Heimskringla - 30.12.1936, Page 8

Heimskringla - 30.12.1936, Page 8
8. SlÐA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 30. DES. 1936 FJÆR OG NÆR Messur í Winnipeg Næstkomandi sunnudag fara fram tvær guðsþjónustur eins og venjulega, á ensku kl. 11. f. h. og á íslenzku kl. 7. e. h. Gaml- árskvöld verður aftansöngur í kirkjunni kl. 11.30. Prestur safnaðarins messar. Eru menn vinsamlega beðnir að minnast þessa og f jölmenna. * * * Séra Guðm. Árnason messar: á Lundar sd. 3. jan. 1937 á Oak Point sd. 10. jan. 1937 * * * Ensk messa í Wynyard, sd. 3. jan. kl. 2 e. h. Ræðuefni: “The Younger Generation and the Future”. Jakob Jónsson * * * Garmlárskvöld fer fram aftansöngur í Sam- bandskirkjunni í Winnipeg, kl. 11.30. — Eru menn beðnir að minnast þess. Kveðjið gamlár- ið á viðeigandi hátt og heilsið hinu nýja. Fjölmennið! * * * Jón Þorsteinsson, sem minst er af J. G. J. á öðrum stað í þessu blaði, var einn af hluthafa- stofnendum Viking Press félags- ins 1913. * * * Dr. Richard Beck frá Grand Forks var staddur í bænum fyrri hluta þessarar viku, kom bæði til að sitja fund í stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins og finna skyldfólk sitt og vini í bænum. * * * Jón Sigurðsson Chapter I. 0. D. E. heldur sinn fyrsta fund á ný-árinu þriðjud. 5. jan. að heim- ili Mrs. J. B. Skaptason, 378 Maryland St. Miss Elin Ander- son forstöðukona “The Family Bureau” hér í bænum flytur er- indi. Hvað þýða orðin “Cash Price”? Ef þú flettir upp á Oxford orðabókinni, heimildarriti enskrar tungu, þá finnurðu að orðið "Cash” er útskýrt “reiðu penángar” eða "pen- ingar borgaðir út í hönd’’ eftir að vörukaupin eru gerð. Nú á dögum er orðið “Cash” venjulega notað i teygjanlegri merkingu, fram yfir það, sem það í raun og veru þýðir — enginn munur gerður á umliðunar verði og peningum út í hönd. Hjá EATON’S þýðir "Cash Price”, peningar út í hönd og í verðinu er ekki innifalinn kostnaður við umliðunar greiðslu. Viðskiftamenn sem óska eftir umiiðunargreiðslu greiða sanngjamt ofanálag í viðbót við hið lága peninga- verð, fyrir kostnaði sem lán- inu er samfara. EN----- t>að er markmið vort, að EATON’S umliðunar greiðsl- an skuli samt (þrátt fyrir kostnaðar aukann) vera lægri en annarsstaðar, og EATON peningaverð hið al-lægsta er fáanlegt er. EATON’S Jón Pálmason frá Keewatin, Ont., kom til bæjarins í gær. — Hann var í viðskiftaerindum; fer heimleiðis í dag. * * * Guðl. Sigurð^son frá Lundar hefir verið í bænum yfir jólin. Börn hans búa mörg í bænum og var hann að heimsækja þau yfir hátíðirnar. * * * f blaðinu Free Press er þess getið í morgun, að íslendingur, sem nefndur er Mindy Christj- ánsson hafi verið skipaður Sup- erintendent of Indian Agencies, af sambandsstjórninni. Verður höfuðskrifstofa hans í Ottawa. Hann er fæddur á íslandi 1879 og kom með foreldrum sínum vest- ur um haf, sem námu land norð- ur við Manitobavatn. Hefir hann rekið verzlun í Westboume og Kamsack um nokkur ár, en byrjaði starf hjá stjórnardeild- íinni, sem að málefnum Indíána ilýtur 1915 og hefir síðan átt heima í Regina og Calgary. f svipinn gat Heimskringla ekki náð í frekari upplýsingar um þennan íslending, en vonar að geta sagt greinilegra frá honum síðar. * * # Nýja Ijóðabókin “Norður-Reykir” eftir Pál. S. Pálsson er til sölu hjá eftirfylgjandi útsölumönn- um: Árborg: G. O. Einarsson Foam Lake: John Janusson Gimli: Kr. W Kernested Geysir: T. Böðvarsson Glenboro: G. J. Oleson Kandahar: S. S. Anderson Keewatin: S. Björnsson Leslie: Th. Guðmundsson Piney: S. S. Anderson Selkirk: K. S. Pálsson Steep Rock: F. E. Snidal Winnipegosis: Ingi Anderson Blaine, Washi, Rev. H. E. John son Cavaliej*, N. Dak.: J. K. Einars- son Chicago, 111.: Geo. F. Long Garðar, N. D.: J. S. Bergmann Mountain, N. D.: Th. Thorfinns- son Winnipeg: Magnus Peterson 313 Horace St., Norwood Viking Press Ltd. Sargent Ave. P. S. Pálsson * 796 Banning Street Bókin kostar $1.50 í kápu — $2.00 í skrautibandi. ÍSLANDS-FRÉTTIR Einar Kristjánsson fær Sænska gullmedalíu Kbh. 1. des. Operan í Stuttgart hefir nú haft frumsýningu á óperunni La Traviata og fór Einar Kristjáns- son þar með aðalhlutverkið, Al- fred. Var söng hans mjög vel fagnað, og öll blöðin í Stuttgart lofa hann mikið, í dómum sín- um. Segja þau, að rödd hans sé framúrskarandi fögur. Eins og áður hefir verið frá skýrt, söng Einar í Stockhólmi á norræna daginn, og var Gustav Svíakonungur meðal áheyrenda hans þar. Konungurinn hefir nú sent Einari sænsku gullmeðalí- una.—Mbl. 2. des. * * * Maður deyr af voðaskoti Á fimtudaginn var kl. 1 e. h. vildi það hörmulega slys til, að Litla Enni á Blönduósi, að skot hljóp óvörum úr haglabyssu og Nýkomnar Islenzkar Vörur TIL SÖLU HJÁ G. FINNBOGASON 700 SARGENT AVE. SÍMI 31 531 íslenzkur Harðfiskur .................30 C fslenzkur merkur Ostur..................40C íslenzk Kryddsíld... 30c askjan fslenzkur saltfiskur ...................18C Pöntunum sint samstundis og þær berast! SfMI 31 531 700 SARGENT AVE. særði húsbóndann, Jakob Lárus- son Bergstað, svo hann dó stund- arfjórðungi síðar. Ætlaði Jakob heitinn að lóga kú, og hafði fengið mann sér til aðstoðar við það Höfðu þeir leitt kúna út á blóðvöllinn, og var Jakob að hagræða þar ílátum, en aðstoðarmaður hans hlóð byss- una, afturhlaðna gamla hagla- byssu. En í sama vetfangi reið skotið af byssunni, hitti Jakob í vinstri hapdarkrika. Varð af því mjög mikið sár, og blæddi gríðarmikið úr því. Læknir var sóttur samstundis og kom hann að 10 mínútum liðn- um. Þá var Jakob aðeins með lífsmarki, en andaðist fám mín- útum síðar — blæddi út. Eftir því sem kunnugir hafa skýrt blaðinu frá, er ekki hægt að kenna þeim, sem á byssunni hélt, um þetta frámunalega svip- lega slys. Jakob Lárusson var vel lát- inn dugnaðarmaður. Hann var sá fyrsti er bygði á Blönduósi austan Blöndu, nýbýlið Litla Enni. Hann lætur eftir sig ekkju, Guðnýju Hjartardóttur. Þau hjón hafa eignast 11 börn, og eru tvö þeirra innan við ferm - ingu.—Mbl. 28. nóv. * * * Þættir úr sögu Reykjavíkur Eftir nokkra daga kemur á bókamarkaðinn rit, sem félagið Ingólfur gefur út í tilefni af 150 ára afmæli Reykjavíkur og hefir Guðni Jónsson magister séð um útgáfu þess. Ritið heitir Þættir úr sögu Reykjavíkur og eru í því þessar ritgerðir: Reykjavík í reifum eftir dr. Jón Helgason biskup, Úr bygg- ingarsögu Reykjavíkur eftir Georg ólafsson bankastjóra, — Fiskveiðar Reykjavíkinga á síð- ari helmingi 19. aldar eftir séra Þórð Ólafsson præp. hon., Fiski- mið Reykvíkinga og Seltirninga eftir Geir Sigurðsson skipstjóra, Verzlunin í Reykjavík 1849— 1863 eftir dr. Björn Björnsson, Upphaf iðnaðarmannastéttar í Reykjavík eftir dr. Guðbrand Jónsson prófessor, Búnaðarmál í Reykjavík eftir dr. Guðbrand Jónsson prófessor, Bunaðarmál í Reykjavík eftir Vigfús Guð- mundsson rithöfund, Hversu Reykjavík var höfuðstaður eft- ir Vilhjálm Þ. Gíslason skóla- stjóra, Stjórnarskipun Reykja- víkur eftir ólaf Lárusson próf., Upphaf leiklistar í Reykjavík eftir Lárus Sigurbjömsson rit- höfund, Reykjavík í ljóðum eftir dr. Guðmund Finnbogason lands bókavörð og Ummæli útlendra ferðamanna um Reykjavík eftir Hallgrím Hallgrímsson bóka- vörð. Ritið er prentað í Steindórs- prenti. Er það um 300 bls. að stærð og mjög vandað að öllum frágangi. f ritinu eru 2 gömul kort af Reykjavík og 26 myndir, er flestár eru hér birtar í fyrsta skifti á prenti.—Mbl. 3. des. Townsend í vanda Dr. Francis E. Townsend var margra uppáhald í Bandaríkjun- um fyrir það ráð sem kent er við hann, að gefa hverjum sextug- um karlmanni (og kanske fleir- um) 200 dali úr landsjóði á hverjum mánuði. Svo mikið fylgi fékk hann, að hann bauð sig fram til forsetatignar í sumar leið. Þá stefndi alþingið honum fyrir sig til yfirheyrslu en hann skeytti því ekki. Þinginu þótti ráðlegast, að ganga ekki of hart að honum í það sinn. En er það sýndi sig að Townsend hafði lítið fylgi meðal þjóðarinnar, tók sak- sóknari ríkisins rögg á sig og stefndi honum um að smána þingið, ásamt tveim höfuðpaur- um í flokki hans. Sektir alt að 1000 dölum liggja við þeirri sök eða fangelsi að öðrum kosti. — Townsend svaraði með ræðu í Los Angeles, kvaðst aldrei mundi borga sekt fyrir þessa sök, heldur þola svarthols vist. L.IÓÐABRÉF TIL SVEINS THORVALDSONAR ort á jólum 1933 Nú sest eg í krókbekkin svolitla stund Mig sárlangar við þig að spjalla. Því anda minn gleður að flögra á þinn fund Hið forna til baka að kalla. Við héldum í áttina oft var þó bratt Og öldurnar klufum við stundum Mér gleymist það ekki eg segi það satt Hvað saman við lífinu undum, Og enn finst mér vilji minn vinna þér hjá Og vera þér slíkur og forðum, En síðan að heilsunni hánkað- ist á Er hrynjandi leikur á borðum. Við fléttuðum erviði í ánægju stund og altaf var nóg til að starfa. Þá höfðum við glaða og létt- fleygja lund Lífs þrána sterka og djarfa. Mér finst eg tilbiðja tímana þá og taka ofan fyrir þeim hattinn En nú fljúgast stöðugt í al- gleyming á Armóður, Búksorg og skrattinn. En flest geta örlögin afvega leitt, Og englana jafnvel úr skorðum. Svo fór þá ófarsjál Eva fékk þeytt. Eplinu í karl greyið forðum. Eg þakka þér enn hvað þú ætíð mér varst, Ylin þinn nýja og forna. Við gleymdum því einu ef í orða- mun skarst Við andófið kvöld eða morgna. Eg óska að styðji þitt hamingju hjól Hagfróður verzlunar skólin, og alfaðir gefi þér geisla frá sól, Gleðilegt nýár og jólin. Þinn einlægur, B. Halldórsson TIL ÍHUGUNAR Sannleikurinn er sá, að lista- sagan færir okkur heim sanninn um það, að ekki sé til nein full- komin list, heldur hafi öll tíma- bil í sögu mannkynsins lagt eitt- hvað af mörkum til listanna hvert á sína vísu. Eðli listarinn- ar er að leita. Og í hvert skifti, sem listamaðurinn hefir fundið eitthvað, tekur hann til að leita á ný. Hver sú kynslóð, sem kemur fram með sjálfstæðar hugmyndir, hefir eitthvað nýti- legt að leggja til málanna. Einar Lexow * * * Enda þótt sálarfræði sé ung fræðigrein, er óhætt að fullyrða, að hún sé í þann veginn að greiða úr ýmsum vandamálum mannkynsins. Hún hefir ekki aðeins verið því til styrktar í baráttu þess fyrir tilverunni, þar sem hún hefir kent mönn- unum að þekkja sjálfa sig og hæfileika sína betur en áður. En jafnframt hefir sálarfræði orðið til þess að menn hafa lært að skilja hver annan betur en áður, og þar með hefir hún ásamt bók- mentunum, skólamenningunni og hvers konar fræðslu orðið til þess, að brúa það djúp, sem áður var staðfest milli margra manna. Hún hefir þannig verið braut- ryðjandi sannleikans og auk þess sætt ýmsar andstæður. Þeir menn, sem ekki þekkja hver annan, geta ekki fyrirgefið hver öðrum. Sálarfræðin á því skilið, að allir gefi henni gaum. R. Rasmussen Prestur einn í Ameríku vígði sjálfan sig og konuefnið um dag- inn, og var þannig bæði í senn. brúðgumi og prestur. En nú verður hann að fá annan prest til þess að endurtaka hjónavígsl- una, þar eð hjónabandið var tal- ið ólögmætt, og um leið fékk klerkurinn áminningu um að endurtaka ekki slíkt í framtíð- inni! * * * Lögreglan í Rúmeníu tók fyr- ir nokkru fastan mann, að nafni Jon Olicheres. Hann þóttist vera selja einföldu fólki “jarðar- hluta” í himnaríki. MEÐ GRETU GARBO YFIR ATLANTSHAFIÐ | Frh. frá 7 bls. með bestu lyst. Það var eins og taugaóstyrkur hennar stafaði af eintómri mannafælni til að byrja með. Síðan var hún rólegri og jafnaði sig smám saman. Þær frú Sandler og frú Ren- ström reyndu að halda uppi sam- ræðum við Gretu Garbo, en hún varðist allra frétta og hlustaði aðeins á það, sem þær sögðu. — Einu sinni fór frú Sandler af hendingu að tala um 'heimili sitt, og spurði Gretu þá alt í einu: — Hafið þér margt sænskt þjónustufólk á heimili yðar í Hollywood ? Greta ansaði stutt í spuna: — Nei, alls ekki. Annars á eg ekki heima í Hollywood, held- ur skamt fyrir utan bæinn. Dagarnir liðu hver af öðrum, og Greta Garbo var oft uppi á þiljum og lék þar svokallaðan “shuffle-board”-leik á móti um- sjónarmanni farþeganna, skips- lækninum eða 1. vélstjóra. — Hún lék vel, af óvaningi að vera, segir 1. vélstjóri, sem er af- burðamaður í þessum leik. Einn morgun hringdi Greta Garbo og spurði, hvort nokkur væri í sundlauginni. Henni var sagt, að svo væri eigi. Skömmu seinna sást hún þjóta niður, sveipuð þykkri baðkápu. Hún fleygði af sér kápunni, hljóp undir steypibaðið og stakk sér síðan í laugina. Og brimsalt sæ- vatnið perlaði af hinum fagra líkama hinnar frægu konu. Eftir þetta sást Greta oft í lauginni, og það meira að segja á þekn tíma, sem þar voru bæði karlar og konur. Greta þurfti að kaupa sér sundbol og vildi hafa hann í bláum lit. Hún fór til konunnar, sem seldi sundföt í skipinu og bað um stærð nr. 42. En það fékst þá ekki stærri blár kven- bolur en nr. 40, svo að Greta varð að kaupa brúnan bol. Gripsholm nálgaðist Ameríku. Greta Garbo naut Iífsins eftir því sem tök voru á. Ekkert virt- ist ama að henni nema svefn- leysi. En sá er gallinn á í New ork, að ef skip kemur þangað eftir kl. 6 síðdegis, verður það að bíða eftir embættismönnum hafnarinnar þangað til morgun- inn eftir. Þetta er, eips og alilr hljóta að sjá, svívirðilegt fyrir- komulag, því að auðvitað þrá allir að kómast sem fyrst í land eftir 10 sólarhringa sjóferð. Nú kom. Gripsholm til New York eftir kl. 6 á laugardags- kvöldi, og hefir biðin þar ef til vill gert Gretu Garbo taugaó- styrkari en ella. Morguninn eft- MESSUR og FUNDIR i kirkju Sambandssafnaðar Messur: — á hverjum sunnudepi Kl. 11 f. h. á ensku Kl. 7 e. h. á íslenzku. Safnaðarnejndin: Fundlr 1. fðstu- deg hvers mánaðar. Hjálparnefndin: — Fundlr fyrsta mánudagskveld í hverjum mánuði. Kvenfélagið: Fundir annan þrtðju- dag hvers mánaðar, kl. 8 að kveldinu. Söngœfingar: Islenzki söng- flokkurinn á hverju fimtu- dagskvöldi. Enski söngflokkurinn á hverju föstudagskvöldi. Sunnudagaskólinn: — Á hverjum sunnudegi, kl. 12.15 e. h. ir var hún alveg hamslaus og lét kalla á umsjónarmann farþeg- anna og þær frúrnar, Renström og Sandler. Hún heimtaði kampavín upp í káetu sína, og félagar hennar drukku skál fyrir ferðalaginu vestur yfir hafið, sem nú var hamingjusamlega um garð gengið. Þá var Greta svo skjálfhent, að hún gat naum- ast lyft glasinu upp að vörum |sér án þess að það skvettist úr því. Síðan var tilkynt, að Greta Garbo ætlaði að veita blaða- mönnum áheyrn í reykingasal j skipsins, ef þeir gerðu henni kvölina ekki langa. Því var lof- að, og að því búnu sté “stjarn- an” inn í reyksalinn og settist á j stól, sem beið hennar þar. f í sama bili var f jöldairiörgum ljós- myndavélum miðað á hana, og pennar hraðritaranna byrjuðu að urga á pappírnum. — Eftir örstutta stund var alt um garð gengið. — Þeir voru reglulega við- kunnanlegir, amerísku blaða- menirnir, sagði frú Renström seinna. — Sjálfsagt skrifa sumir iþeirra nú einhverja bannsetta f jarstæðuna um Gretu Garbo, t. d. að hún sé afskaplega fótstór, sem ekki nær neinni átt. Ann- ars gekk þetta bæði fljótt og vel, og það fanst Gretu víst líká En samt var eins og fargi væri létt af henni, þegar viðtalið var um garð gengið. A f New York kom sendimaður frá Metro Goldwyn Mayer til móts við Gretu Garbo og fylgdist með henni alla leið vestur til Hollywood. Þar á hún að leika aðalhlutverkið í Kamelíufrúnni, sem ef til vill verður seinasta ameríska kvikmyndin, sem hún leikur í. Eftir nálega misseris dvöl vestra ætlar hún að sögn aftur autur yfir hafið — ef til vill í síðasta sinn, hver veit? — En blöðin segja, að hún ætli sjálf að stofna kvikmyndatöku- félag heima í Svíþjóð. Gautaborg í júlí 1936. S. Sk. ! —Samtíðin. Við Kviðsliti? I Til linunar, bóta og styrktar reynið nýju umbúðirnar, teyju- lausar. Stál og sprotalausar. — skrifið: Smith Manfg. Company, Dept. 160, Preston, Ont. W Islenzkt Bakarí Undir nafninu Wellington Bakery, 764 Wellington Ave. framleiðir allflestar íslenzkar brauð- og kökutegundir, svo sem rúgbrauð, vínarbrauð, tvíbökur og kringlur, tert- ur, Napólónskökur, rúsínubollur bg smjörkökur, o. m. f. Einnig allflestar hérlendar brauð og köku tegundir. — Vönduð vinna og sérstakt hreinlæti, Þetta nýbyrjaða bakarí óskar því eftir sem mestum viðskiftum við íslendinga, og mun reynt verða að gera öllum viðskiftavinum til hæfis eftir fremsta megna. — Komið, sendið pantanir, eða hringið í síma 29 966 Einnig verða pantanir utan af landi afgreiddar strax. Day Office Night & Day Office Sargent Ave. & Agnes St. 7241/2 Sargent, near Toronto St. SARGENT TAXI DAY or NIGHT 34 555 PHONE 34 557 Glve us a trial when you require Cars for Weddings, Funerals Etc. Enquire about our rates on out of town Trips

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.