Heimskringla - 09.06.1937, Blaðsíða 1
LI. ARJGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN.. 9. JÚNÍ 1937
NÚMER 36.
HELZTU FRÉTTIR
Spánar-byltingin
Dr. Norman Bethune frá
Montreal, sem um skeið hefir
verið á Spáni, og kom þar upp |
stofu, er sá særðum hermönnum |
fyrir lækningu er blóðrunnu af
sárum, er um hríð staddur í Can-
ada. Við stofnunina í Madrid,
sem hann hefir komið upp, vinna
25 manns. Þjóta þeir af stað til
vígvallar þegar kallað er eftir
þeim með blóð til að spíta í þá
særðu. Hafa þeir læknað 700
manns á þeim tiltölulega stutta
tíma sem stofnunin hefir starf-
að. Blóðið er úr mönnum tekið,
sem gefa sig fram til þess. Sagði
Dr. Bethune 4 Canada-menn'
vinna á stofnuninni, sem og er
kostuð af samskota fé í Canada.
Stríðið á Spáni segir hann geta
staðið lengi yfir. Uppreistar-
menn fái altaf menn og vopn frá
ítalíu og Þýzkalandi. Hann seg-
ir frá 100 til 200 þúsund ítalska
hermenn í uppreistarliðinu' um
50,000 Þjóðverja. Hlutleysis-
bannið hafi aðeins eina þýðingu
og hana illa fyrir stjórnarherinn,
því Mussolini og Hitler skeyti
því engu. Ef her væri ekki stöð-
ugt að koma frá ítalíu og Þýzka-
landi, gæti stjórnin á Spáni sóp-
að uppreistarmönnum í sjóinn á
svipstundu.
Dr. Bethune skilur ekkert í
þjóðum sem Bretum, Frökkum
og Bandaríkjamönnum, sem lýð-
ræði unni, að leyfa annað eins
blóðbað og á Spáni. Dráp varn -
arlauss fólks í smáþorpum af
uppreistarmönnum, sé eitt það
djöfullegasta framferði sem
hann hafi nokkru sinni vitað. —
Stríðið telur hann ekki innan-
Iands byltingu. Það sé árás
utan að komandi stigamanna —
ekkert annað.
Dr. Bethune býst við að halda
bráðlega aftur til Madrid-borg-
ar.
ofan úr hvelfingu byggingarinn-
ar og ofan á gólf. Landstjórinr.
og frú hans höfðu fyrir einu
augnabliki staðið þar sem steinn-
inn kom niður og voru ekki yfir
30 fet burtu þegar hann féll. —
Landstjórinn og frú hans voru á
leið til Halifax í N. S.
Gifting Edwards
fyrv. Bretakonungs
Eins og til stóð fór gifting Ed-
wards hertoga af Windsör og
Wallis Warfield fram 3. júní í
Monts á Frakklandi. Borgar-
stjórinn í Monts gifti, en að
þeirri borgaralegu giftingu af-
staðinni, kom gamall klerkur frá
Englandi og gifti að lögum og
reglum ensku kirkjunnar. Hét
presturinn R. Anderson Jardine
og var frá Darlingford. Hann
er starfsmaður ensku kirkjunn-
ar, en sú kirkja þverneitaði að
viðurkenna giftinguna og bann-
aði prestum sínum að gifta her-
togann og hertogainnuna. En
Jardine prestur skeytti ekki því
boði. Má nærri geta að yfir
honum verði lesið af biskupum
ensku kirkjunnar, en að hann
verði sviftur preststöðunni, er
ekki talið líklegt, þó margir
ensku biskupanna vildu það
fegnir. En séra Jardine kvað
vera mikill vinur fátækra og
hefir mikið fylgi hjá almenningi,
ef beita ætti hörðu við hann.
Að giftingu lokinni og mik-
illi veizlu fóru hertoginn og kona
hans til Austurríkis. Hafa þau
leigt þar kastala í Wasserleon-
burg. Dvelja þau þar fyrst um
sinn.
Ekkert af skyldfólki Edwards
Windsor var við giftinguna.
Brúðhjónin léku við hvern
sinn fingur af gleði við gifting-
una og Edward hélt ræðu að
veizlu lokum og þakkaði öllum
viðstöddum alúð og velvild
þeirra.
t
I
Sluppu heppilega
Landstjóri Canada, Tweeds-
muir lávarður og frú hans voru
í gær stödd á járnbrautastöðinni
í Campbellton í N. B., er um 500
punda þungur steypusteinn datt
ISLENZK
HJÚKRUNARKONA
Hrefna Árnason útskrifaðist í
hjúkrunarfræði frá St. Boniface-
spítalanum á þessu vori. Hún er
dóttir séra Guðmundar Árnason-
ar og konu hans Sigríðar. —
Hrefna er fædd í Winnipeg 1915,
en ólst upp að mestu á Oak Point
og stundaði þar barnaskólanám.
Þegar hún lauk miðskólanámi,
innritaðist hún við St. Boniface-
spítalann; það var 1934 og var
hún þar unz hún í vor lauk þar
námi.
Út af framkomu ensku kirkj-
unnar á Englandi við hertogann
og því sérstaklega, að leyfa ekki
prestum sínum að gifta hann,
eru mörg blöð á Englandi afar
harðorð í garð kirkjunnar. Telja
þau óþolandi ef halda eigi svo á-
fram við hvert tækifæri sem
gefst að sýna hertoganum hatur
og heiftrækni.
Fjölskyldu Edwards var aftr-
að frá því af stjórninni og kirkj-
unni að koma til móts við brúð-
hjónin á höfn við England, ef
þau ættu þar leið um á lystiskipi,
sem ætlað var að þau mundu
gera. En við það áform hættu
brúðhjónin, hvort sem þetta eða
eitthvað annað var ástæða fyrir
því. Fóru þau í þess stað beint
til Wasserleonborgar kastala.
Skrifað var, að skeð gæti að
hertogahjónin ferðuðust á þessu
hausti til Bandaríkjanna; lagði
stjórn Englands og prestarnir
þvert bann við því.
Hreyfimyndir voru teknar af
giftingunni. Hefir brezkastjórn-
in bannið að sýna þær í Eng-
landi.
Ótti stjórnarinnar er þar ef til
vill á einhverju bygður. Það
gæti svo farið að við þá sýningu
vildu fáir standa í sporum
stjórnarinnar.
Hvar sem lestin nam staðar á
leiðinni með brúðhjónin til Aust-
urríkis, kváðu við fagnaðarlæti;
var hvarvetna heimtað að her-
toginn og frú hans sýndu sig,
sem þau gerðu. Laust þá upp
hrópum um að þau mættu lengi
Iifa.
O. T. JOHNSON DÁINN
Heimskringlu barst símskeyti
í gærmorgun vestan frá Edmon-
ton um það, að Ólafur Tryggvi
Johnson skáld og um skeið rit-
stjóri Heimskringlu væri dáinn.
Hann dó á þriðj udagsmorguninn.
Ólafur var fæddur 12. marz
1882 í Norður-Dakota í Banda-
ríkjunum. Foreldrar hans voru
Jón Jónsson frá Kolgröf í Skaga-
firði og kona hans, Sigurbjörg
Benediktsdóttir. Nokkra ment-
un fékk ólafur á Wesley College
í Winnipeg, og ritstjóri Heims-
kringlu var hann frá því í marz-
mánuði 1917 til 13. ágústs 1919.
Sagði hann svo sjálfur frá að ís-
lenzku hafði hann lært af áfa
sínum og ömmu, en þau voru
Jón Pétursson og Ingunn ólafs-
dóttir; fór hann snemma í fóstur
til þeirra.
O. T. Johnson var myndar
maður og vel að sér. Er hann
eini íslendingurinn, sem fæddur
er hér vestra, sem ritstjóri hefir
verið annars íslenzka vikublaðs-
ins vestan hafs.
Hinn látni Iætur eftir sig konu
og börn.
Hér er ekki tækifæri að minn-
ast eins og vera bæri hins látna
góða og gegna manns, en von-
andi verður það gert af ein-
hverjum honum vel kunnugum
síðar.
í Monts stóð fólk í röð með-
fram þjóðveginum svo jafnvel
mílum skifti út frá Chande de
Cande þar sem giftingin fór
fram til að húrra fyrir brúð-
hjónunum er þau fóru þaðan til
járnbrautarstöðvar nokkrar míl-
ur burtu.
Ný lög um sölu
á helium gasi
f þinginu í Washington er þeg-
ar þetta er skrifað verið að ræða
um ný lög á sölu á helium gasi
til útlanda. Hefir Roosevelt
forseti lagt til að salan væri
Ieyfð, svo loftskip af stærð Hind-
enburgs skipsins þýzka, þyrftu
ekki að nota annað hættulegra
gas. Helium gas er til muna
hvergi fáanlegt nema í Banda-
ríkjunum. En vel kvað eiga að
gæta þess í frumvarpinu, að ekki
verði svo mikið selt, að því verði
safnað saman á einn stað og enn-
fremur, að flugher Bandaríkj-
anna skorti það ekki. Mun her-
málaráðinu falið eftirlit með söl-
unni út úr landinu.
Stjórnarskifti í Japan
Með júnímánaðarbyrjun tók
ný stjórn við völdum í Japan.
Hayashi-stjórnin, sem stuttan
tíma hafði setið við völd, var of
fáliðuð.
Forsætisráðherrann nýi er
nefndur prins Fumimaro Kon-
oye. Hvernig stjórnari sem hann
reynist, er það víst, að hann get-
ur komið þjóð sinni í gott skap.
Hér á eftir fara póstar úr ræð-
unni, er hann ávarpaði þjóð sína
s. 1. viku, er sýna að hann getur
gert að gamni sínu:
“Eg er í raun og veru alls
ekki hæfur og heldur ekki þess
verður, að vera forsætisráð-
herra. Staðan sem< mér hefir
hlotnast er meiri en svo, að mað-
ur með mínum vesælu hæfileik-
um geti gengt henni
En geti eg gert gamla óvini
að vinum, geti eg komið allri
þjóðinni í skilning um að hún
sé ein fjölskylda með keisarann
að húsföður, þá væri eg ánægð-
ur.
Eg hefi létts um 8 pund á sex
dögum. Eg er nú ekki yfir 150
pund, sagði hann vonleysislega.
Eg vakna 10 til 12 sinnum á
hverri nóttu. Eg verð að taka
mér blund seinni hluta dags.
Konan mín stjórnar mér með
harðri hendi Hún leyfir mér
ekki að éta neitt hrátt, ekki einu
sinni Sashimi (ljúffengan fisk,
sem étin er hrár). Hún leyfir
mér aldrei að drekka kaffi á
milli máltíða. Það er ekki tekið
út með sældinni að vera giftur.”
Þá var prinsinn spurður að
því hvort að hann reykti eða
drykki.
“Já”, svaraði hann. “Eg geri
dálítið af hvorutveggju. Lækn-
irinn bannaði mér að reykja, en
hann sá mig þó í fyrradag gera
það og hafði ekki orð á því. Eg
hugsa að hann sé smeykur að
setja ofan í við mig síðan eg
varð forsætisráðherra.”
Prins Koneye, sem er aðeins
46 ára, er alkunnur fyrir fyndni
og að vera hrókur alls fagnaðar.
Á grímuballi nýlega, klæddist
hann sem Hitler. Frá vinum
hans dundi við hláturinn, en
sjálfur brosti hann ekki.
Leiðsögumaðurinn: — Hérna.
frúr mínar, eru hinir heims-
frægu fossar. Ef þið vilduð
hætta að tala stundarkorn,
mynduð þið ef til vill heyra
drunurnar.—Alþbl.
FRÉTTAMOLAR
Fregn kom frá Ottawa í gær
um að Sir Robert L. Borden liggi
þungt haldinn.
* * * *
Blaðið “Daily Express” á Eng-
landi er harðort í garð stjórnar-
innar fyrir að banna að sýna
giftingarmynd Edwards af
Windsor og hertogafrúarinnar.
“Verðum við að fara til Frakk-
lands, Bandaríkjanna eða Rúss-
lands að sjá þessar myndir”,
segir blaðið. “Það er ekki ófag-
ur vitnisburður um skoðanafrelsi
á Englandi.”
sjí *
Bretar hækkuðu verð á gulli
um nærri 10 cents únzuna í gær.
Það var gert til þess að koma í
veg fyrir sölu á því út úr land-
inu, til Bandaríkjanna, en hún
hefir verið mikil undanfarnar
tvær eða þrjár vikur. Gull safn-
aðist talsvert til Englands með-
an verð á því þótti óvíst í Banda-
ríkjunum. Nú vilja eigendurnir
heldur vita af því þar en á Eng-
landi.
* * *
Loftskip sem lagði af stað 15.
des. frá Los Angeles og ætlaði
til Salt Lake City í Utah, tapað-
ist og fanst ekki þó leitað haíi
verið í nærri 6 mánuði fyr en s.
1. sunnudag. Það fanst við stað
þann sem nefndur er Lake
Hardy Rídge í Utah, brotið mjöl-
inu smærra. Með því voru 5
karlmenn og tvær konur, sem
týndu lífi. Það var rigning og
þoka er loftfarið fórst.
* * *
Á Iæknafundi nýlega í Atlantic
City, N. J., var því haldið fram,
að insulin, efnið, sem dr. Freder-
ick Banting í Toronto fann upp
sem lyf við sykurveiki, sé einn-
ig mjög gott meðal við algengu
kvefi.
* * *
•Roosevelt forseti skrifaði 28.
maí undir frumvarp, sem það
var fólgið í, að nema lög þau úr
gildi, sem nefnd hafa vérið “The
Red Rider” en sem að því lutu,
að banna kennurum að veita
fræðslu um kommúnisma eða
hampa þeirri stefnu í skólum.
Eitt af hinum mörgu áhuga-
málum Mussolini kvað vera það,
að koma ítalskri prinsessu • til
valda á Spáni, ef uppreistarmenn
sigrá í borgarastríðinu. Hugsar
Mussolini sér að þetta takist
með því, að gifta Maríu prin-
sessu af Savoy, erkihertoganum
Otto af Hapsburg, sem til ríkis-
erfða var borinn í Austurríki og
gera hann að konungi á Spáni.
Kröfur Alfonso XIII. fyrv. Spán-
arkonungs og erfingja hans, seg-
ir Mussolini að verði að leggja á
hilluna til þess að koma áformi
sínu fram.
* * *
Rússar luku við að semja
þriðju fimm ára starfsáætlun
sína s. 1. sunnudag. Kemur hún
í gildi 1. jan. 1938, en þá verður
annari áætluninni lokið. Er um
mörg stóriðnaðarfyrirtæki að
ræða í nýju áætluninni. Segja
Rússar ekki veita af að koma
upp iðnaðinum, því á næstu 25
árum muni íbúatalan hækka um
125 miljónir. Nú er talan um
175 miljónir. Á síðast liðnu ári
fæddust helmingi fleiri börn en
árið áður í Rússlandi. Það má
heita eina landið, sem fæðingum
fjölgar nú í til muna.
* * *
Stjórnin á Spáni lagði fram á
þingi Þjóðabandalagsins 31. maí
klögun á hendur Þjóðverjum fyr-
ir her-árásir þeirra á spanversk
skip og hafnir. Telur spánska
stjórnin það skýlaust brot á al-
þjóða-herlögum og Þjóðabanda-
laginu beri að koma til skjal-
anna. — Bara að það geri það
myndarlegar en í Blálandsstríð-
inu.
* * *
Hitler sæmdi Mussolini s. 1.
mánudag stórkrossi arnar-orð-
unnar (Grand Cross of the Order
of the Germah Eagle), sem er
sögð sú mesta virðing sem ríkið
getur veitt. Kvað Hitler þetta
eiga að votta vináttu sína og
virðingu fyrir dáð og dugnaði
Mussolini. Tengdasyni Musso-
lini, Ciano greifa, var einnig
veitt þessi orða.
* * *
Eitt af blöðum ítölsku stjórn-
arinnar í Milan, birti grein um
það 25. maí, að Gyðingar á
ítalíu yrðu annaðhvort að vera
fasistar eða fara úr landi burt. f
ritstjórnargreinum annara
stjórnarblaða hefir síðan verið
tekið í sama strenginn. Eitt af
því sem Gyðingum er einnig ráð-
lagt, er að leggja niður ílt umtal
um Hitler og stjórn hans.
* * *
Soviet stjórnin á Rússlandi til-
jkynti brezku stjórninni 28. maí,
að hún væri samþykk hugmynd-
inni um hlutleysi annara þjóða í
Spánarbyltingunni, en þó með
því skilyrði að allir útlendingar
í uppreistar-hernum fari úr
landi, að Marokko svertingjun-
um meðtöldum.
* * *
Warriner borgarstjóri, sem
flýtt hefir klukkunni og margt
fleira nauðsynlegt hefir gert fyr-
ir þennan bæ, lagði til í gær á
bæjarráðsfundi, að afnema fría
kenslu í efri deildum barnaskól-
anna. Hann ætti að reyna þetta
fyrir kosningar í haust.
* * *
Roosevelt forseti lét það uppi
28. maí í samtali við samgöngu-
ráð Bandaríkjanna, að hann
gerði alt sem í hans valdi stæði
til þess að koma því til leiðar, að
byrjað væri á St. Lawrence
fljótsfyrirtækinu mikla eða að
gera stórskipaleið frá Atlants-
hafi vestur á Lake Superior eða
til Ft. William og Duluth.
SÝNIR HEIMILISIÐNAÐ
FRÁ ÍSLANDI
Fröken Halldóra Bjarnadóttir
Fröken Halldóra Bjarnadóttir,
sem hér vestra er á ferð að sýna
heimilisiðnað frá íslandi, hafði
sýningu s. 1. viku í einum sal T.
Eaton’s-búðarinnar í Winnipeg.
Var hið bezta látið af mununum
sem sýndir voru. Þóttu þeir bæði
haglega gerðir og útlitsfagrir.
í gær fór fröken Halldóra
norður að Gimli og hafði þar
sýningu. Ferðast hún úr því um
Nýja-ísland og víðar um bygðir
fslendinga. Verða samkomur
hennar sem hér segir:
Riverton 11. júní
Árborg 15. júní
Selkirk 25. júní
Glenboro 28. júní
Baldur 30. júní
Lundar 8. júlí
Þegar til fjarliggjandi bygða
verður farið, verður það auglýst
á sínum tíma.
fslendingar hvar sem eru ættu
að gera sér far um að sækja
þessar samkomur og kynnast
iðnaðinum sem þar er sýndur.
Hann sýnir einnig góður gestur
frá ættjörðinni, sem allir og ekki
sízt góðir íslendingar, eins og við
Vestur-íslendingar erum, eink-
um síðan við komum vestur,
hafa skemtun af að hlýða á og
kynnast. Munið eftir samkóm-
um fröken Halldóru Bjarnadótt-
ur.
Stjórnarskrifstofur og bankar
eru lokaðir í dag hér í bæ sem
annar staðar. Afmæli George VI.
Bretakonungs, hefir verið ákveð-
ið að halda hátíðlegt 9. júní, en
ekki 14. des. sem er fæðingar-
dagur hans.
* * *
Verzlunarráð Winnipeg-borg-
ar leggur meðal annars til að
skattur sé lagður á leiguliða al-
veg eins og eigendur húsa i
Winnipeg, til þess að bæta fjár-
hag bæjarins. Verzlunarráðið
ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er hæstur. Skyldi ekki
vera óhætt að treysta því, að
húsaleiga sé í einhverju hlutfalli
við skattana og að leiguliðar fari
ekki skatta alveg á mis.
* * *
Robert Wagner hreppstjóri í
Baden, tilkynti í ræðu sem hann
hélt 27. maí, að allir nazistar í
stjórnarþjónustu á Þýzkalandi,
töpuðu stöðu sinni, ef þeir sætu
þegjandi og aðgerðarlausir i
kirkjum undir skömmum frá
prestinum á Hitler eða stjóm
hans.