Heimskringla - 11.07.1934, Síða 8
í. 3IÐA
• nciMSKRINGLA
WINNIPBG, 11. JÚLÍ, 1934
FJÆR OG NÆR
Fréttir af þingi hins Samein-
aða Kirkjufélags íslendinga,
sem haldið var að Gimli 7—8—9
júlí, verða að bíða næsta blaðs.
Þess eins má hér geta, að þingið
var allvel sótt og hinn bezti
rómur gerður að því er þar
fór fram. Erindin sem þar voru
flutt, verða birt við hentugleika
í Heimskringlu.
» * *
Messa í Piney
Séra Phiiip M. Pétursson,
Ph. B. B. D., messar í Piney
sunnudaginn 15. júlí í skóla-
húsinu á vanalegum tíma. Hann
flytur ræður bæði á ensku og
íslenzku. — Allir boðnir og vel-
komnir.
* * *
Mrs. Guðbjörg Thorkelsson,
ekkjan eftir Thorstein Thorkels-
son, sem um 11 ár hefir dvalið
í Los Angeles, kom fyrir
skömmu til þessa bæjar og dvel-
ur hjá syni sínum Friðriki Thor-
kelssyni, 805 Lipton St., Winni-
peg. Hún mun alkomin norður.
* * *
Ungfrú Margrét Pétursson,
45 Home St., Winnipeg lagði af
stað í skemtiför í bíl til Wyn-
yard, Sask., s. 1. sunnudag. Hún
bjóst við að vera vestra um
tveggja vikna tíma.
* * *
Árni Pálsson, umboðsmaður
Hkr. að Reykjavík, Man., kom
til bæjarins um helgina og dvel-
ur hér nokkra daga.
* * *
Helgi Hornfjörð frá Leslie,
Sask., kona hans og móðir, sem
verið hafa norður í Framnes-
bygð nokkra daga og fóru þang-
að til að vera við jarðarför Sig-
urðar heitins Hólm, komu til
Winnipeg s. 1. fimtudag og
lögðu af stað vestur daginn
eftir.
* f *
Mrs. Matthildur Sveinsson frá
Keewatin, Ont., kom til bæjar-
ins s. 1. sunnudagskvöld. Hún
verður hér nokkra d^ga í heim-
sókn hjá ættingjum og kunn-
ingjum. Hún kvað íslendingum
líða fremur vel í Keewatin.
* * *
Mrs. Guðrún S. Hólm frá
Framnes, Man., lagði af stað
vestur til Saskatchewan s. 1.
föstudag. Hún bjóst við að
vera þar hjá vinum og kunn-
ingjum um 2 vikna tíma.
* * *
Laugardagin 23. júní, voru
gefin saman í hjónaband í Holy
Trinity kirkjunni af séra C.
Carruthers, Miss Friðrika
Phobe Byron og Mr. Harry
Standbrook. Brúðurin er dótt-
ir Mr. og Mrs. W. Byron í
Swan River. Brúðgumin er af
enskum ættum frá London,
Eng. Heimili brúðhjónanna
verður í Winnipeg.
* * *
KveðjuorS
Af því eg er að fara úr borg-
inni út í sveit þar sem eg mun
dvelja það sem eftir er sum-
arsins, þá bið eg blöðin Hkr og
Lögb. um að skila kærri kveðju
minni til allra vina og kunn-
ingja, sem eg hefi ekki getað
kvatt, og eg óska að sumar
tíminn verið þeim ánægjusamur
og arðberandi. Svo þakka eg
af hrærðum hug, allar þær
skemtistundir sem þið hafið
veitt mér þá fundum okkar
hefir borið saman.
Drottinn blessi framtíð ykk-
ar, þess biður ykkar einlægur
vin og kunningi,
Gísli Jónsson
* * *
Þriðjudagtnn 3. júlí, voru þau
Jón Kristinn Laxdal frá Ár-
borg og Lára Wilhelmína fs-
berg frá Baldur gefin saman í
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni að 493 Lipton St. —
Brúðhjónin lögðu af stað sam-
dægurs í skemtiferð til Clear
Lake. Heimili þeirra verður að
Arborg, þar sem Mr. Laxdal er
skólastjóri.
* * *
Ólafur Thorleifsson, Lang-
ruth, Man., lézt 1. júlí að heim-
ili sínu . Hann var 84 ára, einn
af frumherjunum íslenkzu,
merkis, manndóms og sæmdar-
maöur. Jarðarförin fór fram frá
heimili lians og lútersku kirkj-
unnar 3. júlí. Séra Jóhann
Friðriksson jarðsöng. Við út-
jförina talaði einnig stúdent frá
Union kirkjunum Mr. W. P.
! Smetheram. Hins látna verður
minst síðar.
¥ ¥ *
ÞAKKLÆTI
Innilegustu þakkir langar mig
til að biðja Heimskringlu að
j færa þeim mörgu, bæði vinum
og vandalausum, sem hluttekn-
ingu sýndu mér svo ótvíræða
jvið lát mannsins míns, Sigurð-
ar Eiríkssonar Hólm í Farmnes
bygð, er lézt 3. júní. Það vita
allir sem reynt hafa hvað ást-
vina missir getur verið sár, en
sem betur fer hafa margir þá
einmitt reynt, hvers verð vinátta
fólks er. Og af þeim er eg
ein. Samhygðin, hjálpsemin og
ástúðin sem mér og mínum
nánustu hefir verið sýnd í raun-
um mínum, hefir verið svo ein-
læg, svo innileg, svo “löguð
eftir hjartans sárum”, eins og
skáldið komst að orði, að veitt
hefir mér huggun og þrótt til að
bera raunir mínar. Til þess að
vera við útförina, komu kunn-
ingjar langt að auk hins mikla
fjölda sambygðarmanna er þar
var staddur. Samhygð þá og
alla þá umhyggju og velvild,
sem mér og börnum mínum og
nánustu skyldmennum, hefir
jverið sýnd við ástvinamissirinn
brestur mig orð til að þakka
sem eg kysi, en að það sé geymt
en ekki gleymt, langaði mig að
tjá þeim.
Eg get ekki tiltekið nöfnin,
þau yrðu svo mörg eða lýst
hvað hver og einn hefir fyrir
mig gert. Að nefna verð eg þó
blómin mörgu sem á kistuna
voru send og hluttekningar og
huggunar bréfin sem mér voru
skrifuð. En innilega þökk bið
eg að flytja hverjum og ein-
um.
Arborg, Man. 7. júlí, 1934.
GuSrún S. Hólm
ið fyrir mig uppá pallinum, og
þar var eg sestur að, þegar j
samkomustjórinn kallaði söng-
flokkinn til að syngja hugsun
og skilning manna á flug, upp úr j
öllu andstreymi, f firðina og j
kyrðina þar sem guðs blessun- j
am'ku áhrif önduðu öllum á
þreifanlega.
i Framh.
I
SKRÍTLUR
Reykjavík
Næstum daglega síðastliðið ár
bárust honum hótunarbréf um
að bömum hans yrði stolið. Lét
hann því byggja afarháan og
sterkann steinvegg umhverfis
Iheimili sitt og leynilögreglu-
menn voru ætíð á verði við hús
hans og í fylgd með börnum
hans, hvert sem þau fóru. En
þessi sífelda hætta reyndist for-
eldrum barnanna um megn, svo
að þau fóru fyrir skömmu síð-
an leynilega á brott til Evrópu
og búa þau nú í Englandi. —
Fyrir nokkrum dögum fór
skemit^kip hans frá New York
áleiðis til Englands með vista-
forða til eins árs. Ætlar Corc1
að fara um borð í skip sitt með
fjölskyldu sína, með leynd við
Engalnds-strendur, og síðan að
sigla eitthvað út í höfin, þar
sem honum verður ekki veitt
eftirför. E. L. Cord er einn af
allra ríkustu mönnum Banda-
ríkjanna.
i Þeir, sem ríkastir eru og vold-
ugastir, eiga á vissan hátt auð-
veldast með að verja sig fyrir
, þessum óaldarlýð, en þeir sem
fátækari eru og minna mega
sín, standa varnarlausir gegn
þeim ómannúðlegu árásum, sem
ætíð kunna að vofa yfir þeim
og þeirra.
,—Nýja Dagbl.
ÁHRIF NAZISMANS
í AMERÍKU
G. T. Spil og Dans
verður haldið á föstudaginn í
þessari viku og þriðjudaginn í
næstu viku í I. O. G. T. húsinu,
Sargent Ave. Byrjar stundvís-
logo kl. 8.30 að kvöldinu.
Fyrstu verðlaun $15.00 og
I átta verðlaun veitt þar að auki.
Ágætir hljóðfæraflokkar leika
fyrir dansinum. — Lofthreins-
unar tæki af allra nýjustu gerð
, eru í byggingunni.
1 Inngangur 25c. Allir velkomnir.
¥■■/■¥
Munið eftir að til sölu eru á
skrifstofu Heimskringlu með af.
falls verði, námsskeið við helztu
verzlunarskóla bæjarins. Nem-
endur utan af landi ættu að
nota sér þetta tækifæri. Hafið
* tal af ráðsmanni blaðsins.
MILJÓNAMÆRINGAR FLÝJA
Nú vikum saman hefir veríð
háð afarfjölmenn og skörp leit
í Bandaríkjunum eftir hinum al-
ræmda stóglæpamanni John
Dilinger.
Meðal almennings þar vestra
er farin að útbreiðast ótti við
hina fífldjöröfu og miskunnar-
lausu glæpamenn, er alstaðar
stinga upp höfðinu, og má svo
að orði kveða, að nú loksins sé
þjóðin að rísa upp sem einn
maður, til þess að kæfa niður
hið ógurlega glæpamannafar-
aldur. Ríkismönnum og áhrifa-
mönnum innan þjóðfélagsnis,
eru send hótanabréf í hundraða-
tali, þar sem þeim er ýmist hót-
að því að þeim verði styttur ald-
ur, eða börnum þeira verði stol-
ið, ef ekki sé látið af hendi svo
og svo mikið fé til hinna ó-
kunnu bréfrtara. Hafa sumir
þessara manna flúið land til
þess að geta verið öruggir um
líf sitt og sinna.
Meðal þeirra manna er t. d.
miljónamæringurinn E. L. Cord,
bíla og flugvélakongur.
Fasismi og nazismi eru hæst-
móðins víða í Evrópu á þessum
“síðustu og verstu” tímum. Það
þarf því engan að furða, þó
þess verði vart, að stefnur þess-
ar séu farnar að stinga víðar
upp höfðinu. í Ameríku hefir
upp á síðkastið borið dálítið á
þessháttar hreyfingu, sérstak-
lega meðal þýzkra félaga, er
kalla sig “Vinir hins Nýja
Þýzkalands”.
Þegar Hitler varð kanzlari
og gat farið að vinna að fram-
kvæmd þess, er hann hafði á
stefnuskrá sinni, þ. á m. út-
rýming Gyðinga, þá var honum
það ljóst, að einmitt í Banda-
ríkjunum væri. sér og þeim hluta
kenninga sinna, er að Gyðing-
um sneri, helzt hjálpar að
vænta. Mun láta næri, að þrír
“þýzkir” Ameríkanar séu um
hvern amerískan Gyðing.
Þjóðverjar vestan hafs hafa
haft allmikil sambönd innbyrð-
is, og þangað vildi Hitler
smeygja áhrifum sínum. Sendi
hann fyirrlesara vestur, er fluttu
ræður um ástandið heima fyr-
ir, og voru þær mjög litaðar
af nazisma.
Síðastliðið haust var hafinn
verulegur undirbúningur frá
hendi þýzku stjórnarvaldanna
a 5 ná undir áhrif sín, og til
■ irkrar kenslustarfsemi, öllum
þýzksinnuðum félögum, er starf
anái væru í Bandaríkjunum.
Þýzksinnuð félög, er starf-
rækt hafa verið þar vestra,
hafa aðallega unnið á ópólitísk-
um og heilbrigðislegum grund-
velli. Hafa þau t. d. unnið að
líkamsmentun, íþróttum, söng-
list, góðgerðarstarfsemi o. fl. þ.
h. Er aðalaðsetur þeirra í stór-
borgum austur- og miðríkj-
anna.
í vetur varð nazistum það
ágengt, að þeir náðu yfirráð-
um “Sambands þýzkra félaga í
New York” . í sérstökum parti
borgarinnar, sem heitir York-
ville, er aðalmiðstöð þessara
nazistisku félaga. Er nýlenda
þessi kölluð “litla Þýzkaland”,
og hafa þar átt sér stað ó-
eirðir og ofsóknir, á mjög svip-
aðan hátt og í Þýzkalandi, þó
í miklu smærri stíl sé.
Eftir almennar kosnngar í
T andaríkjunum í fyrra, voru 5
fylkisstjórar Gyðingar, 2 af 9
hæstaréttardómurum ríkisins
voru Gyðingar, og ca. 12 þing-
menn.
í baráttunni gagnvart Gyð-
ingum hefir Hitler lagt áherzlu
á það að, Gyðingar, sem verið
; hafa í Þýzkalandi, hafi unnið
sig upp á kostnað hins ariska
I kynþáttar, fótum troðið rétt
hans, og veikt siðfræðilega
sjálfstæðistilfinningu hreinna
Þjóðverja, og þeirri “spillingu”
ber að útrýma.
Á alveg sama hátt er verið
að vinna í Bandaríkjunum.
Einmitt það hve Gyðingar
hafa staðið tiltölulega framar-
lega í fjármálum, stjórnmálum
og vísindum þar vestra, hefir
það verið notað eins og svipa
á almenning. Það að þessir
“óhreinu, ættlágu’’ menn fylla
margar þær stöður, sem sannir
Ameríkanar ættu með réttu að
njóta.
Úr því þetta Gyðingahatur og
kynþáttadramb gat blossað svo
upp í Þýzkalandi sem raun ber
vitni um, þá virðist það ekki.
með öllu ólíklegt, eins og allar
ástæður eru nú gagnvart sjálf-
stæðismöguleikum almennings,
að þessi óheillastefna kunnið að
ryðja sér nokkuð til rúms í
Bandaríkjunum, og víðar þar
sem skilyrði eru fyrir hendi.
—Nýja Dagbl.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Hjónin stóðu úti á svölum og
í garðinum hjá húsinu sátu
skötuhjúin, ungi maðurinn og
stúlkan.
Þá segir konan: Heyrðu Jón,
eg held að hann ætli að fara
að biðja hennar mér finst við
ættum að láta þau vita af okk-
ur. Þú ættir að blístra á hann,.!
Bóndinn: Hvað, því ætti eg!
að gera það? Ekki svo sem
neinn blístraði á mig, þegar eg
ætlaði að fara að biðaja þín.
* * *
Læknirinn: Fer maðurinn
yðar ekki eftir þessum reglum 1
um mataræði, sem eg gaf hon-
um. :
Konan: Ó, ekki aldeilis. Hann
segist ekki ætla að vera svo vit-
laus að drepa sig úr hungri, til
þess að geta slórt fáeinum árum
lengur.
* * *
Kennarinn: Geturðu nefnt
einhvern eiginleika, sem vatn
hefir?
Lærisveinn: Þegar við þvóum
okkur úr því verður það skítugt.
* * *
Hann kom seint heim.
— Hvað er klukkan orðin?
spurði kona hans.
— Hún er 10.
— En hún sló 1 rétt áðan.
— Jæja, hvenrig á hún að slá
0?.
¥ ¥ *
Frúin (segir við nýju vinnu-
konuna): Og svo krefst eg þess
af yður að þér séuð blíð og góð j
við börnin mín — auðvitað að I
undanteknum elsta syni mínum
sem nú er 18 ára.
* * *
Þau sátu í tunglsljósi úti á
svölum.
— Eg veit hvað þér eruð að
hugsa um, sagði hann.
— Því gerið þér það þá ekki.
Það sér enginn til okkar.
♦ * ¥
— Þekkirðu nágrannakonu
þína svo vel, að þú getir talað
við hana?
— Eg þekki hana svo vel að
eg tala alls ekki við hana.
* * *
Við lyflæknispróf lýsti pró-
fessor sjúkdómi fyrir læknisefni
og spurði hvaðá meðal hann
mundi gefa þeim sjúklingi. —
Læknisefni nefndi lyfið. “það
Messur: — á hverjum sunnudegí
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundir 1. föstu-
de^: hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrs:a j
mánudagskveld í hverjum |
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju- I
dag hvers mánaðar, kl. 8 að |
kveldinu.
Söngflokkurimi: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
er ágætt”, segir prófessorinn,
“en hvað stóran skamt mund-
uð þér gefa honum”. “Eina mat-
skeið”.
Prófnefndin sest nú á ráð-
stefnu. Alt í einu dettur lækn-
isefni í hug að hann hafi nefnt
of stóran skamt. Hann fer
þangað sem dómnefndin situr,
og nær tali af prófessornum.
“Eg mismælti mig áðan”, sagði
hann, “það íhefði ekki mátt gefa
sjúklingnum mera en 5 dropa.”
“Því miður þá er sjúklingur-
inn nú dáinn”, svaraði prófess-
or.
KÍNVERSKIR SJÓRÆNINGJAR
RÁÐAST Á BRESKT SKIP
London, 18. júní
Fregnir hafa borist um það
hingað, að kínverskir sjóræn-
ingjar hafi gert árás á breska
skipið Shuntien, sem var á leið
frá Chefee til Taku. Sjóræn-
ingjarnir tóku alt verðmæti,
sem þeir gátu haft meðferðis
á brott með sér, tvo bresfca
flotayfiforingja og tvo aðra far-
þega, ennfremur tvo af yfir-
mönnum skipsins. í bardaga á
þilfari þreska skipsins særðist
einn breskur maður alvarlega.
— Breska flotamálaráðuneytið
hefir fyrirskipað, að tvö herskip
skuli leggja af stað þegar, til
þess að leita uppi skip sjóræn-
ingjanna. Flugvélar voru áður
farnar af stað að leita þeirra.
Forstjórar alþjóðabankans og
skuldageiðslufrestur Þjóðverja
Basel, 18. júní
Talið er víst, að annar al-
þjóðafundur verði bráðlega hald
inn hér, um skuldamál Þjóð-
verja. Forstjórar alþjóðabankans
eru sagðir þeirrar skoðunar, að
tilkynning Þjóðverja um skulda-
greiðslufrest sé brot á Haag og
Lausanne samningnum.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
I ENDURMINNINGAR
Frh. frá 7. bls.
erum orðnir gamlir sumir hverj-
ir, ‘þegar við höfum tileinkað
okkur til fulls fimtu bænina í
faðirvorinu okkar. Eg hafði
komið auga á hentugasta pláss-
Quebec brúin
HOW WILL YOU USE THE
SUMMER?
IDLE?
ANY OLD JOB?
PREPARING FOR THE FUTURE?
You will find it well worth while to inquire about our
Summer Courses. Sometimes a short period of study
will enable you to accept a temporary position and tlius
gain experience and a footliold in business. If you have
attended commercial high school, you can finish off a
stenographic or bookkeeping training in a very short
titne.
If you have never studied commercial subjects but in-
tend in future to equip yourself for business, the sum-
mer is the ideal time to lay the foundations of a com-
prahensive training-course.
Dcn’t waste the summer — ENROLL NOvV!
POMINJON
On the Mall and at Elmwood, St. James and St. John’s
Day and Evening Classes—Telephone 37 181