Heimskringla - 30.01.1935, Síða 8
8. SÍÐA.
WINNIPEG, 30. JANÚAR, 1935
FJÆR OG NÆR
Séra Jakob Jónsson messar í
kirkju Sambandssafnaðar í
Winnipeg næstkomandi sunnu-
dag. ,
* * *
Bókmentaféleg íslands gaf út
söguna “Maður og kona” árið
1876, fáum árum eftir dauða
höfundarins, Jóns sýslumanns
Thoroddsen. Jón Sigurðsson
forseti bjó bókina undir prent-
un, og lýsir því yfir að þetta sé
merkasta skáldsagan er samin
hafi verið á voru máli.
♦ * *
Munið eftir fyrirlestri séra
Jakobs Jónssonar er fluttur
verðu'r nú á föstudagskveldið í
kirkju Sambandssafnaðar. Er-
indið fjallar um það mál sem
höfundurinn er gagn kunnugur,
verður það því bæði fróðlegt og
skemtilegt. Sem fólki er kunn-
ugt er séra Jakob afburða mæl-
skumaður, en jafnframt hinn
skýrasti og ljósasti í orði svo
unun er að fylgjast með hverju
er hann segir. Aðgangur að
fyrirlestrinum er ókeypis. —
Hljómlistaflokkur frú Guðrúnar
Helgason verður þar einnig til
skemtunar. Hann er þegar
orðinn þjóðkunnur.
* * *
Islendingadagsnefnd Winni-
peg og Gimli-búa, hélt opinn
fund í G. T. húsinu s. 1. mánu-
dag. Lagði nefndin fram skýrsl-
ur yfir starfið á liðnu ári. Báru
þær með sér að nokkur tekjuaf-
gangur var á rekstrinum, þó
minni væri en árið áður. í sjóði
eru $251.04. Ánægju létu fund-
armenn í ljósi yfir skemtun
dagsins og þökkuðu nefndinni
vel unnið starf.
Sex menn voru kosnir í
nefndina eins og vanalegt er.
Voru þeir þessir: G. S. Thor-
valdson lögfr., Björn Pétursson
HEIMSKRINGLa
kennari, Jochum Ásgeirsson,
Sveinn Pálmason, Steindór
Jakobsson, Gísli Magnússon. —
Voru þeir að Steindóri Jakobs-
| syni undanskildum allir í nefnd-
| inni áður og því endurkosnir.
Þorleifur Hanson, sem í nefnd-
I inni var baðst lausnar vegna
| þess að hann yrði fjarverandi á
í komandi sumri. í stað hans var
kosinn Stefán Eymundsson.
Kyrrir í nefndinni voru' þessir:
séra Jóhann Sólmundsson,' Frið-
rik Swanson, Ásbjörn Eggerts-
son, Guðm. Eyford og Jón Ás-
geirsson. Og þá er tala postul-
anna öll komin.
Á fundinum var Soffonías
Thorkelsson kosinn yfirskoðun-
armaður reikninga.
* * *
Þér munið öll eftir sögunni
“Maður og kona”, íslenzkasta
skáldsagan sem nokkum tíma
hefir verið samin. iSvo dró hún
fram þjóðlífið á sinni tíð, að í
hverri sveit landsins þóttust
menn þekkja aðal sögupersón-
urnar, rétt í kringum sig, og
var það trú manna að, höfund-
urinn hefði notað þær í sögunni.
Menn þektu séra Sigvalda,
Hjálmar tudda, Grím meðhjálp-
ara, og Bjarna frá Leiti. Sög
unni hefir verið snúið í sjónleik,
er verður sýndur í næstu viku í
samkomusal Sambandssafnað-
ar. ■— Missið ekki af þessari
skemtun.
* * *
Fólk á Lundar og í næriiggj-
andi byðum er beðið að minnast
þess, að samkomunni, sem
halda átti (á Lundar) 18. jan.,
var frestað til 8. febrúar. Séra
Jakob Jónsson flytur þar ræðu.
* * *
Home Cooking Sale
Deild nr. 1, kvenfélags fyrsta
Lútherska safnaðar, efnir til
sölu á heimatilbúnum mát í
1 neðri sal kirkjunnar, föstudag
1. febrúar næstk. eftir hádegi og
að kveldinu. Þar verður á boð-
stólum rúllupylsa, lifrarpylsa,
kæfa, blóðmör og allskonar
brauð, einnig kaffi með brauði.
Lítið inn til konanna. Allir vel-
komnir.
Forstöðunenfdin.
* * *
GleymiS ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
* * ¥
“Maður og kona” — Þér sem
ekki hafið lesið söguna ættuð
að horfa á leikinn sem saminn
hefir verið upp úr henni, og
verður sýndur á miðvikudags-
og fimtudagskveldið kemur. —
Sagan var á sinni tíð og er enn
vinsælasta skáldsagan er samin
hefir verið á íslenzku.
MESSUR og FUNDIR
{ kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kL 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Funáir 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsía
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagiö: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldj.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
The Falcon Athletic Associa-
tion are holding a Bridge on
Friday evening February 1, at
the Jón Bjarnason Academy. A
pleasant get-together is assu'red.
25c per person. Suitable prizes.
Bill Goodman, Sect.
Phone 21900
I beinu verzlunarsambandi við stærsta fisksölufélagið í Vestur-
Kanada, Booth Fisheries (Winnipeg Fish Division) hefi eg opnað
fisksölubúð að 544 Ellice Ave.,Winnipeg.
MODERN
FISH
MARKET
544 Ellice Ave.
Talsími 33 300
Jón J. Sigurðsson,
eigandi
FJÆR OG NÆR
Bókasafnið
Það er bæði sjálfsagt og vel
viðeigandi að opinbert þakklæti
sé birt í íslenzku blöðunum til
þeirra sem gefið hafa bækur á
árinu til bókasafns Þjóðræknis-
félagsins. Nöfn gefenda hafa
verið birt við og við en nú
þegar heldarskrá er fengin er
tilhlýðilegt að listinn komi allur
í einu.
Deildin Frón er þessu fólki
innileg þaklát fyrir þann góð-
vilja og sjálpsemi við bóka-
TAXI? Phone us—
PHONE 34 555
SARGENT TAXI
Day og Night Service
“If you we satisfy,
Others please notify”
Minimum by-law rates
. safnið. Ef slíkar gjafir koma á
hverju ári verður bókasafnið ís-
lendingum bæði til gagns og
sóma, í náinni framtíð. Eg vil
endurtaka þakklæti nefndarinn-
ar og mitt persónulega sem for-
seta Fróns á þessu ári til allra
sem stutt hafa bókasafnið með
gjöfum á árinu. í listanum eru
aðeins tilgreindar þær bækur
sem í bandi eru þó margt af
þessu fólki gæfi talsvert óbund-
ið.
Sigurður Antoniuson 86
Margrét Gíslason 54
Sigurbjörn Sigurjónsson 27
Egill Erlendson 24
Mrs. Jósephína Jóhannson 21
Mrs. Jóhanna Thorkelsson 21
Jóhannes og Guðlaug Freeman
18
Soffanías Thorkelsson 12
Mrs. Helga Stephanson 14
Stefán Jóhannson 2
Friðrik Kristjánson 2
Ólafur Pétursson 2
Árni Egegrtson 1
Bergthpr Emil Johnson
iois GOOD REASONS
Why You Should Train at
Success BusinessSCollege - Winnipeg
1.
Through superior service, the Success Business College of Winni-
peg became the largest private Commercial College in Westem
Canada.
2.
More than 43,000 young men and women have enrolled for
Success Courses. Hundreds of these are now employers and their
preference for “Success-trained” office help creates an ever
increasing demand for Success Graduates.
3.
The Success is the only Business College in Winnipeg that has
been accredited by the Business Educators’ Association of Canada.
This Association admits only the best Commercial Colleges into
its membership.
4.
Students of the Success Business College are entitled to the
privilege of the B. E. A. examination system. B. E. A. standards
represent the highest degree of efficiency in Canadian Commercial
education.
5.
The Success Business College employs only teachers of advanced
Scholarship and long successful teaching experience. The Success
system of individual and group instruction insures quick and
thorough results.
6.
The Employment Department of the Success Business College
places more office help than any other Employment Agency in
the City of Winnipeg. The service of this Department is available
only to Success students. »
7.
The Success Business College admits only students of advanced
education and favorable personal characteristics.
8.
The Success Business College premises are well equipped and
comfortable. The College is located in the heart of the business
section of Winnipeg, where employers can conveniently step into
our office and empioy “Success Graduates.”
9.
The Success Business College has no branches; it operates one
efficient College in which the principal and his staff devote their
best efforts and all their time to thorough instruction and careful
supervision of students.
10.
The majority of Commercial teachers in Winnipeg received their
business training at the Success Business College. It pays to at-
tend the College that is known as “The Teacher of Teachers.” Our
high standards attract the best young people in Westem Cana4a.
Write For Free Prospectus
Individual Home
Instruction V—y Study
At X,' — Courses
The BUSINESS COLLEGE By
College Portage Ave. at Edmonton St. Mail
WINNIPEG
Ársfundur í stúkunni “Isa-
fold” 1048 I. O. F. verður hald-
inn í Jón Bjamason Academy
fimtudagskv. 31. janúar kl. 8.
Áríðandi störf liggja fyrir fund-
inum —i fjölmennið.
* * *
iSystra kvöld verður á fundi
stúkunnar “Heklu” 31. janúar.
Ræður o. fl. Kaffi á eftir. —
Allir Goodtemplarar velkomnir.
* * *
Jón Sigurðsson, I.O.D.E. fé-
lagið mætiT að heimili Mrs. J.
F. Kristjánsson, 788 Ingersoll
St., mánudagskveldið 11. febr.
kl. 8.
* * *
Mrs. Andrea E. Johnson, Ár-
borg, Man., var nýlega gerð að
“lífstíðar félaga” í Bændafélag-
inu í Manitoba í minninguf um
starf bróður hennar, Ingimars
heitins Ingjaldsonar og starf
hennar sjálfrar í kvennadeild fé-
lagsins. Þau systkini hafa ver-
ið ótrauðustu starfsmenn fé-
lagsins frá byrjun. The Co-
Operative Livestock Producers
Association veitti viðurkenning-
una.
* * *
Guðm. Verzlunarstjóri Einars-
son frá Árborg var staddur í
bænum fyrir helgina. Hann sat
veizlu' þá er Mr. S. Thorvaldson
var haldin hér nýlega.
ÁVARP FRÁ “HELGA MAGRA”
Samskotasöfnun í “Jarð-
skjálftasjóð Eyfirðinga” af hálfu
klúbbsins er nú lokið og nam
sjóður um 15. þ. m. $1,267.14
og hefir nú verið sendur til for-
sætisráðherra Hermanns Jónas-
sonar í Reykjavík sem er for-
maður nefndar þeirrar ier stjórn
íslands skipaði til að meðhöndla
jarðskjálfta samskotin og nam
sú upphæð er send var heim
6,000 kr.
Vér viljum nú að endingu
votta öllum er gáfu í þennan
sjóð vorar hjartans þakkir, ekki
sízt þeim er svo drengilega
gengust fyrir að safna samskot-
um í hinum ýmsu bygðum fólks
vors hér vestra.
Vér viljum einnig þakka ísl.
vikublöðunum Heimskringlu og
Lögberg fyrir stuðning og hlý-
leg ummæli og fyrir að birta
gjafalistann endurgjaldslaust og
ritgerðir þessu máli viðkomandi.
Vér fórum á stað með þetta
mál með hálfum huga, og tók-
um það nærri oss að biðja um
fé á þessum erfiðu kreppu tím-
um, og vorum fremur vonlitlir
um árangurinn, því meira gleði-
efni varð það oss hve þátttakan
varð almenn og árangurinn
vonum fremur góður og ber það
að voru áliti fagurlega vótt um
ást og trygð gefendanna til ætt-
jarðarinnar. Þessi sjóður er
engin ölmusugjöf heldur vina-
gjöf og samúðarvottur til þeirra
er urðu fyrir svo sviplegu tjóni
af völdum náttúru aflanna.
Megi þessi gjöf verða til þess
að treysta þjóðræknisböndin og
samúð milli lýðs vors hér og
heimaþjóðarinnar.
Með þakklæti til allra ter réttu
oss hjálparhönd í þessu máli,
fyrir hönd “Helga Magra”.
Soffonias Thorkelsson
Páll Hallson
Friðirk Sveinsson
(Söfnunarnefndin)
—Winnipeg 28. jan. 1935.
Áður auglýst ........$1,236.49
Margrét P. Johnson
Selkirk, Man............2.00
Mrs. G. A. Vivatson
Svold, N. D............1.00
E. Johnson
Steep Rock, Man.........1.00
Ragnar Eyjólfsson
Steep Rock, Man.........1.00
Safnað af H. Danielson,
Otto, Man.
Bjöm Thorsteinsson .......1.00
H. Danielsson ............ 50
Safnað af próf. Th. Thorvaldson
Saskatoon, Sask.
Guðrún A. Jóhannson ......1.00
K. J. Matthieson .........1.00
V. A. Vigfússon ..........1.00
Thorbergur og Margrét
Thorvaldson ......... 5.00
Brennið kol og sparið
Premier Cobble (Sask. Lignite) ....$6.50 perton
Dominion Cobble (Sask. Lignite) .. 5.90 “
Wildfire Lump (Drumheller) ........11.35 “
Western Gem Lump (Drumheller) .....11.35 “
Foothills Lump ....................12.75 “
Bighorn Lump (Saunders Creek) .....13.25 “
Michel Koppers Coke ...............14.00
Semet-Solvay Coke .................14.50 “
All coal stored in Weatherproof sheds and
delivered by our own trucks
Phones: 94 309—94 300
McCurdy Supply Co. Ltd.
Builders’ Supplies and Coal
49 NOTRE DAME AVE. E.
Mrs. Inga Johnson
Winnipeg, Man...........5.00
Þjóðræknisdeildin “Frón”
Winnipeg,- Man.........10.00
Ónefndur .................1.15
Alls ..............$1,267.14
KaupmaðuT nokkur úti á
landi leyfði sonum sínum að
skreppa til Reykjavíkur og lit-
ast um í höfuðstaðnum. Tím-
inn leið og ekki komu synirnir
heim aftur. — Kunningi kaup-
mannsins hittir hann að máli
og spyr hvort synir hans hafi
nokkuð að gera í höfuðstaðn-
um. — Svaraði kaupmaður því
á þessa leið:
— Já, já. Nóg að gera. Á
kvöldin eru þeir í bíó og kaffi-
húsum, en á daginn síma þeir
eftir peningum.
* * *
Fúsi: Það segir í blaðinu að
ræninginn hafi verið dæmdur
itil æfilangs fangelsis.
Siggi: Það er ekki nóg, hann
ætti að fá lengri fangelsisvist
en það.”
Phones: 95 328—91166
H0TEL C0R0NA
NOTRE DAME Ave. East
at Main Street
J. F. BARRIEAU
Manager Winnipeg
Ársfundur Sambandssafnaðar
Hinn almenni ársfundur Sambandssafnaðar verður hald-
inn sunnudaginn 3. febrúar 1935, kl. 8.15 í kirkju safn-
aðarins. Á fundinum verða tekin fyrir hin venjulegu
ársfundarstörf, lagðir fram reikning yfir starf safnaðar-
ins á hinu liðna ári, kosnir embættismenn fyrir hið
næsta ár o. fl.
Félagsfólk og styrktarmenn safnaðarins er sérstaklega
beðið að fjölmenna.
í umboði forstöðunefndarinnar.
Winnipeð 22. janúar 1935.
J. B. Skaptason J. F. Kristjánsson
forseti ritari
“MAÐUR OG K0NA”
eftir Jón sýslumann Thoroddsen
verður sýndur MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 6. FEBRÚAR
og FIMTUDAGSKVÖLDIÐ, 7. FEBRÚAR
í samkomusal Sambandskirkju
Aðgangur 50c
Byrjar kl. 8.
Almenn skemtisamkoma
verður haldin í fundarsal kirkjunnar á föstudagskveldið
kemur 1. febrúar. Þar flytur:
Undir uinsjá forstöðunefndar Sambandssafnaðar
Séra Jakob Jónsson fyrirlestur
Efni: Trúarlif meðal ungmenna á fslandi
Þá verður þar ennfremur til skemtunar ungmenna
hljómsveitin góðkunna,
“The CJRC Radio Kiddies”
undir stjórn Mrs. G. S. Helgason
Leikur hljómsveitin nokkur lög, sýngur skemtisöngva
bæði á undan og á eftir fyrirlestrinum. Aðgangur ó-
keypis. Samskota leitað. Samkoman byrjar kl. 8.
Safnaðarnefndin.