Heimskringla - 06.01.1937, Blaðsíða 8
8. SÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 6. JANÚAR 1937
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
Næstkomandi sunnudag fara
fram tvær guðsþjónustur í Sam-
bandskirkjunni í Winnipeg, á
ensku kl. 11 f. h. og á íslenzku
kl. 7 e. h. Við morgunguðsþjón-
ustuna prédikar Dr. Robert
Milliken fyrv. prestur og skóla-
stjóri United Church í Saska-
toon, Vancouver, Ottawa, Re-
gina og annarsstaðar. Hann er
nú yfirmaður “Saskatchewan
Censor Board”. Prestur safn-
aðarins messar við kvöldguðs-
þjónustuna. Fjölmennið!
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni á Gimli s.d. 10. jan. kl.
2. e. h.
* ¥ ¥
Fyrst um sinn verður ekki
messað í Sambandskirkjunni í
Wynyard sökum þess að prest-
urinn er í sóttkví.
Jakob Jónsson
¥ * ¥
Til Jacobs J. Norman
Virðingarfylst víst eg met,
viðurkenning þína.
Þagnarpunkt eg þar við set;
þökk fyrir perlu mína.
Yndo.
Almanakið 1937
43. ár.
INNIHALD :
Almanaksmánuðirnir, um timatalið,
veðurathuganir og fleira.
Safn til landnámssögu Islendinga við
Brown, Manitoba, með myndum.
Eftir Jóhannes H. Húnfjörð
Drög til landnámssögu lsl. við norð-
urhluta Manitobavatns, — með
myndum. Eftir Guðmund Jóns-
son.
Söguágrip Isl. í Suður-Cypress sveit-
inni í Manitoba. Eftir G. J. Ole-
son, með myndum.
Landnámssaga mín eftir Jón Jónsson,
með myndum, skrifuð af honum
sjálfum, *
Með byssu og borga. — Eftir Grím
Eyford.
Leiðréttingar við landnámssöguþátt
Isl. í Keewatin í Almanakinu
1936. Eftir B. Sveinsson.
Helztu viðburðir og mannalát meðal
Isl. i Vesturheimi.
Almanakið alls 120 bls.
•
Kostar 50 cents
Til sölu fostud. 8. jan. 1937
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON
674 Sargent Ave. Winnipeg
Laugardaginn 26. des. 1936
voru þau Harold Stuart Hender-
son frá Moose Jaw, Sask., og
Þorbjörg (Thory) Jackson frá
Elfros, Sask., gefin saman í
hjónaband af Rev. J. W. Bulli-
ment að heimili móður brúðar-
innar. Brúðurin er dóttir Ey-
mundar heitins Guðvaldssonar
Jackson og Ingibjargar Jackson
(dóttur Eiríks Sumarliðasonar).
Heimili ungu hjónanna verður í
Moose Jaw, Sask.
¥ ¥ ¥
Mrs. Sólveig Thórðarson, Viv-
ian, Man., kom til bæjarins um
jólin og hefir dvalið hér fram
yfir hátíðir. Hún heldur heim-
leiðis upp úr miðri viku.
¥ * *
3791 W. 37 Ave.,
Vancouver, B. C.,
Hr. ritstj.: 28. des. 1936
Með þessum fáu línum vil eg
biðja þig að gera svo vel og birta
dánarfregn Magnúsar Tait sem
dó 6. des. að heimili sínu hér í
Vancouver og var jarðsungin þ.
9. sama mánaðar. Hann eftir-
skilur ekkju og sjö uppkomin
börn. Hans verður síðar minst.
Mrs. M. Tait
* * *
Mr. og Mrs. Fred Björnsson
og sonur þeirra frá Thief River
Falls, Minn., komu til bæjarins
s. 1. miðuvikudag og dvöldu hér
fram á fimtudag. Héðan héldu
þau suður til Mountain, N. D.
* * *
Heimilisinðaðarfélagið heldur
næsta fund á miðvikudagskveld-
ið 13; jan. næstk. að heimili Mrs.
J. P. Markússon, 989 Dominion
St., kl. 8.
¥ ¥ ¥
Jólagjafir til hins fyrirhugaða
sumarbústaðar handa börnum,
sem Sambands-kvenfélaga sam-
bandið stendur fyrir.
Hér með kvitta eg fyrir og
þakka gjafir í áður nefndan sjóð
frá Th. Thorfinnssyni, Moun-
tain, N. Dak. $5.00; frá T. S.
Thorfinnssyni, Lincoln, Neb.
$5.00.
Innilegt þakklæti.
Fyrir hönd stjórnarnefndar
kvenfélaga sambandsins.
Mrs. G. M. K. Björnsson,
féhirðir.
* ¥ ♦
Nýja IjóSabókin
“Norður-Reykir”
eftir Pál. S. Pálsson er til sölu
hjá eftirfylgjandi útsölumönn-
um:
Árborg: G. O. Einarsson
Foam Lake: John Janusson
Gimli: Kr. W Kernested
Geysir: T. Böðvarsson
Glenboro: G. J. Oleson
Kandahar: S. S. Anderson
Keewratin: S. Björnsson
Leslie: Th. Guðmundsson
Piney: S. S. Anderson
Selkirk: K. S. Pálsson
'Steep Rock: F. E. Snidal
Winnipegosis: Ingi Anderson
Blaine, Washi, Rev. H. E. Johri
son
Cavalier, N. Dak.: J. K. Einars-
son
Chicago, 111.: Geo. F. Long
Garðar,’N. D.: J. S. Bergmann
Mountain, N. D.: Th. Thorfinns-
son
Winnipeg:
Magnus Peterson
313 Horace St., Norwood
Viking Press Ltd.
Sargent Ave.
P. S. Pálsson
796 Banning Street
Bókin kostar $1.50 í kápu —
$2.00 í skrautbandi.
¥ ¥ ¥
— Forstöðunefnd karlaklúbbs
Fyrsta lút. safnaðar, æskir þess
getið að næsti fundur karla-
klúbbsins verður haldinn á
þriðjudagskv. 2. feb. n. k. á
venjulegum stað og tíma.
AGNES PÁLSSON VATNSDAL
16. marz 1868—27. ágúst 1936
Ort undir nafni fóstur barnanna
Gríms og Láru
Því rísa bárur blænum í
Og brotna á kaldri strönd
Á meðan röðull laugar lönd
Og litar gullin ský?
Nei, horfin er nú sumarsól.
Þú sefur móðir góð!
Því okkar sáru saknaðs ljóð
Við syngjum þessi jól.
í gegn um sorgir, gegn um hel
þú gekkst sem hetja bein.
Því er þín minning helg og hrein
Sem himins Fagrahvel.
¥ ¥ ¥
Og þú ert nálæg okkur enn,
Já, enn sem fyr á tíð.
Við heyrum enn þín ástarorð
Svo elskuleg og blíð.
Hve máttug var þín móðurhönd!
Svo mjúk en þó svo smá?
Því henni stýrði hin hreina sál
Með helgri kærleiks þrá.
En hver fékk skilið þessa þrá
Sem þú í hjarta barst?
Já, hver gat elskað eins og þú
Sem ástkær móðir varst?
¥ ¥ ¥
Jú, það var ættaróðal þitt
Við íslenzkt móðurskaut,
Þér sló í barmi hjarta hlýtt.
Og hönd þín mýkti þraut.
¥ ¥ ¥
Því far þú jólafagnaðs til
Þar fegurð Ijóss ei dvín,
Og finnur samhljóm sálin þín
Við sviflétt strengjaspil.
S. E. B.
MUSSOLINI VANN
ABESSINÍU MEÐ MÚTUM
Ársfundur
Kvenfélags Sambandssafnaðar í Winnipeg, verður
haldin að heimili Mrs. P. M. Pétursson, 640 Agnes
St., þriðjudagskveldið 12. janúar kl. 8 s.d.
Fyrir fundi liggja hin algengu ársloka störf, og
embættiskosningar; að þeim loknum flytur Miss
Sigurrós S. Vídal, hjúkrunarkona erindi um “Heil-
brigðis mál.”
óskað er eftir að engin félagskona láti sig vanta
á fundinn.
f umboði stjórnarnefndarinnar:
6. janúar 1937.
Anna Pétursson, forseti
Steinunn Kristjánsson, skrifari
Nýkomnar íslenzkar Vörur
TIL SÖLU HJÁ G. FINNBOGASON
700 SARGENT AVE. SfMI 31 531
íslenzkur Harðfiskur .................30 C
íslenzkur merkur Ostur...............40C
fslenzk Kryddsíld.. 30c askjan
fslenzkur saltfiskur .................*| pd.
Pöntunum sint samstundis og þær berast!
SfMI 31 531 700 SARGENT AVE.
Þar til Makale féll ftölum í
hendur, stýrði Bono hershöfð-
ingi liði Mussolinis suður þar.
Hann hefir nú nýlega ritað
bók, þar sem hann lýsir yfir því,
að sigur ftala sé ekki fyrst og
fremst að þakka her þeirra og
vopnum, heldur fyrst og fremst
afarvel skipulögðum mútum, er
beitt var hvarvetna í landinu.
Og eftir því, sem ensk blöð segja
um efni bókarinnar, eru þær
sönnu ástæður, sem þar er skýrt
frá, víða í beinni mótsögn við
það, sem fulltrúar Mussolinis
héldu fram um þessi efni á fund-
um Þjóðabandalagsins í Genf.
Bana segir, að ítalska sendi-
sveitin hafi mörgum mánuðum
fyrir ófriðinn, stofnað pólitíska
skrifstofu í Addis Ababa og sem
fékk fyrirskipanir sínar beint frá
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Mussolini. /
Þessi skrifstofa setti af stað
skipulagða mútustarfsemi víðs-
vegar um ríki keisarans. Pen-
ingum var ausið út og með þeim
árangri, að í sérhverju héraði
landsins hafði höfðingjunum
verið mútað til fylgis við ítali og
þar með telur Bono, að 200 þús-
undir abessinskra manna hafði
staðið reiðubúnir til að svíkja
land sitt og keisara.
í þessari bók er m. a. birt bréf
frá Mussolini til Bono, þar sem
svo er fyrirskipað, að ef keisar-
inn ekki hefji ófrið að fyrra-
bragði, þá geri ítalir það sjálfir.
En í Genf héldu þeir því stöðugt
fram, að ófriður þeirra hafi ver-
ið hafinn sem varnarstríð.
2. október s. 1. ár hófu ítalsk-
ar liðsveitir innrás í Abessiníu.
En löngu fyr skrifar Mussolini
Bono hershöfðingja bréf, þar
sem þetta m. a. er tekið fram:
— Þegar þér, eftir 10. sept-
ember fáið símskeyti, undirrit-
að af mér, þar sem eg segist
hafa móttekið skýrslu yðar,
verðið þér innan sólarhrings að
gefa fyrirskipun um árás. —
Hershöfðinginn kveðst hafa
orðið að hlýða, en eftir fall
Makale, fékk hann skipun um
að hverfa heim til ítalíu.
— Eg svaraði, segir Bono, að
það væri mér hið mesta fagn-
aðarefni að koma heim aftur, —
en það voru samt hrein ósann-
indi.
Þessi bók, sem Mussolini hef-
ir sjálfur ritað formála fyrir,
hefir vakið hina mestu athygli,
einkum fyrir þá furðulegu ó-
skammfeilni, sem þar kemur
fram, m. a. í því, að Þjóða-
bandalaginu hefir verið sagt
fullkomlega rangt til um þær á-
stæður, er hleyptu stríðinu af
stað.
Það virðist sem Mussolini sé
beinlínis að stæra sig af því að
hafa getað blekt bandalagsþjóð-
irnar, svo sem efni þessarar bók-
ar sýnir.
SKRÍTLUR
Safnað hefir D. B.
Hann tók hana í arma sína.
“ó, hjartað mitt!” sagði hann.
“Eg elska þig svo afar heitt. —
Góða segðu að þú sért mín. Eg
er ekki eins ríkur og Percival
Brown. Eg á ekki bifreið eða
skrauthýsi með öllum heimsins
þægindum. En eg elska þig af
öllu hjarta og get ekki lifað án
þín.”
Tveir mjúkir armar vöfðus^
um háls hans og tvær yndislegar
varir hvísluðu í eyra hans.
“Og eg elska þig líka hjartað
mitt. En — hver er hann þessi
Percival Brown?”
¥ ¥ ¥
Læknirinn — Eg er hræddur
um að hann sé dáinn.
Sjúklingurinn — Nei, eg er
ekki dáinn.
Hjúkrunarkonan — Hafðu
hægt um þig læknirinn veit það
bezt.
¥ ¥ ¥
Læknirinn — En góða kona,
veistu ekki að viðtalstími minn
er frá klukkan tvö til fimm og
þrjátíu?
Konan — O-jú, læknir. Eg
vissi það. En hundurinn vissi
það ekki því hann beit mig á
mínútunni klukkan sex.
¥ ¥ ¥
K — Svo það varst þú, sem
skrifaðir á borðið: “Kennarinn
er flón ?”
Drengurinn — Já, herra minn.
K. — Það gleður mig að þú
segir sannleikann.
¥ ¥ ¥
Vinnuveitandinn, sem varð að
beygja sig undir hin nýju á-
kvæði um hækkun á kaupi verka-
manna, kallaði alla verkamenn
sína saman og sagði þeim, að
hvenær sem hann kæmist að því
að þeir yrðu of seinir til verks
framvegis ,skyldi hann sekta
hvern þeirra um dollar fyrir
hverja mínútu sem þeir yrðu of
seinir. “Og,” sagði hann. “Og cf
þið verðið ekki eina mínútu of
seinir sex sinnum á viku, þá rek
eg ykkur.”
¥ ¥ ¥
Móðir var að telja son sinn á
að koma með sér til kirkju og
segir:
“Þú færð að fara í Bíó einu
sinni í viku og skemta þér þar í
tvo til þrjá klukkustíma. Og þú
ferð oft með Billy yfir til Harrys
að skemta þér. Finst þér það þá
ekki réttmætt að þú komir með
mér einu sinni í viku í guðs hús,
einn klukkutíma í senn?”
Hinn átta ára gamli drengur
hugsaði sig um andartak, og
sagði svo:
“Já, en góða mamma! Hvað
mundir þú gera ef þú værir boð-
in eitthvað út. En í hvert sinn
sem þú kæmir þangað væri kunn
ingi þinn ekki heima?”
¥ ¥ ¥
Gesturinn — Því ert þú í fang-
elsinu ?
Fanginn — Fyrir jólakvæmi
Gesturinn — Og hvernig
skemtir þú þér?
¥ ¥ ¥
Hóteleigandinn — Ef hún er
ekki konan þín, mátt þú búast
við 100 dallara sekt.
Gesturinn — Eg vildi glaður
borga 500 dollara sekt til þess
að hún væri ekki konan mín.
¥ ¥ ¥
Lífsábyrgðaragentinn — Fyr-
irgefið þér frú. Hvað eruð þér
gömul.
Frúin — Eg hefi séð 23 sum-
ur.
Lífsábyrgðaragentinn — Já,
vissulega. En hvað mörgum
sinnum?
¥ ¥ ¥
Söngvarinn — Eg vátrygði
rödd mína fyrir $100,000.
Vinur hans — Og hvað ger-
irðu við peningana?
¥ ¥ ¥
A — Hvar heyrðirðu þessa
skrítlu, sem þú sagðir okkur.
B — Eg bjó hana til.
A — Þá hlýtur þú að vera
mikið eldri en þú sýnist vera.
MESSTJR og FUNDIR
< kirkju SambandatafnaOar
Mesaur: — á hverjum sunnudegi
KI. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funölr 1. föstu-
deg hvers mánaSar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrsca
mánudagskveld 1 hverjum
mánuði.
KvenfélagiS: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngœfingar: Islenzki song-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
BRÉF TIL HKR.
Winnipegosis, Man.,
4. jan. 1937
Manager,
The Viking Press Ltd.:
Þá er komið annað ár, svo
maður fer að líta í sínar minn-
isbækur hvernig viðskiftin
standa. Aðallega eru það ís-
lenzku blöðin (hjá mér) sem
ætla að fara gera áhallan, svo eg
legg hér með 3ja dollara ávísun
til Heimskringlu svo eg geti lesið
hana í ró og næði þetta ár fyrir
skuldakröfum og samvizkukvöl.
Eg er þér og ykkur öllum sem
að henni standa og vinna, þakk-
látur fyrir jólablaðið, og þá ekki
síður afmælisblaðið; það var
bæði fróðleikur og skemtun að
lesa það.
Þegar maður er komin hátt á
sjöunda áratuginn, þá fer maður
að líta um öxl yfir ,farin veg,
fremur en að gera langar áætl-
anir framundan, eða svo er mér
varict *
Eg bið þér og öllum þínum
guðs blessunar á þessu nýbyrj-
aða ári.
Með bestu kveðju, virðingar-
fylst,
þinn einlægur,
August Johnson
Skrifstofu áhöld
WATERMAN’S B L E K —
Svartblátt, óafmáanlegt, af var-
anlegum gæðum, 16-únzu flaska
75c; 32únzu flaska $1.25.
BITVÉLA PAPPIH — Af
mdsmunandi þykt og gæðum
8Vs x 11 þuml. og 8V2 x 14 þuml.
500 blöð í kassanum. Kassinn
$1.00 og $1.25.
SMA'AHöLD — Bréfakörfur
virofnar 35c; Crttektar bækur
dúz. 75c; Þerriblöð á öllum
stærðum á skrifborð, hvert 75c
upp í $1.10; Blekbyttur, ein eða
tvær saman, 35c upp í $1.75.
SKRIFSTOFU SLIÐUB —
Archive bréfasliður hvert $1.20;
Triumph bréfasliður $1.00 hvert.
Kassasliður 65c hvert; spjald-
sliður 45c og 50c hvert.
PENIN GAKASSAR — Crr
sterkum svart lakkeruðum
málmi. Allar stærðir. $1.50 upp
í $2.25 hver.
VASADAGBÆKUR Y FI R
1937—Smáar og stórar í margs-
konar bandd. Hver 35c upp í
$2.25.
VIÐSKIFTADA G B Æ K U R
YFIR 1937 — Mismunamdi
stærðir í margskonar bandi;
einn til þrír dagar ætlaðir blað-
síðunni. Hver $1.25 upp í $3.50
SUNDURLIÐANDI V IÐ -
SKIFTA BÆKUR—Af smáum
og stórum stærðum. I margs-
konar mismunandi bandi að
velja um; hver 75c upp í $9.50.
MANAÐARDAGAR — Fyrir
skrifborðið, einföld dagatals
hefti $1.40, í umgerð á fæti,
hvert $1.75
LAUSABLÖÐ FYRIR JEWEL
OG DAISY MANAÐARDAGA
Hvert hefti 40c.
I ritfangadeildinni á aðalgólfi, suður
^T. EATON C?M ED
Fr EDERA L j
Vér bjóðum bændum með ánægju að heimsækja kornlyftur vorar og ráðfæra sig við umboðsmenn vora um hveitisölumál þeirra.
Federal Grain Limited í j
WINNIPEG - CALGARY - FORT WILLIAM
Islenzkt Bakarí
Undir nafninu Wellington Bakery, 764 Wellington Ave.
framleiðir allflestar íslenzkar brauð- og kökutegundir,
svo sem rúgbrauð, vínarbrauð, tvíbökur og kringlur, tert-
ur, Napólónskökur, rúsínubollur og smjörkökur, o. m. f.
Einnig allflestar hérlendar brauð og köku tegundir. —
Vönduð vinna og sérstakt hreinlæti,
Þetta nýbyrjaða bakarí óskar því eftir sem mestum
viðskiftum við íslendinga, og mun reynt verða að gera
öllum viðskiftavinum til hæfis eftir fremsta megna. —
Komið, sendið pantanir, eða hringið í síma 29 966
Einnig verða pantanir utan af landi afgreiddar strax.