Heimskringla - 21.07.1937, Síða 3
WINNIPEG, 21. JÚLÍ 1937
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
litið til Breta sem forustumanna
í þessum málum, en sú stjóm
sem situr nú við völd á Bret-
landi virðist algerlega mótfallin
Þjóðabandalaginu. Utanríkisráð-
herran hefir sagt opinberlega að
Bretar muni berjast fyrst og
fremst til að vernda hagsmuni
sína og hagsmuni nýlenda sinna
en ekki til að vernda öryggi
allra þjóða gegnum Þjóðabanda-
lagið. Þegar alríkisstefnan var
haldin í London fyrir stuttu þá
óttuðust margir Þjóðbandalags
vinir að bandalaginu yrði sálgað
fyrir fult og alt. Hinar hvössu
ritstjórnargreinar sem komu út
í “Free Press” þá dagana bera
vitni um þetta. Sá eini af for-
sætisráðherrum nýlendanna sem
einbeittur fylgdi Þjóðabandalag-
inu og “Collective Security” var
forsætisráðherra New Zealands.
Hvernig höfum við — hvernig
hefir Canada-stjórn snúist í
þessu máli? Þetta erindi mitt
fiallar ekki um flokkapólitík.
Eg ætla ekki að deila á stjórn-
ina. Eg ætla aðeins að segja
frá því sem gerst hefir og það
myndi eg gera hvaða flokkur
sem færi með völdin. Á stefnu-
skrá þessa flokks sem nú situr
við völd í Canada — á stefnuskrá
sem hann birti fyrir síðustu
kosningar, fjallaði einn liðurinn
um utanríkismál og hljóðaði
þannig: “Við munum reyna að
efla Þjóðabandalagið í starfi
þess”. Hvernig fórst þeim það ?
Þegar Þjóðabandalagið fór að
beita viðskiftabanni við ítalíu til
þess að reyna stoðva árás henn-
ar á Abessiníu, þá gerði cana-
dískur fulltrúi í Geneva þá til-
lögu að olíubanni skyldi beitt,
því það væri áhrifamest. Can-
ada-stjórn sendir strax skeyti
að hún standi ekki á bak við
þessa uppástungu. Mussolini
klappaði Canada lof í lófa! For-
sætisráðherra Canada heldur
ræðu í Geneva í haust og til-
kynnir veröldinni að Canada
muni ekki taka þátt í að beita
viðskiftabanni gegn nokkri þjóð
né muni Canada gefa bandalag-
inu nokkurt loforð um hernaðar-
hjálp til að tryggja sameiginlegt
öryggi þjóðanna. Þannig velti
forsætisráðherran allri friðará-
birgð af herðum Canada þjóðar-
innar. En þegar að Canada slapp
við skyldur sínar þá sluppu hin-
ar þjóðirnar á eftir. Canada reið
á vaðið! Nokkrum mánuðum
seinna veitir Canada-þingið
margar miljónir til vígbúnaðar.
Til hvers er sá vígbúnaður ætl-
aður? Ekki er hann til að
hjálpa Þjóðabandalaginu við
löggæsluna. Ekki er hann til
varnar Canada, því eins og Mr.
Thorson og margir fleiri hafa
sýnt fram á, þá er Canada ekki
í neinni hættu fyrir árás frá öðr-
um þjóðúm. Engin veit til
hvers þessi vígbúnaður er ætlað-
ur. Engin veit hvaða afstöðu
Canada tekur ef stríð skellur á.
Forsætisráðherran segir: Þingið
mun ákveða hvað Canada gerir
ef til þess kemur að stríð brýst
út.
Þetta er þá sú stefna sem við
— sem fulltrúar okkar hafa tek-
ið f þessum málum. Er hún rétt ?
Er sú afstaða sem forsætisráð-
herrann hefir tekið gagnvart
Þjóðabandalaginu í samræmi við
friðarstarfsemi okkar? Ef við
viðurkennum þörfina á heims-
löggæslu til þess að tryggja frið-
in í heiminum og viðurkennum
að ábyrgð hvíli á okkur í þeim
efnum, var þá ekki skylda Can-
ada að vinna að því að efla
Þjóðabandalagið. Er þessi víg-
búnaður kanske til að sanna
heiminum að við viljum frið og
er það ráðlegt að bíða þangað til
stríð brýst út og ákveða þá hvað
við gerum? Er núna ekki rétti
tíminn til að ákveða sig í því
efni meðan fólk getur íhugað
málið skynsamlega? Allir vita
þegar stríð er skollið á, verður
æsingin svo mikil að skynsemi
kemur ekki til greina. Áróðurs-
tækin — blöðin og útvarpið
stjórna þá þjóðinni. — Utanrík-
ispólitík stjórnarinnar er það
mál sem efst er á dagskrá í Can- j
ada í dag, eins og eðlilegt er, því j
á stefnu stjórnarinnar í þeim
málum veltur líf og heill þús-
unda manna og kvenna. Við
skulum ekki gleyma því að Can- ]
ada fórnaði 60 þúsund mannslíf-,
um í síðasta stríði auk alls ann-
ars. Er það því ekki nauðsyn-
legt og jafnvel skylda okkar sem
atkvæðisbærra borgara þessa
lr.nds að afla okkur allra upplýs-
inga um þessi mál og gagnrýna
gerðir stjórnarinnar. Og er það
ekki skylda okkar sem friðarvina
tið vinna að því að stjórnin taki
þá stefnu sem er í samræmi við
friðarstarfsemi okkar. Jú, þjóð-
in þarf að vera vakandi fyrir því
sem stjórnin er að gera. Ef að
þingmennirnir og stjórnin væri
fullvissir um það að fólkið hefði
vakandi auga á gerðum þeirra á
þingi, þá myndu þeir ekki leyfa
sér að ganga á bak kosninga lof-
orða sinna eins og þeir gera svo
oft. Það þarf að vera nánara
samband milli þingmannsins og
kjósenda hans. Það þarf að láta
þá góðu menn skilja það að þeir
sitja á þingi fyrir tilstilli fólks-
ins og til þess að framkvæma
vilja fólksins en ekki til að ger-
ast leiksoppar auðvalds og stríðs
sjúkrar hermálaklíku.
Hvað getum við sem einstakl-
ingar gert? Við getum fyrst og
fremst aflað okkur þekkingar
um friðarmál gegnum blöð, bæk-
ur og útvarp. Við getum mynd-
að fræðsluhringi (study groups)
þar sem fólk kæmi saman og
ræddi þessi mál. Þannig mund-
um við mynda okkur skoðanir
sem hefðu þyngd af því þær
væru bygðar á staðreyndum. —
Okkar land er lýðræðisland. Við
ráðum hvernig við beitum at-
kvæðum okkar og við getum
haft áhrif á það hvernig aðrir
beita atkvæðum sínum með þv’
að sannfæra þá um þörfina á því
að kjósa þingmann sem er ein-
lægur friðarvinur og sem mun
vinna einbeittur að friðarmálum.
Við getum reynt að hafa nán-
ara samband við þingmann okk-
ar —• talað við hann, skrifað
honum, skrifað forsætisráðherr-
anum. í þeim bréfum gætum
við gert athugasemdir við gerð-
ir þeirra í sambandi við friðar-
mál. — Þið haldið kannske að
þeir tækju slík bréf lítið til
greina. En ef þau væru nógu
mörg er eins víst að þau hefðu
nokkur áhrif. Þeir kannske tæki
þau sem mælikvarða á lýðhylli
sína eins og film-störnurnar
gera. Víst er um það að þing-
menn hika við að brjóta á móti
einhuga vilja fólksins því frá
fólkinu koma atkvæðin.
Já, fólkið hefir vald, meira
vald en það gerir sér grein fyrir.
Sterkt almennings álit er það
afl sem ríkisstjónir taka tillit til.
Ekki mundi ríkisstjónir geta
farið í stríð ef þær hefðu ekki
fólkið með sér. Það yrðu engar
styrjaldir ef fólkið léti ekki
blekkja sig. En fólkið lætur
blekkja sig. Þessvegna tel eg
áróðurstarfsemina orsök til
styrjalda —áróðurstarfsemi sem
vígbýr hugsun fólksins og svæf-
ir siðferðistilfinningar þess svo
að hægt er að senda það út á víg-
völlin til að fremja glæpi. Ein
mitt á þessu sviði er mikið verk-
efni fyrir þá sem vilja starfa að
friðarmálum. Það þarf að
brynja huga fólksins gegn
stríðsblekkingunum. Fólkið þarf
að skilja að glæpir svo sem morð
og rán eru glæpir þótt þeir séu
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BlrgðLr: Henry Ave. Eaat
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
framdir samkvæmt skipun ríkis-
þegns að athuga vandlega þær
ástæður sem stjórnin færir fyrir
stjórna. Það er skylda hvers
því að hún leggur út í stríð —
hvert þær ástæður séu réttmæt-
ar, því stjórninni getur skeikað.
Hver er stjórnin? Stjórnin er
þingflokkur sem komist hefir til
valda.
Eru flokkarnir altaf réttsýnir ?
Samanstanda þeir ekki af mönn-
um sem eru breyskir eins og
við? Jú, þeim getur skjátlas+
Það ber því hverjum manni að
ráðfæra sig við sína eigin sam
vizku áður en hann lætur leið^
sig út í það að drepa meðbræður
sína. Það þarf líka að svifta
burt þeim dýrðarljóma sem
reynt er að varpa yfir stríðs-
glæpina. Hermennirnir eru
klæddir í fallega einkennisbún-
inga, þeim er stilt upp í glæsi-
legar fylkingar. Þeir eru látnir
marséra eftir hrífandi hljóðfæra
og bumbuslætti. Unglingarnir
horfa á þetta hugfangnir. Ungl-
ingarnir hafa ekki innsýn til
þess að sjá hvað liggur á bak við
þessar gyllingar. Búningarnir
minna þá ekki á blóðdrifna lík-
ami, hljóðfæraslátturinn minnir
þá ekki á dauðastunur særðra
manna og angistarvein mæðra
og barna. Það þarf líka að vinna
gegn hinu falska föðurlandsást-
arglamri. Stríð eru gerð dýrð-
leg í augum fólksins, í skólabók-
um og í blöðum, sérstaklega þau
stríð þar sem þeirra þjóð hefir
borið sigur úr býtum. Her-
mennirnir eru dáðir fyrir hug-
rekki, herforingjarnir eru gerðir
að dýrðlingum, líkneskjum af
þeim er stilt upp um alt landið.
Hrifningu fyrir öllu þessu er
sungið inn í þjóðirnar í kvæðum
og ættjarðarsöngum. Það er
ekki verið að minnast á það að
hér hafi fjölda glæpir verið
framdir — nei, þetta er alt rétt-
lætt með föðurlands ástar skýl-
unni. Það þarf að svifta þessari
fölsku skýlu á burt! Sú sanna
föðurlandsást felst í því að
gleðjast yfir staðfestu þjóðar
okkar við réttlætið og gleðjast
yfir því hvað land okkar og
þjóð hefir lagt fram til menn-
ingar og velferðar mannkyninu.
— Það er sú sanna föðurlands-
ást.
Sýnum föðurlandsást okkar
með því að fá áhuga fyrir frið-
armálum; sýnum föðurlandsást
okkar með því að útbreiða þekk-
ingu um friðarmál og sýnum
föðurlandsást okkar með því að
vinna að því að land okkar taki
hina réttu stefnu í friðarmálum
svo það megi verða fyrirmynd
annara landa. Tökum sem okk-
ar fyrirmynd friðarboðara
mannkynsins — Jesús frá Naz-
aret og lifum virkilega í anda
hans með því að leggja fram
alla okkar krafta til að reyna að
vekja volduga friðaröldu sem
hefði þau áhrif að tryggja frið
og kærleika meðal mannanna.
50 ára minni
MAGNÚSAR HINRIKSSONAR
ög KRISTÍNAR KONU HANS
Eg virði þann manndóm, og met hann til auðs—
Þeim mönnum er afla síns dagslega brauðs:
Með heilbrigðu viti, í hrekklausri trú—
Á hamingju sína, á vel ræktað bú,
Sem fyrirmynd gerist að farsælli bygð
Sem framleiðir vilja og búmanna dygð,
Sem skilur að lífið er landssjóður—mest—
Sem'leggur fram stofnfé, í það sem er bezt:
Að samtíðin megi með sækjandans þor
Til sjálfbjarga þræða hin nýstignu spor.
Jak J. Norman
I
I
“SUCCESS
STAFF
99
J. <i. <irant, C’.A.
Accountancy Dept
Kita <»oo(l, B.A., P.C.T.
Shorthand Dept.
W. S. Kowland, B.S.A.
Bookkeeping Dept.
Loa KyrikHon
Typewritingr Dept.
A. Gorling:
Penmanship Dept.
I.ouÍHe MeI>onald, P.C.T.
Shorthand Dept.
Nancy Whyte, B.A.
Shorthand Dept.
I.orctto Klancn, B.A.
Secretarial Dept.
Irma MaJcom, B.A.
Employment and Personal
Development Dept.
Helen McLeod, M.A.
English Dept.
Announcing . . .
SUMfVSER
D. F. FERGUSON,
President and Principal.
for
STUDENTS OF
HIGHER EDUCATION
Many who attend “The Success" are University
graduates, teachers, and Grade XII students. Our
minimum standard of admittance is Grade XI (sup-
plements allowed). This is the highest admittance
standard in Winnipeg.
FALL TERM
opens
MONDAY, AUG. 23
You may enroll at any time, before or after August
23rd. Our system of individual and class instruction
permits students to enter at any time. We do not
close for summer vacation.
COURSES ARE OFFERED TO THE
FOLLOWINC GROUPS:
1
Those who wish to prepare for early employment in
business offices.
2
Those who intend to go to University in the Fall, and
who recognize the value of business training there.
3
Graduates of high school commercial courses who
wish to secure advanced training and employment
preference. -
4
University graduates and teachers who wish to
qualify quickly for business employment.
WE EMPLOY ONLY EXPERT
INSTRUCTORS
We believe in providing superior service. That is the
reason we have exercised the greatest care in select-
ing our teachers—teachers of excellent scholarship
and long, successful experience—teachers with abun-
dant tact, sympathy and kindness — teachers whose
example is better than precept. The careful personal
supervision of our principal and the efficient guid-
ance of our expert instructors háve given our school
a place of pre-eminence among Canadian Commercial
Colleges.
EMPLOYMENT SERVICE
Because of our higher educational admittance re-
quirements, our broader courses, and our advanced
standards, employers definitely express their prefer-
ence for “Sqccess” graduates. At the rate that our
Employment Department is now locating positions,
hundreds of “Success” graduates will be accepted into
offices during 1937; in 1938 the demand for all
classes of “Success-trained” young men and women
will be even greater.
START EARLY
Start earning a salary three months sooner by be-
ginning a business course in Summer School rather
than waiting until Fall.
Complete your course and be ready for a position
when opportunities are greatest and competition least
aetive.
OUR MAXIMUM ENROLLMENT
QUOTA WILL BE REACHED
EARLY
Our maximum enrollment quota of 550 Day School
students was reached early last term. The demand for
“Success” training will be even greater next term.
We suggest that you arrange for your enrqllment
well in advance and that you ’phone or write now
for our 36-page prospectus of information on Business
Education. We also invite you to call at our office
for a personal interview.
BUSINESS COLLEGE
Portage Avenue at Edmonton Street
WINNIPEG, MAN.
PHONE 25 843
The College of Higher
Standards
“SUCCESS”
STAFF
(1. II. I.aiiKhton,
Mail Course Supervisor
Eva Hood, P.C.T.
Shorthand Dept.
J. C. IVay
iTield Service Representativ’e
Mary Rae
Shorthand Dept.
I*. Faursuhou
Bookkeeping Dept.
Mahel Anderson,
B.A., P.C.T.
Shorthand Dept.
Bianehe Molntyre, M.A.
English Dept.
Florence Kellett. B.A.
Comptemeter and
Dictaphone Dept.
Sylvia 1‘rice, B.A.
|Typewriling Dept.
Valhorg Neilaen, B.A.
Shorthand Dept.