Heimskringla - 04.09.1935, Blaðsíða 5

Heimskringla - 04.09.1935, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 4. SEPT. 1935 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA DR. LAUGE KOCH og jiarðfræSi íslands Mér þótti vænt um þá frétt, að dr. Lauge Koch ætlaði að fara að fást við jarðfræði ís- lands. Dr. Koch er ein,n af mestu skörungunum í jarðfræði vorra daga, og munu rannsókn- ir þær sent hann ásamt aðstoð- armönnum sínum hefir fram- kvæmt á Grænlandi, vera með því allra merkilegasta sem unn- ið hefir verið af því tagi á þess- um tímum. En svo skylt er sumt í jarðfræði Grænlands og íslands, að það er síst að furða þó að hinn mikli Grænlands- könnuður hafi hug á að| kynn- ast einnig íslandi. Verður hann ekki einn við rannsóknirnar hér EATON Auglýsingar * Hér er stutt málsgrein, úr EATON handbókinni, sem samin er þeim til leið- beiningar er semja og bera ábyrgð á EATON auglýsingum: "Allar stað- hæfingar gerðar í aug- lýsingum á verðmiðum, vörumiðum, yfir nafni Fé- lagsins eða hvar helzt sem er, verða að vera alger- lega ábyggilegar, og bygð- ar á þekkingu en ekki á- gizkan eða fréttaburði eða vafasömum upplýsingum.” Fyrirskipun þessi er i fullu samræmi við kröfu EATON’S að sannleikur- inn sé sagður um hverja vöru svo tiltrú manna i haldist óskert. Þegar þér verzlið eftir Eaton’s Vöruskrá þá er yður bókstaflega veitt trygging fyrir því að hver mynd og hver staðhæfing sem vér gerum um vör- urnar hafa verið nákvæm- ! lega athugaðar og yfir- skoðaðar, að því er full- kominn áreiðanleik snert- ir. Markmið vort, eb að gera verzlun eftir Vöru- . skránni svo framt sem unt er, jafn fullnægjandi fyrir kaupandann eins og þó hún skoðaði, með eig- in höndum vöruna sjálfa. Allri viðleitni vorri er beint að því að þau mik- ilvægu sannindi fái hald- ist í kaupskapar reglu Vesturlandsins: “Það er ÓHÆTT að kaupa hjá Eaton’s.” EATON’S á landi, fremur en á Grænlandi og heyrt hefi eg að honum sé hugur á að fá íslenzka náttúru- fræðinga til að vera í verki með sér. Væri fyrir margra hluta sakir óskandi, að það samstarf gæti tekist. Er hér mikið verk að vinna fyrir jarðfræðinga, þó að talsvert hafi þegar verið að gert, og jafnvel méira en búast hefði mátt við, þegar þess er gætt hve litlu hefir verið til kostað. Er það mikið van- þakklæti gagnvart þeim mönn- um sem á síðastliðnum 2—300 árum hafa unnið að rannsókn landsins — en í þeirra tölu hafa verið sumir af mestu gáfu- mönnum þjóðarinnar, eins og Vísi-Gísli, Sveinn Pálsson og Jónas Hallgrímsson — að segja eins og gert var í einhverri frumvarpsgreinargerð í vetur, að jarðfræði lands vors sé sama sem órannsökuð. II. Með þessum fyrirhugaða leið- angri dr. Lauge Koch’s má segja að verði aldaskifti í rann- sóknasögu íslands. Að minsta kosti er óhætt að fullyrða þetta nú þegar að því er tilkostnaðinn snertir, ef rétt reynist sú fregn, að fé það sem fengist hefir til þessara þriggja ára rannsókna hér á landi, sé 100.000 kr. eða jafnvel meira. Er þetta mikil breyting til batnaðar frá því sem áður hefir verið. Má hér minnast þess að Sveinn Páls- son, sem var svo framúrskar- andi náttúrufræðingur, að á- stæða er til að ætla að hann hefði við betri ástæður og hjá stærri þjóð, áunnið sér heims- nafn, varð að hætta ra^nsókn- um sínum sakir fjárskorts og gat jafnvel ekki fengið prentað það sem hann hafði ritað um ferðir sínar og rannsóknir; en Jonas Hallgrímsson, einn af allramestu snillingum sinnar samtíðar, var svo félítill, að hann átti stundum ekki fyrir máli matar. En mér má minn- isstætt vera hversu óríflega horfði í þessum efnum rúmri öld eftir að Sveinn Pálsson hafði orðið að hætta við hinar merki- legu rannsóknir sínar. Nokkru fyrir aldamót sótti eg til alþing- is um 500 kr. til jarðfræðirann- sókna hér á landi, en umsókn þessi var ekki talin þess verð að ræða hana á þingfundi. — Mætti þó ýmislegt nefna, sem virtist styðja að því jafnvel meir en í meðallagi, að rann- sókninni væri gaumur gefinn. Eg reyndi þá fyrir mér í Dan- mörku, en það -var ekki fyr en í annari atrennu sem m'ér tókst að fá þar 600 kr. til að hefja rannsóknir mínar. Geta menn af þessu sem sagt hefir verið, séð hve mjög er nú öldin önnur, og er ástæða til að gera sér von- ir um glæsilegan árangur þar sem fjárafli er slíkur, og mann- afli mikill og góður. Hefi eg þar auðvitað einnig í huga hina ís- lenzku náttúrufræðinga sem eg vona að taki þátt í rannsókna- verkinu. Vil eg að endingu láta þess óskað, að dr. Lauge> Koch megi auðnast að verða íslenzkrí jarðfræði eitthvað líkur því sem hinn mikli ágætismaður Ras- mus Rask varð íslenzkri menta- starfsemi á öðru sviði. Helgi Pjeturss. —Vísir. 6. ág. FRÁ ISLANDI 2 ágúst Á ólafsfirði var söltun síldar í júlílok sem hér segir: Matjesíld, 92 tunnur; gróf- söltuð síld 27 tunnur; flökuð síld 136 tn. Þorskafli er góður, þegar gef- ur á sjó, en undanfarið hafa verið sífeldir stormar og rign- ingar. Taða liggur víða undir skemdum. Kíghósti gengur víða í Ólafs- fjarðarhéraði og hafía flmm böm dáið. Tíð, segir fréttaritarinn, hafa verið heldur erfiða, og hafi gengið illa að fá hey þur. Þó hafi þeir, sem unnu að þurkun undanfarna tvo sunnudaga, náð inn nokkru af heyjum. * * * Köttur á sundi á miðjum Eyjafjarðarál Siglufirði 1. ág. í fyrradag fann m. b. Snorri kött á sundi í miðjum Eyjaf jarð- arál, út af Hörgárgranni. Var kisa á leið til austurs en komin að þrotum. Er Snorri nálgað- ist sneri hún áleiðis til skipsins og mjálmaði og veinaði aum- lega. Var henni fljótt bjargað, en hún lá sem dauð lengi á þil- Myndalaus myndabók EFTIR H. C. ANDERSEN Sig. Júl. Jóhannesson, 'þýddi Þrítugasta mynd “í gærkveldi horfði eg niður á borg í Kína,” sagði máninn. “Geislar mínir skinu á hina löngu og beru múra meðfram götunum. Hér og þar sjást að vísu dyr en þær eru lokaðar; því hvað varðar Kínverja um um- heiminn! Þéttar blæjur huldu gluggana á bak við nfúrana. Aðeins í musterisgluggunum skein Ijósglæta. Eg horfði þangað inn; horfði á hið marglita skraut, alla leið frá gólfi og upp að lofti var fjöldi marglitra og logagyltra mynda; þessar myndir voru af þeim undra- verkum, sem guðirnir skapa á jarðríki. í hverjum krók og kyma Var líkneski af guðun- um sjálfum; en þær voru nálega huldar af allavega litum blæjum og hangandi fánum. Allir þessir guðir voru gerðir úr tini. Fyrir framan hvern þeirra var lítið altari með vígðu vatni, blómum og logandi kertaljósi. En í hásæti musterisins var höfuðguðinn Fú í skrautlegri silkiskykkju, sem var gul að lit — það er hinn heilagi litur. Hjá altarinu sat lifandi vera, það var ung- ur prestur; hann virtist vera að biðjast fyrir, en í miðri bæninni var sem hugur hans yrði gagntekinn af einhverri a.nnari alvarlegri hugs- un, og það voru sjálfsagt syndsamlegar hugs- anir, því hann blóðroðnaði í framan og hann hneigði höfuðið enn þá meira. Vesalings kína- presturinn! Var hann kannske að dreyma að hann væri á bak við múrana að vinna í dálitlum blómsturbletti! — Þesskonar blettir eru fyrir framan hvert einasta hús. Var það starf kannske kærara honum en að gæta kertaljósanna í musterinu? Eða sat hann kannske í draumi við borðið með skrautlega dúknum og ljúffengum réttum, þar sem hann gat altaf á milli réttanna þurkað sér um munninn með silfurpappír? Eða var hann kannske svo stórsyndugur að ef hann dirfðist að nefna synd sína á nafn þá hlytu guðir himnanna að hegna honum með eilífum dauða? Eða dirfðist hann kannske að láta hugann svífa með skipi skrælingjanna og heim til þeirra — til hins fjarlæga Englands? Nei, hugur hans flaug ekki svo langt, og samt var hann eins syndum spiltur og nokkur æskumaður með heitu blóði getur verið. Já, hann var svo niðursokkinn í syndir sínar jafn- vel þarna í musterinu frammi fyrir sjálfum höfuðguðinum Fú og öllum hinurrí líkneskjun- um. Eg veit hvar hugur hans og hjarta voru. í útjaðri borgarinnar uppi á flata þakinu með þakhillunum þar sem grindumar virtust vera úr postulíni, þar sem hinir fögru blómpottar stóðu fyltir unaðslegum hvítum blómum — þar sat hin fagra mær með litlu töfrandi aug- un, þykku varirnar og nettustu fæturna, sem til voru í veröldinni. Já, skórinn þrengdi að fætinum en þó þrengdi eitthvað enn þá nreira að hjarta hennar og hún lyfti upp hinum grönnu hand- leggjum og það skrjáfaði í þykku silkinu. Fyrir framan hana var glerskál með fjór- um gullfiskum. Hún hrærði hægt í vatninu með marglitum sprota. Ó, tíminn var svo eilífðarlangur! hún var í djúpum hugsunum. Var hún kannske að hugsa um það hversu skrautlegir og gyltir fiskamir væru? hversu áhyggjulausu lífi þeir lifðu þarna í glerskál- inni og hversu góða fæðu þeir fengju? eða var hún að hugsa um hversu hamingjusamari þeir væru þó ef þeir væru frjálsir? — Já, um þetta var hin fagra mær að hugsa. Hugsanir hennar svifu í burt —• í burt frá heimili hennar og inn í musterið. En hún kom ekki þangað í anda til þess að biðjast fyrir — vesalings stúlkan! vesalings kína- presturinð! Hinar jarðnesku hugsanir þeirra mættust, en mínir köldu geislar lágu á milli þeirra eins og sverð.” farinu, hrestist hún þó við góða Mjög stófeldar rigningar hafa hjúkrun skipverja og er nú komið hvað eftir annað síðan í hress. Talið er sjálfsagt að kött- j sláttarbyrjun, og horfir víða til urinn hafi fallið út af skipi. ¥ ¥ ¥ Úr Súgandafirði 11. ágúst Frá Suðureyri í Súgandafirði skrifar fréttaritari útvarpsins: Að lokinni prestkosningu á Siglufirði sendu sóknarbörn séra Halldórs Kolbeins honum ávarp undirritað af 120 kjós- endum, þar sem er látin í ljósi ánægja yfir því, að hann verði áfram sóknarprestur í !Súg- andafirði. Sundlaug Súgfirðinga er nú þriggja ára. Á því tímabili hafa stundað sundnám í laug- inni á 3ja hundrað manns. — Á sundmóti 4. þ. m. að loknum tveim sundnámskeiðum' á þessu sumri, syntu þrír piltar yfir Súgandaíjörð, þei| Hlermann Guðmundsson, Guðni Ólafsson og Þórður Kristjánsson. Vega- lengdin er nálægt 1000 metrum og syntu þeir hana á 20 mínút- um. * * * Sjálfsmorð 11. ágúst Bergur Sveinsson biflreiða- stjóri úr Reykjavík, ættaður úr Vík í Mýrdal, fyrirfór sér í gær- kveldi á leið til Vestmannaeyja á gufuskipinu Prímúlu. Fréttaritari Útvarpsins í Keflavík, er var meðal farþega á sama skipi, skýrir útvarpinu svo frá, að skipstjórinn hafi í dag látið bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum í té skýrslu þá er hér fer á eftir í aðaldráttum: Þegar Prím'úla var út af Garðskaga kl. 22.27 í gærkveldi, varð einn háseti skipsins þess var, að farþeginn Bergur Sveinsson kleif yfir þorðstokk skipsins, og tók um leið skamm- byssu og miðaði í brjóst sér. Hljóp þá hásetinn til Bergs, en í sömu svifum reið skotið af og náði hásetinn byssunni, en Bergur féll fyrir borð. Skipstjóri stöðvaði skipið þá þegar og rendi út mönnuðum báti, og leituðu þeir árangurs- laust. Annar farþegi á sama skipi, Karl Johnson, skýrði skipstjóra frá því, að nokkru áður en þess- ir atburðir áttu sér stað hafi Bergur komið til sín og sýnt sér bréf dagstet 8. þ. m. þar sem Bergur var sviftur starfi hjá Hlutafélaginu Strætisvagnar Reykjavíkur, að hann áleit vegna ölvunar Bergs á Þing- völlum á leyfisdegi verzlunar- manna. ¥ ¥ ¥ Vestm. 10. ágúst ÞjóðhátíS Vestmannaeyja hófst í dag með kappróðri frá Klettsriefi að bæjarbryggjunni. (Síöan var kept í 50 metra sundi, frjals aðferð, og 50 metra sundi drengja 12—13 ára, og síðan 50 mjetra sundi drengja 14—15 ára. Hátíðina setti Ámi Guð- mundsson í Herjólfsdal kl. 3 í dag. Ræðumenn í dag voru: Jóhann Þ. Jósefsson alþm., er mælti fyrir minni íslands og j Páll Oddgeirsson er mælti fyrir ! minni sjómanna. Bjargsig sýndu j bræðurnir Jón og Ólafur Sig- i urðssynir. Kappleikur var háður milli 3. flokks K. R. og 3. flokks K. V. Veður var vgott. — Hátíðin heldur áfram fram á nott og á morgun. Úr Árnessýslu 11. ágúst Fréttaritari útvarpsins að Sel- fossi skrifar útvarpinu 8. ág. á þessa leið um atvinnulíf í Ár- nessýslu: Sláttur stendur nú hæst hér í sýslu, og flestir haaf lokið við fyrri slátt á túnum. Ymsum hefir tekist að ná inn miklum heyjum með sæmilegrl verkun, en víða er talsvert óhirt af töðu. í Biskupstungum er talið að einna bezt hafi notast að þeim fáu þurkdögum, sem komið hafa á slættinum. mestu vandræða sakir vatns á nálægar engjar og skemt bæði hey og slægjur. Stendur nú víða vatn í stórum tjörnum á láglendum og votlendum engj- um, svo að hvorki er hægt að þurka né slá. Kveður einkum mjög að þessu á Skeiðum og í Flóa og Ölfusi. Á sumum mikl- um slægnajörðunl er ekki hægt að bera niður utan túns nema á hæstu rimum, og horfir til mikilla vandræða þar sem nú er svo áliðið að vafi er á að vatn sigi úr jörð á þessu sumri. Laxveiði hefir brugðist mjög í Ölfusá það sem af er sumri og er ýmsum getum að því leitt hvað valda muni. ólafur Sig- urðsson bóndi á Hellulandi hef- ir ferðast hér um til þess að rannsaka hvað valda muni og gera tillögur til umbóta. Timburskip er nýkomlið til Eyrarbakka og hefir affermt timbur til Kaupfélags Árnes- inga. Áður í sumar hafa kom- ið 4 skip til Kaupfélagsins, og enn er von á tveimur. Alls koma þá sjö skip, eitt með kol, önnur með timbur eða aðrar nauð- synjavörur. Lokið er nú að fullu við sand- varnargarðinn fyrir vestan Eyr- arbakka. Þykir þegar hafa komið greinilega í ljós, að hann \*ámi því að sandur úr mynni Ölfusár berist inn í leguna á Eyrarbakka. Flokkun fiskjar stendur nú yfir á Stokkseyri, en nokkur fiskur er enn ófullverkaður. — Lítið hefir verið um róðra í sumar úr verstöðvunum eystra. Enda fiskilítið og ógæftasamt. —Vísir. ¥ ¥ ¥ Kristmann Guðmundsson rithöfundur Norðfirði 3. ágúst Með Nóvu síðast kom til Norðfjarðar frá Noregi skáldið Kristmann Guðmundsson. Dvel- ur hann þar í sveitinni, á heim- ili móður sinnar, frú Sigríðar Björnsdóttur í Miðbæ. Frétta- ritari útvarpsins heimsótti hann þar í dag og kveðst hann dvelja þar eystra til miðs ágústs, en fara þá til Reykjavíkur. Ann- ars býst Kristmann Guðmunds- son við að dvelja alllengi hér á landi. Ferðina til Austur- landsins fór hann aðallega í þeim tilgangi að heimsækja móður sína og ættingja, en um tilgang þessarar íslandsferðar sinnar og fyrirætlanir, vill skáldið að öðru leyti ekkert segja að svo stöddu. Lesið Heimskringlu Kaupið Heimskringlu INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU I CANADA: Árnes.......................................F. Finnbogason Amaranth..............................J. B. Halldórsson Antler.....................................Magnús Tait Árborg.....................................G. O. Einarsson Baldur...........................................Sigtr. Sigvaldason Beckville...............................Björn Þórðarson Belmont....................................G. J. Oleson Bredenbury...............................H. O. Loptsson Brown.................................Thorst. J. Gíslason Calgary.................................Grímur S. Grímsson Churchbridge........................................Magnús Hinriksson Cypress River......................................Páli Anderson Dafoe.......................................s. S. Anderson Elfros..............................J. H. Goodmundsson Eriksdale........................................ólafur Hallsson Foam Lake..........................................John Janusson Gimli..................................... K. Kjernested Geysir.............................................Tím. Böðvarsson Glenboro......................................G. J. Oleson Hayland...............................Sig. B. Helgason Hecla....................................Jóhann K. Johnson Hnausa..................................Gestur S. Vídal Hove................................................Andrés Skagfeld Húsavík............................................John Kernested Innisfail...............................Hannes J. Húnfjörð Kandahar................................s. S. Anderson Keewatin................................Sigm. Björnsson Kristnes.............................................Rósm. Ámason Langruth................................................b. Eyjólfsson Leslie................................Th. Guðmundsson Lundar.....................................Sig. Jónsson Markerville......................... Hannes J. Húnfjörð Mozart.....................................Jens Elíasson Oak Point...........................................Andrés Skagfeld Oakview...........................................Sigurður Sigfússon Otto.......................................Björn Hördal Piney.....................................S. S. Anderson Poplar Park.............................Sig. Sigurðsson Red Deer.............................Hannes J. Húnfjörð Reykjavík..........................................Árni Pálsson Riverton.............................. Björa Hjörleifsson Selkirk....................................G. M. Jóhansson Steep Rock................................. Fred Snædal Stony Hill........................................Björn Hördal Swan Rivjpr............................. Halldór Egilsson Tantallon............................................Guðm. Ólafsson Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason Víðir.................................................Aug. Einarsson Vancouver....................:........Mrs. Anna Harvey Winnipegosis....................................... Winnipeg Beach.....................................John Kernested Wynyard..................................S. S. Anderson I BANDARIKJUNUM: Akra...................................Jón K. Einarsson Bantry...................................E. J. Breiðfjörð Bellingham, Wash.......................John W. Johnson Blaine, Wash....................Séra Halldór E. Johnson Cavalier...............................Jón K. Einarsson Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta. Edinburg.....................................Jacob Hall Garðar.................................S. M. Breiðfjörð Grafton................................Mrs. E. Eastman Hallson................................Jón K. Einarsson Hensel..................................J. K. Einarsson Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 3314 Sierra St. Milton....................................F. G. Vatnsdal Minneota............................Miss C. V. Dalmann Mountain...............................Th. Thorfinnsson National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St. Point Roberts...........................Ingvar Goodman Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W. Svold...................................Jón K. Einarsson Upham.....................................E. J. IlreiðfjörO The Viking Press, Limited Winnipeg Manitoba

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.