Heimskringla - 05.01.1938, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 5. JANÚAR 1938
FJÆR OG NÆR
Messur í Winnipeg
fara fram í Sambandskirkj-
unni eins og hér segir:
Kl. 11 f. h. á ejisku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Sunnudagaskólinn kemur sam-
an kl. 12.15 á hverjum sunnud.
* * *
Séra Guðm. Árnason messar á
Lundar n. k. sunnudag (9. þ. m.)
* * i>
Messur í Vatnabygðum
Sunnudaginn 9. jan. kl. 11. f.
h. sunnudagaskóli í Wynyard;
messa í Leslie kl. 2 e. h.
* * *
Kvenfélag Sambandssafnaðar
heldur ársfund sinn n. k. þriðju-
dag (11. jan.) kl. 8 e. h. að
heimili Miss Hlaðgerðar Krist-
jánsson, 1025 Dominion St. Win-
nipeg. Skýrslur verða lesnar —
kosningar fara fram. Á fundin-
um flytur Mrs. L. Sigurðsson
erindi. Kvenfélagskonur eru
beðnar að fjölmenna.
* * *
Á fundi er þjóðræknisdeildin
Frón hélt 29. des. 1937 í G. T.
húsinu, fór fram stjórnarnefnd-
arkosning; er nýja nefndin sem
hér segir: Ragnar H. Ragnar
forseti, Tryggvi Oleson, vara-
forseti, Hjálmar Gíslason, ritari,
Thorv. Pétursson vara-ritari,
Sveinn Pálmason gjaldkeri, Karl
Jónasson vara-gjaldkeri, Gunn-
björn Stefánsson fjármálaritari,
Jochum Ásgeirsson vara-fjár-
málaritari. Á fundinum flutti dr.
Richard Beck erindi um “lífs-
speki norrænna manna”. Þótti
erindið snjalt. Mrs. Grace John-
son söng einsöng.
* * *
f gær (þriðjudaginn) var
Frances Flueny Ferguson, öldruð
kona, jarðsungin af séra Philip
M. Pétursson. Kveðjuathöfnin
fór fram frá heimili tengdason-
ar hennar, Björns Péturssonar,
616 Alverstone St., og jarðað var
í Brookside grafreitnum. Bardals
sáu um útförina.
* # w
Ort við birtingua 3ja
svars G. Á. til Rannv. K. G. S.
Þröngsýnis við þrotabú
þreytast kjörin hörðu;
Rannveig er að rekast nú
með rök að þagnarvörðu.
Tryggvi Paulson
* * *
Jón Sigurðssonar félagið (I.O.
D.E.) heldur fundinn, sem á-
kveðið var að halda 4. jan. en
hefir verið frestað, til 10. jan.
n. k. að heimili Mrs. H. T. Nichol-
son, 557 Agnes St., Winnipeg.
50 ára afmælis
Goodtemplara minst
Fimtudaginn, 30. des. 1937,
héldu Goodtemplarastúkurnar
Hekla og Skuld samkomu til
minningar um 50 ára starf ís-
lenzkra Goodtemplara vestan
hafs. Samkoman var haldin í
G. T. húsinu; var henni stjórnað
af próf. R. Beck; flutti hann
ræðu við þetta tækifæri, sem
birt er á öðrum stað í þessu
blaði . Um stofnun og starf
stúknanna Heklu og Skuldar
voru ræður fluttar, því Good-
templarastarfið vestra hefst með
stofnun þeirra. Ræðurnar fluttu
Stefán Einarsson, (um Heklu)
og Gunnlaugur Jóhannsson (um
Skuld). Stórtemplari A. S. Bar-
dal flutti stúkunum ávarp frá
Stórstúku Manitoba. Ennfrem-
ur töluðu séra Runólfur Mar-
teinsson, séra B. B. Jónsson, séra
Jóhann Bjarnasoh, séra Carl
I Olson, séra Guðm. Jónsson og dr.
Sig. Júl. Jóhannesson. Kvæði
flutti Hjálmar Gíslason stúkun-
um; ungur drengur John Butler
las upp á íslenzku og Richard
|Lennan Beck skemti með piano-
spili. Kaffi og ísrjómi var á
' borðum, sem neytt var á milli
' ræðanna.
Þetta hálfrar aldar-afmæli
stúknanna var vel sótt; á að
gizka mun þar hafa verið um 200
manns. Kvöldið var hið skemti-
legasta.
* * *
Arnljótur Olson, sem um tíma
hefir legið á almenna sjúkra-
húsinu í Winnipeg, er á góðum
batavegi. Hann biður “Hkr.” að
geta þess, að Þjóðvinafélagsbæk-
urnar séu komnar vestur og
hann sendi þær kaupendum bráð-
lega.
* * *
W. A. Davidson, fasteignasali
í Winnipeg og Árni ólafsson
lögðu af stað í morgun (mið-
vikudag) til Miami, Florida. —
Þeir bjuggust við að dvelja
syðra til 9 marz. Þeir fóru í bíl,
með “trailer” í taumi, sem nú
þykir það frjálsasta á ferðalög-
um.
Dr. Richard Beck frá Grand
Forks, N. D. lagði af stað heim
til sín á þriðjudagsmorgun. —
Hann hefir dvalið síðan fyrir ný-
ár í Winnipeg.
* * *
Leiðrétting
f æfiminningu Mrs. Thoru Jó-
hannsson, í síðustu blöðum er,
fyrir vangá mína, ein villa: —
Húsafellsætt, en á að vera: Háa-
fellsætt. R. M.
* * . *
Ársfundur Heimilisiðnaðarfé-
lagsins verður haldin miðviku-
dagskvöldið 12. jan. á heimili
Mrs. J. T. Markússon, 989 Dom-
inion St. Tekið á móti nýjum
meðlimum.
* * *
Ársfundur Selkirk-safnaðar
verður haldinn mánudaginn 10.
jan., kl. 8 e. h. í samkomusal
kirkjunnar.
J. E. Eiríksson, secy.
VANDRÆÐI KYENNA I
UNGVERJALANDI
f blaðinu Maygar Hirlap í
Budapest er svo skýrt frá stöðu
konunar í Ungverjalandi:
Kjör verkakvenna í borgum
Mið-Evrópu er eitt af hinum erf-
iðustu vandamálum. Atvinnu-
leysið og hið pólitíska ástand er
í nánu sambandi hvað við annað.
stúlkna og manna úr borgara-
stétt, neyðist konan jafnvel til
að leggja á sig mikla vinnu, utan
heimilis.
Vér hirðum eigi um, að ræða
nánar hinar siðferðilegu afleið-
ingar þessa ástands, þótt tilefnið
sé ærið nóg. Vér þekkjum öll
ungu konurnar, sem búa hjá for-
eldrum sínum og halda leyndu
hjónabandi sínu, eða hið algenga
samband milli roskins eigin-
manns ungrar eiginkonu og elsk-
,huga hennar.
Tölur úr nýútkomnum hag-
skýrslum héðan úr Budapest
gefa oss nánari upplýsingar. öll
þekkjum vér það viðkvæði ,að
konan eigi að sitja heima og
helga sig “barninu, kirkjunni og
eldhúsinu”. En hvemig má
þetta ske? f Budapest vinna 87
þús. konur. Af þeim eru 70.
þús. á giftinaraldri. Þessar 70
þús. konur geta blátt áfram ekl:i
fengið neinn mann, jafnvel þótt
allir piparkarlar í Budapest væru
! dregnir fyrir altarið.
Á síðastliðnunf 35 árum hefir
íbúum í Budappst fjölgað um
125,900 karlmenn, en 201,000
konur. Konumar eru m. ö. o. 75
þús. fleiri. Þetta þýðir, að Buda-
pest, sem í byrjun aldarinnar
hafði 100 karlmenn á móti 103
konum, hefir nú 118 konur á
móti jafnmörgum karlmönnum.
Enn meiri rugling veldur það,
Það er orðin lífsnauðsyn að leysa
þessi vandamál. Við hverja til-, að ósamræmið er einmitt mest á
raun sem gerð er, rekst ifiaður á vinnualdrinum frá 15—60 ára.
Fyrirspum
9
Þjóðskjalasafn fslands
Rvík. 10. des. 1937
Hr. ritstj. Hkr., Winnipeg.
Eg vildi vinsamleg^st fara
þess á leit við yður, að þér gerð-
uð fyrirspum í blaði yðar um
hjónin Jón Hallgrímsson og Þóru
Oddsdóttur. Jón fluttist til
Vesturheims frá Myrká árið
1900, en kona hans nokkru síðar,
sennilega til Hallson-bygðar. —
Upplýsingar um hjón þessi eða
einhverja afkomendur þeirra
óskast sendar Þjóðskjalasafninu
í Reykjavík. Þóra var fædd á
Þorleifsstöðum í Blönduhlíð
1854.
Virðingarfylst,
Kjartan Sveinsson
Laugardagsskóli Þjóðræknis-
félagsins tekur aftur til starfa
eftir hátíðarnar næsta laugar-
dag. íslenzk börn skulu enn á
það mint, að þarna býðst fáheyrt
tækifæri til að nema íslenzku
sem ætti með engu móti að láta
undir höfuð leggjast, að færa sér
í nyt. Kenslan er börnunum að
kostnaðarlausu. Ekkert færri
en 6 kennarar bíða, þama á
hverjum laugardegi barna er
nema vilja íslenzku. Það er á-
litlegur barnahópur að vísu, sem
skólann sækir, en það gætu miklu
fleiri börn en gera, notfært sér
þetta. Það gætu um 50 börn ver-
ið í hverjum bekk af þessum sex,
sem þarna eru kendir. Og það
væri eitthvað líkt því sem vera
ætti. Það er til lítils að nauða
um það, að Þjóðræknisfélagið
reyni ekki að gera neitt til að
halda hér við íslenzku, ef al-
menningur skeytir engu um
þennan skóla.
* * *
Bækurnar eru til fróðleiks og
skemtunar. Góðar bækur eru
dýrmæt eign. Látið þær einn-
ig vera til prýðis í bókaskápnum
yðar, með því að senda þær í
band til Davíðs Bjömssonar á
“Heimskringlu”. Verkið vel af
hendi leyst.
afstöðu kvennanna. Flestum
finst, sem konur taki brauðið
frá karlmönnum. Þessi skoðun
styðst við það, að öll stærstu
fyrirtæki Ungverjalands ráða að-
eins ógiítar stúlkur og verk-
smiðjurnar segja jafnvel stúlk-
um upp, er þær giftast. Þetta
gerir ástandið fyrir hinar ungu
konur enn erfiðara, sem ekki
gætu myndað heimili nema því
aðeins að þær fengju að halda
stöðu sinni áfram.
Ungir menn úr borgarastétt
geta ekki kvænst, því bæðí lærðir
og ólærðir fá þá fyrst laun, sem
Karlmenn á þeim aldri eru 3^6
þús., en 436 þús. konur. Kon-
urnar eru« m. ö. o. 70 þús. of
margar.—N. Dbl.
HITT OG ÞETTA
Lokkur úr hári Nelsons flota-
foringja var boðinn upp á upp-
boði í London fyrir skömmu. —
Lokkurinn var “sleginn” manni
einum fyrir 240 krónur.
* * *
Maður af nafni Hogar hefir
ritað bók um Jörund hundadaga-
konung og dró hann saman í tit-
nægja til framfærslu fjölskyldu,' il bókarinnar lífsferil Jörundar.
er þeir eru orðnir 35 ára. Hjá
þeim, sem einnig hafa fyrir for-
eldrum að sjá, frestast gifting-
araldurinn til 40 ára. Hagskýrsl-
urnar sýna, að hjónaband milli
Titillinn er svo hljóðandi:
“Æfisaga og æfintýri Jörgens
Jörgenssons, konungs á íslandi,
skipstjóra, stjórnbyltingar-
manns, ensks stjórnarerindreka,
fertugra manna og tvítugra rithöfundar, leikritaskálds, pré-
kvenna er altaf að verða algeng- dikara, stjórnmálafanga, spila-
ara. í hjónabandi milli ungra fugls, spítalaráðsmanns, útgef-
anda, útlaga og nýlendulögreglu-
þjóns.”
Geta má rita Jörundar, en þau
eru: Saga byltingarinnar á ís-
landi 1809, stórt rit, 381 bls., rit
um verzlun Englendinga og Ame-
ríkumanna í Kyrrahafi, ferða-
saga, bók gegn guðleysi og van-
trú og önnur um kristniboð með-
al heiðingja, um hag Rússaveld-
is og um herför Englendinga til
Kaupmannahafnar 1807.
Þá hefir hann skrifað skáld-
sögur og tvö leikrit og mun þó
annað þeirra vera svo að segja
hreinstolið frá Holberg.
* * *
Vestur á Mýrum var fyrir eitt-
hvað 50 árum kona, sem margir
veittu athygli vegna skapsmuna
hennar. Þegar hún dó, voru ort
um hana þessi eftirmæli:
Nú er kerling í kotin dáin,
kærleika bar og viðkvæmt geð.
Hennar sakna þó held eg fáir,
hún lét þó jafnan gott í té.
Gestrisin, hógvær, heiftrækin,
heldur ótrygg og smálygin.
* * *
í Jamestown í Virginíu, var
elzt’a bygð Englendinga í Ame-
ríku. En á fyrstu árum þeirra,
lá nærri að Indíánar gereyddu
hana, sem aðrar bygðir hvítra
manna. Það sem barg henni var
að Indíáni nokkur varaði Eng-
lendinga við áhlaupi, er landar
sínir byggju yfir. í áhlaupinu
voru 347 Evrópumenn drepnir |
af 1240 alls í þorpinu. Ef um
Jamestown hefði farið, sem aðr-1
ar bygðir Evrópumanna hér, er
haldið fram, að hér hefði ekki
neitt orðið úr nýlendu stofnun
Englandinga.
* * *
f hléi, sem varð á útsendingu
rússnesku stöðvarinnar í Kirow
á dögunum, heyrðu hlustendur
alt í einu háar hrotur.
f fyrstu héldu menn að hér
væri um að ræða gamansemi til
uppfyllingar á dagskránni.
Við nánari athugun kom þó í
ljós, að þulurinn hafði fengið
sér blund og hroturnar stöfuðu
frá honum.
* * *
— Ef þér ekki hættið að slá
mér gullhamra, neyðist eg til að
halda fyrir eyrun.
— Jómfrú Sigríður! Til þess
eru hinar nettu hendur yðar alt
of smáar!
Hitið heimilið með
HEAT GLOW
CARBONIZED
BRIQUETTES
Bezta eldsneyti í hvaða veðri sem er. Ekkert
sót, deyr ekki út og þarf ekki mikinn súg.
VERÐ $12.75 TONNIÐ
Símið 23 811
McGURDY SUPPLY Co. Ltd.
1034 ARLINGTO^ ST.
COUNTESS OF DUFFERIN—Fyrsta gufuvélin er fór frá Winni-
peg vestur til Vancouver á Canadian Pacific járnbrautinni.
NÝJASTI GUFUKETILL CAN. PAC. FÉLAGSINS (Streamlined Engine)
THOR GOLD
Minlng Syndicate
NAMURNAR ERU 20 MII.UR
AUSTUR AF KENORA, ONT.,
VIÐ ANDREW FLÓA —
LAKE OF THE WOODS
Félagið hefir umráð á 400
ekrum í námulandi við Andrew
Bay, I.ake of the VV’oods í Ken-
ora-umdæmi.
SýnLshom af handahófi f nám-
unni hafa reynst frá 50c upp i
$40,000 úr tonninu og í Channel
Samples eru frá 60c upp í $60.00
í tonnlnu.
KAUPIÐ NtT—
A $10 HVERT UNIT
(300—500 hlutir i Unit)
Thor Gold Mininp Syndicate
Head Office: 505 Union Trust
Bldg., Winnipeg Man.
Ráðsmenn:
Forseti: M. J. THORARINSON
370 Stradbrooke St., Winnipeg
Skrifari og féhirðir:
SKOTJ BENJAMINSON
Whittier St., St. Charles, Man.
NY FISKINET
Á NÝJU VERÐI
Skrifið eða lítið inn eftir
Nýrri Verðskrá
Aðeins eina götubreidd frá
Leland Hotel
•
HANNESSON NET and
TWINE COMPANY
106 Travellers Bldg.
Winnipeg, Man.
ÞAÐ ER EKKI EIN
EINASTA LEIÐIN-
LEG STUND EF
SIGLT ER MEÐ
QsunaJíi
OM.
SéeatH&fapJb
Hvort sem þér hygglð á að
ferðast austur yfir Atlantz-
haf eða vestur yfir Kyrra-
haf, þá skrásetjið yður hjá
Canadian Pacific skipunum
fínu, “Empress”, “Duchess”
eða “Mont”. Þessi iínuskip
veita öll möguleg þœgindi á
ferðum yfir hafið. Kurteis-
leg umgengni, ljúffengar
máltiðir, víð dekk að spá-
séra um, hvilustofur, leik-
ir á þilfari, dans, samkomur
og margar fleiri skemtanir
—aldrei daufleg stund.
BEINT SAMBAND
VIÐ ISLAND
Agæt leið frá Canada til Is-
lands, um Skotland, fæst
með Canadlan Pacific gufu-
skipunum, með tíðum og
þægilegum siglingum i
hverri viku.
Leitið frekari upplýsinga hjá
agentl vorum eða W. C. Casey,
Steamship General Passenger
Agent, C. P. R. Building, Win-
nipeg. Sími 92 456-7.