Heimskringla - 13.02.1935, Qupperneq 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLa
WINNIPEG, 13. FEB., 1935
FJÆR OG NÆR
Séra Jakob Jónsson messar á
Oak Point sunnudaginn 17. íebr.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar í
Sambandskirkjunni í Winnipeg
næstkomandi sunnudag (17.
febr.).
¥ * *
Messur í Sambandskirkjum
Nýja íslands:
Árborg, sunnud. 17 febrúar kl.
2. e. h.
Gimli, sunnud. 24. febrúar kl
2. e. h.
• * *
Leikurinn “MaSur og kona”
Vegna ófyrirsjáanlegra á-
stæða verður leikurinn “Maður
og kona” ekki sýndur á föstu-
dagskvöldið eins og áður var
auglýst. Verður hann sýndur í
Selkirk nú á fimtudagskvöldið
þann 14. þ. m. og í Winnipeg
á mánudagskvöldið þann 18.
febrúar. Þeir sem iekki hafa átt
kost á að sjá leikinn eru beðnir
að hafa þessa breytingu í huga
og koma á mánudagskvöldið í
samkomusal sambandskirkju.
B.
HVERNIG SKAL
' GREIÐA
ATKVÆÐI
GEGN VALDBOÐNU
ALIFUGLA-SÖLUSAMLAGI
Sækjið atkvæðaseðilinn
inn á pósthúsið
og merkið hann
eins og að neðan er sýnt
BALLOT
ARE YOTJ IN FAVOUR OP
The Manltohn Poultry Mnrket-
inff Scheme referred to ln the
YES |
NO | X
Co-Operation EVER
Compusion NEVER
MANITOBA EGG & POUUTRY
PRODUCERS’ PROTECTIVE
ASSOCIATIOjV
Elswood Bole, Prenident
P.O. St. Vitnl - Manitobn
Þórður kaupm. Þórðarson frá
Gimli var í bænum yfir helgina.
* ¥ *
íslendingadagsnefndin hélt
fund s. 1. mánudagskvöld í J.
B. skóla. Embættismenn og
nefndir voru kosnar. Er forseti
G. S. Thorvaldson, lögfr., vara-
forseti- Friðrik Sveinsson, ritari
Gísli Magnússon, vara-ritari
Guðm. Eyford, fáhirðir Jochum
Ásgeirsson, vara-féhirðir Björn
Pétursson, eignavörður Jón Ás-
geirsson, yfirskoðunarmaður
reikninga Th. Thorsteinsson
bankastjóri.
Islendingadagurinn verður
haldinn á Gimli 5. ágúst.
* * *
GleymiS ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
¥ * *
í fregninni um hvað Canada
kaupir af fjallagrösum frá ls-
landi árlega varð sú villa í síð-
asta blaði, að þau voru sögð
nema 3,000,000 punda í stað
3,000 pundum. Fregnin var tek-
in úr dagblaði þessa bæjar, en
þar var rangt með þetta farið.
¥ ¥ ¥
Svieinn Thorvaldson, M.B.E.,
frá Riverton, Man., er staddur í
bænum í dag.
¥ ¥ ¥
Útvarp frá Sambandskirju
Útvarpað verður guðsþjónust-
unni við Sambandskirkju, þriðja
sunnudag hér frá — sunnu-
daginn 3 marz. — Er nú verið
að undirbúa þessa messu. Bíður
söngstjóri safnaðarins Mrs. K.
Jóhannesson að láta þess getið
að næsta söngæfing, þessu til
undirbúnings fari fram í kirkj-
unni á föstudagskv. kemur kl. 8.
(15. þ. .m). Eigi þarf að minna
á, að það er næsta áríðandi, að
allir mæti, er lofað hafa að-
stoð sinni við þetta tækifæri.
¥ ¥ ¥
Þessar prentvillur urðu í
kvæði N. Gttensonar til S. Th.
í síðasta blaði: 1 annari vísu,
fimta lína: Atorku Þurfti að
yrkja, ekki vekja.
í síðustu vísu 4 línu: ísalands
þjóð að vísu, ekki íslands þjóð.
10 GOOD REASONS
Why You Should Train at
Success Business College - Winnipeg
1.
Through superior service, the Success Business College of Winni-
peg became the largest private Commercial College in Westem
Canada.
2.
More than 43,000 young men and women have enrolled for
Success Courses. Hundreds of these are now employers and their
preference for “Success-trained” office help creates an ever
increasing demand for Success Graduates.
3.
The Success is the only Business College in Winnipeg that has
been accredited by the Business Educators’ Association of Canada.
This Association admits only the best Commercial Colleges into
its membership.
4.
Students of the Success Business College are entitled to the
privilege of the B. E. A. examination system. B. E. A. standard3
represent the highest degree of efficiency in Canadian Commercial
education.
5.
The Success Business College employs only teachers of advanced
Scholarship and long successful teaching experience. The Success
system of individual and group instruction insures quick and
thorough results.
6.
The Employment Department of the Success Business College
places more office help than any other Employment Agency in
the City of Winnipeg. The service of this Department is available
only to Success students.
7.
The Success Business College admits only students of advanced
education and favorable personal characteristics.
8.
The Success Business Coilege premises are well equipped and
comfortable. The College is located in the heart of the busines3
section of Winnipeg, where employers can conveniently step into
our office and employ “Success Graduates.”
9.
The Success Business College has no branches; it operates one
efficient College in which the principal and his staff devote their
best efforts and all their time to thorough instruction and careful
supervision of students.
10.
The majority of Commercial teachers in Winnipeg received their
business training at the Success Business College. It pays to at-
tend the College that is known as “The Teacher of Teachers.” Our
high standards attract the best young people in Westem Canada.
Write For Free Prospectus
Individual Instruction At The College BUSINESS COLLEGE Portage Ave. at Edmonton St. WINNIPEG Home Study Courses By MaU
Séra Jóhann Sólmundsson frá
Gimli kom til bæjarins s. 1.
mánudag og sat hér fund ís-
lendingadagsnefndar.
¥ ¥ ¥
Skemtisamkoma verður hald-
in í J. B. skóla á föstudags-
nágranna sinna. Var hún sann-
ur fulltrúi þeirrar kynslóðar ís-
lendinga, sem nú er óðum að
hverfa hér í landi, þeirrar kyn-
slóðar, sem ólst upp við íslenzka
svéitmenningu, eins og hún var
fyrir hálfri öld og meira, en
kvöldið í þessari viku. Til sem nú er að mestu leyti horfin,
skemtana verður spil og dans. Skapgerð hennar minti að
Ágóðanum af samkomunni | mörgu leyti á skapgerð sumra
verður varið J. B. skóla til j þeirra kvenna, sem lýst er í
fornsögum vorum; hún var stór
í lund, viljaföst og mikilvirk í
starfi sínu. Hún var jarðsett í
grafreit bygðarinnar, sem hún
hafði átt heima í úm hartnær
þrjátíu ár að mörgu fólki við-
stöddu.
G. Á.
styrktar. Komið og styðjið gott
málefni um leið og þið skemtið
ykkur.
¥ ¥ ¥
Men’s Club
An illustrated lecture tour
through modern Poland by Mr.
B. B. Dubienski, well known
local barrister. He will tell us
about the Polish people who
have for centuries been fighting
for freedom.
Place: First Lutheran Church
Parlors, Tuesday Feb. 19, at
6.30 p.m. sharp. A good dinner
provided at. the small cost of son en þ§er Jakobína og Þuríður
25c. All members and friends
are cordially invited.
¥ ¥ ¥
Married Folks’
Skating Nights
Friday 15th February and Fri-
22nd February, will be open
skating nights, free for the
married folks of the commun-
ity, at the Falcon Athletic As-
sociation rink, corner Sargent
and Home St. The married
folks are invited to come out
and renew acquaintances and
FRÉTTIR FRÁ BLAINE
Frh. frá 5 bls.
dóttir Elis Johnson og konu
hans Sigríðar. Sigríður er dótt-
ir Þorleifs og Jakobínu John-
eru systur. Ættfólk brúðarinn-
ar býr flest að Point Roberts.
Margrét Lindal dóttir Hjartar
og Kristínar Lindal, giftist
manni af hérlendum ættum.
Þá hafa tvö af börnum þeirra
Finnsens hjónanna, Hilmars og
Halldóru, þau Óskar og Sig-
ríður (Lóa) gifst hérlendum
persónum.
Magnús Casper, sonur Kristj-
áns heitins Caspers og konu
hans Rósu. Hann giftist stúlku
af amerískum ættum.
enjoy the fun. Get up a party. j Hlífar sonur Guðjóns (M. G.)
* * * og Ástu Johnson giftist Clöru,
Kæru landar —
veitið eftirtekt
í Wesley kirkjunni á William
Ave. og Juno St. er prédikað
með mestu snild þessa daga, í
kvöld, annað kvöld og föstu-
dagskvöld kl. 8. Og tvisvar á
sunnudag. Sjá efni í Free Press
eða Tribune. Allir velkomnir.
A. S. V. B.
Æ F I M I N N I N G
HALLGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR
STEFÁNSSON
Þann 12. október síðastliðinn
andaðist að Akra, N. D., ekkjan
Hallgerður ólafsdóttir Stefáns-
son. Hún var fædd 9. sept. árið
1865 á Ormsstöðum í Gríms-
nesi í Árnessýslu á íslandi. For-
eldrar hennar voru: Ólafur Guð-
mundsson og Aldís Halldórs-
dóttir. Var faðir hennar dáinn
áður en hún fæddist, en móðir
hennar átti fyrir síðari mann
Jón Pálsson frá Brúnastöðum í
Flóa. Hún ólst upp með móður
sinni og stjúpföður, unz móðir
hennar dó árið 1886. Eftir það
var hún í vistum (á Kiðjabergi
átta ár) þar til hún giftist
Guðmundi Þorkelssyni árið
1897. Fluttust þau vestur úm
haf árið 1900, en skildu tveim
árum síðar. Höfðu þau eignast
eina dóttur, Ólafíu að nafni.
Árið 1905 fluttist Hallgerður til
Cavalier í Norður-Dakota og
giftist þrem árum síðar Sigur-
jóni Stefánssyni, bónda þar í
bygðinni. Með honum bjó hún
til ársins 1923, er hann lézt.
Dóttur sína, mjög efnilega
stýlku, sem var byrjuð á hjúkr-
unarfræðisnámi á almenna spít-
alanum í Winnipeg, misti hún
árið 1920. Eftir lát manns síns
lét hún af búskap og lét byggja
sér hús í Akra þorpinu, og í
því bjó hún út af fyrir sig til
dauðadags, nema tvö síðustu
árin, er hún var af og til á
heimili B. Thorvardarsonar
kaupmanns á Akra, enda var
heilsa hennar þá tekin svo að
bila að hún gat ekki ein verið.
Systkyni hennar, sem vestur
fluttust, voru: Halldór Pálsson
í Winnipegosis, Eygerður kona
Magnúsar Ólafssonar að Lund-
ar, dáin fyrir allmörgum árum,
og Steingrímur, sem druknaði í
Winnipegvatni árið 1903.
Hallgerður sál. var atkvæða-
kona, sjálfstæð í skoðunum,
hreinlynd og einlæg. Hún var
virt af öllum, sem þektu hana
og naut ávalt mikilla vinsælda 1 ska, íslenzka safnaðarins hér í
dóttir Mr. og Mrs. Th. Goodman
í Marietta, Wash.
Gestir
Við eigum það Ströndinni að
þakka að hingað ber tíðum
góða gesti er bregða sér yfir
fjöllin til að sjá marg rómuðu
fegurð Vestur-Washington rík-
isins. Af fjöldanum vil eg að-
eins geta þessara.
Dr. Brandson frá Winnipeg
heimsótti bróður sinn Áskel er
hér er búsettur snöggvast í
fyrra sumar. Var honum og
frú hans haldið dálítið samsæti
er sjálfsagt hefði orðið enn fjöl-
mennara ef kostur hefði verið
að láta fólkið vita um nærveru
læknisins. Góðir læknar eru
vinsælir að verðleikum því veg-
legra starf getur ekki enn að
létta þrautir og vernda heilsu
sinna samborgara. Allir vita að
Brandson hefir aukið heiður ís-
Jendinga vestanhafs með fram-
komu sinni og vísinda kunnáttu.
Munu færri njóta meiri mann-
hylli en hann.
Annar læknir, heiman af
Fróni heilsaði upp á okkur.
Heitir sá Ófeigur Ófeigsson hinn
efnilegi styrkhafi hátíðasjóðs-
ins er Canada sæmdi ættlandið
til framfærslu frónskum skóla-
mönnum er framhaldsnám vilja
stunda við canadiska háskóla.
Vel gafst víst öllum hér að
hinum unga mentamanni og
konu hans og vænta að hann
verði íslandi til gagns og sóma
sem vísindamaður og borgari.
Undir slíkum á FYón framtíð
sína og þeirra er sú vegsemd og
vandi að láta sjá í verki að dáðir
niðjanna eigi ávalt að verða
meiri en. afrek áanna.
“Veni, vidi, vici” (Eg kom, eg
sá, eg sigraði), sagði hann
Ceasar sálugi og svo hefði Dr.
Rikarður Beck getað sagt um
sjálfan sig og ferð sína hingað
vestur. Eg efast um að nokkur
Islendingur hafi eignast fleiri
kunningja á fáeinum dögum.
Olli því ekki eimungis málsnild
hans á mannamótum heldur
öllu fremur hin hugljúfa fram-
koma og fas doktorsins. Hafði
einn enskumælandi orð á því
við mig seinna að svo dánu-
mannslegan (Gentlemanly) ís-
lending hefði hann aldrei áður
augum litið. Veit eg að vísu
ekki hvort slíkt ber fremur að
skoða sem lof um prófessorinn
eða hnjóð til okkar hinna. —
Hann kom hingað til að flytja
erindi á Miðsumarsmóti Lúter-
Blaine og þjóðhátíð Seattle búa.
Auk þess flutti hann erindi bæði
á íslenzku og ensku í útvarpið
frá Bellingham, við hærri menta
stofnanir ríkisins og í bygðum
íslendinga. Það voru sannarlega
engin mistök af örlögunum að j
setja hann á kennarastólin við I
ríkisháskólann í Norður Dak. i
Þar hefir landans löngum verið
að góðu getið og mun hróður
vor hvergi mínka þótt Rikarður j
haldi þar upp heiðri vorum. |
Okkur til vegs og sóma
“Þá minnist eg hans er eg
heyri um góða getið”. Og nú er
eg dvel við endurminningarnar
af heimsókn þessara dánu-
manna verður mér að hugleiða
hann er mestur var og beztur
allra Vestur-íslendinga. Ómak-
legt væri að þegja málaleitun
Ófeigs frá Alberta, um að reisa
minnismerki á gröf St. G. al-
gerlega í hel. Satt er að vísu
I að frægð skáldsins geymist
jafnt í hugum góðra íslendinga
hvort sem gröfin týnist eður
ekki. En óviðkunnanlegt væri
ef ferðamenn í framtíðinni
fyndu hvergi urmul eftir af. síð-
asta legurúminu hans er svo
lengi mun halda okkur vakandi.
Hvað mætti þá um menning
vora segja ef við legðum svo
litla rækt við leifar hans. Nei,
þá skömm látum við aldrei um
okkur spyrjast, við megum blátt
áfram ekki við því. Aldrei hefi
eg skammast mín fyrir að vera
Skagfirðingur nema þegar eg
hugleiði meðferð þeirra á
Hjálmari skáldi. Eg vona að
engin maður af íslenzku bergi
brotin eigi eftir að skammast
sín fyrir okkur er við erum
dauðir.
Eftir þankar
Vill einhver í Winnipeg skjóta
því að honum séra Jakob frá
Norðfirði að okkur Ströndunga
langi til að sjá framan í
hann, okkur fýsir að kynnast
þeim klerki er samvizkunnar
vegna vanrækir játningarnar í
trássi við herra biskupinn. Eg
skil ekki annað en hann mundi
ná upp ferðakostnaði með fyr-
irlestrum.
Við Skagfirðingar í öllum álf-
um þökkum Stefáni Vagnssyni
frá Miðhúsum fyrir frétta bréf
þaðan úr héraði.
H. E.Johnson
MESSUR og FUNDIR
1 kirkju SambandssafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e. h.
Safnaðarnefndin: Fundif 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsita
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldd.
Sunnudagaskólinn■: — Á hverjum
simnudegi, kl. 11. f. h.
SKRÍTLUR
Það er sagt að vínnautn stytti
aldur manns. En nú er afi
minn 94 ára og hann hefir verið
drykkjumaður alla sína æfi.
Já, en hvað væri hann ekki
gamall ef hann hefði aldrei
drukkið?
¥ ¥ ¥
Yfir dyrum á réttarstofunni í
Saltzburg stendur:
“Sá sem finnur eitthvað sem
ekki er týnt, eða kaupir eitt-
hvað sem ekki er falt, hann
deyr oft áður en hann veikist,
(verður veikur).
¥ ¥ ¥
“Hvers vegna varst þú settur
í tugthúsið?” sagði maður við
fanga.
“Af því eg fékk peninga til
láns hjá manni.”
“Enn þeir setja mann ekki í
tugthúsið fyrir að lána pen-
inga.”
“Nei, enn i þessu tilfelli þurfti
eg að slá manninn í roit áður en
hann leiddist til að lána mér
þá.”
¥ ¥ ¥
“Góð var ræðan hjá prestin-
um okkar í dag.”
“Nokkuð svo, mér líkaði ekki
byrjunin og endirinn.”
“Því ekki?”
“Því ekki?”
“Það var of langt á milli
þeirra.”
Phones: 95 328—91 166
H0TEL C0R0NA
NOTRE DAME Ave. East
at Main Street
J. F. BARRIEAU
Manager Winnipeg
SEXTÁNDA ÁRSÞING
Þjóðræknisfélagsins
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu við Sargent Ave., Winnipeg
26., 27., og 28. febrúar 1935.
DAGSKRÁ:—
1. Þingsetning 8. Útbreiðslumál
2. Skýrsla forseta 9. Fjármál
3. Kosning kjörbréfa- neíndar 10. Fræðslumál
4. Kosning dagskrár- 11. Samvinnumál
nefndar 12. Útgáfa Tímarits
5. Skýrslur embættis- 13. Bókasafn
manna 14. Kosning embættis-
6. Skýrslur deilda manna
7. Skýrsla milliþinga- 15. Lagabreytingar
nefnda 16. Ný mál
Samkvæmt 21. gr. laga félágsins er deildum þess
heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja
tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar; gefi þeir
fulltrúa skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði
sitt á þingi og sé umboðið staðfest af forseta og ritara
deildarinnar.
Samkomur þingsins hefjast með almennri skemti-
samkomu og íþróttasýningu á mánudagskveld þ. 25 er
sambandsdeildin Fálkarnir standa fyrir. Þar flytur séra
Jakob Jónsson erindi. Þriðjudagsmorgun þ. 26. kl. 9.30
fer þingsetningin fram. Þingfundir til kvelds. Engin
samkoma það kveld. Miðvikudagsmorgun befjast þing-
fundir að nýju og standa til kvelds. Það kveld þ. 27, kl.
8.00 heldur deildin Frón sitt árlega íslendingamót. —
Fimtudagsmorgun hefjast þingfundir aftur og standa til
kvelds. Það kvöld kl. 8.00 flytur hinn heimsfrægi ræðu-
skörungur, Dr. Preston Bradley frá Chicago fyrirlestur
um tímabær efni, í kirkju Fyrsta lút. safnaðar. Það
kvöld hefir í þetta sinn verið sérstaklega helgað Banda-
ríkjaborgurum, (American night).
Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum
verður gerð síðar.
Winnipeg, 16. janúar 1935.
í umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins.
Jón J. Bíldfell (forseti) B. E. Johnson, (ritari)