Heimskringla - 13.02.1935, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 13. FEB., 1935
HEIMSKRINGLA
7. SlÐA.
BRÉF
Frh. frá 3. bls.
ferð. Póstur var ekki fluttur
frá White Rock í hálfa aðra
viku og svo var víðar. Umferð
járnbrauta teptist í meir en
viku milli Vancouver og Blaine,
vegna au'rskrifðu sem hljóp á
járnbrautina milli White Rock
og Crescent. Barnaskólum var
lokað í heila viku. Líkt þessu
virðist hafa verið ástandið víð-
ast á noröurströndinnni. Þetta
er annars ófullkomin lýsing, því
hvorki blöðum né radíóum bar
saman og sögur sem fólk sagði
kvað öðru voru blandaðar mis-
sögnum og ágizkum. Skoðun
eða ummæli MacPhersons
verkamálaráðherra fylkisins er
aðeins ágizku'n, hann veit ekk-
ert um það enn sem komið er;
það eitt er víst að þetta er það
mesta flóð sem á ströndinni
hefir komið, svo elztu menn
muni. Hvort sem það er synd-
um mannanna að kenna eða
öðru virtist alt þetta óveður ó-
náttúrlegt.
Afkoma fólksins var fyrir
þetta áfelli svipuð og áðpr, en
hefir víst versnað stórum við
þetta áfelli; markaður, er allur
lélegur og atvinnuleysi það
sama . Að vísu er talsvert unnið
að skógar vinnu en það nær að-
eins til tiltölulega fárra. Hér
eru engin verkstæði sem telj-
andi sé og á meðan ekki er séð
fyrir því, verður varla um aukna
atvinnu að ræða. Það er ann-
ars furðulegt með öll þau skil-
yrði sem hér eru fyrir verk-
smiðju iðnað, að nálega engir
skuli hafa komið auga á það. í
fylkis kosningunum í fyrra
sagðist forsætisráðherra skyldi
sjá um að það sem hann lofaði
yrði annað en kosningaloforð.
En hann var ekki fyr búinn að
ná völdum en hann lagði aftur
augun og hefir sofið á loforðun-
um síðan. Það hefir lítið heyrst
um hann, nema þegar hann hef-
ir lagt á stað til að biðja um
lán, enda mun hann hafa lítið
til að vinna með. En um það
hefir honum tæpast verið ó-
kunnugt þegar hann lofaði öll-
um framkvæmdunum.
Það er annars einkennilegt,
að fólk skuli ekki vera farið að
sjá hvaða byrði þessar bráð-
ónýtu fylkisstjómir eru. Það
kostar stórfé árlega að halda
þeim uppi en hafa lítið annað að
starfa en að sjá um vegabætur.
Þær hafa ekkert að gera með
mestu velferðarmál þjóðfélags-
ins nema þá í sambandi við
sambandsstjórnina, en era oft
ómögulegar til samvinnu vegna
pólitískra skoðana og ýmsra
sérréttinda sem þeim voru í
upphafi heimilaðar, en sem nú
er orðið bráðnauðsynlegt að
breyta. Fylkin hafa að mörgu
leyti gerólík lög hvert út af
fyrir sig, og landstjórnin hefir
tekkert með þau að gera. Og
meira að segja getur landstjórn-
in ekki komið í gegn bráðnauð-
synlegum umbótalögum, nema
að brjóta sérréttindi fylkjanna
eins og bezt sést á ræðu Mr.
Kings í sambandsþinginu. Það
getur satt verið að nauðsynlegt
sé að hafa fylkisstjórnir, en þær
eru svo beztar að þær kosti
ekki meira, en það sem þær af-
reka og að minsta kosti svo
beztar að þær standi ekki í vegi
fyrir eðlilegum framförum þjóð-
félagsins í heild.
Að endingu þakka eg Heims-
kringlu fyrir að þýða ræðu
Stevens í haust og svo nú ræður
Hon. R. B. Bennetts. Það er
alt af betra að sjá það sem sagt
er í heild en að sjá það þar sem
gripin er ein og ein setning á
víð og dreif, með löngum at-
hugasemdum frá þeim sem
skrifa um það, eins og til dæmis
ritstjóra blaðsins “The Vancou-
ver Sun, sem er kaþólskt-liberal
blað og víðlesið hér á strönd-
inni. Eg hefi nú ekki séð eða
talað við marga síðan Mr. Ben-
nett flutti þessar útvarpsræður,
en þó ætla eg að flestum líki
þær vel. Þó munu margir liber -
alar hafa það eitt út á þær að
setja að þær eru fluttar af Ðen-
nett en ekki King. Sé það rétt
sem liberalar og CCF segja að
það sem í boðskap Bennett er
helzt sé þeirra stefna ættu þess-
ir flokkar allir að geta unnið
saman, nema þeir séu eins og
karl sem var á Jökuldalnum og
hét Jóhannes Grímsson; hann
varð altaf reiður ef aðrir voru
á sama máli og hann sjálfur.
Ræða H. H. Stevens hefir af
flestum verið vel rómuð og
hann er svo kunnur hér að
flestir taka eftir því sem hann
segir. 1930 hélt hann ræðu í
Cloverdale. Daginn eftir spurði
stúlka, sem heyrði ræðuna, föð-
ur sinn, sem er sterkur liberal,
að hvernig stæði á því að Mr.
Stevens skýrði máþn á alt
annan hátt en Mr. Reid, en
gamli maðurinrf var fljótur að
svara, að Mr. Stevens væri svo
á ræðupalli að hann neyddi
mann til að trúa, og þess vegna
væri bezt að hlusta ekki á
hann. Og þetta er það sem
margir munu hugsa. En hvað
sem þessu líður, þá hefir hann
sýnt svo rækilega fram á sví-
virðinguna, að varla tekst að
þegja það fram af sér til lengd-
ar hér eftir. Þó fylgi-fiskum
auðvaldsins geti tekist að tefja
fyrir framkvæmdum nokkur ár
ennþá, og það geta allir reitt
sig á að eins lengi og verslun-
ar valdinu verður ekki með öfl-
ugúm lögum markaður bás,
mun það herða á þrælatökunum
enn til muna, lánfélög og yfir-
höfuð verslunarvaldið hefir alt
af verið sterkasti hlekkurinn í
pólitísku stríði þjóðfélaganna
og þau hafa sjaldan hætt fyr
en þau hafa haft sitt fram að
gera þjóðfélögin að þrælum sín-
um. Jósef Jakobsson safnaði í
kornhlöður Faraós og seldi svo
aftur meðan gull og silfur var
til, en síðan lánaði hann á með-
an jarðir vorú til, en þegar alt
var komið í eign Faróas tók
hann fóikið sjálft í þrældóm. —
Hann er sá fyrsti sem lánverzl-
un rekur svo sögur fari af, en
það hafa margir gert síðan og
flestir kept að því sama að
gera fólkið að þrælum, þó sá
tími sé liðin að það sé eða verði
skoðað guðs ráðstöfun.
Eg ætla nú að hætta og óska
þér og Heimskringlu og öllum
MAIL THIS COUPON TO-DAY!
To tKe 5ecret*ry :
Dominion Business College
Winnipeg, Manitobe
Without obligation, please send me full perticulars
°f yo^r courses on‘*Streamline” business training.
^6cDominion
BUSINESS COLLEGE
'‘Ol'IINE MMl » '* *’INMIPEG
Æfiminning
Guðbjörg Einarsdóttir Pálsson
Hún andaðist 3 ágúst 1934
frá Reykjavíkur, P.O., Man., á
almennaspítalanum í Dauphin,
Man. Guðbjörg sál. var fædd
24. maí 1882 í Hornafirði í
Austur-Skaftafellssýslu. Faðir
hennar var af merkri bændaætt,
sem lengi var í Mýrasveit í
Hornafirði. Einn föðurbróðir
hennar, Þorsteinn að nafni, er
á lífi hér vestra, og á heima að
Leslie, Sask. Móðir hennar var
af Hlíðarenda ætt, en móðir
hennar, amma Guðbjargar, var
Guðrún Bergsdóttir prests og
Katrínar, dóttur séra Jóns
Steingrímssonar, hins merkasta
manns á sinni tíð. Var Katrín
dóttir Jóns og fyrri konu hans
er var dóttir Steins biskups á
Hólum.
Móður sína mist Gúðbjörg, er
hún var kornung, og var hún þá
tekin í fóstur af móðurömmu
sinni og fluttist með henni aust-
ur á Fljótsdalshérað. Þar ólst
hún upp og fluttist með fjöl-
skyldunni vestur um haf. Þegar
hingað kom, fór hún að vinna
í vistum hjá ensku fólki, og
það starf stundaði hún að
mestu leyti, unz hún giftist fyrri
manni sínum, Allan Carr, sem
féll í stríðinu árið 1916. Með
honum eignaðist hún tvö börn,
sem bæði dóu kornung. 22.
apríl 1926 giftist hún Sigfúsi
Pálssyni Sigfússonar, ættuðum
úr Borgarfirði eystra. Hafði
Sigfús lengi átt heima í Winni-
peg og var einn af duglegustu
og framkvæmdasömustu íslend-
ingum þar. Var hann þá ekkju-
maður, fyrri kona hans látin
fyrir nokkrum árum. Bjuggu
þau svo í Winnipeg hálft annað
ár, en fluttust til San Diego í
Califoraíu haustið 1927. Bygði
Sigfús þar upp heimili og stóðu
þau hjónin framarlega í öllum
félagssamtökum íslendinga þar
í borginni. En sökum fámennis
vorú öll slík samtök erfið og
kröfðust mikillar vinnu af hálfu
þeirra, sem beittu sér fyrir. —
Mun Sigfús, sem var vanur
meiri og fjölbreyttari félags-
skap meðal Islendinga í Winni-
peg, aldrei hafa unað sér rétt
vel þar syðra. Meðan þau
dvöldu í San Diego, var heimili
þeirra griðastaður öllum íslend-
ingum, sem þar voru á ferð, og
voru þau hjón mjög vinsæl
meðal allra landa þar. Áður en
þau fóru burt þaðan var þeim
haldið veglegt skilnaðarsam-
sæti. Þau komu til Winnipeg
síðastliðið vor, dvöldu nokkurn
tíma hjá ýmsum vinum sínum í
Winnipeg og í grendinni og
fóru svo norður á Bluff, eða
Reykjavíkur, P.O., til Árna.
bróður Sigfúsar, þar sem að
þau ætluðu að dvelja sumar-
langt. ;
Þegar þaú höfðu verið nokk-
urn tíma þar nyðra, veiktist
Guðbjörg skyndilega. Hafði
hún áður kent sjúkdóms þess,
sem dró hana til dauða, en ekki
verið til muna þjáð af honum
fyr en nú. Var hún flutt. á
spítala í Dauphin og andaðist
þar nokkrum klukkustundum
eftir að hún kom þangað. Hún
var jörðuð í grafreit Bluff-bygð-
arinnar að viðstöddu flestu
bygðarfólki.
Gúðbjörg var góð kona, á-
stundarsöm og skyldurækin í
öllu starfi; vinsæl og vel látin af
öllum, sem kyntust henni; í
umgengni var hún vingjarnleg,
glaðlynd og ljúf við alla. Manni
sínum var hún ágæt eiginkona
og var sambúð þeirra hin ást-
úðlegasta; og var fráfall hennar
honum harmsefni hið mesta. —
Með henni er til moldar gengin
ein hinna mætustu íslenzkra
kvenna hér um slóðir, og mun
minning hennar lengi geymast í
þakklátum huga ajlra, sem ein-
hver kynni höfðu af henni.
G. Á.
lesendum hennar og yfirleitt
öllum Islendingum, f jær og nær,
árs og friðar.
þinn einlægur,
P. G. fsdal
Ungur maður kom í blóma-
búð og ætlaði að kaupa rauðar
rósir. Alt í einu féll hann í
þungar hugsanir.
— Þér ætlið auðvitað að segja
henni það með rósum, sagði
kaupmaðurinn brosandi. Þá
duga ekki minna en þrjár tylft-
ir.
— Nei, nei, sagði ungi mað-
urinn. Það er nóg að hafa
þær sex. Eg vil ekki segja of
mikið.
Margir Svisslendingar hafa
ráðist sem málaliðsmenn í þjón-
ustu erlendra ríkja, og barist
þar af sömu hreysti og þeir
væru að vinna fyrir sitt fagra
föðurland. — Einhverju sinni
lenti frönskum og svissneskum
hermanni saman í orðasennu.
Frakkinn mælti þá:
— Við Frakkar berjumst til
heiðursins, en þið Svisslending-
arnir til peninganna. — Það
berst hver til þess, sem hann
hefir ekki, svaraði Svisslend-
ingurinn stillilega.
* * *
— Anna, þú ert sól lífs míns.
Bros þitt er fagurt eins og
morgunroðinn og augu þín blá
eins og himininn. Við hlið þína
NAFNSPJOLD
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. G. S. THORVALDSON
Skrifstofusími: 23 674 B.A., LL.B.
Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Lögfrœöingur
Er að finni á skrifstofu kl. 10—1T
f. h. og 2—6 e. h. 702 Confederation Life Bldg.
Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími 97 024
Talsími: 33 158
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kenhedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyrna-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hitta frá kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsimi: 26 688
Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ISLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
að hitta, fyrsta miövikudag i
hverjum mánuði.
Rovatzos Floral Shop 206 Notre Darae Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding & Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandic spoken M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lœtur útl meðöi i viðlögum Sími: 36 155 682 Garfield St.
Dr. S. J. Johannesson 218 Sherburn Street Talsfml 30 877 A. S. BARDAL selur likklstur og annasit um útfar- ir. Allur útbúnaðiu- sá bestl. — Ennfremur Iselur hann allskonar minnisvarða og legsteina.
Viðtalstimi kl. 3—5 e. h. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG
Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 RAGNAR H. RAGNAR
Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BUILDING Píanisti oo kennari
Oftice Hours: 12 - 1 4 P.M. - 6 P.M. AND BY APPOINTMENT Kenslustofa: 683 Beverley St. Phone 89 502
THE WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 854 BANNING ST. Phone: 26 420
VIKING BILLIARDS og Hárskuröar stofa 696 SARGENT AVE. Knattstoía, tóbak, vindlar og vindlingar. Staðurinn, þar sem Islendlngar skemta sér. Dr. A. V. JOHNSON ISLENZKUR TANNLÆKNIR 212 Curry Bldg., Wlnnipeg Gegnt pósthúsinu / Simi: 96 210 Heimilis: 33 328
J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Sími: 94 221 600 PARIS BLDG—Winnlpeg Jacob F. Bjamason —TRAN SFER— Baggage and Furniture Moving 762 VICTOR ST. SlMI: 24 500 Annast allskonar flutninga fram og aítur um bseinn.
Svanhvít Jóhannesson, LL.B. tslenekur "lögmaöur" Vlðtalssitfa: 609 McArthur Bldg. Portage Ave. (1 skrifstofum McMurray & Greschuk) Sími 95 030 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœöingur Skrifstoía: 801 GREAT WEST PERMANENT BUILDING
Helmlll: 218 Sherburn St. Síml 30 877 Sími: 92 755
r
MAKE YOUR PLEASANT
LUNCH HOUR DATES AT
The
JUarlborougí) ^otel
A Service to Suit Everyone
LADIES MEZZANINE FLOOR
11.30 to 2.30 Special Luncheon
35c
BUSINESS MEN CLUB
LUNCHEON—11.45 to 2.30
50c and 75c
also a la carte
COFFEE ROOM (Men & Woment
SPECIAL LUNCH, 12-3______40c
SPECLAL DINNER, 6 to 8....50C
mundi eg standast öll hretviðri
lífsins.
— Heyrðu Ottó, er þetta bón-
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard —Sask.
Talsimi: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
T ANKLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WINNIPEG
orð eða veðurlýsing?
—Dvöl.
* * *
“Er það satt að þú hafir ráð-
stafað að lík þitt verði krúfið
þegar þú deyrð?”
“Já, eg vil vita úr hverju eg
dó.”
Dr. A. B. Ingimundson
T ANNLÆKNIR
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Wml: 22 296 Helmllia: 48 054