Heimskringla - 08.04.1936, Blaðsíða 2
2. SÍÐA,
HEIMSKRINGLA
WINNIPEJG, 8. APRÍL, 1936
EINN FRÓNSKUR PISTILL
eSur
BRÉF FRÁ fSLANDI
Ritað af
sr. Friðrik A. Friðrikssyni
Húsavík
Frli.
m.
Föstudaginn 12. júlí, skrýdd-
ist Suður-Þingeyjarsýsla sínum
fegurstu sólskins- og sumar-
klæðum. Þann dag, um hádeg-
isbilið, kom firú Jakobína John-
son, skáldkona til Húsavíkur.
Var hún þegar leidd á fund
skáldsystur sinnar, “Huldu”, b.
ie. frú Unnur Benediktsdóttur
Bjarklind, og manns hennar,
Sigurðar Sigfússoriar Bjarídind
framkvæmdarstjóra Kaupfélags
Þingeyinga. Buðu þau henni að
búa í siínum húsum meðan hún
dveldi á Húsavík.
Þótt frú Jakobína hafi nú
ferðabók í smíðum, — sem eg
vona að sé — þá treysti eg því,
að ekki sé tekið um of fram
fyrir hendur hennar með því,
að týna hér fram nokkra frétta-
mola frá dvöl : hennar hér í
sýslunni.
Það er kominn sunnudagur.
Sólskinið er ekki alveg eins ör-
látt ieins og fýrirfarandi daga.
En gott og notalegt er þó ferða-
veðrið þennan eftirminnilega
dag. Jakobína sækir heimboð
að Hólmavaði í Aðaldal. Þar er
hún fædd. Og svo skemtilega
vill til, að þar er einmitt aðal-
samkomuhús sveitarinnar, stórt
nýbygt steinhús.
Um langt s'keið undanfarið
hafa Aðaldælir haft viðbúnað
til þess, að fagna þessum sínum
góðkunna samsveitunga, er á
bemskualdri kvaddi þessar
stöðvar, ásamt foreldrum sán-
um, ástsæla alþýðuskáldinu,
Sigurbimi Jóhannssyni, sem
kendur er við Fótaskinn (nú
Helluland) og konu hans, Maríu
Jónsdóttur. Sá viðbúnaður
leiddi til þess mannfundar, er
lengi mun í minni geymast
þeirra, er sóttu.
Þegar Jakobína — og hennar
fríða föruneyti frá Húsavík —
nálgast íáfangastaðirþi, gjefur
að líta mikinn mannfjölda fyrir
framan samkomuhúsið. Um leið
og stigið er út úr bifreiðunum,
og “Hulda” býst til að Leiða
heiðursgestinn fram fyrir Aðal-
dæli, — lýstur upp hljómmikl-
um söng frá mannfjöldanum:
“Þar sem að fyrst stóð vagga vor
á vorri feðragrund
og fram vér gengum fyrstu spor
af föður studdir mund,
þann blett með léttri lund
vér lítum þessa stund
og heilsum aftur æskudalnum
fríða.”
Gestirnir standa þögulir og
klökkir meðan á söngnum
stendur. Augnablikið er sann-
arlega hátíðlegt, þrungið djúp-
um tilfinningum. Tár glitra í
margra augum, aðrir leyna við-
kvæmni sinni sem bezt þeir
mega. “Það var hátíð í lofti,
það. fann eg strax”, sagði
Jakobína seinna.
Kórinn lýkur þessu kvæði, og
hefur samstundis upp: “Ó, fög-
ur er vor fósturjörð”. Og nú
taka gestirnir undir. Að þessu
loknu hefjast fyrst Iheilsanir.
Jakobína heilsar, með handa-
bandi — öllum. Og fjörugur
og fagnandi samtals- og minn-
ingakliður fer um allan hóp-
inn.
Samsætið hefst. Benedikt
Kristjánsson, bernskuleikbróðir
frá Hólmavaði, og ábúandinn
þar nú, leiðir heiðursgestinn til
sætis. Henni til annarar hendar
situr móðurbróðir hennar, Sig-
urður Jónsson frá Máná, en til
hinnar, Guðmundur Friðjóns-
son skáld, og una báðir sjáan-
lega sínu hlutskifti vel. Aðrir
merkir háborðsgestir eru t. d.
“Hulda” skáldkona og hennar
maður, Sigurjón Friðjónsson og
Jóhanna Friðriksdóttir, yfir-
hjúkrunarkona við fæðingar-
deild landspítalans, frændkona
Jakobínu og hennar ótrauði
förunautur norður um land.
Borð öll eru dúkdregin og
blómum skreytt: blágresi,
bunknum úr Aðaldalshrauni og
margskonar ræktuðum blóm-
um. Birkigreinar, blómum vafð-
ar, liggja um dyr og glugga. En
að öndvegisbaki (í altaristöflu-
stað) blasir við skjöldur, flétt-
aður úr birki, grávíði og gleym-
mér-eyjum. Sætin svigna undir
þétt settum gestum, en borðin
undan veizlukosti, er býður allri
kreppu byrginn.
Samsætið setti Hildur hús-
freyja á Klömbrum, dóttir Bald-
vins Þorgrímssonar, bróðir séra
Adams heitins Þorgrímssonar.
Ræða hennar, sem lauk með
eiginortu kvæði, vakti strax
þann anda Ijúfleiks og fagnað-
ar, er auðkendi mót þetta frá
upphafi til enda. Síðan rak
hver ræðan aðra, og kvæðin,
með þeim ágætum, að mig,
hreinskilnislega sagt, undraði
stórlega. Hafði eg nokkrum
sinnum áður tekið þátt í mann-
fundum í Aðaldal; að vísu ekki
kynst fólkinu neitt verulega, en
heldur ekki orðið tiltakanlega
snortinn af menningu bygðar-
innar. En nú var höfðinglega
að verið.
Þjóðskáldið frá Sandi mintist
Siguribjarnar, föður Jakobínu,
með sinni alkifnnu frjóu
mælsku. Annars fanst mér, að
minningu þessa manns, -— ljúf-
sárri og ástúðlegri — andaði
frá hvers manns hug, frá hverju
blómi og steini umhverfisins,
Eg vil skjóta því hér inn í, að
fyrir nokkrum dögum síðan átti
eg tal við gáfaða þingeyska
konu, sem lét þessi orð falla:
“Mér er það altaf minnis-
stætt frá bernsku þegar eg sá
Sigurbjörn í fyrsta sinni. Eg
vissi ekki hver hann var. Eg
þarf ekki annað en að loka aug-
unum til þess, að sjá hann
skýrt fyrir mér þar sem hann
studdist við hestinn sinn. Ein-
hver glampi í augunum, eitt-
hvað óvenjulegt, sem örðugt
er að lýsa, gerði hann frábrugð-
inn öðrum mönnum.”
Guðmundur lauk ræðu sinni
með því, að lesa upp kvæði
Jakobínu: “Leifur heppni”. Þá
flutti Sigríður Stefánsdóttir,
húsfreyja á Hveravöllum, systir
Jónasar frá Kaldbak, kvæði. Þá
Sigurjón Friðjónsson, kvæði. —
Þá Steingrímur Baldvinsson,
bóndi í Nesi, bróðir Hildar,
ræðu fyrir hönd Ungmennafé-
lags Aðaldæla, er ásamt Kven-
félagi sveitarinnar stóð fyirir
boðinu. — Lýsti ræðumaður af
næmum, og mér leyfist að segja
óvæntum, skilningi gildi listar
og draumrænnar fegurðar fyrir
hið ytra, verklega líf mannanna.
Þá talaði séra Þorgrímur V.
Siguirðsson, sóknarprestur að
Grenjaðarstað, og valdi sér ein-
kunnarorðin “trú og tunga” og
hæfði þannig í mark um skáld-
skap og hugðarefni heiðurs-
gestsins. Þá flutti kunni ætt-
fræðingurinn og skáldið, Ind-
riði Þorkelsson “frá Fjalli”
ræðu og kvæði. Þá Unnur
skáldkona, kvæði. Kvæðin vona
eg að hafi þegar öll komið fyrir
almennigssjónir. Þá voru enn
nokkrar ræður haldnar. í
bundnu og óbundnu máli liðu
minningarnar fram, sumar með
klökkva, eins og þær, er lutu
að fátækt og nauðungarför Sig-
urbjarnar vestur, aðrar til gam-
ans, eins og sú, er Indriði sagði
af þvf„ þegar hann á drengs-
aldri skyldi gæta “Bínu litlu” í
vöggu, meðan faðir hennar lauk
við srníðar, sem Indriði átti að
sækja. Grét hún þá af þeirri
afburða einbeitni og raddstyrk,
að vöggugætir gafst upp og
forðaði sér úr embættinu. —
(Jakobína hefir enn mikil hljóð,
sem og sum böm hennar hafa
tekið að eríðum.) Yfirleitt
mundu menn furðu margt um
“Bínu litlu”, — sumt, sem hún
hafði aldrei áður heyrt. — Er
leið á samsætið afhenti frú
Hildur heiðursgestinum mál-
verk af Hólmavaði, eftir lithaga
og skurðhaga Húsvíkinginn, Jó-
hann Björnsson.
Loks gættu menn þess, að
sólin hafði ekki sinna verka
sakna látið. Það var komið
kvöld. Heiðurs gesturinn fékk
orðið, og svaraði og þakkaði
með ræðu og kvæðum. Það
var ekki alveg vandalaust að
standa i hennar sporum þá
stundina, en henni fórst það —
vel. Meðal annars mintist hún
móður sinnar innilega, og kvað
sér vera ljóst, að eins og föð-
urerfðirnar hefðu orðið sér til
gæfu, svo væri margt það„ er
SEYTJÁNDA ÁRSÞING
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
Framh.
Forseti setti fund kl. 2. e. h. Síðasita
fundargerð var lesin, og samþykt með
tillögu frá Mrs. I. Goodmanson og A. J.
Forseti skýrði þá frá að samkvæmt
lögum félagsins færu nú fram embætt-
ismannakosningar og bað hann útnefn.
ingamefnd að leggja fram sínar tillögur.
trtnefningamefndin lagði fram nöfn
þessara manna í embætti og voru þeir
kosnir gagnsóknarlausit:
Forseti: Dr. Rögnv. Pétursson
Vara-forseti; Dr. Richard Beck
Skrifari: Gísli Johnson
Vara-skrifari: Séra B. Theo. Sigurðsson
Féhirðir: Ami Eggertson
Vara-féhriðir: Walter Jóhannsson
Fjármálaritari: Guðmann Levy
Vara-fjármálaritari: S. W. Melsted
Skjalavörður: Séra Philip M. Pétursson
Till. A. J. Skagfelds að þingheimur
risi úr sætum sem þakklætis viðurkenn-
ingu við fráfarandi nefndarmenn fyrir
starf þeirra, og var það gert. Þakkaði
foreti fyrir sína hönd og B. E. Johnson
fyrir sína hönd og Dr. A. Blöndals er var
fjarverandi.
Fyrir yfirskoðxmarmann var kosinn í
einu hljóði Steindór Jakobsson.
I leikfimisnefndina voru kosnir dr. A.
Blöndal og Th. Thorsteinsson.
Rithöfundasjóðs nefnd
S. W. Melsted og Dr. R. Beck að rit.
höfundasjóðs nefndin sé enkurkosin. —
Sam.ykt. Em það þeir: séra Guðm.
Amason, Sveinn Thorvaldson, Ami
Eggertson, séra B. Theo. Sigurðsson og
J. K. Jónasson.
í trtnefningaraefnd
voru kosnir: A. P. Jóhannsson, S. W.
Melsted og B. E. Johnson.
Till. séra Guðm. Amasonar og Fred
Swanson að fjármálaritara séu greidd
10 prósent af því fé sem hann inn-
heimtar á næsta ári. Samþykt.
Minnisvarðamál
Nefnd sú, er sett var í þetta mál, legg-
ur fram svofelda tillögu.
Þingið felur stjómamefnd félagsins
framhaldandi framkvæmdir í þessu máli
unz verkinu er lokið.
Richard Beck
J. Janusson
B. Theo. Sigurðsson
Till, B. E. Johnson og dr. R. Beck að
álitið sé viðtekið eins og lesið. Samþykt.
Minjasafnsmál
1. Þingið þakkar þeim, sem hingað
til hafa unnið að myndun Minjasafnsins,
svo og þeim, sem hafa sent gjafir tU
safnsins á síðastliðnu ári, en eru þeir
þessir;
Frá W. J. Osbome, Winnipeg: Kvam-
arsteinar
Frá Ingu Soffíu Goldsmith, — CrystaJ,
Nonth Dakota: Lóðavigt.
Frá Amfríði Jónsdóttur og Baldvin
Jónssyni á Kirkjubæ, Hnausa: Reisla,
Tina, Silfurskeið, Rennibor, Lóða
vigt (pundari).
Frá Guðlaugu og Jóhannesi Freeman,
tii minningar um Island:
1. Prjónastokkur — A hann er letrað:
Sigríður Jónsdóttir á stokkinn með
réttu. Atján hundmð’. — Kona
þessi lifði fyrir og eftir 1800, sem
eignaðist sitokk þenna.
2. Prjónastokkur — A hann er Jetrað:
Vertu velkomin að þessum stokk
min góða Guðlög Finnsdóttir. Arið
1876.
3. Sméröskjur — Em frá fyrri hluta
19. aldar.
4. Tígulstokkur — Er frá fyrri hluta
19. aldar.
5. Rokkur — Frá 7. tug 19. aldar.
6. Nálhús með skónálum. — Smíðað
nálægt 1860.
7. Nálhús með stagnálum. — Frá því
um 1855.
8. Ullarkambar (tvennir). — AJíka
gamlir og rokkurinn.
9. Þráðarsnælda. — Frá því um 1860.
10. Ullar lár er ullar lopar vom hafðir
í sem spunnið var úr á þráðarsnældu.
Gerður af blindum manni um 1855.
Svava Líndal, Winnipeg: Dúksvunita frá
1876, Millur, Skotthúfa.
2. Þingið felur stjóminni að halda
áfram að safna munum til safnsins frá
góðfúsum gefendum og til þess að glæða
áhuga almennings fyrir málinu, vili það
benda á, að heppilegt sé að fá sérstaka
söfnunarmenn úti um bygðir og að hafu
þá muni, sem þegar hafa gefist, til sýnis
á ákveðnum stað i Winnipeg.
Jakob Jónssno
Guðbjörg Sigurðsson
Guðm. Amason
Till. Fred Swanson og séra B. Theo.
Sigurðssonar að álitið sé viðtekið eins
og lesið. Samþykt.
Skýrsla Rithöfundasjóðsnefndar:
Milliþinganefnd sú, er haft hefir með
höndum fjársöfnun fyrir rithöfundasjóð-
inn leyfir1 sér að leggja fram eftirfylgj-
andi skýslu:
Samkvæmt skýrslu féhirðis voru í
sjóði 15. febr. 1935; $221.63.
Safnað í sjóðinn frá 15. febr. 1935 til
15. febr. 1936, $20.50. Vextir á árinu,
$4.00. Samtals $246.13.
Útborganir á árinu til skáldsins Jó_
hann Magnúsar Bjamasonar $50.00. 1
sjóði 15. febr. 1936, $196.13.
Safnað síðan 15 febr. 1936, $34.50.
I sjóði nú, $230.43.
Skýrsla yfir gefendur.
Safnað af Jónasi K. Jónassyni:
Bjöm Eggertsson, Vogar ...........$ 3.00
Asm. Freeman, Siglunes............. 3.00
Jón Hávarðsson, Hayland ........... 1.00
Sigurður Sigfússon, Oakview ....... 2.00
Jónas K. Jónasson, Vogar .......... 1.00
Ragnar Johnson, Wapah ............. 1.00
Samtals --------------------$11.00
Safnað af Guðm. Amasyni:
Mrs Kristín Snædal, Lundar .........$ 1.00
Daníei Lindal, Lundar ............... 1.00
Magnús Kristjnásson, Lundar ......... 1.00
A. V. Olson, Lundar ....................50
Soffanías Thorkelsson, Winnipeg .... 5.00
Páll S. Pálsson, Winnipeg ........... 2.00
Asm. P. Jóhannsson, Winnipeg ....... 10.00
Mr. og Mrs. Einar Johnson, Wpg. 1.00
Guðm. Arnason, Lundar ........... 2.00
Samitals .....................$23.50
Safnað af Ama Eggertson:
Bjöm Eggertson, Vogar..............$ 3.00
J. K. Jónasson, Vogar.............. 1.00
Asm. P. Freeman, Siglunes.......... 3.00
Sigurður Sigfússon, Oak View ...... 2.00
Jón Hávarðson, Hayland ............ 1.00
Soffanías Thorkelson, Winnipeg .... 5.00
Páll S. Pálsson, Winnipeg ......... 2.00
Mrs. Kristín Snædal, Lundar ....... 1.00
Asm. P. Jóhannsson, Winnipeg....... 10.00
Dr. Rögnv. Pétursson, Winnipeg .... 10.00
Dr. Jón Stefánsson, Winnipeg ...... 5.00
Deildin “Iðunn” Leslie ............ 5.00
Ami Eggertson, Wixmipeg .............200
Samtals ....................$50.00
Till. dr. R. Beck og B. E. Johnson' að
skýrslan sé viðtekin og bókfærð og
nefndinni þakkað fyrir vel unnið starf.
Samþykt.
Ný mál
Islenzkir fulltrúar í innkaupanefnd
bæjarbókasafnsins
Nefnd sú er skipuð var til að ihuga
þetta mál hefir haft naumann tíma til
að starfa og leita sér nauðsynlegra upp-
lýsinga. En að því sem virðist er máli
þessu háttað á þessa leið:
Gert er ráð fyrir að skipuð verði borg-
aranefnd hér í bæ, er starfi ásamt bóka-
safnsnefnd bæjarráðsins, að því að efla
bókhlöðuna að bókum og handritum og
öðrp| er slíkum stofnunum heyrir til. —
Nefnd þessi starfar kauplaust. I verka-
hring hennar ér að velja, í samráði við
! hina opinberu umsjónarmenn, bækur,
blöð og tímarit er keypt skuli til safnsins.
Nú með því að verk þetta hefir í sér
fólgið ákveðna þjóðræknislega þýðingu
og Islendingar hafa þar til réttar að
kalla, er til þess kemur að velja um
bækur fyrir lestrarsöfn, þá leyfir nefnd-
in sér að leggja til:
1. Að þingið feli stjómamefnd Þjóð_
ræknisfélagsins þetta mál, með þeim
fyrirmælum að nefndin hlutist til um
það að Islendingiim tveimur eða fleir-
um sé veitt staða í þessari nefnd.
2. Að þinglð skori hér með á hlutað-
eigandi bókhlöðunefnd að hún leggi fé
til íslenzkra bóka og blaðakaupa að
réttum hlutföllum við önnur bóka-
kaup til sanfsins, og feli væntanlegTi
stjómamefnd félagsins að framvísa
þessari áskonm og fylgi henni eftir.
26. febrúar 1936.
Jakob Jönsson
Rögnv. Pétursson
ölína Pálsson
Till. Ara Magnússonar og Fred Swan-
son að álitið sé tekið lið fyrir lið.
Till. A. P. Jóhannssonar og Fred Swan-
son að fyrsta grein sé viðtekin eins og
lesin. Samþykt.
Till. A. P. Jóhannssonar og S. W. Mel_
sted að önnur grein sé viðtekin eins og
lesin. Samþykt.
Till. A. P. Jóhannssonar og F. Swan-
son að álitið í heild sé viðtekið. Sam-
þykt.
Tillaga til þings frá séra Jakob Jóns-
son:
Þingið þakkar Asmundi P. Jóhanns-
syni fyrir þá rausn og velvild í garö
vestur-íslenzkra námsmanna, er hann
sýndi með því að gefa herbergi í Stúd_
entagarði Islands þeim til afnota. Jafn-
framt vill það hvetja þá, sem rétt hafa
til þess, að nota sér þessi ágætu hlunn-
indi.
Jakob Jónsson
Var tillagan studd af dr. R. Beck og
samþykt af þingheimi með þvi að fólk
reis út sætum. Þakkaði A. P. Jóhanns-
son þessa1 viðurkenningu þings með vel_
völdum orðum ög skýrði jafnframt frá
skipulagsskrá i sambandi við veitingima.
Ennfremur flutti hann þinginu kveðju
frá þeim dr, og Mrs. ófeigur öfeigsson.
Dr. Rögnvaldur Pétursson mintist á
starf öfeigs Sigurðssonar í Red Deer i
sambandi við minnisvarða St. G. Siteph-
anssonar. Skýrði hann frá þátttöku
Þjóðræknisfélagsins í þessu máli og gat
þess að á næsta vori mundi fara fram
afhjúpunar athöfn, og væri það ósk
þeirra er sáu um verkið að Islendingar
hér eystra og Þjóðrækinsfélagið taki
þátt í þeirri athöfn. Mæltist dr. Péit_
ursson til að forseti biðji þingið að votta
öfeigi Sigurðssyni þökk fyrir sitt mikla
starf í þessu máli og sé skrifara falið
að tilkynna honum það. Bar fors
málið upp og var það samþykt með því
að fólk reis úr sætum. Einnig var sam-
þykt að viðurkenna kveðju dr. og Mrs.
öfeigsson með bréfi frá skrifara.
Till. séra Guðm. Armasonar og séra B.
Theo. Sigurðssonar áð stjómamefndinni
sé falið að senda fulltrúa að vera við af-
hjúpunar athöfn minnisvarða St. G.
Stephanssonar. Samþykt.
Alyktan þingnefndar viðvikjandi tillögu
hr. Gunnlaugs Jóhannssonar
Þingnefndin, sem skipuð var til þess að
íhuga tillögu hr. Gunnlaugs Jóhannssonar
um það, að Þjóðræknisfélaginu sé falið
á hendur að kaupa og starfrækja nægi-
lega stóran skógarlund í nánd við Win-
nipeg, nothæfan til Islendingadags há-
tíðahalda og annara þjóðlegra samfxmda,
sér sér ekki fært að ráðleggja þinginu
að gera nokkur ákvæði þar að lútandi, að
svo stöddu. En nefndin leggur til:
1. Að þingið lýsi því yfir, að Þjóð-
ræknisfélagið er hlynt öllum þeim hug-
sjónum, sem leita til samvinnu og efling-
ar velferðarmálum Islendlnga í Vestur-
heimi.
2. Að þingið lýsi þvl yfir í sambandi
við tillögu hr. Gunnlaugs Jóhannssonar,
að Þjóðræknisfélagið er fúst til samvinnu
við Islendingadagsnefnd Winnipægbúa, og
að þingið felur því hér með fram-
kvæmdamefndinni málið til meðferðar og
samtals, milli þinga, við þær félags-
heildir, sem sýna áhuga og möguleg.
leika til framkvæmda.
Winnipeg, 26. febr. 1936.
S. W. Melsted
Friðrik Sveinsson
Ingibjörg Goodmundson
A. J. Skagfeld
Th. S. Thorsteinsson
Till. séra Guðm. Ámasonar og Th.
Thorsteinssonar að áUtið sé viðtekið eins
og lesið. Samþykt.
Friðrik Sveinsson gat þess að væntan-
legur væri hingað í sumar Jón Sveinsson
bróðir sinn, í fyrirlestrarferð. öskaði
hann eftir að Þjóðræknisfélagið mundi
greiða götu hans á einhvem hátt.
Skýrði dr. Beck frá hinu mikla rit-
starfi Jóns Sveinssonar og mælti með að
alt væri gert fyrir hann er hægt væri.
Tillögu gerði séra Jakob Jónsson að
þingið feli stjómamefndinni að greiða
götu Jóns Sveinssonar eftir mætti er
hann kemur á komandi sumri. A. J.
Skagfeld studdi tillöguna og var hún
samþykt í einu hjjóði.
Bað ritari um leyfi að mega lesa fund-
argerð eins langt og hún væri komin,
þvi hann yrði fjarverandi um kvöld'
Var það leyft og fundargerðin lesin og
samþykt með tillögu frá séra Jakob
Jónsson studd af dr. R. Beck. Var fundi
því næst frestað itil kl. 8. að kveldi.
Klukkan 8 að kveldi var fundur settur
af fráfarandi forseta J J. Bíldfell. Gat
hann þess að fyrst yrði skemtiskrá og
svo lokið við fundarstörf á eftir. Bað
hann hinn nýkjöma forseta dr. Rögnv.
Pétursson, séra B. Theo. Sigurðsson, dr.
R. Beck og Lúðvik Kristjánsson að taka
sæti á palli.
Var þá sungið “Hvað er svo glatt’’, af
öllum. Þá söng flokkur Jóns Bjamason-
ar skóla undir stjóm Salóme Halldórsson
sex íslenzk Jög.
Framsögn, íslenzkt ljóð, John ButJer.
Upplestur, kafli úr sögunni "Sjálfstætt
Fólk”, Guðm. Ámason.
Ridhard Beck flutti kveðjur frá há-
skóla Norður.Dakota og flutti einnig
frumort kvæði, “Vetur”.
Snögur, “Fósturlandsins Freyja”, allir.
Séra B. Theo. Sigurðsson flutti þá á-
gætt erindi, "Þjóðernisvemd”.
Söngur, "Vorið er komið”, allir.
Lúðvik Kristjánsson flutti tvö frumort
kvæði.
Walter Jóhannsson talaði nokkur orð
um Karlakór Islendinga í Winnipeg og
það að kórinn hefir ráðist í að syngja
kantötu Jóns Friðfinnssonar.
Var nú tekið til ólokinna fundarstarfa.
Dr. R. Beck lagði til fyrir hönd stjóm-
amefndar að skáldið K. N. Júlíus 3é
gerður heiðursfélagi. B. E. Johnson
stunddi og var hún samþykt í einu hljóði
af þingheimi.
Þakkaði forseti þá fulltrúanum, með-
limum og gestum fyrir starfið á þinginu,
og öllum er höfðu fjölment á fundi og
samkomur þingsins. Var þá fundarbók
lesin og samþykt með tillögu frá dr.
Rögnv. Péturssyni og dr. R. Beck
Sagði forseti þá slitið hinu seytjánda
ársþingi Þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi.