Heimskringla - 31.03.1937, Síða 7
WINNIPEG, 31. MARZ 1937
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
MERKILEGAR
UPPGÖTVANIR
Frh. frá 3. bls.
var frestað að greiða svo mánuð-
um skifti. Járnbrautir voru
starfræktar með sem minstri
hagkvæmni fyrir þann iðnrekst-
ur er þarfnaðist þeirra niest.
Þar sem flokksmenn Trotskys
réðu nálega lögum og lofum við
allann iðnrekstur, var það tii-
tölulega auðvelt að láta járn-
brautarslys og sprengingar auk-
ast án þess að nokkur hætta
væri, að upp kæmist.
Kirov var tekinn af lífi og á-
rás var gerð á aðra í ráðstjórn-
inni og þar á meðal Stalin, og
flokkurinn jókst undir stjórn
Pyatakovs og Radeks.
Þegar Hitler komst til valda í
Þýzkalandi áttu þeir von á 3tríði
innan skamms tíma.
Árið 1931 gerðu þeir ráð fyrir
að^ í stríði milli Þý/kalands og
Rússlands, myndi Rússland biða
ósigur. Þeim skiidisi, ef þeir
héldu áfram að staría undir
stjórn Stalins, hlytu þen að líða
skipbrot sjálfir með ósigri Rúss-
lands. Ef þeir steyp^u stjórn
Stalins, þá gætu þeir þó ef til
vildi bjargað einhvarju.
Trotsky hafði með son sinn
að meðalgangara gari gagn-
skiftasamning við Hitler. Eí
hann veitti Trotsky hjálp tii að
brjótast til valda á Rússland', þá
ætlaði hann að veita Þýzkalandi
sérstök einkaréttindi og ábyrgj-
ast ósigur Rússlands, með þvi að
beita áhrífum sínum á rússneska
1 erinn og stjórnina.
En ekkert stríð átti sér stað,
og í árslok 1935 hafði afstaðan
gerbreytst.
Leiðtogar Trotskys í. Rúss-
landi sáu nú, a,ð ósigur Rúss-
lands var als eigi hugsanlegur og
fimm ára stefnuskráin hafði al-
gerlega heppnast, þrátt fyrir ait
sem þeir höfðu gert tii að hindra
hana.
Þeir tóku að véfenga mjög
leiðsögn Trotskys, og einmitt þá
kom tilkynning frá honum, er
gerði þá höggdofa. Hann sagði
að strið myndi brjótast út árið
1937. í staðinn fyrir hjálp Þjóð-
verja og Japana hefði hann lof-
að báðum þessum þjóðum land-
eignum, auk fjárhagslegra einka
réttinda. Auðvalds þjóðskipulag
yrði algerlega að verða stofnsett
á Rússlandi. Árangurinn af sigri
Þýzkalands yfir Rússland yrði
svo stríð milli þess og þjóðríkja
Vestur-Evrópu, sem svo aftur
leiddi til lýðræðis um alla álfuna,
undir stjórnum jafnaðarmanna.
Framh.
“ÞÝSKT” RÁÐSTJÓRNAR-
RÍKI í MIÐJU
RÚSSLANDI
(Fréttaritari amerísks blaðs
ferðaðist fyrir nokkru til Engels
við Volga og hefir hann skrifað
tvær greinar í blað sitt um
“þýska” ráðstjórnarríkið í Rúss-
landi. — Fólk það, sem þarna
býr, er af þýskum uppruna, og
hefir oft átt við mikla erfiðleika
að stríða, en altaf þraukað og
komist þarna vel áfram, og er nú
land það, sem þarna var numið
af þýskum mönnum á dögum
Katrínar miklu, sérstakt ráð-
stjórnarríki, og bygt aðallega aJ
afkomendum þeirra.)
Fréttaritarinn skýrir frá því,
að í þessu ráðstjórnarríki eða
lýðveldi séu 600,000 íbúar og
þar af 530,000 menn af þýskum
uppruna. — Getur fréttaritar-
inn þess þegar í upphafi greinar
sinnar, að s. 1. sumar hafi Verið
meiri þurkar á þessum slóðum
en nokkrur sinni áður, frá því er
Þjóðverjar settust þarna að, og
ferðaðist hann um lýðveldið'
þvert og endilangt, m. a. um þau
héruð, sem urðu verst úti vegna
þurkanna, en erfiðleikar af völd-
um þeirra hafa ekki bugað hina
þolgóðu afkomendur þeirra
27,000 Þjóðverja, sem fluttust
þangað á dögum Katrínar miklu,
frekar en margir aðrir erfiðleik-
ar, sem þeir hafa átt við að
stríða fyrr og síðar.
Saga þeirra er raunasaga að
sumu leyti, segir hann, en einn-
ig saga um hetjudáðir. Um
hálfa aðra öld áttu þeir oftlega
við að búa ofsóknir og fjand-
skap. Fyrstu árin eftir að land-
nemarnir settust þarna að voru
iðulega gerðar árásir á þorp
þeirra af Asíu-þjóðflokkum, sem
fóru ránshendi um landið, en
þeir héldu velli, án þess að fá
nokkura hjálp, og komu upp sínu
eigin stjórnarfyrirkomulagi, sern
í mörgu var aðdáunarvert, en
það var ónýtt fyrir þeim 1870,
er þeir voru sviftir ýmsum rétt-
indum, er þeim höfðu verið veitt.
Zarinn lét gera margar til-
raunir til þess að gera þá “rúss-
neska”, en þær mistókust allar.
Þeir héldu trygð við sína eigin
tungu og venjur.
Á heimsstyrjaldarárunum, er
Rússar börðust gegn Þjóðverj-
um, vöknuðu grunsemdir rúss-
neskra stjórnarvalda í garð af-
komenda þýzku landnemanna og
var þá sú ákvörðun tekin, að
flytja þá alla með tölu til Sibir-
íu, en af þeirri ráðagerð varð
ekki vegna þess, að keisaraveld-
ið hrundi í rústir í stjórnarbylt-
ingunni. En íbúarnir á þessum
slóðum urðu fyrir margskonar ó-
næði og hrellingum á næstu ár-
um og þegar bolsvíkingar voru
sestir að völdum, fóru þeir að
gera tilraunir til þess að gera þá
kommúnistiska, en mótspyrna
þeirra gegn tilraunum kommún-
ista bar ekki sama árangur og
mótspyrnan gegn tilraunum
zarsins forðum. Um 20 af hverj-
um 100 sjálfseignarbændum
voru neyddir til þess að hverfa
frá búum sínum og setjast að í
Kazakstan og öðrum héruðum,
þar sem skilyrði eru slæm að
ýmsu leyti, og mistu þessir
sjálfseignarbændur jarðir sinar
og hús og aðrar eignir.
Það var árið 1924, sem hið
þýzka lýðveldi við Volga var
sett á laggirnar. Það varð “sjálf-
stjórnar”-lýðveldi með hinu
rússneska eða kommúnistiska
fyrirkomulagi í öllum greinum,
eins og vitanlegt er, en fólkinu
var leyft að hafa sitt eigið mál
og ráða málum sínum sjálft, að
svo miklu leyti sem það ekki
bryti í bág við hinar kommún-
istisku kenningar. Og nú er þar
kommúnistiskur andi ríkjandi og
í þessu ráðstjórnar-lýðveldi, sem
hið stjórnandi afl .kommúnistiskt
er 18,000 ferh. mílur enskar,
beggja meðin við neðri Volgu.
Þar er algerlega sama skipulag
ríkjandi í félagsmálum og ann-
arsstaðar í Rússlandi. Og Josef
Stalin er þar dýrkaður sem ann-
arstaðar. Sami hernaðarandi er
ríkjandi. Sama hneigð til þess
að uppræta trúarbrögðin.
En í ýmsu, segir fréttaritar-
inn' gætir þess, að hér býr fólk
af örðum stofni. Vandvirkni ev
meiri. Regla er meiri og skipu-
lag alt betra. Þýzku bændurnir
þarna hafa miklu betri not en
rússnesku bændurnir alment af
ráðleggingum sérfræðinga, þvi
að þeir eru betur gefnir og bet-
ur mentaðir.
En kommúnistar hafa strangt
eftirlit með því, að enginn
hvarfli frá hinni “kommúnist-
isku” línu.
Höfuðborgin í þessu ráðstjórn-
arríki er Engels sem hefir um
80,000 íbúa og er meiri hluti
þeirra rússneskur. Embættis-
menn eru þó allir af þýzkum ætt-
um. Lítið er þar um nútíma-
framkvæmdir, göturnar eru ekki
steinlagðar og húsin eru ómáluð
og allar heilbrigðisráðstafanir ó-
fullnægjandi, en bjartsýni er
ríkjandi, einkum meðal yngri
kynslóðarinnar, og þýska og
rússneska eru 'talaðar jöfnuin
höndum í borginni. Sjálfseign-
arbændur eru úr sögunni í þessu
ráðstjórnarsíki. Bændur eru
taldir 450,000 talsins og vinna
Ástarþráin
Þó frumspor vor að frægðartindum liggi,
og framaþráin beri’ oss langt á leið,
og máttur hennar orðstír hæfann tryggi
og hefji anda vorn á hærra skeið;
þá nægir engin upphefð þeirri þrá,
sem instu rótum hjartans streymir frá.
Hún blundar fyrst í brjósti Vonar, falin
í bernskuroða drauma vorra hér,
en vaknar skjótt þá vorsól lýsir dalinn
og vildarvininn ástaraugað sér,
og svífur yfir efstu djúpin blá
til unaðslinda—þeim að bergja á.
í hugarreiti fögur rós nú dafnar,
af rótum fléttast tveggja sálna band.
Hver, raun og mæða mætti öflgum safnar
og málar fegra þeirra draumaland;
og hindrun öll nú einbeitt leggur ráð,
að engum nema sjálfum verði háð.
En ástúð, blíða, aðdáun og þreyja,
sem árdögg vökvar þeirri fögru rós,
og sólin hennar—hvað sem trúbrögð segja—
er háieit löngun, runnin lífs frá ós;
og sál vor einnig ós þeim stafar frá
og sæla öll, hver dáin hugarþrá.
Við fjörlaus efni sífelt ástin stríðir,
en sigur frægann æ úr býtum ber.
Þeim eðlishvötum alnáttúran hlýðir,
er almættið í byrjun setja réð.
Og þannig verndast veldi lífsins enn,
og verndast æ, þótt annað hyggi menn.
Vér sjáum glögt en hirðum lítt um heiti
né hætti þess, er heillar vora sál.
Hvert orð er nú sem margþætt óðarskeyti,
og ástarneisti þúsund munarbál;
eitt tillit blítt er sældarhiminn hár;
og hafið djúpa sérhvert sorgartár.
Og sagan þessi aldrei tekur enda,
við eilífðina sjálfa hún er tengd,
og kotungar sem kóngar þangað venda
sem kenning hennar allra sízt er rengd;
hún bendir oss á draumalandsins leið
og ljósin björt, sem gylla fjöllin heið.
Lát engan tæla þig til slíkrar trúar,
að trygðum bundin ást sé holdgun lág;
það ramma bendi eilífðina brúar
og bindur oss við máttarvöldin há;
og afleiðingin, æðsta veldisgjöf,
—þeir afgræðingar stjórna’ um lönd og höf.
Eg fann mig knúðan til að gera nokkrar breytingar
á kvæði þessu. Vil eg því vinsamlegast biðja Hkr. að
birta það á ný.
^ Árni S. Mýrdal
! þeir á 27 ríkisbúgörðum og 412
| sameignarbúgörðum. í Kukkus-
héraði, þar sem eingöngu býr
fólk af þýzkum ættum, er land-
I búnaðurinn skipulagður eins og
; í iðnaði nú á dögum, bændurnir
eru orðnir launaþegar, og laun
þeirra fara eftir velgengi at-
! vinnugreinarinnar.
Bændur höfðu árið sem leið
upp úr vinnu sinni 2200 pund af
korni og 100 rúblur í peningum,
en sú upphæð er ekki fyrir ein-
um fatnaði, en bændur höfðu
nóg að éta og nægilegt fóður
handa. skepnum sínum. Grein-
arhöfundur telur betur ástatt í
þessum “þýsku” þorpum en í
þorpunum í Norður-Rússlandi,
| þrátt fyrir þurkana í fyrra sum-
ar og þar af leiðandi minni upp-
skeru.—Vísir.
þeim samúð og hluttekningu í
harmi þeirra.
G. Á.
BERNICE LORRAINE
MATHEWS
Fædd 19. des. 1933
Dáin 5. febr. 1937
DÁN ARFREGN
Hví ertu horfin, blíða blóm,
Með bros á heitri vör?
Eg heyrði gjalla dauðadóm.
Þitt dvínar lífsins fjör.
Og sárt mitt hjarta særði fleínn,
Að sjá þig fallna í val.
En drottinn lífs og dauða einn
Það dulda skilur tal.
Eg kveð þig, hjartans bjarta
blóm,
Þú blundar vært í gröf.
Eg inndælan heyri engla-hljóm
Yfir um dauðans höf.
f nafni móðurinn—A. J. S.
Þau hjónin Sigurður og Dóra
1 Mathews á Oak Point urðu fyrir
1 þeirri sáru sorg, að missa dóttur
í sína Bernice Lorraine, rúmlega
, þriggja ára gamla, 5. febr. síö-
astliðinn. Veiktist hún hastar-
j lega upp úr venjulegri kvefves-
| öld, var flutt á spítala í Winm-
' peg og dó þar eftir nokkra daga.
Hún var mjög efnilegt og
elskuplegt barn, og er hörmuð
ekki aðeins af foreldrum sínum,
| heldur líka af öfum sínum tveim-
I ur og ömmu, sem hún var mjög
1 handgengin, og mörgum fleiri
skyldmennum. Allir vinir fjöl-
skyldunnar sakna sárt litlu
j stúlkunnar; enda var fleira* fólk
J samankomið við jarðarför henn-
ar en venjulega er við jarðarf&r
ir barna á hennar aldri. Hún var
ein af fjórum börnum, sem dóu
á Oak Point í vetur á hér um bll
j þremur vikum. Var dauði þeirra
allra mikið harmefni bæði for-
eldrum þeirra og öllu bygðarlag-
inu.
Foreldrar Bernice heitinnar
tjá sitt innilegasta þakklæti öll-
um, sem sendu blóm á kistu
hennar, eða á annan hátt sýndu
PIPARSYEINAR OG
HEIMSVELDI
f enska þinginu flutti einn
þingmannanna fram um daginn
ályktun þess efnis, “að tilhneig-
ing þjóðarinnar til úrkynjunar
feli í sér hættu fyrir hið enska
heimsveldi”. Var þar einkum átt
við fækkun barnsfæðinga í land-
inu. Raunar var flutningsmað-
urinn piparsveinn, rúmlega þrít-
ugur að aldri. í umræðum sagði
einn þingmanna “að sér væri það
tilefni til örvæntingar, að jafn-
vel á þessu þingi okkar, þar sem
aldurstakmark er fremur hátt,
eru nærri því 200 piparsveinar” !
Þessi þingmaður tók fram, að nú
væru Englendingar 42 miljónir,
en eftir tvær kynslóðir yrði sú
tala komin niður í 20 miljónir.
Þá væri hægt að ímynda sér
hvernig landið liti út — hélt
hann áfram. “Hvarvetna munu
| sjást auð og yfirgiefin þorp,
tómar verksmiðjur, myllur, sem
J standa kyrrar, tómir skólar —
en ef til vill jafnframt þessu
full sjúkrahús og önnur slik
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skriístofusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að flnnl á skriístofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimili: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 ÍSS G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrœSingur 702 Confederation Liíe Bldg. Talsími 97 024
Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutninga fram og aítur um bæinn. w. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LOOFRÆÐINOAM á öðru gólfi 325 Main Street Talsími: 97 621 Hafa einnlg skrifstofur að í^ndar og Gimh og eru þar að hitta, fyrsta miðyikuda* i hverjum mánuði.
MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO »54 BANNINO ST. Phone: 26 420 M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lsetur úti meðöl í vlðlögum VlStalstímar kl. 2 4 e. h. f 8 að kveldlnu Síml 80 857 665 victor 8t.
Dr. O. BJORNSSON 764 Victor St. OFFICE & RESIDENCE Phone 27 586 A. S. BARDAL selur líkldstur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá beetl. Enníremur selur hann a.n^r~.f|r mlnnlsvarða og legstelna 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINNIFRQ
RAGNAR H. RAGNAR Píanisti oa kennari Kenslustofa: 518 Dominion St. Simi 36 312 Dr. S. J. Johannes.ion 218 Sherburn Street Talsimi 80 877 Viðtalstími kl. 3—5 e. h.
hæli.”
Tala fæðinga hefir sífelt lækk-
að í Englandi síðan árið 1875,
en fólksfjölgunin hefir verið bor-
in uppi af minni barnadauða,
vegna betri kjara og fullkomnari
læknavísinda.
öllum þingmönnum bar sam-
an um, að þetta mál væri eitt
hið mesta alvörumál, sem nu
væri uppi í Bretlandi. “Eftir
30 ár verður þriðjungur þjóðar-
innar fólk yfir sextugt”.
En hvað á að gera?
Ýmsar leiðir var bent á til að
örfa fólk til að eiga börn, svo
sem að gefa konum úr hópi
verkamanna 6 mánuði með full-
um launum fyrir og eftir fæð-
ingu barns. Og svo var það pip-
arsveintskattur. Sú stefna var
einna fyrst tekin upp í ftalíu og
fleiri lönd hafa síðan fylgt á el't-
ir. En þó víða sé ekki beinlínis
neinn lögfestur piparsveina-
skattur, þá er skattalöggjöf sum-
staðar þannig fyrirkomið, að
það er lítill efnalegur ávinning-
ur fyrir menn að vera einhleyp-
ir. Og þessi aðstaða hefir ekki
bætt úr. Menn hafa heldur vilj-
að greiða skattana — en gifta
sig. \
“Hver sem leiðin er til að bæta
úr ástandinu, þá er hún ekki
fundin”, sagði einn ensku þing-
mannanna.
Það er hættulegt fyrir Eng-
lendinga, sem þurfa mikinn
stofn manna, til að halda við
stóru heimsveldi, þegar svo fer
sem nú er orðið í þessum efnum.
En slíkt getur líka verið hættu-
legt fyrir litlar þjóðir, sem
byggja stórt en lítt numið land.
—Vísir.
Elsti sonur Mussolinis hefir
skrifað endurminningar frá ó-
friðnum í Abyssiníu. — Faðir
hans skrifaði formálann, og hef-
ir bókin runnið út.
Kaupið Heimskringlu
Lesið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
iosoooecoccoeoseoeceososcos
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 04 954
Fresh Cut Flowers Dally
Plants in Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
Icelandic spoken
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Ring8
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
312 Curry Bldg., Wlnnlpeg
Oegnt pósthúslnu
Slmi: 96 210 HeimilU: JJ J|«
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Inturanee and Financial
Agenti
Simi: 94 221
600 PARIS BLDG.—Winnlpea
Gunnar Erlendsson
Pian o kennari
Kenslustofa: 701 Victor St.
Sími 89 535
Orric* Phoni Res. Phoni
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MKDIOAL ARTS BUILDINO
Omci Hoors:
12-1
4 P.M. - « T.U.
ANB IT APPOINTMINT
J. WALTER JOHANNSON
U mboffsmaflur
New York Life Insurance
Company