Heimskringla - 17.07.1935, Page 8

Heimskringla - 17.07.1935, Page 8
8. SIÐA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. JÚLÍ 1935 FJÆR OG NÆR Messa í Piney Sunndaginn kemur 21. þ. m. verður messað í skólahúsinu á Piney kl. 2. e. h. Hr. I. H. S. Borgfjörð, prestaskólastúdent prédikar. Allir velkomnir. * * * Guðrún Jóhannsson, kona Gunnlaugs kaupmanns Jó- hannssonar andaðist á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg í gær. Er þar á bak að sjá mestu á- gætiskonu. Jarðarförin fer fram frá Fyrstu lútersku kirkju á fimtudaginn í þessari viku kl.. 3.30 e. h. * * * Sigurjón Snidal, 488 Lang- side St., Winnipeg, dó s. 1. mið- vikudag. Hann var 84 ára. Jarðarförin fór fram s. 1. laug- ardag. * * * Dr. P. J. Pálsson frá Bord- en, Sask., lagði af stað til ís- lands um miðja s. 1. viku. Með honum fór frú hans og tengda- systir, Dóra Pétursson. í sam- tali við oss, kvaðst Dr. Pálsson fara í skemtiför heim, en ekki alfarinn, eins og haldið hefði verið áður fram í vikublöðun- um. ¥ ¥ ¥ Guðm. verzlunarstjóri frá Ár- borg *fom snöggva ferð til bæj- arins s. 1. miðvikudag. * * * Helga Sigvaldadóttir Eggerts- son, ekkja Guðjóns heitins Eg- gertssonar dó að 900 Palmer- ston Ave., Winnipeg, föstudags- kveldið, 12. júlí; hún var hálft ár yfir nírætt. Jarðarförin fór fram í gær frá A. S. Bardals út- fararstofu. Hún kom vestur um haf með manni sínum 1897 og hefir búið í Winnipeg. Þau bjuggu á Akurholti í Eyjahrepp í Borgarfjarðarsýslu, síðast á íslandi. Mrs. Þórunn Ingibjörg Jóns- dóttir Pálmason í Keewatin, Ont. andaðist 6. júlí. Hún var 73 ára og kona Jóns Pálmason- ar í Keewatin. Jarðarförin fór fram 9. júlí. Til Vesturheims komu hjón- in 1887 og þremur árum síðar höfðu þau sezt að í Keewatin og hafa búið þar síðan. Móðir Þórunnar var Salbjörg Jónsdóttir Ögmundssonar frá Bægisá. En Jón faðir hennar Guðmundsson bjó að Kveingrjót í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Eftirlifandi eiginmanni sínum giftist Þórunn 1884. Þau áttu einn son er dó ungur. En fóst- ursonur þeirra er H. J. H. Pálmason, yfirskoðunarmaður reikninga, í Winnipeg. ¥ ¥ ¥ Hr. Egill Skjöld lyfsali frá Los Angeles, Cal. og frú voru stödd í Winnipeg yfír helgina. Þau voru að finna gamla kunn- ingja hér nyrðra bæði í Winni- peg og Dakota. ¥ ¥ ¥ Stúkan “Hekla” hefir skemti- fund næstkomandi fimtudags- kvöld. Allir G. T. eru þar vel- komnir og vonast stúkan eftir að þeir sem þess eiga kost sæki fundinn. ¥ ¥ ¥ Þriðjudaginn, 2. júlí, voru þau Oscar George Sólmundson og Helen Guðrún Benson, bæði frá Gimli, Man., gefin saman í hjónaband, af séra Rúnólfi Marteinssyni að 493 Lipton St. Heimili brúðhjónanna verður að Gimli þar sem Mr. Sólmundson er ráðinn kennari. ¥ ¥ ¥ íslendingadagsnefndin, heldur áfram, eins og að undanförnu, að taka á móti nöfnum gullaf- mælisbarna íslendingadagsins, sem eru allir þeir íslendingar, er komu til þessa lands fyrir árið 1885, og hafa þegar dvalið full 50 á hér í landi, og hafa ÞJÓÐHÁTÍÐ ÍSLENDINGA A Kyrrahafsströnd SEATTLE, WASH. SUNNUDAGINN 4. ÁGÚST, 1935 AÐ SILVER LAKE SKEMTISRÁIN í ár verður betri en að undanförnu, ef það er mögulegt. Til dæmis má nefna: Séra Jakob Jónsson sem flytur minni íslands. B. G. SkúLason, lögmaður frá Portland, Ore., sem talar fyrir minni Vestur-íslendinga. Frumort kvæði éftir Dr. Richard Beck og Þorstein Gíslason. Vel æfður karlakór, einsöngur, fjallkonan í nýrri útgáfu, og margt annað skemtandi og fræðandi. “JUVENILE SPORTS” byrja kl. 11 f. m. SKEMTISKRÁ byrjar kl. 2 e. m. “SPORTS PROGRAM” kl. 3.30 e. m. Komið landar góðir og skemtið ykkur. Þetta er eini Þjóðhátíðardagurinn sem haldinn er hér á ströndinni. Inngangur 35c. Unglingar innan 12 ára, í'rítt Ókeypis dans á eftir. Hin vinsæla leið til Islands fslendingar er mikið hafa ferð- ast hafa orðið þess varir að þægindi, þjónusta og viður- gerningur á öllum skipuro Canadian Pacific félagsins eru langt fram yfir það sem þeir höfðu frekast búist við. BEINAR FERÐIR TIL ÍSLANDS Skipaferðir tíðar og reglubundnar frá Montreal. Eftir fullkomnum upplýsingum og bæklingum leitið til næsta umboðsmanns eða W. C. CASEY, Steamship Oeneral Passenger Agent, C.P.R. Bldg., Winnipeg Símar 92 456-7 CANADIAN PACIFIC STEAMSHIPS ekki áður meðtekið gullafmælis borðann. Þeim verður, eins og að undanförnu veittur ókeypis aðgangur að hátíðinni. Allir þeir, sem hyggja til að vera á hátíðinni þetta ár, og meðtaka gullafmælisborðann, eru vin- samlega beðnir að gefa sig fram, sem fyrst, við skrifara ís- lendingadagsnefndarinnar, hr. G. P. Magnússon, 604 Sargeni Ave., Winnipeg. ¥ ¥ ¥ Gleymið ekki! Spilakvöldunum f Goodtemp- larahúsinu á þriðjudögum os föstudögum. — Góð verðlaun! Gott músik! Inngangur 25c. Allir velkomnir. ¥ ¥ ¥ Jóhanna Jónsdóttir, kona Arngríms Jónssonar í Minneota lézt síðast liðinn miðvikudag. Hún var 95 ára gömul, fædd í Snjóholti í Suðurmúlasýslu 16. júní 1840. Vestur um haf kom hún með manni sínum 1876. En maður hennar er á lífi ásamt 3 börnum þeirra hjóna og mörgum barnabörn- um. ¥ ¥ ¥ Steindór Vigfússon, Lundar, Man., lézt s. 1. mánudagskvöld á Almennasjúkrahúsinu í Win- nipeg. Líkið verður flutt út til Lundar í dag og jarðarförin fer fram frá sambandskirkjunni á Lundar n. k. fimtudag. Stein- dór var fæddur í Stykkishólmi árið 1878, flutti 9 ára gamall vestur um haf með foreldrum sínum. Hann var ókvæntur. — Foreldrar hans eru báðir dánir, en af skyldmennum hans hér á lífi er móðursystir hans, Mrs. Kristján Kjernested á Gimli og systkina börn (börn Hólmfríðar P. Bjarnason), Bjarni P. Bjarna son, Jónína Westman í River-j ton, P. K. Bjarnason í Árborg, Elín Ólafsson, Akra, N. D. og V. Eiríksson Lundar. Steindór » átti engin systkyni. Séra Guðm. Árnason jarðsyngur. ¥ ¥ ¥ Það er til frétta færandi hér í Blaine, að nú er sem óðast verið að undirbúa hið árlega Miðsumarmót, sem haldið verð- ur í Lincoln Park, eins og að undafoförnu, þann 28. þ. m. (28. júlí); að mikið er nú vandað tii þessarar samkomu má merkja á því að aðal ræðumaður verður Séra Jakob Jónsson og flytur hann erindi um ísland, og er mikið hlakkað til að fá að hlusta á séra Jakob. Annar ræðumaður verður séra B. Theo. Sigurðsson frá Selkir, Man., sonur séra Jónasar heit- ins ,og er það okkur hér mikið gleðiefni að mega eiga von á að sjá og heyra þennan glæsilega gáfumann. Þriðji ræðumaður verður próf. Jónas Pálsson frá New Westminster, B. C. Allir íslendingar kannast við Jónas. Frumsamin kvæði fyrir þetta mót ort af þessum: E. G. Gillis, New Westminster; B. C. Páll Bjarnason, Vancouver, B. C. Bjarni Lyngholt, Pt. Roberts, Wash., og Kristján D. Johnson, Blaine, flutt af höfundunum.— Söngnum stýrir okkar vel þekta söngkona, Ms. Ninna Stevens, og þarf ekki að efa að sá partur skemti skrárinnar verði ekki vel af hendi leystur. Allir íslendingar á ströndinni ættu að stefna til Blaine þann 28. júlí n. k. og þeir landar sem kynnu að vera á ferðalagi um þessar slóðir ættu að haga ferðaáætlan sinni þannig að þeir verði í Blaine þennan dag og hitta þar gömlu kunningj- ana. —A. D. ¥ ¥ ¥ P. K. Bjamason frá Árborg kom til bæjarins í gærkvöldi. Hann fer út til Lundar að sjá um jarðarför Steindórs Vigfús- sonar frænda síns, sem fram fer á morgun. ¥ ¥ ¥ J. B. Halldórsson bóndi frá Amaranth, Man., kom til bæjar- ins fyrir helgina með skepnur til ma.rkaðar. Hann kvaðst hafa fengið hæsta verð fyrir kálfa, 5c, eða um $8 hvern. Kálfarn- ir voru 2 mánaða. ¥ ¥ ¥ Daníel Sigurðsson, Lundar, Man., átti 90 ára afmæli s. 1. mánudag. ¥ ¥ ¥ “Endurminningar” Friðriks Guðmundssonar eru til sölu hjá höfundinum við Mo- zart, í bókaverzlun ó. S. Thor- geirssonar og á skrifstofu Hk.r. Fróðleg og skemtileg bók og afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25, HITT OG ÞETTA Þetta var framtönn og átti áður heima í munninum á bílstjóra. ¥ ¥ ¥ Saarfljótinu breytt Þjóðverjar ætla sér að gera miklar endurbætur í Saar. Með- al annars er nú unnið að því að breyta farvegi Saarfljótsins þannig, að það verði skipgengt. FRA ISLANDI Tíu og hálfa mílu upp frá yfirborði jarðar "Piccard hefir undanfarið hald ið áfram tilraunum sínum um háloftsflug og rannsóknum í há loftinu. Hann hefir nú komist í 10/2 mílu hæð og segist enn muni halda rannsóknum sínum áfram í ennþá stærri og öflugri belg en hann hafi nú. ¥ ¥ ¥ Nóg af mat Hagstofan enska hefir nýlega lokið við að reikna út hve mik- ið væri til af dýrum í heiminum, sem seljast til mannafæðu. Þar sést að til eru í öllum heimin- um 600,000,000 nautgripir, 750,- 000,000 fjár og 300,000,000 svín. ¥ ¥ ¥ Með glóðarauga. Nýlega neyddist Mussolini að fara í veislu með glóðarauga. Hann er mikill hestamaður, sem kunnugt er og stafaði glóðar- augað af því, að hann hafði dottið af baki. ¥ ¥ ¥ Hættulegasta árið Fimta ár hjónabandsins er það hættulegasta, segir þýzkur prófessor, sem þykist hafa reiknað þetta nákvæmlega út. Ef menn komast yfir það mink- ar hættan á að hjónin skilji, um 5% árlega. ¥ ¥ ¥ Nýtt hjónabandsmet Jessie Cavender er 15 ára gömul Ameríkustúlka. Hú^ setti um daginn met, með því að gifta sig tveim mönnum sama daginn. Hún gat ekki á- kveðið með sjálfrí sér hvorn þeirra hún elskaði meira. ¥ ¥ ¥ Dýr tönn Tannlækni einum í Stokk- hólmi var um daginn stefnt og krafist að hann greiddi 10 þús. krónur fyrir að hafa dregið ranga tönn úr einum viðskifta- j vini sínum, að þarflausu. — Dómur í áfengismáli eftir blóðrannsókn í fyrsta skifti hér á landi Hér í bænum var nýlega feld- ur dómur yfir tveimur bflstjór- um, sem sakaðir voru um það, að hafa keyrt bíl undir áhrif- um áfengis, og var dómurinn á þá leið að ökuleyfið skyldi tek- ið af þeim báðum um þriggja mánaða tíma. Dómurinn var bygður á blóðrannsókn, sem við þetta tækifæri var gerð í fyrsta sinn hér á landi í áfengismáli. En áður mun hún einu sinni hafa verið gerð í barnsfaðernis- máli. Rannsóknin var framkvæmd af Jóhanni Sæmundssyni lækni, sem hefir aflað sér áhalda til þess konar rannsókna, og leiddi hún í ljós, að í blóði annars bílstjórans var 1% — einn þús- undasti partur — áfengi, en í blóði hins 1,5%. í Danmörku eru blóðrann- sóknir í áfengismálum orðnar algengar, og er það talið, að ekki séu nema 30% af þeim mönnum, sem hafa 1% áfengi í blóðinu, ölvaðir, en hins vegar 70% af þeim, sem hafa 1,5%. —Alþbl. MESSUR og FUNDIR I kir/cjv Sambandssafnaðar Uessur: — á hverjum sunnudegi kl. 7. e. h. Safnaðarnefndin: Fundír 1. íöstu- deg hvers mánaðar. Hjálparnefndin: — Fundir fyrsía mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þriðju- dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngflokkurinn: Æfingar á hverju íimtudagskveldi. Sunnudagaskóli-nn: — Á hverjum sunnudegi, kl. 11. f. h. — Er það nú áreiðanlegt að þú sért mér trúr þegar þú ert á ferðalagi? — Já, það er alveg áreiðan- legt, Anna mín. í hvert skifti sem eg sé fallega stúlku, þá kemur myndin þín fram í huga mér og þá segi eg við sjálfan mig: Vík frá mér Satan. ¥ ¥ ¥ Kennari: Getur þú sagt mér hvervegna rúðugler er ekki rtot- að í gleraugu? Nemajidi: Vegna þess að það er altof stórt — og svo er það ferkantað. — Þér segist altaf vera þyrst- ur. Háir það yður mjög mikið? — Nei, nei, læknir, mér þykir vænt um að geta altaf drukkið. KaupiS Heimskringlu Lesið Heimskringlu Borgið Heimskringlu 1934 GHEV. SEDAN Master $745 SKOÐIÐ ÞENNA BÍL! Því að borga meira? CONSOLIDATED MOTORS LTD. 1 Chevrolet—Oldsmobile Salar BETRI BfLAR I LÆGRA VERÐ VÆGIR KAUPSKILMÁLAR Er ovr verzlunar regla 229-235 Main St. Ph. 92 716 v-*.: •*•■•••• •■*;•• • *.*•.'•■ . • \ .xvúUl^M Ítf tA. Phone 201101 u • •• . '■•• , ' • •,. -• , / T' Modern Dairies I___LIMITED____) Islendingadagurinn I Gimli Park, Man. MANUDAGINN, 5. AGUST, 1935 Forseti dagsins: G. S. THORVALDSON Fjallkonan: Frú LÁRA B. SIGURÐSON fþróttir byrja kl. 11. f. h. Ræðurnar byrja kl. 2. e. h. “O, CANADA” — “ó, GUÐ VORS LANDS” Fjallkonunni fagnað — Kvæði Dr. Sig. Júl. Jó- hannesson Ávarp Fjallkonunnar. Söngur—Karlakór C. P. Paulson, bæjarstjóri Gimli-bæjar býður gestina velkomna Söngur—Karlakór Avarp forseta—G. S. Thorvaldson Söngur—Karlakór , Ávarp frá heiðursgestum. Söngur—Karlakór MINNI 1SLANDS: Kvæði—Þórður Kr. Kristjánsson Ræða—Dr. Richard Beck Karlakór MINNI CANADA: Kvæði—Magnús Markússon Ræða—Dr. Jón Stefánsson Karlakór MINNI sextíu ára landnáms tslendinga í Canada: Kvæði—Einar P. Jónsson Ræða—Hjálmar Bergman, K.C. Karlakór GOD SAVE THE KING—ELDGAMLA ISAFOLD Að afstöðnum ræðuhöldum byrjar íslenzk glíma, sem menn úr ýmsum bygðum Islendinga taka þátt í. Þrír íslenzkir íþróttafolkkar þreyta með sjer íþróttir að deginum. — Iþróttirnar fara fram undir stjórn þeirra: B. Pjeturson, Stefán Eymundson, Steindór Jakobson. Kl. 8.30 að kvöldinu byrja söngvar, undir stjórn hr. Páls Bardal. Islenzkir alþýðu söngvar verða sungnir, og er ætlast til að allir taki þátt i þeim. Dansinn byrjar kl. 9 að kvöldinu; nýir og eldri dansar verða dansaðir jafnt. Gnægð af heitu vatni verður á staðnum, til kaffigerðar. Gjallarhorn og hljóðaukar verða, sem að undanförnu, svo ræðumar heyrast jafnt um allan garðinn. Að kvöldinu verður garðurinn prýðilega uppljómaður með rafljósum. Inngangur í garðinn fyrir fullorðna 25c og fyrir börn yngri en 12 ára 10 cents. Inngangur að dansinum 25 cents, jafnt fyrir alla. Takið eftir ferðaáætlun frá Winnipeg til Gimli, 5. ágúst, sem birt verður í íslenzku blöðunum í næstu viku. Verðlaunapeningur veittur fyrir allar íþróttavinningar.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.