Heimskringla - 22.05.1935, Side 3
WINNIPEG, 22. MAÍ 1935
HEIMSKRINGLA
3. SIÐA.
hvalveiðaskipi sé eins og í með-
alstóru þorpi.
Úr stærsta hval, sem við
veiddum er eg var á “Kosmos”
íengum við 380 föt af lýsi, og
eru fá dæmi til slíks.
Einn bláhvalur getur komist
upp í 100 tonn að þyngd, og
geta þá allir gert sér í hugar-
lund hvílíkt ferlíki hann muni
vera.
Nú er mér sagt, að við ís-
lendingar séum að hefjast
handa um hvalveiðar, og hefði
verið betur að við hefðum gert
það fyr. Norðmenn hafa rak-
að saman fé á hvalveiðum sín-
ium hér skamt frá landinu.
Eg er sannfærður um, að
þessi atvinnurekstur á geysi-
mikla farmtíð fyrir sér hér á
landi, aðeins ef rétt er á stað
farið. En á byrjunarfram -
kvæmdunum veltur alt. Byrj-
unin er vandasömust og það
þarf að gæta mikillar ná-
kvæmni í öllum innkaupum á
skipum og veiðarfærum og ó-
trúlegt þykir mér ekki að reynt
verði úr vissri átt að prakka inn
á okkur íslendinga ónýtum
skipum og veiðarfærum, en ef
þannig tekst til um byrjunina,
þá eru líkindi itil þess að aftur
vierði hætt við alt saman og
ekki verði aftur hafist handa
fyr en seint og síðar meir, er
við höfum tapað miljónum
króna á heimsku okkar og and-
varaleysi.—Sunnudagsblaðið
HITT OG ÞETTA
Er keisarinn í Japan
af guðlegum uppruna?
Japanskur prófessor, Minobes
að nafni, gaf fyrir nokkrum
mánuðum út bók, þar sem
hann dregur í efa guðdómlegan
uppruna og guðdómlega hæfi-
leika hins japanska keisara. —
Bókin vakti geysilega athygli
og var keypt og lesin meira en
dæmi eru til um bækur í Japan.
En þar í landi er það æfa forn
trú, að keisarinn sé guðlegs
(U'ppruna og allar hans ráðsá-
lyktanir guðinnblásnar.
Auk þess að vera prófessor
við háskólann í Tokio er Min-
obes einnig þingmaður í efri
málstofu japanska þingsins. —
Eyrir nokkru var höfðað mál á
móti honum fyrir þessar kenn-
ingar. Herinn og hermálaráð-
berrann Havashi hafa krafist
þess, að bókin yrði gerð upp-
tæk, og höfundurinn dæmdur
itil hæfilegrar refsingar. Málið
er enn ekki útkljáð, en alment
er litið svo á, að Minobes eigi
ekki nema um tvent að velja,
annaðhvort að afturkalla þess-
ar kenningar sínar eða segja af
sér embættum sínum sem há-
skólakennari og þingmaður.
* * * *
Nýtt undralyf á
borð við radíum
Á síðustu árum hefir mönn-
um tekist að framleiða á til-
raunasitofum ýms geislandi efni,
og nú fyrir skemstu tilkynnir J.
D. Cockcroft, kennari í Cam-
bridge, að fundið sé efni, sem
líklegt sé að geti orðið að mjög
miklum notum við lækningar,
ef unt reynist að framleiða það
í nægilega stórum stíl og við
hóflegu verði.
Þetta nýja efni er árangur af
rannsóknum, sem prófessor A.
Ó. Laurence við Kalifomíu-há-
skóla hefir gert. Er það geisl-
andi sodium, sem sendir frá sér
gammageisla með alt að því
tvöfalt meiri orku en radium.
En þar sem geislamagn radiums
minkar svo hægt að mæla verð-
ur það í þúsundum ára, þá
missir þatta sodium geislamagn
sitt á minna en einum degi.
Þetta veldur því, að við ýmsar
lækningar mundi það verða á-
hættuminna og handhægara
í meðferð, en jafnframt er aug-
ljóst, að nytsemi þess er undir
því komin, að hægt sé að finna
nógu einfalda framleiðsluaðferð
svo að unt sé að framleiða efn-
ið svo að segja á staðnum, þar
sem á að nota það.
* * •
BarnsfæSingu haldið leyndri
Enska blaðið “Daily Express”
flytur þá fregn frá New York,
að hinn heimsfrægi ameríski
flugmaður, Clarence Chamber-
lin, sem flaug frá New York til
Berlín árið 1927, hafi skýrt frá
því nýlega, að konan hans hafi
fætit son í París fyrir hálfu öðru
ári síðan.
En því hefir hingað til verið
haldið leyndu af hræðslu við,
að barninu yrði rænt af ame-
rísku barnaræningjunum. Barn-
ið er enn þá í París.
• * *
Ný háloftsflug í undirbúningi
í Ameríku og Rússlandi
Eins og áður hefþ- veríjð
getið verður gerð tilraun til þess
í sumar, að komast lengra upp í
háloftin en nokkru sinni áður.
Að tilrauninni standa Ameríska
landfræðifélagið og ameríska
bermálaráðuneytið.
Stjórnandi flugkúlunnar verð-
ur Albert W. Stevens, kapteinn
ií hernum. Kom hann hingað til
Rochester fyrir skömmu, til
þess að kynna sér ýms áhöld
og tæki, sem notuð verða í há-
loftsleiðangri þessum.
í viðtali sagði Stevens, að til-
gangurinn væri eigi einvörð-
ungu sá, að setja nýtt met,
heldur og að ná sem mestu'm
vfsindalegum árangri. Tæki
þau, sem Stevens var að skoða
voru m. a. ljósmyndavélar, bún-
ar til í Folmer Graflex og East-
man Kodak verksmiðjunum, og
“Speotrö-graph”, íbúinn tijl í
Bauh and Lomb verksmiðjun-
um.
Belgurinn, sem flugkúlan
hangir í, vex*ður fyltur -helium-
gasi, og er það í fyrsta skifti,
sem helium er notuð í háloflts-
flugferð.
í viðtali sínu gat Stevens
þess, að Rússar ætluðu einnig
að stofna til háloftsflugferðar í
sumar. Flugkúla þeirra á að
heita “Osoaviachim II” og er
verið að útbúa hana í Lenin-
grad. Gera Rússar sér vonir um
að komast 15 mflur enskar í
loft upp í flugkúlu þessari.
* * *
Ný flugvélagerð
Þýski hugvitsmaðurinn dr. E.
Rumpler, sem varð frægu'r fyrir
hernaðarflugvélar þær, sem
smíðaðar voru að hans fyrir-
Hreinsunar eldurinn
(Gaman þula)
í einu kauptúni voru búendur að vinna af sér dagsverk, með
því að slá brös og illgrei meðfram gangstígu'm bæjarins, árla
jdags í fjarsýn; varð þessi þula þá til:
Eg sá ekki hvort það var kind eða kálfur
við “car”-stöð hans Páls, eða var það hann sjálfur?
Nei, það v.ar hrísköstur hrúgaður saman, —
hreyktur í topp eins maður að framan.
Jón hafði slegið en Júlíus rakar,
eg beld fyrir kaup, en það engan sakar,.
Húsið kann brenna, þó askan er eftir,
er hún á gangstígum formannaheftir.
Þannig má skattgjöld af þéna með hrísi,
en það er í sveitnini alt öðru vísi.
Hrísið má þurkað í bæ-ræsum brenna,
en bændurnir leir storknir grafitólin spenna,
þeir verða nauðugir þrjá daga að vinna,
þá einnig búinu og málverkum sinna.
“Kleyið” í “skreypönum” keyra þeir sveittir.
Kúffylla vegina blautir og þreyttir,
þar hefir eldurinn ekkert að gera.
Askan úr hrísinu í bænum má vera,
svona má skatt greiða af skóflu og með eldi,
skínandi lög eru í Canada veldi!!
G. J.
EIGIÐ EKKI Á HÆTTU MISHEPNAÐA BÖKUN .
MINNA EN
1 c VIRÐI AF
nægir í eina góða
köku æfinlega!
Þegar þér bakið úr Magic [>á getið þér
ávalt átt vissan árnnpurinn! Það er ástæð-
an fyrr þ\i að þessi nafnfrægi baking
powder er notaður og með honum mælt af
leiðiindi matreiðslu fræðingum í Canada.
Biðjið matvörusaiann um bauk—strax í dag!
bAUS vVIO AttN—SetniiiB: bessl A hverj- .
BtJlÐ Tlti iim IinnVv er ytSur tryRcine fyrlr Jiví m
ICAXtnA Mnglc nnkinK Powder er Inux vl® Alfln
mí\i\AUAeSa iinnur sknhleK efni.
MAGlC
baking
POWDEH
fesQlXldOÖi
sögn í stríðinu, hefir gert teikn-
ingar að risastórri flugvél, sem
á að geta flutt 170 farþega.
Dr. Rumpler hefir þá trú, að
í framtíðinni verði notaðar stór-
ar flugvélar til farþegaflutn-
inga yfir úthöfin, en ekki loft-
skip. Þrátt fyrir það, hve vel
hafa gengið ferðir loftskipsins
Graf Zeppelins er dr. Rumpler
þessarar skoðunar, enda hafa.
sem kunnugt er afdrif flestra
hinna stærri loftskipa annara
orðið þau, að þau hafa farist og
mörg mannslíf glatast.
Flugvél sú, sem dr. Rumpler
er nú að vinna að undirbúningi
að, myndi kosta stórfé, senni-
lega alt að því miljón dollara,
en þeirrar annarar og þriðju
sennilega 700,000—800,000. —
Ráðgert er, að í flugvélinni
verði 10, 1,00 hestafla mótorar.
Flugvélin á að geta flogið milli
jEvrópu og Norður-Ameríku á
18 klst.
Fullyrt er, að Bretar hafi afl-
að sér upplýsinga um undir-
búningsstarfsemi dr. Rumplers,
með það fyrir augum, að kaupa
slíka flugvél til Indlandsfierða.
* * *
Fastar flugferðir yfir Kyrra-
baf áður en árið er liðið
í lok yfirstandandi árs er gert
ráð fyrir að búið veröi að koma
á fót reglubundnum flugferðum
yfir Kyrrahaf, en flugfélagið
Pan-American Airways hefir
undanfarna 18 mánuði haldið
uppi stöðugum undirbúnings-
rannsóknum undir þetta fyrir-
tæki.
Hin áformaða flugleið er
8,500 enskar mílur, og við-
komustaðir verða á allmörgum
eyjum, sumum smáum, er ekki
hafa verið bygðar í þrjár aldir
og sumar aldrei.
Pan-American Airways hefir
nú leigt 15,000 smálesta vöru-
flutningaskip, “North Haven”,
til þess að flytja efni til flug-
stöðvanna á eyjum þessum, sér-
fræðinga og verkamenn til þess
að komu þeim upp o. s. fv. Alls
sendir félagið á skipinu, auk á-
hafnar, 118 menn, og eru þeir
allir verkfræðingar eða lærðir
iðnaðarmenn. Skipið leggur af
stað í leiðangurinn frá hafnar-
borg í Californíu.
Fyrsta flugstöðin verður út-
búin á Honolulu', önnur á Mid-
way Island, sú þriðja á Make
Island, sú fjórða á Guam og sú
fimta á Manila. Þetta eru aðal-
stöðvarnar. Auk þess verða
vara lendingar og ibirgða-stöðv-
ar.
Búist er við, að “North Hav-
en” komi aftur til Californíu í
júlímánuði seint, og verður þá
hafist handa um skipulags-
bundnar undirbúningusflugferð-
ir á þessari leið.
Notaðir verða svokallaðir
“Clipper”-flugbátar, sem nú eru
mikið notaðir í flugferðum milli
Bandaríkjanna og Mið- og Suð-
ur-Ameríku. — Síðar er ráðgert
að notaðir verði svo kallaðir
“Martin”-flugbátar, er geta
flutt 30—40 farþega.
Pan-American Airways hefir
stofnað nýja deild vegna þess-
ara flugferða og veitir henni
forstöðu maður að nafni Clar-
ence R. Young, kunnur flug-
maður og sérfróður á sviði flug-
mála.
Stjórn Pan-American Air-
ways gerir sér vonir um, að
þegar í haust verði póstur flutt-
ur reglulega milli Bandaríkj-
anna og Honolulu í flugbátum
félagsins.
Heyrst hefir ,að Charles A.
Lindbergh eigi að fara í fystu
flugferðina, þegar leiðin verður
formlega opnuð, en hann hefir
hvorki viljað játa eða neita orð-
róminum.
Þessi nýja áformaða leið er
italin hin erfiðasta, sem enn
hefir verið valin. T. d. eru
Midway Islands og Wake Island
óbygðar eyjur og mjög litlar. —
Þ«er sjást t. d. á fæstum landa-
bréfum.—Alþbl.
SCOTLAND YARD
frægasta leynilögreglulið
heimsins
Hin svonefndu kistumorð
virðast * vera komin í móð á
Englandi. Auk þeirra tveggja
morða, sem framin voru á þann
hátt í Englandi síðastliðið ár,
hefir lögreglan nú fengið ennþá
eitt mál itil meðferðar.
Um helmingur allra hinna
frægu leynilögreglumanna, sem
ieru í þjóustu Ssotland Yards og
eru um 950 að tölu, hafa tekið
þátt í því að reyna að varpa
ljósi yfir hin leyndardómsfullu
morð, sem valdið hafa hinni j
víðtækustu lögregluleit, sem
nokkum tíma hefir verið hafin
í Englandi. King-Cross-járn-
brautarstöðin hefir verið umset-
in af fjölda leynilögreglumanna,
sem athugað hafa hvern ein-
asta ferðamann, sem þar hefir
farið ,um. Einnig hafa kisitu-
smiðir orðið að taka á móti
heimsóknum leynilögreglu-
manna, sem hafa komið með
myndir af hinum fundnu kist-
um, í von um að kistusmiðirnir
þektu þær aftur.
í vitund manna hvílir eitt-
hvað rómantískt og dularfult
yfir orðunum Scotland Yard, og
mienn bera sérstaka virðingu
fyrir hinum stóru, rauðu hús-
um, sem liggja hérumbil í miðri
Lundúnaborg, að eins örfá skref
frá Parlamentshúsinu, dóm-
kirkjunni og stjómarbygging-
unum. í byggingunum eru 2500
tonn af granit, sem fangamir
í Dartmoor-fangelsinu hafa
unnið.
Stærsta og merkasta glæpa-
mannaskrá veraldarinmar
Á vorum dögum er glæpa-
fræðin orðin að vísindagrein,
og kemur þó fyrir, að rannsókn
glæpamála krefur mikils undir-
búnings. Með margra ára við-
fangsefnum og rannsóknum
hefir Scotland Yard fengið
þann skóla, sem veitir slíka full-
komnun í starfinu, sem raun
ber vitni.
Á síðustu 2—3 árum eru þó
3 stórglæpamál, sem Scotland
Yard hefir ekki tekist að upp-
lýsa, og er það iekki mikið, þeg-
ar þess er gætt, að í Lundúna-
borg, sem telur 8 Vniljónir í-
húa, eru drýgð um 25 morð á
ári, og það eru ekki ætíð bein-
Hreinn Rís-pappír—
í hinu þægilegasta
bókarhefti af vasa-stærð
NOTIÐ
CAarttejcí&L
VINDLINGA PAPPÍR
TVÓFALT
Sjálfgert
Bókarhefti
Aðeins
línis viðvaningar, sem drýgja
morðin.
Lögreglumenn frá öllum
löndum veraldarinnar fierðast
til Lundúnaborgar til þess að
læra af Scotland Yard. Og þar
eru færustu sérfræðingar í öll-
um þeim greinum, sem að
glæpafræði lúta. Þar eru sér-
fræðingar í réttarlæknisfræði
og réttarefnafræði. Þar eru
menn, sem fást við rannsóknir
á tóbaki og konfekti, sérfræð-
ingar í andlitssnyrtingu og
vopnasérfræðingar. En merki-
legust er ef til vill sú deildin,
sem heldur glæpamanna-albúm-
ið, þar sem geymd eru * ekki
færri en 510,000 fingraför, og
stöðugt bætist við.
Daglega fær þessi deild send
utan úr heimi fingraför, sem
hún er beðin að ákveða. Og oft-
ast nær getur hún gefið full-
nægjandi svör ásamt dálítilli
lýsingu af manninum, sem orð-
ið hefir svo óheppinn að skilja
þessi fingraför eftir. Lýsingunni
fylgir frásögn um starfsaðferð-
ir glæpamannsins, og er lýsing-
in tekin úr spjaldskrá, sem fylg-
ir fingrafara-albúminu.
Lögreglumenn í bílum
Um leið og tilkynt er, að
þjófnaður, innbrot eða morð
hafi verið framið einhvers stað-
Frh. á 7. bls.
INNKÓLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Árnes..........
Amaranth.......
Antler.........
Árborg.........
Baldur.........
Beckville......
Belmont........
Bredenbury.....
Brown..........
Calgary........
Churchbridge...
Cypress River....
Dafoe..........
Elfros.........
Eriksdale......
Foam Lake......
Gimli..........
Geysir.........
Glenboro.......
Hayland........
Hecla..........
Hnausa.........
Hove...........
Húsavík........
Innisfail......
Kandahar.......
Keewatin.......
Kristnes.......
Langruth.......
Leslie.........
Lundar.........
Markerville....
Mozart.........
Oak Point......
Oakview........
Otto...........
Piney..........
Poplar Park....
Red Deer.......
Reykjavík......
Riverton.......
Selkirk........
Steep Rock.....
Stony Hill.....
Swan River.....
Tantallon......
Thornhill......
Víðir..........
Vancouver......
Winnipegosis...
Winnipeg Beach
Wynyard........
....F. Finnbogason
....J. B. Halldórsson
.......Magnús Tait
....G. O. Einarsson
..Sigtr. Sigvaldason
....Björn Þórðarson
........G. J. Oleson
....H. O. Loptsson
....Thorst. J. Gíslason
..Grímur S. Grímsson
....Magnús Hinriksson
.......Páll Anderson
....S. S. Anderson
J. H. Goodmundsson
....ólafur Hallsson
.......John Janusson
........K. Kjernested
....Tím. Böðvarsson
........G. J. Oleson
....Sig. B. Helgason
..Jóhann K. Johnson
....Gestur S. Vídal
..Andrés Skagfeld
....John Kernested
..Hannes J. Húnfjörð
....S. S. Anderson
....Sigm. Björnsson
....Rósm. Ámason
........B. Eyjólfsson
..Th. Guðmundsson
......Sig. Jónsson
..Hannes J.'Húnfjörð
.......Jens Elíasson
....Andrés Skagfeld
...Sigurður Sigfússon
.......Björn Hördal
.......S. S. Anderson
....Sig. Sigurðsson
...Hannes J. Húnfjörð
........Ámi Pálsson
..Bjöm Hjörleifsson
....G. M. Jóhansson
.......Fred Snædal
.......Björn Hördal
....Halldór Egilsson
....Guðm. ólafsson
..Thorst. J. Gíslason
....Aug. Einarsson
..Mrs. Anna Harvey
John Kernested
..S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM:
Ákra...................................Jón k. Einarsson
Bantry....................................e. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash........................j0hn W. Johnson
Blaine, Wash.....................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier................................jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg......................................jacob HaU
Garðar..................................s. M. Breiðfjörð
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson..................................Jón K. Einarsson
Hensel.................................!..J. K. Einarsson
Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Cahf......Thorg. Ásmundsson, 3314 Sierra St.
Milton.....................................f. G. Vatnsdal
Minneota.............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts...........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash...........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................. J6n K. Einarssop
Upham....................................E. J. BreiðfjörB
The Viking Press, Limited
Winnipeg. Manitoba