Heimskringla - 21.07.1937, Side 1
THE PAR-T-DRINK
Pfflf
Good Anytlme
In the 2-Glass Bottle 0 ®
AVENUE
Dyers &. Cleaners
Fatahreinsun vor er þess
verð að reyna hana.
Hvergi betri.
SÍMI 33 422
658 St. Matthews
Ll. AftGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN. 21. JÚLÍ 1937
NÚMER 42.
FJALLKONA Á fSLENDINGADEGINUM
Á HNAUSUM 31. JÚLí
Frú Marja Björnsson, kona Dr. S. E. Björnssonar í
Árborg, Man., verður Fjallkona á íslendingadeginum á
Iðavelli á Hnausum.
HELZTU FRETTIR
Marconi dáinn
Guglielmo Marconi, uppgötv-
ari loftskeyta sendinga, dó s. 1.
mánudag af hjartaslagi að heim-
ili sínu í Róm.
Hann var 63 ára. Dauða hans
bar snögt að. Hann vár að vísu
lasinn síðasta daginn sem hann
lifði, en hann vann eigi síður á
starfstofu sinni.
Marconi var 21 árs gamall
þegar hann kvaðst hafa fundið
ráð til að senda skeyti til fjar-
liggjandi staða; það var 1895.
Með einhverjum áhöldum sem
hann hafði sjálfur búið til og
‘'eytt dýrmætum tíma í frá öðr-
um þarfari verkum”, eins og fað-
ir hans sagði, hepnaðist honum
að senda skeyti eina mílu burtu
frá húsi föður síns.
En enda þótt þetta tækist,
litu menn á þetta sem nokkurs
konar hundakúnst, sem ekki
væri líklegt að neitt meira yrði
úr.
En áður árinu lauk, tókst Mar-
coni að senda skeyti 12 mílur.
Og árið 1901 var fyrsta skeyt-
ið sent frá Cornwall á Englandi
tii St. John á Nýfundnalandi,
þvert yfir Atlanzhaf.
Út úr því hefst hin merkilega
saga þráðlausra skeyta.
Marconi var fæddur 25. apríl
1874. Þar hlaut hann háskóla-
mentun. Faðir hans var ítalsk-
ur, en móðir írsk. Hét hún -Annie
Jameson. Hún fór í forboði
foreldra sinna til ítalíu og giftist
þar Giuseppe Marconi, banka-
stjóra. Var foreldrunum hálf-
gerð raun að bauki sonar síns á
hanabjálkaloftinu í húsinu. —
Faðir hans vildi að hann lærði
hljómleika, en móðir hans rak
hann í skóla að læra eðlisfræði.
En kuklið á hanabjálkaloftinu
mínkaði ekki við það.
Uppgötvarinn frægi var tví-
giftur. Fyrri kona hans skyldi
við hann. Hún hét Beatrice O’
Brian og var af háum enskum
ættum. Þau skildu. Síðar gift-
ist Marconi Countess Christiana
Bezze-Scale. Lifir hún mann
sinn og ein dóttir þeirra og son-
ur af fyrra hjónabandi.
Marconi hefir átt lystiskip og
verið mikið á ferðalagi á því,
hefir búið þar og starfað að upp-
götvun sinni tímum saman.
Turgeon-nefndin komin
(il Englands
Turgeon-nefndin svokallaða,
er hér hefir verið að rannsaka
hveitisöluna frá því í vetur, er
nú komin til London. Á hún að
vera þar í 10 daga að spyrja þá
sem fróðir eru um kornsölu,
hvernig henni sé háttað þar. —
Síðan á að halda til Liverpool,
til Skotlands og svo til megin-
lands Evrópu. í sept. mánuði
kemur nefndin til baka úr þess-
um rannsóknar — eða skemtitúr.
Fjölkvæni
George Roediger heitir maður,
sem nýlega var handtekinn í
Winnipeg. Orsökin var fjöl-
kvæni. Hann hefir gifst 9 kon-
um alls. Varð hin síðasta til
þess að koma upp um hann. Hún
var ekkja frá McTavish, Man..
og hét Julía Regitnig. Roediger
giftist henni í ágúst 1936 og
gekk þá undir nafninu George
Brown”. Tveim Vikum eftir
giftinguna, hvarf eiginmagurinn
og náði þó áður í $900, sem
fékst fyrir uppskeruna það ár.
Af því leiddi, að konan tapaði
jörð sinni og þykist hafa orðið
fyrir $3,000 tapi vegna þjófnað-
arins á þessum $900. Hafði
Roediger leikið þetta sama víst
8 sinnum í Toronto og hans
hefir verið leitað um alt Canada
í heilt ár. En hann skildi hvergi
eftir myndir af sér og skifti sí-
felt um nöfn. Loks náðist hann
nýlega vestur í lAlberta.
óttast er að hann sé valdur að
dauða eða hvarfi einhverra fyrri
kona sinna. Giftingarnar er
ætlað að hann hafi áformað til
f jár.
Síðasta kona hans, sem er á
bæjarstyrk í Winnipeg, frétti að
Eoediger ætti fé í bönkum í
Toronto. Hefir hún fengið lög-
fræðing til að reyna að gang-
ast eftir sínum hlut af því.
Roediger var dæmdur til 9 ára
fangavistar og er nú kominn til
Stony Mountain.
Earhart og Noonan talin af
í byrjun þessarar viku virtust
aliar vonir úti um það, að flug-
konan heimsfræga Miss Amelia
Earhart og Frederick J. Noonan>
fylgdarmaður hennar, fyndust
á lífi. Fjögur herskip frá Banda-
ríkjunum, og 63 flugvélar, með
um 1500 manns alls, hefir leitað
þeirra í 16 daga, en leitinni var
loks hætt í gær við svo búið; um
250,000 fermílur höfðu verið
kannaðar á þeim stöðum, sem
helzt var búist við að finna þau,
en árangurslaust.
Miss Earhart var á ferð um-
hverfis jörðina í flugvél, sér til
skemtunar, að hún sagði, en
jafnframt eflaust til að leita
heppilegra viðskiftaflugleiða. —
Hún lagði af stað frá Florida í
byrjun júní-mánaðar. Flaug
þaðan til Suður-Ameríku, þá
austur yfir Atanltshaf, yfir
þvera Afríku, Asíu sunnanverða
og til Ástralíu. Frá Nýju Guin-
ea lagði hún svo á stað yfir
Kyrrahafið til Los Angeles. Um
einn þriðja af þeirri leið, til How
lands-eyju, sem var 2570 mílur
frá Nýju Guinea, bjóst hún við
að taka í einum áfanga. En það
hefir ekki hepnast og óvíst hve
mikið af þeirri leið hefir verið
farin. 2. júlí ætluðu menn að
skeyti hafi frá þeim borist um
sð þau hefðu orðið að nauðlenda,
og eftir tíma að telja hefði það
átt að vera í nánd við Howlands-
eyju eða Foenix-eyjar, en þrátt
fyrir þó strax væri brugðist við,
hefir leitin ekki árangur borið.
Ætla leitarmenn að flugvélin
hafi farist.
Howlands-eyja er um 5,000
mílur vestur í Kyrrahafi frá
Los Angeles. Svo skamt átti
Miss Earhart eftir af ferð sinni
umhverfis jörðina.
Miss Earhart varð fyrsta kon-
an til að fljúga ein austur yfir
Atlantshaf. Það var 21. maí
1932, fimm árum síðar en Lind-
bergh fór sína ferð. En hún fór
ferðina á 14 klst. 56 mín., sem
var þá nýtt met.
Hún flaug og ein yfir þvert
Kyrrahafið fyrst allra 1935, frá
Hawai til Californíu.
Hún var sæmd ótal sinnum
fyrir flugafrek sín, svo sem af
Hoover forseta, Jarðfræðisfélag- ]
inu í Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Rúmeníu, Belgíu o. s. frv.
Miss Earhart var 39 ára. Hún
var gift George Palmer Putnam,
bókaútgefenda í New York, en
hélt sínu eigin nafni, sem flug-
kona.
Fylgdarmaður Miss Earhart,
Mr. Noonan, var sagður þaul-
æfður flugmaður. Vann hann
meðal annars hjá Pan-American
fiugfélaginu.
FJALLKONAN Á ÍSLENDINGADEGINUM
Á GIMLI 2. ÁGÚST
F R ÉTTAMOLAR
Mackenzie King, forsætisráð-
herra Canada, hélt ræðu í útvarp
s. 1. mánudagskvöld um för sína
á krýningarhátíðina.og tveggja
mánaða dvöl í Evrópu. Ræðan
var fagur draumur um frið' í
Evrópu og velmegum Canada
þjóðar, en sem því miður á sér
hvorugt stað í veruleika.
* * *
Japan hrúgar her inn í Kína
og er ekki annað sjáanlegt en að
þar sé hafið stríð; um borgina
Peiping er búist við á hverri
stundu að bardagi byrji.
* * *
John Bracken, forsætisráð-
herra Manitoba, gaf fréttaritur-
um í Ottawa í gær til kynna, að
fylkið ætlaði að hækka tillagið
tii atvinnulausra í bráðina. Hefir
sambandsstjórnin veitt fylkinu
lán til þess, en þegar þing kem-
MISS CANADA
á fslendingadeginum á Hnausum 31. júlí
Ungfrú Grace Ólafsson frá Riverton, Man., dóttir Odds
Ólafssonar fylkisþingmanns, verður Miss Canada, á ís-
lendingaðdeginum á Iðavelli 31. júlí; Miss Canada er
táknmynd þessa lands svipað og Fjallkonan er táknmynd
íslands.
Mrs. Lillian Murdoch (f. Lillian Grímsdóttir Eyman),
Selkirk, Man., verður Fjallkona á'íslendingadeginum á
Gimli 2. ágúst.
ur næst saman í fylkinu, kvað
eiga að nota þessa lántöku sem
afsökun fyrir að leggja nýja
skatta á fylkisbúa. Winnipeg
borg greiðir því 20% af styrkn-
um fyrst um sinn og allar lækn-
ingar styrkþega.
* * *
í réttarsalnum í Khaberovsk í
Síberíu, voru af Sovét-yfirvöld-
unum 24 Rússar dæmdir til líf-
láts í gær fyrir landráð — upp-
lýsingar gefnar Japönum, Trot-
sky og þvílíkum óvinum Rúss-
lands.
* * *
Um madrid á Spáni er búist
við að bráðum hefjist úrslita or-
usta byltingarinnar. Stjórnin
kvað vel undir hana búinn, en
um 30,000 ítalskir hermenn
kváðu vera á leiðinni þangað til
þess að berjast með Franco upp-
reistarforingja.
Kosningaúrslitin á
Islandi
(Hér fara á eftir úrslit kosn-
ir.ganna á íslandi; tala þing-
manna hvers flokks að uppbót-
ar-þingsætum meðtöldum og tala
atkvæða hvers flokks er sýnd.
Það eru aðeins nöfn þeirra sem
uppbótarþingsætin hljóta, sem
ekki er komin nein frétt um. —
Fregnin er eftir Morgunblaðinu
í Reykjavík dagsettu 25. júní
1937). '
Þá er lokið talning atkvæða í
öllum kjördæmum á landinu, og
verða atkvæða og þingmanna-
tala flokkanna sem næst því
þessi:
Sjálfstæðisflokkur 24,035 atkv.
12 þingmenn
Framsóknarflokkur 14,500 atkv.
19 þingmenn
Alþýðuflokkur 11,030 atkv.
5 þingmenn
Kommúnistaflokkur 4,914 atkv.
1 þingmann
Bændaflokkur 3,560 atkv.
1 þingmann
Úrslitin í þeim tveim kjör-
dæmum, sem talið var í í gær
urðu þessi:
Ey jaf jarðarsýsla
Þar voru kosnir Bernharð
Stefánsson (F) með ca. 1654 at-
kvæði og Einar Árnason (F) með
ca. 1593 atk\j.; Garðar Þor-
steinson (S) hlaut ca. 1359 atkv.,
Stefán Stefánsson (B) ca. 1292,
Erlendur Þorsteinsson (A) 629,
Barði Guðmundsson (A) 558,
Gunnar Jóhannsson (K) 283,
Þóroddur Guðmundsson (K) 270
atkvæði. Þess skal getið að
þessar atkvæðatölur breytast
eitthvað örlítið, því nokkur vafa-
atkvæði voru eftir.
Suður-Þingeyjarsýsla
Þar var kosinn Jónas Jónsson
(F) með 1054 atkv.; Kári Sigur-
Jónsson (S) hlaut 288, Arnór
Sigurjónsson (A) 235, Aðalbj.
Pétursson (K) 213 og Árni
Jakobsson (B) 87 atkvæði.
Uppbótar þingsætin
Nú koma 11 uppbótarþingsæti
sem skiftast milli flokkanna: —
Sjálfstæðisflokkurinn fær 5 upp-
bótarsæti, Alþýðuflokkurinn 3,
Kommúnistaflokkurinn 2 og
Bændaflokkurinn eitt.
Verður því hið nýkosna þing
þannig skipað, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir 17 þingmenn,
Bændaflokkurinn 2, Framsókn-
arflokkurinn 19, Alþýðuflokkur-
inn 8 og Kommúnistaflokkur-
inn 3.
Miðvikudaginn, 14. júlí voru
þau Oscar Gísli Gíslason frá Hay
land, Man. og Ragnheiður
Christine Eyford frá Vogar,
Man., gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni að
493 Lipton St. Nánustu ættingj-
ar brúðhjónanna sátu þar með
samsæti að vígslunni lokinni. —
Heimili brúðhjónanna verður að
Hayland.
* * *
Guðm. verzlunarstj. Einarsson
frá Árborg, Man.i var staddur í
bænum s. 1. mánudag.