Heimskringla - 22.04.1936, Blaðsíða 1
L. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIBVIKUDAGINN, 22. APRÍL, 1936 NÚMER 30.
HEIMSKRINGLA ÓSKAR ISLENDINGUM GÓÐS 0G GLEÐILEGS SUMARS
HELZTU FRETTIR
Koma Kolumbusar
til Ameríku
Vestan frá Vancouver liefir
Hkr. iborist sú fregn, að ítalir
séu að undirbúa isýningu af
komu Kolumbusar til Ameríku,
á 50 ára minningarhátíð Van-
couver^borgar ;lá komandi
sumri. ítalskir borgarar bæj-
arins, eða Britisb Columbia-
fylkis, bafa sótt um leyfi til
þsesa og verður eflaust veitt
það.
Það sem þeir hafa ií hyggju
að sýna, er hið forna heimili
Kristófers Kolum|busar. Enn-
fremur Kolumbus sjálfan, er
hann kemur til Ameríku á báti,
er sigla á inn The Narröws,
svo nefnd, og einnig er Indíán-
ar taka á móti honum á stað
þeim er Lumbermans Aroh heit-
ir. Þaðan verður svo haldið til
borgarinnar (Burrard). Allir
sem þátt taka í þessari, sýn-
ingu (Pageant), verða klædd-
ir búningum frá þeim tímum
er Kolumbus fann Ameríku.
Auk þessa er áformað að
sýna menningarskerf ítala til
þjóðh'fs þessa lands.
En ítalir verða ekki eini þjóð-
flokkurinn, er afreksverk sín
og sinna sýna á þessari hátíð
iborgarinnar. Norðmenn ætla
ekki að sitja hjá, meðan ítalir
sýna þjóðinni sinn uppgötvara.
Ameríku. Þeir hafa einnig á-
ikveðið að sýna komu Víkinga
til Ameríku, undir forustu Leifs
Eiríkssonar. Er sagt talsvert
kapp milli þessara þjóðflokka
um að koma þjóð þessa lands í
skilning um hver uppgötvað
hafi Ameríku.
Að líkindum taka ísleindingar
einhvern þátt í þessu með
frændum sínum, Norðmönnum.
Mælir flest með því að ,þeir
vinni saman að þessu. Norð-
menn hafa sýnt talsverðan
dugnað í að kynna Leif, sem
uppgötvara Ameríku, og þar
sem að það er nú ávalt að verða
mönnum hér Ijósara, að hann
var íslendingur af norrænum
ættum eins og aðrir íslending-
ar, virðist hættan horfin um
að Norðmenn eigni sér hann
og ekkert óeðlilegt við það, að
íslendingar og Norðmenn legð-
ust á eitt með að kynna þjóð
þessa lands sögulegu sannindin
um fund Ameríku, eins og forn-
sögur íslendinga segja frá hon-
um.
BlálandsstríðiS
Fýrri hluta þessarar viku var
búist við úrslita orustunni á
norðurvígstöðvum Blálands um
höfuðborgina Addis Ababa. —
Blálands-'keisari kallaði hvern
einasta mann, er vetlingi gat
valdið til þess að fara á móti
ítalska hernum, er til höfuð-
iborgarinnar hugsar sér að brjót.
ast. Hvar fundum herflokkanna
slær saman, vita menn ógerla.
En frá Addis Ababa er liðið lagt
af staö, leit berfætt lögreglan
eftir öliu, meðan borgin svo að
segja tæmdist af fólki. Þeir einir
sem eftir íeru, hafa stjórnar-
störfum að gegna, sem starf-
rækja verður til hins síðasta.
Brezka sendiherrasveitin tók
sér bólfestu 3 mílur út úr bæn-
um s. 1. mánudag. Er skoðun
hennar sú, að þess verði skamt
að bíða, að ítalir taki höfuð-
borgina. Söfnuðust annara
þjóða menn þarna að, af því
þeir töldu sig þar hólpnasta.
En er þá ekki stríðinu lokið,
ef höfuðborgin er teikin? Ó-
nei. Blálendingar eru dreifðir
um fjöll og firnindi og balda
áfram árásum á ítala úr fylgsn-
um sínum hvenœr sem kostur
er á því.
Þjóðabandalagið í hættu
Síðast liðna viku þverneitaði
ítalía öllum friðarskilmálum
Þjóðabandalagsins á fundi er
fjallaði um Blálandsstríðið, og
Mussolini sendi fundinum þau
boð, að hann sættist ekki á
neitt minna, en að alt Bláland
væri lagt undir ítalíu.
Þjóðbandalagið stendur þvi
þarna ráðalaust uppi. Og að
það geti dregið dilk á eftir sér,
að koma ekki neinni hegningu
fram við þjóð, sem brýtur eins
lög og reglur Þjóðabandalags-
ins og Mussolini hefir gert, með
því að nota eiturgas í stríðinu
við Blálendinga, var fyllilega
viðurkent á fundi Þjóðabanda-
lagsins s. 1. mánudag.
Eftir þann furud gaf Anthony
Eden ut tvær yfirlýsingar til
allra þjóða í Þjóðabandalaginu.
Var hin fyrri um það, að ef þjóð-
irnar í Þjóðabandalaginu væru
ekki samtaka um það að stíga
þau spor sem með þyrfti’ til að
hegna brotlegu þjóðinni, ættu
þær þjóðir á hættu, að Bretland
bæri enga ábyrgð á því er af
því leiddi fyrir þær. Með brot-
legu þjóðinni átti Eden auðvitað
við ItaMu.
Sfðari tilkynningin var um
það, að Bretland mundi ekki
sjá sér fært að vera í Þjóða-
bandalaginu, ef félagsþjóðimar
létu afskiftalaust, að lög og
réttur Þjóðabandalagsins væri
fótum troðinn og það mundi þá
á annan hátt vernda eða tryggja
ríki sitt.
Um leið og fulltrúi ítah'u
liafði lokið máli sínu á fundin-
um, reis Anthony Eden utan-
ríkismálaráðherra Breta úr sæti
og fórust meðal annars orð á
þessa leið:
“Er nokkur sá hér, er nokk-
ur sú þjóð til á jörðinni, sem
getur sagt í einiægni, að það
ikomi henni ekki við, hvort þessi
grein iaga vorra um notkun eit-
urgas í stríði sé brotin. Hún
snertir íbúa hverrar einustu
stórborgar út um allan heim. —
Hún er þeim trygging fyrir því,
að þær verði ekki gereyddar.
Ef að hægt er að rífa í tætlur
samning sem þennan, fara þá
ekki menn að spyrja í okkar
þyttbygðu Vestur-Evrópu, og
ekki að ástæðulausu. Hvaða
gijldi hafa þessir samningar,
sem fulltrúar okkar hafa und-
irskrifað ?
Hvaða tryggingu höfum við
fyrir því, að vor leigin þjóð,
þrátt fyrir alla undirskrifaða og
eiðsvarna samninga, verði ekki
brend upp, blinduð eða drepin á
kvalafylsta-hátt — með eitur-
gasi hér eftir?
Að því er stjóm vora snertir,
er henni ekkert meira áhuga-
og alvörumál en það, að lögin
er banna notkun eiturgass í
stríði séu haldin. Og hún mun
minna allar þjóðirnar í Þjóða-
bandalaginu á það, að þessi
lagagrein, sem iþær skrifuðu
undir 1925, er ein hin mikil-
veröasta og að það hvíli skylda
á hverri þjóð, að sjá um að
hún sé ekki að vettugi virt.”
Fyrirlestur um
Islandsferð
Dr. Jóhannes Pálsson, sem
nýkominn er til Winnipeg úr
Islandsferð, flytur fyrirlestur
um ferð sína næstkomandi
föstudag í kirkju ISambands-
safnaðar í /Winnipeg. Heims-
kringla vill vekja eftirtekt Win-
nipeg-íslendinga á því, að með
þessu gefst þeim tækifæri að
hlýða á einn af okkar snjöll-
ustu ræðumönnum, sem eiga
má víst, að margt markvert og
skemtilegt getur okkur sagt, úr
ferðinni, því dr. Pálsson hefir
næmt auga fyrir hlutunum. —
Hann hefir og fulla einurð á að
segja það sem honum sýnist —
og segir það undantekningar-
laust vel. Fyrirlesturinn hefst
klukkan 8 að kvöldinu. Enn-
fremur skemta Jóhannes Páls-
son og Lilja Pálsson með hljóm-
leikum.
Inngangseyrir 25c.
Sambandeþingið
Arthur B. Purvis heitir sá,
sem valinn hefir verið til for-
manns atvinnubótanefndarinnar
sem innan, skamms verður á
laggir sett af sambandsstjórn-
inni. Skýrði forsætisráðherra
frá þessu á þinginu s. 1. mánu-
dag.
Purvis þessi er forseti Can-
adian Industries Limited. Hann
á heima í Montreal. Til Canada
kom hann 1925 frá Englandi.
Að dæma af því hvernig hanh
hefir komið ár sinni hér fyrir
borð, á ekki lengri tíma, mun
hann hæfileikamaður.
Sjö aðrir verða úr hinum og
öðrum stéttum þjóðfélagsins
skipaðir í þessa nefnd, þar á
meðal ein kona.
Frumvarpið um fjárveitingu
til atvinnubóta heimilar að lána
eða gefa (subsidize) iðnstofn-
unum fé til að fjölga mönnum
í vinnu hjá sér. Purvis, sem er
meðstjórnandi rnargra iðnstofn-
ana, ætti að geta gefið upplýs-
ingar um hvar þessa er kostur.
A. A. Heaps, þingmaður frá
Winnipeg, minti á að 225 verka-
mönnum hefði nýlega verið vís-
að frá vinnu í Transoona-
smiðjum CNR félagsins og
mæltist til að stjórnin léti sig
það skifta. Stjórnin kvað þetta
koma járnbrautafélaginu við en
ekki sér. Heaps hélt að-stjórn-
inni væri ekki CNR kerfið óvið-
komandi ennþá.
í þessum bæ eru vinnuveit-
endur sífelt að fækka staffs-
fólki. Og styrkþegum fjölgar
að sama skapi. Á þessu vori
hafa tímar verið hér daufari en
nokkurt undanfarið kreppuár.
Það eru sömu áhrifin að koma
í ljós, af stjórn Kings, og 1930.
England,
Neville Chamiberlain, fjár-
málaráðherra Breta, las upp
fjárhagsáætlun sína fyrir árið,
sem fer í hönd, í þinginu í gær.
Útgjöldin sem ráð er gert fyrir
nema £797,897,000 ($3,989,480,-
000). Er viðbótin síðasta til
herútbúnaðar £20,000,000 —
($100,000,000) í því talin. —
Teikjurnar bjóst hann við að
yrðu £776,606,000 eða um £20,-
000,000 minni en útgjöldin. En
það fé býst hann við að hafist
upp með hækkun á tekju-, te-
og bjór-skatti, sem gert er ráð
fyrir, og sem fjármálaráðherra
kyggur verða muni meiri, en í
áætluninni stendur.
Skattur á bjór þykja mikil
tíðindi og ill á Englandi. Eng-
lendingurinn hefir ávalt skoðað
bjórglasið sitt jafn heilagt per-
sónufrelsinu eða einhverju því
um líku, og finnur sig móðgað-
ann með þessu.
Á síðast liðnu ári var nærri
15 rniljón dollara tekjuafgang-
ur. En útgjöldin í ár eru hærri
en áður.
NámaslysiS
Eins og áður var sagt frá í
Heimskringlu, urðu þrír menn
frá Toronto fyrir því óhappi, að
náma sem þeir höfðu keypt í
Moose River, N. S., féll saman
er þeir voru að skoða hana. —
Þetta var 12. apríl og hafa
mennirnir verið innilokaðir 141
fet leða meira niður í jörðinni
síðan. Hafa þeir átt við harð-
rétti að búa, bæði matarleysi
fyrst og illa aðbúð, kulda og
raka og slæmt loft. Þegar þetta
er skrifað, hafa þeir ekki náðst,
þrátt fyrir að unnið hefir verið
látlaust að björgun þeirra. —
Samibandi var loks eftir nokkra
daga náð við þá með síma. Varð
síðar ljóst, að einn þeirra, Her-
man Magil, er dáinn og að
hinir tveir, dr. D. E. Robertson
og Alfred Scadding eru mjög
aðþrengdir og illa haldnir, eru
orðnir svo máttvana að segja
má að þeir liggi dauðvona og
fái fátt mælt niðri á votu gólfi
:í námunni. Er eftir allan þenn-
an tíma, 12 eða 13 daga, mildi,
að þeir eru ekki allir dauðir.
Fregnin af slysi þessu hefir
vakið feikna athygli og útvarpið
hefir sáðustu dagana skýrt á
hálftíma fresti frá hvernig gengi
að grafa göngin niður til þeirra.
Er nú búist við fregn, er þetta
er skrifað, á hverri stundu um
að göngin séu fullgerð niður í
námuna. Þeir sem eru að grafa,
heyra orðið til þeirra sem inni-
Ibyrðir eru, svo öll von og lík-
indi eru til að þeir náist hjar-
andi.
Sú óskapa töf sem orðið
hefir á björgun stafar mikið af
því, að enginn uppdráttur var
til af námunni og enginn vissi
því hvar leita skyldi mannanna.
Flugvélar og bílar með gasorku
Norskur maður 'hefir fundið
upp hraðgenga aflvél (túrbínu),
sem er knúin með gasorku og
hægt er að nota í flugvélum,
Ibílum og skipum.
Uppfinningamaðurinn heitir
Vittke. Telja sérfróðir menn
að uppfinning þessi muni leiða
af sér stórkostlegar breytingar
í vélaiðnaðinum.
Uppfinningamaðurinn, sem er
vélfr. að iðn, hefir fengið
sérleyfi fyrir uppfinningu sinni
í Noregi, og hefir sótt um al-
heimsleyfi (verdenspatent) fyr-
ir henni.
Heimsókn Roosevelts
Á orði er að Roosevelt Banda-
ríkja forseti muni heimsækja
Canada á komandi sumri. Ef
af því verður er búist við því 9
og 10 júní. Landstjóri Canada
hefir boðið honum.
i
Áflæði
Um helgina hljóp mikill vöxt-
ur í Assiniboine-ána. Flæddi
yfir bakkana í þorpunum Curtis
og Newton, svo að þar varð
sem stöðuvatn á allstóru svæði.
Eitthvað af fólki varð að flytja
sig og búslóð sína burtu.
Munið eftir sumarmálasam-
komunni í Sambandskirkju
annað kvöld (fimtudagskvöldj.
Þar hefir vel verið vandað til
skemtana. — Dr. Rögnvaldur
Pétursson flytur þar ræðu og á
skemtiskránni er sumt af okkar
bezta söngfólki. Inngangur ó-
keypis, en samskot tekin.
* * *
Skugga-Sveinn verður leikinn
í leiksal Sambandskirkju mánu-
daginn 27. apríl í þriðja sinn.
Af aðsókn að dærpa síðara
kvöldið sem hann var leikinn.
mun þetta mörgum þykja góð
frétt.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
íbúðarhús á kafi í fönn
í Siglufirði
Rvík. 22. marz
í gær rofaði tik á Siglufirði
og veðurofsann lægði. En fann-
kyngi er komið þar svo mikið,
að eigi eru dæmi til slíks.
í gærmorgun varð að hjálpa
fólki úr mörgum húsum, sem
alveg voru fent í kaf. Tíðinda-
maður blaðsins átti tal við
mann, sem hafði hjálpað til að
moka frá 5 húsum, svo fólk
kæmist úr þeim.
Svo mikið er fannfergið, aö
einlyft íbúðarhús eru sum alveg
í kafi í fönn. T. d. þurfti fólk
sem býr í lágreistu húsi að
moka ofan af reykháfnum,
áður en eldur var kveiktur í
eldfærum hússins.
Mikill veðurofsi var þá daga,
sem fannkoman var, er reif upp
háa skafla.
Niður á eyrinni eru skaflarnir
svo háir, að sumsstaðar verður
gengið af þeim inn um glugga
á 3 hæð húsanna.
Svo mikil snjóþyngsli Voru á
þaki á einu fbúðarhúsi uppi und
ir fjallinu, að hætta var á að
þakið brotnaði niður. Var tekið
að bresta í máttarviðum húss-
ins áður en tími vanst til að
moka fönninni ofan af því. —
Ýms léleg útihús, beitinga skúr-
ar og þess háttar hafa alveg
sligast af fannkynginni.
Mjög er erfitt um alla að-
flutninga til bæjarins vegna ó-
færðar. Á fsötudag voru 6
menn með 7 hesta í 3 klst. að
koma 100 h'trum af nýmjólk
tveggja kílómetra veg.
Þegar blaðið átti tal við
Siglufjörð í gærkveldi var veður
mikið að batna.
Telja menn að mikil hætta sé
á því, að snjóflóð skelli yfir þá
og þegar, einkum austanmegin
fjarðarins. En úr hh'ðinni ofan
við bæinn er hættan ekki yfir-
vofandi, m. a. vegna þess að
norðanveðrið hefir rifið mikið af
snjó úr hlíðinni vestan megin
fjarðarins.—Mbl.
* * *
Fóður endist til sumarmála
í Þingéyjarsýslu
Veturinn hefir verið harðari
hér í sýslu, en í undanfarin
mörg ár.
Heybirgðir eru því að verða
af skornum skamti víðast hvar
í útsveitum.
Er til að ví(5a um sveitir
endist fóður handa sauðfé ekki
lengur en til sumarmála.
Mývetningar munu vera
nokkru birgari með hey.
Vegna fannkyngi er mjög erf-
itt að koma kornvöru um sveit-
irnar.
Útlitið er afar ískyggilegt
jafnvel þó sæmilega vori.
—Mibl. 19. marz.
Bændur í Jökuldal verða
fyrir fjárskaða
Bændur á Eiríljsstöðum í Jök-
uldal urðu fyrir tilfinnanlegum
fjárskaða í síðara hluta febrú-
armánaðar.
Bændurnir beittu fé sínu
austur yfir Jökulsá og upp á
heiðina austan megin árinnar.
Skall á hríðarveður og hröktust
80 kindur víðsvegaa* um heið-
ina, sumar alla leið austur í
fljótsdal, og aðrar suður undir
Snæfell.
Um 40 kindur voru ófundnar
þegar síðast fréttist.
• * *
fslenzkur sendiherra-
ritari á Spáni.
Khöfn. 19. marz.
Pétur Benediktsson cand. jur.
sonur Ðenedikts Sveinssonar
fyrv. alþm., mun innan skamms
taka við embætti sendiherra-
ritara við dönsku sendisveitina
í Madrid (Spáni).
Pétur hefir starfað í utan-
ríkismálaráðuneytinu í Khöfn
Síðan sumarið 1930, og hefir
getið sér ágætt orð.
* * *
101 árs öldungur látinn
Rvík. 24. marz.
í fyrradag andaðist Ólafur
Árnason, Akurey í Landeyjum,
101 árs og 8 mánaða gamail.
Hann var fæddur að Bjólu 17.
ágúst 1834. Árið 1864 kvæntist
hann Önnu Gísladóttur frá
Sumarliðabæ.
Ólafur var fjörmaður og karl-
menni. Hann gekk að heyskap
níræður og las á bók þangað til
hann var 98 ára gamall. Fóta-
vist hafði hann þar til hann var
rúmlega 100 ára gamall.
Ólafur stundaði búskap og
bjó góðu búi, þar til hann misti
konu sína 1891. Síðan hefir
hann dvalið hjá börnum sínum.
Sn'ðustu árin hefir hann dvalið
hjá Ólafi syni sínum á Akurey.
* * *
Spellvirkjar brjóta
rúður í Þjóðleikhúsinu
Rvík. 22. marz
Einhverjir óvandaðir strákar
hafa ge)rt sér leik að því undan-
farna daga, að brjóta rúður í
Þjóðleikhúsbyggingunni við
Hverfisgötu. Þessir spellvirkjar
virðast hafa farið í hringferð
kringum alla bygginguna til að
brjóta og skemma.
Flestar rúður eru brotnar á
norðurhliðinni, og heflr óknytta
piltunum jafnvel tekist að
brjóta efstu gluggana á gaflin-
um.
Pörupiltar bæjarins, eru að
jafnaði 'kjomniir, — eins og
hrafnar á hræ—að mannlaus-
um byggingum til að skemma
og eyðileggja. Hingað til hafa
það þó verið óskráð lög allra
bæjarbúa að hlífa Þjóðleikhús-
byggingunni, því menn bera ó-
sjálfrátt virðingu fyrir þessari
voldugustu höll höfuðstaðarins,
og þyikir vænt um hugsjónina,
sem liggur á bak við. Hefir
Þjóðleikhúsið alla tíma árs
fengið að vera í friði fyrir á-
gengni og skemdafýsn manna,
og af þeim ástæðum ekki þurft
að hafa gæslu þar. Allir hlakka
til þess dags, þegar Þjóðleik-
húss-hugmyndin er orðin að
veruleika, og menn ættu nú,
eins og hingað til, að vera san>-
taka upi að vernda þessa bygg-
ingu, sem á að vera tákn menn-
ingar og framfara—Mbl.
Söngflokkur Sambandskirkju
efnir til söngskemtunar 14. maí
n. k. Nánar auglýst síðar.