Heimskringla - 19.08.1936, Blaðsíða 2

Heimskringla - 19.08.1936, Blaðsíða 2
2. SÍÐA. MEIMSKRINGLA WINNIPEG, 19. AGÚST, 1936 lÉieimskringlct (Stofnuð 1888) Kemur út á hverjum miðvikudegi. Elgendur: THE VIKING PRESS LTD. 853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimis 86 537 Verð blaðslns er $3.00 árgangurlnn borglat fyrlrfram. Allar borganlr sendlst: THE VIKING PRESS LTD.___________ 311 vlðsklfta bréí blaðinu aðlútandi sendist: Manager THE VIKING PRESS LTD. 853 Sargent Ave., Winnipeg Ritstjóri STEFAN EINARSSON Utanáskrift til ritstjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg “Heimskringla” is publiahed and printed by THE VIKING PRESS LTD. 853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man. Telepíione: 86 637 WINNIPEG, 19. ÁGÚST, 1936 B R É F J. P. Heimskringla er þakklát Jónasi Páls- syni hljómleikakennara fyrir gott og skemtilegt bréf, sem birt var í síðasta tölublaði. Eigi að síður skal við eitt atriði, sem þar er haldið fram, gerð ofurlítil athugasemd. Bréfið gefur í skyn, að átakanlegir ann- markar séu á því, að fá aðsendar greinar birtar í íslenzku blöðunum. Ef þetta væri sannleikur um “vel skrifaðar” greinar, eins og bréfritari kemst að orði, væri því ekki bótmælandi. En þar um segist Hkr. að sínu leyti ekki sek. Það er satt, að blöðin birta ekki nærri alt, sem þeim berst. En hver mundi óska þess? Greindur maður og smekkvís eins og J. P. er, mundi trauðla taka því með þolinmæði, jafnvel þó öðrum fremur sé gæddur þeirri heilsusamlegu gáfu að geta hent gaman að hlutunum. í augum þess er þetta ritar, er það ef tii vill einn stærsti kostur blaða, að hafa hemil á því sem birt er. Greinar sem við lög varða, eða skrif, sem að málfæri til eru óalandi og óferj- andi, eru það eina sem blöðin leggja hömíur á að birta. Og hve strangt þau fylgja þessu síðara boðorði, geta menn dæmt um sjálfir, af sumu sem birt er. J. P. viðurkennir og þetta óbeinlínis í grein sinni þar sem hann minnist á “sum kvæð- in”, sem blöðin flytji. Synd blaðanna er ef til vill miklu fremur í því fólgin, að þau birti ofmikið, séu ekki nógu vandlát., en hinu, að þau takmarki um of málfrelsi, ekki sízt er um persónulegar deilur er að ræða. Blöð hafa skyldum að gegna gagnvart lesendum sínum og kaupendum, eins og J. P. segir. En sú skylda er ekki í því fólgin, að þau birti hvert hleypidóma-rugl, sem berst, eða séu málsvarar hvers þess, sem troða þarf illsakir við náunga sinn. Blöð eru ekki þröngsýn fyrir það, þó þau gerist ekki boðberar hverrar óhlutvendni, sem í mannlegu eðli býr. Af reynslu get um vér um það dæmt, að menn senda blöðum greinar, sem þeir vildu ekki sjálf- ir nokkurs staðar flytja opinberlega, vegna þess, að þeir skömmuðust sín fyrir það Og svo er þess krafist af blöðum, að þau séu máltúða annars eins. Með greinum sem blöðum eru stundum send, fylgja bréf, sem tilkynna að hö' undar beri ábyrgð á hverju orði, sem hald- ið sé fram. Fyrir lögunum gera höfundar það ekki, heldur blaðið, fyrst og fremst. Á þetta er sjaldnast litið, er blöðunum er brugðið um, að þau séu “þrándur í götu” málfrelsis. Flest eða alt það lesmál, sem ekki hefir fundið náð hjá blöðunum, má flokka sam- kvæmt því, sem hér hefir verið bent á — og eins það, sem J. P. minnist á, þó hér verði þess ekki frekari grein gerð. Heimskringla er að vísu ekki sammála J. P. um sumt annað í bréfi hans. En hún skoðar það í gamni sagt og tekur þessvegna ekki hart á því eins og t. d. þvf, að bragðgott sé að lesa eftir höfund einn hér vestra er í Lögberg skrifar ærið, og sem kynt sig hefir fremstan í flokki þeirra er nefnast mega blöðútbíandi skriffinnar. En þetta hefir eflaust orðið J. P. á óafvit- andi af því að hann les ekki Lögberg gaumgæfilega, svo hér skal ekki orðlengt um það. Þó Heimskringla hafi skoðað það nauð- synlegt, að gera þessa athugasemd við grein J. P. um afstöðu blaðanna til mál- frelsis, vonar hún, að bréfritinn lfti ekki á það, sem ónot í hans garð. Og hún vill fullvissa hann um það, að gefi nokkurt orð tilefni til þess, þá sé það ofsagt. — Henni geðjaðist vel að anda bréfsins; þaí var hressandi og gamansamt og hún get- ur fullyrt, að lesendur hennar hafa haft skemtun af að lesa það. Heimskringla á því láni að fagna, að í hana skrifa nú margir hér vestra ágætar greinar og bréf. Það innlegg þakkar hún og vildi heldur að áfram héldist, en hitt. Hverrar skoðunar menn eru, gerir ekk vitund til, eins lengi og stilt er í hóf ui> rithátt. SPÁ-ATKVÆÐAGREIÐSLAN Það er nú aðeins hálfur þriðji mánuður þar til forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum. Og spá-atkvæðagreiðsla (straw-vote), um hver setjast muni í forseta-stólinn, hefir farið fram. Slíkt er orðið að landfarsótt í hverjum forseta- kosningum. En rætast þær spár og hefir þessi málamynda-atkvæðagreisla nokkui gildi? Þó skrítið kunni að virðast, eru úrslit þeirra oft mjög hin sömu og í al- mennum kosningum. Árin 1929 og 1932 munaði sama Sem engu um að spá- atkvæðagreiðslan rættist, er Hoover og Roosevelt voru kosnir. Nú sýnir spá-atkvæðagreislan þá mikið til jafna, Landon og Roosevelt. Hinum síðarnefnda vegnar þó ögn betur, en á- kaflega lítið. En svo sögunni sé haldið áfram, er for- seti Bandaríkjanna ekki kosinn með al- mennu atkvæði, heldur af kjörnefnd (electors), sem er jafnmörgum skipuð og fulltrúar efri og neðri-deildar þingsins frá hverju fylki á Washington-þinginu eru. Þetta er gert til þess, að þingmenn eða stjórnarembættismenn ráði engu um for- setakosninguna. Þessi kjörnefnd er mis- jafnlega mannmörg í hverju fylki. í New York eru flestir í henni, 47, í Nevada fæst- ir, aðeins 3; alls eru í kjörnefnd 531 menn, svo forseti verður að hafa 266 atkvæði til þess að ná kosningu. En forseta-efnið, sem í meiri hluta er í hverju fylki, hlýtur tölu allra atkvæða í fylkinu. Er auðséð af því, hve langt getur stundum verið frá því, aö‘ forsetinn sé kosinn af meiri hluta þjóðarinnar. Eins og spákosningin ber með sér og vitanlegt er, eru suðurríkin tólf með Roosevelt. Þau hafa fylgt demókrötum frá tímum borgarastríðsins, nema hvað nokkur þeirra veittu HOover að málum 1928, á móti A1 Smith, aðallega vegna þess, að iSmith var kaþólskur. En þessir glötuðu synir komu aftur heim til föður húsanna, demokrataflokksins í kosning- unum 1932 og kusu Roosevelt. í sumum þessara ríkja, Mississippi t. d. hefir Roosevelt 90 atkvæði, en Landon 10; í Suður-Carolina hefir hann 86 á móti 14. En þó sigur Roosevelts sé nú þama mikill, er Landon í talsverðum meiri hluta í Ný- Englands fylkjunum. Þau eru nú nálega eins viss að vera með Landon og Suður- ríkin með Roosevelt, og fylgið sem Roose- velt naut þar í síðustu kosningum, virðist farið, af spá-atkvæðinu að dæma. Eftir eru þá vestur fylkin og iðnaðar- fylkin milli New York og Illinois. í þeim falla spá-atkvæðin ótrúlega jafnt í hluta Landons og Roosevelts. Vesturfylkin voru æði eindregin síðast með Roosevelt, en eitthvað virði^t hann hafa tapað þar. — Þess er getið til, að það eigi rætur að rekja til þess, að uppbótin sem bændum var þar greidd fyrir að takmarka fram- leiðslu sína, er nú úr sögunni, síðan A. A. A. lögin vom dæmd ógild af hæstarétti. En nú lofa bæði forseta-efnin ýmsum fríðindum þar. Landon er og frá Kansas. Að hann eigi fylgi í miðvesturfylkjunum, eins og spá-atkvæðin sýna, er því ekki mót von. í New York, Pennsylvania, Michigan o g Illinois, eru spá-atkvæðin talsvert jöfn. Nokkur þúsund atkvæði í hverju þessara fylkja, geta ráðið úrslitum. Spá-atkvæðin skiftast aðallega milli Landon og Roosevelts. William Lemke, radikali hlýtur aðeins 3.4% af þeim. Og Norman Thomas sósíalistinn 1.5%. Mr. Lemke, sem bæði Father Coughlin og dr. Townsend, sem frægur er fyrir ellistyrks- tillögur sínar, fylgja, hlaut 15% atkvæða í heimafylki sínu, Norður-Dakota. Henrik Ibsen var mjög nærsýnn. Ein- hverju sinni sá hann marga menn vera að lesa einhverja götuauglýsingu. Hann gekk þangað, en vegna þess að hann hafði gleymt gleraugum sínum heima, sá hann ekki hvað á auglýsingunni stóð. Hann sneri sér því að manni þar og spurði: •— Hvað stendur þama? — Það veit eg ekki fremur en þér svaraði hinn, því að eg er líka ólæs.—Mbl. ÍSLANDS- MINNI Ræða eftir séra Jakob Jónsson, flutt á fslendingadiaginn í Wynyard 3. ágúst, 1936 Heima á íslandi eru það aðallega þrír dagar, sem hafa barist um völdin í með- vitund almennings, sem þjóðhátíðisdag- ar. Það eru 17. júní, fæðingardagur Jóns Sigurðssonar forseta, 2. ágúst, sem er afmælisdagur hinnar fyrstu íslenzku stjórnarskrár og loks 1. desember, sá dagur sem sambandslögin við Danmörku gengu í gildi (1918). Á þeim degi verður ísland aftur sjálfstætt ríki, óháð öðrum þjóðum. Sá dagur, sem eg nefndi síð- ast, fullveldisdagurinn, -skipar nú með þjóðinni æðsta sessinn. Allir þessir dag- ar eru í föstu samhengi. Þeir eru allir tengdir sjálfstæðisbaráttu íslenzkrar þjóð- ar. 17. júní er fæðingardagur þess manns- ins, sem bezt og ötullegast hefir fyrir sjálfstæðinu barist, 2. ágú|st minnir á þann árangur, sem náðst hafði á öldinni sem leið, en 1. desember táknar loka- áfangann, fullveldið sjálft, sem ekki náð- ist fyr en á þessari öld. Það er ekki nema eðlilegt, að flestir íslendingar vest- an hafs hafi valið 2. ágúst sem sinn aðal hátíðisdag, því að þangað var sjálfstæðis- baráttunni komið, þegar vesturfarir stóðu sem hæzt. Svo sem kunnugt er, var fyrsti íslendingadagur haldinn í Mil- waukee 2. ágúst árið 1874. Tvenn rök fylgdu engli þeim. Annars vegar var löngun manna til að halda áfram að leggja rækt við þjóðerni sitt og tungu. Hins vegar var það fögnuðurinn yfir vel- gengni ættjarðarinnar, þráin til að sam- gleðjast bræðrunum heima yfir unnum sigrum í baráttunni fyrir tilveru sinni sem sjálfstæðrí þjóð. Enn þann dag í dag á þetta að vera meginhugsun hvers íslendingadags. Þetta er alvara að baki gamninu. Vér höfum komið hér saman til skemtunar, en að baki þeirrar skemt- unar er löngun til samneytis við íslenzka menn, frændur og vini. Hér viljum vér láta íslenzkt mál hljóma, hér hittist fólk- ið til að minnast liðinnar tíðar, rif ja upp fyrri samverustundir, ýmist frá íslands ströndum og dölum eða frá fornbýlings- árum hins nýja lands. En jafnframt þessu hverfur hugurinn heim. Minni' ís- lands þýðir það, að munað sé eftir ís- landi. Þess vegna er ekki aðeins ein ræða, heldur samkoman sem heild minni íslands. Hugurinn Ihverfur heim. Hug- urinn horfir í austur-átt. Eins og Jónas Hallgrímsson forðum bað sunnanvindinn fyrir kveðju til íslands, þannig biðjum vér nú vestanvindinn um það sama, og ef vér værum stödd austur á Atlants- hafsströnd, þá myndum vér hvísla hinni sömu bón að öldunum, þegar— “Á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum. Ó! heilsið öllum heima rómi blíðum um hæð og sund í drottins ást og friði. Kyrrið þið bárur bát á fiskimiði, blásið þið, vindar! hlýtt á kinnum fríðum.” Að þessu leyti stöndum vér enn í spor- um þeirra, sem héldu hinn fyrsta íslend- ingadag fyrir 62 árum. En hvað er um hitt atriðið, sém er undirstaða íslendinga- dagsins fyrsta? Erum vér að halda há- tíð til þess að íagna yfir nýjum sigrum íslenzku þjóðarinnar? Finst oss, að þar sé enn hin sama ástæða til þess að halda hátíð til þess að samgleðjast bræðrun- um heima yf'ir framförum í þjóðlífinu og vaxandi sjálfstæði? Hvemig er í fáum orðum sagt viðhorf Vestur-íslendinga gagnvart gamla landinu, eins og það er nú. Það mætti halda margar ræður um þetta atriði, ef alt ætti að taka til grelna. — En svo mikið er hægt að fullyrða, að ekki er viðhorf allra manna það sama. Eg vil gera ráð fyrir því, að álit manna á landinu og þjóðinni grundvallist fyrst og fremst á því, sem menn telja sig um hana vita. Menn fá bréf að heiman, lesa bækur og blöð, og þeir, sem það geta veitt sér, fara sjálfir heim til gamla lands- ins. Af öllu þessu mynda menn sér svo skoðanir sínar. Einmitt núna síðustu mánuðina hefir verið um það ritað í Winnipeg-blöðunum, hvaða lálit á ís- landi sé réttast. Þær umræður hafa aðal- lega spunnist af fyrirlestri Dr. Jóhannes- ar Pálssonar, þeim er hann hélt um ís- landsför sína. Það erindi hefir aldrei ver- ið prentað, svo að eg vil leiða minn hest hjá því að dæma um það til né frá. En eins vil eg minnast, að Dr. Pálsson og Tryggvi Athelstan, sem líka hefir látið til sín heyra, eru ekki einu landarnir, sem til íslands hafa komið á síðari árum. Sjálfur Ihefi eg nú orðið hitt marga menn, karla og konur, sem hafa látið í ljósi álit sitt á íslandi og það er út frá þeim samtölum, sem hugleiSingar mínar í þessari ræSu eru sprottnar. Þegar eg rifja upp það sem af landinu, eins og Hrafna- Flóki. Nú hefi eg spurt sjálfan mig hvað geti valdið þessu? Og mér hefir fundist—af viðkynn- ingu við marga menn, sem það sé næsta eðlilegt, þó að ýmsir verði fyrir vonbrigðum, þegar þeir fara heim. Til þess að skýra það nánar ætla eg að reyna að draga upp mynd af öldruðum /íslendingi, sem fer heim til að kynnast æskustöðv- við mig hefir verið sagt af, um sínum. austurförum, kemur mér í hug sagan af Hrafna-Flóka. Hann var einn hinna fyrstu Norð- manna, sem til íslands komu, dvaldi þar nokkuð á þriðja ár og hvarf síðan aftur. Landið var þá óbygt. En þegar hann og förunautar hans komu utan aftur til Noregs, voru þeir spurðir um landið. Flóki lét illa yfir, en Þórólfur skipverji hans sagði, að þar drypi smjör af hverju strái, því er þeir hefðu séð. En herjólfur sagði kost og löst á landinu. Þaraa voru þrír menn; allir höfðu af svipaðri reynslu að segja, en þó urðu þeir ekki bet- ur sammála, þegar til kom. Að öllum líkindum þeikkti ' þó Herjólfur landið bezt. Land- náma segir, að þeir hafi dvalið á Vestfjörðum hið fyrsta sumar eða part úr sumri. Það sum- ar var gott, fénaðurinn gekk sjálfala, en þeir félagar lifðu áhyggjulausu lífi við veiðar í ám og vötnum. Veturinn var aftur á móti harður og þá skorti hey, svo að fénaður þeirra féll. Næsta sumar leggja þeir á stað suður á bóginn; í byrjun ferð- ar hrekur Herjólf frá þeim, svo að hann fer landveg suður og mætir þeim í Hafnarfirði. Mun sú för hafa veitt honum meiri þekkingu á landskostum. Þeir Flóki fundu stórhveli rekið á Hvaleyri. Urðu þeir síðan vetrartíma í Borgarfirði, einni af búsældarlegustu sveitum landsins. Þegar þeir loks héldu Hann er búinn að dreyma um þessa för í mörg ár. Þegar hann sér íslenzk fjöll koma upp yfir sjónhringinn, er • honum innan brjósts eins og barni, sem sér móður sína standa með op- inn faðminn í bæjardyrunum. Hann er hrærður inn að dýpstu Ihjartarótum, þegar skipið legg- ur að bryggju. Ef til vill er þetta helgasta stundin í lífi hans, og þegar hann gengur niður landgöngubrúna, er hon- um innanbrjósts eins og hann sé að taka heilaga vígslu. Hann sér fólkið, sem safnast saman á hafnarbakkanum; þetta eru íslendingar, þjóðin hans, bræð- ur hans og systur. Hann lang- ar til að taka þá í faðm sér og segja þeim frá sínum leynda fögnuði. En þetta er svo hversdags- legur atburður við höfnina, að ókunnugur maður komi utan úr skipi og fari í land, að fólkið veitir því enga sérstaka athygli. Þeir sem hann yrðir á, svara Ihonum almennilega og kurteis- lega, gefa honum þær upplýs- ingar, sem hann vill fá, en hann finnur ekki það bergmál, sem hann þráir. Svo fer hann að ferðast um landið og loks kem- ur hann í sína eigin sveit. Þar finst honum sem fólkið hljóti að opna ekki aðeins hús og faðm, heldur hjörtu sín fyrir hinu endurheimta barni bygðarinnar. Svo ihefir það líka oftast verið. Eg vil aðeins minna á frásagn- ir blaðanna um það, hvernig áfram til Noregs, höfðu þeir Þingeyingar tóku Jakobínu séð, eins og Herjólfur sagði, kost og löst á landinu. Þeir höfðu séð sólríkt sumar og svalkaldan vetur, auðugt land og veiði í vötnum og sjó, eyði- legt af árásum íss og gadds. Þórólfur mundi kostina bezt. Hann siá smjörið drjúpa af strá- unum, með öðrum orðum, hann sá óendanlega möguleika fyrir landbúnað og kvikfjárrækt.. Hrafna-Flóki lét illa yfir öllu. Hann gleymdi sólskininu, gróðr- inum, veiðinni, fegurðinni af öllu því góða, meira að segja hvaln- um. En hann mundi ísinn og erfiðleikana. En af hverju skáldi og þeim bræðrum, séra Albert og Hannesi Kristjáns- syni, þegar þau komu heim. Þar var áreiðanlega um annað og meira að ræða en viðhöfn fyrir siðjasakir. En svo mun. líka eiga sér stað, að gesturinn komi “að tómum kofum”; fólk- ið sem bezt þekti ætt hans, er horfið á braut, það eru engir á lífi, sem af djúpri hluttekningu geta átt með honum helgar stundir í orðsins sannasta skiln- ingi og kropið með honum frammi fyrir helgidómum horf- innar bemsku. Hann er ó- kunnugur maður á sínu gamla komu gallarnir svo illa við heimili. hann? Af hverju gerðu þeirj Qg æskustöðvarnar sjálfar svo dimt í huga honum að alt hafa breyzt, eða þá að þar kem- það góða varð að engu? Það ur f ijós> að sú myn(J) sem var vegna þess, að hans eiginjihafði grópast í barnsh’ugann, hugmyndir höfðu rekist á sjálf- 1 mótast og fegrast fram á full- an veruleikann og beðið ósigur j orðinsár, svaraði ekki til veru- fyrir honum. Sökin var hjá i leikans. Hóllinn, sem í minn- sjálfum honum; vonbrigðin áttu ingunum var svo stór, varð að ekki eingöngu rót sína að rekja til íssins og harðindanna, heldur til þess, að hann hafði bygt á barnalegum hugmyndum. Vet- urinn hefði ekki orðið honum svo þung Iraun, ef hann hefði nennt að skilja.ástæðurnar fyr- ir honum, og ef hann hefði reynt að átta sig á veruleikan- um í stað þess að þurka út úr meðvitund sinni alt annað en sínar eigin hugmyndir um vet- ur-laust land. Eg hefi fundið meðal Vestur- íslendinga frændur þeirra allra, Þórólfs, Herjólfs og Flóka. Eg hefi heyrt menn segja kost og löst á landinu og lífi þjóðarinn- ar. Eg hefi hlustað á aðra, sem sjá helzt ekki nema smjör- ið og loks eru þeir sem sjá enga framtíðarmöguleika. Þeim finst flest heima svo lítilfjör- legt og smáskítlegt—alt vera á leiðinni norður og niður fyrir sakir óstjómar og heimsku, leti og lítilmensku. Þeir lýsa göll- unum dökkum litum og láta illa dálítilli þúfu, tjömin, sem áður táknaði heimshöfin, var nú of- urlítill pollur eða jafnvel mold- arflag. Gömlu torfbæirnir voru viknir fyrir steinsteypuhúsinu, o. s. frv. Og hvað leiðir svo af öllu þessu? Fyrst og fremst leið- indi og óánægju og sár von- brigði. En þessi vonbrigði setja svo gleraugu á .nasir gestinum — gleraugu, sem lita alt, sem hann horfir á. Fyrst þegar hann kom, var hann líkur Hrafna-Flóka í því, að hann átti von á eilífu sumri árið um kring. Myndin, sem hann hafði búið til í huga sér, var alveg gallalaus. En landið og þjóðin var þá ekki gallalaus með öllu, þegar til kom. En nú fer svo fyrir gestinum, sem hefir feng- ið gleraugu vonbrigðanma á masir að hann sér hið lakara margfaldast, en hið betra minka að sama skapi. Hann gleymir fjölmörgum þeim, sem hafa tek- ið í hönd hans, en man betur

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.