Heimskringla - 12.09.1934, Page 7
WINNIPEG, 12. SEPT. 1934
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
HVERS MÁ VÆNTA
AF KLERKUM OG KIRKJUM
Þessi spurning hefir oft verið
borin fram, bæði Ijóst og leynt
en þó aldrei oftar en síðan á
blóðbaðsárunum 1914-1918. —
Það er eins og fólk hrylli við að
hugsa um hörmungarnar, sem
þessi best-kristnu lönd jarðar
vorrar dembdu yfir sínar há-
kristnu guðshjarðir, og það, að
því er séð verður, að ástæðu-
lausu. Klerkar og kirkjur
gengu þá svo vel fram í að
biðja guð að drepa sem mest
af móstöðumönnunum, og það
jafnt frá báðum hliðum, að slíkt
brjálæði gleymist vart á meðan
jörð vor er við líði. Frá því
kirkjulega sviði stríðsáranna
kunna afturkomnir hermenn frá
mörgu og átakanlega merkilegu
að segja, já merkilegu, er maður
lítur á það í ljósi trúarbragð-
anna sjálfra, sem á ekkert skylt
við breytni þeirra hákristnu
klerka er þátt tóku í miljóna-
morðunum ógu'rlegu.
Þó Jesús Kristur sé oft nefnd-
ur trúarbragða höfundur, þá
getur það vissulega verið álita-
mál, hvort það er ekki hreint og
beint guðlast, að kenna þau
trúarbrögð við hans nafn, sem
nú stjórna breytni vorra best
siðuðu þjóða jarðarinnar, því
játningar og helgisiðir geta ó-
mögulega tekist til greina nú á
dögum, þegar mælisnúra er lögð
á breytni vorra kristnu þjóða,
bæði út á við og innbyrðis, með
öðrum orðum afstöðu' þeirra til
allífsins — almættisins.
Ekki þarf að minnast þess
hvaða viðtöku Kristur, — ljós
sannleikans — fékk fyrir nær
2000 árum síðan, og enda marg-
ir fleiri andans boðberar að ó-
gleymdum Brúnó. — Fávísleg
grimd og miskunarlaust ofstæki
sanna átakanlega, að enn sem
fyr vantar mennina bæði viljan
og máttinn til að lifa og breyta
eftir kjarna og sannleiksanda
trúarbragðanna og á þetta að
mestu leyti við, um öll trúar-
brögð jarðar vorrar.
Menn nota heilög sannindi,
sem upphaflega lágu til grund-
vallar fyrir ýmsum helstu trúar-
kerfum þjóðanna, aðeins sem
stimpil eða vörumerki. sem aug-
lýsinga ,glingur og veiðibrellur.
Hina flóknu bókstafsguðfræði
teigja höfðingjar hinna hvítu
mannflokka á ýmsa vegu og
laga til í hendi sér með svo
margvíslega eigingjörnu augna-
miði að þar má með sanni segja
að margbreytnin sé óendanleg.
Slík yfirborðshræsni, blekking
og tál, borin saman við þann
heilaga sannleikans lífræna
anda, sem felst í innsta kjama
allrar róttækrar trúfræði, er
blátt áfram andlegur svartidauði
— hugrænt níðamyrkur.
“Ekki munu allir þeir er til
mín koma og segja: Herra,
herra, ná inngöngu í himnarki,
heldur þeir sem gera vilja míns
himneska föðu'r.”
Ef að klerkar og kirkjur túlka
þannig anda og orð Krists, að
það spilli oss, í stað að bæta
breytni vora og dagfar, væri
vissulega betra að vera án
hverutveggja. Eða mun nokkur
maður með óbrjálað hugarfar,
dirfast að segja, að það sé vilji
algóðs guðs, að hvítu kynflokk-
arnir myrði hvorir aðra í mil-
jóna tali á hinn hryllilegasta og
skeifilegasta hátt? Geta klerk-
ar og kirkjur í raun og' veru
talið sjálfum sér og öðrum trú
um, að slíkt sé vilji hins almátt-
uga, algóða guðs? En þetta
segja þó heimkomnu' hermenn-
irnir, að herprestarnir á víg-
völlum hafi reynt að telja þeim
trú um — vitanlega jafnt frá
báðum hliðum.
Vitanlega minnast hugsandi
hermenn slíks með dýpstu fyrir-
litningu og andstygð. Herbúða
klerkurinn gengur á milli
manna sinnar þjóðar og brýnir
fyrir þeim, að hvað marga and-
stæðinga sem þeir drepi, sé það
guðs viiji, og ekki þurfi þeir að
kvíða neinu hvernig sem þeir
MYNDIR AF FJÓRUM SMÁBÆJUM EÐA ÞORPUM í
HVEITIRÆKTAR-HÉRUÐUM í MANITOBA
ELKHORN í MANITOBA
SIDNEY í MANITOBA
WINKLER í MANITOBA
SHELLMOUTH í MANITOBA
limlestist og tætist í sundur,
þeir fari beint til himnaríkis. Er
nokkur furða þó fólk eftir á,
sem heyrt hefir og lesið mikið
af slíku hafi farið að líta á
klerka og kirkjur sem einskonar
skrípamynd? Ætli þeim fari nú
ekki hvað fækkandi, sem geta
trúað því að slíkar blekkingar
og hræsnisþvaður sé til blessun-
ar fyrir land og lýð?
Vart mun meiri villa til, en
sú, að aðskilja einhverjar svo-
| kallaðar helgisiðaathafnir frá
ibreytni og hversdagslífi manna,
iþví þá eru þessar helgisiðaat-
hafnir hégóminn einber. Enda
Jer nú loksins þangað komið að
ivorum mestu og bestu mönnum
fer að verða það fyllilega ljóst, að
jalheimsins æðsti helgidómur er
Jeinmitt innifalinn í hversdags-
lífi og breytni manna. Sá helgi-
dómur er lífrænn, en allar
kreddur, siðir, form og venjur í
sjálfu sér einskis virði. Alt það
sem glepur og dregur athygli
einstaklingsins frá helgidómi
hversdagslífsins er helgidóms-
brot eða guðlast í raun og veru.
Það er mjög svo sorglegt um-
hugsunarefni ,að veita því eftir-
tekt, í hvaða átt tilbeiðsla fólks
!stefnir oft og tíðum, fyr og síð-
jar. Hún beinist að þjóðhöfð-
Jngjunum, svo sem konungum
jog ýmsum valdhöfum, þeim sem
liafa auð fjár til u'mráða. Ganga
glæsilega til fara og lifa f vel-
lystingum, sem svo er kallað.
En slík dýrðlinga dýrkun er
dóttir fáfræðinnar og brjálsemi
af verstu tegund. Hálfnaktir
og hungraðir fátæklingar eru
I fyrirlitnir af þessum sömu af-
guðadýrkendum þó yfirgnæf-
andi sálargáfum séu gæddir.
Þetta er að hafna lífinu en kjósa
jdauðann. Já, dau'ða og djöful-
inn í stað guðs og lífsins. En
jnú bjarmar óðum af afturelding
hjá ágætustu andans mönnum,
um allan heim. Svo náttuglurn-
ar verða vafalaust nauðum
1 staddar. %
— En hvers er þá að vænta
af klerkum og kirkjum?
M. Ingimarsson
“Endurminningar”
Friðriks Guðmundssonar eru til
sölu hjá höfundinum við Mo-
zart, í bókaverzlun ó. S. Thor-
geirssonar og á skrifstofu Hkr.
j Fróðleg og skemtileg bók og
i afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25.
Lesið Heimskringlu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
| 'miiiii
Skólabækur
Við kaupum ntoaðar skóla
bækur. Hæsta verð borgað f
bænum. Einnig seljum við
skólabækur með mjög rýmilegu
verði. Til þess að vera viss um
góð kaup, sjáið oss fyrst.
THE BETTER OLE
548 Ellice Ave. Winnipeg, Man
(milli Furby og Langside)
%
Ingibjörg Shefley
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finni á skrifstofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsími: 33 158
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyrna-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hitta frá.kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsími: 26 688
Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691
Pianokensla
Office Phone Res. Phone
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours:
12 - 1
4 F.M. - 6 P.M.
AND BY APPOINTMENT
R. H. RAGNAR
683 Beverley St.
Phone 89 502
Dr. S. J. Johannesson
218 Sherbum Street
Talsími 30 877
Viðtalstími kl. 3—5 ev h.
AUÐVITAÐ ERU—
Giftingarleyfisbréf, Hringir og
Gimsteinar farsœlastir frá—
THORLA KSSON &
BALDWIN
699 SARGENT AVE.
VIKING BILLIARDS
og Hárskurðar stofa
696 SARGENT AVE.
Knattstofa, tóbak, vindlar og
vindlingar. Staðurinn, þar sem
Islendingar skemta sér.
UNCLAIMED CLOTHES
All new—Not Worn
Men’s Suits & Overcoats
479 PORTAGE AVE.
I. H. TURNER, Prop.
Telephone: 34 585
“WEST OF THE MALL—BEST
OF THEM ALL”
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Sími: 94 221
600 PARIS BLDG.—Winnipeg
Svanhvít Jóhannesson, LL.B.
tslenzkur “lögmaður”
Viðtalssitfa: 609 McArthur Bldg.
Portage Ave.
(í skrifstofum McMurray & Greschuk)
Sími 95 030
Heimili: 218 Sherburn St. Sími 30 877
Pelissier’s Limited
BREWERS
MULVEY & OSBORNE WINNIPEG
PELISSIER’S CLUB BEER and BANQUET ALE
/
A Union Product Made By Union Labor
PROMPT
DELIVERY-
£ 42304 . . 41 111
MAKE YOUR PLEASANT
LUNCH HOUR DATES AT
The
Jlnrlborougt) ^otel
A Service to Suit Everyone
LADIES MEZZANINE FLOOK
11.30 to 2.30 Special Luncheon
35c
BUSINESS MEN CLUB
LUNCHEON—11.45 to 2.30
50c and 75c
also a la carte
COFFEE ROOM (Men & Women)
SPECIAL LUNCH, 12-3...40c
SPECIAL DINNEK, 6 to 8 .50c |
This advertisement is not inserted by ithe Government Liquor COntrol Commission. The
Commission is net responsible for statements made as to quality of produdt advertised.
LESIÐ, KAUPIÐ
OG BORGIÐ HEIMSKRINGLU
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
tSLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsími: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miðvikudag í
hverjum mánuði.
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lætur úti meðöl í viðlögum
Sími: 36 155 682 Garfield St.
A. S. BARDAL
selur líkkistur og annas/t um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti. —
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: 86 607 WINNIPEG
RAGNAR H. RAGNAR
Pianisti oa kennari
Kenslustofa: 683 Beverley St.
Phone 89 502
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
Phone: 26 420
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Winnipeg
Gegnt pósthúslnu
Sími: 96 210 Heimilis: 33 328
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
762 VICTOR ST.
StMI: 24 500
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K.C.
tslenzkur lögfrœðingur
Skrifstofa:
801 GREAT WEST PERMANENT
BUILDING
Sími: 92 755
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
Talsími: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
TANXLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WINNIPEG
Dr. A. B. Ingimundson
TANNLÆKNIR
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Simi: 22 296 Heimilis: 46 054