Heimskringla - 04.08.1937, Blaðsíða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 4. ÁGÚST 1937
FJÆR OG NÆR
Séra Philip M. Pétursson
messar að Lundar þann 8. þ. m.
kl. hálf tvö og á Oak Point kl.
8 að kvöldinu á ensku.
* * *
Engin messa þann 8. og 15.
ágúst í Vatnabygðum í presta-
kalli séra Jakobs Jónssonar.
* * *
Þ. 17. júlí s. 1. voru gefin sam-
an í hjónaband í Rosslyn Hill-
kirkju í London á Englandi þau
Þórdís Myrtle Thorvaldson frá
Riverton og Dr. Clarenee U.
Samis. Rev. Charles Bryce
framkvæmdi hjónavígsluna. —
Framtíðar heimili þeirra verður
í Manchester á Englandi. Brúð-
urin er dóttir Sveins Thorvald-
sonar, M.B.E., í Riverton. Þór-
dís var útskrifuð af Manitoba-
háskóla og kendi á skóla í Riv-
erton. Brúðguminn er ættaður
frá Arcola, Sask., en stundaði
nám á Manitoba háskóla, þar
sem þau kyntust. Þórdís lagði
af stað um mánaðamótin júní
og júlí til Englands.
* * *
Séra Albert Kristjánsson frá
Blaine, Wash., sótti íslendinga-
daginn bæði á Hnausum og
Gimli og var gestur dagsins á
báðum stöðunum og ávarpaði á-
heyrendur.
* * *
Ræður og kvæði sem Hkr.
hafa borist frá íslendingadags-
hátíðunum geta ekki öll birst í
þessu blaði. Ennfremur viljum
vér biðja þá, sem greinar eiga
hjá blaðinu sem þeir hafa senni-
lega búist við að kæmu í þessu
tölublaði, að virða á betri veg
þó bíða verði næsta blaðs.
Við Kviðsliti?
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
skrifið: Smith Manfg. Company,
Dept. 160, Preston, Ont.
Benjamín Einarsson, bróðir
konu séra Jakobs Jónssonar,
Wynyard, Sask., leggur af stað
alfarinn til fslands í kvöld. Kom
hann vestur fyrir rúmum tveim
árum, stundaði hér nám á verzl-
unarskóla s. 1. vetur, og átti hér
orðlð fjölda vina og kunningja,
enda hinn bezti og viðkunnanleg-
asti piltur.
* * *
| Dr. J. P. Pálsson frá Borden
I og f jölskylda hans eru stödd hér
I eystra um þessar mundir. Dr.
| Pálsson kom til þess að finna
; foreldra sína, er við heilsubilun
hafa átt lengi að búa og liggja
rúmfastir.
* * *
Mountain, N. D.,
31. júlí 1937
Herra ristj. “Hkr.”:
Eins og minst var á í Hkr. 21.
júlí komu þeir séra Guðrm Árna-
son og séra Philip M. Pétursson
hingað suður í heimsókn til
kunningja og vina, þ. 23. þ. m. og
dvöldu hér fram yfir helgina, og
samkvæmt ósk nokkurra þeirra,
er telja sig frjálslynda, messaði
séra Guðmundur hér í Mountain-
kirkju á sunnudaginn og er ó-
hætt að fullyrða að meirihlutinn
af þeim sem þar voru viðstaddir
eru honum þakklátir fyrir það
ágæta erindi er hann flutti, og
væri æskilegt að það kæmi fyr-
ir almenningssjónir, þar sem
það snertir alla jafnt sem um
kristindómsmál hugsa, af nokk-
urri alvöru, hverjar sem trúar-
skoðanir þeirra kunna að vera.
Þetta erindi var flutt með skör-
ungsskap og sannfæringarkrajfti,
og innihald þess ætti að festa
djúpar rætur hjá þeim sem á
hlýddu. — Þeir sem fóru fram
á það að annarhvor prestanna
flyttu þar messu votta hér með
séra Sigmar og fulltrúum Víkur-
safnaðar þakklæti sitt fyrir lán
á kirkjunni, og einnig organista,
(Miss Arason) og söngflokknum
fyrir þeirra aðstoð. Og svo
þökkum við þeim prestunum fyr-
ir komuna og ánægjulega, endur-
nýjaða viðkynningu, sem við
vonum sumir hverjir, að minsta
kosti, að megi oft endurtakast.
Þinn með virðing og vinsemd,
Th. Thorfinnson
* * *
Kvæðið, sem Fjallkonan (frú
'S. E. Björnsson) flutti á ís-
lendingadeginum á Hnausum og
sem birt er á öðrum sta>3 í blað-
inu, er ort af Dr. S. E. Björns-
son.
Mr. og Mrs. Jónas Anderson j þeim hafa fallið viðtökur skóg-
frá Cypress River, Man., komu, arins, en merki þóttist eg finna
til bæjarins um helgina. Þau ! þess, að þeim hefði þær vel fall-
komu til að vera á íslendinga- ið. Einn þeirra sagðist vera á
deginum á Gimli; hafa þau sótt! þessum stað, og þá ósk gat eg
hátíðina til Gimli undanfarin j tekið undir. — Við vissum báðir,
ár. Þau lögðu af stað heim í að þetta var ein af þeim óskum,
morgun.
* * *
Dr. A. B. Ingimundson verður
I staddur í Hecla 24. ágúst.
* * *
Eftir að hafa lesið síðustu
grein Valda í Lögbergi.
Valdi siglir villu mið
vex í dýrkuninni;
gamaldags um gáfnasvið,
gleymir rökfræðinni.
A. E.
* * *
Athugasemd
“fbúðarhús Jakobs Normans í
grend við bæinn Wynyard, brann
af eldingu til kaldra kola nýlega.
Menn sem í húsinu bjuggu voru
ekki heima.”
(Hkr. 28. júlí 1937)
Þetta er ekki alskosta rétt
hermt. Að vísu er sagt djð
“Mjöllner” hafi valdið brunan-
um, en húsið var ekki “í grend
við bæinn Wynyard”, heldur á
bújörð Jakobs í Foam Lake,
skamt frá Leslie, Sask. f hús-
inu hefir ekki verið búið í nokk-
ur s. 1. ár, svo ekki var að bú-
!ast við að neinn væri heima —
til að sláJ'Mjöllner” af sksífftinu.
— Þetta brenda hús, var stór og
vönduð þrílyft bygging með mið-
stöðvar upphitun. Eldsábyrgð
var engin á byggingunni né
hafði verið til fleiri ára, eða síð-
an hætt var að búa í húsinu.
Nú bið eg þig herra ritstjóri
að stinga þessum línum í blað
þitt, svo fólk geti frekaþ áttað
sig á hvað í raun og veru hefir
komið fyrir í þessu tilfelli.
J.
sem ekki geta ræst, en hún sýn-
ir áhrifavald skógarins. Mér
fanst eg mundi geta gleymt á-
hyggjunum og orðið nýr maður
með nýjum kröftum og nýju
trausti til guðs og manna í skjóli
hans.
Við kveðjum þessa paradís.
Leið okkar liggur aftur út til
sjávarins. “Framandi höfðum
við komið”, en ilmur skógarins
og kliður trjánna bera okkur
bróðurkveðju.—Samtíðin.
| Kaupmannahöfn til Köln til þess
að skoða nýjan háskóla, sem þar
hefir verið bygður. Frá Köln
er ætlan þeirra að flj úga til Bern
í Sviss og skoða þar einnig nýj-
an háskóla. Ennfremur er ekki
útilokað, að þeir fari víðar um
og kynni sér fyrirkomulag nýrra
háskólabygginga með það fyrir
augum að nota þá þekkingu ti’
hliðsjónar við innréttingu há-
skólans nýja í Reykjavík.
—26. júní.
NÝJASTA KENNINGIN
Gefið hljóð án tafar
í höllum og í hreisi
hér er nýjung mikil
sem fullyrt er að reisi
alheiminn úr vanda,
— þó allir djöflar geysi —
hann á að byggja menning
á tómu stefnuleysi.
J. S. Frá Kaldbak.
f húsvitjun
Sóknarpresturinn: Þú manst
líklega eftir því að lesa kvöld-
bænirnar þínar á hverju kvöldi,
Hans litli!
Hans: Nei, ekki æfinlega! —
Stundum er það ekkert sérstakt,
sem mig vanhagar um.
* * *
Landafræði
— Jæja, frú Jensen. Er hann
sonur þinn ennþá í Ameríku ?
— Nei, hann er í Kína.
— f Kína?
Já, seinasta bréfið hans er
skrifað í Sing-Sing.—Alþbl.
ÍSLANDS-FRÉTTIR
GLATIÐ EKKI
VERÐMÆTUM SKÍRTEINUM
Þér megið ekki við því að glata borg-
ara-skírteini, vátryggingar-skírteinum,
skírteinum fyrir eign yðar eða álíka
mikilsverðum bréfum. Alt slíkt ætti
að vera geymt í öryggis-kassa yðar í
Royal-bankanum.
Óryggis-kassinn er úr stáli gerður og
geymdur í bankanum; þér einn getið
opnað hann. Hann kostar ekki fylli-
lega cent á dag. Biðjið bankastjórann
á útibúinu sem þér skiftið við að sýna
yður kassann.
THE ROYAL B A N K
O F CANADA
Eignir yfir $800,000,000
Bræðurnir Einar Melsted frá Fiskaflinn í ár
Garðar og Sigurður Melsted frá
Mountain voru staddir á íslend-
ingadeginum á Gimli.
Til vina minna
á milli vatnanna
Eg hefi ákvarðað að heimsækja
söfnuðina sem eg myndaði fyrir
löngu síðan þar nyrðra. Þetta
verður, ef Guð lofar, næsta(
sunnudag 8. ágúst. Með væntan-
legu samþykki allra hlutaðeig-
enda messa eg sem fylgir:
Betel söfn. kl. 11 f. h.
Betaníu söfn. kl. 3 e. h.
Jóns Bjarnasonar kl. 7.30 e. h.
Þetta verður söfnuðunum að
kostnaðarlaussu, en frjáls sa|m-
skot verða tekin. Fólk er vin-
samlega beðið að greiða fyrir
mér með keyrslu. Eg kem til
Ashern á laugardaginn og þætti
mér vænt um ef að einhver vildi
vera svo góður að mæta mér þar.
Fólk er beðið að fjölmenna.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Eg vonast tií að hitta hvert ein-
asta mannsbarn í bygðinni við
þessa guðsþjónustu fundi.
Vinsamlegast,
Carl .1. Olson
* * *
Dr. A. B. Ingimundson verður
staddur í Riverton 17. ágúst.
ALMANNASKARÐ OG
HALLORMSSTAÐUR
Frh. frá 7. bls.
stórbrotinnar göfgi.
Þetta er glæsilegasta skóla-
setur landsins, og skólinn sjálf-
ur fellur vel inn í umhverfið. Eg
sakna þess eins, að einungis lítið
rjrot af æsku þjóðarinnar skuli
eiga þess kost, að dreyma dag-
drauma sína á þessum stað. Það
mundi vera gott að ferðast í hug-
anum til framtíðarlandanna í
skjóli bjarkanna í Hallorms-
staðaskógi. Eða skyldi ekki vera
minna blóð í bylgjunum, sem
bera okkur uppi á hafi tímans,
ef angan og friður skógarins
væru samgróin sál okkar?
Degi hallar. Við félagarnir
finnumst aftur við bílinn og höld
um af stað. Ekki veit eg, hvernig
Rvík. 13. júlí
Fiskaflinn á öllu landinu í ár
til 30. júní var 25,110 tonn, ef
öllum aflanum er breytt í þurr-
fisk. Á sama tíma í fyrra var
eflinn 25,775 tonn. Árið 1935
var hanri 47,265 tonrs og árið
1934 57,080 tonn.
Fiskbirgðir í landinu voru
30. júní s. 1. 19,077 tonn. f fyrra
um sama leyti voru fiskbirgðirn-
ar 21,141 tonn. Árið 1935 voru
þær 38,763 tonn og árið 1934
43,301 tonn.—N. Dbl.
* * *
Maður hrapar 70 metra
Rvík. 13. júlí
Ole Braae, tannlæknir úr
Reykjavík hrapaði við Dettifoss
um hádegisbil á laugardaginn og
hlaut af mikil meiðsl. — Jón
Árnason læknir á Kópaskeri
skýrði útvarpinu frá atburðun-
um í símtali í gær.
Ole Braae var í leiðangri
Ferðafélags íslands að skoða
fossinn er slysið bar að höndum,
og var hann þá einn síns liðs —
líklega að taka myndir framar-
Ilega á gljúfurbrúninni. Var það
um hádegi. — Hrapaði hann
fram af gljúfurbrúninni og nið-
ur snarbratta skriðu, alls 50—
70 metra hæð, • áður en hann
staðnæmdist. Skriða þessi er
mosagróin vegna úðans úr fljót-
inu og slasaðist því maðurinn
minna en ella. Þar sem hann
hrapaði, var ókleift niður og
varð að fara ofan í grjúfrið
miklu norðar og klöngrast eftir I
því upp til mannsins. Tók 15
klst. að ná honum. Lá hann þá í!
roti, hafði mörg sár á höfði og
víðar. Mjöðmin var gengin úr!
liði, en ekki var hann beinbrot- j
inn. Var hann fluttur heim að
Skinnastöðum og þar hefir lækn-
ir hjúkrað honum. Ole Braae
hefir fengið meðvitund öðru
hvoru og hefir læknir von um
að hann lifi.—N. Dbl.
* * *
Þeir prófessor Alexander
Jóhannesson og
húsameistari ríkisins prófess-
or Guðjón Samúelsson lögðu af
stað í fyrradag í flugvél frá
í þeirri fögru borg Seattle
skeði það nýlega, að ketsali
Mueller, efnaður borgari af
þýzku kyni, færði þurfandi
kunningja sínum vænan bita af
keti, sem hann hafði gert á
hverjum sunnudegi í tvö ár. Nú
sem hann einn sunnudag í fyrra
mánuði, kom að dyrum þess
marghýsis, sem hann sjálfur
átti, og kunningi hans bjó í,
gengu fyrir hann tveir menn og
spurðu: “Hvert ætlarðu með
þennan böggul?” Þeir voru úr
hópi þeirra sem hafa eftirlit með
vínsölu og tollum af vínsölu, af
hálfu hins opinbera, því að í
Seattle er lögbannað að kaupa
vín nema í stjórnarbúðum. Muel-
ler sagði sem var og spurði því
þeir eltu sig, þeir tóku til hans
en hann var burðamikill og end-
irinn varð að annar þeirra sló
hann með barefli úr járni, þá
féll hann, var fluttur til spítala
og dó af áverkanum eftir fimm
daga.
Borgarar í Seattle urðu reiðir
og kröfðust rannsóknar, vitni
báru að hinum handtekna hefði
verið misþyrmt með formæling-
um og haldið í lögreglustöð í
hálfan klukkutíma, áður læknis
var leitað. Mál var höfðað en
sakborningum leyft að ganga
lausum, gegn háu veði, þar til
dómur félli. Annar vegandinn,
Regan að nafni, kallaður hinn ó-
bilgjarni af mörgum svaðilför-
um meðan prohibition hélzt,
gekk einn daginn út í Kerriston
Park og í afhýsi þar nærri
MESSUR og FUNDIR
i kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarne/ndin: Funólr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld i hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan þriðju
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldlnu.
Söngæfingar: Islenzki söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: ■— A hverjum
sunhudegi, kl. 12.15 e. h.
-
ÍSLENZKA BAKARIIÐ
702 SARGENT AVE., Winnipeg
Einasta islenzka bakaríið í
borginnd
Islenzk bakning af •Ulri tegund.
Pantanir utan af landi afgreiddar
fljótt og vel.
Sími 37 652
sem börnin leika sér, skaut sig
þar til dauðs. Ritað hafði hann
á miða: “Eg þoli ekki áganginn!”
Og á annan: “Eg er brjálaður!”
Þessis sneplar fundust hjá lík-
inu.
THOR GOLD
Mining Syndicate
NAMURNAR ERU 20 MIUUR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið heflr umráð á 400
ekrum i námuiandi við Andrew
Bay, Lake of the Woods i Ken-
ora-umdæmi.
Sýnishom af handahófl i nám-
unnl hafa reynst frá 50c upp i
$40,000 úr tonnlnu og i Channel
Sampies eru frá 60c upp í $60.00
i tonninu.
KAUPIÐ NtT—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hiutir í Unlt)
Thor Gold Mlning Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Wlnnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKtrLI BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
Huoson’s Bhy
F.O.B.
Scotch Ulhiski|
— a favorite among pure Scotck
Whiski es. It is mellow and full.
flavored — distilled and blendcd
in Scotland.
26/2
40
oz.
oz.
»2.30
$3.35
This advertisement is not inserted by
Govemment XJquor Control Commlssion.
The Commission is not responsibie for
statements made as to quality of pro-
ducts advertised.
KÆLIÐ YÐUR
með
RAFMAGNS BLÆVÆNG
• Látið ekki hitan yfirbuga
yður. Kaupið rafmagns-blævæng
og látið svalan blæ hressa yður.
Hafið hann á skrifstofu yðar, í
lesherbergi eða eldhúsi. City
Hydro sýningar-staðirnir sýna
margar tegundir blævængja. —
Þeir gefa frá sér sterkan kul,
hávaðalaust. Söluþjónn vor er
reiðubúinn að heimsækja yður
með sýnishorn.
$2.95
Otti UiMTru
Boyd Building
• WESTINGHOUSE
(sýndur að ofan) ,
• POLAR CUB
• ARCTICAIRE
• GENERAL, ELECTRIC
SfMI
848 131