Heimskringla - 13.01.1937, Page 5
WINNIPEG, 13. JANÚAR 1937
HEIMSKRINGLA
5. SIÐA
þjóðahafi.
íslendlngarnir vestra eru
merkari og athyglisverðari fyr-
ir ísland, en flestir gera sér ljósa
gr.ein íyrir.
Og 50 ára útgáfa Heims-
kringlu er þrekvirki, sem þeir
hafa innt af hendi, og sem á skil-
ið óskifta samúð og þakklæti
allra fslendinga, hvar sem þeir
búa. V. G.
ÁRSLOKA FUNDUR
Fróns var fjölmennur að vanda.
Forsetinn, Soffanías Thorkels-
son, skýrði frá því, að deildar-
innar meðlimum hefði fjölgað
um þriðjung á síðastliðnum
tveim árum, 50 hefðu bæzt við
í sumar, sömuleiðis að bókasafn-
iö væri miklu meir notað en
áður; hefði því bæzt margar
bækur á þessu ári, sumar gefn-
ar af góðum vinum, sumar
keyptar. En nýlega útkominna
góðra bóka væri nauðsynl'egt að
afla safninu. Þessvegna hefði
stjórnarnefndin tekið fegins
hendi við gjöf frá Mrs. Ingi-
björgu Goodman og sá skart-
gripur væri hér til sýnis. Þar
með benti hann á ábreiðu mjög
skrautlega og svo stóra, að ekk-
ert hjónarúm er svo vítt, að hún
taki ekki útyfir það, efnið úr
silki, sem spnnið var í Californíu,
ýmislega litt, en kvenþjóðin sem
skoðaði það djásn í fundarlok,
kvað upp þann dóm, að þó efnið
væri fínt og fagurt, þá væri hitt
meira virði, með hve miklum
hagleik verkið væri gert. Um
þetta hagvirki kvað forsetinn
eiga að draga og selja miða er
hver kostaði 15c en tveir miðar
25c. Ágóðanum yrði varið til að
efla bókasafnið. Þar næst þakk-
aði hann með fögrum orðum
þeim sem hefðu starfað með sér
í undanfarin tvö ár í þarfir fé-
lagsins, bæði stjórnarnefndinni
og þeim sem hefðu létt undir
með þeim, ennfremur þeim sem
hefðu þakkað viðleitni þeirra
vel með því að fjölmenna á fundi
deildarinnar. Sá tími væri nú
liðinn, sem hann hefði lofast ti!
að gegna þessari stöðu. Hér
gripu fundarmenn fram í og
þökkuðu honum og nefndinni
fyrir frammistöðuna, með dýnj-
andi lófaklappi. Þessi voru kos-
in í stjórnarnefnd:
Ragnar H. Ragnar, forseti
Halldór Halldórsson, v. f.
Hjálmar Gíslasoh, ritari
Earl Jónasson, v.r.
S. Pálmason, féh. endursk.
Thor Pétursson, v. fh.
Gunnbj. Stefánsson, fj.m.r.
Salóme Goodman, vara fj.m.r.
Yfirskoðunarmenn Á. P. Jó-
hannsson og J. Th. Beck.
Mr. Thorkelsson kvaddi hinn
nýkjörna forseta til að ávarpa
fundinn, sem hann gerði.
Mr. Ragnar er íþróttamaður
til hljóðfærasláttar, eins og allir
vita. Hitt var síður kunnugt,
að honum ferst liðlega og sköru-
lega að halda ræðu.
Tveir fornir einvígismenn á
orðaþreytu hólmi léku list sína k
þessum fundi, Dr. Sig. Júl. Jó-
hannesson og séra Jóhann
Bjarnason. Umræðuefni þeirra
var Kommúnismi og Demorcra-
cy. Presturinn fylgdi hinu síð-
'arnefnda með mörgum slögum
ÆFIMINNING
Baldrún Eyford
Þann 23. september síðastlið-
inn andaðist að heimili sínu að
Vogar, P. 0., hér í fylkinu hús-
frú Baldrún Eyford, kona Fram-
ars Eyfords bónda þar.
Baldrún sál. var fædd á Akur-
eyri á íslandi 9. okt. 1886. For-
eldrar hennar voru Jörundur Ey-
ford og Anna Jónasdóttir, bæði
ættuð ýr Eyjafirði. Sjöáragöm-
ul fluttist hún vestur um haf
með foreldrum sínum, sem dvöld-
ust fyrst árlangt í Norður-Dak.,
en fluttust síðan til Manitoba og
settust að í Siglunesbygðinni við
Manitobavatn. Er Jörundur Ey-
ford enn á lífi og á nú heima í
Athabasca í Alberta, ásamt
þrerrtur sonum sínum: Sigur-
birni, Jónasi og Oswald; en kona
hans er dáin.
Fimtánda nóvember 1906 gift-
ist Baldrún sál. etfirlifandi
manni sínum, Framari Jónssyni.
Er hann líka ættaður úr Eyja-
firði og tók sér nafnið Eyford
fyrir ættarnafn. Hafa þau hjón
ávalt síðan búið þar í bygðinni,
eða sem næst þrjátíu ár; alls átti
hún þar heima um fjörutíu ára
skeið.
Þeim hjónum varð ellefu
barna auðið. Er eitt þeirra dáið,
en tíu eru á lífi: Anna, Jörundur,
Stefanía, Jónasína, Olga, Ragnr
heiður, Haraldur, Lárus, Baldur
og Guðmundur Franklin. Flest
eru enn heima í föðurgarði.
Baldrún sál. var mikil dugn-
aðar- og myndarkona. Starfs-
svið-.hennar var heimilið og þar
rækti hún skyldustörf sín af mik-
illi alúð, dugnaði og fyrirhyggju.
Var henni einkum um það hug-
að, að börn hennar kæmust eins
vel til manns og framast var unt.
Voru þó efnalegar kringumstæð-
ur, eins og geta má nærri, oft
fremur þröngvar, þar sem svo
stór barnahópur var til að sjá
fyrir. En bæði hún og maður
hennar voru samhent í því að
fórna kröftum sínum fyrir heill
og hag heimilisins og barnanna;
enda mun þeim ávalt hafa farn-
ast vel, þrátt fyrir mikla ómegð.
Hún var vinsæl kona og vel látin
af öllum, sem höfðu nokkur
kynni af henni. Var jarðarför
hennar mjög fjölmenn, og kom
fólk langt að til hennar, bæði ís-
lendingar og annara þjóða fólk.
Hún varð bráðkvödd, og var
dauðameii\ hennar hjartabilun.
Kendi hún sér einskis meins fyr
en að hún alt í einu veiktist og
bað um að læknir yrði sóttur; og
var strax brugðið við að ná í
hann, en hún var dáin áður en
hann kæmi. Var hún grafinn
þann 27. september í grafreitn-
um við heimili Helgasons fjöl-
skyldunnar á Hayland.
Fráfall hennar á bezta aldri,
rétt um fimtugt, er mikið hrygð-
arefni, ekki aðeins^manni henn-
ar og börnum, sem sum eru enn
ung, heldur og allri bygðinni;
því að með henni er fallin frá
mjög mæt kona, ágæt húsmóðir
og umhyggjusöm móðir.
Sá sem þessar línur skrifar
talaði nokkur orð við útför henn-
ar.
G. A.
og þungum á stórbrotamenn og
angurgapa þessarar aldar en
doktorinn dró mjúklega fögur
dæmi af Jesú frá Nazaret og ást-
úð hinna fyrstu kristnu er
studdu hver annan af alúð og
öllum kröftum.
Ennfremur skemti Miss Grace
Johnson með einsöngvum og
stálpaður piltur, Raymond Beck
með fiðluspili. Fundi var slitið
með því að sungið var Eldgamla
fsafold og God Save the King.
K.
BÚTAR
Ástin er þoka sem hylur við-
urstygð sannleikans.
Hor og hungur hafa jafnan
tapað á vígvelli lífsins; þau eru
boðberar dauðans. Þó dauðinn
sé eina varanlega lausnin frá
böli lífsins, þá getur enginú not-
ið hans því varurðirnar deyja
með líkamanum. Að njóta lífs-
ins er að nota það.
Ef ekkert í tilverunni glatast,
og ef að við erum að einhverju
leyti börn umhverfisins, þá hlýt-
ur sálmasöngur einnig að verka
á okkur.
Hver er svo vitur að hann viti
hvenær hann á að tala ?
Margir minnihluta menn sem
nú tala mundu þegja ef þeir
væru í meirihlutanum. Lófa-1
klapp minni hlutans er oftast
hærra en hinna.
Öll trúarbrögð eru óskiljanleg.
Þar sem þekking og skilningur
enda, tekur trúin við. “Því meira
sem við vitum því minna trúum
við”, segir Buckle. (eftir minni).
Allar nýjar stefnur, engu síð-
ur en þær gömlu, hafa verið
reistar á sinni eigin spillingu.
Skáldið er eins og sólin: Það
lifir ekki á þessari jörð heldur
jörðin á því.
Mestu rithöfundar þjóðanna
eru ekki þeir sem dettur flest í
hug, heldur þeir sem dettur það
í hug sem álitið er að vera það
bezta — eða hafa lag á að klæða
hugsanir sínar hátíðabúningi.
Ef óskastjarna hverfur af
himninum, þá hefir óskin átt rót
sína í fávizku.
Beztu mennirnir eru bölsýnis-
menn; þeim líður hvorki vel né
illa.
Undarlegir menn eru venju-
lega undirmenni.
Ef Darwin og Qerve (höf.
Lemuriu) kemur ekki saman um
uppruna mannsins og ef greina
skal á milli hvor hafi rétt fyrir
sér, er gott að íhuga þetta: Ann-
ar þessara manna var að reyna
að veiða sannleiks seiði, hinn
virðist vera að reyna að veiða
sjúkar sálir.
Þeir sem halda því fram að
maðurinn hafi gleymt uppruna
sínum, sýna að þeir hafa lent í
villunetinu. Við verðum að ‘vita’
áður en við getum ‘gleymt’.
Óvinir mannfélagsins eru
tengdir traustum vináttubönd-
um sín á meðal.
Hver maður getur stjórnað
sjálfum sér ef ekki væru aðrir
alt af að þvælast fyrir í götunni.
Ekkert er hættulegt, alt getur
verið það.
Vonir bregðast aldrei; vitið,
sem fyrir þeim ræður, bregst
oft.
Þó móðirin kunni að vera líf-
gjafi og lífvörður barnsins þá er
hún engu síður oft það gagn-
stæða. Þó málmarnir kunni að
verða fjöreyðar menningarinnar
þá hafa þeir engu síður verið
fjörgjafar hennar.
Alt sem við köllum gjafir er
endurgjald. Tárin eru endurgjald
ástarinnar.
Sorgin er verrpireitur. visk-
unnar.
Vinátta er ein af máttarstoð-
um allra lasta. Á sú „vinátta
nokkurn tilverurétt?
Er nokkur vissa fyrir því að
höfundur heimsins vilji það sem
við álítum gott að vera?
Hvenær í sögu þessa heims
hefir nokkuð verið verra en það
að lifa?
Engin heilvita manneskja
hræðist dauðann, en þeir eru
margir, og ekki að orsakalausu,
sem hræðast leiðina er liggur að
dyrum dauðans.
Endurholdgunar kenningin er
gulívarin ruslakisfca 'afsakana,
tilraunaleysis, kúgunar, hugs-
unarvillu og vonleysis.
Þrælar þjóna öðrum, aðrir
þjóna sjálfum sér og geta verið
frjálsir menn. Skrifið tölustafi
fimm mínútur á dag, og gerið
ekkert annað, og sjáið hve auðug
þið verðið. Bara reynið það.
Alt er sýnilegt. Alt er ósýni-
'legt. Og sínum augum lítur hver
á silfrið.
Því meira sem við vitum um
hvern einstakling, því stærri
verður hann.
Sum skáld sjá ofsjónir; önnur
sjá of lítið.
Þekkir þú sannleikann þegar
þú sérð hann ? Það er spurning-
in mikla.
E. Erlendsson
—Chicago, 2. jan. 1937
HÁRIN GRÁNA
Þær systur, Herdís og ólína
Andrésdætur, kváðust á.
Herdís kvað:
I
Grána hár og hrukka brár,
hækkar ára tala.
•
Ólína botnaði þegar:
Gróa sár og þagna þrár
þrauta- og táradala.
—Eimreiðin.
MATARÆÐI ÞJÓÐA
Þjóðabandalagið hefir safnað
skýrslum um mataræði þjóða
og skygnst þannig inn í matbúr-
in og grentlast eftir matvæla-
smekk manna. Safnað hefir ver-
ið skýrslum frá 20 þjóðum, og
hefir “Alþjóðastofnun um jarð-
rækt”, sem starfar í Rómaborg,
1 tekið þær saman, en sérstök
nefnd innan Þjóðabandalagsins,
sem fjallar um næringarefni og
fæði manna, hefir felt þær inn í
skýrslur sínar.
Kjöt
Skýrslurnar sýna, • að mest
kjöt en á borðum hjá sumum
ríkjum innan Bretaveldis, og
eru þar langfremst í flokki Nýja
Sjáland og Eyjaálfan. Þar næst
er Canada, þá Bretland. Banda-
ríkin koma því næst, en ítalía er
lægst. Á Nýja Sjálandi eru etin
236 pd. af kjöti á mann á ári, en
í ítalíu aðeins 35 pd. á mann.
Egg og mjólkurafurðir
Canadabúar eru elskir að
eggjaréttum. Þar eru etin til
jafnaðar 284 egg á mann árlega.
Belgía er næst Canada um notk-
un eggja, þá Bandaríkin, en
Bretland fjórða í röðinni. Finn-
land notar minst af eggjum að-
eins 41 á mann, eða minna en
eitt á viku.
Mest er drukkið af mjólk í
Svissnesku Alpahéruðunum og j SPILAMAÐUR
þar er líka mest etið af osti. — j ______
Bandaríkin eru næst um mjólk- |Nú kitlar mig aldrei kætin,
urnotkun, en þar næst er Dan- né kallar fram gáskaorð.
mörk. í ítalíu er mjólkurnotkun Mér leiðist öskrið og lætin
minst. Við lífsins spilaborð.
Af smjöri er langmest notað
á Nýja Englandi. Þar er hverj-
um manni ætluð 38 pd., en 31 pd.
í Canada, 29 pd. í Austurríki, á
Bretlandi 22, en aðeins 2 pd. á
ítalíu.
Hin guðlega forsjón gefur,
— og gefur mér níur og sex
og tvistinn, sem engan tefur,
svo tapið og gremjan vex.
Á Niðurlöndum þykir mönn-
um ostur góður, og eru Niður-
landabúar næstir Svisslending-
um í ostaáti. Minst er notað af
þeirri vöru í Bandaríkjunum,
Canada og Eyjaálfu.
Ávextir
Eg lýt engum framar með lotn-
ing
og lögmálin skrifa í sand ....
En hér kom þá hjartadrotning!
Eg held, að eg segi grand.
Stefán Thorarensen
—Dvöl.
Ávaxtanotkun er mest í
Bandaríkjunum, enda hefir þar
verið barist fyrir því, að borðað
væri mikið af ávöxtum. Banda-
ríkjamenn nota 172 pd. á mann
árlega. Sviss er næst með 142
pd. Czechoslovakia með 106,
Eyjaálfan með 104, Bretland
með 86, en Bulgaría lægst með
21 pd.
Bretar nota mest af sítrónum
og banönum, og fer notkun ban-
ana hraðvaxandi víðast hvar. —
Bretar eru næstfremstir í syk-
uráti, en þar er Danmörk talin
efst á blaði. Eyjaálfan er þriðja,
Bandaríkin fjórða. Búlgaría er
lægst með 10 pd. á íbúa.
Brauð
f Frakklandi er mest notað af
brauði allskonar, og einkum
hveitibrauði. Þar næ^t eru: —
Búlgaría, ítalía, Nýja Sjáland,
Belgía, Eyjaálfan, Bretland,
Svissland, Bandaríkin. Finnland
notar minst hveiti þeirra ríkja,
sem nefnd eru.
Ransóknarnefnd Þjóðabanda-
lagsins hefir komist að einkenni-
legri niðurstöðu. Og hún er sú,
að fólk hafi haft betri fæðu á
kreppuárunum en nokkuru sinni
fyr.
Á síðustu 10 árum hefir orðið
aukning á mjólkurframleiðslu
hér um bil alstaðar. Framleið-
sla kjöts hefir og aukist, sér-
staklega á svmakjöti. Eggja og
mjólkurframleiðsla jókst og um
tíma, en hefir heldur minkað
síðastliðin tvör ár. Framleiðsla
ávaxta og grænmetis hefir auk-
ist í því nær öllum lohdum.
—Vísir.
TIL VERKS
HUGVITSMENN
HITT OG ÞETTA
Krýningarstóll Stór-Bretlands
Krýningarstóll Stór-Bretlands
er ekkert glæsilegur á að líta, en
hann hefir verið notaður síðan
1274 og þess vegna hefir útlitið
ekki svo mikið að segja. Stóllinn
er allur útskorinn og útkrassað- ,
ur af nöfnum allskonar fólks,
sem að honum hefir komist með
hnífa sína á einhvern hátt, þó
til þess hafi sjálfsagt aldrei ver-
ið ætlast.
* * *
Amerískur búskapur
Amerískur búskapur virðist
ærið fjölbreyttur. Búfénaður
bónda eins í Californíu er heil
hjörð af stórvöxnum ; Afríku-
ljónum. f Florida eru margir
búgarðar sem byggjast á krókó-
dílarækt. Þá eru froska fram-
leiðendur, eiturslönguframleið-
endur, o. m. fl. Nýlega hefir
ennþá ein tegund búskapar bætzt
við, og það er fiðrildarækt. Fiðr-
ilin eru ræktuð til þess að selja
þau síðan náttúrugripa söfnum,
skólum og einkasöfnurum. —
Sjaldgæf fiðrildi kosta oft of
fjár og dæmj eru til þess, að
eitt fiðrildi (charaxes fourni-
eari) hefir verið selt fyrir 50
þúsund krónur.
* * *
Kreppan og hjólhestarnir
Danmörk og Holland hafa ver-
ið talin hjólhesta flestu lönd
jarðarinnar að tiltölu við fólks-
fjölda, en á síðustu tveimur ár-
um eru Bandaríkin að verða
skæður keppinautur í þeim efn-
um, og er talið að kreppan valdi.
Síðastliðið ár voru framleiddar
þar 750,000 hjólhestar og er það
langhæsta tala síðan fyrir bíla-
öldina.
Nýlega birtust á prenti, eftir
prófessor Thyndall Franck frá
Pennysylvania, frumdrættir af
nokkrum mikilsverðustu ráðgát-
um mannlífsins, sem vísindin
eiga að leysa innan næstu hundr-
að ára, óg fara hér á eftir:
1. Að framlengja meðalaldur
fólks upp í hundrað ár.
2. Fljót og óyggjandi lækn-
ing á krabbameini, kynferðis-
sjúkdómum og allskonar gigt.
3. Koma í veg fyrir allar lík-
j amlegar kvalir og þjáningar.
4. Að búa til farartæki sem
jhægt er að ferðast á kringum
hnöttin á tuttugu og fjórum
klukkutímum án minstu hættu.
5. Að leiða rafmagn án víra,
og án þess að nokkuð af því fari
til spillis.
6. Að flutnings og móttöku-
tæki, radios, verði ekki stærri
ert úr, svo hægt verði að bera
þau í vasanum.
7. Ferðalög til mánans í eins-
konar stjörnuvélum.
8. Að búa til sólskin, sem
innifelur í sér öll efni sólarinnar.
9. A1 m e n n efnafræðisleg
notkun fæðutegunda.
10. Viðhald kvenlegrar feg-
urðar til æfiloka.
11. Að framleiða svo eðlileg-
ar hreyfimyndir að þær verði
veruleikanum samkvæmar.
12. Samsetning skaðlausra
lyfja sem yngja upp og gera
fólkið hamingjusamt.
—Az Est, Búdapest.
Davíð Björnsson
Hvað þýðir
“Star Special”?
•
Fastir viðskiftamenn vorir
er verzla eftir Eaton’s Vöru-
skránni eru orðnir vanir við
að sjá dreift hér og hvar um
síður Vöruskráimnar stjömu
hringnum sem sýndur er hér
að ofan. Þeir hafa líka orðið
þess áskyfija að hvar sem
þetta merki birtist að þar
geta þeir óhultir átt voin á
sérstökum kjörkaupum.
Stundum eru þessir stjömu-
merktu munir afleiðing sér-
staklega heppilegra inn-
kaupa; stundum af því að
vér höfum sérstaklega fært
þá n\ður í verði. En ávalt
þýðir merkið lægsta lágverð
—tækifæris-kaup, sem er
undantekning jafnvel hjá
Eaton’s og stærum vér oss þó
af því að alt verðlag vort er
undantekning frá því vana-
lega.
Svo þegar þér sjáið þetta
sérstaka stjömumerki, við
nafn einhvers hlutar á Vöru-
skránni þá rannsakið það ná-
kvæmlega. Það er aðalsmerki
hins hæsta kaupgildis.
EATON’S
i