Heimskringla - 04.08.1937, Page 1
THE PAR-T-DRINK
Good Anytime
In the 2-Glass Bottle ^ ®
AVENUE
Dyers & Cleaners
Fatahreinsun vor er þess
verð að reyna hana.
Hvergi betri.
SÍMI 33 422
658 St. Matthews
Ll. ÁRGANGUR
WINNIPBG, MIÐVIKUDAGINN, 4. ÁGÚST 1937
NÚMER 44.
Ávarp Fjallkonunnar
á fslendingadeginum á Hnausum
31. júlí 1937.
Stórskáldið Matthías Jochumsson sem orti þjóðsönginn okkar
fræga “Ó guð vors lands”, og sem nú hefir verið sunginn, mælti
eitt sinn til Vestur-fslendinga í einu sínu fegursta og kröftugasta
kvæði á þessa leið:
“Særi eg yður við sól og báru
Særi yður við líf og æru
Yðar tungu, (orð þó yngist)
Aldrei gleyma í Vesturheimi.
Munið að skrifa meginstöfum
Mannavit og stórhug sannan
Andans sigur er æfi stundar
Eilífa lífið. Farið heilir!”
Vil eg nú við þetta tækifæri gera þetta erindi að einkunnarorð-
ijm mínum er eg í nafni okkar ástkæni ættjarðar ávarpa ykkúr á
þessum minningaríka þjóðminningardegi Vestur-fslendinga.
Hjartkæra barn mitt vestan Atlants-ála
Ættjörðin sjálf þér fagnar dýpst og mest.
f hugarlundi minningarnar mála
Þá morgunstund sem fegurst var og best.
Á liðnum öldum máttur móður þinnar
Á morgni landnáms hafði gróður fest
Landssjóður dýrstur þróttur þjóðarinnar
í þúsund ára stríði sigur vann
Trumenska hennar gætti glóðarinnar
Á gæfuleið hún sína köllun fann.
En áður hafði eg ort mitt besta kvæði
Er eldur harma í sálu minni brann.
Þó jökla mína ei sumarsólin bræði
Sveitirnar finna hjá þeim örugt skjól
Og lífsins geta notið þar í næði
Við náttúrunnar fagra höfuðból
Þar hrærast dýpstu strengir landsins laga
Og ljóssins álfar búa í hverjum hól
Já, þar var börnum sögð hin fyrsta saga
Á sveitarbæ við húmsins þagnareld
f fögrum lundi leikur harpa Braga
Og ljóð og hetjukvæði í stuðla feld
Og þjóðin fann sinn eigin mátt og megin
Og manndóm þroskast við hvert sagna kveld.
Minn sagna auður verður ekki veginn
Á vanans met sem dýrsti jarðarmálmur
Því rót hans er <)g æðaslög hans eigin
Og andi hans minn skjöldur, sverð og hjálmur
Sem lífsins tré skal ljóðs og sagna gróður
Um löndin breiða sínar fögru álmur.
Sú erfð er þín ef metur góða móður
Og málið sem hún kendi þér til forna
Megi það verða lífs þíns æðsti óður '
í útlengðinni. “Þá mun aftur morgna.”
Vínland hið góða, vonalandið nýja
Verðmæti þinna linda ei mun þorna
Gef mínum börnum, er í faðm júnn flýja
Þann fögnuð sem er mestur héi* á jörðu
Vizkunnar mátt við móðurskaut þitt hlýja
Mennina frjálsa, sterka og sanna gjörðu
í framtíð verði áhrif íslenzkunnar
Með orði treyst af vörum Fjallkonunnar.
S. E. Björnsson
ÁVARP FORSETA
hr. Sveins Thorvaldsonar á
íslendingadeginum að
Hnausum, 31. júlí 1937
Háttvirta samkoma:
f síðastliðin fimtán ár hafið þið
verið boðin hingað til þessa ár-
lega hátíðarhalds vor íslend-
inga á þessum slóðum. Á þess-
um degi varpið þið frá ykkur
hinu daglega striti og annríki og
komið hér saman til þess að end-
urnæra og lífga þær taugar og
þær rætur, sem lifa inst í með-
vitund ykkar og tengja ykkur
við fortíðina, söguna, þjóðernið
og íslenzka tungu. Þér komið
hér saman til að helga þessa
stund öllu því ágætasta, sem
fortíð vor og samtíð á til, og
minnast hinna ágætu manna
sem annaðhvort með listum eða
lærdómi og hetjuskap héldu uppi
fána menningar vorrar og þjóð-
ernis um þúsund ár og gerðu
þjóðar-guðinn frægan að fornu
og nýju. Þið komið hingað til
að endurnýja ykkar innri mann
með því að bergja af þeirri
heilnæmu lind minninganna
sem er ykkar eigin eign, og hef-
ir nært og vökvað ræturnar að
öllu ykkar andlega og líkamlega
lífi.
Þið kannist öll við söguna af
álfadrotningunni sem varð
bóndakona í Mannheimum en
einu sinni um.jólin ár hvert
hvarf hún til rrkis síns og varð
drotning um einn dag. Við hin
daglegu störf heimilisins var
hún fyrir sjónum manna eins og
hver önnur alþýðukona, en með
sjálfri sér vissi hún að hún var
drotning og mátti sitja í töfra-
fagurri höll yfir glæsilegri hirð
einn dag á ári hverju og vera
sjálfri sér lík.
Vér förum eins að. Vér ætl-
umst til og trúum því, að þessi
hátíðisdagur vor flytji hvern ís-
lending, sem hér er staddur til
þess ríkis, sem hann er borinn til
og sýni honum að einhverju leyti
hinn ágæta og dýrmæta arf þjóð-
ernis hans, og minni hann á hið
bezta sem í sjálfum honum býr
og hvetji hann til að vera sjálf-
um sér trúr. Hvetji hann til að
iðka og æfa þann manndóm og
þann drengskap, sem fjallkonan
út í Atlantshafinu glæddi og ól
upp í feðrum hans og mæðrum á
liðinni tíð, og sem hún ætlast til,
og þráir og vonar, að fylgi niðj-
um þeirra hvar í heimi sem þeir
berjast hinni góðu baráttu
skyldunnar, undir merkjum
þeirrar meðvtiundar að þau séu
hennar synir og dætur.
Þessi hátíðisdagur er einnig
reiknings-skila-dagur, þar sem
hvert eitt yðar gerir í huganum
grein og skil á því hvað hann
eða hún, hafi unnið í þarfir ís-
lenzks þjóðernis, svo það mætti
aukast að ágæti og sæmd þetta
liðna ár. Hvað hafið þið unnið
á þessu tímabili til þess að á-
vaxta það pund sem íslenzkt
þjóðerni veitti ykkur að vöggu-
gjöf? Vöggugjöf, sem þið get-
ið verið stolt af og gefur yður
rétt til að bera höfuðin hátt? —
Hafið þér hugsað eftir því, að
hinn þjóðernislegi arfur er sjóð-
ur sem safijað hefir verið saman
á árum og öldum, af einstakl-
ingum hinnar íslenzku þjóðar,
er börðust fyrir menningunni,
ofsóttir af ís og eldi og óblíðri
náttúru, oft undir útlendri á-
þján, sem sýndist gera alla bar-
áttu vonlausa? En þeir átt
hugsjón sæfarandans er lætur
geisla hinnar fjarlægu stjörnu
vísa sér leiðina að þeim strönd-
um sem hann eigi sér. Og hafi
þið hugsað eftir því að það er
köllun ykkar og skylda að leggja
í þennan sjóð svo að hann verði
stærri og glæsilegri þegar þér
skilið honum en þegar þér tókuð
við honum?
Til eru álög illra heilla, sem
þér sem íslendingar getið átt á
hættu að verða fyrir, nema þér
séuð á verði og sjáið við þeim í
tíma. Svefn og sundrung eru
systkyni og starfa saman að
hverskonar tortíming menning-
ar vorrar og þjóðararfs. Þau
hafa myrkrið og gleymskuna að
þjónum sínum. En saga vor
sannar að það er eigi í eðli fs-
lendingsins að sitja í myrkrinu
eða vilja falla í gleymsku. fs-
lendingurinn reynir ætíð að
tendra Ijós, sem lýsir honum og
öðrum. Þegar forfeður vorir
ferðuðust til annara landa þá
leituðu þeir eigi veturvistar hjá
1 kotungum né þrælum. Þeir réð-
ust til konungsins þar sem þeir
voru oftast velkomnir, því að
þeir fluttu með sér menningu og
skráðu nöfn sín og annara á
spjöld sögunnar. Þeir gerðu það
til að gleymast eigi. Og hvar
sem þeir fóru voru þeir stoltir af
því að vera fslendingar. Þeir
voru frjálsir og þurftu ekki að
lúta neinum.
En þrátt fyrir hina sterku
sjálfstæðis-tilfinningu og/ frels-
isþrá voru forfeður vorir félags-
lyndir menn, sem skildu og
ræktu samvinnu um nuaðsynleg
velferðarmál þjóðfélagsins. —
Glæsilegasti vottur þess er Al-
þingi hið forna, sem eigi var
aðeins dómstóll og löggjafar-
þing heldur mannamót, þar sem
alt hið besta og glæsilegasta í ís-
lenzku þjóðlífi kom fram á sjón-
arsviðið. Þessi hátíðisdagur vor
er einskonar áframhald af hinu
forna þingi. Hann á að vera
sýnishorn alls hins bezta sem
við eigum til. Hann er manna-
mót þar sem oss um 15 ár hefir
gefist kostur á því að sjá o'
hlusta á ýmsa af vorum beztu ov
merkustu mönnum, sem með
starfi sínu og mentun hafa aukið
þjóðararfinn, og vér erum stolt
af að telja í vorum hóp. Hér
hefir og ættjarðarást og æfin-
týraþrá íslendinga verið fædd
og örfuð með ljóðum ýmissa
skálda vorra og hér hafa íslenzk
ljóð svifið á vængjum söngsins
yfir vötn og velli og græna
skóga.
Sjálfur staðurinn sem vér
stöndum á er vottur þess hva
samtökin geta gert. f sambandi
við það dettur mér í hug saga úr
fornaldarsögunum, sem þið
kannist öll við.. Ragnar Loðbrók
fór með her til Englands og
hugðist að leggja það undir sig,
en féll í hendur Ellu konungi og
var drepinn. fvar beinlausi
sonur Ragnars, beiddist í föður-
bætur þess af Englandi, sem
hann gæti breitt uxahúð yfir,
og fékk það. Hann risti húðina
í þvengi sem mjóstir máttu
verða og markaði með þeim
þveng fyrir borgarstæði og reisti
borg er hann nefndi Lundúni.
Út frá þessum litla bletti, er
hann þannig eignaðist vann hann
svo alt landið og hefndi föður
síns. En hversu viturlega hann
valdi borgarstæðið hefir reynsl-
an sýnt.
Þeir sem völdu þennan stað
gátu að vísu eigi fengið hann á
þennan hátt. Þeir keyptu hann
og alt sem hefir verið lagfært og
unnið 1 þessum garði, og svo
sjálfur hann, er nú goldið að
fullu. Og það er fyrir samtök
ykkar sem hér hafið mætst ár-
lega hin síðustu fimtán árin.
Hin fyrsta kynslóð fslendinga er
nam hér land er nú hnigin í val-
inn og að nokkru leyti er þessi
staður fengin í föðurbætur að
því leyti að garðurinn á að við-
halda minningu feðra yðar og
mæðra er börðust fyrir því með-
an dagurinn entist að sigra þetta
land. Með því að fegra þennan
stað fengjum vér minningu
þeirra hraustu manna og kvenna
er endurvöktu með íslenzkri þjóð
hið forna æfintýra líf, að leita út
yfir höfin óþektra stranda, og
leita sér þar fjár og frama eða
falla að öðrum kosti — mann-
anna sem áttu hafið, og hrædd-
ust ekkert nema það að hverfa
án þess að hafa skráð nöfn sín
einhverstaðar á hinn bjarta
skjöld sögunnar. Svo býð eg
ykkur öll velkomin á hátíðina
hér í dag.
ÁVARP MISS CANADA
á fslendingadeginum á Hnausum
31. júlí 1937.
Seventy years ago there was
born a new Nation, Canada. —
Three score years and ten is but
a short space of time in the life
of a people; but in these few
years vast changes have been
wrought and great achievements
have been won in this land of
yours and mine. And for sixty-
two years you and your fathers
and grandfathers have played
their part and have done their
share in the building of this
Nation we call Canada.
And what of those achieve-
ments! From a union of four
provinces under the British flag
we now span a continent from
the Atlantic Ocean on the East
to the Pacific on the West, and
from the 49th parallel of lati-
tude to the North Pole. We
have girdled it with barfds of
steel; we have put some of its
vast resources in harness for the
purpose of man; over eleven
million people from many lands
inhabit its spaces, living in peace
with our neighbors and the rest
of the world—an example to
nations everywhere. And we
struggle to solve our problems
not by the iron heel or by the
rule of force, rather by peaceful
discussion and the rule of law.
And in the years that are to
come, what will be your con-
tribution to Canada? What will
you the people from the far-
away island in the North Atlan-
tic, and their sons and daughters
and grandchildren. What ser-
vice will you render in the build-
ing of Canada?
You ask what more is there to
be done? True, we have con-
quered space and distance; land
and water have yielded to us
their abundance. But vast pro-
blems still remain — Social.
Economic—Nátional.
Canada is as yet hardly a
Nation; rather a melting pot of
conflicting forces. We have a
Canada of Quebec; we have a
Canada of Europe; we have a
Canada of North America. Our
land must become a Unity—a
Canada of Canadians.
Have we other problems? Yes,
many; economic and social; in
brief, the search for more com-
fort, for greater security, for
more individual happiness for
all our people. What, therefore,
should you, the Icelandic people
contribute to their solution? Is
the answer not only too obvious ?
Should’nt our contribution be a
manifestation of the most
distinctive characteristi.cs of the
land of our Fathers for over a
thousand yeai’s; a love of liberty,
a passion for freedom, a respect
for law? Should it not be our
desire to maintain and preserve
our thousand year old tradition
of ^amocr&tic government ?
Iceland is the true home of the
Mother of Parliaments. There
true democracy was cradled;
there true liberty and freedom
within law were born and there
flourished. Will you perpetuate
here that tradition of your
Fathers ?
* Sixty-two years ago at your
coming to the shoi-es of Lake
Winnipeg the faith of Canada in
your qualities of citizenship was
indicated in the interest and
patronage of the Governor-Gen-
eral of that day, Lord Dufferin.
Well did he know the inheritance
brought with you from the land
whence you came. Wil you give
in full measure of that heritage
to Canada?
ÍSLENDINGADAGURINN
Á GIMLI
íslendingadagurinn á Gimli 2.
ágúst hepnaðist mikið betur en
áhorfðist um tíma, því að morgn-
inum var steypirigning norður
við Winnipeg-vatn í einn eðaftvo
klukkutíma. í Winnipeg var
þurt allan daginn, svo þar sett-
ust engir aftur fyrir veður. Og
sem betur fór, glaðnaði til upp
úr hádegi og stækkaði þá óðum
hópurinn. Alls er áætlað að um
1700 manns hafi sótt þjóðminn-
ingardaginn.
Skemtun var mjög hin sama)
og undanfarin ár. Tveir ungir
Vestur-íslendingar, báðir hér
fæddir og mentaðir, héldu aðal-
ræðurnar og leystu verk sín
mjög sómasamlega af hendi. —
Forseti, Friðrik Sveinsson, list-
málari, flutti og vel samið er-
indi. Hópur gestal flutti ræður.
Fjallkonan frú Lillian Mur-
doch, leysti verk sitt vel af hendi
og hlaut nefndin nú, sem fyr,
gott orð fyrir val á Fjallkonu
dagsins.
Eitt af því sem nú er að ver '
aðdráttarafl á samkomum, er
söngur Karlakórs íslendinga í
Winnipeg, undir stjórn núver-
andi söngstjóra, Rajgnar H.
Ragnars. Söng kórinn mörg lög
og skemti áheyrendum ágætlega
á íslendingadeginum á Gimli,
sem á Iðavelli.
Eftir að skemtiskránni lauk,
gafst gott hlé til þess að heilsa
upp á kunningja, forna og nýja,
þar til byrjað var á að syngja
enska og íslenzka þjóðsöngvaj;
stjórnaði Paul bæjarráðsmaður
Bardal þeim söng.
Að kvöldinu var dans — hófst
hann klukkan 10 og stóð yfir þar
til kl. 3 eftir miðnætti.
. fþróttir fóru fram að deginum
og vonum vér, að Mr. Eiríkur
ísfeld, sem umsjón hafði með
þeim, birti í næsta blaði skýrslu
af því.
íslendingar í Winnipeg standa
fyrir þessum þjóðminningardegi
á Gimli; hann ætti því að vera
vel sóttur af þeim. Eigi að síð-
ur munu þeir að þessu sinni ekki
hafa verið mikið fram yfir einn
fjóða eða mesta lagi einn þriðja
þeirra er daginn sóttu. Það voru
Ný-fslendingar sem þar voru
fjölmennastir.
Hjtt má fullvissa alla um, að
þeir sem daginn sóttu, nutu nú
sem fyr góðrar skemtunar.
Loftferðir
Það hefir gerst sögulegast í
loftferðum, að einn daginn mætt-
ust hátt yfir ylgju Atlants hafs
flugdrekarnir Caledoni^, tilheyr-
andi Imperial Airways og Clip-
per III., tilheyrandi Pan-Ameri-
can Airways. Þessi loftskip
voru á könnunarferð, hinni síð-
ustu áður en stöðugar loftferðir
hefjast yfir Atlantshafið, voru í
óslitnu viðtali við stöðvar beggja
megin hafsins og lentu þar sem
þeim vty* ætlað, á tilteknum
tíma, Caledonia þar sem heitir
Foyne á írlandi, og tók þaðan
annan sprett til Southampton,
Clipper III, á Botwood, New-
foundland og sveif þaðan yfir
lög og láð til Port Washington,
N. Y. Sömu dagana gerðist það
hinumegin á hnettinum, að
Bandaríkjanna stóra stríðsskip
Lexington, hleypti upp 60 loft-
förum til að leita að Mrs. Amelia
Earhart Putnam og félaga henn-
ar Noonan, á ■ þeim stöðvum í
Kyrrahafinu, þar sem þeirra var
helzt von. Sú leit varð árangurs-
laus. Síðau hefir Bandaríkja
stjórn bannað loftferðir til
skrums og oflætis, svo að enginn
af þess lands þegnum fær að
leggja í langar loftferðir, nema í
gildum erindum.
öldungaþingdeild U. S.
feldi frumvarp stjórnarinnar
um breytingu á hæstarétti
með því að vísa því aftur til
nefndar, með 70 atkv. gegn 20
sem áður er sagt. Þegar sú
rimma stóð sem hæst, andaðist
flokksforingi stjórnarinnar Rob-
inson, fanst bráðkvaddur í sæng
sinni einn morgun, með þingtíð-
indin við hliðina og gleraugun á
gólfinu. Líkið var flutt til út-
fara skála, lagt í viðar og kopar
kistu, en vinir hans og þingfé-
lagar ýmsir sátu umhverfis allan
þann dag og þann næsta, réðu
ráðum, mötuðust en ekki er sagt
hvort þeir sváfu þar. Á þriðja
degi var líkið flutt með lest til
Little Rock, Ark., og jarðsett.
“Góður stríðsmaður er fallinn,
stóð fremsur í fylkingu og
horfði öndverður við orustu”,
sagði Roosevelt. Foringi demo-
krata í öldungadeild hér eftir:
Barkley frá Tennessee, “vel
tenntur og baksterkur, snjallari
ræðumaður en Robinson en tæp-
lega eins hvatfær.”
Hindenburg slysið rannsakað
U. S. Department of Com-
merce hefir látið rannsaka ítar-
lega slysið mikla í vor, þegar
loftskipið Hindenburg brann í
Lakehurst og komist að sömu
niðurstöðu og Dr. Eckner, að
hydrogen hafi sýj ast út um belg-
inn og tendrast af rafmagni, sem
sezt hafi og safnast utan á hít-
ina. Rannsóknarnefndin tók til
íhugunar og hafnaði öðrum
hugsanlegum orsökum: að skeð
hafi af mannavöldum, af að stýr-
ið hafi brotnað, af radio gneista,
af smíðgalla, eldingu.
Framh. frétta á 5 bls.