Heimskringla - 06.01.1937, Síða 5
WINNIPEG, 6. JANÚAR 1937
HEIMSKRINGLA
5. SiÐA
hvern annan barnaskap, og öll
hin tignustu völd voru á glóðum;
vissu aldrei hvað þessi einkenni-
legi konungur kynni að gera
næst.
Um það hafði oft verið rætt á
meðan hann var ríkiserfingi, að
eitthvað mundi ske sögulegt þeg-
ar hann tæki við völdum; það
var eins og allir teldu það víst að
hann yrði að einhverju leyti ó-
líkur öðrum koungum — og nú
var það komið á daginn.
Framh.
STEFNUR OG ÁKVARÐANIR
ROOSEVELTS FORSETA
Eftir George Creel
Snúið hefir á íslenzku
Gunnbj. Stefánsson
Ekki að ástæðulausu væri það,
hó einhverjir brostu í kampinn
í “Hvíta húsinu”, yfir hljóð-
skrafi því, er komist hefir á
vettvang, að Roosevelt forseti
hefði ákveðið hugsað sér að
verða forseti þriðja tímabilið.
Að fráskildri þeirri upprunalegu
venju, er átti sér stað í stjórn-
artíð George Washington, og
sem olli U. S. Grant forseta á-
^Vggju og vonbrigða, að geta
eigi afnumið þá hefð þá á það
sér nú stað, að Roosevelt forseti
bíður með rólegri eftirvæntingu
einkalífs réttinda sinna að út-
runnu hinu síðara kjörtímabili
hans.
Hann hefir ef til nokkrum
öðrum forseta framar unnað for-
setatíð sinni. — Og glaðst yfir
hví að geta beitt ákveðnum
vilja sínum til að ögra hindrun-
uni þeim er orðið hafa á vegi
bans til mikilvægra fram-
kvæmda.
En eigi að síður saknar hann
bess eigi að leggja niður völdin.
Nú fyrir skömmu sagði hann í
samtali við einn vina sinna: —
“Þann 21. jan. 1941, þegar nýr
forseti tekur við, þá ætla eg að
vera í Hyde Park og njóta lífs-
ins í fylsta mæli.”
Öllu líkamlegu þreki og sálar-
hröftum mun hann verja til
framkvæmda þetta, hið annað
kjörtímabil sitt, og hann byrjar
hessi næstu fjögur ár með ein-
^aegum og alvarlegum viljakrafti,
Sem skapar ákveðnar stefnur og
framkvæmdir, samkvæmt vilja
bins mikla atkvæðamagns þjóð-
arinnar.
Eigi svo að skilja, að hann
skoði endurkosningu sína 3. nóv.
neinn séstakan persónulegan
SANNANIR
æðsti úrskurðurinn
Fyrrum héldu menn að sólin
gengi í kring um jörðina
þangað til Kopemikus grensl-
aðist eftdr sönnunum á því
og breytti skoðunum manna
á sólunni. Þá héldu menn
að jámskip gæti ekki flotið
þangað itil að Aron Manby
leitaði sannana á því, bygði
það og kom þvi á flot.
Ef þér haldið að “Cash”
verð hjá EATON sé ekki
lægra en svo nefnt "Cash”
verð, með umliðunar fresti,
þá leitið sannananna. Pen-
ingar greiddir út í hönd, er
peninga sparnaður, svo það
liggur í augum uppi að pen-
ingaverðið hlýtur að vera
lægra e numlíðunar verðið.
Grenslist eftir þessu og fáið
fullar sannanir fyrir því.
EATON’S viðskitfamenn, er
greiða peninga út í hönd,
njóta þess spamaðar sem
peningaverzlunin færir og
slappa vi ðþann kostnað sem
lánsverzlunin hefir í för með
sér. Með umlíðunargreiðslu
borga viðskiftamenn sann-
gjarnt ofanálag á hið lága
peningaverð, fyrir kostnað-
ion sem láninu er samfara.
t*að er markmið vort, að
EATON’S umlíðunar greiðsl-
an skuli samt (þrátt fyrir
kostnaðar aukann) vera lægri
en annarsstaðar, og EATON
peningaverð hið al-lægsta er
fáanlegt er. BERIÐ ÞAÐ
SAMAN og SJAIÐ TIL.
EATON'S
sigurvinning. Það var þjóðin,
sem talaði með rödd yfirgnæf-
andi atkvæðamagns, og hann
skoðar það þann veg, að sú rödd
hafi hrópað kröfur fólksins.
Því hefir verið haldið fram
að stefna forsetans sé óákveðin
og margir sagt, að ræður hans
hafi fjallað um alt og ekkert.
Jafnvel sumir stuðningsmenn
hans hafa hrósað honum fyrir
að hafa unnið án þess að gefa
nokkur loforð.
Þó að það geU verið satt, að
hann hafi eigi bent á sérstakar
aðferðir, hélt hann aldrei svo
ræðu, að hann eigi legði áherslu
á framkvæmdir og undantekn-
ingarlaust láðist honum aldrei
að brýna fyrir fjöldanum mann-
félagslega og stjórnarfarsrök-
fræði. Hvernig gætum vér ef-
ast um, að skoðun og traust
mannsins — trúin, sem ræður
orðum hans og athöfnum, gefi
oss eigi skýrari mynd en upp-
dráttur af framkvæmdastefnu,
sem breytst getur eftir kring-
umstæðum og staðháttum með
hverjum degi sem líður? For-
setinn hefir látið í ljósi skoður.
sína eins ákveðið og ensk tunga
getur túlkað hana, að það,sem
átti sér stað árið 1929, hafi eigi
aðeins verið fjárhagslegt hrún.
heldur *endalok tímabils í sög-
unni, og að hin gildandi ákvörð-
un hinnar nýju stefnu—ákveðna
markmið :— sé að stefnsetja
nýtt og betra skipulag, sem veiti
íverjum einasta manni, konu og
Darni réttindi til að finna til
metnaðar og sjálfsvirðingar, sjá
stjörnurnar í sama ljósi og njóta
sameiginlega dýrðar sólarinnar.
Hann hefir gert öllum heyrum
íunnugt, að smávegis umbætur
væru eigi nægar, og eins^ og
íann hefir staðið fast fyrir, svo
mun han nhalda áfram að endur-
oæta þjóðlífið hagfræðislega og
stjórískipulagslega og reisa það
á því bjargi, sem hvorki storm-
ar, regn né flóð fá grandað því.
Til þess að vera eigi myrkur
máli, hefir hann eigi skirrst
við að segja, að stjórn, sem eigi
getur staðið straum af gamal-
mennum sínum, getur eigi látið
hrausta og viljuga vinna, neyð-
ir foreldra til að senda börn sín
til þrælkunar í verksmiðjunum,
og lætur sortaský örbirgðar og
ábirgðarleysis svífa yfir heimil-
um fjöldans, sé eigi sú stjórn,
sem geti setið við völd, eða eigi
að sitja við völd. Forsetinn hef-
ir aldrei aðhylst jafnaðarstefnu,
og skoðun hans er sú, að núver-
andi fyrirkomulagi megi breyta
svo til umbóta, að það verði not-
hæft til þjóðnýtingar. En hann
fer ekki í felur með þá skoðun,
að eigna einkaréttindi skuli alls
eigi brjóta í bág við almennings-
heill.
Honum finst arðtekja af
starfsrekstri einstakra fyrir-
tækja sanngjöm, svo framar-
lega að hún sakar eigi annan iðn-
rekstur né einstaklingsheill yfir
höfuð. Han hefir þrásinnis sagt,
að einka iðnstofnanir væru und-
irstaða velsældar í Bandaríkjun-
um, en þær yrðu að vera mann-
úðlegar og eigi skerða réttindi
né framþróun samborgaranna.
Enginn hefir látið bersýnileg-
ar í Ijós skoðanir sínar.
Hið fyrra kjörtímabil hans
var nálega ein óslitin uppreisn
gegn gömlum kreddum og úr-
eltum kenningum.
Skoðun hans fer ekkert eftir
því hversu gömul stofnunin er,
heldur hversu nothæf hún er.
Heimspeki hans bendir á, að
ef stofnanir verða gatslitnar og
kyrstæðar, þá eigi að reisa nýj-
ar, sem fullnægi kröfum og
framþróun samtíðarinnar.
Hann fyrirlítur þá fjarstæðu,
að fátækt eigi sér stað meðal
fjölda fólks, sakir yfirsjóna
sjálfs þess, heldur stafi örbirgð
af misbrestum og spillingu í
þjóðskipulaginu. Hann felst eigi
á þá skoðun, að landsstjórnir
eigi að líta með velþóknunar-
augum á þá sem eiga því láni að
fagna að baða í rósum, en á
hinn bóginn eigi þær að láta sig
engu Varða hlutskifti þeirra er
ólánsamari eru. Að stjórnar-
völd sýni hlutleysi, ef þörf gerist
fyrir hið gagnstæða, er alger-
lega gagnstætt skoðun hans, svo
er og réttmæti hnefaréttarins og
hin gamla kenning að hinn sterk-
asti eigi að standa yfir höfuð-
sverðum hinna ómáttugri.
Hann trúir í hjarta sínu á að
velsæld einstaklingsins sé einn
hlekkur í velmegun alþjóðarinn-
ar; að vöxtur trésins sé frá rót-
unum en eigi frá krónunni niður
á við, að síðasti maður í fram-
þróunarfylkingunni eigi að vera
mælikvarði framfaranna en ekki
sá fremsti.
Skoðun forsetans er sú, að
þessar skýru opinberanir leiddu
fyllilega í ljós sterkann ásetning
og framkvæmdir, og að andstæð-
ingarnir tækju þær á þann veg.
Lög hins nýja sáttmála mættu
mótspyrnu, en sterkasta og aðal
árásin var á stjórnmálaskoðun
Roosevelts forseta.
Eftir skilningi forsetans, þá
var úrskurður þjóðarinnar eigi
á milli tveggja stjórnmálaflokka
né tveggja manna, heldur á milli
tveggja mannlífsskoðana. Og
með öll gögn og skilríki fyrir
augunum, kaus hún skoðana-
stefnu Roosevelts. Og það var
ekki einungis íhaldsstefnan, sem
hún kvað niður. Jafn ákveðið
hafnaði hún skoðunum föður
Coughlin, Dr. Townsend, Gerald
Smith, Lemke og hagfræðis sam-
suðu þeirra.
Að minsta kosti um óákveðinn
tíma er því forsetinn óhultur
fyrir árásum miðaldaskoðana
hinna íhaldssömustu hægri
manna, eða róttækisstefnu hinna
áköfustu • vinstri flokks manna.
Jafn rólyndur maður og forset-
inn er, sem getur með jafnaðar-
geði tekið hverju sem að hönd-
um ber, þá var það tvent, sem
reyndi á þolinmæði hans til
þrautar í síðustu kosningahríð.
Annað hin svæsna árás á trygg-
ingarlöggjöfina og hitt, að hann
héldi fram, sýndi fram á mis-
munandi stéttaskipun, er gæti
ollað flokkshatri honum til sig-
urs í baráttunni.
Hverjir eða hvað var það sem
hann reis upp á móti ? Alls ekki
öllum iðnhöldum og iðnaðar-
stofnunum, en aðeins á móti
glæpsamlegum starfsrekstri og
stuðningsmönnum hans. Á móti
óskammfeilnum og ótryggileg-
um forspröklíum og fyrirtækj-
um, fjárglæfrastofnunum, skálk-
um er reka atvinnu af að féflétta
ekkjur og munaðarleysingja,
werksmiðjueigendum, gráðugum
að leggja unglinga undir þrælk-
unarólina og græða á svitadrop-
um þeirra, svindlurum, óhlut-
vöndum iðnhöldum, er skifta
milli sín ránfeng þeim er þeir
hafa dregið saman með því að
kúga verkamenn sína til að
vinna fyrir lágt kaup og eins á
því að okra á framleiðslu sinni
til neytenda.
Árangur kosninganna synir
berlega, að engin stéttaskifting
átti sér stað. Þó að öll verka-
mannafélögin til samans hefðu
eigi sótt kjörstaðina og enginn
er þáði sveitastyrk hefði greitt
atkvæði, þá hefði það sýnt sig
að Roosevelt forseti hefði samt
unnið kosningarnar.
Það olli og veldur auðvitað
sterkra áhrifa, setningar þessar
í ræðu Roosevelts, þeirri er hann
hélt í New York: “Eg vildi geta
látið það sagt um stjórnarráð
mitt hið fyrra kjörtímabil, að
það hefði hnekt og stemt stigu
fyrir gráðugu og valdaþyrstu
óaldarliði. Eg vildi einnig geta
látið það sagt um stjórnarráð
hins síðara kjörtímabils míns
að þá hefðu hin áðurgreindu
öfl og áhrif mætt sigurvegurum
sínum.” Forsetanum getur eigi
skilist hvernig jafnvel flokks-
blindni gæti skilið skoðanir hans
sem hótanir til alræðis né ein-
veldis skipulags.
Hverjum manni með meðal
dómgreind ætti að geta skilist,
að það sem hann á við er alger
yfirráð yfir spillingaröflum og
óvættum, er altaf hafa verif
þrándur í götu fyrir sönnum
virt. í veikindum hlynti hvei
að öðrum og vamir voru settaj
lýðræðis hugsjónum. Forsetinr istrax svo að sjúkdómar gætu eigi
ber samt sem áður enga beiskju jbreiðst út.
í brjósti. 1 Engar stofnanir né stórfélög
Von hans og ósk er sameinað Þektust; uppsprettur, brunnai
þjóðfélag og sterk samvlnna.
En þó að honum sé umfram
annað ant um sameiningu, þá
villihann eigi að neinum skiljist
það svo, að hann muni hopa
nokkuð frá skoðunum sínum eða
fara nokkurn meðalveg. Alt
og vatnsþrór voru til vatns-
neyslu og vöðvarnir krafturinn
til að draga það að sér.
Það þektust engin iðnaðarfé-
lög fram að árinu 1840, eða um
það bil. Menn starfsærktu iðn-
að undir sínu eigin nafni, og
verður athugað til hlítar; sam- i voru í nánu sambandi við verka-
vinnu tilrauna verður leitað við [menn sína. Þannig var iðnrekst-
hvern einasta göfuglyndan l,rinn einfaldari og öllum gafst
mann, en á engan hátt verður j kosturá að sjá hvað var að ger-
samvinnu hugmyndin látin
standa í vegi fyrir sókn, gegn
ast. Fjárgyæðgi, svik og óráð-
vendni gátu þá eigi þrifist sam-
einkaréttindum, einokun, fjár-
græðgi né öðrum þjóðfélags-
meinum. Sakir stöðu sinnar sér
forsetinn öðrum fremur djúpið í
amerísku þjóðlífi, sem aðskilur
hugsjónir og hagfræðislegar
framkvæmdir. Það er alvanalegt
að líta á hugsjónamanninn sem
nokkurskonar hálfvita, og skoða
þá menn verkfæri í hendi auð-
manna, er eigi aðhyllast hvert
ijóðfræðis læknislyf samstundis
og því er á loft haldið.
Alt of oft hefir það átt sér
stað að barátta fyrir stjórnar-
farslegum umbótum hefir fallið
herðar þeim, er fremur hafa
verið draumkendir en fram-
kvæmdasamir stjórnmálamenn,
?ar sem þeir, er meiri reynslu,
ækkingu og dómgreind höfðu,
gátu aðeins verið athafnalitlir á-
deilendur. Það er þessi skaðlega
skifting í amerísku þjóðlífi, sem
ilýtur að hverfa, og það er ekki
hvað síst óskir og vonir forset-
ans, að á síðara kjörtímabili
íans, takist að sameina göfug-
ar hugsjónir og hagsýnisstefnur,
er séu hornsteinar til að semja á
hagfræðis og þjóðfræðislega
stefnuskrá.
Eftir skoðun forsetans, þá eru
íindranirnar tvær. Þegar árás
íefir verið hafin á þrællynda
fjármálamenn og iðnhölda, þá
hefir þeim alt af tekist að sann-
færa fjöldann um, að árásin væri
íafin gegn öllum iðnhöldum og
fjármálamönnum.
Hin ástæðan' er annaðhvort
linn heimskulegi misskilningur
eða þrái að kannast eigi við hin-
ar miklu breytingar er orðið hafa
í amerísku þjóðlífi. Þegar stjórn-
arskráin var samin, þá voru ekki
eins margir íbúar landsins og nú
eru í Nýju Jórvík einni saman.
Þá voru fá þjóðskipulags og hag-
J'ræðisleg verkefni, og er svo bar
við, að þau bæri að höndum, þá
fluttu borgararnir sig búferlum
engra í burt, fyrst vestur yfir
Alleghenny fjöllin, efti slóðum
hinna herskáu Iroquois Indíána
og þaðan vestur yfir Mississippi
fljótið. Og^ síðast vestur yfir \
Klettafjöllin, nýtt landnám á-
valt opið hinum fátæku, óánægðu
og framtakssömu frumbyggjum.
Það var aðallega landbúnaðar j
þjóð, er lifði að mestu leyti af
gróðri jarðarinnar. Þá voru
aðeins fáar stórar borgir; þá
þektust engin þengsli í borgum,
engin leiguliða svæði né sora-
hverfi. Þá var hvert bygðarlag
sjálfu sér nóg.
f hverju þorpi var skósmiður,
skraddari og málari, er hver og
einn framleiddu sína vöru og
voru vandir að virðingu sinni.
Alger einkaréttindi og óhindr-
uð semkeppni þótti eðlilegur at-
vinnurekstur, og engin þörf fyr-
ir samvinnu og því mjög lítið
tækifæri til að starfrækja hana.
Jafnvel þó að hin gömlu flutn-
ingsæki stjórnarinnar legðust
niður, breyttust eigi farartæki
það mjög til batnaðar, að fólk
hefði löngun til langferða nema
það sem nauðsynlegast var, og
samband og kynning milli
sveita og bygðarlaga var mjög
lítil. Hvert ríki var raunveru-
lega einveldi út af fyrir sig, er
skoðuðu lög sín og vald einka-
réttindi, ter yfirstjórnin hefði
enga heimild til að hafa nein af
skifti af. Gamalmenni eyddu
ellinni hjá giftum börnum sín-
KIEWELS
OVlúto Seaf-
)A>er
KIEWEL BREWING
COMPANY LIMITED
ST. JOSEPH and DUMOULIN STS.
ST. BONIFACE-
. 'Tírt/v. ’
Phone 96 361
kvæmt almenningsálitinu.
En hvert er viðhorfið nú?
Þjóð er áður var að mestu
landbúnaðarþjóð hefir breytst í
stóriðnaðarþjóð. Vísindi og upp-
götvanir sviftu fyrst í stað þús-
undir manna atvinnu og síðan
miljónir manna. Einstaklings
iðnrekstur hefir að mestu horf-
ið og stór iðnaðarfélög risið upp
þar sem nálega er ekkert sam-
band milli eigenda og verkalýðs
þeirra. Meiri hluti þjóðarinnar
býr nú í borgum, eða þröngum
og óhollum iðnaðar héruðum,
með sorahverfum, er hverri þjóð
eru til stórrar skammar. ósjálf-
stæði hefir komið í staðinn fyrir
sjálfstæði. Þegar verksmiðjum
er lokað eða félög leyst upp,
eða þegar verkalýðurinn verður
fyrir einhverju fjárhagslegu
skakkafalli, þá eru engin auð
svæði, er hann gæti leitað til,
engin ónumin lönd er gætu bætt
úr högum fólksins. Það verður
því að treysta á atvinnu við iðn-
aðarframleiðslu og verzlun, og
þar eð það með launum sínum
kaupir jarðyrkju framleiðsluna,
þá verður atvinnumissir og kaup-
lækkun bein orsök í verðfalli á
landbúnaðarafurðum og fjár-
hagslegu hruni fyrir bóndann.
Xstaðinn fyrir frjálsa og hag-
kvæma samkepni hefir komið
gráðug og óhlutvönd samkepni.
Níutíu af hundraði af atvinnu-
veitendum geta komið sér sám-
an um reglugerð um ráðvanda
starfsrækslu, en hinir tíu af
hundraði, geta með ofbeldi og
lagaleysi neytt hina til að kjósa
á milli að svíkja verkalýð sinn og
vörugæði ,eða að verða að öðrum
kosti gjaldþrota.
Afleiðingarnar hafa svo orðið
að iðnaðarstofnanir hafa neytt
foreldra til að senda börn sín til
um, þar sem þau voru elskuð og
arlega lágt kaup, hafa einnig
kúgað kvenfólk til að vinna erf-
iða og þreytandi vinnu á vefnað-
arverksmiðjum sínum og sauma
stofum fyrir svo lágum launum,
að það hefir eigi getað klæðst né
fæðst af þeim, og hinni illkynj-
uðu samkepni mætti svo líkja
við krabbamein, sem er að naga
rætur þjóðfélagsins.
Fjölskyldufeður eru eigi fram-
ar færir um að sjá fyrir fjöl-
skyldu sinni né aldurhnignum
foreldrum. Atvinna er eigi til
fyrir þá sem viljugir eru að
vinna. Gömlu fólki stendur orð-
ig stuggur af elliárum og ósjálf-
rátt vinnuleysi ollir ótta og ör-
væntingu. Framh.
Skoti kom eitt sinn til London,
án þess að hafa gert fyrirfram
ráðstafanir um húsnæði og varð
því að gera sér að góðu að gista
hjá enskum manni, sem hann
hitti á stöðinni og kvaðst geta
lofað honum að vera.
Næsta dag, eftir morgunverð,
spyr gestgjafinn:
“Eg vona að þér hafi fallið
rúmið? Svafstu vel?
“Já, ágætlega,” sagði Skotinn.
“Varstu ánægður með kvöld-
verðinn í gær?”
“Hann var dásamlegur.”
“Og morgunverðurinn?”
“Hann var fyrirtak.”
“Gott. En — en hvað segið
þér þá um tíu skildinga?”
“O-hó!” sagði skotinn. “Það
væri guðs-sending!”
* * *
A. — Hvað varstu lengi trú-
lofuð honum?
B — Eg veit það ekki með
vinnu á verkstæðin fyrir smán-1 vissu. úrið mitt stansaði.
Borgaradréf
Lifsábyrgðar skírteini
Fasteignabréf
Verðmæt skjöl sem þessi ættu aldrei að vera
geymd heima þar sem þeim gæti verið stolið
eða þau gætu brunnið fyrir óaðgæzlu. Geym-
ið þau í öryggis skúffu hjá viðskifta útibúi
yðar við Royal Bank of Canada.
Öryggis-skúffa er fullkomin öryggisskápur
úr stáli sem þér eigið sjálfur enn er geymdur
í bankanum. Það er hinn eini öruggi staður
þar sem þér getið geymt þessi verðmætu
skjöl yðar, því þér gangið einir um hann.
Ráðsmaðurinn við næsta útibú Royal bank-
ans sýnir yður með ánægju þessar skúffur.
Leigan eftir þær er smáræði—minna en eitt
cent á dag.
THE
ROYAL BANK
OF CANADA
EIGNIR YFIR $800,000,000