Heimskringla - 09.10.1935, Side 1

Heimskringla - 09.10.1935, Side 1
L. ARGANGUR Wi.NNlPEG, MlÐViKUDAGINN, 9. OKT. 1935 NÚMER 2. MAJOR W. W. KENNEDY Major W. W. Kennedy þing- maður í suður mið-Winnipeg ætti ekki að þurfa kynningar við meðal íslendinga, því svo er liann kunnur á meðal vor, þó eigi sé nema fyrir það sem hann hefir gert. Hann var maðurinn sem kom í framkvæmd sjóðstofiiuninni “The Canadian Eoundation”. — $25,000.00 minningargjöfinni til íslands er myndar ævarandi námsjóð fyrir íslenzka fræði- menn við háskóla þessa lands. Er gjöf þessi veitt, sem kunn- ugt er, til minningar um þúsund ára afmæli Alþingis 1930, sem vináttu og virðingarvottur til ís- lenzku þjóðarinnar frá þingi og þjóð hér í Canada. Liberal stjórnin er sat víð völd hér í Canada á meðan að á Alþingishátíðinni * istóð hafði dregist á þaö að sæma íslenzku þjóðina einhverri minningargjöf, en allar framkvæmdir í þá átt voru látnar niður falla. Fór stjórn þessi frá völdum þá um sumarið með óefnt þetta loforð sem svo mörg önnur. Kom þá til kasta hinnar nýju stjórnar ihvort hún vildi sinn’a máli þessu eftir að komið var fram yfir há- tíð. Virtust litlar líkur til þess að mál þetta hefði framkvæmd og hefði alls ekki unnist nema fyrir drengilega þátttöku og vinsemd Major Kennedys. Taldi hann þetta svo sjálfsagt að aldrei var bilbug á honum að ifinna frá því að hann tók við þessu erindi vor Íslendinga og þangað til því var lokið. Á margvíslegan annan hátt hefir vinsemd hans komið í ljós til íslendinga. Má nefna sem dæmi, að á þessum undanförn- um árum hefir verið erfitt fyrir innflytjendur og útlenda borg- ara að fá landgöngu leyfi í Can- ada. Allmargir fslendingar, er ikomið hafa frá Bandaríkjunum eða beina leið frá íslandi hafa barið hér að dyrum, varbúnari en vera hefði átt og áreiðanlega ekki fengið inngöngu leyfi í landið ef ekki hefði íslenzka þjóðin í heild sinni átt vin á þingi þar sem Major Kennedy var. Var til hans leitað um- talslaust, fyrir hönd allra þeirra er þannig biðu landsvistarleyfis, og greiddi hann fljótt og vel úr vandkvæðum þeirra. Afleiðing- arnar hafa orðið þær, að eng- um fslendingi hefir verið vísað frá er hingað hefir leitað í síð- astliðin 5 ár. Þegar allar að- stæður eru teknar til greina, er það undantekningarlaust, meiri vinsemd og drengskapur, en nokkur önnur stjórn eða þing- maður hafa sýnt oss sem þjóð- flokki, yfir alla vora löngu dvöl hér í landi. Og nú síðast er við-í varpað var frá íslandi, kveðju fbrsætisráðherra til þjóðarbrots vors hér í landi þá var það Major Kennedy, sem gekk í það mál og fékk því til leiöar komið að útvarpskerfi Canada veitti kveðjunni móttöku og lét end- urvarpa henni um alt land oss öllum til stórrar ánægju og gleði. Nú sækir Major Kennedy um endurkosningu í kjördæmi sínu. í kjördæmi hans eru allmargir íslenzkir kjósendur, hversu vilja þeir launa verk hans og góða þjónustu? Ekki eigum vér tals- mennina of marga í Ottawa. Virðulegri talsmenn fáum vér ekki en Major Kennedy, er skip- að hefir hinar mestu ábyrgðar- stöður utan og innan þings. Hann ætti, ef sanngirni er við- höfð, að fá hvert einasta ís- lenzkt atkvæði í kjördæminu. En ef svo skyldi nú ekki fara væru illa goldin verk hans, og ekki öðrum til örvunar, að virða á sama hátt beiðnir vorar og kröfur. Sama má oss vera um alla hina, sem í framhoði eru í kjördæminu og sem ekkert tákna nema höfðafjölda þeirra sem snýkja eru eftir embætti. Greiðið Major Kennedy at- kvæðið. Lán til fiskimanna Samkvæmt afurðasölulögum Bennettstjórnarinnar, eiga fiski- menn kost á að taka lán til að kaupa báta, vélar eða veiðar- færi, á sama hátt og bændur fá lán til reksturs búnaði sínum. Bændalánsdeild stjórnarinnar mun um lán þessi sjá. Fiski- maður, sem eitthvað skortir til veiðanna, getur þar fengið lán, eigi hann hús, jörð, eða ein- hverja skuldlausa eign. Ekki má þó lán til hvers fiskimanns fara fram úr $1,000. Það er mikið talað um að vegna fastheldni banka og lán- félaga á fé sitt, sé lítið hægt að hafast að. Bennettstjórnin igreiðir vissulega fyrir þessari grein frumiðnaðarins, fiskveið- unum, með þessu spori, að veita fiskimönnum lán, á rýmilegum kjörum. Þá sem frekar fýsir að fræð- ast um fyrirkomulag þessara lánveitinga, gera auðvitað rétt- ast í að snúa sér til Farm Loan Board sambandsstjórnarinnar eða lögfróðra manna, er eflaust vita um hvert atriði láninu við- víkjandi. ÞRÍR ÍSLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR Þrír íslenzkir lögfræðingar unnu embættiseið sinn í hæzta rétti í Minnesota ríki 24. sept. síðastl. og voru teknir upp í lögfræðinga stétt ríkisins. Þess- ir ungu og efnilegu námsmenn eru: Lynn G. Grímsson, sonur Guðmundar dómara Grímsson- ar í Rugby, N. D., og bræðurn- ir James H. Gíslason og Sidney P. Gíslason synir B. B. Gísla- sonar í Minneota. Allir hafa þeir getið sér góðan orðstír við námið. Útskrifuðust þeir frá lagadeild ríkisháskólans í Minn- eapolis í júní í vor með ágætri einkunn. Alls útskrifuðust þá 128 nemendur, en aðeins 63 stóðust embættisprófið og í þeirri tölu voru íslendingarnir þrír. BRACKENSTJÓRNIN SVÍKUR BÆNDAFLOKKINN Síðast liðin mánudag fluttu dagblöð þessa bæjar þá frétt, að Bracken-stjórnin hefði gert samning við King, leiðtoga lib- erala, að ganga flokki hans á hönd, en kasta burtu bænda- flokksnafni sínu. Liberalar sáu sitt óvænna orðið í kosningunum í þéssu fylki og knúðu því á Bracken, að koma sér til aðstoðar. Að launum er sagt, að liber- alar hafi gert Bracken, að leið- toga sínum eða síns flokks í þessu fylki. Bracken stjórnin heitir því hér eftir liberal-stjóm, en ekki bændastjórn. Bændastjóirnarflokkurihn 'er hér úr sögunni. Hvernig lýst nú bændum á þessi hrossakaup? Sætta þeir sig við að láta Bracken skifta um nafn á flokki þeirra, eða stjórn þeirra, án þess að þeir séu um það spurðir? Þeir kusu Bracken, sem foringja bændaflokksins í fyrstu og hafa. gert það upp aftur og aftur síðan. Og alt til síðasta mánudags, hefir stjóm þessa fylkis verið nefnd bænda- stjórn. Hvernig myndu kjósendum koma það fyrir, ef King, sem nú sækir sem liberal, sneri við blaði, ef hann kæmist til valda og nefndi sig og flokksmenn sína C. C. F. eða kommúnista- flokk? Þetta er það sem Breckan- stjórnin hefir gert. Hún hefir svikið kjósendur sína og heyrír nú öðrum flokki til en þeim, er kjósendur fylla. Ef kjósendur eru svo auð- mjúkir og undirgefnir, að þeir taki því með ró að þeir séu af Bracken stimplaðir liberalar, hvað sem þeir segja sjálfir um það, getur bragð þetta blessast. En finni bændur til þess, að þeir séu skoðunum sínum sjálf- ir ráðandi, og taki því ekki með þökkum, að með þær sé verzl- að, eins og hestaprangari gerir með vöru sína, þá getur liber- ölum hafa verið ger “Bjarnar- greiði” með þessu. Og það væri ekki ólíklegt, að Brackenstjórn- | in ætti sjálf eftir að kenna á I því. Vér héldum satt að segja, að liberalar hefðu svo vel verið' búnir að auglýsa fláræði sitt við bændur og hefðu gegnið svo langt í því, að lengra yrði nú um hríð ekki farið. En þar hefir verið til ofmikils ætlast. Önnur eins svívirða og sú, sem í þessum hrossakaupum er augljós, hefir aldrei verið höfð í frammi við bændur. En hvað lætur sú stjórn sér fyrir brjósti brenna, sem upp- vís er orðin að annari eins óreiðu og Brackenstjómin ? Afríku-stríðið að þeir hafi strádrepið Blálend- inga þar og vaðiö langt inn í land þeirra. Um mannfallið eru óljósar fréttir, en þó er ætlað, að í alt hafi í þessum skærum fallið um 2000 Blálend- ingar. Frá höfuðborg þeirra i Addis Ababa, berast fréttir er halda fram að um 200 hafi fall- ið af hvoru tveggja liði. Aðrar ! fregnir segja mannfallið miklu | meira og að af Blálendingum Ihafl fallið margfalt fleiri en af Itölum. | Þessu líkt gengur það nú ' þarna.' Á þingi Þjóðabanda- i lagsins er farið hægara að hlut- [ unum en þarna. Þó hefir nú þar verið komist að þeirri nið- i urstöðu, að ítalir séu valdir að þessum ófriði. Má það mikið vera, að Þjóðabandalagið skyldi loks átta sig á því, að Blálend- ingar ættu þetta land, sem þeir ! hafa búið í öllum óháðir í 600 ár. í dag fer fram atkvæðagreið- sla um hvað gera skuli við ítala sem viðurkendir eru nú að hafa brotið gegn Þjóðabandalaginu, sem félagar þess. Þrátt fyrir það sem Frakkar hafa áður sagt, eru þeir nú á móti því, að Itölum sé í nokkru hegnt. Það er að verða æ ljós- ara, að þeir eru eindregnir með ítalíu. Á meðan Þjóðabandaíagið þingar um þetta, heldur Mussol- ini áfram að brytja Blálendinga niður. Hann sér að hann getur því betri kaup gert við Þjóða- bandalagið, sem hann drepur meira af þessum varnarlausa og menningarsnauða lýð. Vonandi gerir Þjóðabandalag- ið sér ekki meira til skammar, én það er búið að gera í þessu stríðsmáli. FRÚ GUÐRÚN BERGMANN ÁTTRÆÐ Þó ítalir og Blálendingar hafi ekki sagt hvorir öðrum stríð á hendur, hafa nú eigi að síður verið háðir bardagar á landa- mærum Blálands, sem mann- tjóni og hörmungum hafa ollað. Bardagarnir hófust s.l. fimitu- dag. Frá Eritrea sóttu ítalir að norðaustan inn í Bláíand til borgarinnar Aduwa. Er hún skamt frá landamærunum og hefir 5000 íbúa. Rigndi sprengj- um úr lof'tförum ítala yfir borg- ina upp aftur og aftur, er á laugardag var talinn komin í hendur ítala. Börn, kvenfólk og örvasa fólk var strádrepið af ítölum með sprengjunum. Laust upp sigurópi í liði ttala, er borg þessi var tekin. Kváðust þeir hafa hefnt fyrir ósigurinn á þessum sama stað árið 1896. Lifi ítalía og lifi Mussolini, kvað við frá ítalska hernum. Synir Mussolini voru í á- hlaupinu. Er sagt að einn þeirra hafi kastað fyrstu sprengjunni á borgina. En til tveggja annar borga; lengra inn í landi, kváðust ítal- ir þurfa að komast til að búa bétur um sig. Náðu þeir þeim borgum á laugardag eða sunnu- dag. Þrátt fyrir það þó ítalir ynnu þarna sigur, er sagt, að Blá- lendingar hafi varist vel og sýnt að þeir kunni að berjast. En liðsmunur var svo mikill og útbúnaður svo miklu betri hjá ítölum, að við því stóðst ekk- ert. Eitt flugskip ítala skutu Blá- lendingar niður. En svo ójafn sem leikurinn var þarna, var hann ennþá ó- jarfnari að sunnan. Frá Somali- iandi ítala þar, sóttu þeir norð- ur og inn í Bláland. Er sagt Fyrra sunnudag 29. sept. varð frú Guðrún Bergmann, ekkja 'Séra Friðriks heit. Bergmanns áttræð. Var afmælisins minst með almennu vinaboði (at home) að heimili dóttur henn- ar og tengdasonar, frú Magneu og Gordon lögfræðings Paulson, S51 Home St., þar sem frú Berg- mann er til heimilis. Var fjöl- ment á heimilinu þenna dag, því frú Bergmann hefir ávalt verið einkar vinsæl kona, og á jfjölda vina bæði meðal eldra og yngra fólks. Stóð heimsóknar jtíminn frá hádegi til kvölds. — iFærðu vinir hennar og ættingj- |ar henni ámaðaróskir sínar, og fögnuðu með henni yfir því, hvað hún er við góða heilsu og ber aldurinn vel. Þá bárust henni ennfremur bréf og kveðjuskeyti , frá systkinum liennar og f'rændfólki á íslandi og í Noregi. Býr ein systir hennar í Oslo í Noregi, en bróð- ir hennar er séra Hallgrímur Thorlacíus prestur í Glaumbæ í Skagafirði. Frú Bergmann er fædd á Botni í Hrafnagilssókn í Eyja- firði. Var faðir hennar séra Magnús Hallgrímsson Thorla- cius (vígður 1877), er þá bjó á Botni, sem er næsti bær við Hrafnagil. Var hann aðstoðar prestur föður síns, séra Hall- gríms Thorlacíusar á Hrafna- gili um það leyti. Um 1860 verður hann prestur í Fagra- nesi og loks í Reynistaðar þing- um í Skagafirði. Frú Bergmann flutitist ung hingað til lands, á hinum fyrstu landnámsárum vorum. Bjó hún og maður hennar, er var prest- ur Dakotoa nýlendunnar, um langt skeið við Garðar, N. D. En rétt eftir aldamótin færðu þau sig hingað til bæjar og hefir hún átt hér heima síðan. Eins og að ofan er getið, er hún við sæmilega góða heilsu og ber aldurinn prýðilega. — Öskar Hkr. henni allrar bless- unar, og að hún megi njóta fegurðar og friðsældar æfi- kvöldsins sem lengst, meðal hjartfólginna ættinga og ást- vina og barna. KIRKJUVÍGSLA í ELFROS, SASK. íslenzki söfnuðurinn í Elfros og söfnuður í United Church of Canada hafa bygt kirkju í sameiningu og var hún vígð á sunnudaginn var. Vígsluna framkvæmdi séra K. K. Ólafs- son forseti lúterska kirkjufé- lagsins og Dr. Dosey, forseti United Church í Saskatchewan. Fluttu þeir báðir ræður. Auk þeirra talaði séra Jakob Jóns- son, sem var sá eitíi af þeim prestum úr nágrenninu, er boð- ið hafði verið, er gat verið við- staddur. Flutti hann heillaósk frá sér og söfnuði sínum. Fjöldi fólks sótti messuna og vel æfður sönflokkur undir stjóm Mr. Kristjánsson annað- ist sönginn. LANDNÁMSMANNA MINNISVARÐINN Á GIMLI Það eru nú liðin tíu ár, síðan að því var fyrst opinberlega hreyft, að reisa landnámsmönn- unum Vestur-íslenzku minnis- varða. Ekki er þó svo að skilja að tilfinningin fyrir verðleika þess máls hafi ekki áður verið vakandi í huga og hjarta Vest- ur-íslendinga, því það er fyrir löngu viðurkent að minningu þeirra beri að virða, verk þeirra að þakka og að meta hugrekki þeirra, þrautseigju og fórnfýsi. Margir, nei flestir af þessum fyrstu frumbyggjum, eru nú gengnir til grafar — hinnar hinstu hvíldar, með lúnar hend- ur og lotið bak eftir að hafa lokið hinu erfiðasta og þýð- ingarmesta verki sem í þessari heimsálfu hefir afkaStað verið af íslendingum. Hvers virði er það verk oss VeiStur-íslendingum? Margir hafa minst landnemanna opin- berlega í ræðu og riti á hlýjan og virðulegan hátt, en þeim mönnum sem fyrir minnisvarða hugmyndinni gengust fanst að hér væri um að ræða atburð sem orðin ein gætu ekki full- nægt og því voru framkvæmd- irnar í minnisvarða máJinu hafnar með þeirri sannfæringu að Vestur-íslendingar yfirleitt fyndu til þess. að þeir væru í svo mikilli þakklætis skuld við brautryðjendurna íslenzku hér vestra að þeir með ljúfu geði mundu taka höndum saman og leggja fram sitt lítið hver til þess að minnisvarðinn yrði bygður og minning landnáms- mannanna vörðuð og haldið á lofti um ókomnar aldir. í þessu trausti hefir Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi nú gengist fyrir framkvæmdum í þessu máli á ný, og samið um byggingu á varðanum. Undir- staðan var eins og menn muna lögð í sambandi við íslendinga- dagshaldið á Gimli í sumar og verkinu er nú haldið áfram, og verður væntanlega bráðum lok- ið. En nú kemur að borgunar deginum og þó undirtektir manna hafi verið góðar sérStak- lega í Winnipeg, sem við erum þakklátir fyrir, þá er ekki enn komnir nærri nógir peningar til að borga efni í varðann og verkið við hann. Nú er það einlæg bón nefnd'arinnar sem fyrir byggingu varðans stendur, fyrir hönd Þjóðræknisfélagsins, að íslendingar alment sjái þessu máli borgið og með því minn- ingu landnámsmanna og sínum eigin sóma með því að þeir sem enn ekki hafa lagt neitt til varð- ans geri það, svo hægt verði að afhjúpa hann á réttum tíma, án þess að nokkur skuld hvíli á minningu manna og kvenna, sem við með varðanum viljum heiðra. Sýnið metnað yðar í þessu máli, bræður og systur. Sitt lítið frá hverjum dugir. A. Blondal, M.D. J. J. Bíldfell B. E. Johnson Kosningarnar Sambandskosningarnar fara fram næstkomandi mánudag — 14 október. Kosninga-aðferðin er ofur einföld. Alt sem gera þarf, er að marka X við nafn þess eina sem kosinn er. NÝMÆLI BENNETTS Ágrip af útvarpsræðu í því mikla orðaflóði sem nú gengur yfir landið, þykir öllum bezt að hlýða til þess sem for- sætisráðherrann Bennett legg- ur tii, ,því að enginn kemur nærri honum að nýstárlegum uppástungum og stórkostlegum ráðagerðum um heill og fram- tíðar hagi þessarar þjóðar. — Nokkur nýmæli hans verða hér talin sltuttlega, eftir einni út- varpsræðu hans í þessum kosn- ingum. Skuldaklafinn er þyngsta bölið og aðalgall- inn á vorum hagráðum. Nú rek- ur að því, að þjóðin verður að skera úr því, hvort bíða skuli þess, að skuldunum takist að sliga oss, eða taka tafarlaust til þeirra ráða, að semja skuldirn- ar ærlega með þeim hætti, að báðir geti vel við unað, skuld- hafar og skuldunautar. Eftir langa rannsókn og ftar- lega íhugun hefir stjórnin kom- ist að þeirri niðurstöðu, að þetta aðalmein viðskifta vorra heimti að við því sé gert, en að vísu ávinst vorri Dominion ekki svo mikill auður með því móti, að skattar verði léttbærir, né held- ur má við því búast, þó að alls- iherjar velmegun kæmi með leifturhraða, að þjóð vor skipi fremsta sæti meðal þjóðanna, ef hún er ofhlaðin skuldum. S'tjórnin hefir unnið að því 4 undanfömum árum, að færa niður skuldirnar og sint kröf- um um fjárstyrki aðeins að því leyti, að gjaldþoli landsmanna væri ekki ofboðið. Árið 1934 hefðu lög verið samin um greiðslur á skuldum bænda,, að færa niður skuldir þeirra svo mikið, að fullséð væri, að þeir gætu staðið í skil- um og samkvæmt þeim lögum hefðu mörg þúsund skulda- samningar verið gerðir. Þó að margur annar vandi væri á hag bændanna, en greiddur yrði með þeim lögum, þá væri þetta ágæt byrjun. Stjórninni væru ráð- Stafanir í hug, til að gera bæj- arbúum sömu skil. Ef lögtekin er undanþága einnar stéttar þá kann þar af að fljóta röskun á fjárfari, hættuleg fyrir við- skiftalíf álls landsins. Engan má ræna til að borga öðrum. Það bragð er algengt, af því að það er sæmilega hægt. En það er alt annað en hagkvæmt. Vort hlutverk er að hjálpa hvorum itveggja svo, að hvorugum verði Frh. á 5. bls.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.