Heimskringla - 10.03.1937, Qupperneq 8
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 10. MARZ 1937.
8. SlÐA.
FJÆR OG NÆR
Sækið messur í
Sambandskirkjunni
Tvær messur fara þar fram á
hverjum sunnudegi, á ensku k!.
11 f. h. og á íslenzku kl. 7 e. h.
Söngurinn er undir stjórn Bart-
ley Brown við morgunmessurn-
ar en hr. Péturs Magnús við
kvöldguðsþ j ónusturnar. Næst-
komandi sunnudag messar Dr.
Robert Milliken fyrv. prestur og
skólastjóri United Church við
morgunguðsþjónustuna en prest-
ur safnaðarins messar við kvöld-
guðsþjónustuna. Fjölmennið við
báðar guðsþjónustur.
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Árborg sunnudaginn
þ. 14. marz n. k., kl. 2. e. h.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Oak Point sunnudaginn 14 marz.
* * *
Young People Attention!
At the meeting next Tuesday
evening, March 16, the special
attraction will be pictures shown
by the Winnipeg Hydro Electric.
They will be instructive, enlight-
ening and entertaining. Follow-
ing the pictures refreshments
will be served as usual along
with music and entertainment.
Be sure to tum out in force. A
good time is promised to all.
Aðeins tvær vikur
tii Páska
Komist hjá troðningnum
Símið Strax 42 361
til Quinton’s eftir yfirburða
fatahreinsunar verki
SANITONE
á FATNAÐI—HÖTTUM—
KJÓLUM
Hringið 42 361
Laugardags skemtikvöldin
í samkomusal Sambandskirkj -
unnar eru orðin fræg fyrir að
vera fjörug og skemtileg. Yngri
konur safnaðarins standa fyrir
þessum skemtikvöldum og bjóða
öllum að koma og skemta sér.
Dregið er um verðlaun á hverju
laugardagskvöldi. Kvöldið hefst
með spilasamkepni. Kaffi er
borið á borð, og síðan skemtir
fólk sér með söngvum, leikjum
og dans. Hvað er svo glatt sem
góðra vina fundur?
* * *
Ræðurnar sem á ensku hafa
verið birtar í Hkr., voru fluttar
á Þjóðræknisþinginu og var með
þeim verið að reyna að draga at-
hygli æskulýðsins að þjóðrækn-
ismálum og til þátttöku í þeim.
Það er af sömu ástæðum, sem
greinar þessar hafa verið birtar
á ensku í vikublöðunum, en ekki
því, að fara eigi að prenta ís-
lenzku blöðin á ensku, eins og
einn maður að minsta kosti hefir
spurt um. «
* * *
Guðmundur Sigurðsson frá
Ashern, Man., er staddur í bæn-
um í viðskiftaerindum.
* * *
Nafn einnar konu féll af ógáti
úr í síðasta blaði, þar sem taldar
eru konurnar, sem í nefnd voru
skipaðar til þess að taka á móti
Halldóru Bjarnadóttur. Nafn
þessarar konu er Mrs. Albert
Wathne og er hún annar fulltrú-
inn frá Hannyrðafélaginu.
* * *
Stúkan Hekla heldur skemti-
fund næstkomandi fimtudagskv
Söngur ræður og upplestur. —
Vænst eftir að meðlimir fjöl
menni.
* * *
Útnefningarfundur
var haldinn að 910 Palmer-
ston Ave., föstudagskvöldið 26
febr. s. 1. útnefndir voru tveir
af hálfu Vestur-íslenzkra hlut-
hafa til að vera í vali á aðalfundi
Eimskipafélags fslands í Reykja-
vík í næstkomandi júní mánuði í
stað hr. Árna Eggertssonar sem
þá hefir útent sitt tveggja ára
tímabil. útnefndir voru með
jöfnum atkvæðum hr. Ámi Egg
ertsson og hr. J. J. Bíldfell.
Skemtisamkoma 17. Marz.
Til arðs fyrir væntanlegt sumarheimili bama
verður haldin í kirkju Sambandssafnaðar
MIÐVIKUDAGINN, 17. þ. m.
undir forstöðu Kvennasambands
hins Sameinaða kirkjufélags
TIL SKEMTUNAR VERÐUR:
1. Ávarp forseta..........Mrs. S. E. Björnsson
2. Bamakór......undir stjórn Ragnars H. Ragnar
3. Vocal solo....r.........Mrs. K. Jóhannesson
4. Ræða............Prófessor Watson Kirkconnell
5. Viölin solo.................Mrs. Wm. Hurst
6. Lesin kvæði............Gutt. J. Guttormsson
7. Barnakór.....undir stjórn Ragnars H. Ragnar
Inngangur er ókeypis en samskota verður leitað.
Hér er um verulega skemtun að ræða. Fjölmennið.
Samkoman byrjar kl. 8.30 e. h.
- -
Hér með þakka eg fyrir hönd
Kvenfélags sambandsins, fyrir
$5 (fimm dali) frá Miss Kristínu
Thorfinnsson, Garðar, N. Dak., í
byggingarsjóð barnaheimilisins.
Miss Thorfinnsson er sú fimta
í þeirri fjölskyldu, sem sýnir því
málefni þá rausn og velvild að
senda peningagjöf. Æskilegt og
ánægjulegt væri að fleiri íslend-
ingar færu að dqemi Thorfinns-
sons fjölskyldunnar.
Beztu þakkir,
Mrs. G. M. K. Björnsson,
féhirðir.
—Riverton, 6. marz 1937.
* * *
Bridge Drive
Jóns Sigurðssonar félagið I. O.
D. E. efnir til spilaskemtunar á
mánudagskveldið kemur 15. þ.m
í fundarsal Sambandskirkjunnar
kl. 8 e. h. Hafa félagskonur tek-
ið að sér að styrkja efnilegan
nemanda til hljómlistarnáms, og
í því augnamiði’ eru að safna
$50.00 í sjóð sem varið verður
til þessa. Þetta er umfram alt
annað starf sem félagið hefir
með höndum. Vonast það til að
vinir félagsins styrki það nú
við þetta tækifæri og f jölmenni á
samkomuiía þetta kvöld.
Forstöðunefndin.
* * *
S. 1. mánudag jarðsöng séra
Philip M. Pétursson mann af
hérlendum ættum, Frederick
Lutley, fyrv. Inspector of Cream-
eries í Winnipeg, sem dó í Re-
gina, Sask., 1. þ. m. Útförin fór
fram frá Thompson’s útfararsal
og jarðað var í Brookside.
* * *
\
Á nýafstöðnu Þjóðræknisþingi
var rætt um þörf, sem að á því
væri, að leitast við að bjarga frá
glötun ýmsum þjóðlegum fróð-
leik sem Vestur-íslendingar búa
yfir, bæði þann, er landnemarnir
flúttu með sér vestur um haf,
og hefir við framrás tímans fall-
ið núlifandi kynslóð í arf; en
einnig ýmsum fróðleik (áður ó-
prentaðan) úr reynslu fólks vors
hér vestra. Er hér sér í lagi átt
við: sagnir frá fyrri tímum, ljóð,
sagnir um fyrirburði, drauma,
hugskeyti og dulræna reynslu.
Sumt af þessu kynni eldri kyn-
slóðin að eiga í handritum, eða
geymt í minni manna. Er það
einlæg löngun Þjóðræknisfélags-
ins, þótt seint á degi, sé til handa
hafist, að safna saman sem
mestu af því, sem markvert er,
og talist gæti sérkennilegt fyrir
íslenzkt hugsanalíf. Það er skoð-
un Þjóðræknisfélagsins að mikið
af slíkum auði sé eign ættbálks-
ins í Vesturheimi.
Væntir félagið bæði samvinnu
fólks að láta slíkan fróðleik í té,
og þá einnig, að það sem í té yrði
látið væri vandað og frambæri-
legt á allan hátt.
Nefnd til þess að hafa málið
með höndum, var kosin á þing-
inu, í henni eru þeir:
Séra Guðm. Árnason,
Lundar, Man.
Hr. J. J. Bíldfell,
Winnipeg, Man., og
Séra Sigurður ólafsson,
Árborg, Man.,
er sú nefnd fús til að veita mót-
töku fróðleik þeim, sem að hér
er óskað eftir.
Nefndin.
Gleymið ekki skemtisamkom-
unni 17. marz í kirkju Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg. Þar
les Guttormur skáld Guttorms-
son upp kvæði; þorum vér að
veðja um að hann kemur áhorf-
endunum brátt til að hlægja. Þa1
fara og fram söngur og ræðu-
höld, svo á skemtun verður þar
engin þprð. Inngangur er ókeyp-
is, en samskota verður Ieitað til
arðs fyrir sumarheimili fyr-jr
börn, sem í ráði er að reisa á
Hnausum.
* * #
Eg vil vinsamlegast biðja alla
meðlimi Þjóðræknisfélags fslend-
inga í Vesturheimi að senda mér
ársgjald sitt fyrir yfirstandandi
ár og mun 'eg þá strax senda
Tímaritið XVIII árg, sem nú er
[nýútkomið, og allir skuldlausir
meðlimir fá sent án endurgjalds.
Ársgjaldið er aðeins einn doll-
j ar á ári og vildi eg skora á alla
i góða íslendinga sem ekki nú
þegar eru meðlimir að draga
ekki lengur að ganga í félagið.
Virðingarfylst,
Guðmann Levy, fjárm.r.
251 Furby St., Winnipeg
* * *
Andrés Skagfeld frá Oak
Point, Man., var staddur í bæn-
um s. 1. mánudag.
* * *
Ásm. Johnson frá Sinclair, sem
um fjögra mánaða skeið hefir
dvalið í Bandaríkjunum, kom til
bæjarins um helgina og mun
fara vestur til Sinclair innan
skamms. Hann kvað líf og fjör
í öllu syðra.
* * *
Samkomu til arðs fyrir laugar-
dags-íslenzkuskólann og barna-
blaðið Baldursbrá er verið að
efna til. Verður hún haldin
föstudagskvöldið 9 apr. í Fyrstu
lútersku kirkju. — Barnakór
skemtir þar. Börnin lesa og upp
á íslenzku. Nánari fréttir af
þessu síðar.
* * *
Guðm Jónsson frá Vogar og
i börn hans, Björn, Jón, Eiríkur
| og Mrs. Sigfús Hólm, komu t’
! bæjarins s.l. viku til að vera við
| útfór Jóns G. Jónssonar, er fór
fram s. 1. laugardag.
JOHN G. JOHNSON
DÁINN
!
DO YOU PLAY
0 BRIDGE? 0
The Junior Women of the First
Icelandic Federated Church cordi-
ally invite you and your friends to
play Bridge Saturday nights, start-
ing February 20th in the Church Parlors, Sargent and Banning.
Unusual prizes being offered.
Refreshments served, followed by sing-song and dancing. Come and
enjoy a real sociable evening with your friends.
ADMISSION 25c Bridge starts 8:15 sharp
“Eg felli tár, en hví eg græt?
því heimskingi eg er!”
Þessar tvær Ijóðlínur eru úr
kvæði er Kristján Jónsson sagði
um vin sinn látinn, og er mér
eitthvað líkt í hug þó eg geti
ekki komið mínum orðum að því,
og þessvegna tek þau að láni.
Eftirfarandi línur er engin
! æfínminning, heldur aðeins
sundurlausar minningar um vin
minn látinn eins og eg þekti
hann og vildi hafa talað honum
á bak.
Fæddur var hann á Húsey í
Norður-Múlasýslu fyrir 45 árum
síðan, sonur Guðmundar Jóns-
sonar þá bónda þar, en nú bóndi
við Vogar, Man., og konu hans
Jónínu Björnsdóttur, sem dáin
er fyrir rúmu ári. Var hann
þriðji í röðinni af tíu börnum
þeirra hjóna, sjö af þeim eru
lifandi, fjórar systur, þrjár gift-
ar en ein í heimahúsum, og þrír
bræður, allir kvæntir og búandi
við Manitoba-vatn. — Jón heit-
inn var kvæntur konu af ameri-
könskum ættum, Maye Germaine
Hanscom að nafni; áttu þau eng-
in börn, en tóku dreng til fósturs
er nú er ellefu ára og ber þeirra
nafn. — Meira um ætt Jóns heit.
er mér ekki kunnugt að sinni,
enda reyndi hann aldrei að
skreyta sig með fjöðrum ættar
sinnar. Honum var það megin-
mál að reyna af fremsta megni,
að vera jafnoki sinna forfeðra,
svo framarlega að tækifæri byð-
ist að sýna það í orðum og at-
höfnum, og þeirri hugsun brást
hann aldrei fremur en öðrum
hugsjónum sínum. Var honúm
líkt farið í þessu sem Abraham
Lincoln er hann var spurður um
ætterni sitt, er hann svaraði:
Mér er sama hverjir voru forfeð-
ur mínir, það eina er mig varðar
um er, hver eg er.
Jón heitinn var greindur vel
frá náttúrunnar hendi, sem bezt
sést á því, hvað vel hann komst
áfram og skipaði háa og ábygrð-
armikla stöðu síðustu ár æfi'
sinnar, þegar þess er gætt, að
hann fékk nálega enga skóla-
mentun hvorki hér í landi eða
heima á íslandi Hann var ljóð-
elskur maður, enda talsvert
sjálfur hneygður til ljóðagerð-
ar, þó hann færi dult með. Kunni
hann fádæmin öll af kvæðum
ýmsra skálda og þuldi þau stund-
um í vinahóp, er svo bar undir,
þeim til gagns og skemtunar.
Einnig var hann prýðilega að sér
í öllum fslendingasögunum, og
það svo um skör fram, að hann
gerði okkur sem uppaldir vorum
á íslandi minkun með vankunn-
áttu okkar og minnisleysi.
Jón heitinn var gleðimaður
mikill, síkátur og reifinn, fynd-
inn, skýr og glöggur, og varð
það til þess, meðal annars, að öll-
um leið vel í samveru við hann.
Hann átti fjölda vina og kunn-
ingja, en engan óvin, svo eg til
vissi. Samt var þetta laust við
allan roluskap, því fáir munu
hafa haldið einarðlegar á málum
og sannfæring en hann. Hann
var mikill vinur vina sinna, bón-
góður og úrræða skjótur enda
svo í hag búinn, að hann bæði
vildi, gat og gerði nálega alt fyr-
ir alla er til hans leituðu. Hann
var frjálshugsandi bæði í orðum
og athöfnum, sem og í pólitík og
trúmálum, og fylgdist vel með
öllum framfaramálum þjóðar-
innar. Hann var sannsýnn mað-
ur í fyrsta máta og framúrskar-
andi áreiðanlegur í öllu — vildi
í öllum greinum, bæði í orði og
verki, borga keisaranum er hon-
um bar og guði og mönnum, sem
þeirra var.
Jón heitinn var ásjálegur mað-
ur útlits, sex fet á hæð, axlaber
og beinvaxin, miðmjór og limað-
ur vel; að öllu hermannlega
skapaður, enda var hann ur
þriggja ára skeið í þjónustu
lands og þjóðar á Frakklandi í
stríðinu mikla, og kom með þær
minjar til baka er að lokum
leiddu hann til dauða.
Hann __ varð bráðkvaddur á
fimtudaginn var (4. marz) og
var jarðsunginn síðast liðinn
laugardag að viðstöddum mörg-
um vinum og vandamönnum. —
Hafði hann lengi verið heilsu-
veill, en var nú, að því er virðist,
í afturbata, er dauða hans bar
að.
Vil eg svo enda þessi fánýtu
orð, sem aðeins eru sögð af góð-
um vilja og skyldurækni við
þennna framliðna vin minn, en
af vanmætti hugsuð, með niður-
lagi vísunnar er eg byrjaði á:
“Þín minning, hún er sæl og sæt,
og sömu leið eg fer.”
Sveinn Oddsson
MESSUR og FUNDIR
1 kirkju SambandscafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaSarnefndin: Fundlr 1. fðstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngœfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðimar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Nokkrar greinar og ljóð sem
Hkr. hafa verið sendar og höf.
hafa ef til vill búist við að kæmu
í þessu blaði, verða að bíða næsta
blaðs.
“THERMIQIJE HEATERLESS
PERMANENTS”
THE ERICKSON’S
BEAUTY PARLOR
950 Oarfield St.
Open 9—6 p.m. Phone 89 521
ÍSLENZKA BAKARÍIÐ
702 SARGENT AVE., Winnipeg
Einasta íslenzka bakaríið í
borginni
Vörur sendar heim samstundis og
um er beðið. — Pantanir utan af
landi afgreiddar fljótt og vel.
Sími 37 652
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMURNAR ERU 20 MILUR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
okrum i námulandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods í Ken-
ora-umdæmi.
Sýnishom af handahófi í nám-
unni hafa reynst frá 50c upp i
$40,000 úr tonninu og i Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
i tonninu.
KAUPIÐ NCf—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutir í Unit)
Thor Gold Mining Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKULJ BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Frá Eskifirði
Eskifirði, 4. febr.
Pilturinn, Einar Sigurjónsson,
í Eskifirði, er særðist geigvæn-
legu skotsári fyrir ofan hægra
auga, síðastliðinn föstudag, er
nú að dómi læknis talinn úr allri
hættu og líður honum vel.
Bleytuhríð hefir verið á Eski-
firði undanfarna daga og algert
hagbann þar um slóðir. Héy-
birgðir eru alment nægar enda
einmunatíð og blíðviðri allan síð-
astl. mánuð. Síldveiði hefir ver-
ið í net undanfarið, en er nú
þverrandi.—Vísir. _
* * *
Heybruni
Nýlega brunnu á Þjótanda í
Árnessýslu um 40 hestar af heyi
í hlöðu og 6 kindur köfnuðu í
húsi áfast við hlöðuna. Kvöldið
áður hafði verið borið ljós í
hlöðuna, en að öðru leyti er ó-
kunnugt um eldsupptök. All-
mikil fannalög eru um miðbik
Rangárvallasýslu og hagar litlir.
—13. feb. Vísir.
. JUMBO eða KONUNGUR
hlnna
Risavöxnu POMPKENA
Stærsti verðlauna vinnandi á sýning-
um, oft 100 til 200 pd. Kjaminn ljós-
gulur, smágerr, þéttur og mjúkur. ö-
vidjafnanlegt í pæ eða til fóðrunar.
Geymist vel. Fræbréfið 10c; unz 25c;
%pd. 65c; burðargjald 3c.
ÓKEYPIS—Krýningar verðskrá
auglýsir 2000 frætegundir
DOMTNION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
Það er þjóðræknisatriði
að kaupa íslenzkan mat
og neyta hans!
Þar sem eg enn hefi töluvert
eftir af vörum þeim sem eg fékk
frá íslandi í vetur, og af því að
það er nauðsynlegt að þær selj-
ist sem fyrst hefi eg ásett mér
að setja verðið niður sem hér
segir. Þetta er langt fyrir neð-
an markaðs prís, en vegna óum-
flýjanlegra ástæða verð eg að
losast við allar þessar vörur.
Harðfiskur.....18cpundið
Kryddsíld ......25c dósin
Mjólkurostur ... 40c pundið
Síma og póstpantanir afgreiddar
tafarlaust.
G. FINNBOGASON
Sími 80 566 641 Agnes St. Wpg.