Heimskringla - 04.09.1935, Page 4

Heimskringla - 04.09.1935, Page 4
\ 4 SÍÐA. Ittctmslvtnníila (StofnvO 1S88) Kemur út á hverjum miOvikudegi. Eigendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 oa 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 537 Verð blaðsins er $3.00 irgangurlnn borgist tyrirfram. Allar bOTganir sendist: THE VIKING PRESS LTD. 011 vlðskifta bréf blaðinu aðlútandi sendlat: Manager THE VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave.. Winnipeg “Heimskringla” is publisbed and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man. Telepihone: 86 637 WINNIPEG, 4. SEPT. 1935 ÚTVARPIÐ FRÁ ÍSLANDI Fyrsta tilraunin með útvarp frá ís- landi til Vesturheims, þann fyrsta þessa mánaðar, hepnaðist eftir öllum vonum, litið á það frá hálfu vor Vestur-íslend- inga. Alt sem sagt var, heyrðist nokkum veginn, þó truflanir væru talsverðar á móttökutækjunum og séu vanalegar um það leyti dags að sumrinu. Og fyrir orð- in, sem forsætisráðherra, Hermann Jón- asson, talaði sérstaklega í garð Vestur- Islendinga eru þeir þakklátir. Slík vinar- orð frá ættjörðinni eru sem græðilyf á opna und fyrir hugi flestra eldri Vestur- íslendinga, því þrátt fyrir árin mörgu, sem þeir hafa búið fjarri ættjörðinni, á sál þeirra þar ennþá heima. Að öðru leyti teljum1 vér víst, að út- varpið hafi vakið, hjá Vesturheimsmönn- um sérstaka eftirtekt á landi, þjóð og sögu. Fyrir eins afskekt land og ísland er.mun enginn efi á, að notkun út- varps til að kynna það umheiminum, getur verið mikilsverð, ekki aðeins fyrir ísland sjálft heldur og umheiminn, því það á í koti sínu varðveitt ýmislegt, sem menningu getur heitið til þrifa, sem önn- ur lönd brestur. Þegar farið var að athuga, að útvarpið kom ekki yfir canadiskar stöðvar, átti Þjóðræknisfélagið um það við útvarp þessa lands, að endurvarpa því. Ekki varð þess þó kostur á þeim tíma, sem það var sent frá New York, því hver stund var á-. kvörðuð, en útvarpsfélag Canada tók það á plötu og endurvarpaði svo kl. 6.30 að kvöldinu. Munu þeir því, er alls ekki náðu í það yfir Bandaríkja-stöðvamar, hafa notið góðs af þessu. HVAÐ ER ATHUGAVERT VIÐ CANADABANKA? Eru leiðtogar andstæðinga flokka Ben- nettsstjómarinnar svo ölvaðir eða örvingl- aðir af valdafýkn, að þeir viti hvorki það sem' þeir eru að segja eða beri neina á- byrgð orða sinna? Þeim hefir öllum um skeið verið svo klaksárt í Canada banka, að margur mætti ætla, að þeir væru að reyna að draga sem mest af viðskiftum frá honum og skara eldinum að köku annara banka landsins. Það furðar auðvitað engan á því, þó King gangi hraustlega fram í þessu, þvf það" væri ekki nema sanngjamt vináttu bragð af honum, að bera hönd fyrir höfuð öflugustu fylgismanna sinnan í komandi kosningum, svo sem bankanna. En þeg- ar Woodsworth og Stevens eru með ó- hróðurssögur um Canada banka, sem ekkert eiga við andstæðinga hans, eða aðra banka þessa lands, að virða, þá má segja, að skörin sé farin að færast upp í bekkinn. Það sem þeir King og Woodsworth færa nú bankanum til foráttu, er að hann sé eign einstaklinga og fjárplógur fyrir þá í stað þess að vera almennings-eign, þjóðeign, sem stjórnin, sem í það og það skiftið er við völd, eigi, stjómi og starf- ræki. Við hvað er átt með þessu almennings- eignar-orðagjálfri? Hvaða réttindi eru almenningi áskilin í meðferð þess fjár er stjómir hafa undir höndum? Stjómar- flokkurinn ræður einn lögum og lofum, sé hann í meiri hluta á þingi. Hann getur þeytt fénu út í veður og vind eftir eigin geðþótta, sem hann á yfir að ráða, án þess að ráðfæra sig við nokkura mann um það. Flokkurinn sem við völd er, skoðar þetta sem sitt fé, aðeins meðan hann er við völd. Eins skeytingarlitlir og HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 4« SEPT. 1935 stjórnmálaflokkarnir hafa reynst, væri ekki annars að vænta af þeim, en að þeir notuðu fé bankans svo óvarfærnislega, að þeir steyptu honum við hver stjórnarskifti eða hver á sínu kjörtímabili, alveg eins og Brackenstjórnin gerði banka þessa fylkis. Er það þetta fyrirkomulag á Canada banka, sem King og Woodsworth æskja? Sem betur fór, tók forsætisráðherra R. B. Bennett í strenginn, er um stofnun bankans var að ræða og kvað hann á öðrurH grundvelli en þessum verða reist- an. Og hver er sá grundvöllur? Að bank- inn væri eign almennings með því að hann keypti hluti í honum, sem eru ekki stærri en það, að hver sjálfbjarga maður getur orðið meðeigandi. Enginn einn maður eða félag má eiga meira en firnm þúsund dali í bankaeigninni. Stjómendur eru valdir af eigendum og stjórninni og allar gerðir þeirra, viðvíkjandi fyrirkomu- lagi á starfrekstri, eru samþyktar af sambandsstjórnarráðinu. Vextir af hlut- unum eru sex af hundraði. AHar fjár- málaráðstafanir og atkvæðagreiðsla, fara fram undir eftirliti fjármálaráðherra sam- bandsstjórnar. Og hver stefna, sem ofan á verður, er þá fyrst góð og gild, er sam- bandsstjómarráðuneytið hefir samþykt hana. Það sem í þessu fyrirkomulagi felst, er þá þetta, að það er ókleift nokkrum einstaklingi, að koma nokkrum yfirgangi eða ósæmilegri gróðabreUu þama að. Á hina sveifina, er stjóminni sem við völd er, ókleift að ganga í fé bankans og stofna honum í nokkra hættu. Það er með öðrum orðum ekki hægt að hugsa sér tryggari fjármálastofnun en þetta, í sjálfu sér, og á hinn bóginn með meira eða fullkomnara öryggi fyrir því, að ein- staklingurinn noti ekki féð til að ræna aðra og auðga sjálfan sig. Canada banki er þvi frá hvaða hlið sem á er litið ein sú þjóðlegasta og tryggasta almenningsstofnun, sem hægt er að benda á í þessu landi. Fyrirkomulag hans bendir einmitt til þess hvemig þjóðeignastofnanir eigi að vera. Ef Manitoba-fylkisbanki hefði á þessum grundvelli verið starfræktur, væri hann nú ekki hmninn. Ef sumar svonefndar þjóðeignastofn- anir þessa bæjar væru á þessu fyrirkomu- lagi reistar, væri ekki að sækja í það horfið m!eð þær, sem nú gerir, þar sem farið er að nota þær sem fjárplóg fyrir hverja tóma skúffu í fjárhirzlu bruðlandi og ráðlausrar bæjarstjómar. Það væri ekkert tiltökumál, þó upp og ofan kjaftaskúmar í liði Kings og Woods- worth bulluðu einhverja markleysu um stofnun Canadabanka eða fyrirkomulag hans. En það fer að verða kjósendum alvarlegt íhugunarefni, þegar leiðtogamir sjálfir setja svartan blett á tunguna á sér með því. En King og Woodsworth eru þó það betri en Stevens, sem einnig er með slettur út af fyrirkomulagi miðstöðvar bankans, að þeir vita þó hvaða breytingar þeir vilja að á honum séu gerðar. Þeir játa hreinskilnislega, að þeir vilji hafa hann sem vasa til að stinga hendinni í eftir skotsilfri, þegar þeir eru komnir til valda. En Stevens þvælir um fólks- banka, sem hann reynir ekki að gera grein fyrir hveraig vera skuH, ef hann á annað borð veit nokkum hlut, hvað hann er að segja. Um vörumerki á banka- hugmyndum Kings og Woodsworth, er ekki að villast. En það verður ekki sagt um þéssa nýju bankafyrirkomulags hug- mynd Stevens, nýju segjum vér, því sællar minningar var hann einn af stofn- endum Canada banka. SLEIFARLAGIÐ GAMLA I fréttum heiman af Islandi var þess nýlega getið, að Norðmenn ætluðu að verja stórfé til þess að auglýsa harðfisk og aðra vöru í Bandaríkjunum. Fregn þessi minnir oss á, að á það var minst í þessu blaði fyrir þrem árum að þetta þyrftu íslendingar að gera, (sjá Hkr. 24. sept. 1932). "Ekki munum vér eftir, að á málið væri eytt einu auka- teknu orði í blöðum heima, en hjá ein- stöku málsmetandi manni höfum vér þó frétt, að það hafi vakið eftirtekt. Og þrátt fyrir það, þó Vestur-lslending- ar hafi ávalt alið í brjósti hugmyndina um nauðsynina á verulegu viðskiftastarfi við heimaþjóðina, var málinu hér heldur ekki sint. I nefnd, sem eitt sinn var kosin hér til þess að íhuga viðskifta- og samvinnumál Vestur og Austur-íslendinga, vakti sá er þetta ritar athygli á ný á hvort enga til- raun væri hægt að gera í þessu fiskisölu- máli. Að órannsökuðu því máli virtist ekkert liggja beinna fyrir en það, að ís- land seldi hingað fisk og keypti héðan kornvöru. Þar sem Hudsonsflóasjóleiðin var þá opnuð, virtist blása sérstaklega byrlega með sh'kar viðskiftatilraunir. En mér er enn í minni svipurinn, sem sumir meðnefndarmenn settu upp, og hve skýrt hann bar vott um að um þessa vitleysu væri hér alls ekki að ræða. I stað þess var svo falHst á, að vinna að því að fá 10 eða 15 mínútna ræðu út- varpað frá íflandi einu sinni á ári. En Norðmenn hafa nú orðið fyrri til, að leita fyrir sér hér með markað á fiski. Og það er ekki minsti efi á því, að þeim verði það til fjár. Markaður er hér vestra miklu meiri en menn gera sér nokkra hugmynd um fyrir þessa vöru. Á því er enginn vafi.. I Bandaríkjunum er mikil þurð á fiski, bæði niðursoðnum, söltuð- um og hertum. Þau afla sjálf ekkert líkt því, sem þörfin og eftirspumin er, eða yrði, ef sú vara byðist alment. Og fyrir harðfisk er þegar mikill markaður hjá Norðurlandaþjóðunum öllum hér, ítölum og Islendingum. Það þyrfti ekki að eyða miklu fé til að auglýsa hann, að því er þá snertir. Þegar það hefir hent,- að ís- lenzkar búðir hér hafa haft hann, hefir hann verið rifinn út með áfergju. I stað þess, að búðirnar hafi þurft að auglýsa hann, hefir hann auglýst búðimar. Geta nú íslendingar sennilega brátt veitt sér þessa vöru hér með því að kaupa hana af Norðmönnum. Vér eigum ekki annað orð yfir það en það Sem yifr þessari grein stendur að svo skuli vera komið. Fyrir aðra aðal-útflutningsvöru ís- lands, er víst engin efi á að hér vestra, sérstaklega í Bandaríkjunum, er nægur markaður. Það er fyrir ull. Skyldu ís- lendingar heima ætla að láta Norðmenu einnig klófesta þann markað? Er nú ekki kominn tími til þess að ís- lendingar austan hafs og vestan fari að veita þessum viðskiftaskilyrðum hér at- hygli og taki höndum saman um það, sem þeim er eins auðsæilega til þrifa og fram- fara og það? Á meðan svo er hér í sveit búið, að íslendingar halda hópinn og eru sér þess vitandi, að þeir séu óblandað brot af ís- lenzku þjóðinni, sem unna henni og ætt- jörðinni öllum löndum og þjóðum frem- ur, ætti ekki að vera óhentugri tími fyrir íslendinga heima, að hefjast handa á slíku starfi og hér er um að ræða, en síðar, eða þegar þeir (Vestur-íslendingar) eru tvístraðir og týndir. mikið eldri en það. Hún er ef- laust jafngömul mannkyninu, þó hennar væri ekki lengi vart nema ef vera kann í áhrifalausu muldri og mögli þræla í sinn hóp út af kjörum sínum, en sem þeir þorðu ekki að mæla upphátt af ótta fyrir að það bærist eyrum húsbændanna og launin fyrir voru vís húðstrýk- ing. Með verkamanna hreyfing- unni og verkamannasamtökum, fóru áhrifin fyrst að koma í ljós í bættum launum, aðgengi- legri kjörum og meira frelsi vinnulýðsins. En áhrif hreyfingarinnár ná þó miklu lengra en það nú orð- ið, að bæta laun verkamanna. Að þeim fengnum hófust víð- tækar þjóðfélags framfarir. — Það kom brátt í ljós, að heill þjóðfélagsins valt meira á því, að allir þegnar þess ættu við sæmileg kjör að búa, en hinu, að einn gæti lifað í auði og unaði á kostnað fjöldans. Þó maður hljóti að játa að starf verkamannafélaga virðist oft hafa borið vott um skamm- sýni og þjóðfélagslegt skilnings- leysi og hafi stundum verið rek- ið áfram af æstum tHfinningum og í blindni um afleiðingamar, er hinu ekki að neita, að stefna verkamanna - hreyfingarinnar hefir lagað sig eftir breytingum tímans og almennum þjóðfélags framförum, og þær (framfar- irnar) eru meira að segja henni margar beinlínis að þakka. V erkamannahreyfingarinnar er því frá sögulegu sjónarmiði og þjóðlegu fyllilega vert að minnast. SMÆLKI Blaðið Free Press segir: “Það verður með hverjum deginum ljósara, að allir sem framföruim og breytingum til bóta unna, safnast utan um Liberal flokk- inn.” Er blaðið búið að gleyma Alberta? ¥ ¥ ¥ Aðkomumaðurinn: Þetta út- sýni, geturðu hugsað þér nokk- uð fegurra? Bóndinn: Ef til vill ekki. En ,ef þú þyrftir að plægja það, herfa, mylja, slétta, slá, girða og greiða skattinn af því, mundi það líta út rétt eins og hver annar staður. ¥ ¥ ¥ Bláland: I herrans bænum varið ykkur. Siðmenningin er að færast nær! ¥ ¥ * I ræðum sínum halda liberal- ar mjög á lofti táknum og stór- merkjum þeim sem gerðust á Prince Edward Island í kosn- ingunum nýlega og sem þeir geta ekkert annað lesið úr, en að öll þjóðin sé harð-liberal. Táknin og stórmerkin eru þessi: Á Prince Edward Island eru 78,000 íbúar sem 30 liberal þing- menn og 8 ráðgjafar ráða yfir. Fylgi sitt til þess hlutu liberalar frá kjósendum, sem eru segjum 15-20 þúsund manns, en 58 af hundraði greiddi þeim atkvæði. Hinir, eða 42 af hundraði greiddi con&ervatívum atkvæði. Nokkrir atkvæðisbærir sátu og heima kosningadaginn. En af þessum mikla hópi sem' eftir er að afföllum frádregnum, dæma liberalar alt landið fallið að fót- um sér. lvo smakvæoi eftir H. E. Johnson ÞRÖSTUR í LUNDI Hún hoppaði syngjandi grein af grein I glóandi vornætur yndi. —Hún þekti ekki vetrarins mæðu og nfein móðurin unga svo frjáls og hrein —Þá lék henni alt í lyndi. Hún átti sér lítil börn og bú, I bjarkanna skjóli vænu Og vonirnar uxu í vorsins trú Á venginu sumar grænu. ER ÞAÐ TIL AÐ STÆRA SIG AF? Skýrslur frá sambandsstjórninni um á- fengisneyzlu í hverju fylki þessa lands bera með sér, að Manitoba eyðir talsvert minna fyrir áfengi en nokkurt hinna fylkjanna. Það er nú auðvitað gott og blessað til þess að vita að menn hér séu hófsamari en annar staðar, en lítið virðist það nú til að stæra sig af, að eyða hátt á fjórðu miljón dollurum fyrir “tárið” eins og Manitobafylki gerði á síðast liðnu ári (1934), á öðrum eins féleysistímum og nú eru. En skítt með það. Þetta verða ekki nema 5 dollarar á nef í fylkinu, og borið saman við Ontario-fylki, sem drekkur á- fengi fyrir 36 miljónir dollara á ári, eða 10 dollara á nef, má Manitoba heita hófsamt. British Columbia gerir þó betur en Ontario, þvi þar nemur fjáreyðslan fyrir áfengi þrettán dollurum á hvem íbúa. Við skulum gera ráð fyrir því bezta og skoða Manitobabúa frömuði góðra siða. Það er þó annað, sem getur komið til greina, sem sé að skildingaráð þeirra séu lakari en annara. VERKAMANNADAGUR Svo fólkið í runnana lagði leið Frá leiðindum heima rannsins, Við söng hennar virtist gatan greið Til gullfagra drauma landsins. Eg guðsfeginn sál minni svölun drakk Af söngnum í þrastarlundi: Eg lúinn kom eftir langvint flakk Og lífinu þama undi. » En sumarið hvarf og sólin hné —I svalviðrum haustsins köldum Litlu fuglarnir leita að hlé Nú löngu er fent í hin helgu vé; Þau hyljast með húmsins tjöldum. En sárust mér þóttu sultar kvein Söngfuglsins—dóttur Braga. Nú þekkir hún vetrarins mæðu og mein Um mörkina flögrar hún, köld og ein Og harmar svo horfna daga. Fólk er í skógana leggur leið, Frá ljósþjarma heima eldsins Til Nástranda virðist gatan greið Um grjótlendi æfikveldsins. EIN LÍTIL ÆFISAGA Á grýttri strönd, við gráann úthafs-skaga Eg grátinn þráfalt bemsku skónum sleit En man þó fáa, fagra sumar daga Og friðsæl kvöld í gróðursælum reit. Mánudagurinn fyrsti í september var að þessu sinni, eins og venja hefir verið, almennur hvíldar- eða helgidagur. Hvers er verið að minnast með því? Miklu meira er í efni og að minnast þann dag, en margir munu gera sér grein fyrir, eða í fljótu bragði fást unf, því Verkamannadagurinn er óaðskiljanlegur mannréttindamálum þjóðanna. Fyrsta Verkamannadaginn eða byrjun- ina að því, að hann varð almennur helgi- dagur, mun mega rekja til skrúðgöngu, er verkamannafélag (Knights of Labor) hélt árið 1882 í New York. Verkamanna- dagurinn hefir að minsta kosti síðan ver- ið helgidagur víða um heim. En auðvitað er mannréttinda baráttan Og mæðusporin mín á lífsins göngu Meiddu og særðu tíðum veikan fót. Hver bróðurhönd er lífs í stríði ströngu Mér staf sinn bauð, varð líkn og meina bót. Og þannig liðu lífs míns æfidagar Á löngum vetrum sólin stundum skein. Nú blika sjónum bjartir minnis hagar Með blóm-skrýdd engit fugl á hverri grein I æsku vildi eg syngja um sól og yndi, En sólin hvarf og bernsku gleðin þraut: Öll fögru blómin fuku í kalsa vindi En fegin samt eg horfði á þeirra skraut. Þótt hjartað gráti stundum trega tárum, Er taflið ekki, gamli heimur, þitt Því aldrei getur beiskja úr banasárum Blandað haturs eitri í lífið mitt.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.