Heimskringla - 09.06.1937, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 9. JúNf 1937
ÞINGBOÐ
Fimtánda ársþing hins Sameinaða Kirkjufélags fs-
lendinga í Vesturheimi verður sett í kirkju Sambands-
safnaðar í Árborg laugardaginn þann 26. júní 1937,
klukkan sjö eftir hádegi. Þingið stendur fram á þriðju-
dagskvöld þann 30.
Söfnuðir, sem í kirkjufélaginu eru, senda fulltrúa á
þingið, einn fyrir hverja 50 safnaðarfélaga eða brot af
þeirri tölu.
Á þinginu mæta einnig fulltrúar fyrir sunnudaga-
skóla og ungmennafélög.
Ennfremur heldur Samband íslenzkra Kvenfélaga
hins Sameinaða Kirkjufélags ársþing sitt einhvern dag
þingtímans.
Starfsskrá þingsins verður nánar. auglýst síðar.
Söfnuðir, sem í félaginu eru, eru vinsamlega beðnir
að senda ársskýrslur sínar til ritara félagsins, Dr. Sveins
Björnssonar í Árborg, og ársgjöld sín til féhirðis, Mr.
P. S. Pálssonar, 796 Banning St., Winnipeg, að minsta
kosti viku áður en þingið byrjar.
Guðm. Árnason, forseti
Sveinn E. Björnsson, ritari
FJÆR OG NÆR
Messur í Sambandskirkjunni
Síðasta íslenzka guðsþjónust-
an fyrir sumarfríið fer fram í
Sambandskirkjunni í Wpg. næst-
komandi sunnudag, kl. 7 e. h. og
við það tækifæri messar dr.
Rögnvaldur Pétursson vegna
fjarveru prestsins, sem staddur
verður á ungmennaþingi í
Minneapolis ásamt £ulltrúum
ungmennafélags safnaðarins. —
Eru menn beðnir að minnast
þessarar messu og fjölmenna.
Við morgun guðsþjónustuna, kl.
11 f. h. messar dr. Robert Milli-
ken fyrverandi prestur United
Church of Canada, en sem hefir
nú gerst meðlimur únítara kirkj-
unnar í Winnipeg.
* * *
Messa í Sambandskirkjunni í
Árensi n. k. sunnudag (13. júní)
kl. 2 e. h.
* * *
Messur og fundir
í Vatnabygðum
Föstud. 11. júní kl. 7.30 e. h. —
Söngæfing.
Laugard. 12. júní kl. 8.30 e. h.—
íslendingadagsnefndin.
Sunnudag 13. júní kl. 11 f. h. —
Sunnudagsskóli
kl. 2 e. h.—Messa í Wynyard
kl. 3 e. h. — Safnaðarfundur
Quill Lake-safnaðar.
kl. 7 e. h. — Messa í Mozart.
Miðvikud. 16. júní kl. 8 e. h. —
Ungmennafélagsfundur.
* * *
Ungmennaþing
— Fulltrúar Ungmennafélags
Sambandssafnaðar í Winnipeg,
sem voru kosnir á ungmenna-
þingið sem haldið verður í Minn-
eapolis næstu helgi, 11. til 14. þ.
m. voru: Miss Helga Reykdal,
Miss Guðný Sigmundsson og Mr.
Edward Halldórsson. Þau gera
ráð fyrir því að fara héðan áleið-
ist til Minneapolis á morgun
(fimtudaginn) ásamt presti
safnaðarins, séra Philip M. Pét-
ursson og konu hans er einnig
sitja þingið.
* * *
Hjónavígsla
Síðastliðin laugardag voru
Miss Thorey Kristrún Jónasson
og Frederick Eric Tommila gefin
saman í hjónaband af séra Philip
M. Pétursson að heimili hans,
640 Agnes St., hér í bæ. Brúð-
urin er dóttir hjónanna ólafs
Jónassonar og Helgu Margrétar
Sigríðar Jónasdóttur, til heimilis
á Árnesi í Manitoba, en brúð-
guminn er af finskum ættum,
frá Elma, Man. Brúðarmey var
Miss Julia Natsuk en aðstoðar-
maður brúðgumans var David S.
Lehto. Ungu hjónin lögðu af
stað í brúðkaupsferð til Kenora.
í Ontario og dvelja þau þar j
nokkra daga. Þau setjast að í
Árnes bygðinni og stunda þar
búskap.
* * *
Frederick Vigfússon lézt á
General Hospital 4. júní Hann
var 70 ára gamall. Hann var
jarðsunginn í gær frá A. S. Bar-
dals útfararstofu af séra R.
Marteinssyni. Hins látna verð-
ur minst síðar.
HUDSON’S BAY
F. 0. B.
13 oz.
$1.15
BEZTA VERÐ Á
INNFLUTTUM SKOTA
I M i B C 36-2
Home Cooking Sale
Kvenfélag Sambandssafnaðar
efnir til útsölu á heimatilbúnum
mat, miðvikud. 9. júní, upp úr
hádegi. Þar verður á boðstólum
allskonar heimatilbúinn matur,
svo sem áður hefir tíðkast, enn-
fremur skemtanir við spil o. s.
frv.
Salan stendur frá kl. 2 e. h. og
fram eftir kveldi, og fer fram í
samkomusal kirkjunnar Bann-
ing og Sargent.
Munið eftir stað og tíma, spar
ið yður peninga og njótið góðr-
ar skemtunar.
Forstöðunefndin.
* * * *
Skemtiferð
Sambandssafnaðar
Hin árlega skemtiferð Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg verð-
ur haldin sunnudaginn 20. þ. m.
Þá verða engar messur í Sam-
bandskirkjunni. Ferðin verður
nánar auglýst síðar.
* * *
Fulltrúar frá Winnipeg
sem kosnir voru á þing Hins
Sameinaða Kirkjufélags íslend-
inga í Vesturheimi, á safnaðar-
fundi sem haldinn var s.l. sunnu-
dagskvöld í kirkjunni eru eins og
hér segir. — Fulltrúar: Jó.n Ás-
geirsson, Miss Elín Hall, Mr.
Friðrik Swanson, Miss Hlað-
gerður Kristjánsson, Dr. M. B.
Halldórsson. Varamenn eru
þessir: Jakob Kristjánsson, Mrs.
Dorothea Peterson, Mrs. G.
Goodmundson, Mrs. G. Brynj-
ólfsson og Thorvaldur Pétursson.
* * *
Únítara prestur
væntanlegur hingað
Sú frétt hefir borist hingað
nýlega, að prestur únítarakirkju
í Liverpool á Englandi er vænt-
anlegur hingað til Winnipeg
seinna í sumar. Hann heitir
Lawrence Redfern og er prestur
í Ullet Road Church í Liverpool.
Snemma í vor lagði hann af stað
frá Englandi í ferð í kringum
hnöttinn, og kemur við víða um
heim þar sem eru Únítara kirkj-
ur, meðal annars í Suður-Afríku,
Ástralíu, New Zealand, Canada
og í Bandaríkjunum.
Fyrir nokkrum árum barst
nafn hans út um heim vegna
deila, sem hófust í ensku kirkju-
unni um það, hvort að það væri
leyfilegt fyrir Únítara að messa
í ensku þjóðkirkjunni. Séra Law-
rence Redfern var þá nýlega
búinn að prédika í dómkirkjunni
í Liverpool. En Lord Hugh
Cecil háttstandandi leikmaður í
ensku kirkjunni hafði á móti því
að Únítörum væri leyft að messa
í nokkurri enskri þjóðkirkju,
eða að enskum prestum væri
bannað að bjóða þeim að messa
í kirkjum sínum. Þetta mál var
bor’ið fyrir þing ensku þjóðkirkj-
unnar og var komist að þeirri
niðurstöðu að óleyfilegt væri
fyrir nokkurn nema sannkrist-
inn mann að messa í kirkjum
þjóðkirkjunnar. En sannkrist-
inn maður væri aðeins sá, sam-
kvæmt skýrslu þeirra, sem tryði
öllum atriðum Nikeu játningar-
innar og þar sem að Únítarar
gerðu það ekki, þá gætu þeir
ekki verið skoðaðir sem kristnir,
og þar af leiðandi væri það ó-
leyfilegt fyrir þá að prédika í
ensku þjóðkirkjunni.
En biskup Liverpools biskupa-
dæmis, sem var aðal orsök þess-
ara deila, því það var hann sem
bauð séra Redfern að messa í
dómkirkjunni, er mjög frjáls í
skoðunum, og þrátt fyrir niður-
stöðu þingsins, og bann þess á
Únítörum, notaði hann sér tækí-
færi til að sýna únítörum vin-
skap og velvild með því að sækja
þing þeirra, sem haldið var í
Liverpool næsta vor eftir að
þessar deilur hófust, og bjóða
únítara velkomna til Liverpool
og óska þeim allra 'heilla. Þetta
var í maí, 1935.
Og nú kemur séra Lawrence
Redfern hingað til Winnipeg
seinna í sumar. Verður það
mönnum forvitni að sjá og heyra
þennan mann, sem óafvitandi
var orsök til síðustu deilunnar í
ensku þjóðkirkjunni. Koma hans
verður nánar tilkynt síðar.
* * *
Karlkór íslendinga söng í Ár-
borg s. 1. miðvikudagskvöld, við
ágætan orðstír sem fyr. Söng-
inn sóttu um 200 manns. Dr. S.
E. Björnsson stjórnaði samkom-
unni. Eftir hressilegan og fjör-
ugan söng, var brugðið sér i
dans'.
* * - *
Almennur skemtifundur
verður haldinn undir umsjón G.
T. St. Skuld, þriðjudaginn þ. 15.
júní og byrjar kl. 8.30 e. h. í efri
salnum.
Til skemtunar verða ræður,
söngur og hljóðfærasláttur, ogi
að síðustu stiginn dans.
Aðal ræðuna flytur Mr. Ed-
varð Olson, og Mr. Paul Kristj-
ánsson syngur einsöng, verður
þar völ á hinni ágætustu skemt-
un.
Engin inngangseyrir og engin
samskot. Fyllið húsið! Allir
velkomnir.
(Stúkan Skuld heldur fund
sinn hvern þriðjudag kl. 8 e. h.)
* * *
Guðm. Elíasson frá Árnesi leit
inn á skrifstofu Hkr. í morgun.
Hann hefir verið hér hátt á
þriðju viku undir Iæknishendi.
Hann bjóst við að fara inn á spít-
alann aftur, en vonaði að dvölin
þar færi að styttast.
* =*= *
í gærdag fóru Miss Margrét
og Mrs. Halldóra Jakobsson af
stað til Minneapolis þar sem
þær dvelja í nokkra daga. Gera
þær ráð fyrir því, meðal annars
að sitja á þingi únítara ung-
menna sem haldið verður næstu
helgi.
* * *
Síðast liðið þriðjudagskvöld
andaðist Vigfús Stefánsson, að
heimili sínu ste. 6 Pandora Apts.
í Winnipeg. Hann var fullra 80
ára. Vigfús var ættaður frá
Klettakoti á Skagaströnd í Snæ-
fellsnessýslu. Hann Iætur eftir
sig konu og eru þrjú börn þeirra
hjóna á lífi: G. K. Stephenson og
G. L. Stephenson plumbers í
Winnipeg og Mrs. Hodgins einn-
ig í Winnipeg.
Jarðarförin fer fram n. k.
föstudag kl. 2.30 e. h. frá útfar-
arstofu A. S. Bardals. Séra B.
B. Jónsson, D.D., jarðsyngur.
* * *
Björn S. Líndal biður Hkr. að
geta þess að hann sé fluttur frá
528 Maryland til 446 Maryland
St. -
* * *
Látinn að heimili sínu í Ár-
borg, Man., þann 30. maí, Eirík-
ur Jónsson landnámstnaður í Ár-
dalsbygð, og fyr landnemi í
grend við Minneota, Minn., fjör-
ugur og lipur maður, nærri fullra
87 ára að aldri. Ættaður úr
Suður-Múlasýslu. Mun hans
nánar getið síðar. S. Ó.
* * *
Dr. A. B. Ingimundson verð-
ur staddur í Riverton þriðjudag-
inn 15 þ. m.
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
LABAN OG DÆTUR
HANS
Eftir Ruben Nilson
Laban bjó með dætrum dýrum,
driftar stúlkum báðum tveim.
— Jakob smali hann spyr hýr
um,
hvor sé föl af þeim.
Laban nam á stöðli stansa,
strjúka skalla og kinn,
þegja og síðan þurlega anza:
“Það veit déskotinn”.
En svo fór sig hann að hugsa um,
— hér var kanski févænlegt —
og þeim pilti á biðilsbuxum
bauð með Ijúfri spekt:
Ef við sig hann semja vildi
um sjö ár vistarbands,
ef til vill hann eignast skyldi
yngri dóttur hans.
Jakob glapinn ástaræði
ærðu Labans flæðarhót,
— réðst þar óðar upp á fæði
og þá fögru snót.
Sjö ár þar til sauða gekk hann,
segir ritning mín,
— en um helgar allar fékk hann
út á launin sín.
Brúðkaups reyndist bollinn
sterkur,
— bruggið hafði Laban gert —
fyltist Jakob, fyltist klerkur,
fyltist mannsbarn hvert.
En er brúðhjón bar að gifta,
— blindaði ölsins ryk —
lét á systrum Laban skifta,
— lagleg vörusvik!
Daginn eftir dró upp hrak-él
deilu, er víma af Jakob seig,
þegar fyrir frúna Rakel
fram úr Lea steig.
En við því var ekki að gera,
eins og Jakob sá.
Tjón sitt vel er bezt að bera
og bæta, ef tök eru á. —
Sjö ár til er sagt hann, ynni,
— sá það leiki, er vill og kann —
Þar til inn að öðru sinni
ektakvon hann vann.
Einn með tveimur frúm á ferð
hann
flaug á lífsins gljá,
— og í sömu svipan gerði han,n
sig að eigin mág.
Magnús Ásgeirsson
—Alþbl. íslenzkaði.
SKOTLAND Á
HREYFINGU
Starfsmenn við Glasgow Ob-
servatory hafa komist að raun
um, að Skotland flytur sig í átt-
ina til írlands um rúm átta fet
á ári.
Thomas R. Tannahill, sem er
einn af starfmönnum stofnunar-
innar, hefir skýrt frá því, að út-
réikningar sýni, að Skotland hafi
flutst í vesturátt um 600 fet á 70
árum.
England hefir ekki tekið þátt
í hreyfingunni og virðist því vera
um tognun að ræða.
Dr. Kirtley Mather, sem er
prófessor í Jarðfræði við Har-
vard háskóla, hefir gert þessar
athuganir að umtalsefni í Cam-
bridge nýlega, og telur þær mjög
áríðandi fyrir jarðfræðina. —
Sagði hann, að svipuð fyrirbrigði
hefði verið til athugunar á
Grænlandi og Norðurlöndum.
“Okkur hefir grunað”, mælti
hann, “að breytingar hafi átt sér
stað, á ýmsum stöðum, á yfir-
borði jarðar, er bendi til þess,
að jarðskorpan sé á hægfara
hreyfingu. Það, sem á ríður, er
að fá nógu nákvæmai' mælingar.
Og í þeim efnum hafa orðið stór-
kostlegar framfarir á síðustu 50
árum.
“Ýmislegt er þó, sem bendir
til þess, að einkennileg tognun
á jarðskorpunni eigi sér stað, og
að'hún dragist svo saman aftur
Eins og staðir þeir, sem eru und
ir rannsókn, flyttist til í vissa
átt, en dragist aftur til baka í
gagnstæða átt, jafnvel samdæg-
urs.”
“Þetta gerir málið alt örðugra
viðfangs. Væri fróðlegt að vita,
hvernig athuganir þessar hafa
verið framkvæmdar. Hvort mið-
að hefir verið við himintunglin.
og hvort athuganir hafi farið
fram aðeins einu sinni eða oft,
og um hve langt skeið.”
“Athuganir stofnunarinnar í
Glasgow geta haft mikla þýð-
ingu. Þær koma mér ekki á ó-
vart, því að þær koma heim við
ýmislegt, sem við erum að upp-
götva núna,” segir prófessorinn.
—Sdbl. Vísis.
HITT OG ÞETTA
Sænskur auðmaður, Axel La-
grelius, hefir gefið landfræði-
deild háskólans í Stokkhólmi 150
þús. kr., sem eiga að verða sér-
stakur sjóður, og á að verja tekj-
um hans til rannsóknarstarfsemi
deildarinnar.
Prof. Hans Ahlmann, sem er
forseti deildarinnar, hefir í
blaðaviðtali sagt að gjöf þessí
væri mjög mikilsverð, því tekj-
um sjóðsins yrði varið til annar-
ar en hinnar fastákveðnu starf-
semi deildarinnar og því yrði
hægt að halda áfram rannsókn-
um, sem annars hefði orðið að
fresta. Á næstunni segir hann,
verður tekjum sjóðsins m. a.
varið til að ganga frá og fullgera
niðurstöður og athuganir sænsk-
íslenzka Vatnaj ökulsleikangurs-
ins og til áframhaldandi rann-
sókna á fslandi, sem verður hald-
ið áfram í sumar af Sigurði Þór-
arinssyni, sem er nemandi próf.
Ahlmann og var með í Vatna-
jökulsferðinni.—N. Dbl.
* * *
Hvar átti eg að kyssa?
Það var einhverju sinni, að
frakkneska skáldið Francois
Rabelais fór í heimsókn til páf-
ans með Bellai kardinála. Þeg-
ar kardinálinn nálgaðist hinn
heilaga föður, leit hann á hann
auðmjúklega, en laut honum því
næst og kysti skó hans. Skáld-
inu leist ekki á blikuna. Svona
undirgefni hafði Rabelais ekki
áður kynst. — Honum fanst
þetta í meira lagi ósmekklegt og
þokaði sér aftur á bak nokkur
skref.
Segir nú ekki af því frekara,
hvað fram hafi farið meðan á
heimsókninni stóð. En þegar
þeir voru komnir út frá pafan-
um, skáldið og kardinálinn,
mælti skáldið:
* — Mér leist ekki á blikuna,
þegar eg sá “yðar herradóm”
kyssa morgunskó páfans. Þér
eruð æðimörgum þrepum ofar í
metorðastiganum en eg, ó-
breyttur maðurinn. Samt urðuð
þér að kyssa skóna. Þegar eg sá
þetta flaug mér í hug: — Hann
verður að kyssa rósótta morg-
unskó! Hvar skyldi mér vera
ætlað að kyssa?—Vísir.
* * *
í London var um daginn haldið
uppboð á gömlum bréfum, sem
Nelson, hinn frægi sjóliðsforingi
Englendinga, hefir skrifað ein-
um vina sinna.
Þar segir m. a. um hina mis-
hepnuðu tilraun Frakka, til þess
að ná St. Jean d’Arc á sitt vald:
Bonaparte fékk skot í annan
fótinn, 85 foringjar og 4000 ó-
breyttir hermenn voru drepnir.
Sigurinn er unninn, og Frakkar
MESSUR og FUNDIR
1 kirkjv. SambandstafnaOar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
SafnaOarnefndin: Fundlr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrsica
ménudagskveld 1 hverjum
ménuði.
KvenfélagiO: Fundir annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæflngar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÍSLENZKA BAKARIIÐ
702 SABGENT AVE., Winnlpeg
Einasta íslenzka bakaríiS í
borginni
Islenzk bakning af allri tegund.
Pantanir utan af landi afgreiddar
fljótt og vel.
Sími 37 652
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMUBNAB EBU 20 MILUB
AUSTUB AF KENOBA, ONT.,
VIÐ ANDBEW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
ekmm í námulandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods í Ken-
ora-umdæmi.
Sýnlshom af handahófi í nám-
unni hafa reynst frá 50c upp í
$40,000 úr tonninu og I Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
í tonninu.
KAUPIÐ NCr—
A $10 HVEBT UNIT
(300—500 hlutir í Unit)
Thor Gold Mlning Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Báðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKTjTLJ BENJAMXNSON
Whittier St., St. Charles, Man.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðimar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
geta búið sig undir dauðann. —
Guði sé lof! Þannig útrýmum við
því illa í heiminum.
Það voru engar smáræðis upp-
hæðir, sem fengust fyrir bréfin.
* * *
Finnland er eina landið, sem
hefir borgað Bandríkjunum
stríðsskuldir sínar.
Um daginn kom það fyrir í
Brooklyn, að atvinnuleysingi, að
nafni Karl Kajander, var hand-
tekinn. Þegar það kom upp úr
kafinu, að hann væri Finni, var
nafn hans strax skráð á lista
yfir menn, sem áttu að hafa at-
vinnuleysisstyrk.
“Við látum engan Finna svelta
hér í hel. Finnland er eina land-
ið, sem hefir staðið í skilum við
okkur” sagði dómarinn.
* * *
“Arbeiderbladet” norska seg-
ir að prófessorinn í skandinav-
iskum málum og bókmentum við
háskólann í Norður-Dakota,
Richard Beck, hafi lagt til f. h.
skandinavisku deildar háskól-
ans, að Johann Falkberget fengi
bókmentaverðlaun Nobebls fyrir
þetta ár. — Heldur prófessorinn
því fram, að hin sögulega skáld-
saga Falkenbergets “Christianus
Sextus”, sem lýsir lífi námu-
manna í Dovre í Noregi, geri
hann fullkomlega verðugan verð-
launanna. Saga þessi kom út
1927.—N. Dbl.
* * *
Frægasta skáld Dana, Johan-
nes V. Jensen, hefir unnið að því
að gera nýja þýðingu á Hamlet
eftir Shakespeare á dönsku og
að ýmsu leyti vikið frá frumrit-
inu. Þessi nýi Hamlet hefir nú
verið sýndur á konunglega leik-
húsinu og hlotið hina verstu
dóma. Þýðing og breytingar
Jensens' eru yfirleitt taldar til
hins verra og leikendurnir held-
ur ekki taldir hlutverkum sínum
vaxnir. Hefir Joh. V. Jensen
enga frægð hlotið af því að reyna
að yrkja Shakespeare upp.