Heimskringla - 14.11.1934, Blaðsíða 2

Heimskringla - 14.11.1934, Blaðsíða 2
2. SfDA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 14. NÓV. 1934 Frá Alþingi íslands FJÁRLAGARÆÐAN Eysteinn Jónsson fjármálaráS- herra gerir grein fyrir fjár- lagafrumvarpi stjórnarinnar fyrir árið 1935 og fjár- hagsafkomu kreppuáranna. Rvík. 8. okt. Áður en eg vík að frumvarpi því til fjárlaga fyrir árið 1935, sem lagt hefir verið fyrir Al- þingi, mun eg ,svo sem venja hefir verið undanfarið, fara nokkrum orðum um afkomu rkissjóðs og fjármálaástandið í landinu yfirleitt. Sá inngangur er alveg nauðsynlegur, til þess að menn geti áttað sig til fulls á þeim grundvelli ,sem fjárlaga- frumvarpið fyrir árið 1935 hlaut að byggjast á. Kreppuárin Nú stendur svo sérstaklega á að Alþingi er háð að hausti, og að fyrverandi fjármálaráðherra hefir í sérstöku útvarpserindi, 6. marz s. 1. gert grein fyrir af- komu ársins 1933, að svo miklu leyti, sem þá var um hana vitað. Eirindi þetta hefir og komið fyrir almenningssjónir og sé eg því ekki ástæðu til að gefa skýrslu um einstök atriði í afkomu þess árs. Hinsvegar tel eg mjög vel viðeigandi, að rifja hér upp höf- uðatriðin í fjárhagsafkomu vorri undanfarin kreppuár. Með því móti fæst áreiðanlega gleggst mynd af þeim erfiðleikum, sem við hefir verið að strða og sem þjóðin á óneitanlega enn í höggi við. Hagur þjóðarinnar út á við Þótt þetta yfirlit sé gefið í sambandi við frjálagaumræður og umræður um afkomu ríkis- sjóðs, hlýtur það að verða tví- þætt. Afkoma þjóðarinnar út á við, út- og innflutningur og greiðslujöfnuður við útlönd hef- ir svo gagngerð áhrif á af- 1931 var um 48 milj., en inn- flutningur um 48.1. Var því verzlunarjöfnuður lítið eitt ó- hagstæður, en greiðslujöfnuður við útlönd hefir verið mjög óhagstæður það ár. Eftir því, sem næst verður komist um upphæðir þeirra greiðslna ann- ara en fyrir vörur, sem mynda greiðslujöfnuðinn ,er talið að útborganir þjóðarinnar séu eigi minna en 8 miljónum hærri en innborganir. Þýðir það, að til þess að greiðslujöfnuðurinn sé hagstæður þyrfti útflutningar vara að nema um 8 milj. meira en innflutningur. Með vissu verður þetta ekki vitað, en ná- lægt hinu rétta verður komist. Árið 1931 hefir því verið greiðsluhalli á rekstri ríkissjóðs og skuldir safnast við útlönd. Ástæðumar ber vitanlega fyrst og fremst að rekja til hins mikla verðfalls á afurðum lands- manna. Árið 1932 Árið 1932, annað kreppuárið reyndust tekjur ríkissjóðs 11.1 milj., en voru á fjárlögum áætl- aðar 11.4 miljónir. . Greiðslur ríkissjóðs taldar á sama hátt og 1931 reyndust um 13.9 miljónir. Voru samkvæmt fjárlögum 11.5 milj. Gsjfeiðsluhalli ríkissjóðs var um 2.8 milj. Vömr vom þá útfluttar fyrir 47.8 milj. en inn- fluttar fyrir 37.3 milj. Verzl- unarjöfnuður því hagstæður um 10.4 milj. og greiðslujöfnuð- ur við útlönd hagstæður. Gætti hér áhrifa innflutnings haft- anna. Jafnhliða því sem inn- flutningshöftin björguðu greið- slujöfnuðinum við útlönd 1932, vegna þess hve mjög dró úr innflutningnum þeirra vegna, gætti áhrifa þeirra á afkomu ríkissjóðsins í því, að tolltekj- umar hröpuðu niður og komust langt niður fyrir það, sem þær hafa verið um mörg ár, fyr og síðar. Varð því mikill greiðslu- halli hjá ríkissjóði, enda þótt út- gjöld ríkissjóðs væru lægri en þau höfðu verið um langt skeið, komu allra landsmanan og af- I Gg igegri en þau hafa verið síð- komu ríkissjóðs sérstaklega, að ] an> Þessi afkoma ársins 1932 hún hlýtur að mynda annan þáttinn í því yfirliti, sem gefa á hugmynd um grundvöllinn, sem aðgerðir þings og stjórnar í fjármálum verða að byggjast á. Árið 1931 Árið 1931 hefir verið talið fyrsta kreppuárið hér. Á því ári voru tekjur ríkissjóðs mikið lægri en undanfarin ár eða um 15.3 miljónir. Höfðu verið á- ætlaðar í fjárlögum 12.8 miljón- ir. Útgjöldin voru þá, að við- bættum afborgunum fastra lána og öðrum eignaheyfingum, um 18.2 miljónir, en samkvæmt fjárlögum voru þau 12.8 miljón- ir. Greiðsluhalli ársins 1931 sýnir mjög glöggt sambandið á milli tekna ríkissjóðs og vöru- innflutningsins. Hún sýnir, að semja verður fjárlög og skatta lög með nákvæmu tilliti til þess, sem framundan virðist um möguleika fyrir vöruinnkaup- um til landsins. Árið 1933 Árið 1933 er síðasta árið, sem nokkumveginn fuilnaðarskýrsl- ur eru til um. Tekjur ríkissjóðs á því ári voru um 13.7 milj., en voru áætlaðar um 11 milj. ■ Greiðslumar reyndust um 15 miljónir, en ætlaðar á fjárlög- um um 12 milj. Greiðsluhalli ríkissjóðs árið 1933 var um 1.3 var því um 2.9 miljónir. Bfð eg! miljónir. Samkv. bráðabirgða- menn að gæta þess sérstaklega, að þegar um greiðsluhalla er að ræða, em taldar með útgjöldum afborganir af föstum lánum rík- issjóðs. Yfirlitið miða eg við greiðslujöfnuð en ekki reksturs- halla eða rekstursafgang ríkis- sjóðs, sökum þess, að ekki er vel komið um rekstur ríkissjóðs fyrr en afborganir fastra lána eru af höndum inntar án nýrra lántaka. Útflutningur íslenzkra afurða skýrslum Hagstofunnar fyrir áríð 1933 voru fluttar út vörur fyrir um 49.8 milj. króna, en inn vörur fyrir um 47.4 milj. 1933. Má búast við að tölur þessar hækki nokkuð við end- anlega skýrslugerð, en ekki á- stæða til að ætla annað en að þær sýni nokkumveginn réttan mismun út- og innflutnings. — Hefir verzlunarjöfnuðurinn því verið hagstæður um ca. 2.4 milj., en greiðslujöfnuðurinn við CANADIAN PACIFIC NIÐURSETT FAR MEÐ GUFUSKIPUM Ferð fram og til baka með “Mont” gufuskipunum frá höfnum í Canada til: Þriðja Túrista GLASGOW ...................... $110.00 $139.00 Far með “Duchess” og “Empress” skipunum ofurlítið hærra Skemtiferða farbréf á góðu verði fram og til baka til sölu til 30. apríl 1935. I gildi í 15 daga frá því að lent er. Eftir frekari upplýsingum finnið agent vom eða skrifið: CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS 106 C.P.R. Bldg. C.P.B. Bldg. King and Yonge Sts. Edmonton, Alta. Saskatoon, Sask. Toronto, Ont. W. C. CASEY, Steamship Oeneral Passenger Agent 332 Main St. — Winnipeg, Man. útlönd óhagstæður vegna þess hve greiðslur aðrar en fyrir vörar, eru okkur í óhag, svo sem áðan var drepið á. Heild- arsvipurinn á afkomu ársins 1933 var því sá, að hagur þjóð- arinnar út á við versnaði tölu- vert og greiðsluhalli, ríkissjóðs var nokkuð á 2. miljón. Var hann þó mikið lægri en undan- farin ár. Ríkisskuldir í árslok voru 39,996 þús. kr. og höfðu hækkað um 916 þúsund krónur á árinu. Sjóður hækkaði hins- vegar um 535 þús. krónur á árinu. Um einstök atriði við- víkjandi afkomu ríkissjóðs á ár- inu 1933, tel eg fullnægjandi að vísa til opinberrar greinargerð- ar fyrverandi fjármálaráðherra, sem áður er minst. Þó vil eg gefa stutta skýrslu um breyt- ingu enska lánsins frá 1921. Breyting enska lánsins frá 1921 Eins og fyrverandi fjármála- ráðherra gat um í opinberri skýrslu sinni, hafði fyrverandi stjórn samið um það, að enska láninu frá 1921 yrði á þessu ári breytt úr 7% láni í 5% lán. Fór breyting þessi þannig fram, að öllu láninu var sagt upp til innlausnar 1. sept., en skulda- bréfaeigendum jafnframt gefinn kostur á að fá skuldabréfunum breytt í 5% bréf og um leið greidd 3£ af hverju 100£ bréfi, eins og áskilið var í upphaflega lánssamningnum. Þá var enn- fremur gengið frá því, að hægt væri að innleysa béfin, ef skulda bréfaeigendur vildu fá þau greidd femur en taka vaxta- lækkuninni. Þegar fyrverandi fjármálaráðherra gaf skýrslu sína, var vitanlega ekki vitað hve mikið af béfum kæmi til innlausnar. Vil eg því skýra frá því nú, að öllu láninu hefir verið breytt í 5 % lán að undan- skildum 1350£, sem innleyst voru með hver 100£ 103£, eins og upphaflega var áskilið. Afkoma ríkissjóðs 1934 Um afkomu ríkissjóðs á yfir- standandi ári er eigi hægt að segja með neinni vissu eins og sakir standa. Líklegt má þó telja, að tekjur verði svipaðar og í fyrra, ef þær bregðast eigi síðara hluta ársins. Um endan- leg útgjöld er nokkuð í óvissu, m. a. vegna þess hve marghátt- aðar greiðslur verða samkv. sér- stökum ráðstöfunum Alþingis utan fjárlaga. En engar líkur virðast vera til þess, að hægt verði að komast hjá greiðslu- halla á þessu ári, enda gera gildandi fjárlög ráð fyrir greið- sluhalla. Þann 1. júlímánaðar þ. á. hafði lausaskuld ríkissjóðs í Barclay’s Bank hækkað um 839,812 frá áramótum og var þá orðin um kr. 2,160,000. — Síðan hefir hún staðið óbreytt. Sam- kvæmt samningi við bankann má skuld þessi vera hæst 100,- 000 sterlingspund. Skuldir inn- anlands hafa á árinu hækkað um ca. 266,000 kr. Þessar töl- ur gefa ekki hugmynd um end-^ anlega niðurstöðu ársins, en þykir þó rétt að geta þeirra hér. Verzlunarjöfnuðurinn 1934 Bráðabirgðaskýrslur um út- og innflutning á þessu ári, sem fyrir liggja til 1. sept., sýna mjög óhagstæðan verzlunar- jöfnuð. Samkvæmt þeim er út- flutningur ca. 24.9 milj., en inn- flutningur ca. 31.9 milj. Verzl- uarjöfnuðurinn samkv. því ó- hagstæður um ca. 7. miljónir. Að vísu er vonandi, að niður- staða ársins verði ekki svona slæm, en engar líkur virðast til þess að hún verði hagstæð. Innflutningurinn og tekjur ríkissjóðs Þegar athugað er það yfirlit, sem nú hefir verið gefið í mjög stórum dráttum um afkomuna 1931—1933 og horfumar á þessu ári, eru það nokkur höf- uðatriði, sem mér finst mest- ástæða til þess að gefa gaum. Öll árin, að undanteknu ár- inu 1932, eru keyptar til lands- j ins vörur fyrir hærri upphæðir en þjóðin hefir getað greitt með ársframleiðslu sinni. Öll árin er greiðsluhalli á rekstri ríkissjóðs, enda þótt út- gjöldin í heild hafi farið lækk- j andi. Greiðsluhallinn er yfir- j leitt jafnaður með lántökum og 1933 og væntanlega í ár, að mestu leyti með lántökum er- lendis. En það, sem er þó í- skyggilegast og mestum erfið- leikum mun valda við leiðrétt- ingar, er sú staðreynd, að þessi geiðsluhallaár, að undanskildu árinu 1932, hafa tolltekjur rík- issjóðs verið hærri en eðlilegt var, vegna þess hve innflutning- urinn hefir verið óeðlilega mik- ill. Hefði innflutningurinn ekki farið fram úr því, sem þjóðin gat borgað árlega, hefði greið- sluhalli þessara ára oðið ennþá meiri, nema ríkissjóði hefði þá verið séð fyrir nýjum tekju- stofnum. Skakkar fjárlagaáætlanir Öll árin eru útgjöldin sam- kvæmt Landsreikningnum miklu hærri en útgjöldin samkvæmt fjárlögum. Er það gamalt og alkunnugt fyrirbrigði og stafar sumpart af þeirri hættulegu reglu, að samþykt eru allskonar útgjöld á Alþingi önnur en þau sem eru á fjárlögum og sum- part af því, að upphæðir eru á- ætlaðar of lágt í fjárlögum. — Stundum virðast áætlanir svo fjarri reynslu, að eigi verður annað álitið, en þær séu vísvit- andi of lágt settar í fjárlögin. Er slíkt ekki til þess fallið, að auka traust Alþingis og þarf að hverfa með öllu . Verður nánar að þessu vikið í sambandi við fjárlagafrumvarpið fyrir 1935. Undirbúningur frum- varpsins fyrir 1935 Eins og yfirlit þetta um af- komu undanfarinna ára ber með sér, hlutu miklir erfiSTeik- ar að verða á vegi stjómarinnar við undirbúning fjárlaga fyrir 1935. Stjórninni var það ljóst, að til lengdar getur ekki gengið, að ríkissjóður þurfi á ári hverju að taka lán erlendis til þess að nota til afborgana fastra lána og því síður til óarðgæfra fram- kvæmda. — Greiðsluhallann varð að stöðva — helzt þegar á næsta ári. Ennfremur lá það fyrir, að atvinnuhorfur og ástand at- vinnuveganna var þannig, að framlög til verklegra fyrirtækja og til atvinnuveganna þurfti að auka frá því, sem ákveðið var á fjárlögum 1934. Við samning fjárlagafrum- varpsins hafði stjórnin til hlið- sjónar gildandi fjáriög og Lands reikninga undanfarinna ára. - Var vitanlega fyrst svipast eftir leiðum til sparnaðar á beinum kostnaði við rekstur ríkisins. - Eins og kunnugt er, verður ekki mjög miklu umþokað í þeim efnum nema með róttækum breytingum á fyrirkomulagi rík- isrekstursins. — Langmestur hluti útgjalda ríkissjóðs er ýmist bundinn með lögum eða við fyrirkomulag, sem ekki verður breytt nema á löngum tíma. Þó hefir stjómin gert ýmsar lækkanir á útgjöldum og verður þeirra helztu getið í sambandi við hækkanir fram- laga tilverklegra framkvæmda. 1 Vz milj. kr. af útgjöldunum eru leiðréttingar og gjöld skv. nýjum lögum Við athugun á útgjöídum og samanburði við fjárlög yfir- standandi árs kom það hins- vegar í ljós, að ýmsar áætlunar- upphæðir voru alt of lágt settar í þeim fjárlögum með tilliti til reynslunnar og þurftu að leið- réttast. Ennfemur að ýms ó- umflýjanleg útgjöld, þar af ýms lögbundin, sem ekki vou á fjár- 'ögum þessa árs, þurftu að tak- ist á fjárlög. Sumpart var hér im ný útgjöld að ræða, sem á- cveðin höfðu verið síðan fjár ögin fyrir 1934 voru samin og sumpart útgjöld, sem af ein- hverjum ástæðum ekki hafa verið talin með fyr í fjárlögum, þótt greidd hafi verið. Þessar bundnu hækkanir og leiðrétt- ingar nema nálægt 1*4 miljón króna og eru iþessar helztar: 1. Tillag til Kreppulánasjóðs kr. 250,000,00. Er þetta nýr lið- ur samkv. lögum um Kreppu- lánasjóð frá 1933. 2. Viðhald þjóðvega kr. 100,- 000,00. í frumvarpinu er við- haldið alls hækkað um 150 þús. kr. Af þeirri hækkun tel ég þessar 100 þús. krónur beina leiðréttingu á þessum lið fjár- laganna, sem undanfarið hefir farið mjög fram úr áætlun. 3. Landhelgisgæzla kr. 180,- 000,00. Þessi hækkun er sum- part vegna þess að undanfarið hefir heildarkostnaður við gæzl- una verið of lágt settur í f járlög samanborið við reynsluna, en sumpart vegna þess að reynslan hefir sýnt að undanfarið hefir verið gert ráð fyrir hærra til- lagi úr Landhelgissjóði til gæzl- unnar en honum er unt að leggja fram. Sjóðurinn er því nær þorrinn og getur því að- eins lagt fram árlegar tekjur sínar, sem eru sektir og björg- unarlaun. 4. Afborganir lána kr. 142,- 000,00. Hækkunin á þessum lið stafar af afborgunum af hin- um nýrri lánum. Má þar sér- staklega benda á lán ríkissjóðs til vega- og brúargerða. 5. Vextir kr. 90,800,00. Hækk- un á þessum lið þrátt fyrir sparnað vegna breytingar enska lánsins frá 1921, stafar sumpart af skuldahækkun 1933 og að sumu leyti af því að nú er ná- kvæmar áætlað fyrir vaxta- greiðslum af ósamningsbundn- um skuldum en áður hefir verið í fjárlögum, en þó aðeins leið- rétting, því að undanfarið hafa árlega verið greiddar háar upp- hæðir í kostnað við slíka samn- inga, og vafalaust verður ein- hver kostnaður árlega vegna samninga við önnur ríki. Get eg þess hér til dæmis, að 1932 voru greiddar tæpar 30 þús. krónur í slíkan kostnað og 1933 um 36 þús. krónur. 6. Tillag til sveitafélaga vegna fátækraframfæris yfir meðallag kr. 100.000,00, Er hér um leiðréttingu aðræða, samkvæmt því sem reynslan sýnir að útgjöld þessi muni rfeynast. í núgildandi fjárlögum er átælað að greiðslur til sveita- félaga vegna fátækraframfæris, sem er 15% yfir meðallag, muni nema kr. 100.000,00, en fyrir- sjáanlegt er, að þau muni nema 170 þús. kr. á þessu ári. 7. Jarðræktarstyrkur kr. 75.000,00. Þessi hækkun á á- ætlunarupphæð er einnig gerð til leiðréttingar. Þessi liður hefir undanfarið verið áætlaður töluvert lægra en hann hefir orðið í reyndinni. 8. Kostnaður við barnafræð- slu kr. 60.000,00. Þessi hækk- un er leiðrétting, aðallega vegna þess að laun kennara eru í gild- andi fjárlögum sett lægri en þau reynast. 9. Strandferðir kr. 70.000,00. Hækkun þessi er gerð til sam- ræmis við þá reynslu, sem fæst í ár. Úr strandferðum þykir sízt fært að draga. 10. Kostnaður við spítala kr. 76.800,00. Mestur hluti upp læðarinnar eru hækkanir ti leiðréttingar til samræmis við reynsluna um kostnað við sjúkrahúsin, eru nokkur hluti nýr liður vegna laga frá 1932 um breytingu á lögum um varnir gegn kynsjúkdómum. 11. Malbikun þjóðvega kr. 77.000,00. Þessi liður er nýr og settur á fjárlög samkvæmt breytingu á lögum um bifreiða- skatt, sem samþykt var á Al- þingi 1933. Renna samkvæmt henni 15% af bifreiðaskatti til malbikunar á þjóðvegum. 12. Kostnaður við gjaldeyris- ráðstafanir kr. 30.000,00. Á fjárlögum hefir eigi fyr verið gert ráð fyrir kostnaði við fram- kvæmd innflutningshafta né gjaldeyrisráðstafana. Hefir þó Slíkur kostnaður verið greiddur undanfarin ár. Þótti sjálfsagt að ætla fyrir þessum kostnaði á fjárlögum, þar sem alkunnugt er að hjá því verður alls ekki komist að hafa sterk tök á inn- flutningi vara og sölu erlends gjaldeyris. 13. Toll- og löggæzla kr. 50.000,00. Þessi hækkun á liðn- um er beinlínis til leiðréttingar samkvæmt reynslu um þennan kostnað. Er síður en svo að tollgæzla megi minka frá því, sem hú er. Er full þörf á að hún verið bætt víða á landinu og getur því ekki til mála kom- ið að setja þennan lið lægra en hann hefir reynst undanfarið. 14. Kostnaður við Alþingi kr. 25.000,00. Hækkun þessi á á- ætluðum kostnaði við Alþingi er sett í samræmi við reynslu undanfarinnar ára. Hinsvegar hefir þess verið vænst, að kostnaður við fjölgun þing- manna myndi vegast upp með styttra þinghaldi þar sem fjár- lög eru nú afgreidd í samein- uðu þingi. 15. Kostnaður við milliríkja- samninga kr. 18.500,00. Þetta er nýr liður á fjárlögum, en þó aðeins leiðrétting, því að und- anfarið hafa áriega verið greiddar háar upphæðir í kostn- að við slíka samninga, og vafa- laust verður einhver kostnaður árlega vegna samninga við önn- ur ríki. Get eg þess hér til dæmis, að 1932 voru greiddar tæpar 30 þús. krónur í slíkan kostnað og 1933 um 36 þús. krónur. 16. Framlag til Ellistyrktar- sjóða kr. 25.000,00. Hækkun þessi er leiðrétting vegna á- kvarðana Alþingis um að hækka tillagið til sjóða þessara. 17. Framlag til sjúkrasam- laga k. 18.00,00. Um hækkun á þessum lið er hið sama að segja. 18. Sakamálaskostnaður kr. 20.000,00. Á þessum lið er um leiðréttingarhækkun að ræða samkvæmt reynslu undanfar- inna ára. 19. Kostnaður við vinnuhæl- ið á Litla-Hrauni kr. 15.000,00. Hækkunin er gerð einungis til leiðréttingar. Reynslan hefir sýnt, að of lágt hefir verið á- ætlaður kostnaður við stofnun þessa. 20. Kostnaður við skatta- nefndir kr. 15.000,00. Kostnað- ur þessi hefir verið of lágt á- ætlaður undanfarið og er liður- inn hækkaður um þessa upp- hæð til leiðréttingar. Aðrar hækkanir af þessu tagi og nýir liðir óhjákvæmilegir nema lægri upphæðum og því ekki talið sérstaklega hér með. )

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.