Heimskringla - 16.10.1935, Qupperneq 5
WINNIPEG, 16. OKT. 1935
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
FRA ISLANDI
Hlaup í jökulánni Súlu.
10. sept.
Jökuláin Súla sem kelmur
undan Skeiðarárjökli vestan-
verðum og fellur í Núpsvötn
hljóp í nótt. Vatnsflóð mikið
og jakaburður var kominn fram
á sandinn í dag, og síðast er
fréttist hafði þriðji símastaur
austan Núpsvatna brotnað og
símasamband slitnað.
Hannes bóndi Jónsson á
Núpsstað skýrði útvarpinu frá
því í morgun að jökulhlaupið í
Súlu vestan Skeiðarárjökuls
væri altaf að vaxa. Kvað hann
bæði vatnsflóð og jakaburð hafa
aukist að mun í nótt.
Skeiðará hafði aftur á móti
ekkert vaxið, er síðast fréttist.
Póst- og símamálastjóra barst
í gær síðdegis svohljóðandi
símskeyti:
Engin breyting á vötnum hér
austur á söndum s,jáanleg að
heiman.
* * *
Mannýg kýr ræðst á aldraða
konu og rekur horn í kvið henni
Eskifirði 11. sept.
Það slys vildi til á Högna-
stöðum í Reyðarfirði í gær-
kveldi, að þegar ráðskonan á
bænum, Guðríður Sigurðardótt-
ir, kona á sjötugsaldri, var að
hýsa kýmar, að ein kýrin, sem
taiin er mannýg, sneri á móti
henni, fleygði henni flatri, rak
horn í kvið henni og veitti henni
mikinn áverka. Náð var
skyndilega í lækni, Ara Jónsson
á Brekku, sem er í forföllum
héraðslæknis. Gerði hann við
sárið og kvað það hlíft hafa, að
hom kýrinnar gekk ekki á hol,
að konan var nokkuð holdug.
Sárið var svo stórt að 10
spor þurfti að taka, til þess að
hefta það saman. Eftir atvik-
um líður konunni sæmilega í
dag.
* * *
Akureyri 9. sept.
Aðalfundur Prestfélags fslands
hófst í gær á Akureyri kl. 10
árdegis, með guðsþjónustu í
Akureyrarkirkju. Séra Þorsteinn
Briem sté í stólinn, en sóknar-
presturinn séra Friðrik Rafnar,
þjónaði fjrrir altari.
Síðdegis var 'haldinn almenn-
ur fundur í samkomuhúsinu
Zion. Umræðuefni var “Starfs-
hættir og starfsmenn kirkjunn-
ar á komandi árum”. Frum-
mælandi Sigurður P. Sivertsen,
vígslubiskup.
Klukkan 20.30 í gærkveldi
flutti séra Banjamín Kristáns-
son erindi í samkomuhúsinu
Zion, um “Guðshugmynd nú-
tímans.”
í gærkveldi voru komnir til
fundarins 27 prestar, en biskup
og 8 prestar voru væntanlegir
í dag.
* * *
Miltisbrandur í Reykholtsdal
12. sept.
Þrjár kýr bóndans á Skáney
hafa á fáum dögum drepist úr
miltisbrandi, og maður, sem
handlék skrokkana, hefir fengið
miltisbrand í hönd, en líður þol-
anlega. Fréttaritari útv. á
Stóra-Kroppi símaði þessa fregn
í morgun og sagði að síðast-
liðna nótt hefði þriðja kýrin
drepist á básnum. Áður hafði
hann skrifað útvarpinu, í bréfi
dags. 9. þ. m. að fyrir fáum
dögum, er komið var í fjós um
morgunin, hefði ein kýrin legið
dauö á básnum. Vakti þetta
grun Bjarna bónda um að hér
væri hættulegur sjúkdómur á
ferð, og færði hann héraðs-
lækni, Magnúsi Ágústssyni blóð
úr kúnni til rannsóknar. Kom
í ljós, að hér var um miltisbrand
að ræða. Litlu síðar drapst
önnur kýr úr sömu veiki.
Kýrnar hafa allar verið grafn-
ar með holdi og hári, og alt
gert til þess að sótthreinsa um-
hverfis þá staði, þar sem sýk-
ingarhætta er talin líklegust.
Það eru nú liðin 60 til 70 ár
síðan miltisbrandur gaus upp í
Skáney og Skáneyjarkoti, sem
nú er í eyði. Drápust þá flestir
nautgripir á báðum þeim bæj-
um. Eftir það gerði veikin vart
við sig öðru hvoru á næstu ár-
um, en hefir nú legið niðri í
marga tugi ára.
—Vísir.
* * *
Skriðuföll og vatnavextic
Akureyri 17. sept.
Sífeldar stórrigningar hafa
gengið í Eyjafirði undanfama
daga og valdið miklum vatna-
vöxtum og skriðhlaupum. —
Síðasta sólarhring féllu skriður
miklar úr fjallinu norður og upp
frá Möðruvöllum í Eyjafirði, og
hafa þær valdið stórkostlegum
landspjöllum á jörðunum Guð-
rúnarstöðum, Helgastöðum,
Fjósakoti, Möðruvöllum og
Skriðu. Fjósakotsland hefir al-
eyðst að undanteknum nokkr-
um hluta túnsins. — Skemdir
hafa ekki orðið á húsurn, en
fólk hefir flúið bæina í Fjósa-
koti og Helgastöðum.
Ein jarðspildan gekk alla leið
fram í Eyjafjarðará og stíflaði
hana og hefir áin breytt farvegi
sínum og rennur nú út um
Melgerðisnes, sem er engi, og
veldur þar miklum landskemd-
um.
Skemdirnar hafa ekki verið
rannsakaðar til fullnustu og
tjón hefir ekki verið metið. —
Dauðar sauðkindur hafa fundist
í skriðunum, en ekki er vitað
hve mikil brögð hafa orðið að
því að fé hafi farist.
Á Eskifirði hafa verið aftaka
rigningar síðan á sunnudags-
kvöld og hafa þær valdið stór-
skemdum bæði í kauptúninu
og á ýmsum stöðum í Helgu-
staðahreppi. — Rignt hafði og
nokkuð síðastliðin föstudag og
laugardag.
í gærkveldi féll 40 — 60
metra breið skriða á Hlíðar-
enda, yzt í kauptúninu, og gjör-
eyddi tvo túnskika, sem gáfu
af sér um 40 heyhesta. Eig-
endur túnanna voru Kristján
Jónsson útgerðarmaður og
Friðrik Arnason íshússvörður.
Þriðja túnið umhverfis hús sr.
Stefáns Björnssonar skemdist
ekki til muna. Vatnsflóð gekk
þó yfir túnið og bar á það aur.
Hlaup kom í Grjótá vestarlega
í kauptúninu síðastliðna mánu-
dagsnótt. Flúði þá fólk úr
næstu húsum, en skemdir urðu
ekki til muna, enda veittu menn
ánni frá, til þess að koma í veg
fyrir skemdir. — Skriða hljóp
á túnið á Svínaskála og eyddi
þar 4(1 heyhesta völl, braut hjall
sem stóð neðst á túninu og fylti
hann auri. Önnur skriða féll
fyrir vestan túnið og tók af
helming Litlu-Eyrar, sem var
gott beitiland. Bílvegur, sem
skriðan féll yfir, er ófær. — Á
Innstekk, næsta bæ fyrir utan
Svínaskála, urðu allmiklar
skemdir. Þar stíflaðist Stekksá
upp í brúnum. Breytti hún far-
vegi sínum og liljóp á túnið. Við
þessa á voru tvær raflýsinga-
þrær. Braut hlaupið aðra, en
fylti hina, svo að raflýsing á
bænum er stórskemd. Hlaupið
skemdi bæði tún og kálgarð á
Innstekk, en hve mikið' er ekki
vitað. Hætta er á meiri skemd-
um ef rigningin helzt, sem út-
lit er fyrir. Smáhlaup hafa
komið á Hólmaströnd, svo að
bílvergurinn þar er ófær.
—Nýja Dagbl.
* * *
Sig. Skagfield
söngvari er nýlega kominn
hingað til bæjarins að norðan,
þar sem hann hefir dvalið í
sumar. Hefir hann efnt til söng-
skemtana víða á Norðurlandi,
m. a. á Siglufirði og Akureyri,
við ágæta aðsókn og dóma. Á
Akureyri söng hann tvisvar og á
síðari söngskemtuninni afhentu
Akureyrarbúar honum forkunn-
ar fagran og mikinn blómvönd.
Sigurður fer innan skamms til
‘Toronto í Canada, en hefir að
líkindum tveggja mánaða við-
dvöl í London. — Sig. Skagfield
hefir, auk þess sem að framan
getur, ,sungið á Vesturlandi í
vor og sumar. Róma menn
hvarvetna söng hans og fram-
komu.—Vísir, 12. sept.
* * *
“Vestmenn”,
erindi þau sem Þorsteinn Þ.
Þorsteinsson flutti í útvarpið í
vetur verða gefin út á prenti á
þessu ári sökum þess hve marg-
ir hafa látið í ljósi ósk um að
eignast þau og vegna þess að í
ár eru liðin 60 ár síðan Is-
lendingar námu fyrst fastar
bygðir vestan hafs. Áskriftar-
listi liggur frammi á afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir þá, sem
vildu eignast bók þessa.
—Mbl. 12. sept.
* * *
Hundrað manns heiðra skáld-
konuna Jakobínu Johnson
með kveðjusamsæti
Rvík 22. sept.
Vestur-íslenzku skáldkon-
unni, frú Jakobinu Johnson, var
haldið kveðjusamsæti í Odd-
fellow-húsinu í gærkvöldi. Sátu
það um 100 manns.
Aðalræðuna fyrir minni heið-
ursgestsins flutti Guðmundur
Finnbogason landbókavörður.—
Auk hans fluttu ræður Indriði
Einarsson, frú Ragnhildur Pét-
ursdóttir, frú Bríet Bjarnhéðins-
dóttir, sr. Friðrik Friðriksson í
Húsavík, ftú Laufey Vilhjálms-
dóttir, Bened. Sveinsson og sr.
Sigurður Einarsson. Jón Mag-
nússon skáld las upp kvæði
Matthiasar: “íslenzk tunga” og
Kjartan Ólafsson frumsamið
kvæði.
Skáldkonan svaraði með
ræðu og las nokkur ljóð.
Milli ræða voru sungin ætt-
jarðarljóð.
Kl. hálf eitt var staðið upp
frá borðum og síðan stiginn
dans.—Nýja Dagbl.
* * *
Nýju dómararnir
í Hæstarétti eru skipaðir
Rvík. 24. sept.
Dómsmálaráðherrann, Her-
mann Jónasson, ákvað í gær, að
skipa í dómaraembætti í hæsta-
rétti þá Gissur Bergsteinsson
settan skrifstofustjóra í dóms-
málaráðuneytitiu og dr. jur.
Þórð Eyjólfsson prófessor í lög
um við háskólann. Staðfesting
á skipun þessara. tveggja dóm-
ara er væntanleg frá konungi
í dag.
Gissur Bergsteinsson
hæstaréttardómari
Hann er 33 ára að aldrt,
fæddur að Árgilsstöðum í Hvol-
hreppi í Rangárvallasýslu 18.
apríl 1902. Lauk gagnfræða-
prófi utanskóla og stúdents-
prófi vorið 1923. Lauk embætt-
isprófi í lögum við háskólann
vorið 1927 með hárri I. eink-
unn. Dvaldi síðan erlendis um
hríð við framhaldsnám í Dan-
mörku og Þýzkalandi. Endur-
skoðaði f. h. stjómarráðsins,
embættisfærslu hjá g^ýslumönn-
um óg bæjarfógetum 1928—29.
skipaður fulltrúi í dómsmála-
ráðuneytinu 1. ágúst 1929. —
Gegndi skrifstofustjóraembætti
í sama ráðuneyti mestan hluta
árs 1930 og fram á árið 1931, í
forföllum þáv. skrifstofustjóra.
Formaður ríkisskattanefndar
síðan í ágúst 1934. Settur
skrifstofustjóri í dómsmálaráðu-
neytinu 6. des. 1934 og hefir
gegnt því embætti síðan.
Auk þess, sem nú er nefnt,
hefir Gissur Bergsteinsson hin
síðari árin oft verið skipaður
setudómari í einstökum málum.
Hann var meðstarfsmaður við
útgáfu' Lögbókarinnar. Hann
hefir lagt mikla stund á að
kynna sér lögfræðileg málefni
og hefir auk þeirra lögfræði-
greina, sem kendar eru við há-
skólann hér, lagt gtund á al-
þjóðlegan einkamálarétt, þjóða-
rétt, stjórnarframkvæmdarétt o.
fl., og fylgst mjög með nýjum
ritum og stefnum erlendis um
lögfræðileg málefni.
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Þórður Eyjólfsson
hæstaréttardómari
Hann er 38 ára að aldri,
fæddur að Kirkjubóli í Hvítár-
síðu í Borgarfirði 4. maí 1897.
Lauk gagnfræðaprófi utan skóla
og stúdentsprófi vorið 1920. —
Lauk embættisprófi í lögum við
háskólann vorið 1924 með hárri
I. einkunn. Réðist þá strax
sem fulltrúi til bæjarfógetans í
Reykjavík og gegndi því starfi
til ársloka 1927. Vann hann
þau ár mjög að samningu dóma
Var einnig þessi ár kennari í
verzlzunarrétti við Verzlunar-
skóla íslands. Erlendis var hann
árin 1928 og 1929 og dvaldi
lengst af við háskólann í Berlín,
en síðar í Khöfn. Vann þá að
undirbúningi ritgerðar um lög-
veð, en fyrir þá ritgerð var hann
sæmdur doktorsnafnbót í lög-
um við háskólann hér vorið
1934.
Eftir utanförina sinti hann
um hríð skiftaráðanda- og setu-
dómarastörfum í ýmsum mál-
um, en hefir einnig unnið að
samningu ýmsra laga. Hann
hefir verið í yfirskattanefnd
Reykjavíkur, spítalanefnd, for-
maður í Byggingarsamvinnufé-
lagi Reykjavíkur o. fl. í fe-
brúar 1934 var honum falin
kensla í lagadeild háskólans, og
12. nóv. sama ár var hann skip-
aður prófessor í lögum við há-
skólann. Því embætti hefir
hann gegnt síðan.
Það mun ekki verða með
rökum í efa dregið, að skipun
þessara tveggja embætta í
æðsta dómstól þjóðarinnar hafi
mjög vel tekist. Báðir eru hinir
nýju dómarar áhugasamir gáfu-
og lær-dómsmenn á glæsilegasta
aldri til að hef ja hið vandamikla
og vglega lífsstarf, er þeirra
bíður — að tryggja hinni ís-
lenzku þjóð réttlæti og jafnrétti
fyrir landslögum í samræmi við
lífsskoðun hins nýja tíma.
—Nýja Dagbl.
LANDNEMA MINNISVARÐIN'
Nefndin getur ekki látið hjá
líða að birta það ágæta bréf
sem hér fylgir. Þær rausnar-
legu peningagjafir sem fylgdu
og bréfið sjálft er sannarleg
hvöt til þeirra sem hafa áhuga
fyrir Landnema Minnisvarðan-
um og hafa lagt fram krafta
sína og tíma til þess að þetta
verk yrði fullkomnað.
Lundar, Man.,
2. okt. 1935
Mr. B. E. Johnson,
1016 Dominion St.,
Winnipeg, Man.
Heiðraði kæri vin:
Við undirritaðar biðjum þig
að afhenda fyrir okkar hönd
meðfylgjandi ávísun sem tillag
til Minnisvarðans á Gimli. Það
mál snertir tilfinningar allra
þeirra sem láta hugan skoða
hina margbreytilegu erfiðleika
sem fyrstu brautryðjendur
höfðu við að stríða, og skilja-
réttilega að þeirra sigur, er okk-
ar bezti arfur. Við minnumst
margra bæði sem við höfum
esið um og persónulega þektum
í okkar ungdæmi, enn sterkast-
ar og heitastar eru endurminn-
ingar og tilfinningar okkar í
sambandi við okkar elskuðu
foreldra Jóhann E. Straum-
fjörð og Kristbjörgu Straum-
fjörð. Þau komu frá Islandi
árið 1876, og þau lögðu fram
sína óskifta krafta til stuðnings
þeim velferðarmálum er frum-
byggjendur Nýja íslands mest
og bezt börðust fyrir, sem var:
sjálfstæði, mentun og heiður
þjóðarinnar, þessvegna finnum
við okkur ljúft og skilt að vera
með í þessu minnisvarða fyrir-
tæki, því að við skoðum það á-
bata fyrir nútíð og þátíð að
horfa til baka og taka sér til
eftirbreytni þann manndöm og
það þrek og þol, sem að bæði
menn og konur sýndu á þeirri
landnáms tíð, blessuð veri
minning þeirra og sem uppörfun
fyrir eftlrkomendur þeirra til
dáðríkra og sannra manndygða.
Það fylgja þessum línum
fimtán dalir frá okkur systrun-
um og svo sendum við einnig
tíu dali frá kvenfélaginu “Fræ-
kom og fylgja því sömuleiðis
hugheilar árnaðar óskir, megi
minnisvarðinn á Gimli benda á
hin sterkustu og beztu þjóðar
einkenni íslendinga.
Svo með kærri kveðju til þín
og þíns fólks.
Mrs. Ragnheiður Magnússon
Mrs. Ásta Sigurðson
Miss Rósa Vídal, Wpg.....$1.00
Dr. og Mrs. Ricard Beck,
Grand Forks, N. D..... 3.00
Mrs. Ingibjörg Walters,
Garðar, N. D.......... 2.00
Dr. B. B. Jónsson, Wpg... 2.00
Guðmann Levy, Wpg........ 2.00
Kvenfélagið “Frækorn”
Grunnavatnsbygð ......10.00
Mrs. Ásta Sigurðson og
Mrs. Ragnheiður Magnús-
son, Lundar, Man......15.00
Gimli bær ...............25.00
H. P. Tergesen, Gimli ....$10.00
United arm Women of
Gimli per Mrs. H.
Einarson .........-... 5.00
Jacob Vopnfjörð,
Cloverdale, B. C...... 1.00
Dagbjört Vopnfjörð
Cloverdale, B. C...... 1.00
Carl Goodmán, Wpg........ 5.00
Mrs. Vilborg Thorsteins-
son, Winnipeg ........ 2.00
Kristján Ólafsson, Wpg... 5.00
J. Walter Jóhannson
Winnipeg .......-..... 2.00
Vinur, Winnipeg ......... 2.00
Guðm. Magnússon, Gimli 2.00
Mrs. Anna Jónasson
Gimli .............. 2.00
Mr. og Mrs. S. Sölvason
Westbourne, Man. ......... 2.00
Mr. og Mrs. G. Th. Oddson
Mountain, N. D........ 5.00
Kærar þakkir,
Dr. A. Blöndal
J. J. Bíldfell
B. E. Johnson
SJÖ REGLUR FYRIR ÞÁ, SEM
ÆTLA AÐ GANGA í
HJÓNABAND
Dr. Walter A. Maier er pró-
fessor nefndur amerískur, sem
nýlega hefir skrifað um hjú-
skaparmál. Er hann harðorður
í garð þeirra, sem skrifa ó-
virðulega um heilagt hjónaband
og vítir skrif amerískra blaða-
manna um þau efni. Hinsvegar
segist prófessorinn viðurkenna,
að margs sé að gæta, til þess að
menn og konur geti orðið ham-
ingjusöm í hjónabandinu, og
telur vert að hafa eftirfarandi
sjö reglur í huga: 1. Karlar
ætti ekki að kvongast fyrr en
þeir eru orðnir 21 árs. Stúlkum-
ar ætti ekki að giftast fyrr en
þær eru orðnar 18 ára. En best
væri, segir próf., að bæði
piltar og stúlkur biði nokkur ár
lengur. 2. Dr. Maier telur jafn
óráðlegt, að bíða of lengi. 3.
Þá telur hann óheppilegt, að
aldursmunur hjóna sé mjög
mikill, en gott að hann sé nokk-
ur. Fjögur ár telur hann hæfi-
legan aldursmun hjóna, en hann
geti að skaðlausu verið alt að 8
—10 ár. 4. Þá telur dr. Maier
rétt að taka tillit til fegurðar.
þegar um þessi efni er að ræða.
En hann segist eiga við fegurð
sálarinnar frekar en útlitsfeg-
urð einvörðungu. 5. Hann telur
algerlega rangt, að láta vonir
um fjárhagslegan hagnað hafa
riokkur áhrif á sig í þessum
efnum. 6. Sjöttu regluna telur
hann einna mikilvægasta, en
hún er sú, að karl og kona, sem
eru andlega skyld, gangi í
hjónaband, og það sé affara-
sælast, að hjón standi á svipuðu
andlegu þroska og mentunar-
stigi. 7. Dr. Maier er eindregið
mótfallinn því, að fólk af ó-
skyldum þjóðflokkum blandi
blóði. Loks telur hann bezt, að
hjón séu sömu trúar og að
eiginkonan gegni sjálf húsmóð-
urstörfum, en vinni ekki utsn
heimilisins.—Mbl.
HITT OG ÞETTA
Gull á hafsbotni
Árið 1832 fórst brezka flutn-
ingaskipið Birkenhead, með
allri áhöfn og þar að auki 454
hermönnum, við Góðrarvonar-
höfða. Það hafði meðferðis ó-
mótað gull, 1,250,000 sterlings-
punda virði. Nú hefir verið
hafist handa um að finna skips-
flakið og reyna að ná upp gull-
inu. Á þessum sömu slóðum
hefir h'ka farist fjöldi annara
skipa og meðal þeirra ýms hol-
lenzk skip, á leið frá Austur-
Indíum. Mörg þeirra fluttu
gull, gimsteina og ýmsa forn-
gripi, sem álitið er að muni
lítið skemdir vegna þess að
skipsflökin hafi fljótlega orpist
sandi. Þarna er tiltölulega
grunt og því ekki áérlega erfitt
fyrir kafara, enda hafa þeir
fundið nokkur skipsflök og
merkt staðina með duflum, svo
að hægt væri að byrja björgun-
artilraunimar.
* * *
Hvenær giftist konan?
Einhver forvitinn náungi hefir
tekið sig til og tínt saman
skýrslur um þetta efni úr öllum
löndum Evrópu. Niðurstöður
þær, sem hann kemst að eru á
þessa leið. Á aldrinum 15 — 20
ára er hundraðstaian 14,5. Á
aklrinum. 20—25 ára er hundr-
aðstalan stigin upp í 52. Milli
25 og 30 ára giftast um 18%,
milli 30 og 35 ára 15Vs2%> af
35—40 ára konum giftast 3Ya%
40—-45 ára 2*4%. Loks giftist
3A% á aldrinum 45—50 ára —
ekki ein af hundraði. Þar með
lýkur rannsóknum þessa ágæta
manns.
¥ * ¥
— Já, eg held eg giftist Bergi.
Hann er sá eini af þeim öllum
seg eg treysti mér til að skilja
við, án þess að sjá eftir því.
-Dvöl.
í -
MAIL THIS COUPON TO-DAY!
To tKe Secratary:
Domrnm Ðraíncw CcQcf
WinnqMg, M*nitok>«
Witkout otligatkm, pl«* scctw fufl pcrDcnlan
of your councs ow“Str—nlm<~ busmesa tnzninf.
G’/íGDominion
BUSINES$ COLLEGE
1 .IHE 'MAjt