-
son flutti á íslenzku hjartnæma
skilnaðar kveðju bænda öld-
ungins góðkunna meðal sveit-
unga sinna um 30 ára skeið í
þessari bygð. Gamlir 6 íslenzkir
bænda öldungar báru hann til
grafar, en enskur útfararstjóri
frá Innisfail, sér um allar jarð-
arfarir hér um pláss. Var kirkj-
ist með að grafreit, sem er um
3 mflur fíá kirkjunni. Missagnir
um ártöl ef eru nokkrar eru
ættingjar og vinir beðnir að
virða á hægra veg.
24. dags maímánaðar 1933.
J. Björnson.
—Innisfail, Alta.
að eg held til Canada árið 1887.
Vann hann á ýmsum stöðum
fyrstu árin, eða þar til árið
1893, að hann gekk að eiga
ekkju- — frú Þóru Gísladóttir
Gíslasonar og Solveigar Þorkels
dóttur frá Skildinganesi við
Reykjavík; bjuggu foreldrar
Þóru að Reykjakoti í Mosfells-
sveit og víðar. Guðmundur
fyrri maður Þórunnar Guð-
mundsson talin frá Miðdal í Skólarnir
Mosfellssveit. Þau giftust á ís- á Laugarvatni og Reykholti
landi, fóru rakleitt til Church- hættu að þessu sinni nokkru
bridge-nýlendu í Sask; lifðu þar fyrir sumarmálin. Eru þeir nú
aðeins fá ár í ástuðlegu hjóna- þeir skólar á landinu, er njóta
bandi; þar andaðist Guðmund- einna mestra vinsælda. Á Laug-
FRÁ ÍSLANDI
ur. Eignuðust þau eina dóttir,
Gróu að nafni, nú gift Eiríki
arvatni stunduðu nám í vetur
115, en í Reykholti 75, og mátti
Gíslasyni Eiríkssonar; búa góðu segja, að á síðarnefnda staðn-
búi að Markerville og eiga 4 j um Væri yfirfult af nemendum.
t>öm. | Fæðiskostnaður á Laugarvatni
Jón Sveinsson kom til Al- j va,jrð aðeins kr. 1,25 fyrir pilta
berta nýlendunnar að mig minn- j Gg 1 kr. fyrir stúlkur á dag, en
ir 1902 eða stuttu eftir aidamót- þ0 Varð fæðið ennþá ódýrara
in; keypti byggingar og bú á | f Reykholti. Hver karl og kona,
ómældu landi er Einar Hnappdal sem á skólum þessum dvelur tná
sat á, mílu' neðar með Medicine | segja að verði synd sem selir.
á, en þorpið Markerville. Bjó Auka sundlaugarnar mjög vin-
þar blóma búi og eignaðist fimm sældir þeirra og hreysti og
lönd, skuldlaus, og margt gang-
andi fé.« Keypti Eimskipafélags-
hluti ísland um eða yfir tólf
hundruð krónur, og töluvert af
Victory Bonds Canada. Mátti
framför nemendanna. 1 Reyk-
holti var almenn framför nem-
endanna mjög áberandi, t. d.
þyngdist sumt af fólkinu þar
alt að \ kg. á viku yfir allan
því auðsæll kallast, og kynsæll.! veturinn. — Það deila sumir á
Eignaðist með Þóru konu sinni
fimm sonu og eina dóttir, öll
upp komin og gift hérlendum,
utan Guðmundur Tómas elsti
sonur þeirra, er átti íslenzka
þessa skóla fyrir hve dýrt hafi
verið að reisa þá. Og auðvitað
hefir það kostað allmikið fé, þó
að bæði Laugarvatnsskóli og
Reykholts kosti þjóðina saman-j
konu Þórdísi Bjiörnsdóttir og , lagt ekki meira en meðal “eftir-
með henni fimm börn. Aridaðist gjöf” til eins kaupsýslumanns.
hann 13. nóv. 1931, áður getið. En þó að ýmsir virðist vera á-
nægðir fyrir þjóðarinnar hönd
yfir að eiga bústinn gjaldþrota
“spekúlant”, þá verða hinir
fleiri, sem ánægðari eru yfir að
geta veitt um 200 unglingum
skólavist á hverjum vetri við
þau ódýrustu kjör og heilnæm-
ustu skilyrði, sem fósturjörðin
hefir að bjóða börnum sínum.
—Tíminn.
Spítalinn í Stykkishólmi
Frá Stykkishólmi er blaðinu
skrifað un; hinn nýja spítala
sem þar á að reisa á þessu
sumri fyrir forgöngu Meulen-
bergs biskups í Landakoti.
Upprunalega kom til orða, að
þarna yrði reistur spítali eða
sjúkraskýli fyrir fé það er þar
var handbært um 20. þús. kr.
Voru í sjúkrasjóði til 15 þús. kr.
en sýsluframlag 6 þús. kr. Hafði
Jónas Jónsson komið auga á
þetta fé til byggingar spítala er
sýslan ræki.
En fyrir milligöngu Óskars
Clausen kaupmanns tókst að
vekja áhuga Meulenbergs bisk'-
ups fyrir þessu spítalamáli. Með
hinum alkunna dugnaði sínum
fekk hann Fransiskana-regluna
í Brussel til að leggja fram féð
og er nú fengið um 230 þús. kr.
til byggingarinnar.
Sigurður Guðmundsson húsa-
meistari hefir gert uppdrætti 'að
spítalabyggingunni. En byrjað
verður á verkinu þ. 1. ágúst í
sumar.
Fransiskanar reka spíalann,
og er sýslan laus við þann til-
kostnað og áhættu alla. En
80—100 þús kr. verða greidd í
vinnulaun í héraðið við bygg-
inguna.
Stykkishólmsbúar og héraðs-
menn eru Óskari Clausen mjög
þakklátir fyrir ötula forgöngu
hans í þessu máli. — Mbl.
f Reykholti
Ungmennafélög í Noregi hafa
ákveðið að reisa Snorra Sturlu-!
syni minnismerki í Reykholti.!
— Ætlast forgöngumenn til
þess að gerður verði trjálundur i
á staðnum, og efnt til hans á
þessu sumri. En minnismerkið j
verði reist árið 1941.
Þegar gera á slíkan minning- |
arreit á þessum sögufræga
stað, rennur manni til rifja hve
villimannlega hefir verið farið
með það eina mannvirki, sem
ber þar nafn Snorra, og staðið
hefir þessi 700 ár, síðan hann
var þar starfandi.
Eins og kunnugt er, er Snorra
laug sunnan við bæjarhólinn í
Reykholti, og var aðlíðandi tún-
brekka frá lauginni upp að
bænum.
En nú er reistur skóli í sÓmu
brekkunni og jafnvel hugsað um
að lengja þá byggingu svo liún
komi í brekkuna á móts við
laugina. Við þetta mikla stein-
hús getur Snorralaug mint á
einskonar þakrennupoll.
Trjálundur — minningarreit-
ur Snorra, ætti vitaskuld að
umlykja laugina. En með þeim
mannvirkjum, sem byggingaó-
vitar hafa þar unnið hin síðari
ár, verður erfitt að koma því
fyrir svo vel fari. — Mbl.
Innlend lífsábyrgðarstofnun.
Jóh. Þ. Jós. og J. Ottesen
flytja svo hljóðandi þál. tillögu:
“Neðri deild Alþingis ályktar að
skora á ríkisstjórnina að láta
undirbúa og leggja fyrir næsta
þing\ frv. til laga um innlenda
lífsábyrgðarstofnun”. — Benda
flm. á í grg., að einkum myndi
tvent geta áunnist við það að
slík innlend stofnun starfaði
hér. Annað það, að hinir trygðu
hefðu hið fylsta öryggi fyrir
tryggingum sínum, því að slík
stofnun hefði að sjálfsögðu rík-
isábyrgð. Hitt væri það, að þeir
sjóðir, er smátt og smátt myndu
safnast, yrðu kyrrir í landinu
og það væri mikilsvert fyrir
okkar peningalitla land.
0V0V°
Sovétvinafélag
er nýlega stofnað hér á Akur-
eyri. — í þessu vinafélagi kom-
múnista eru helztu mennirnir:
Sigfús Halldórs frá Höfnum,
Lárus J. Rist spítalaráðsmaður,
Stefán Árnason, kaffisali, Þor-
lákur Jónsson bæjarfógetaskrif-
ari, Halldór Halldórsson bygg-
ingafulltrúi og Samúel Krist-
bjarnarson rafvirki.—Kommún-
ista-vinirnir voru alls 24, sem
að félagsmynduninni stóðu —-
en kommúnistar vona að vin-
unum fjölgi. — ísl.
°V°V°
Gjalþrot Síldareinkasölunnar.
Jóh Jósefsson flytur á Al-
þingi svohljóðandi fyrirspurnir
til atvinnumálaráðherra: “Hvað
líður störfum skilanefndar þeirr
ar, sem skipuð var til ráðstöf-
unar á þrota búi Síldareinkasölu
íslands í des. 1931? Hversu
miklu nemur tap ríkissjóðs
vegna ábyrgða og ógreiddra
tolla? Hversu mikið er tap ann-
ara lánardrottna? Hverjar or-
sakir lágu til gjaldþrotsins?”
°V°V°
Mannskaðar
Eftir því sem stedur í seinasta
hefti Ægis hafa 28 íslenzkir
menn farið í sjóinn á tímabilinu
1. janúar til 24. marz 6 með
Kveldúlfi af Akranesi, 9 af
Papey, 4 af Óskabirni í Grinda-
vík, 1 af Arinbirni hersi, 4 með
bát úr Höfnum og 4 hafa
hrokkið út af bátum. Þetta er
mikil blóðtaka fyrir hina fá-
mennu þjóð vora, á ekki lengri
tíma. Hvenær tekst oss að
fækka sjóslysunum svo um
munar?
°V°V°
Til Rússlands
hefir Jóhann Frímann kennari
verið sendur af Sovétvinafélags-
deildinni hér, til þess að njóta
gestavináttuboð ráðstjórnarinn-
ar um nokkra daga. Gunnar
Jóhannsson form. Verkamanna-
félags Siglufjarðar og þrír sunn-
lendingar, þar á meðal form.
“Hins ísl. prentarafélags”, hafa
einnig verið sendir til að njóta
gestavináttunnar. — Eiga svo
fimm menningarnir að flytja
til islands “sannar sögur af á-
standinu í Rússlandi” — eftir
að hafa dvalið þar sólarmegin í
rúma viku. — ísl.
°V°V°
Nýtt vikublaS
hljóp af stokknum í Reykjavík
á laugardaginn var og nefnist
það “Framsókn”. Ritstjórinn er
Arnór Sigurjónsson á Laugum,
en útgafu stjórnina skipa
Tryggvi Þórhallsson banka-
stjóri, Þorsteinn Briem ráðherra
og Svafar Guðmundsson banka
ráðsmaður. Blaðið auglýsir sig
“bændablað” og “samvinnu-
blað”. — Dagur.
Sigurður Eggerz
fyrv. forsætisráðherra, ,hefir rit-
að bók, er heitir “Stjórnmál” og
er nýkomin út. Verð 2 kr. Sig.
Eggerz er nú á förum vestur á
ísafjörð til þess að taka þar við
bæjarfógetaembættinu.
°vov°
Áfengisnautn
Læknar gera yfirleitt lítið úr
áfengisnautn í landinu, enda
mun daglegur drykkjuskapur
naumast þekkjast utan Reykja-
víkur og stærstu kaupstaðanna.
Á skemtisamkomum úti um
landið eru menn þó ekki eins
grandvarir og áður. Úr brugg-
inu gera læknar heldur ekki
mikið'; þó mun allvíða vera kák-
að við það, en naumast svo að
kveði nema í grend við Reykja-
vík, og mun þar vera aðalmark-
aðurinn.
(Heilbrigðisskýrslur).
ov0v0
Færeyjaför.
8. bekkur A í Austurbæjar-
skólanum, drengjabekkur, sem
Aðalsteinn Sigmundsson kennir,
leggur aí stað í náms- og kynn-
isför til Færeyja á “Lyra” næst-
komandi fimtudag. Verður viku
viðstaða í eyjunum, og sér fær-
eyska kennaraféiagið um mót-
tökur þar og vistar drengina á
færeyskum heimilum. — Dagur.
:v°v° •
Þjóðaratkvæði um bannmálið.
Allsherjarnefnd n. d. alþingis
hefir flutt svohljóðandi þáltill. í
sameinuðu þingi um bannmáið:
“Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta fara fram
þjóðaratkvæði á þessu ári um
það, livort afnema skuli bann
það gegn innflutuingi áfengra
drykkja, er felst i aildandi á-
fengislöggjöf.” — Alþbl.
Þér sem notið
TIMBU R
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BirgBir: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
BÆNDAFUNDURINN
Bændafundurinn um kreppu-
mál landbúnaðarins var settur í
“Iðnó” fimtud. 6. þ. m. Mættir
eru þar um 40 bændafulltrúar,
en auk þeiiTa hafa sótt umræð-
ur margt bænda, sem staddir
eru í bænum. Eru mjög margir
þeir bændur, sem á þessum
fundi mæta, jafnframt fulltrúar
á flokksþingi Framsóknar-
manna.
Á fimtudag stóðu umræður
mikinn hluta dags, og var þeim
útvarpað. Efni þeirra skal því
eigi rakið að þessu sinni.
Fundurinn starfar nú í nefnd-
um, og eru þær svo skipaðar:
Fasteignaveðlánanefnd. Ólaf-
ur Bjarnason, Brautarholti, Kol-
beinn Högnason, Kollafirði,
Sverrir Gíslson, Hvammi, Gunn-
ar Grímsson, Húsavík, Sigur-
grímur Jónsson, Holti, Þor-
steinn Sigurðsson, Vatnsleysu,
Guðmundur Jónsson, Holti.
Kreppulánasjóðsnefnd, Jónas
Björnsson, Gufunesi, Páll Stef-
ánsson, Ástólfsstöðum, sr. Eir-
íkur Albertsson, Hesti, sr. Jón
Guðnason. Prestsbakka, Siaurð-
ur Tómasson, Barkarstöðum,
Hannes Pálsson, Undirfelli, Þor-
bergur Þorleifsson, Hólum.
Verðgildisnefnd. Hafsteinn
Pétursson, Gunnssteinsstöðum,
Guðmundur Jónsson, Hvítár-
bakka, Davíð Þorsteinsson, Arn-
bjargarlæk, Guðmundur Þor-
bjarnarson, Stóra-Hofi, Gísli
Magnússon, Eyhildarholti.
Búrekstursnefnd. Jakob Lín-
dal, Lækjamóti; Jón Sigurðsson,
Reynistað, Stefán Jónsson* Ey-
i vindarstöðum, Gunnar Þórðar-
' son Grænumrartungu, Kristján
Ólafsson Seljalandi.
Bygðaskipulagsnefnd. Björn
^Konráðsson, Vífilsstöðum. Júl-
| íus Bjarnason Leirá, Friðrik
Arnbjarnarson Stóra-ósi, Jó-
hannes Davíðsson, Hjarðardal,
Magnús Finnbogason Reynis-
dal.
Allsherjarnefnd. Jón H. Þor-
begsson Laxamýri, Friðjón Jóns
son Hofsstöðum, Kristján Breið-
dal, Jörfa, Rúnólfur Jónsson
Svínafelli, Alexander Guð-
mundsson Grund.
Álýktanir hefir fundurinn enn
j eigi gert, þar sem málin eru nú
jí höndum nefndanna til athug-
unar.
Það er sérsaklega athyglis-
iert, að eitt þeirra aðalmála,
sem þessi -* kreppumálafundur
bændanna tekur til meðferðar,
. er skipulagning nýrrar bygðar í
; sveitunum, sem hvað eftir ann-
-að hefir verið ritað um hér í
I blaðinu í liaust og vetur. Sýnir
i það, að bændastéttinni sjálfri er
fullkomlega ljós þýðing þessa
! stcrmerkilega nýmælis fyrir
i íramtíðarmögueika landbúnað-
arins á íslandi. Vel sé bænda-
i fundinum fyrir slíka framsýni,
á svo dimmum dögum, sem nú
eru.—'Tfminn.
Prenlun
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leysL Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
ó
THE VIKING PRESS LTD.
• \
i
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
Sími 86-537