Heimskringla - 02.06.1937, Blaðsíða 1
LI. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 2. JÚNÍ 1937
NÚMER 35.
HELZTU FRÉTTIR
Edward og Wallis
giftast 3. júní
Á morgun, 3. júní, er ákveðin
gifting Edwards af Windsor og
Wallis Warfield, “konunnar sem
eg einni ann”, eins og fyrv. kon-
ungur komst að orði í ávarpinu
til þegna sinna, er hann lagði
niður völd.
Víst er um það að mikið var í
sölurnar lagt til þess að giftast
hinni geðþekku en óbreyttu
bandarísku konu. Hegningin sem
stjórn og biskupar lögðu við því,
var þung: missir konungdóms
víðlendasta ríkisins í heiminum
og útlegð í þokkabót. En þeir
köstuðu eflaust steininum á Wal-
lis Warfield, sem í minni vafa
voru en meistarinn forðum um
það hverjum slíkt bæri. Og þrátt
fyrir alt tapið talar nú einhver
innri rödd hjá mörgum, ef ekki
flestum um að samfara þessari
giftingu sé sigur unnin fyrir út-
lögunum!
Unnusta Edwards af Windsor
hlaut skilnað frá Ernest Simp-
son áður en krýningarhátíðin fór
fram. En giftingu sinni frest-
uðu þau til þess að draga ekki
athyglina í neinu frá krýning-
unni. Nú að henni lokinni, bein-
ist hugur þjóðar hans til Monts
á Frakklandi þar sem gifting
hertogans fer fram á morgun.
Nánustu ættingjar hertogans,
er ekki búist við að neinir sæki
giftinguna. Stjórnarvöldin og
kirkjan kváðu hafa svo frá geng-
ið að engir úr konusgfjölskyld-
unni verði viðstaddir gifting-
una.
Hertoginn hefir verið að kref j-
ast nafnbótarinnar “Hennar há-
tign”, fyrir Wallis Warfield, en
það er stjórn Bretlands ófús að
NÝR ÍSLENZKUR
LÆKNIR
Kjartan Ingimundur Johnson
útskrifaðist á þessu vori frá há-
skólanum í Manitoba í læknis-
fræði. Mr. Johnson er fæddur
í Grunnavatnsbygð í Manitoba
14. okt. 1910. Foreldrar hans eru
Einar og Oddfríður Johnson, er
bjuggu þar og síðar í Lundar bæ
þar til þau fluttu til Winnipeg
1928 og hafa verið hér síðan. —
Með þeim kom sonur þeirra til
Winnipeg og byrjaði nám á
Manitoba háskóla 1929. Hafði
hann áður lokið bæði barnaskóla
og miðskólanámi á Lundar.
Mr. Johnson er ráðinn til
starfs á General Hospital ár-
langt. Leikur honum hugur á
að afla sér sérfræðslu í barna-
sjúkdómum, en það felur í sér
nám erlendis eða í Evrópu, svo
óvíst er hvenær tækifæri gefst til
þess.
Mr. Johnson er greindur vel
sem hann á ætt til og bezti
drengur.
veita. Hertogainnu-nafnbótina
getur hún fengið, en hertoginn
er ekki ánægður með það. Er
talið að honum sé með þessu
neitað um réttindi sem algeng-
um borgara í hvaða landi sem
er, sé heimiluð. Reglur fyrir
notkun titilisins “Royal High-
ness” eru þær, að fólk það sem
komið getur til greina til ríkis-
erfða má bera hann en aðrir
ekki. En Edward af Windsor
hefir þennan titil, þó ekki geti
nú komið til greina, sem ríkis-
erfingi. Er hann sá eini, sem
titilinn ber án þess.
En þar sem hann ber hann, er
ofur eðlilegt, að hann krefjist
hans fyrir konuefnið.
Borgarstjórinn af Monts á að
gifta, en ekki prestur. Að gift-
ingu lokinni verður ferðast með
lystiskipi er “Cutty Sark” heitir
til Miðjarðarhafsins. Er sagt að
komið verði við í höfn á Eng-
landi og skyldmenni Edwards
muni þar flest koma til móts við
hann.
Rt. Hon. Stanley Baldwin
lætur af stjórnarformensku
Síðast liðin föstudag sagði for-
sætisráðherra Englands, Stanley
Baldwin stöðu sinni lausri. —
Hafði hann tekið þessa ákvörð-
un fyrir nokkru að segja af sér
stjórnarformensku að lokinni
krýningu George VI. aðallega
sakir elli. Og þó er honum ekki
meira farið að förlast en það, að
hann má nú heita að standa á
hátindi frægðar sinnar.
Eitt af blöðum andstæðinga
Baldwins hér, segir að hann hafi
átt meiri þátt í myndun þeirra
stefna er Bretland hefir fylgt
síðan 1922, en nokkrir aðrir tíu
menn. En það var um það leyti,
eða litlu síðar, að Baldwin tók
við leiðsögu íhaldsflokksins.
Baldwin naut álits fyrir það,
að alt sem hann tók sér fyrir!
hendur hepnaðist vel.
Ræður hans höfðu mikil áhrif
á áheyrendur hans. Hann vand-
aði og til efnis og máls á þeim.
Liberalar sigra í B. C.
Þó /ullnaðar fréttir séu ekki
komnar af kosningaúrslitunum í
British Columbia þegar blaðið
fer í pressuna, er það deginum
ljósara, að liberalar sigra og að
Pattullo-stjórnin verður áfram
við völd. Liberalar hafa nú þeg-
ar 18 þingmenn, en allir aðrir
flokkar 12. Alls eru þingsætin
48, og í þeim 18 kjördæmum, sem
óvíst er um, eru liberalar á und-
an í 11.
Ramsay MacDonald segir
stöðu sinni lausri
Síðast liðin föstudag, sagði
Ramsay MacDanold fyrrum for-
sætisráðherra Englands |stöðu
sinni, sem Lord President of thc
Counsel, lausri. Hann gerir ráð
fyrir að ferðast til Suður-Ame-
ríku og að því loknu setjast í
helgan stein, stúdera mannkyns-
sögu og rita. Hann hafnaði jarls-
tign, sem honum stóð til boða.
Þingsæti sínu heldur hann um
hríð.
Dr. C. H. Thordarson sjötugur
Flugskip spönsku stjórnarinnar
kasta sprengjum á þýzkt herskip
Fimm þýzk herskip skjóta á Almeria í hefndarskyni
Síðast liðinn laugardag leit Við svona þjóðstjóra er ekki
heldur en ekki út fyrir að draga gaman að eiga.
Hugvitsmaðurinn þjóðkunni, Dr. Hjörtur Thordarson í Chi-
cago hefir verið á ferðalagi austur um Bandaríki á þessu vori.
Er hann hinn hraustasti eftir að hafa komist yfir langvarandi
veikindi er þjáðu hann hátt á annað ár. Eru það öllum vinum
hans hinar beztu fréttir. í síðastliðnum mánuði varð hann
sjötugur; fæddur 12. maí 1867, á Stað í Hrútafirði og fluttist
vestur um haf sumarið 1873, þá 6 ára að aldri.
Myndin hér að ofan er tekin af honum skömmu fyrir af-
mæli hans eg ber það með sér að hann er sérstaklega hraust-
legur og unglegur í sjón. Hann veitir forstöðu raftækja verk-
smiðju sinni í Chicago, sem er með hinum stærstu þeirra teg-
undar í borginni. Þar hefir hann og bókasafn sitt, sem er
eitthvert verðmesta prívat safn í Bandaríkjunum og dvelur
þar hverja stund, sem hann hefir frjálsa frá eftirliti verk-
smiðjunnar. Landar hans óska honum góðrar heilsu og langra
lífdaga, og þakka honum þann mæta orðstír er hann hefir
getið þjóð sinni hér í landi. R.
FRÉTTAMOLAR
The British Empire Service
League á Englandi, heldur því
fram, að ákveðin tala manna frá
Canada og öðrum nýlenduni
Bretaveldis, ættu að innritast i
ríkisherinn.
* * *
Dr. Elliott G. Brackett, einn
af fremstu læknum í Boston í
Bandaríkjunum, er nýkominn
heim úr ferð frá Rússlandi. —
Eins og nærri má geta athugaði
hann einkum sjúkrahúsin í Rúss-
landi bæði í Leningrad og
Moskva. Lét hann mikið af
sjúkrahúsunum, læknunum og
öllu spítölum viðkomandi. Þyk-
ir lækninum þetta samt ekki
eins eftirtektavert, þó hann láti
vel af því, og hitt, að þessi full-
komna læknishjálp öll er veitt
einstaklingnum
Iaust.
stefnunnar, hafi ákveðið að
senda tvo menn til að rannsaka
möguleikana á að koma á social
credit fyrirkomulagi í Alberta-
fylki. Eiga þeir að rannsókn
lokinni að tilkynna Mr. Douglas
hvernig þeim lítist á blikuna og
ef árennilegt þykir, er búist við
Mr. Douglas sjálfum þangað.
* * *
Þýzkir og franskir sögufræð-
ingar hafa setið á ráðstefnu í
París um tíma til þess að leið-
rétta villur, sem í skólabókum
beggja landanna standa um sögu
þjóðanna, einkum seinni ára. —
Samþyktu þeir uppkast að breyt-
ingum á sögunni 24. maí og hef-
ir það verið prentað í kennara-
ritum bæði í Frakklandi og
Þýzkalandi. Þetta er það skyn-
samlegasta og friðvænlegasta
sem þessar þjóðir hafa gert um
væri til stórtíðinda í Evrópu.
Þýzka herskipið ‘Deutschland’
lá í höfn uppreistarmanna í
Ibiza, suðaustur af Valencia. —
Komu þá tveir flugbátar frá
spönsku stjórnnni og kasta
sprengjum á skipið. Þó ekki
væri nema ein sprengja sem
hæfði, drap hún 23 menn og 70
meiddust. Skipið laskaðist eitt-
hvað en komst þó til Gibraltar.
Úf af þessu urðu Þjóðverjar
svo óðir og uppvægir, að þeir
sendu 5 herskip til hafnborgar-
innar Almeria, sunnan til á
Spáni við Miðjarðarhaf og létu
sprengjum rigna yfir borgina,
fórust þar um 20 manns, alt
konur og börn.
Þjóðverjar gerðu þetta í hefnd-
arskyni og hefir aldrei betur á-
sannast, hve óframsýnn Hitler er
og hvílíkur heimsku fauti hann
er. Ef svo hefði nú á staðið, að
Bretar og Frakkar væru eins
flumósa og Hitler, væri nú komið
í alheimsstríð. Og Hitler og
Mussolini vita ósköp vel að þeir
nega sín ekki mikils á móti Bret-
um, Frökkum og Rússum. En
þeir hafa eigi að síður sýnt af
sér svo heimskulegan yfirgang
og blygðunarleysi með fram-
komu sinni í þessari Spánar-
byltingu, að það hefir verið stór
raun þjóðunum, sem vit hafa
orðið að hafa fyrir þeim. Bylt-
ingin á Spáni væri fyrir löngu
niðurbæld, ef ekki væri fyrir
þátttöku ítala og Þjóðverja í
henni. Það er öllum heimi Ijóst,
að fantar þessir hafa verið að
brjóta þar alþjóða lög, en þeir
hafa ekki sýnst bera neitt skyn
á það og skoða sína eigin
heimsku öllum lögum rétthærri.
endurgjalds- lanfift skeið
Ólafur Pétursson fasteignasali
í Winnipeg, John Hall bygginga-
meistari fæddur og alinn upp í
Hafnanesi í Hornafirði og Jón
Sigurðsson snikkari frá Borg á
Mýrum í Austur-Skaftafells-
sýslu leggja af stað í skemtiferð
heim til íslands í kvöld.
í neðri deild Bandaríkjaþings-
ins var 21. maí greitt atkvæðí
um $1,500,000,000 veitingu sem
verja á til styrktar atvinnulaus-
um á árinu 1938. 210 þing-
menn studdu kröfu Roosevelts
forseta um þetta. En 129 greiddu
atkvæði á móti og vildu að fjár-
hæðin væri lækkuð um $300,000,-
000.
* * *
Willis Van Devanter, dómari í
hæstarétti í Bandaríkjunum,
sagði stöðu sinni lausri 18 maí.
Hann var einn af fjórum dómur-
um réttarins sem iðulegast
greiddi atkvæði á móti viðreisn-
ai'löggjöf Roosevelts.
* * *
Fyrir milligöngu G. L. Mac-
Lachlan, umboðsmanns Alberta
stjórnarinnar, er sagt að C. H.
Douglas, höfundur social credit-
Þegar Hitler skipaði 5 her-
skipum sínum að skjóta á borg-
ina Almeria, var það auðvitað
sama sem yfirlýsing um alþjóða
stríð. En Hitler skildi það ekki
eða athugaði það ekki vegna
æðisins, sem á honum var. —
Hefndin, blind, dýrsleg og
grimm, bar alt annað ofurliði.
Hins gætti hann ekki, að her-
dallar hans höfðu ekkert leyfi til
að liggja í námunda við stjórn-
arsetrið á Spáni á höfnum upp-
reistarmanna. Og svo má mik-
ið vera, ef honum dettur ekki í
hug árás hans á Geurnica, þegar
hann er nú að telja öðrum þjóð-
um trú um sakleysi sitt, en sekt.
spönsku stjórnarinnar.
En þegar nú til alvörunnar
kemur, þora þeir hvorugur, Hitl-
er eða Mussolini annað en að
samþykkja það sem Bretar og
Frakkar segja. Og þó fulltrúar
þeirra í fyrradag gengju af
fundum alþjóðanefndarinnar,
sem er að reyna að verja öðrum
þjóðum þátttöku í spánska stríð-
inu, sætta þeir sig daginn eftir
við að skrifa undir að mynda
hlutlaust svæði umhverfis Spán.
— Ofstopa þeirra lægir á-
valt, er til alvörunnar kemur. f
alþjóðamálum eru þeir sömu
menn og vanalegir lögbrjótar eru
einnan þjóðfélaganna. Munur-
inn er aðeins þessi, að þeim er
ekki hægt að hegna fyrir lög-
brotin eins og öðrum einstakling-
um.
Alheimsstríði hefir vonandi i
bráð verið afstýrt. Hvað lengi
það verður, fer eftir því, hvað
lengi Hitler og Mussolini geta
látið vitið við sig ráða.
Columbia. Tekur hann við því
starfi 1. júlí.
Mr. Hólm hefir hvort sem um
nám eða annað starf hefir verið
að ræða, stundað verk sitt með
alúð. Hann er einstakur reglu-
maður, einlægur og viðmótshýr
og drengur hinn bezti.
The Observatore Romano,
ítalskt blað og styðjandi málefni
páfans, hermdi 22. maí, að 18
prentsmiðjur kaþólskra manna
í Þýzkalandi, hefðu verið teknar
upp af þýzku ríkislögreglunni.
* * *
Pius XI. páfi, hélt upp á átta
tíu ára afmæli sitt s. 1. mánudag.
Hann ætlaði að halda ræðu í út-
varp þennan dag, en var á síð-
ustu stundu bannað það af lækni
sínum. Páfinn er enn lasburða
eftir þunga legu s. 1. vetur.
* * *
Tólfta júní n. k. verða 1175
hús í Winnipeg seld við hamars-
högg fyrir skatti. Bæjarstjórn-
in hjálpar þar einhverjum, sem
skilding hefir til að ná í ódýra
fasteign. Þeir sem húsunum eru
að tapa, eru flestir menn, sem til
þessa hafa komist hjá að sækja
um opinberan styrk.
DR. A. W. HóLM
Arnold Willard Holm lauk
burtfararprófi í læknisfræði við
Manitoba-háskóla á þessu vori.
Hann er fæddur í Otto, Man., 20.
apríl 1910. Foreldrar hans eru
Sigurður og Sigríður Hólm nú að
Lundar, Man.
Mr. Hólm stundaði barnaskóla
og miðskólanám á Lundar. Eftir
það byrjaði hann á háskólanámi
í Winnipeg. Og að því loknu
1931, byrjaði hann nám á
læknaskóla. Mun efnahagur hafa
valdið því að hann fékk ekki
stöðugt haldið námi áfram. En
eftir þriggja ára nám útskrifað-
ist hann á þessu voru frá lækna-
skólanum.
Mr. Hólm er nú starfandi á
General Hospital í Winnipeg, en
hefir boðist læknlsstarf á
jsjúkrahúsi í Victoria í British
Chamberlain verður
forsætisráðherra
Um Ieið og Baldwin forsætis-
ráðherra Englands sagði stöðu
sinni lausri s. 1. föstudag, tók Rt.
Hon. Arthur Neville Chamber-
lain við stjórnar-formensku. —
Hann var áður f jármálaráðherra
í ráðuneyti Baldwins.
Chamberlain er mjög kunnur
stjórnmálamaður á Bretlandi. —
En viðurkenningu þjóðar sinnar
hefir hann ef til vill mesta hlot-
ið fyrir fjármála-framsýni sína.
Hann tók við fjármálaráðherra-
starfi rétt eftir að Bretland vék
frá gullinnlausn. úrræði hans
reyndust svo góð á þeim ískyggi-
legu tímum, að um hann er
stundum talað sem bjargvætt
þjóðarinnar í fjármálum henn-
ar.
Á alríkisfundinum í Ottawa
1932, þótti ekki meira að neinum
kveða, en Mr. Chambebrlain.
Stjórnmálamaður er sá maður,
sem man fæðingardag konu, án
þess að muna aldur hennar.
* * *
Drengurinn: Pabbi! Hvað eru
fimm prósent?
Faðirinn: Altof lítið, drengur
minn; altof lítið.—Alþbl.