Heimskringla - 07.04.1937, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 7. APRÍL 1937
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ISLANDS-FRETTIR
Húsbruni
Akureyri 6. marz
íbúðarhúsið á býlinu Skarði við
Akureyri brann til kaldra kola
á fimtudagskvöldið 4. þ. m. um
kl. 23,00. Húsið var eign Jóns
Guðmanns, kaupmanns á Akur-
eyri og geymdi hann þar ýms
verðmæt landbúnaðaráhöld og
aðra muni. Ennfremur nokkuð
af hænsnafóðri og í kjallara
hússins mikið af garðávöxtum.
Engu varð bjargað úr húsinu.
Upptök eldsins eru ókunn.
* * *
Breytingar á hegning-
arlögunum í vændum
Rvík, 6. marz
Dómur lögreglustjóra í land-
ráðamáli nazistanna var kveðin
upp í gær og var á þá leið, að
nazistarnir voru sýknaðir.
Sýknunardóminn mun lög-.
reglustjóri byggja á því, að sam-
kvæmt hinum danska texta
hegningarlaganna veiti.þau ekki
vernd ráðagerðum, ályktunum
eða samningum, sem fjalla “um
f járhag landsins og þjóðhagsleg
málefni þess, einkaréttarlegs
eðlis fjárhagsleg eða viðskifta-
leg”. En athæfi nazistanna heyr-
ir undir þá liði.
Danskir refsiréttarfræðingar
hafa látið svipað álit í ljósi um
þessi ákvæði hegningarlaganna
og varð það m. a. til þess að tek-
in voru upp ákvæði um þessi at-
riði í hin nýju hegningarlög
Dana frá 1930.
Mál þetta, sem hér ræðir um,
var m. a. höfðað til þess að fá úr
því skorið, hvort álit íslenzkra
dómstóla væri á sömu leið og
þeirra dönsku, og hvort hægt
væri að fá menn dæmda fyrir
rógskrif um þessi mikilsverðu
mál ríkisins samkvæmt núgild-
andi lögum. Þessi dómur virðist
nokkur bending um það, að svo
sé ekki, og liggur þá beint víð að
breyta hegningarlöggjöfinni um
þetta til samræmis við það, sem
Danir hafa gert. Jafnframt ætti
þá að taka upp í hegningarlögin
svipuð ákvæði önnur, sem eru í
dönsku hegningárlögunum frá
1930, og ganga í þá átt, að
hindra önnur álíka vinnubrögð
ofbeldisflokkanna.
Nazistapiltarnir og þeir, sem
aðhyllast þessi og önyur vinnu-
brögð þeirra, skulu því ekki
fagna lengi yfir því, þó þeir í
þetta sinn, komist ef til vill und-
an réttlátri hegningu vegna úr-
eltra laga. Það mun aðeins verða
til þess að flýta fyrir nýrri,
nauðsynlegri löggjöf, sem ná-
grannaþjóðir okkar hafa þegar
sett um þessi efni.—N .Dbl.
* * *
Jón í Stóradal dæmdur
fyrir ærumeiðingar
Rvík, 5. marz
í undirrétti var í gær kveðinn
upp dómur í meiðyrðamáli, sem
fjármálaráðherra höfðaði fyrir
nokkru gegn Jóni í Stóradal fyr-
ir ummæli blaðs hans í sambandi
HÚSIÐ MILLI SANDHÆÐANNA
Frh. frá 6. bls.
nú er hún kannske að deyja, og þú eyðir þessari
dýrmætu stund til þess að níðast á henni hjálp-
arlausri. Farðu til hliðar og láttu mig hjálpa
henni.”
Hann stóð gagnvart mér, hvítur í andliti
og ógnandi, síðan vék hann til hliðar.
“Hjálpaðu henni þá,” mælti hann.
Eg kraup á hnén við hlið hennar og losaði
eins vel og eg gat fötin af henni, en er eg var
að því þá var gripið í öxlina á mér.
“Snertu ekki á henni. Heldurðu að eg hafi
ekkert blóð í æðunum ?” sagði Northmour
grimdarlega.
“Northmour,” sagði eg, “ef þú vilt hvorki
hjálpa henni sjálfur, né leyfa mér það, þá
veistu að eg neyðist til að drepa þig.”
“Þetta er betra,” hrópaði hann. “Láttu
hana deyja líka. Hvað gerir það til? Komdu
frá stúlkunni og berstu við mig.”
“Þú hefir tekið eftir því,” mælti eg, “að eg
hefi ekki kyst hana ennþá.”
“Eg mana þig til að gera það,” hrópaði
hann. (
Eg veit ekki hvað yfir mig kom. Það er
eitt af því, sem eg skammast mín mest fyrir á
æfi minni, þó að' konan mín hafi ætíð sagt að
kossar mínir væru sér ætíð kærkomnir, bæði
Jifandi og dauðir, nú kraup eg aftur á kné og
kysti hana á ennið, sem var ískalt, rétt eins og
faðir gæti hafa gert, og var það koss sem eigi
átti illa við frá manni sem var í þann veginn
að deyja við konu, sem þegar var dáin.
“Og nú er eg reiðubúinn að sinna þér Mr.
Northmour,” sagði eg. En mér til mestu undr-
unar hafði hann snúið við mér bakinu.
“Heyrðirðu ?” hrópaði eg.
“Já,” svaraði hann, “það geri eg. Ef þú ert
all fús að berjast, er eg tilbúinn. Ef ekki,
bjargaðu lífi Clöru. Mér er sama hvert er.”
Eg lét ekki segja mér þetta tvisvar, en
laut yfir Clöru og reyndi að lífga hana við. Hun
var ennþá meðvitundarlaus og tók eg að óttast
að hinn blíði andi hennar væri horfinn frá mér
fyrir fult og alt, og ótti og einstæðingstilfinníng
gripu brjóst mitt og kallaði eg til hennar með
hinum ástúðlegustu orðum. Eg nuddaði henduv
hennar, stundum lyfti eg upp höfði hennar, eða
lagði það niður aftur, en alt virtist árangurs-
laust, augu hennar voru alt af lokuð.
“Northmour,” sagði eg, “þarna er hattur-
inn minn. Sæktu mér fyrir guðsskuld vatn úr
lindinni.” Hann var á svipstundu kominn með
vatnið.
“Eg kom með það íhattinum mínum, þú
telur það varla eftir mér.”
“Northmour,” var eg byrjaður að segja
þegar hann greip fram í fyrir mér:
“ó, þegiðu! Það besta sem þú getur gert
er að segja ekki neitt.”
Eg hafði sannarlega enga löngun til að
segja neitt, svo var eg áhyggjufullur um unn-
ustu mjna. Eg þagði því og reyndi að lífga
hana við og þegar hatturinn var tómur sagði
eg aðeins “meira”, og hafði hann víst farið
nokkrar ferðir þegar Clara opnaði augun.
“Nú þegar hún er betri getið þið verið ein
fyrir mér,” mælti hann. “Eg óska þér góða nótt
Mr. Cassilis.”
Að svo mæltu var hann horfinn inn í kjarr- •
ið. Eg kveikti upp eld, því að eg óttaðist ekk-
ert ítalina, sem ekki höfðu snert þetta litla,
sem eg átti í tjaldinu. Og þótt hún væri niður
brotin út af öllu því, sem skeð hafði um
kvöldið, þá tókst mér samt með uppörfunarorð-
um og bænum, ásamt hitanum og þeim fáu
tækjum, sem eg hafði að sefa hana andlega og
styrkja hana líkamlega.
Það var orðið bjart þegar einhver hrópaði
í skóginum. Eg reis upp af jörðinni, en þá
heyrðist rödd Northmours og bað hann mig að
koma einsamlann, því að hann óskaði að sýna
mér nokkuð.
Eg leit spyrjandi á Clöru og gaf hún sam-
þykki sitt á sama hátt, eg skyldi hana eftir og
skreiddist út úr þykkninu. í nokkurri fjar-
lægð sá eg Northmour hallast upp að tré og
þegar hann sá mig gekk hann niður að strönd-
inni, en eg hafði næstum náð honum þegar við
komum út úr skóginum.
“Sjáðu,” sagði hann og stansaðí.
f tveimur skrefum komst eg fram úr lauf-
unum sem byrgðu tilsýnið. Morgunbirtan var
skær og köld yfir hinu kunna sjónarsviði. Sum-
arhúsið var brunarúst, þakið var fallið inn, en
annar gaflinn fallinn út, en sótflyksur Iágu um
alla melana. Ennþá rauk úr rústunum og glóðin
sást.í svörtum yeggjunum eins og einmyrja í
arni. Fyrir utan höfnina lá skonorta og mann-
aður bátur lenti i fjörunni.
“Rauði jarlinn,” hrópaði eg. “Rauði jarl-
inn, tólf tímum of seint.”
“Þreifaðu ofan í vasa þinn, Frank. Ertu
vopnaður?” spurði Northmour.
Eg hlýddi og hlýt að hafa náfölnað. —
Skammbyssan mín hafði verið tekin frá mér.
“Þú sérð að þú ert á valdi mínu, eg af-
vopnaði þig þegar þú varst að hjúkra Clöru í
gærkveldi; en í morgun — hérna, taktu byss-
una þína. Engar þakkir,” hrópaði hann og heít
upp hendinni. “Mér falla þær ekki. Það er á
þánn eina hátt, sem þú getur sært mig nú.”
Hann tók að ganga ofan í fjöruna og eg
fylgdist á eftir honum skref fyrir skref. Fyrir
fi'aman sumarhúsið stansaði eg til að sjá hvar
Mr. Huddlestone hafði fallið. En það sást ekk-
ert af honum, ekki svo mikið sem blóðblettur.
“Kviksyndið,” mælti Northmour. Hann
hélt áfi'am þangað til hann kom fram á bakk-
ann.
“Gerðu svo vel og farðu ekki lengra,” mælti
hann. “Mundir þú vilja fara með hana heim á
óðalssetrið ?” spurði hann.
“Þakka þér fyrir, en eg mun reyna að
koma henni til fiskiþorpsins.”
Nú stökk einn sjómaðurinn í land af bátn-
um. “Bíðið þið svolítið drengir!” kallaði North-
mour. Því næst hvíslaði hann að mér. Það
væri betra fyrir þig að segja henni ekkert um
alt þetta.
“Þvert á móti,” svaraði eg. “Hún fær að
vita alt sem eg veit.”
“Þú skilur þetta ekki,” svaraði hann með
miklum tignarsvip. Henni er sama. Hún býst
við þessu af mér. Vertu sæll,” mælti hann og
kinkaði kolli.
Eg bauð honum hendina.
“Afsakaðu,” sagði hann. “Þetta kann að
vera lítilmannlegt af mér, en svona langt get eg
ekki gengið. Mér fellur engin viðkvæmni. Mig
langar ekki til að sitja við arin ykkar eins og
gráhærður ferðamaður. Þvert á móti. Eg vona
til guðs, að eg sjái hvorugt ykkar nokkru sinni
framar.”
“Jæja, guð blessi þig Northmour!” sagði
eg innilega.
“Ó, já”,.svaraði hann.
Hann gekk niður fjöruna og þeir hjálpuðu
honum um borð í bátinn og lögðu frá. North-
mour settist sjálfur við stýri, báturinn reis á
öldunum en árarnar mörruðu í ræðunum með
jöfnu hljóðfalli í hinu kalda morgunlofti.
Þeir voru ekki komnir hálfa leið út að skip-
inu og eg starði á för þeirra, þegar sólin reis
upp yfir hafinu.
Eitt oi’ð enn, og sögu minni er lokið. Árum
síðar féll Northmour í orustu undir merkjum
Garibaldi í frelsisstríði Tyrol-búa.
—ENDIR-------- <
við vasabókaþjófnað nazistanna.
Tók Jón málstað þeirra eins og
vænta mátti.
Dómurinn féll á þá leið, að Jón
var dæmdur í 100 kr. sekt og til
að greiða málskostnað. Um-
mæli hans voru dæmd dauð og ó-
merk.
Samherjar og stallbræður
Jóns, Valtýr Stefánsson og Jens
Benediktsson, hafa áður hlotið
dóm fyrir hliðstæð skrif um
þetta mál.—N. Dbl.
* * *
SI.vs á Akureyri
Rvík, 2. marz
Laust fyrir kl. 7 á laugardags-
kvöldið vildi það slys til í tunnu-
verksmiðju á Akureyri að vél,
sem heflar og fellir tunnustafi,
brotnaði er hún var á fullri
ferð og sundruðust vélarhlut-
arnir víðsvegaú um húsið. Tveir
menn, er við vélina unnu, sluppu ]
lítið eða ekki meiddir, en aðrir
tveir, er lengra voru frá vélinni,
stórslösuðust. Þeyttust brot úr
vélinni í höfuð þeim. Var annar
þeirra, Jón Sigurðsson, fluttur
meðvitundarlaus á sjúkrahús og
andaðist þar á sunnudag. Hinn,
Björn Guðmundsson, sem einnig
var ‘ stórmeiddur, var fluttur
heim til sín.
Vinna hefir verið algerlega
stöðvuð í verksmiðjunni vegna
þessa atburðar, en þar unnu um
50 manns.—N. Dbl.
* * *
Byggingar í Reykjavík
á síðastliðnu ári
Rvík. 4. mai'z
Byggingarfulltrúinn í R»eykja-
vík, Sigurður Pétursson, hefir
nýlega sent frá sér skýrslu um
byggingar, sem reistar hafa ver-
ið í Reykjavík á síðastliðnu ári.
Samkvæmt þeirri skýrslu hafa
alls verið bygð 166 ný hús í
bænum á þessu ári, en um 20
gömul hús hafa verið stækkuð.
Af þessum 166 húsum eru 107
íbúðarhús 5. opinberar bygging-
ar og samkomuhús, 10 vinnu-
stofur og verksmiðjuhús, 8
gripa- og alifuglahús 30 geymslu
hús og bílskúrar og 6 spenni-
stöðvar. í tveimur íbúðarhús-
anna eru verzlanir. Stærð hús-
anna er rúmlega 100 þús. rúm-
metrar og eru um 5 af hundraði
af þeim timburhús, en hitt stein-
hús.
f húsum þessum eru alls 279
íbúðir og er þá í flestum tilfell-
úm miðað við tveggja og þriggja
herbergja íbúðir og ásamt eld-
húsi, en þá er í 5 tilfeljum mið-
að við 6 og 7 herbergja íbúðir og
eldhús. Byggingarkostnaðurinn
nemur alls hátt á fimtu miljón
króna, og er þá ekki reiknaður
með kostnaður við girðingar um
lóðir eða því um' líkt né við
breytingar á gömlum húsum, ef
þær breytingar hafa ekki aukið
húsrúm í för með sér.—N. Dbl.
* * *
Samkepnisprófið um
prófessorsembættið
Rvík. 5. marz
Hinn munnlegi hluti samkepn-
isprófsins um kennaraembættið
í guðfræði við Háskóla íslands
hefst í dag. Hinum skriflega
hluta þess eða ritgerðunum hafa
umsækjendurnir þegar lokið, en
þeir eru séra Bejnamín Kristj-
ánssson, séra Björn Magnússon
og Sigurður Einarsson fyrv.
prestur.
Hefst þessi hluti prófsins með
því að séra Benjamín flytur er-
indi kl. 10 árd. í dag, séra Bjöfh
Magnússon flytur erindi kl. 11
árd., og Sigurður Einarsson kl.
2 e. h.
öll erindin verða flutt í Iðnó
og verður þeim útvarpað.
Á morgun flytja keppendurnir
seinni erindi sín og er samkepn-
isprófinu þar með lokið. Verða
þau flutt á sama tíma, en Sig-
urður er þá fyrstur og Benjamín
síðastur.
í dómnefndinni eiga sæti: þrír
guðfræðisprófessorar háskólans,
sr. Árni Sigurðsson og danski
próf. Mosbech.—N. Dbl.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstoíusími: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að flnni á skrifstofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. HeimUi: 46 Alloway Ave. Talaimi: 33 15S G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. Lögfrœðingur 702 Confederation Life Bldg. Talsimi 97 024
Jacob F. Bjarnason —TRAN SFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Pbone 35 909 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bœinn. W. J. LINDAL, K..C. BJÖRN STEFÁNSSON ISLENZKIR LÖGFRÆÐINOAR á öðru gólfl 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnig skriístoíur »8 Lundar og Gimli og eru þar að hitta, fyrsta miðvikudag i hverjum mánuði.
MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO S54 BANNINO ST. Phone: 26 420 M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkdónuu- Lætur úti meðöl 1 viðlögum Vlðtalstfmar kl. 2 4 e. h. 7—8 að kveiainu Síml 80 867 666 Victor St.
Dr. O. BJORNSSON 764 Victor St. OFFICE & RESIDENCE Phone 27 586 A. S. BARDÁL selur lfkkistur og annast um útfar- ir. Allur útbúnaður sá besti. Ennfremur selur hann «tii»v«nar minnlsvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE 8T. Phone: 26 607 WINNIPEO
RAGNAR H. RAGNAR Pianisti oo kennari Kenslustofa: 518 Dominion St. Sími 36 312 Dr. S. J. Johannesion 218 Sherbum Street Talsiml 30 877 ViOt&lstími kl. 3—5 e. h.
Úrslitin í semkepnisprófinu
Dómnefndin í samkepnispróf-
inu um kennaraembættið í guð-
fræði við Háskóla íslands hefir
nú kveðið upp úrskurð sinn, og
er hann svohljóðandi:
“Dómnefndin lítur einhuga
svo á, að sr. Bfjörn Magnússon
hafi í ritgerð sinni og fyrirlestr-
um, gert gefnum verkefnum bezt
skil keppendanna og sýnt mikla
yfirburði fram yfir hina að vís-
indalegri efnismeðferð, þekkingu
og framsetningu.
Telur dómnefndin hann eink-
ar vel hæfan til að takast á hend-
ur kennaraembættið í guðfræði
við háskólann og leggur það til
með samhljóða atkvæðum við
guðfræðisdeildina, að hún mæli
með því að honum verði veitt dó-
centsembættið, sem nú er laust”.
í dómnefndinni áttu sæti dr.
Jón Helgason biskup, sr. Árni
Sigurðsson, próf. H. Mosbeck,
próf. Ásmundur Guðmundsson
og próf. Magnús Jónsson.
Guðfræðideildin hefir þegar
orðið við þessari ákvörðun og af-
greitt meðmæli sín með séra
Birni til kenslumálaráðherra.
Séra Björn er sonur Magnúsar
Björnssonar fyrverandi prests á
Prestsbakka og er 33 ára gamall.
Stúdentsprófi lauk hann tvítug-
ur að aldri og tók guðfræðipróf
fjórum árum síðar með hárri 1.
einkun. Fyrsta árið á eftir var
hann aðstoðarprestur hjá föður
sínum, en 1929 varð hann prest-
ur að Borg á Mýrum og hefir
verið þar síðan.
Sqra Björn er mjög vinsæll
maður og hefir getið sér ágætt
orð í starfi sínu. Hann er frjáls-
lyndur og áhugasamur í trúmál-
um og er það tvímælalaust mik-
ill fengur fyrir Háskólann, að fá
hann að guðfræðideildinni.
—N. Dbl. 9. marz. ,
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Darae Ave. Phone 94 954
Fresh Cut Flowers Dally
Plants ln Season
We specialize in Wedding &
Ck>ncert Bouquets & Funeral
Designs
• Icelandic spoken
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watchea
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Dr. A. V. JOHNSON
ISLENZKUR T ANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Winnipeg
Oegnt pósthúsinu
Simi: 96 210 Heimilia: 31 326
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REÁLTORS
Rental, Inturance and Financial
Agents
Sími: 94 221
600 PARIS BLDG,—Wixmlpeg
Gunnar Erlendsson
Pianokennarl
Kenslustofa: 701 Victor St.
Sími 89 535
Hvað er ritstjóri?
Ef hann er lifandi, þá er hann
drullusokkur eða heimskingi. Ef
hann er dauður, þá er hann aftur
á móti ákaflega gáfaður maður,
og þjóðfélagið, sem hann helgaði
hina óvenjulegu hæfileka sína,
hefir beðið mikið tjón við fráfall
hans.—Mbl.
Ornci Phon*
87 293
R*s. Phoni
72 408
Dr. L. A. Sigurdson
108 MKDICAL ARTS BUILDING
Orrics Hotjss:
12-1
4 P.M. - 6 r.n.
AMh »T APPOINTMENT
J. WALTEfl JOHANNSON
Umboðsmaður
New York Life Insurance
Company