Heimskringla - 16.09.1936, Side 7

Heimskringla - 16.09.1936, Side 7
WINNIPEG. 16. SEPT. 1936 HEIMSKRINGLA 7. SIÐA ÓSANNUR MANNJÖFNUÐUR BENGAYS - í Heimskringlu 26. ág. er rit- gerð eftir Malcolm W. Bengay þýdd af Árna S. Mýrdal á Pt. Roberts 'á forsetaefnum Banda- ríkjanna, F. D. Roosevelt og Gov. Alf. M. Landon frá Kansas. Við lestur téðrar ritgerðar kemst eg að þeirri niðurstöðu að höfundur og þýðandi séu ekki eins nákunnugir mönnum þeim sem þeir eru að rita um, eins og þeir láta í veðri vaka, ellegar eru þeir vísvitandi að halla réttu máli. Sennilega hafa þeir feng- ið fræðslu sína í lituðum. flokks- blöðum eða tímaritum sem þeir hafa lesið í gegnum lituð gler- augu. Persónulegur samanburð- ur manna í opinberum stöðum skiftir ekki miklu máli þegar um stjórnmál er að ræða, nema það sé gert með viti og sann- girni, sem er sorgleg vöntun á í téðri grein, heldur er hún auð- sjáanlega samin í því augna- miði að þyrla ryki í augu fá- fróðrar alþýðu, sem ber áþreif- anlegan vott um andlega örbirgð í þrotabúi jrepul^likana. Hitt varðar meira að brotið sé til mergjar framkvæmdir opinberra verkamanna í fortíð og nútíð, en af því að efnifi sem hér er um að ræða fjallar um fátt af því, verð eg að þessu sinni að láta mér lynda, Árni Mýrdal, að skora þig á hólm á þeim vett- vangi, hverjar voru framkvæmd- ir af hálfu stjórnarvalda Banda- ríkjanna á fjármála, iðnaðar og viðskiftalífi þjóðarinnar á stjórnartíð Herbert Hoovers og Eranklin Roosevelts, og hver á- hrif höfðu þau á viðskiftalífið — ella þegi þú síðan! Höf. gerir samlíking af sjón- leik (mætti heldur nefna skrípaleik hvað rep. snertir), íþar sem liggur á bak við ein- hver ~‘hulin hætta”. í hverju hún er innifalin er ekki nefnt, sennilega er tilverulaus nema í huga höf., en það er til hætta sem er alls ekki hulin; og hún er sú, að ef Landon verður kos- in þá lendir í sama öngþveitinu og var þegar Roosevelt tók við stjórn, sem flokkur Landons kom þjóðinni í á meðan sá flokkur sat að völdum og sem kjósendur hafa tæplega gleymt. — Vel má-það vera að Landon hafi verið heppinn með að afla sér auðs, sem og aðrir fjár- plógsmenn. Hann mun eiga olíulindir sem nema miljónum dala. Hefir sennilega verið iðinn lærisveinn Rockefellers, Morg- an og fleiri stórgróðramanna. Nú er hann undir föðurlegri verndarhendi blaðakóngsins — William Randolph Hearst. Hing- að til hefir það verið taiið góð meðmæli að hafa stundað nám á Eton háskóla á Englandi.^og Harvard háskóla í Bandaríkjun- um. Það hefir Rooseveit gert. Illa sítur það á stórjöxlum re- publikana flokksins að finna Roosevelt það til foráttu að vera af aðli kominn, slíkir hágöfgis dýrkendur sem þeir hafa alla tíð verið. Takið þig nú vel eftir piltar, hvað kemur næst? “Báðir hafa þessir menn verið fylkisstjórar hvor í sínu fylki í átta ár — eða tvö tímabil — framkvæmdir hvers um sig á þessu sviði verða nákvæmlega yfirvegaðar og bornar saman meðan á þessari baráttu stendur”, og ennfremur, ‘‘með forsjálni og skarpri kaup- mannsgreind tókst Landon brátt að jafna tekjuhalla Kansas-fylk- is, og á því tímabili sem nú er að líða hefir stjórn hans reynst öllum stjórnum betri og farsæl- legri”. Hérna er !nú sannleik- urinn: 1. Það var enginn tekjuhalli í Kansas ríki þegar Landon tók við völdum. 2. Hann skar allar stjórnar- tillögur til opinberra verka við neglur sér, t. d. fengu skóla- kennarar aðeins 25 dali á mán- uði. 3. Hann lagði skatt á ýmsar vörur sem ekki var iagður skattur á í nærliggjandi ríkjum, þar af leiðandi mistu Kansas kaupmenn kaupendur aö þeim vörum. 4. Kreppan lék iKansas-búa eins hart og aðra íbúa Banda- ríkjanna. Landon lagði til að- eins 20% til hjálpar snauðum og atvinnulausum, og það var Roosevelt eingöngu að þakka að ekki ivarð hungursneyð í Kansas-ríki á þessu ári. Það er fullvissa að ef Landon hefir hvergi betra fylgi en í heima-ríki sínu Kansas, þá hefir hann lítiö tækifæri tii að komast í “Hvíta húsið”. Af þessu sem hér hefir verið sagt má ræða hvað í vændum verður ef Landon, með sinni skörpu “kaupmannsgreind” — verður kosinn forseti Bandaríkj- anna, þar sem hann vill heldur láta borgara síns heimaríkis svelta heidur en að leggja nokk- uð af mörkum við nauðstadda, þar í iliggur Ihætta isú sem eg áður gat um að er alls ekki hulin. “Átta ára fylkisstjórn Roose- velts var algerlega framkvæmd- arlaus. Þetta átta ára starf var helgað löngun að verða forseti Bandaríkjanna fyr eða síðar. — Meðan Roosevelt hélt stjórnar- taumum New York fylkis (höf nefnir ríkin ávalt fylki), tvö- faldaðist fríkisskuldin.” Aldrei hefi eg séð hryllilegra morð vera framið á sannleikan- um; við skulum nú sjá hvað skeði árið 1930 þegar Roosevelt var ríkisstjóri í New York ríki. Um 20 ára tímabil var háð hörð barátta um notkun raforku sem mikil var og ónotuð í New York ríki. Þessi barátta var samskonar og háð var í Winni- peg, og á íslandi, milii New York ríkis annars vegar, og auðvaldsins, sem vildi fá fyrir- tækið í sínar hendur hins vegar. Have the Business POINT OF VIEW f Dominion Business College students have the advantagi of individual guidance in the all-important factors of business personality, conduct, and approach. No matter how thoroughly you know the details of office work, you must be able t,o sell your services, and this is now just as much a part of Dominion training as Shorthand, Typewriting, Bookkeeping, or any of the other courses in which Dominion leader- ship has been recognized for over twenty-five years. Busjness is better! Employment is increasing! Prepare for it. DOMINION BUSINESS COLLEGE On The Mall and at Elmwood, St. James, St. John’s Herbert Hoover, sem þá var for- > seti ' Bandaríkjanna setti þar stólinn fyrir dyrnar. Árið 1930 tókst Roosevelt að brjóta þessa mótspyrnu á bak aftur og stofn- setti í New York ríki það afl- mesta orkuver sem þá þektist í Bandaríkjunum. Að slík fram- kvæmd hafi haft kostnað í för með sér, gefur að skilja, og það er ekkert áður óþekt fyrirbrigði, | að stjórnir hafi innleitt lands- skuldir þegar um stórkostleg fyrirtæki hefir verið^að ræða; fyrirtækin borga þær skuldir þegar þau hafa verið stofnsett. Þá má nefna spítala-bygging- ar og endurbætur á fangelsum, sem mikið var gert af á þessu tímabili í New.Yofk ríki, og það er haft eftir William Green, for- seta American Federation of Labor, að aldrei hafi verkamenn íengið jafn sanngjarna löggjöf eins og undir stjórn Roosevelts í New York ríki. Um ræðumanns hæfileika Landons get eg ekki dæmt. — Hingað til hefir hann verið harla lítið kunnur, nema ef til vill í heimafylki sínu. Hann hélt ný- lega ræðu í Philadelphia, sem var útvörpuð. Eftir henni að dæma er hann ekki eins ákveð- inn og skiljanlegur og af er lát- ið, sem enda er ekki við að bú- ast, eftir stefnuskrá þeirri sem flokkur hans innleiddi á þingi sínu, því þar var alt svo óákveð- ið og á huldu. Ekki eitt einasta, atriði er þar finnanlegt til upp - byggingar, aðeins niðurrif þess sem Roosevelt stjórnin vann til viðreisnar. Ræðu þessa hélt Landon á kosningaleiðangri sín- um um austurríkiu. Þar var aðeins eitt atriði sem var at~ hyglisvert. Að sið frægra for feðra, sté hann iá stokk og strengdi þess heit að afnema skattlögin sem Roosevelt, í sam- einingu við þjóðþing Banda- ríkjanna samdi gegn stórgróða- félögunum, yfirmenn Landons sáu að hér hafði hann hætt sér út á veikan ís, og þeir fölnuðu af skelfingu af því að ísinn mundi bresta undan fótum hans og hann mundi sökkva til botns, því skattlög þessi eru eitt af því allra vinsælasta sem Rooss- velt hefir gert í augum almenn- ings, og William Randolph Hearst gaf Landon föðurlega á- minningu um að segja sem alíra minst í framtíðinni, og bað blessaðan drenginn sinn að leika sér varlega á svellinu. Sem sagt Landon kann að vera hæfilegleika maður ef hann fær að njóta sín, en undir yfirstjórn auðkýfinganna og með föðurlegum hirtlngarvönd Hearsts reiddan yfir höfði sér, getur hann aldrei orðið annað en peð á skákborði auð- valdsins, þar sem Morgan og Mellon eru hrókarnir, Raskob og Dupont riddararnir, Knox og Hamilton biskuparnir, Hoover drotningin og Hearst kóngur- inn. Alt skraf um það að Roose- velt gerT sér far um að vera ó- ljós og óákveðinn er bull og fálm út í loftið, sem er örþrifs ráð fáfróðra drengja þegar þeir fara halloka í leik. Eg hefi hlustað <á ræður Roosevelts, bæði sem áheyrandi fyrir fram- an ræðupall, og í gegnum út- varp, og þær hafa undantekn- ingarlaust verið svo skýrar og skiljanlegar að jafnvel Bingay og Mýrdal hefðu hlotið að geta skilið þær hefðu þeir hlustað á. Vaðal þann sem hér fer á eftir leiði eg hest minn frá að eyða tíma og blaðarúmi til að athuga, því hann er ekki svara- verður og skiftir engu máli, þó er hér eitt sem mætti minnast á þó lítilsvirði sé. Þeir skælbrosa út undir eyru af mismæli sem þeir segja að Roosevelt hafi orðið á að hafa vilst á Jackson og Cleveland, “hvor þeirra hafi verið elskaður sökum þeirra manna sem liann hafði gert sér að óvinum, og af því óvinirnir voru Tammany Hall. Vil eg geta þess að hér hafa þeir félagar Bingay og Mýrdal loksins hitt naglann á hausinn. Tammany Hall var altaf á öndverðum meið við Roosevelt. Nú hefir það myndað félag sem nefnist Lib- erty League, sem er undir for- ustu Al. Smiths og Duponts hafa gengið fram fyrir skjöldu í liði Landons og berjast upp á líf og dauða gegn Roosevelt. Þar er og sagt að Roosevelt J ýmist dragi að sér eða hrindi! frá sér. Hér er auðviiað átt J við þá sem Roosevelt bjargaði úr ógöngunum þegar alt var komið á heljarþrömina út af hruninu sem þeir hleyptu af | stokkunum á því herrans ári 1929, og sem á allri stjórnartíð Hoovers varð ægilegra með hverjum degi sem leið, iðnaður- inn var í kalda koli, verzlunin hékk á skari og fjármálin við dauðans dyr, eins og þegar druknandi maður fálmar eftir strái, • myndaði Hoover Recon- struction Finance Corporation og stakk 80,000,000 dala í vasa Dawes, þáverandi vara-forseta. Þegar Roosevelt tók við völdum 1932 var hans fyrsta verk að gefa bönkunum hvíldardag, koma bank^málunum á fastan fót og því fé sem almenningur hafði lagt inn á bankana og lá undir fullkomnu tapi. — Þarna höfðu milj. manna mist aleigu sína, sumir af þeim sem voru vel efnum búnir voru nú á stjórnar- styrk, oghefðu svelt til dauða ef Hoover hefði verið endurkosinn 1932. Var því kosningu Roose- velts vel fagnað, og viðreisnar starf hans vinsælt, en gagn- stætt Hoover, sem sagði að vel- megunin væri “í kringum horn- ið”, og alt mundi lagast af sjálfu sér. Sá Roosevelt að ekkert var hægt að framkvæma án fjárframlaga, og að þeir sem fjármunina hefðu yrðu .að leggja fram sinn skerf til viðreisnar- starfsins, en þeir náungar hafa alla jafna verið sárir á centun- um, þó hagnaðinn af viðreisnar starfinu vildu þeir fegnir þiggja, en nú reiddust þeir svo ákaf- lega að þeir eru nú viti sínu fjær, og vega nú með sínum pólitísku morðhnífum í bakið á Roosevelt eftir að hann hafði bjargað þeim frá fjármálalegum dauða. En hér er nú það sem kórón- ar alla ósvífnina. “Roosevelt höfðinginn í Hyde Park lætur í ljósi meðaumkun sína og sam- hygð með alþýðunni í vandræð- um hennar en fer aldrei iá með- al hennar til þess að sjá með j eigin augum hvaða erfiðleika hún á við að stríða”, o. s. frv.. ! Það er sannarlega vel kristinn maður sem getur lesið þessa staðhæfingu án þess að blóta. Roosevelt og frú hans hafa sí og æ verið starfandi á meðal alþýð- unnar, fyrir það hefir Hearst kallað (þau kommúnista, jsem hann álítur að vera það lakasta hnjóðsyrði sem hægt er að finna í amerísku tungumáli. Hátt- standandi konur í félaginu byrgðu andlit sín í höndum sér og jusu ösku yfir höfuð sér af vandlætingu yfir því að Mrs. Roosevelt lét taka mynd af sér með nokkrum alþýðukonum, þar á meðal svertingja konum. Verkamanna löggjöf Roose- velts er svo alkunn að eg þarf' engum orðum um hana að eyða. Vel get eg trúað því að Roose- velt hafi ekki lagt í vana sinn að skjalla konur, kyssa börn, eða klappa mönnum á bakið til þess að afla sér atkvæða, en blaður þeirra félaga um hroka og því um líkt er‘ ekkert annað en ó- hróður og. illmæli sprottinn af heimsku og flokkshatri. Árni Mýrdal, við höfum verið nágrannar í imörg ár, höfum samt aldrei sézt. Kunnugir segja mér að þú sért maður allvel viti borinn. Þessu liefi eg trúað, og eg hefi lesið það sem þú hefir skrifað í blöðin ýmist þýtt, eða frá eigin hendi. Það hefir verið talsvert vit í sumu af því þó sumt af því hafi verið mesta þvaður, eins og t. d. þessi á- minsta grein sem eg hefi verið að sýna þá virðingu að athuga. Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusimi: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að finni á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 158 Dr. J. Stefansson %216 MEDICAL ARTS BLDG. Hornl Kennedy og Graham Stundar eingöngu augna-eyrna- nef- og kverka-sjúkdóma Er að hitta frá kl. 2.30—5.30 e. h. Talsimi: 26 688 Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691 Jacob F. Bjarnason —TRAN SFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bœinn. Dr. K. J. AUSTMANN Wynyard —Sask. MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 854 BANNING ST. Phone: 26 420 Dr. O. BJORNSSON 764 Victor St. OFFICE & RESIDENCE Phone 27 586 Þú munt vera lesinn með af- brigðum. Bróðurlega vil eg benda þér á að lesa meira og fleira um iþað sem er 'þrykksett af William Randolph Hearst og öðrum ísem jaldrei ræifa mál nema frá einni einstrengings hlið. Yfirvegaðu það með gaum- gæfni með því mikla viti sem guð hefir gefið þér. Það er grátlegt að sjá góða og greinda menn viljandi eða óviljandi ljá röngum málstað lið sitt. Þorgils Ásmundsson NOKKRAR VfSUR Til Heimskringlu Goða sess þar situr þú, með sæmdar orð á vörum og bregður ljósi á blinda trú, sem bráðum er á förum. Mót heimskingjum og heiðnum tröllum Haldið þið drengir frelsis völlum Glappaskot kirkjufélag kjörgrip átti það kastaði honu^n á glæ. Banasár það sjálft sér veitti; Og svona fer það æ. Til landans Með styrk í vöðvum stattu beinn í stormum lífs og hríðum og mættu guði hjarta hreinn hörmunga á tíðum. Magnus Snowfield Miss Gwyneth Belyea, student of the Dominion Business Col- lege, Winnipeg, for less than j five months, won second place | in the student’s section in the jAll-Canada Championship Type- writing Contest, conducted by the Canadian National Exhibi- tion at Toronto on Wednesday, September 2nd, 1936. This is all the more remarkable when one considers that the contest was open to all having twelve months’ instruction in typewrit- ing. G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. Lögjrœðingur 702 Confederatlon Life Bldg. Talsími 97 024 W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LOGFRÆÐINGAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnig skrifstofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miovikudag í hverjum mánuði. M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINGAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lætur úti meðöl í viðlögum ViStalstímar kl. 2—4 e. h. 7—8 atS kveldinu Síml 80 857 665 Victor St. A. S. BARDAL selur líkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. _ Ennfremur selur hann aUskonar minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIPEG Dr. S. J. Johannesjon 218 Sherbum Street Talsiml 80 877 Viðtalstími kl. 3—5 e. in Rovatzos Floral Shop 206 Notre Dame Ave. Phone 94 954 Fresh Cut Flowers Daily Plants in Season We specialize in Wedding Sc Concert Bouquets & Funeral Designs Icelandlc spoken THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave. Dr. A. V. JOHNSON ISLENZKUR TANNLÆKNIR 212 Curry Bldg., Winnlpeg Gegnt pósthúsinu Simi: 96 210 Heimilis: 33 328 J. J. Swanson & Co. Ltd. REALTORS Rental, Insurance and Financial Agents Simi: 94 221 600 PARIS BLDG.—Winnlpeg Office Phone Res. Phone 21 834 72 740 DR. J. A. BILDFELL 216 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours 4 P.M.—6 P.M. and by appointment Residence: 238 Arlington St. Orrics Phonk 87 293 Res. Phonk 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BTJILDING Offick Hoors: 12-1 4 P.U. - 6 P.M. AND BY APPOINTMENT J. WALTER JOHANNSON Umboðsmaður New York Life Insurance Gompany

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.