Heimskringla - 12.07.1933, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 12. JÚLÍ 1933
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA.
PknlF 22 931 PhnBF 25 237
HOTEL CORONA
26 Rnoma Wlth Bnth
Hot and Cold Watep tn Bvery
Room. — $1.50 per day and up.
Monthly and Weekly Ratea
on Request
Cor. Matn & Notre Dame East
WINNIPEG, CANADA
MINNINGARORÐ
Sunnudaginn 25. júní andað-
ist að heimili sínu 1124 Wood-
stock Ave., Victoria, B. C., Ein-
ar Brandson, 72 ára að aldri.
Banamein hans var ólæknandi
innvortis meinsemd. Mr. Brand-
son var fæddur 15. nóv. 1861 í
Reynis-hjáleigu í Mýrdal í Vest-
ur-Skaftafellssýslu á íslandi.
Poreldrar hans voru þau hjón-
in Brandur Einarsson og Kri-
stín Einarsdóttir sem lengi |
bjuggu í Reynishjáleigu. Sum- .
arið 1886 fluttist hann til Ame-
ríku, dvaldi eitt ár í Pembina,
N. D., þaðan flutti hann vorið
1887 til Victoria, B. C., og dvaldi
þar til dauðadags.
8. maí 1888 giftist hann Sig-'
ríði Einarsdóttir frá Miðhvoli í
Mýrdal. Misti hana 1927. Þau
eignuðust 4 börn, 1 stúlku og
3 drengi. Margrét, Bjarni,!
Brandur og Guðmundur, öll
upp komin og nú sem stendnr !
öll til heimilis í Victoria, B. C.
Pyrstu árin eftir að Mr. |
Brandson kom til þessa lands, j
stundaði hann algenea vinnu.!
t 7 ár vann hann við blóm-
jurta-garð hiá Crease dómara
hér í borginni.
Árið 1902 veittist honum sú
staða að verða umsjónar maður
kirkjugarðs hér (superintend-
ent of Ross Bay Cemetery),
hefir hann gengt þeim starfa í
31 ár, reyndist hann því verki
vel vaxin.
Árið 1928 giftist Mr. Brand-
son í annað sinn, Mrs. Guð-
rúnu Olson. Pofeldrar hennar
voru Jón bóndi Árnason f Eyj-
arhólum í Mýrdal f Vestur-
Skaftafellssýslu, og Guðríðúr
Eyjólfsdóttir frá Steig í Mýr-
dal í sömu sýslu. Lifir hún
mann sinn.
Einar Brandson var mætur
maður í hvívetna, er mjög sárt
saknað af aðstandendum og
öllum sem hann þektu.
Blessuð sé minning hans.
(Blöðin í Reykjavík á íslandi
eru vinsamlega beðin að birta
þessa dánarfregn).
verið við völd um árs bil, því að
hann gerðist kanslari þ. 20.
maí 1932. Hann hefir barist
djarft og höggvið til beggja
handa, barist við “Marxistana”
annars vegar, en þjóðernisjafn-
aðarmenn hins vegar. En um
leið og hann hefir átt í höggi
við þessa tvo flokka, sem báðir
eru öflugir, hefir Dolfuss tekist
að bæta mjög fjárhag ríkisins,
eins og margvottað er af fjár-
málafræðingum alþjóðabankans
og fjármálanefnd Þjóðbanda-
lagsins. Mælt er, að Dolfuss
hafi sýnt svo frábæran dugnað
í að rétta við fjárhag ríkisins,
að einsdæmi megi heita í Ev-
rópu á síðari árum. Nýtur hann
því mikils álits heima fyrir og
erlendis og hefir álit manna á
honum aukist mjög fyrir bar-
áttu hans gegn þjóðernisjafnað-
armönnum, sem eru taldir vera
studdir mjög öfluglega af þýsk-
um skoðanabræðrum sínum.
—Vísir. '
ÞINGKOSNINGARNAR
Ný framboð
VIÐSKIFTAMÁL
AUSTURRfKISMANNA
og Lundúnaráðstefnan
Vínarborg í júní
Austurríkismenn eiga við
mörg vandamál að stríða og
hafa átt alt frá því friðarsamn-
ingarnir voru gerðir. Austur-
ríkismenn gera sér nú þær von-
ir, að eitthvað verði gert á við-
skiftamálaráðstefnunni í Lon-
don, til þess að létta róðurinn
fyTÍr sér, eitthvað, til þess að
bæta um fyrir það, hvernig með
Austurríki var farið, er friðar-
samningarnir voru gerðir, því
til þeirra má rekja viðskifta-erf-
iðleika Austurríkismanna. En
viðskiftamálin eru ekki einu
vandamálin, sem Austurríkis-
menn eiga við að stríða. Þjóðin
er þrískift í stjómmálunum eða
skiftist, réttara sagt, í þrjá
sterka flokka eða flokkasam-
steypur. Á að giska einn þriðji
hluti þjóðarinar er sagður hlynt
ur þjóðernisjafnaðarmönnum og
leiðtogar þeirra, sem mjög dá
Hitler, en hann er Austurríkis-
maður, sem kunnugt er, spá
því, að þeir nái völdunum í
landinu innan árs. Ánnar þriðji
hlutinn óttast það meira en alt
annað, að þjóðernisjafnaðar-
mennkomist til valda, en taka
eigi virkan þátt í baráttu gegn
þeim. — Þriðji hlutinn er stað-
ráðinn í að berjast gegn þjóð-
ernisjafnaðarmönnum með oddi
og egg. Leiðtogi þessara manna
er lítill maður og ekki þrekleg-
ur, kanslari austurrísku sam-
bandsríkjanna, Engelbert Dol-
fuss, en hann er maður ákveðin
og viljasterkur. Hann hefir
SVEITAR HARMUR
Tilefni þessara erinda var dauði þriggja kvenna í áþekkum
kringumstæðum, innan 4 mílna svæðis, innan tólf daga — sex
mannslíf burtu hrifin, á tilfinnanlega sorglegan hátt, því rétt-
nefnt sveitar harmur. Þessi erindi eru tileinkuð nánustu að-
standendum þeirra kvenmanna sem af íslenzku bergi voru
brotnar.
í Vestmannaeyjum verður í
kjöri af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins Jóhann Þ. Jósefsson útgerð-
armaður.
í Norður-ísafjarðarsýslu verð-
ur í kjöri af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins Jón A. Jónsson út-
gerðarmaður.
í Árnessýslu verða í kjöri af
hálfu Sjálfstæðisflokksins Lúð-
vík Norðdal læknir og Eiríkur
Einarsson 'bankafulltrúi, af
hálfu Framsóknarflokksins Jör-
undur Brynjólfsson bóndi og
Magnús Torfason sýslumaður
og af hálfu Alþýðuflokksins
Ingimar Jónsson skólastjóri og
Einar Magnússon kennari.
f Austur-Skaftafellssýslu verð
ur í kjöri af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins Stefán Jónsson bóndi
í Hlíð, Lóni. Af hálfu Pram-
sóknarflokksins mun þar verða
í kjöri Þorleifur Jónsson.
í Barðastrandarsýslu verður
í kjöri af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins Sigurður Kristjánsson
ritstjóri, en af hálfu Framsókn-
arflokksins mun verða í kjöri
Bergur Jónsson sýslumaður.
f Borgarfjarðarsýslu verður í
kjöri af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins Pétur Ottesen hreppstjóri,
Innra-Hóimi, en af hálfu Fram-
sóknarflokksins tnun verða þar
í kjöri Þórir Steinþórsson kenn-
ari.
f Hafnarfirði verður í kjöri
af hálfu Alþýðuflokksins Kjart-
an Ólafsson, bæjarfulltr.
Á Akureyri verður í kjöri af
hálfu Framsóknarflokksins Árni
Jóhannesson.
f Strandasýslu verður í kjöri
af hálfu Framsóknarflokksins
Tryggvi Þórhallsson bankastj.
í Vestur-ísafjarðarsýslu verð-
ur í kjöri af hálfu Framsóknar-
flokksins Ásgeir Ásgeirsson for-
sætisráðherra.
í Skagafjarðarsýslu verður í
kjöri af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins Magnús Guðmundsson ráð-
herra og Jón Sigurðsson bóndi,
Reynistað, en af hálfu Fram-
sóknarflokksins Steingrímur
Steinþórsson skólastj. og Brynj-
ólfur Tobiasson kennari.
í Snæfellsnessýslu hefir til
skamms tíma verið búist við,
að Hannes Jónsson dýrálæknir
yrði í kjöri af hálfu Framsókn-
arflokksins. Nú hefir hins vegar
frést að framsóknarmaður að
nafni Arthur Guðmundsson hafi
boðið sig fram til þingmensku
á • Snæfellsnesi. Hvort þeir
verða báðir í kjöri, Arthur þessi
og Hannes dýralæknir, veit Vís-
ir ekki með vissu að svo stöddu
1 Rangárvallasýslu eru í kjöri
af hálfu Sjálfstæðisflokksins
Jón Ólafsso nbankastjóri og
Pétur Magnússpn hrm.
í Vestur-Skaftafellssýslu errí
kjöri af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins Gísli Sveinsson sýslumaður
í Hafnarfirði verður í kjöri af
hálfu Sjálfstæðisflokksms
Bjarni Snæbjörnsson læknir.
{
Hvað er líf?
Hvað er líf, og hvað er dauði,
hvað er gleði og sorg á storð?
Það eru leikir lífs með auði.
líkt og tafl um mannheims borð
þar um lífsins þráður rauði
þræðir tap, og sigur orð.
Lífið, það er almátts andi
Eilíf skipun fram sem gekk.
Dauðinn, hann er dægur vandi,
dagsverk lokið, reisn úr bekk,
Inngangur að æðra standi,
öllum þjáðum hvíldin þekk.
Gleðin, hún er æsku yndi
upprás mannsins vona og þrá.
Æskan—sem frá ungu lyndi
eltir mæðu skýin grá.
Sannleiks perlu sókn þó mundi
sorgarhafsins djúpi frá.
Gegnum eldraun ástar tára,
ásýnd Guðs við manni skín,
eins og velti blik skær bára
ber með valdi ljóss til sín,
eymslin græðast allra sára,
eilífðar við ljóma sýn.
LILJA JOSEPHSON
MóSir og eiginkona
Liljan okkar árla hefir,
æfistarfið lokið við.
Hver á heimting? Hönd sem gefur
himin ræðis, verkasvið,
líknin hans ei lengi tefur
lamað hold að hvíla í frið.
Brúðar lín þitt burt kvödd vina,
bregður oss að sjónum nú.
Blómsins hreinleiks helgunina
heiti þitt, á stöðugt bú.
Mun oss vernda minninguna,
meðan geymist von og trú.
MAUD LAXDAL
Mother and Citizen
/ Farewell! Thou valiant guardian,
On the walls of the sacred fort,
Whence launch on lifes cruise
The little sailors forth.
Thou'Mother! Creations glory;
All the world on bended knees
Shall pay thee homage forever,
and thy supreme sacrifice.
TIL EKKLANNA
Það að standa uppi einn
æ er hetju siður
og lukku vegur lífsins beinn
að lifa dauðann niður.
J. A. R.
ROTTU PLÁGAN
í Gullbringusýslu verður í
kjöri af hálfu Sjálfstæðisflokks-
ins Ólafur Thors framkvæmd-
arstjóri, en af hálfu Alþýðu-
flokksins Guðbrandur Jónsson
rithöfundur.
t Mýrasýslu verður í kjöri af
liálfu Sjálfstæðisflokksins Torfi
Hjartarson lögfræðingur.
í Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu verður f kjöri af hálfu
Sjálfstæðisflokksins Thor Thors
framkvæmdarstjóri, þar eð
Halldór Steinsson læknir var ó-
fáanlegur til þess að bjóða sig
fram á ný. Af hálfu Alþýðu-
flokksins verður í kjöri Jón
Baldvinsson bankastjóri.
í Dalasýslu veðrur í kjöri af
hálfu Sjálfstæöisflakksins Þor-
steinn Þorsteinsson sýslumaður.
Á Akureyri verður í kjöri af
hálfu Sjálfstæðisflokksins Guð-
brandur ísberg sýslumaður, af
hálfu Alþýðuflokksins Stefán
Jóh. Stefánsson lögfr. og af
hálfu kommúnista Einar 01-
geirsson heildsali.
Á Seyðisfirði verður í kjöri af
hálfu Sjálfstæðisflokksins Lárus j
Jóhannesson drm, en af hálfu
Alþýðuflokksins Haraldur Guð-
mundsson bankastjóri.
Á ísafirði verður í kjöri af
hálfu Alþýðuflokksins Finnur
Jónsson fyrv. póstmeistari.
1 Norður-ísafjarðarsýslu verð-
ur í kjöri af hálfu Alþýðuflokks-
ins Vilmundur Jónsson land-
læknir.
f Vestmannaeyjum verður í
kjöri af hálfu Alþýðuflokksins
Guðm. Pétursson símritari.
í Suður-Þingeyjarsýslu Kári
Amgrímsson, bóndi.
í Norður-Þinðeyjarsýslu: Júl-
íus Havsteen, sýslumaður.
1 Austur-Húnaavtnssýslu: Jón
Pálmason, bóndi.
í Vestur-Húnavatnssýslu: —
Þórarinn Jónsson, bóndi.
; í Vestur-ísafjarðarsýslu: —
j Guðm. Benediktsson, bæjar-
gjaldkeri.
Á ísafirði: Jóhann Þorsteins-
son, kaupmaður.
í Suður-Múlasýslu: Magnús
Gíslason, sýslumaður og Jón
Pálsson, dýralæknir.
í Norður-Múlasýslu: Gísli
Helgason, bóndi, Skógargerði
og Jón Sveinsson, bæjarstjóri á
Akureyri. —Vísir.
Út af hinni ágætu grein dr.
Gunnl. Claessen hér í Blaðinu
á dögunum, þar sem hann m.
a. brýnir fyrir húseigöndum hér
í bænum, að vanda betur sorp-
ílát sín, en verið hefir að þessu,
og gæta þess vandlega, að rott-
ur komist ekki í æti innanhúss
eða utan, vildi eg segja frá einu
dæmi er sýnir, hvílík er mergð
þessara skaðsemdar-dýra hér í
bænum og nágrenninu, og
hversu mjög má iækka þeim
með gildrum, ef unnið er að þvi
af alúð.
Við eitt af sjúkrahúsum rík
isins er gamalt fjós, sem nú er
hætt að nota samkvæmt upp-
haflegum tilgangi. — Eru nú
geymd þar svín og endur og ef i
til vill fleiri alifuglar. í þessu
gamla fjósi hafa rottur tekið
sér bólfestu og orðið hinn mest; i
sægur. Hefir þeim fjölgað jafnt
og þétt, þrátt fyrir allar eitran- !
ir. Sumir halda því fram, að
rottur, sem sýkjast af eitri, en!
drepast ekki og hjarna við aft-
ur, verði varar um sig á eftir
og snerti ekki við eitruðu brauði j
eða öðrum matvælum. Mun
eitthvað hæft í þessu og veit eg * 1
örugg dæmi þess, að rottur
hafa ekki snert við eitruðum i
matvælum, þó að ekkert annað j
tækilegi væri að hafa — að því
er menn vissu — þar sem þær
höfðust viðs — Er ljóst af
þessu, að þær muni hafa vit til
þess að varast hættuna.
Því þarf ekki að lýsa, hversu
miklu tjóni rotturnar valda,
bæði á matvælum og öðru. t
sveitum grafa þær sundur og
eyðileggja torfveggi á fáum ár-
um, og sagt hefir verið, að t.
d. í Árnessýslu sumstaðar væri
rottuplágan orðin alveg óþol-
andi . Hefi eg einna helst heyrt
tilenefnd Skeiðin. Var mér sagt
í fyrrasumar, að þar væri ekki
friður með nokliur matvæli fyr-
ir þessum stefnivargi. Þar væri
hver torfveggur sundurtættur
og rottusmoginn og sæi fólkið
lítil tök til þess, að losna við
þenna ófögnuð. Og svipað þessu
mun ástatt víðar um sveitir, þó
að mér sé ekki kunnugt. Þyrfti
nauðsynlega að gera gangskör
að því að útrýma þessum fjanda
og ætti rottuherferðin að fram-
kvæmast samtímis um land alt.
og vera'endurtekin á hæfilegum
fresti.
í fjósi því hinu gamla, sem
eg nefndi áðan, hafa rotturnar
gert margskonar óskunda. —
Þær eta öll egg, sem þær ná í,
og ungana, jafnóðum og þeir
skríða úr egginu. — Eitrun hef-
ir ekki borið tilætlaðan árangur,
log veldur annaðhvort það, að
Þér sem notið
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Kmpire Sash & Door
CO., LTD.
BlrgBlr: Henry Ave. Ea«t
Sími 95 551—95 552
Skrlfstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
eitrið er ekki banvænt eða þá
hitt, að fullorðnar og “veraldar-
vanar” rottur snerta ekki við
því.
Fyrir skömmu var það ráð
tekið, að setja gildru í fjósið.
Þá “banavel” ’kunnu rotturnar
ekki að varast, heldur “gengu í
gildruna” hver af annari.
Þegar eg hafði síðast spurnir
af þessu, voru 4 nætur liðnar
frá því, er gildran var sett í
fjósið. Og veiðin var hvorki
meiri né minni en það, að 92
rottur höfðu veiðst í þessa einu
gildru á fjórum nóttum.
Þetta kann að þykja ótrúlegt,
en sagan er áreiðanlega sönn.
Mér er ekki kunnugt um, hvar
gildra þessi hefir verið keypt, né
hvernig henni er fyrir komið,
en hún er sýnilega hið mesta
þarfa-þing og getur “hýst” mjög
margar rottur í einu.
Væri nú ekki reynandi, að
nota gildrur jafnframt eitrun-
inni? Reyslan frá þessu gamla
fjósi virðist benda til þess, að
rottur gangi greiðlega í gildr-
una —• fyrst í stað að minsta
kosti. — Ef til vill hvekkjast
þær, sem ”eftir lifa”, er þær
sjá ófarir félaga sinna, og fer
þá kannske með tímanum eins
um gildruveiðarnar og eitrun-
ina.
En “er á meðan er” og ekki
getur verið áhorfsmál, að neyta
allra bragða til þess, að losna
við rotturnar.
Bæjarmaður.
—Vísir.
FRÁ fSLANDI
Grassprettuhorfur
eru ágætar hér um slóðir. Eru
menn í þann veginn að byrja
slátt á saðlandi og er það ó-
venjulega snemma.
Atvinnulíf
hér í bænum er ólíkt fjörmeira
nú en það var í fyrra. Mikil
Tiskvinna er hér í sumar og
talsvert um byggingar.
Malbikun
er verið að undirbúa í Hafnar-
stræti, frá “Skjaldborg” og inn
að Samkomuhúsi bæjarins.
Einnig er ávkeðið að malbika í
sumar suðurhlutann af Brekku
götu. — Dagur—Akureyri
Prentun
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
og fljótt og vel af hendi leysL Látið oss prenta bréfhajusa
yðar og umsiög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD.
853 SARGENT Ave., WINNIPEG
# Sí mi 86-537 «<*
fr