Heimskringla - 04.09.1935, Qupperneq 1
XLIX. ÁRGANGUR
NÚMER 49.
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN. 4. SEPT. 1935
Astrid, Belgíudrotning, deyr af bílslysi
Luceme, 29. ág. — Astrid
drotning í Belgíu lézt í bílslysi í
grend við Lucerae í Sviss í dag.
Leopold konungur, maður
hennar og hún voru á leið til
skemtistaðar er Kuesnacht heit-
ir í bíl. Konungurinn stýrði
bílnum og drotningin sat í fram-
sætinu með honum. Með þeim
var bílstjóri, er í aftursæti sat,
sýnilega af því að konunginn
langaði að stýra bílnum.
Ekið var eftir eggsléttum og
breiðum vegi meðfram vatni.
Þegar minst varði, missir kon-
ungur stjórn á bílnum. Er sagt
að hann hafi litið til hliðar á
hið fagra landslag er leið þeirra
lá um og ekki gætt stjórnarinn-
ar sem skyldi. Sjálfur segist
konungur hafa verið að líta á
landsuppdrátt er drotningin var
að skoða. Þegar hann gáði að
sér, var hann kominn út á brún
vegarins og sveigðist út af hon-
um. Hrukku allir sem í bílnum
voru úr honum við snúninginn.
Drotningin rak sig á tré og
skaddaðist á höfði svo, að hún
dó 5 mínútum síðar. Konungur
nfeiddist einnig, en ekki hættu-
lega. Bílstjórinn meiddist og
mikið. En bíllinn brunaði út í
vatnið, er aðeins var 8 fet frá
staðnum er slysið varð á.
Andlit konungsins var marið
og blóði drifið. Þegar hann átt-
aði sig brá hann við þangað sem
drotningin lá hreyfingarlaus,
tók hana í arma sína, kysti
hana og grátbændi hana að
mæla. En hún var meðvitund-
arlaus, með lífsmarki þó en dó
eftir fáein augnablik í fangi
konungsins.
j Læknar voru komnir þangað
| sem slysið varð eftir 5 mínút-
! ur. Kváðu þeir drotninguna
!dána, en tóku konunginn á
! sjúkrabeð.
Astrid var dóttir Karls prins
í Svíþjóð og Ingrid prinsessu.
Fóru foreldrar hennar til Sviss,
er þeim barst harmfregnin.
Leopold konungur tók við ríki
1934, við lát Alberts konungs.
Hann giftist Astrid 1926. Þau
eiga þrjú börn. Var ekkert
þeirra í förinni, er slysið varð.
Konungshjónin dvöldu í Villa
Haslihorn .sumarbústað sínum í
Sviss.
Astrid drotning var 29 ára og
dáð fyrir fegurð og mannkosti.
Komu mannkostir hennar fram
í starfi hennar í líknarfélögum
og hjálp og aðstoð við bág-
stadda.
Otvarp forsætis-
ráðherra Canada
Forsætisráðherra Canada, the
Right Honourable R. B. Bennett
hefir kosnmgabardagann með
fjórum ræðum er hann flytur* *í
útvarp Canada á þeim tíma er
hér segir:
Föstudaginn 6. september.
Mánudaginn 9. september
Miðvikudaginn 11. september.
Laugardaginn 14. septentíber.
Ræðumar verða fluttar frá kl.
8-8.30 að kvöldi, Winnipeg-tími.
Á mál forsætisráðherrans
mun hlýtt verða af öllum er
þess eiga kost. Auk þess sem
Hann er einn af röskustu ræðu-
mönnum og skemtilegustu á að
hlýða, hefir hann þau mál að
flytja, er hann er flestum hæf-
ari með að fara og sem alla
hugsandi borgara landsins varð-
ar.
TALA KJÓSENDA
Ottawa, 29. ág. — Samkvæmt
nýútkominni skrá yfir tölu kjós-
enda í sambandskosningunum
14. október, eru kjósendur
landsins 5,808,503. Við þetta
er búist að bætist ennþá um
140,000 nöfn, er skráð munu í
fylgiriti með kjósendaskránni.
SPÁ KÖLDUM VETRI
Þeir, sem vel fylgjast með
öllum náttúrufyrirbrigðum um.
veður, spá því að komandi vet-
ur verði bæði langur og strang-
ur.
Til merkis um að snemma
vetri, telja þeir meðal annars,
að gæsir séu komnar að norð-
an, en þegar slíkt ber við fyrir
fyllingu uppskeru tungls, veit
það á að vetur er nærri. Ann-
að er, að vetrarforði íkorna er
nú óvanalega mikill. Það boð-
ar ávalt langan vetur.
Þá er stærð stromphúsa
krabbanna í leirunum við tjam-
barma nú óvanalega mikil, og
það er órækt merki um kaldan
vetur, segja spámennirnir.
En órækasta vitnið um hvem-
ig veturinn verði, telja þeir þó,
hvemig vatnsrottan byggi hús
sín. Ef þau, eru stór og vegg-
irnir mjög þykkir, geta menn
reitt sig á frostharðan vetur.
En um þetta er nú ekkert hægt
að segja, því þær hafa ekki enn
byrjað á byggingaxvinnu.
í þess stað er nú annað víst.
og það er, að gæsir hafa óvana-
lega feita bringu, en það vita
allir athugulir veiðimenn, að
bregst ekki, að veit á harðan
vetur.
Á köldum vetri er því von,
en er það nokkuð óvanalegt í
Manitoba?
SMJÖRSÝNING f TORONTO
Á sýningu á sjöri, sem fram
fór í borginni Toronto nýlega,
unnu smjörgerðarhús í Mani-
toba langflest verðlaunin, eða
14 fyrstu verðlaun. Alberta og
Ontario unnu 5 verðlaun hvort.
og British Columbia tvenn.
Smjörgerðarhúsin sem unnu
í Manitoba á þessari þjóðsýn-
ingu voru flest úti í sveitum, á
Lundar, Glenboro, Winkler,
Gladstone o. s. frv. Smjörgerð-
in hlýtur því að mega teljast hér
á háu stigi.
FUNDUR C.C.F. FERST FYRIR
C. C. F. flokksmenn buðu til
fundar í Poplar Point síðast
liðinn miðvikudag til þess að
velja sér fulltrúa á sambands-
þingið fyrir Portage la Prairie-
kjördæmi. Aðeins 14 manns
sóttu fundinn og af vali þing-
mannsefnisins varð ekkert.
H VEITIUPPSKERAN
I fyrstu skýrslunni, sem
Searle Grain félagið gefur út á
þessu ári um uppskeruhorfur,
og sem birt var s. 1. miðvikudag,
er hveiti uppskeran í þremur
vestur fylkjum talin nema 295
miljónum mæla. Af höfrum eru
áætlaðir 300 miljónir mæla og
byggi 70 miljónir. Skýrsla þessi
er bygð á athugunum á 1169
stöðum. Skýrsla sambands-
stjómar um hveitiuppskem í
Saskatchewan, gerir ráð fyrir
að hún nemi 170 miljónum
mæla.
BÍÐA 1 Va ÁR
William Aberthart skýrði frá
því s. 1. viku að það mundi þurfa
15—18 mánuði að skipuleggja
Social Credit-fyrirkomulagið í
Alberta. Fyr en það býst því
stjórain ekki við að greiða
kaupuppbótina hverjum manni
eða geta rekið fátæktina út á
sextugt djúp.
UPPSKERUTJÓNIÐ
Eftir skrýslum sambands-’
stjórnarinnar er haft, að tjónið
af ryði í hveiti í Vestur-Canada,
nema $100,000,000.
Aberhart segir aðstoð
Bennetts vísa
Calgary, 3. sept. — “Forsæt-
isráðherra R. B. Bennett lofar
að gera alt sem í hans valdi
stendur til að aðstoða fylkis-
stjórnina nýju í Alberta til að
ráða bætur á hag fylkisins,”
sagði William Aberthart, hinn
nýi forsætisráðherra Alberta-
fylkis í dag.
Mr. Aberhart átti tal við for-
sætisráðherra Canada nýlega
um hag fylkisins. Kvað hann
Mr. Bennett hafa sagt í því
sambandi, að sér fyndist ekki
sanngjarnt, að nýju fylkisstjórn-
inni væri lögð öll skuldabyrðin
á herðar, sem fráfarandi stjóm
arfleiddi hana að.
“Það var lán, að réttsýn og
sanngjöm stjórn var við völd í
Ottawa”, bætti Mr. Aberhart
við. Mr. Bennett sagði hann
eins mikið áhugamál og fylkis-
búum sjálfum væri að Alberta
rétti við fjárhagslega.
TEKJUHALLI ALBERTA
RÚMAR TVÆR MILJÓNIR
Edmonton, 3. sept. — Eitt af
síðasta starfi Reid-stjórnarinn-
ar, áður en hún lagði niður
völdin, var að kunngera fjárhag
fylkisins.
Á fjárhagsárinu, sem lauk 31.
marz 1935, er tekjuhallinn
$2,081,760.
Allar tekjur stjómarinnar á
árinu námu $15,697,770. Er
það mjög nærri áætluðum tekj-
um. En útgjöldin voru $17,435,-
821. Þau urðu nokkru meiri en
gert var ráð fyrir, ekki aðeins
í einni stjórnardeildinni, heldur
öllum.
Við heildarskuld fylkisins
bætast á síðast liðnu ári nærri
fjórar miljónir dollara.
HERTOGINN AF GLOUCEST-
ER TRÚLOFAÐUR
Konungur og drotning Bret-
lands tilkyntu s. 1. laugardag
trúlofun þriðja sonar síns, her-
togans af Gloucester.
Brúðurin tilvonandi er Lady
Alice Montagu-Douglas-Scott og
er dóttir hertogans og hertoga-
frúar af Buocleuch og Queens-
berry. Hefir konungur fúslega
samþykt ráðahaginn.
Hvenær giftingin fer fram er
ekki ákveðið.
Iffertoginn af Gloucester er 35
ára og háttstandandi í sjóliði
Breta.
ENN NÝTT MET f Bfl.AKSTRI
Sir Malcolm Campbell setti
nýtt met í hraðakstri í bíl í gær.
Það var á saltsléttunum í Utah,
sem hann gerði tilraunina. Bíll-
inn fór yfir 300 mílur á kl.st.
eða nákvæmlega 301.33 mílur.
Áður var hraða met hans sjálfs
276 mílur á kl.st. Draumur
þessa Öku-Þórs, hefir því ræzt
um það, að hægt sé að aka 300
milur á klukkustund í bíl.
VIÐVÖRUN TIL BfLSTJÓRA
Lögregludómarar Winnipeg-
borgar kunngerðu s. 1. laugar-
dag, að lögunum um bílakstur
hefði verið breytt og að hvers
manns, sem stjómaði bíl undir
áhrifum víns, biði frá 7 til 30
daga fangavist hér eftir. Lög
þesil öðluðust gildi 1. sept.
194 DEYJA AF BÍLSLYSUM
yfir helgina í Bandaríkjunum
Yfir síðustu helgi og á nfánu-
daginn, sem var almennuf helgi-
dagur, dóu 194 menn af bíl-
slysum í Bandaríkjunum. Auk
þess meiddust um 200 manns,
sumir all-hættulega.
Ennfremur druknuðu um 14
manns á sumarskemtistöðum
landsins.
ABERHART TEKUR VIÐ
STJÓRN
Edmonton, 3. sept. — Social
Credit flokkurinn undir stjórn
Aberharts, tók við völdum í Al-
berta fylki í gær.
Ráðuneytið er þannig skipað:
Forsætisráðherra er William
Aberhart; hann er og menta-
málaráðherra.
Dómsmálaráðherra er John
W. Hugill, frá Calgary.
Akuryrkju- iðnaðar- og við-
skiftaráðherra er William N.
Chant frá Camrose.
Náma-ráðherra og eftirlits-
maður stjórnarlanda er C. C.
Ross frá Calgary.
Atvinnu- járnbrauta- og síma-
ráðherra er W. A. Fallon frá
Verm'ilion.
Heilbrigðismálaráðherra er
Dr. W. W. Cross frá Hanna.
FFjármálaráðherra og sveita-
mála, er Charles Cockroft frá
Gadsby.
Fykisritari er E. C. Manning
frá Calgary.
Enginn ráðherranna segir
blaðið Free Press að hafi verið
svo mikið sem þingmaður áður.
Hverjir eiga Bláland?
Eftir síðustu fréttum að
dæma, verður alt annað en auð-
velt að skera úr því, hvort Stan-
dard Oil félagið í Bandaríkjun-
um, eða Haile Selassie keisari
eigi Bláland.
Fréttaritarar komust síðast
liðna viku að því, að keisarinn
hefir veitt Rockefeller eða Stan-
dard Oil félaginu einkaleyfi til
að vinna allar olíulindir og
námur landsins. Er með því
talið, að keisarinn hafi af hendi
látið hálft landið.
í fyrstu var sagt, að auð-
félögum frá Bretlandi og
Bandaríkjunum hafi verið veitt
þetta einkaleyfi. Og eflaust
eru fleiri félög unf þetta, þó
Standard Oil sé mest á orði
haft, af því| að það mun vera
stærsta félagið. Bretar neita
þó með öllu að nokkurt stórt
brezkt félag eigi þar hlut að
máli.
En hver svo sem félögin eru,
þá hafði fréttin í svip slæm á-
hrif á málstað Breta í stríðsmál-
unuin því eftir það kvað ítalíu
að minsta kosti ljóst, að það
væri í eigin hagsmunaskyni en
ekki neinnar mannúðar vegna
sem Bretar væru að hervæðast
á móti sér. Og þar sem þjóða-
bandalagsfundurinn um stríðs-
Bandaríkin þarfnast hveitis héðan
Washington, 3. sept. — Síðast
liðinn mánudag skýrði ríkisrit-
ari Cordell Hull frá því, að
Bandaríkin mundu þurfa að
kaupa talsvert af bezta eða
númer 1 hveiti frá Canada á
komandi hausti og vetri.
Hveiti-uppskeran hefir ekki
einungis brugðist til muna í
Bandaríkjunum að því leyti, að
hún er minni en ætla mátti
vegna ryðs, heldur eru gæði
hveitisins ekki hin sömu og
áður. Þessvegna er gert ráð
fyrir þessum kaupum á góðu
hveiti frá Canada.
Hvað mikið keypt verður, er
ekki hægt að segja neitt um fyr
en vissa er fengin fyrir hvernig
uppskeran verður syðra á betri
tegundum hveitis. En ríkisrit-
arinn virðist ekki ósmeykur um,
að eftirspurn kornfél. syðra
verði talsverð, því hann þylur
upp mikið af reglum' um hverju
það sæti, verði farið að ausa
hveiti til Bandaríkjanna.
En hvað sem innflutninga
reglugerðunum viðvíkur, er það
eitt víst, að Bandaríkja þjóðin
er vön góðu hveiti, og hafi hún
það ekki heima fyrir, mun hún
ekki horfa í að sækja það út úr
landinu.
Útlitið með hveitisölu hér,
hefir því oft verið verra en nú,
ekki sízt þar sem eftirspum er
einnig talsverð fyrir það á öðr-
um mörkuðum en þessum.
málin í Afríku fór í hönd, kom
fréttin sér alt annað en vel.
En að Bretar hafi rétt fyrir
sér um að brezk félög séu ekki
við þessa kaupmála riðin, mun
nú skoðun flestra.
Einkaleyfið er veitt til 75 ára.
Og um 60 míljón dollara fjár-
framlag af félagsins hálfu, eða
félaganna, er þama að ræða.
Járnbrautir eiga þau að leggja,
svo hundruðum mílna nemur,
auk margs annars.
Járnbrautin á að liggja
vestan úr Blálandi til sjávar í
Somalilandi Breta.
Sá er fyrirtæki þetta hefir
með höndum fyrir félögin, hafði
á orði við fréttaritara, að hann
skildi ekkert í Mussolini, að
vera að leggja út í stríð, því
land þetta væri með góðu hægt
áð fá til afnota eftir vild.
Mussolini kveður þessi einka-
leyfi engin áhrif hafa á áform
sín og hann fari sínu fram eftir
sem áður.
NINETTE-BERKLAHÆLIÐ
Ninette-berklahælið í Mani-
toba mintist þess fyrir tveim
vikum, að það hefði starfað í
25 ár. Á þeim tíma hafa dauðs-
föll af tæringu mínkað um
fjóra-fimtu eða 80% í Manitoba.
Mikilvægt starf far þarna fram
— í kyrþey.
VERRA EN FJÁRÚTLÁT
Það hefir til ýmsra ráða verið
gripið til þess að koma mönnum
í skilning um hvað af ógætileg-
um bílakstri getur leitt. En
ekkert af þeim ráðum ætlum
vér þó áhrifameira en hegning-
araðferð, sem tíðkast í Síberíu.
Þeim, sem brotlega gera sig við
aksturslögin þar og náð er á
vegunum, er sagt, að færa bíl-
inn til hliðar á brautinni og þar
er vindinum hleypt úr hjólhring-
unum. Að pumpa vindinn aftur
í alla hringana er sögð ógleym-
anlegri hegning en nokkur önn-
ur, og hefir gefist mjög vel.
FRÁ fSLANDI
eftir Visi
Frá Rekjavík til
Vopnafjarðar í bifreið
Vopnafirði 8. ágúst
í gærkvöldi kom til Vopna-
fjarðar bifreið með 4 farþega
frá Rvík. Bifreiðin fór um veg-
leysur og óbygðir út af þjóð-
veginum á Hólsfjöllum, yfir
Skarðsá, um Langadal, með-
fram Þjóðfelli og Súluendum út
Brunahvammsdal, um Fossheiði,
eftir syðri brúnum Burstarfjalls,
ofan í Hofsárdal hjá Teigará og
þaðan að nfestu eftir sýsluveg-
inum út í vopnafjarðarkauptún.
Flokkur Aberharts
vill enga samvinnu
Calgary, 29. ág. — Á fundi
Aberharts flokksmanna hér í
gær, var ákveðið, að eiga enga
samvinnu við aðra flokka,
hvorki Stevens endurbótaflokk-
inn né aðra.
í tillögu flokksins um þetta
var um leið tekið fram, að sjálf-
sagt væri að styðja þingmanns-
efni, hvar sem væru, í komandi
sambandskosningum, ef þau
sæktu undir merkjum Social
Credit stefnunnar óg meira að
segja vinna að tilnefningu
þeirra, þar sem líkur virtust til,
að þeim væri til nokkurs að
sækja.
— Farþegar voru Valdimar
Sveinbjörnsson leikfimiskennari
og kona hans, Karl Jónsson
læknir og dönsk stúlka. Bif-
reiðarstj. er Indriði Hannesson
frá Lindarbrekku í Kelduhverfi,
er fyrstur ók yfir Reykjaheiði.
Bifreiðin er Chevrolet, model
28. Bilaði hún aldrei á þessari
leið.
* * *
Félag Vestur fslendinga
heldur fund í hátíðasal stú-
dentagarðsins mánudag 12. ág.
kl. 9. e. h. Verður það kveðju-
samsæti fyrir séra Albert Krist-
jánsson og Hannes Kristjáns-
son. Dr. Jóhannes Pálsson verð-
ur einnig heiðursgestur á fund-
inum og fleiri íslendingar frá
Vesturheimi, sem eru á ferð hér.
Að lokinni saníeiginlegri kaffi-
drykkju verður dansað. Félags-
menn mega taka með sér gesti.
* * *
Leiðangur Pálma Hannessonar
og félaga hans
9. ágúst
í gær komu þeir Pálmi Han-
hesson rektor og félagar hans,
Steindór Steindórsson, Magnús
Björnsson, Sigurður Þórarins-
son, Finnur Jónsson og Sigurð-
ur Jónsson til bygða að Stafa-
felli í Lóni, eftir 18 daga úti-
legu á Fjöllum. Láta þeir vel af
veru sinni í óbygðum; höfðu
gott skygni og blíðviðri síðustu
viku. Þeir segja mtelingaflokk
Steindórs Sigurðssonar í Víði-
dal, og að þaðan fari hann að
Þrándarjökli, en síðan niður
Hamarsdal til bygða.
* * *
Druknun
Siglufirði 5. ágúst
í gærmorgun vildi það slys
til að skipstjórinn á vélbátnum
Úðafossi frá Keflavík, Þórhall-
ur Einarsson, féll útbyrðis og
druknaði. Þórhallur var 35 ára
að aldri. — Slysið vildi til út-
af Skagafirði. Báturinn var þá
á austurleið frá Húnaflóa.