Heimskringla - 15.11.1933, Síða 7
WINNIPEG, 15. NÓV. 1933
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA.
“KVÖL Á SÁ ER VÖL Á”
Bæjarstjórnar kosningar eiga
að fara fram hér í Winnipeg 24.
þ. m. Eftir tölu frambjóðenda
að dæma er nú mikiil áhugi
vaknaður fyrir velferð bæjarins.
Hér í mið-Winnipeg eru 17
frambjóðendur fyrir 3 bæjar-
fulltrúasæit. Geta menn því
valið úr eftir geðþótta, alt frá
sestum og einbeittum kommún-
istum þeirra S. Simkin og C.
Spence og niður til gamalla vel-
þektra afturhalds þjarka eins
og Davidson og Vanderlip.
Verkamannaflokkurinn hefir
xiú ýmsar markverðar umbætur
á stefnuskrá sinni, sem hann
býst til að framkvæma, ef hann
nær meirihluta í bæjarstjórn-
inni. Þar á meðal það að:
Bærinn kaupi eignir strætis-
vagna félagsins ef um sann-
gjarnt verð sé að ræða. Að
bærinn taki að sér mjólkursölu
og verzlun með fleiri lífsnauð-
synjar eins fljótt og kringum-
stæður leyfa. Styttan vinnu-
tíma án þess að lækka vinnu-
kaup.
Stofnun bæjarbanka, o. fl.
Þeir sem nú sækja undir merkj-
um verkamannaflokksins eru
M. W. Stobart og H. B. Smith.
Mr. Stobart hefir átt sæti í
skólanefndinni um níu ára
skeið, og jafnan komið fram,
sem nýtur maður og góður
drengur. Mr. Smith er ungur
uiaður og lítt reyndur, en vel-
látinn af þeim, sem hann
þekkja. Hann er formaður fjár-
málanefndar verkamannaflokks
ins hér í fylkinu. Auk þessara
tveggja er einnig í vali bæjar-
ráðsmaður Thomas Flye. Eitt-
hvert sundurlyndi innan flokks-
ins í fyrra vetur varð til þess, að
hann sagði sig úr flokknum, og
sækir nú ,sem óháður, en fylgir
þó sömu stefnu. Mr. T. Flye
hefir átt sæti í bæjarráðinu síð-
astliðin 12 ár. Hann er því
þaulkunnugur öllum bæjarmál-
um og hefir ætíð komið vel
tram fyrir hönd verkamanna,
hann er ötull maður og fylginn
sér, í hverju máli, sem hann
berst fyrir.
Fyrir hönd verkamanna, í
skólaráðið bjóða sig nú fram
Mrs. R. W. Queen-Hughes og
Mr. H. A. Brodahl. Mrs. Queen-
Hughes er elsta dóttir John
Queen fylkis þingmanns. Hún
er fædd og uppalin hér í bæn-
um, gekk 2 ár á háskóla en
starfaði síðan að blaðamensku
þangað til hún giftist. Hún er
vel máli farin og hefir unnið að
verkamanna málum frá því hún
var barn. Mr. Brodahl er dansk-
ur, fæddur í Kaupmannahöfn
1888. Tók inngöngupróf Við
Kaupmannahafnar háskóóla —
1904. En hætti þó námi litlu
síðar og var um tíma í sigling-
um. Gekk síðan á verzlunar-
skóla og lauk prófi í verzlunar-
fræði og bókfærslu. Hingað
til lands kom hann 1916, tók sér
heimilisréttarland nálægt Rainy
River, Ont. Var þar skrifari
skólaráðsins í 7 ár. Kom hing-
að til Winnipeg 1929. Hann hef-
ir verið áhugasamur starfsmað-
ur í verkamannaflokknum síðan
hann kom hingað. Eg vil sér-
staklega vekja athygli íslenzkra
kjósenda á þessum manni. Hann
hefir gert sér mikið far um að
kynna sér alþýðumentun, bæði
hér og í Danmörku, og víðar.
Og er manna fróðastur í þeim
málum. Hann er starfsmaður
góður, triir og samvizkusamur
um alt sem hann tekur að sér
að gera. Ef hann nær kosningu
verður það sæti vel skipað.
Vegna fjárkreppunnar voru f jár-
framlög til mentamála færð
nokkuð niður á síðast liðnu ári
og útlit fyrir að enn muni
þrengja meira að næsta ár.
Skólatími var styttur um tvær
vikur og fríkensla í 12 bekk af-
numin. Kaup kennara lækkað
o. s. frv. En einmitt vegna at-
vinnuleysis og efnaskorts meðal
almennings er nú sérstök þörf
á því að mentastofnanir allar
séu starfræktar svo að allir gæti
notið þeirra í sem fylstum mæli.
Unglingar, sem nú eru að ljúka
barnaskóla- og miðskólanámi
ættu að hafa tækifæri til fram-
haldandi náms þegar ekki er
neina atvinnu að fá. Enginn
flokkur lætur sér jafn ant um
þessi mál og verkamannaflokk-
urinn. íslendingar ættu því að
veita honum óskift fylgi í kosn-
ingunum 24. þ. m.
H. Gíslason.
1. VETRARDAG 1933
Enginn skyldi öfunda
örvasa karltetur
sextugasta og sjöunda
settur nú á vetur.
Sá hefir verið víða um geim
verkum synda kafinn
væri mál að halda heim
en hevrt? Já, þar er vafinn.
Það mun undra margan mann
mun ei getur sparað
hvort “kristinn eða “heiðninn”
hann
í himin muni fara.
Ei það sama öllum lízt
en þvf megið trúa,
hjá Einherjum í Valhöll víst
vill hann sjálfur búa.
Þar eg gleði, þar er bjór,
þar er nóg af fljóðum,
Óðin, Bragi og Ökuþór;
ekki er hent þar slóðum.
Síðan 1877
Drewry’s
hafa stöðugt fylgst með tímanum—notað hinar
nýjustu aðferðir við ölbruggun og kappkostað að
halda uppi gæðum vörunnar. Árangurinn sá að-
DREWRY’S
“STANDARD
LAGER”
er bruggun sem ekki bregst að vera rétt—drykkur
sem þú ekki getur annað en haft ánægju af.
Þú munt og finna að hið sama má segja um-
DREWRY’S
DRY CRYSTAL
GINGER ALE SODA
VINSÆLIR í ÖLLUM SAMKVÆMUM
í búðunum eða
Símið 57 221
The DREWRY'S LIMITED '
Stofnað 1877
Þar mun sæla, þar mun flest,
sem þegnar tíðast lofa;
en eg held þó allra bezt
ef hann fengi að sofa.
Guðjón S. Friðriksson
HITT OG ÞETTA
Viðskiftastríð gegn
Þjóðverjum
London^ 14. okt.
Samband amerískra verka-
lýðsfélaga hefir lýst því yfir, að
héðan í frá, unz öðruvísi verður
ákveðið, sé félagsmönnum inn-
an sambandsins bannað að
kaupa vörur, sem framleiddar
eru í Þýskalandi og öðrum lönd-
um, þar sem ríkisstjórnirnar í
hafa bannað frjálsan félagsskap
verkalýðsins. Tillaga um þetta
efni var samþykt á sambands-
fundi, sem mættir voru á 600
fulltrúar. Tillagan var samþykt
með 599 atkvæðum gegn 1. —
í verkalýðsfélögunum sem eru
í sambandinu eru 2 miljónir
verkamanna. — Upphaflega var
láögevt, að viðskiftasambandið
næði aðeins til Þýskalands, en
nefnd sú. sem hafði ályktunina
til meðferðar taldi áhyggilegt,
aö láta viðskiftabannið ná að-
eins til Þýskalands, þar sem
verkalýðsfélagsskapur óháður
ríkisvaldinu hefir einnig verið
bannaður í öðrum löndum, svo
sem ítalíu, Kína og Rússlandi,
<>g nær viðskiftabannið því einn-
ig til þeirra, þar eð tillaga
nefndarínnar í þessu náði fram
að ganga.
Síðaii fregn: William Green,
forseti sambands amerískra
verkaiýðsfélaga (The American
Federation of Labor) hefir lát-
ið svo um mælt, að fulltrúa-
fundarályktuninni, sem að vísu
r.ái til nokkurra landa, verði
aðeíns beitt gegn Þýskalandi.
* * *
Sænska æfintýrakonan
Aina Cederblom, sem ætlaði í
sumar að sigla alein á litlum
vélbáti frá Svíþjóð til Ameríku,
kom fyrir skömmu til Færeyja
frá Grænlandi með færeysku
fiskiskútunni “Magacienne”.
Aina Cederblom komst í sum-
ar við illan leik til Færeyja, en
leist ekki á að halda lengra á-
fram upp á eigin spýtur. Fékk
hún því færeyskt fiskiskip til
þess að flytja sig og bát sinn
vestur undir Hvarf í Grænlandi
og ætlaði svo að sigla þaðan til
I.abrador eða Newfoundlands.
Lenti hún þá í ís og hrakning-
um, sneri aftur til Grænlands,
varð bensínlaus og ósjálfbjarga
úti í hafi, en það vildi henni til
happs að “Magacienne” rakst
á liana og bjarðaði henni.
* * *
Fangar ræna fangavörSum
Fyrir skömmu viidi til ein-
kennilegur atburður í fangahús-
; inu í Michigan City í Banda-
ríkjunum. Ellefu föngum hafði
á einhvern hátt tekist að ná í
marghleypur og réðust þeir
skyndilega á fangaverðina og
noyddu þá til þess að hleypa sér
úr úr fangelsinu. Fyrir utan
jbiðu (veir bílar eftir þeim. Á
þeim fiýðu fangamir og höfðu
á brott með sér fangelsisstjór-
ann og tvo fangaverði.
ENDURMINNINGAR
Framh.
Heyrt hefi eg að þessir menn
menn byggju norður við Mani-
toba vatn. Vel féll mér við fé-
laga þessa um sumarið. Hafði
Þorlákur þann sið sem eg vissi
engann annan yfirsmið gera, að
hann tók sagir verkamanna
sinna heim með sér þegar hann
sá að þær voru famar að bíta
jilla og brýndi þær, án alls end-
I urgjalds og betur en flestir aðr-
ir leystu það verk af hendi. Það
!er sannfæring mín að þeir fé-
lagar hafi fengið þá fyrirhöfn
epdurgoldna í meira verki. Með
slíkum áhöldum sleppa menn
engu tækifæri, því það er
spennandi skemtun eins og kitl-
andi skáldsaga að sníða efni-
við méð beittri og mátulega út-
' N afns PJ íöi Id
■ ■ m r i 1111 ■■■■■=,= '■'iau
GIGT
Snöggur bati af þrautreyndu
meðali—75c askja ókeypis
ÞaS er engin þörf á að dragast
með nagandi gigtarverkjum og þján-
ingum, þegar það er afar auðvelt að
ná í lækningu, er þúsundum manna,
sem ’ þjáðst hafa af gigt, hefir að
góðu komið. Alveg sama hvað þrá-
lát og gömul meinsemd þessi er, er á-
stæðulaust að örvænta. Þótt öll önn-
ur lyf hafi brugðist, þá má vel vera
að Delano’s Rheumatic Conqueror, sé
einmitt meðalið, sem við á í yðar til-
felli, og til þess að gefa yður kost á
að reyna það, þá bjóðum vér að
senda yður ókeypis 75c öskju. Látið
ekki daginn líða en sendið nafn yðar
og heimilisfang til F. H. Delano.
1802 N. AÍutual Life Bldg., 455 Craig
St. W., Montreal. Ef yður sýnist
megið þér senda lOc upp í umbúðir
og burðargjald.
lagðri sög. Kristján var kátur
og upplífgandi greindarmaður,
Þorlákur afskifta minni, orðfár
en altaf bróðurlegur. Mér er
vel við þessa menn og geymi
þá í þakklátum huga. í þeirra
vinnumanna hópi var unglings-
maður Jón að nafni, eftir mín-
um skilningi hreinasta fyrir-
myndar mannsefni. Hann var
rétt innan við tvátugt ,og bjó
með fátækri móðir sinni að
austanverðu á Beverley St. milli
Wellington og Notre-Dame.
Pilturinn var framúrskarandi
vandur að orðum sínum og
breytni, alt þó hindurvitna og
fyrrulaust. Hagsýnn og áhuga-
samur eins og fimtugur búmað-
ur. Þegar hann kom heim úr
vinnunni á kvöldin, líklega lún-
ari en eg, af því hann hafði af
yngri og óreyndari kröftum að
taka, þá fór hann ofan í kjallara
að hefilbekk sínum, strax þegar
hann var búinn að borða, og fór
þá að smíða glugga og dyra-
umgerðir, gluggana sjálfa og
hurðirnar, stormglugga og
flugnaverjar, eins og líka að
gera að þeim hlutum sem aflaga
fóru á heimilinu. í þessu fann
hann siína skemtun þegar aðrir
gengu út til að sýna sig og sjá
aðra. Mig minnir að þau mæðg-
in ættu lóð til hliðar við húsið
sem þau bjuggu í, og hann ætl-
aði sér að smá búa sig undir að
byggja á þeirri lóð, svo þau
yrðu aldrei hrakin burt, og
þyrftu ekki að borga húsaleigu.
Altaf var mamma hans önnur
síðan á öllu sem hann hafði
fyrir framan sig, eða í hugan-
um. Ekkert veit eg hvað hefir
oröið úr þessum pilti, eða hvar
hann er niður kominn. Spurðist
miltið fyrir um hann veturinn
1931, en engin vissi á honum
deili.
Sumrinu leiddist þauf þetta,
ruddi vorinu frá og settist sjálft
að völdum snemma í maí, með
hitann og blíðufaðminn. Allar
heilbrigðar hendur voru á lofti,
áður en jörðin þiðnaði. Svo
grafnir yrðu kjallarar þá bygðu
menn húsin ofan á plankastúf-
um, sem lagðir voru á jörðina.
Átti þá að lyfta þeim seinna og
hlaða eða steypa undir þau
kjallarana. Þetta var algengt á
meðan var verið að þenja borg-
ina út, og mest reið á að koma
húsunum upp. Gleymdist þá
stundum að setja kjallarann
undir, þangað til húsin voru
farin að fúna að neðan.
Þegar eg nú í huganum fer til
baka, og virði fyrir mér mann-
félagsástandið á þessu sumri
1906, ekki einungis í boi*ginni
Winnipeg, heldur og út um allar
Dr. M. B. Halldorson
401 Royd BldR.
Skrlfstofusími: 23674
Stundai sérstaklegra lungn&sjúk-
dóma.
Er aT5 finna á skrifstofu kl 10—12
f. h. ogr 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talslml t 33158
DR A. BLONDAL
602 Medlcal Arts Bldg.
Talsíml: 22 296
Stundai1 sérstaklega kvensjúkdóma
og: barnasjúkdóma. — Ab hitta:
kl. 10—12 « h. os 8—6 e. h.
Heimlll: 806 Victor St. Siml 28 180
Dr. J. Stefansson
210 NEDICAL ARTS BLDO.
Hornl Kennedy ogr Graham
Stnndar flncftngii auRlia- fyrna-
nef- og kverka-nJúkdAmn
Er að hitta frá kl. 2.30—5.30 e. h.
Xalsímii 26 688
Helmlll: 688 McMlllan Ave. 42691
-------------------------------1
Dr. A. B. INGIMUNDSON
Xannlæknlr
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sími: 22 296 Heimilis: 46 054
sveitir, og þegar eg svo endur-
minnist daglegu atburðanna,
elju og atorku mannanna í
djúpum skurðum niðri í jörð-
inni, upp úr hæstu múrsteins-
byggingum og alstaðar þar á
milli, og öll þessi átök og fyrir-
höfn utanhúss og innan, var
borgað fyrirstöðulaust með pen-
ingum út í hönd, þá gefur að
skilja að framleiðslan hlaut að
vera mikil framleiðsla þeirra
efna sem velferð mannfélagsins
byggist á. Og það aftur bar
landinu og sveitunum órækt
vitni ,það hlaut að drjúpa smér
af hverju strái. Það var sem
lífæðarnar að borginni væru
þandar af hárri blóðpressu, og
ástæða væri til að óttast að
þær rifnuðu. Ósjálfrátt datt
mönnuin í hug að aðrar leiðir
en til Winnipeg frá lijarta lands-
ins hlytu að vera stoppaðar, eða
það væri verið að eyða úr
margra ára forðabúrum. Timb-
urlestir ,grjótlestir, kolalestir,
kornlestir, ávaxtalestir, heylest-
ir og ótal fleira, enginn stanz á
neinu. Úr öllum áttum streymdi
fólkið inn í borgina utan af
landinu, jafnvel sunnan úr
Bandaríkjum, frá Dakota, til
þess að innvinna sér peninga
sagði það, svona yfir tímabilið
frá því sáningu var lokið að
vorinu, og til þess er uppskeru-
vinna kemur aftur til, að haust-
inu. Hvað eftir annað rak eg
mig á bændur utan af landinu
sem voru staddir í bænum.
Felstir þeirra voru líklega kall-
aðir ófínni til fara en borgar-
búar, en þegar menn settu það
á sig í hverju úlit þeirra væri
frábrugðið, þá kom það skýrt
í ljós, að þeir og konur þeirra
jafnframt, unnu meira sagsýn-
inni en tískunni. Fram í fyrir
allri heilbrigðri og réttlátri hugs-
un og greind, er það hiklaust
stærsta hneikslið við klæðaburð
mannanna, karla og kvenna,
þegar þeir í fjósum og á mold-
Frh. á 8. bls.
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIH LÖGFRÆÐINGAK
á óðru gólfi
S25 Main Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miðvikudag |
hverjum mánuði.
Telephone: 21 613
J. Christopherson,
Islenskur LögfræSingur
845 SOMBRSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoþa.
A. S. BARDAL
selur ltkklstur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnatJur s4 bestL
Ennfremur selur hann sllskonar
mlnnisvarba og legstelna.
843 SHERBROOKB ST.
Phonei 86 607 WINVIPM
HEALTH RESTORED
Lækningar án lyfja
DR. 9. G. SIMPSON, K.D., D.O., D.O.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAU.
MARGARET DALMAN
TBACHBR OF PIANO
8S4 BANNING 9T.
PHONE: 26 420
Dr. Á. V. Johnson
Tslenzkur Tannlæknir.
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúainu.
Shni: 96 210. Helmills: SS828
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Beggage and Fnrnltnre Inkg
762 VICTOK ST.
SIMI 24.500
Axmast allskonar flutnlnga frana
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K. C.
talenaknr lóitfræblngur
Skrifetofa:
801 GREAT WEST PERMANENT
BUILDING
Slmi: 92 755
________________________ (
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
Tnlalml i 28 88B
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
€14 Someraet Block
Portase Aveane WINNIPKi
Operatic Tenor
Sigurdur Skagficld
Singing and Voice Culture
Studio: 25 Music and Arts Bldg.
Phone 25 506
Res. Phone: 87 435