Heimskringla - 01.04.1936, Síða 1
L. ÁRGANGUR
WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN.l. APRÍL, 1936
NÚMER 27.
HELZTU
Leifsmynd í Washington
Mánudaginn 23. marz, var
mynd af Leifi Eiríkssyni alhjúp-
uð í stjómarhöllinni í Wash-
ingtton. Stendur þannig á mynd-
inni, að hún er gefin stjórninni
í Washington af “Vinum Ame-
ríku í Noregi”. Per Krogh
hefir giert myndina og hún var
send vestur um haf, þegar þing-
ið hafði lýst því yfir, að það
tæki við gjöfinni með þökkum.
Nafn myndarinnar er: “Leif
Eriksson Disoovers America”.
Nafnið tekst Norðmönnum
aldrei að stafa rétt. Er það
undarlegt með alla þá ást, sem
þeir virðast bera til fortíðar ís-
lendinga, að “uppgÖtvari Ame-
ríku”, skuli ekki fá að halda
sínu norræna eða íslenzka
nafni. Þó Norðmenn hafi breytt
tungu sinni, er norrænan ó-
breytt, og afbökun nafnsins ó-
afsakanleg.
Það er stundum að því vikið,
að íslendingasögurnar heyri til
liðinni tíð og á þeim sé ekkert
að græða í nútíð. En hvernig
stendur nú á þessari mynd? —
Eru heimildirnar fyrir henni,
um að Leifur Eiríksson hafi
fundið Ameríku, ekki þangað
sóttar? Þessi mynd er þegjandi
en órækur vottur um sígildi
fornsagnanna. En íslendingar
ættu ekki að láta sér á sama
standa um það, hvernig með
þær heimildir er farið, og koma
í veg fyrir það, þar sem þess er
kostur, að þær séu allar undnar
og snúnar úr liði, um leið og
þær eru notaðar. Það er vert
að meta það að aðrar þjóðir
noti þær svo sannleikurinn, sem
í þeim er fólginn verði sem
flestum kunnur, en hins er og
gætandi, að það sé gert svo, að
til heimildanna sé um leið vís-
að, þó ekki sé með öðru, en að
hafa nöfn afreksmanna rét.t
eftir þeim. Norðmenn eru svo
stórsekir um þetta í sambandi
við Ameríku-fund Leifs hepna,
að hjá verður ekki komist, að
gruna þá um græzíku. Þeir
hafa gróðursett minningar Leifs
víðsvegar um Bandaríkin og
Canada með listigörðum og
styttum, en allsstaðar, þar sem
ekki hefir verið hlutast til um
það af íslendingum, með nafni
Leifs ný-norskuðu og ramm-
vitlausu.
Kosningasigur Hitlers
' í kosningunum s. 1. sunnu-
dag í Þýzkalandi, hlaut Hitler
mjög nærri 99% allra átkvæða,
þeirra er kusu, og það voru
44,952,476 manns. Aðeins um
hálf miljón allra atkvæðisbærra
kaus ekki. Beri atkvæða-
greiðsla þessi vott um skoðun
þjóðarinnar á Rínar- eða Locar-
no-málunum, er stefna Hitlers
í þeim áþreifanlega staðfest. —
Blöð annara þjóða leggja nú
samt ékki þann skilning í at-
kvæðagreiðsluna, en telja hana
markleysu, vegna þess, að kjós-
endur fylgi Hitler af þrælsótta:
auk þess haf'i þjóðin verið gint
með slagorðunum “frelsi og
brauð”, sem Hitlers-liðið hafi
óspart notað — og brauðið
muni þýzku þjóðinni kærkom-
ið. Eitthvað af þessu getur
satt verið, en hitt mun þó hæp-
ið, að það sé allur sannleikur-
inn.
Morðvargur
Maður er nefndur Jahn Paw-
luk, sem heima á í Gonor í
grend við Selkirk í Manitoba. 1
nóvemiber 1935 hvarf kona
hans. Kom hún ekki í leitir fyr
FRÉTTIR
en lögregla Norðvesturlandsins
fann Ifk hennar alt brytjað upp
í fjóshaug á heimili Pawluks
s. 1. laugardag. Var Mrs. Ma-
chewski systir Mrs. Pawluk
mjög hrædd um, að alt væri
ekki með feldu um hvarf henn-
ar og hvatti lögregluna til að
halda leit áfram.
Flyrir tveim vikum var maður
að nafni Genio Bulega, nábúi
Pawluks, myrtur. Fanst hann
skotinn til dauðs í rúmi sínu og
lá byssa ofan á honum. Leit
því svo út, sem þar hefði um
sjálfsmorð verið að ræða. En
við fund líksins af Mrs. Pawluk,
fellur nú einnig grunur á Paw-
luk um eða vera valdur að
morði Bulega. Pawluk hefh’
verið handtekinn og er verið að
rannsaka hvort hann muni sek-
ur um bæði þessi morð. Hann
er Úkraníumaður.
Frá Blálandi
Símaðj) var s. 1. mánudag, að
ítalir hafi eytt borginni Harar,
sem er önnur stærst borg í Blá-
landi. Hópur flugbáta var send-
ur þangað með sprengjur og
stóð borgin brátt mikið til í
björtu báli. Borgin var varnar-
laus, en mannfall varð þar ekki
af því, að íbúarnir höfðu verið
varaðir við þessu af skátum og
flúðu úr borginni. Harar er
250 mílur austur af höfuðborg-
inni og aðeins 30 mílur fyrir
sunnan Addis Ababa-Dijbouti
jámbrautina, þá einu er út úr
Blálandi liggur. Komist ítalir
þangað, er samgöngum Addis
Ababa slitið við umheiminn. —
Pimtán sprengjur rigndu yfir
Rauðakross stöðvar Egypta í
borginni og einnig dundu
nokkrar á spítölum Svía og
piálendinga. t gær voru ítalir
einnig að herða sóknina að
norðvestan, ekki langt frá
Tana-vatni. Verði þeim þar
eins ágengt og í Harar, er sagt
að úti muni vera um nokkra
vörn af hálfu Blálendinga.
Mussolini og iðnaðurinn
Nýlega var símað frá Italíu,
að Mussolini hefði tekið í sín-
ar hendur, eða stjórnarinnar,
allan stóriðnað landsins. Þörfin
á þessu er talin bæði brýn og
afsakanleg vegna þess að þjóð-
in eigi í stríði. Látum það gott
heita. Eigi að síður er nú Blá-
landsstríðinu þar komið, að til
þess að vinna það, mun ekki
þurfa hér eftir miklu til að
kosta. En afleiðingarnar af
því stríði munu eigi að síður
því valdandi, að Mussolini gríp-
ur til þessa ráðs. Viðskifta-
hömlurnar hafa reynst iðnað-
inum illar búsifjar. Sannleik-
urinn kvað vera sá, að hann
hafi verið svo illa kominn, að
annað hefði ekki beðið hans en
að velta út af. Og með því
var efnahagur landsins hruninn
til grunna. Stríðið í Blálandi
hefir kostað ítalíu þetta, að
það var rétt búið að steypa
þjóðinni efnalega. Til þess að
forða landinu og sjálfum sér
frá falli, ætlar Mussolini að
setja sjálfan sig yfir alt þjóð-
arbúið í smáu og stóru og vera
þar sjálfur húsíbóndinn, en
landslýðurinn hjú hans. Rétt-
indi og frelsi lýðsins er þar
horfið. Þetta hefir ítalska
þjóðin unnið eða grætt á stjórn
og stríðs-athæfi Mussolini, síð-
an hún setti hann yfir sig. —
Ýmsar matartegnudir eru
skamtaðar og lífstíðar fanga-
vist lögð við, ef boðorðið er
brotið.
Aftöku frestað
Aftöku Bruno Richard Haupt-
manns, sem dæmdur var líf-
látsdómi fyrir morð Lindberghs-
barnsins, hefir enn verið frestað
um tvo daga. Aftakan átti að
fara fram klukkan 8 í gær-
kveldi, en rétt áður en að stund-
inni kom, var tilkynt að nýtt
atriði væri komið upp í mál-
inu, sem rannsaka þyrfti. —
Frestunartíminn var ákveðinn
48 klukkustundir.
Bruno Houptmann, sem kald-
ur hefir verið eins og steinn
allan tímann frá því að hann
var fyrst handtekinn, brast í
grát í gærdag. Hann svaf lítið
á þriðjudagsnóttina, borðaði
ekkert á þriðjudag — aftöku-
daginn. Hann heldur stöðugt
fram að hann sé saklaus.
Útvarpið
Sambandsstjórnin hefir hugs-
að sér að gera nokkrar breyt-
ingar á útvarpi í Canada. Sam-
kvæmt uppkasti að frumvarpi
til laga um þetta, er hugmyndin
að í stað þess sem stjórn út-
varpsins er nú í höndum nefnd-
ar (commission), verði út-
varpsfélag stofnað með einum
aðalstjórnanda og sjö með-
stjórnedum. Félag þetta á að
hafa umráð og stjórn þeirra
stöðva, seni eru eign útvarps-
nefndarinnar eða stjórnarinnar
nú, en ekkert boðmál yfir út-
varpsstöðvum einstaklinga. En
núverandi útvarpsnefnd hefir
heimild til og lítur eftir öllu,
sem frá þessum stöðvum er út-
varpað yfir alt eða nokkum
hluta kerfisins.
Breytingin, sem hér er farið
fram á, er með öðrum orðum
sú, að útvarpið sé ékki fremur
undir stjórn sambandsstjórnar-
innar, en einstakra manna. —
Þegar útvarpið var stofnað
hér, var mikið um það rætt,
hvort að það ætti að vera
einstaklinga-eign eða þjóðeign.
Aird-nefndinni, sem á þeim tíma
rannsakaði það, blandaðist ekkj
hugur um að útvarpið ætti að
vera þjóðeign eða að minsta
kosti algerlega undir eftirliti
samibandsstjórnarinnar. — AI-
menningur virðist og mjög á-
kveðið taka í sama streng. Á
móti skoðun þessara nefnda og
almennings-álitinu, er því engin
efi á, að þessi nýja útvarpslaga-
smíði Kingstjórnarinnar stefnir.
Hoffmann hótað illu
Lögreglunni í Newark, N. J.,
var tilkynt s. 1. mánudag, að
ríkistjóri hennar, Harold G.
Hoffman, yrði myrtur næst-
komandi þriðjudag. Tilkynn-
ingin kom yfir talsímann. Lög-
neglan hefir komist að því, að
hótunin kom frá Brooklyn og
veit meira að segja, að hún kom
frá síma í lyfjabúð þar, einum
af þessum almennu símum, en
hver maðurinn var sem hana
sendi, veit lögreglan ekki. Ekki
var á mál Bruno Hauptmanns
minst í hótuninni, en afskifti
Hoffmans af því, er þó talin á-
stæðan fyrir þessu.
Frá Japan
Fyrir fáum dögum, sagði
Koki Hirota, nýi forsætisráð-
herrann í Japan, að það skyldi
ekki verði stríð á milli Rússa og
Japana eins lengi og hann væri
'stjórnarformaður. 1 Maskva
heldur forsæðtisráðherra Molo-
tov því fram, sem var mikill
vinur Horita, þegar hann var
sendiherra Japans í Rússlandi,
að útlitið með samkomulag
þessara þjóða sé betra en það
hefir nokkru sinni fyr verið. En
á sama síma og þetta er haft
eftir þessum mikilsmetnu
mönnum, vaða japanskir dátar
norður yfir landamæri sín í
Manchoukou og inn í land
Rússa, eiga þar skærur við þá,
en horfa þó að lokum til baka.
Þarna var að vísu ekki nema
um lítinn hóp hermanna að
ræða, aðeins 60 manns, en
hann: hafði fallbyssur, og gerði
þann óskunda er hægt var. Og
slíkra æðis-áhlaupa fárra
manna verður víða vart. Hefir
það leitt til þess, að Rússar
hafa nú alvarlega varað Japan
við þessu, og segja að slíkum
árásum verði að hætta, eða
Rússar séu knúðir til að grípa
til þeirra ráða, er ein séu nauð-
synleg til að árða bætur á
þessu.
• ' •$. Jj; •
SjónvarpiS að komia
Hið volduga útvarpsfélag
Radio Corporatitfn of America,
er nú sem óðast að rífa niður
sjónvarpstæki þau, er það hefir
á efsta lofti Empire State bygg-
ingarinnar í New York, til þess
að koma þar fyrir öðrum nýj-
um, samkvæmt fyrirsögn Mr.
Vladimir Zworykin, sem fann
upp ‘‘mynd^sýnið” (icono-
scope) sem R. C. A. notar til
sjónvarpsins.
Þessi nýju tæki eru talin svo
góð, að félagið 'áh'tur, að með
smíði þeirra megi telja, að hefj-
ist hagnýtt sjónvarpsöld fyrir
almenning. Er félagið nú sem
stendur að láta smíða viðtæki
í verksmiðju sinni og ætlar
fyrst um sinn að selja þau á
leigu, meðan það heldur áfram
sjónvarps- og viðtökutilraun-
um með nýju tækjunum, sem
það telur ekki fullreynd fýr en
•eftir nokkra mánuði, jafnvel
eitt ár.
Sagt er að sama kerfi, eða
nálega alveg eins, eigi að koma
upp í Lundúnum í vor, og að
verksmiðjur þar séu að búa sig
undir að geta selt sjónvarps-
tæki á 275—450 dali.
Alberta
Undanfarið hefir Alberta-fylki
verið að reyna að fá lán hjá
samlbandsstjórninni til þess að
greiða skuld er nemur $3,200,-
000 og fellur í gjalddaga í dag.
Samibandsstjórnin virðist ekki
ætla að hlaupa þama undir
bagga, þrátt fyrir það, þó áður
væri fullyrt, að hún ætlaði að
gera það. Skuld þessa er ekki
hægt að borga, nema með því
að taka lán, en fyrir fylkjunum
er nú orðið ekki í önnur hús að
venda í þeim efnum, en sam-
bandsstjómar. En Aberhart
hefir verið ákveðinn á móti
hugmynd stjórnarinnar um að
setja eina alls-herjar fjármála-
nefnd yfir öll fylkin, er eftirlit
hafi með hag þeirra, mæli með
nauðsynlegum lánum þeirra o.
s. frv. Aberhart skoðar þessa
ráðagerð stjórnarinnar eflaust
koma í bága við fyrirhugaðar
framkvæmdir í sOcial credit-
áttina. Vegna þessa mótþróa,
hugsar samibandsstjórnin sér ef-
laust að lofa Alberta að sigla
Sinn eigin sjó.
En hvernig fer, ef fylkið get-
ur ekki greitt skuld þessa. í
strangri merkingu verður það
gjaldþrota. En fjúki í þetta
skjól, að fá féð frá sambands-
stjórninni, sem Aberhart trúir
ekki enn, vegna þess, að hann
telur sér ekki um skuldina að
kenna, og hvaða stjóm sem við
völd hefði verið, hefði orðið að
fá lán til að greiða hana, þá sé
ekki um annað að ræða en að
mætahennimeð ‘token money’,
tákn-peningum, eins og Bret-
land hefði mætt stríðskuld
sinni. Annars verður ekki séð,
að sambandsstjórnin sé sann-
gjörn í afstöðu sinni til þessa
máls.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
34312 íbúar í Reykjavík
íbúar Reykjavíkurborgar voru
við manntal, sem fór fram 20.
—30. nóvember s. 1. samkvæmt
talningu sem næst 34,312.
Á sama tíma í fyrra var í-
búatalan 33,974.
* * *
60 klukkustundir í stórhríð
og grimdiarfrosti
Kópasker, 5. marz
Stefán bóndi JónssOn í Möðru
dal á Fjöllum Ienti í hrakning-
um miklum dagana 16. til 18. f.
m. í stórhríðaiibyl á Öræfum,
austan Möðrudals.
Sunnudaginn 16. lagði Stefán
af stað heimleiðis frá Heiðar-
seli á Jökuldalsheiði með 5
kindur.
Kom hann við í Sænautaseli
og hélt síðan áfram. Skall þá
á blindhríð með 17 stiga frosti.
Um nóttina gerði hann grjót-
byrgi fyrir kindurnar, en hélt á
sér hita með að ganga um og
berja sér.
Á mánudagsmorgun hélt
hann áfram, en týndi kindunum
um kvöldið. Var hann þá á
réttri leið en vörður voru flest-
ar fentar í kaf, og fór hann þá
villur vegar og gróf sig loks í
fönn og lét þar fyrir berast um
n'óttina.
Á þriðjudagsmor-gun reyndi
hann að halda í veðrið og hugði
það rétta stefnu heim. Þekti sig
loks í svonefndum Arnardal, en
þaðan eru 25 til 30 kílómetrar
að Möðrudal.
Náði hann um kvöldið beitar-
húsum frá Möðrudal og hitti
þar bróður sinn er studdi hann
heim.
Var hann all þrekaður en ó-
kalinn. — Sextíu klukkstundir
var hann á ferðinni og hafði
ekki annað nesti en hálfa flat-
bruðsköku.—Mbl.
* * *
Úr verstöðvunum
Grindavík. — Afli er mjög
misjafn í Grindavík. Nokkrir
bátar afla sæmilega, en sumir
ekkert. í fyrradag fékk afla-
hæsti báturinn 900 fiska í net.
Bátar þar eru hættir að róa
með lóðir, þar er ekkert aflast
á þær.
Sandgerði. — í Sandgerði er
afli afar tregur síðustu daga.
Stykkishólmur. — Frá Stykk-
ishólmi er símað að afli sé á-
kaflega tregur þar um slóðir,
300—700 fiskar á bát, eða
minna.
Vestmannaeyjar. — Um tutt-
ugu bátar voru á sjó í gær frá
Viestmannaeyjum og öfluðu
flestir þeirra vel. Línuafli er
mjög tregur, en sæmilegur afli
í net. Fiskurinn er er örgrunt
undan Landeyjasandi og leggja
sumir bátar net sín á átta
metra dýpi. Mikið af lúðu er út
af Söndunum.
Belgískur togari kaupir nú
ibátafisk í Vestmannaeyjum.
Hornafjörður. — Torgarinn
Rán kom í fyrradag til HOrna-
fjarðar með 250 tunnur af
beitusíld. — Fimm bátar neru.
Hæstur afli var 5 skippund á
bát. Þrjátíu bátar munu nú
stunda veiðar úr Hornafirði.
ísafjörður. — Hávarður kom
inn um miðja viku með um 60
smálestir af fiski og 74 lifrarföt,
eftir 14 daga útivist. Fjórir bát-
ar Samvinnufélags ísfirðinga
hafa komið inn með um 15,000
—22,500 kg. úr fjórum til fimm
legum.—Mbl.
ÍSLENZKU R LÆKNIR
HEIÐRAÐUR
af bandarísku læknavísindafél.
Fyrir nokkrum dögum fékk
dr. M. B. Halldórsson tilboð um
að gerast einn af stofnendum
(Charter Members) að nýju
vísindalfélagi, Academy of Tu-
iberculosis Physicians, sem nú
er í myndun. Tók læknirinn
þessu boði og gat þess um leið
að þetta væri hið fyrsta berkla-
sýkis félag sem sér hefði dottið
í hug að gerast miðlimur að,
því hingað til hafi þvíhk félög
haft presta hugarfar sem pré-
dikuðu það eitt sem viðtekið er
en telja alt annað trúvillu. En
af þessu félagi mætti búast við
visindamensku og spámanns-
hug, sem rannsakar alt og held-
ur því sem bezt er. Býst dr.
Halldórsson við að sækja fyrsta
fund þessa félags sem haldinn
verður í vor komandi.
Ekki er þetta í fyrsta sinn
sem dr. Halldórsson hefir verið
sýndur heiður fyrir ritgerðir
sínar um berklasýkina og lækn-
ingu hennar. Hann hefir nú í
nokkur ár verið meðlimur í Rit-
stjóra og Rithöfunda Félagi
Amerískra Lækna (American
Medical Editors and Authors
Association), og er einn af
umboðsmönnum þess félags
til að vielja nýja miðilimi í
Canada. Sýnir það hvað vand-
látt það félag er í meðlimavali
að af tíu mönnum sem dr.
Halldórsson mælti með í fyrra
sumar var einn valinn, dr. Thor.
lakjsson, sem líka er íslending-
ur.
En merkilegt má það heita að
dr. Halldórsson skuli fá þetta
tilboð nú, fjórtán árum eftir aö
síðasta ritgerð hans, á ensku,
um lækningar á berklasýki birt-
ist. En það sýnir að sannleiks-
korn, sem oröið er alþjóðaeign
er ekki bundið við stund né
stað. Það þróast eins og sæðið
í moldinni, heldur áfram að
lifa og blómgast og vekur at-
hygli þegar minst varir.
SKUGGA-SVEINN
Leikfélag Sambandssafnaðar
í Winnipeg er nú að undinbúa
hinn velþekta leik Matthíasar
Jochumssonar, Skugga-Svein.
Þetta er eitt af hinum vinsæl-
ustu verkum skáldsins, og hefir
ávalt verið vel tekið, þó hann
hafi verið sýndur oftar en
nokkur annar leikur meðal ís-
lendinga hér.
í tilefni af aldarafmæli Matt-
híasar hefir Leikfélagið tekið
Skugga-Svein til meðferðar á
þessum vetri, og er það vel við-
eiga'ndi. Til minningar um
skáldið var Skugga-Sveinn leik-
inn í margar vikur í vetur í
Reykjavík og altaf fyrir fullu
húsi. Það eru nú nokkuð mörg
ár síðan hann hefir verið sýnd-
ur hér í Winnipeg, og má því
búast við að Islendingar setji
sig ekki úr færi að njóta á-
nægjulegrar kvöldstunjdar með
því að rifja upp enn einu sinni
söngvana og æfintýri útilegu-
mannanna, og ekki sízt, með
leikfélaginu að minnast hundr-
að ára afmælis höfundarins.
Skugga-Sveinn er æfintýra-
og söngleikur. Eru söngvarnir
undir fögrum lögum, og þeir
útaf fyrir sig eiga hlýjan reit í
hjörtum íslendinga.
Ákveðið hefir verið að sýna
leikinn tvö kvöld, miðvikudags-
og fimtudagskvöld þann 15. og
16. apríl. Nánar verður aug-
lýst um leikinn í næstu blöð-
um. B. E. J.