Heimskringla - 25.05.1938, Síða 5
WINNIPEG, 25. MAí 1938
HEIMSKRINGLA
5. SfÐA
L
mm
llluminated fbi’
Siqht Attraitiens
Mynd þessi er af Osborne Stadium, þar sem samkoman til arðs fyrir sumarheimili barna á Hnausum
fer fram 22. júní n. k. Sjá grein um samkomuna á fyrstu síðu.
ný. Systkini hans hér eru
greind og vel gefin. Gísla
Markússon þekti eg einnig. —
Bróðurson hans, Einar M. Ein-
arsson skipherra á varðskipi hér
við strenudr landsins, dvaldi hjá
mér tíma úr vetri, ætlaði að
reyna að ná út enskum togara
er strandaði, en náðist ekki. —
Einar er viðfeldinn og duglegur
maður, og hefir lukkast að ná út
strönduðum skipum. Allmarga
aðra kannast eg við, bæði af
ættartölum og öðru.
En sendi þér þér hér með dá-
lítið um gömlu Öræfingana, og
máttu gera við það sem þér
sýnist, og ert frjáls að því frá
mér. Verð eg að biðja þig að
lesa í málið, því eg er ófær að
skrifa, svo að sumir stafir verða
ráðgáta, og er því kunnugum
helst bjóðandi.
Héðan eru litlar fréttir, öllum
líður vel. Nú er hér alauð jörð
og 7 stiga hiti á Celcíus. í vetur
hefir hér verið lítill snjór og
væg frost. Þó að sumarið væri
þerrilítið, og hey yrðu í minna
iagi, þá komast menn af með
hey, en urðu að kaupa dálítið af
síldarmjöli í fóðurbæti.
í línum þeim er eg sendi þér
síðast mun eg hafa gleymt að
svara þér því er þú baðst mig
um viðvíkjandi Helga mínum.
Hann vill ekki að sagt sé neitt
um sig, og hann mun ekki eiga
mynd af sér. Hann vill gera svo
mörgum sem unt er greiða, án
þess að nefna borgun, og því
bera allir er hann þekkja hlýjan
hug til hans. Þegar eitthvað
þarf að bæta upp á: rafleiðslur,
radíó-tæki, rafeldavélar, sauma-
og prjónavélar og fl., þá hefir
verið leitað til hans, og hann get-
að hjálpað. Hann hefir gengið
að öllum vanalegum heimilis-
verkum. Er afkastamikill og
viðfeldinn í geði. Hann er fædd-
ur 16. marz 1893.
Eg bið þig að fyrirgefa þessar
línur og bera kunningjum min-
um er þú hittir kveðju mína. —
Með hugheilum beztu óskum og
kærstum kveðjum til ykkar
hjónanna.
Þinn einlægur vinur,
Ari Hálfdánarson
ÖRÆFINGAR
Af því að eg vildi stuðla til
þess að félagsskapur, og samtök
gömlu Öræfinga — nú fyrir 80
árum — falli ekki með öllu í
gleymsku þegar við gömlu
mennirnir erum burtkallaðir, þá
ætla eg í fáum orðum að minn-
ast á samtök þeirra í kaupstað-
arferðum.
f þá daga voru þær langar og
erfiðar. — Engir vegir ruddir,
engin kelda brúuð, hvað þá
stærra vatnsfall. Enginn kaup-
staður milli Eyrarbakka að vest-
an og Djúpavogar að austan.
Áður farið var að búa sig í
þær ferðir, komu ráðhygnustu
bændurnir sér saman um, að
hvenær ferðin skyldi farin. Voru
þá send boð um alla sveitina
hvenær skyldi fara á stað. Eng-
inn skyldi fara úr áfangastaðn-
um, Kvíármýri — ef austur var
farið — fyr en síðasta lestin
væri komin þangað. Þegar það-
an var farið, var það orðin ein
lest, þó menn væru frá 30 heim-
ilum. f öðrum sveitum var hún
kölluð “Öræfalest” því aðrar
sveitir voru ekki- saman í einni
lest. Fyrir þennan félagsskap
gátu þeir oft fengið betra verð
fyrir vörur sínar, sem aðallega
var ull, tólg og lítið eitt af tó-
vöru —i sokkum —• og einnig
komist að betri kaupum. Ef
þeim þótti verði'ð ekki viðun-
andi, þá fóru þeir lengra, og
fengu þar betra verð; til Eski-
fjarðar austur, og eitt sinn til
Reykjavíkur. Voru þó komnir
til Eyrarbakka en fréttu, að
betri kjör mætti fá í Reykjavík.
Þá tíma komu oft lausakaup-
menn á seglskipum til landsins,
verzluðu þeir á skipum sínum, og
buðu oft betri kjör en föstu
kaupmennirnir, því þeim kom
vel að geta selt vörur sínar
fljótt, og tefjast sem minst. —
Árið 1858 kom lausakaupmaður
á Djúpavog, að nafni Johnsen.
Öræfingar verzluðu við hann það
sumar, og það næsta, og líkaði
fremur vel; lét hann í ljós á-
nægju, að fá svona viðskifti' á
litlum tíma. Þeir nefndu við
hann hvort hann sæi sér ekki
fært að sigla til Papóss, tók
hann því ekki illa, en lofaði
engu.
Sumarið 1860, er Öræfalestin
var komin áustur yfir Jökulsá í
Lóni, kom maður austan af
Dj úpavog, og segir þéim að
Johnsen sé nýkominn þar á höfn-
ina. Taka þá það ráð, að láta
lestina bíða en senda 2 menn,
Sigurð Ingimundsson og Bjarna
Pálsson austur til að semja við
Johnsen, og fá hann )t,íl að
sigla inn á Papós. Sendimenn
koriíu aftur með þau svör, að
hann ætli' strax að sigla suður,
vindur sé hagstæður og stiltur
sjór. Síðan snýr lestin við og
suður. Þegar hún er komin á
Fjarðareyjar — sem eru austan
Papóss — þá kom skipið inn ós-
inn. Urðu menn þá mjög glaðir
yfir að geta nú stytt kaupferðir
sínar um fullan helming vegar
við að fara til Djúpavogar. —
Sumarið eftir — 1861 — kom
Johnsen með timbur í vöruhús,
og svo einnig vörur. Þetta var
fyrsta vöruhúsið á Papós; hafði
hann þar síðan verzlunarstjóra
meðan hann átti þá verzlun. —
Eftir hann látinn tók við Jörgen
Johnsen sonur hans, mikið
mannsval, sem lét sér ant um
hag viðskiftamanna sinna, eins
og sinn eigin. Þá verzlun átti
hann í nokkur ár.
Fasta verzlun hélst á Papós
frá 1861 til 1897, að Otto Túlin-
íus flutti hana til Hornafjarðar,
sem var þá orðinn eigandi henn-
ar.
Þessi félagsskapur og samtök
með að bæta samgöngurnar, og
stytta kaupstaðarferðir, varð
það heillaspor, er kom mörgum
sveitum að gagni sem má teljast
ómetanlegt; ekki einungis þeim
5 sveitum í Austur-Skaftafells-
sýslu, heldur líka: Fljótshverfi,
Síðu Landbroti, Meðallandi og
að nokkru, Álftaveri og Skaft-
ártungu, því einnig þaðan verz -
uðu menn á Papós áður en verzl-
un byrjaði í Vík í Mýrdal, sem
mun hafa verið 23 árum síðar
lgg4 — að þeir Halldór Jónsson
og Þorsteinn hreppstjóri Jóns-
son búendur í Vík og jarðeigend-
ur þar, pöntuðu vörur frá Eng-
landi, er sendar voru svo til
Vestmannaeyja, og.þaðan á há-
karlaskipi til Víkur og hepnað-
ist vel. Synir þeirra Halldórs
og Þorsteins í Vík í Mýrdal, búa
nú á jörðum sínum, er þeir erfðu
eftir feður sína látna: Jón Hall-
dórsson í Suður-vík, kaupmaður
og bóndi. Jón Þorsteinsson í
Norður-vík bóndi, skrifari sýslu-
manns þar, og settur sýslumað-
ur, þegar hann er fjarverandi,
til dæmis á Alþingi. Báðir vel
gefnir og áreiðanlegir.
Þó að stundum væru svaðil-
farir í þessum ferðum, þá settu
menn það ekki fyrir sig, töldu
það sem annað er ekki væri hægt
að komast hjá. Eitt sinn er þeir
komu frá Djúpavogi, fengu þeir
Jökulsá á Breiðamerkursandi
svo vatnsmikla, að þeir voru 6
tíma að reyna að koma lestinni
yfir, og mistu þá í hana 17 hest-
burði, en gátu um síðir náð,
nema 3 hestburðum er fórust
alveg. Stúlka ein — Þórunn
Pálsdóttir — hraktits af hesti
sínum, en var bjargað með
naumindum, en einn hestur
druknaði. — Síðast druknaði í
henni 1877, Hólmfríður Pálsdótt-
ir, systir Lárusar hómópata og
þeirra mörgu systkina — þá var
ekki farið að reyna að fara yfir
Jökulsá á Jökli.
f þessum ferðum skemtu
menn sér oft á ýmsan hátt,
einkum á heimleið, með söng,
samræðum, glímum og fl. Höfðu
menn oft margs að minnast frá
þeim ferðum þá er fundum bar
saman síðar.
All mikinn útbúnað þurfti í
þessar ferðir: góðan reiðing á
áburðarhesta, gjarðir til vara,
skeifur, nagla, hamar og naglbít
að járna með í áföngum, síðast
var gengið frá nesti sem átti að
duga báðar leiðir. Mest var
haft af hörðum þorski, því hann
var léttur í flutningi, og altaf
jafn góður, en það varð að berja
hann mjög vel, svo hann yrði vel
mjúkur. Héðan voru þessar
ferðir til Eyrarbakka, 3 vikur
þegar vel gekk. Vegurinn var
mikið lengri þá, þegar engir
vegir voru lagðir, og alt óbrúað,
þá varð að krækja mjög oft fyrir
mestu ófærur, og ferja á bátum
menn og flutning yfir stórvötn,
en reka hestana á sundi ýfir,
hvernig sem viðraði, og var það
tilfinnanlegt. Ull og aðrar vörur
fluttu öræfingar í pokum, er
þeir unnu sjálfir, úr faxhári,
bandið í þeim var tvöfalt, með
ýmsum háralit, hafðir röndóttir
og tenntir — annar þráðurinn
hvítur, hinn svartur eða rauður,
eins og fallegast þótti. Voru
hafðir samlitir pokar á hverjum
hesti,. Þótti lestin líta því bet-
ur út, sem þeir voru betur litir.
Skinn voru höfð á þeim til að
hlífa nuddi undir reipunum sem
bundið var með. Reipin voru
rist úr nautshúðum—önnur reipi
voru ónýt.
Nokkrir gömlu öræfingarnir
voru velgefnir á ýmsan hátt. —
Jón nokkur Einarsson í Skafta-
felli. Forfeður hans 8 höfðu
búið þar. Hann var vel að sér í
landafræði, kunni vel dönsku,
Þýzku, nokkuð í latínu, grísku
og hebresku, hagur á tré og
járn; smíðaði til dæmis byssu
með koparhlaupi, vagn með eir
hjólum, var heppinn læknir,
samanber: Þorvaldur Thorodd-
sen, um Austur-Skaftafellssýlu
1894. Andvari, bls. 65.
Gömlu mennirnir voru bæn-
ræknir. Þegar þeir fóru frá
heimilum sínum í ferðalög, og
eins til kirkju, tóku karlmenn af
sér höfuðfötin, og lásu í hljóði
vegabæn, faðirvor, blessunarorð-
in og signdu sig. Sama gerðu
þeir er þeir fóru að morgni úr
áfangastað í kaupstaðarferðum.
Á sunnudögum lásu þeir í helgi-
dagabók, í tjöldum sínum og
sungu sálma eins og heima. Þeir
héldu við húslestrum alla helgi-
daga, á miðvikudögum á föstunni
og kvöldlestrum er þar tilheyrðu.
Passíusálmar voru ætíð sungnir
um föstutímann og hugvekjur
lesnar.
Ýmislegt hefir breyst í ör-
æfum síðan, bæði helgisiðir og
fleira, og þó að framfarir hafi
ekki verið stórstígar þá hafa
menn hér mörg þægindi sem
ekki' þektust í fyrri daga. Nú
eru vörur fluttar héðan, og hing-
að á mótórbátnum “Skaftfell-
ing” — 60 tonna. — Hann legst
hér við fjöruna fram af bænum
þegar sjór er slíkur, og þar skip-
að upp vörum, og út því sem fer
með honum til baka.
Allir hafa nú kerrur til allra
flutninga og hafa því mikið get-
að fækkað hestum. Rafleiðslur
eru á öllum heimilum, frá bæjar-
tækjum — nema 2 — og vatns-
leiðslur eftir pípum alstaðar í
bæina; sú lengsta er þúsund fet,
pípulengd. Á öllum bæjum er
móttökutæki frá útvarpi Reykja-
víkur og víðar.
Póstferðir eru hér 26 á ári, á
hálfs mánaðar fresti. Strand-
ferðir, eimskip, til Hornafjarð-
ar eru nú frá Reykjavík 16, og
frá Hornafirði til Reykjavíkur
15 á ári, svo nú er hægara að
bjarga sér en í gamla daga. Við
hér, megum því ekki gleyma
þeim sem fyrstir urðu til að
bæta samgöngur hér, og voru
brautryðjendur að því mikla
mannkærleiksverki, sem mörg-
um þúsundum urðu til ómetan-
legrar hagsældar — að ógleymd-
um “þörfustu þjónunum.”
. “Eftir lifir mannorð mætt,
þótt maðurinn deyi”. Þeir hafa
sjálfir reist sér minnisvarða
eftir sinn dag þótt aðrir hafi
haft lítið við að minnast þess,
sem skyldi', góðverkin ættu að
lifa, en ekki gleymast.
Johnsen var afi þeirra bræðra:
Gísla Johnsen konsúls — f. 1881
— og Sigfúsar Maríus Johnsen
— f. 1886 — lögfræðingur, báð-
ir nú í Reykjavík. Móðir þeirra,
nú dáin, var Anna Sigríður — f.
1855 — fædd og uppalin á Hofi
í öræfum, dóttir hjónanna þar:
Árna Þórarinsson og Steinunn-
ar Oddsdóttur. Bróðir hennar er
enn á lífi, og er í Canada, Sveinn
Árnason Skaftfell, fæddur á
Hofi 6. okt. 1859.
— Fagurhólsmýri.
Ari Hálfdánarson
TIL VINA OG KUNN-
INGJA VESTAN HAFS
Þið báðuð mig þess, þegar eg
kvaddi ykkur, að skrifa sem
fyrst og segja hvernig heimferð-
in gengi. — Eg hefði meira en
gjarna viljað verða við þessari
bón ykkar og helzt að skrifa
ykkur öllum línu, það væri bæði
skylt og kært, svo ant sem þið
létuð ykkur um minn hag með-
an eg var vestra, en þegar hing-
að er komið í heimsborgina, er
um annað að hugsa en bréfa-
skriftir og ætla eg því að biðja
“Heimskringlu” að vera bréf
fyrir mig í þetta skifti'.
Alt hefir gengið ágætlega það
sem af er leiðinni.
Eg byrjaði ferðina með því
að dvelja 4 daga í Toronto á
austurleiðinni, var þar í besta
yfirliti hjá Fords-hjónunum
(Valdheiði Briem frá Riverton
og manni hennar), hitti þar í
borg nokkra fleiri ágæta landa
og naut gestrisni þeirra og vin-
semdar. Fords-hjónin voru svo
væn að fara með mig til Niagara-
fossanna fögru og tröllauknu.
Vorið var í algleymingi þarna
rétt um sumarmálin: trén al-
laufguð, jörðin iðgræn og ávaxta
trén í fullum blóma. Bærinn og
landið í kring er gullfallegt.
Ferðin yfir hafið tók okkur 9
daga, en veðrið var svo gott all-
an tímann, að fáum eða engum
datt sjóveiki í hug. Aðbúnaður
allur Ííka hinn bezti á skipinu,
svo þessir dagar urðu sannarlega
Þér sam noti8—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO.t LTD.
Biryðir: Henry Avb. Eait
Sími 95 551—95 552
Skrlfgtofa:
Henry Argyie
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
hvíldar — 0g hressingardagar,
sem menn notuðu til að sofa, éta
og sóla sig. — Um þetta leyti
ars er fremur fátt um ferðafólk,
svo olnbogarúm var nóg á skip-
inu.
Samferðafólkið, sem eg hafði
mest af að segja, var Ásmundur
Jóhannson frá Winnipeg og frú
hans, ágætir ferðafélagar að öllu
leyti.
Við höfðum kvöldvökur í hí-
býlum þeirra hjóna á skipinu á
hverju kvöldi og lásum hátt til
skiftis ýmist í Njálu eða í
“Kvöldræðum” séra Magnúsar
Helgasonar. Höfðum “ágætan
tíma eins og þið segið fyrir
vestan. ^
Suður-England er frjósamt og
fagurt, var baðað í sól, er við
sigldum inn til Southampton í
gærdag. — Eg á til góða þriðja
vorið að þessu sumri — á fs-
landi. Það verður nú þrátt fyrir
alt það fegursta spái eg.
Nú liggur fyrir að skoða það
sem hægt er að komast yfir af
stórvirkjum þessarar miklu
borgar og að hafa sýningu á ís-
leizku heimavinnunna hjá fjöl-
mennu kvenfélagi hér í bæ.
Eg vona að eg fái tíma til að
skoða sýninguna í Glasgow í
heimleiðinni og e. t. v. að heim-
sækja skozku eyjarnar, en þær
hefir mig lengi' langað til að sjá.
Svo bið eg ykkur öll vel að
lifa. óska og vona að ykkar
fagra og góða land fái nú hag-
stæð veðraföll og góðar og frjó-
samar tíðir á komandi sumri.
Með þakklæti og vináttu,
Halldóra Bjarnadóttir
Um kosningarnar
í Saskatchewan má margt
heyra og lesa síðan Aberhart
skarst í þann leik. Þeir sem
fylgja að málum stjórninni' í
Saskatchewan segja ljótar frétt-
ir af þeim karli, hvað hann sé
ósvífinn og kærulaus um stjórn-
arskrána og góðar og gamlar
venjur. Sú góða og gamla venja
(svarar hann) sem stjórnin í
Saskatchewan vill að haldist, er
sú að sitja í hálaunuðum em-
bættum og taka lán á lán ofan
með háum rentum, upp á fólks-
ins reikning, þangað til fúlgan er
orðin svo gífurleg að taka verð-
ur lán til að borga renturnar —
og það er það sem nú er gert í
því fylki, (segir hann). Þá er
honum sendur tónninn, heldur
en ekki: að hann æsi almenning
með falsi og trúarlegu moldviðri'
og ætli sér einræði á sléttum
þessa fagra og frjósama lands.
Þess þarf varla að geta, sem
alkunnugt er, að Mr. Aberhart
hefir munninn fyrir neðan nefið
og lætur ekki standa upp á sig,
þegar orðum skal beita.
Jón Bjarnason Academy Ladies’
Guild Annual Lilac Tea
The Jón Bjarnason Academy
Ladies’ Guild will hold its an-
nual lilac tea at the school, 652
Home St., on Fri., June 3, from
2.30 to 11.30 p.m.
Mrs. Elenborg Hansson will
superintend at the apron and
novelty booth. Mrs. T. E. Thor-
stemsson will take charge of the
home cooking sale. Two quilts
embroidered in the school colors
will be on dispíay. A profusion
of lovely lilacs, brought from
the home of Mrs. A. S. Bardal,
president of the guild, will add
to the beauty of the rooms. Miss
Betty McCaw will convene.
Betty McCaw, sec.