Heimskringla - 01.02.1939, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 1. FEBRÚAK 1939
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
BRÉF TIL HKR.
Mountain, N. Dak.,
25. jan. 1939.
Herra Ritstjóri “Hkr.”:
Vildur þú gera svo vel að ljá
eftirfylgjandi línum rúm í blað-
inu ? — Svo er mál með vexti að
þjóðræknisdeildin “Báran” held-
ur ársfund sinn á laugardaginn,
4. feb. n. k. í skólahúsinu á
Mountain kl. 2 e. h., að öllu for-
fallalausu, og viljum við með
þessum línum gefa öllum félags-
meðlimum þetta til kynna. Og
eru allir er hlut eiga að máli
beðnir að festa þetta vel í minni,
og hegða sér þar eftir. — Á þess-
um fundi verða kosnir erindrek-
ar til að mæta á næsta Þjóð-
ræknisþingi, og svo embættis-
menn fyrir næsta ár. Þar að
auki þarf að taka til íhugunar
áframhald á kenslu í íslenzku og
söng, sem legið hefir í dái síðan
um jól, — Á því hvorttveggja
þarf að byrja strax og vegir
batna, ef deildin sér möguleika á
því. — Það er því vonandi að
allir sem láta sig þessi málefni
nokkuð skifta geri sitt ítrasta til
að komast á þenna fund. Með
því líka að lögð hafi verið drög
fyrir að allir geti fengið heitt
kaffi, með allskonar sætabrauði,
og þar á meðal bita af afmælis-
köku króans, sem verður árs-
gamall um það leyti.
Verði nú stórhríð þenna dag,
svo að ekki sé hundi útsigandi þá
verður fundinum frestað til
næsta laugardags (þess 11.)
Setjið nú orðin “Fram, fram,* 1
aldrei að víkja” við þessa tvo
daga á mánaðardeginum, svo þið
gleymið ekki hvenær þið eigið
að spenna hestana fyrir sleðann,
eða hafa bílinn í lagi.
í umboði stjórnarnefndar,
Thorl. Thorfinnssonr
skrifari.
HVÍSLAÐ í EYRA
Það virðist standa talsverður
byr um þessar mundir í segl
þjóðrækni okkar Vestur-íslend-
inga, og má þar margt til nefna,
sem svo hlýleikann í ræðum og
ljóði er þeir fluttu heimaþjóð-
inni í árnaðaróskum sínum á
fullveldisdgei hennar síðastl. 1.
des.; alla þátttöku þeirra frá
byrjun í íslands-sýningunni í
New York, og síðast en ekki
sízt, hinar almennu undirtektir
þeirra til Leifs-myndastyttunnar
er nú standa yfir um þessar
mundir.
Þessvegna stingur það mjög í
stúf, er því er hvíslað að manni,
að velmetnir og áhrifamiklir fs-
lendingar beiti sér á móti theið-
virðum og framtakssömum
landa sínum til útnefningar hans
til fylkisþings í næstkomandi
kosningum, sem þó heyra báðir
til sama stjórnmálaflokki, en
mæli með og vinni að útnefningu
annara þjóða manns. Er þetta
illa farið, ef satt 'er.
Eg á hér við framboð herra
Thor Límans oddvita Bifröst-
sveitar.
Ef þessir tveir menn væru
andstæðingar í landsmálum, eða
ef Thor væri bara einhver ó-
reyndur og óþektur landi, sem
aldrei hefði komið við sögu kjör-
dæmisins, þá gæti verið öðru
máli að gegna, en hér er um
mann að ræða, sem hefir sýnt og
sannað, að hann kann með völd
að fara, og er vel til þess fallinn
að vera í opinberum stöðum. Það
er því býsna hart að trúa, að
nokkur landi fáist til að trana
öðrum óþektum og óíslenzkum
manni fram í íslenzkasta kjör-
dæmi Canada.
Gerum ráð fyrir að hinn um-
sækjandinn sé mætur maður í
alla staði, en hversu góður sem
hann kann að vera, verður hann
aldrei íslendingur að eilífu, og
þar af leiðandi verður hans heið-
ur aldrei okkar heiður, þó hann
■hins vegar gæti komið einhverj-
um landa að gagni.
Það ætti að vera metnaður
okkar að eiga sem flesta íslend-
inga, sem því eru vaxnir, í opin-
berum stöðum þessa lands, og
heilög skylda allra íslendinga
ætti að vera sú, að styðja þá og
styrkja í þær stöður.
Fámennur og dreifður þjóð-
flokkur, eins og við erum, verður
að sækja alla sína framþróun í
hendur annara miklu sterkari,
þessvegna ber okkur að leggja
rækt við okkur sjálfa og vekja
trú og traust á okkar beztu
mönnum.
“Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér.”
Sveinn Oddsson
ÆFIMINNING
Jóhanna Guðmundsdóttir
Hinn 5. sept. síðastliðinn, and-
aðist að heimili barna sinna í
Bellingham, heiðurskonan Jó-
hanna Guðmundsdóttir, um 76
ára að aldri. Fæðingarár henn-
ar, að því er næst varð komist,
var 1862. Hún var fædd í Selja-
tungu í Árnessýslu, á fslandi.
Foreldrar henanr voru Guð-
mundur Vgifússon, bóndi í Selja-
tungu og kona hans Elísabet
Jónsdóttir. Ekki verður ætt
hennar frekar rakin hér. Þess
skal þó getið, að í föðurætt sína
var hún þremenningur að frænd-
semi við Einar, listamann Jóns-
son frá Galtafelli og í móðurætt
sína var hún jafnskild Brynjólfi
Jónssyni, frá Minna-Núpi.
Jóhanna ólst upp með foreldr-
um sínum fram yfir fermingar
aldur. Fór hún þá til Reykja-
víkur til að vinna fyrir sér. Þar
giftist hún Ólafi Guðmunds-
syni, formanni. Varð þeim hjón-
um 5 barna auðið áður Ólafur
duknaði af skútu árið 1898. —
Hófst þá hin langa og hvíldar-
lausa barátta móðurinnar fyrir
lífi barna sinna. Árið 1900 afréð
hún að freista gæfunnar fyrir
vestan haf. Staðnæmdist hún
fyrst í Winnipeg og dvaldi þar
eitt ár. Þá flutti hún til Sask-
atchewan fylkis og nam þar land
nálægt þorpinu Leslie. Þar bjó
hún með börnum sínum nokkur
ár, en tók sig þá upp að nýju og
hélt enn í vestur, í þetta sinn
alla leið vestur á Kyrrahafs-
strönd. Eyddi hún þvi sem eftir
var æfinnar á ýmsum stöðum
hér í norðvestur horni Washing-
ton ríkisins, svo sem Point Rob-
erts Blaíne og Bellingham.
Auk þeirra 5 barna, sem Jó-
hanna sál. eignaðist með manni
sinum á fslandi ,átti hún 3 börn
hér vestra. Eru öll börn henn-
ar, eftir aldursröð þessi: 1.
Elizabett, gift Sigurði Björns-
syni í Sardis, British Columbia;
2. Sigurjón, giftur á fslandi; 3.
Brynjólfur, giftur amerískri
konu, býr í Seattle; 4. Guðmund-
ur, dó í æsku; 5. Rose, ógift, býr
í Bellingham; 6. Ágústa, gift
Theodór Líndal, býr í Mozart,
Sask.; 7. Héðinn Ingvar, giftur
amerískri konu, býr í Seattle;
8. Guðmundur, ógiftur, býr í
Bellingham. önnur og þriðja
kynslóð afkomenda hennar hér,
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask..........................K. J. Abrahamson
Árnes................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg.................................G. O. Einarsson
Baldur...........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville.........................................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury.............................H. O. Loptsson
Brown............................... Thorst. J. Gíslason
Churchbridge..........................H. A. Hinriksson
Cypress River............................Páll Anderson
Dafoe...................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros...............................J. H. Goodmundson
Elriksdale.............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli....................................K. Kjernested
Geysir.............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Hayland................................Slg. B. Helgason
Hecla.................................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................Gestur S. Vídal
Húsavik................................John Kernested
Innisfail........................... Ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................S. S. Anderson
Keewatin...........................................Sigm. Björnsson
Langruth.............................................B. Eyjólfsson
Leslie....,.......................... Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville......................... Ófeigur Sigurðsson
Mozart...................................S. S. Anderson
Oak Point.............................Mrs. L. S. Taylor
Oakview...............................................S. Sigfússon
Otto...............................................Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer........................................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík...........................................Árni Pálsson
Rlverton..........................................Björn Hjörleifsson
Selkirk........................... Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man......................K. J. Abrahamson
Steep Rock........................................Fred Snædal
Stony Hill........................................Björn Hördal
Tantallon..............................Guðm. ólafsson
Thornhill............................Thorst. J. Gíslason
Vfðir..................................~Áug. Einarsson
Vancouver.......................... Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.......................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach.........................John Kernested
Wynyard.................................S. S. Anderson
i BANDARÍKJUNUM:
Akra................................ Jón K. Einarsson
Bantry..................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash....................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier............................ Jón K. Einarsson
Crystal...............................Th. Thorfinnsson
Edinburg..............................Th. Thorfinnsson
Garðar................................Th. Thorfinnsson
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. Einarsson
Hensel..................................J. K. Einarsson
Ivanhoe...:.........................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton..............................................S. Goodman
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain..............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, WaBh.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarsson
Upham..................................E. J. BreiðfjörO
The Viking Press Limited
Winnipeg. Manitoba
Garðræktuð Huckleber
Hinn gagnlegasti,
fegursti og vinsæl-
asti garðávöxtur
sem til er.
Þessi fögru ber
spretta upp af fræi á
frysta ári. Öviðjafn-
anleg í pæ og sýltu.
Ávaxtasöm, berin
en vanaleg
Huckleber eða Blá-
ber. Soðin með epl-
um, 1 í m 6 n u m eða
fínasta aldinahlaup.
jarðvegi. Pakkinn
15c próstgjald 3c.
SÉRSTAKT KOSTABOЗ10 fræ-
gera
Spretta í öllum
pakkar af margskonar nytsömum ný-
fundnum garðávöxtum (Huckleberin
meðtalin) er vekja undrun yðar og
gleði, allir á 65 c póstfrítt.
ÓKEYPIS—Stór 1939 útsæðis og
ræktunar bók.
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
voru, við lát hennar, 16 barna-
börn og 2 barnabarnabörn. Tvo
bræður á hún á Point Roberts:
Ingvar og Elías, sem eru tví-
burar. Ekki er þeim er þetta
ritar kunnugt um fleiri náin
skyldmenni.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrifstof usími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að flnnl & skrifatofu kl. 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsimi: 33 ÍSS
Thorvaldson & Eggertson
v Lögfræðingar
702 ConfederaUon Llfe Bldg.
Talsími 07 024
Orrici Phohb R*s. Pnon 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 108 MEDICAL ARTS BUILDINO Ornci Houbs: 12 - 1 4 r.æ. - 6 r.u. amd bt AProurmirr W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZKIR LOOFRÆÐINOAR 6. öðru gólfi 335 Main Street Talsimi: 97 621 Haía einnig skrifatofur að kundAr og Glmll og eru þar að hitta, fyrsta mlðvlkudag f hverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannesion
M. HJALTASON, M.D.
Jóhanna sál. var hraust og
tápmikil kona, enda þurfti hún á
því að halda, því lífsbaráttan
vægði henni lítt. Hún var vel
greind kona, vel máli farin, orð-
heppin og ómyrk í svörum, ef því
var að skifta. Get eg þess til, að
henni hafi stundum verið gáfa
sú góð að geta komið fyrir sig
orði þegar heimskan og skiln-
ingsleysið áreittu hana. Þó
geymdi hún ekki beiskju né hat-
ur í hjarta til neins þeirra sem
særðu hana eða ollu henni von-
brigðum. Hún geymdi glaðlyndi
sitt og góðvild gegnum alt sitt
stríð. Nágrönnum sínum var
hún ætíð reiðubúin að rétta
hjálpfúsa hönd til að létta byrði
þeirra, þótt hennar eigin byrði
væri oftast ærið nógu þung. Góð-
vild hennar, glaðlyndi og hnittni
í svörum vara lengi í minni þeirra
sem þektu hana og hlýr og mun-
klökkur hugur margra nágranna
hennar, sem töldu hana meðal1
vina sinna, sveif yfir hinum síð-
asta hvílustað hennar.
En móðurstarfið var lífsstarf
hennar. Fyrir börnin sín lagði
hún fram alla sína krafta og
þeim gaf hún alla sína ást. Að
koma þeim til manns, án þess að
leita aðstoðar annara var lífs-1
takmark hennar og því takmarki
náði hún með heiðri. Hún þráði
að fá að lifa þannig að hún yrði
aldrei öðrum til byrði. Þann;
metnað sinn tókst henni líka að j
varðveita til æfiloka, því þó
hún væri til heimilis hjá börnum
sínum, Rose og Guðmundi, all-
mörg síðustu ár æfinnar, var
hún ætíð sístarfandi og vann
fyllilega fyrir sér. Dauðanum
mætti hún með sömu djörfung,
sem hún sýndi í allri sinni lífs-
baráttu. Hygg eg sönnu næst að
lífsviðhorfi hennar sé vel lýst í
þessu erindi eftir Stephan G.
Stephansson.
“Alt líf verður gengt, meðan
hugur og hönd
Og hjarta er fært til að vinna.
Og gröfin er ljúf fyrir geiglausa
önd,
Og gott er að deyja til sinna.”
Til að hlúa að því lífi sem átti
að lifa hana var öllum hennar
kröftum varið, og öllu fornað til
þess að það líf mætti verða sælla
en hennar. Hún eignaðist því
þann ódauðleika, sem lýst er í
þessu erindi Stephans:
“Þú átt líf, sem lifir dauðann
þig,
Líf'þitt ef að gekk í stefnu
þessa:
Sælla lífi, er lifði eftir sig,
Leggja hönd á koll, og vöxt þess
blessa.”
Börnum sínum innrætti hún
virðingu fyrir ætt sinni og upp-
runa, því trygð hennar til ætt-
jarðarinnar var jafn ósvikin og
ást hennar til barna sinna. Um
þetta ber ráðstöfun hennar fyrir
sínum jarðnesku leifum, meðal
annars, vott. En hún sagði svo
fyrir að brenna skildi lík sitt, og
senda öskuna heim til íslands.
272 Home St.
Talsíml 30 877
VlOtalstiml kl. 3—S e. h.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Inturance and Ftnancial
AaanU
Slml: 94 221
#•6 PARI8 BLDG.—Wlnnlpeg
Gunnar Erlendsson
Pianokennari
Kenslustofa, 796 Banning St.
Sími 89 407
Jacob F. Bjamason
—TRAN SFER—
Baggage and Furniturt Movtng
.691 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allslconar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 88124 Res. 36 888
Urðu börn hennar fúslega við
þessari ósk hennar.
Sigur hins langa og erfiða lífs-
stríðs Jóhönnu sál. var hverjum
þeim augljós er leit yfir hinn
fríða og mannvænlega hóp af-
komendanna, er safnaðist um
hina síðustu hvílu hennar, vegna
þeirrar ástar, þakklætistilfinn-
ingar og virðingar sem æfilöng
móðurumhyggja hafði vakið hjá
þeim. Orðin sem Stephan G.
Stephansson festi við kransinn,
sem hann lagði á leiði sinnar
móður, eiga hér vel við:
“Við þakkir, með kærleika-
kransinn þinn bjarta
Hér hvílir þitt útblædda móður-
hjarta.”
í Guðs friði, hreinlynda, heil-
steypta, íslenzka kona.
A. E. K.
íslendingar!
i
Þér sem eruð bókamenn og
bókavinir! Munið eftir því, að
þér aukið þægindi yðar, og
prýðið alt í kring um yður, með
því, að láta binda og gylla bækur
yðar. Þá þurfið þér ekki annað,
en að renna augunum yfir kjöl-
inn á bókunum, til þess að finna
bókina, sem þér þurfið á að
halda. Sendið því bækur yðar,
sem fyrst, í band eða viðgerð,
til Davíðs Björnssonar að
“Heimskringlu”. — Stafirnir
þryktir í gull eða silfur á kjöl-
inn, eftir því sem óskað er. —
Miklu efni úr að velja í mörgum
litum. Verkið vel af hendi leyst.
ALMENNAR LÆKNINOAR
Sérgrein: Taugatjúkdómar
Lætur útl meðöl í viðlögum
VltJtalstímar kl. 2__4 e. k.
7—8 aTJ kveldlnu
Slml 80 867 666 Vlctor St.
A. S. BARDAL
selur Ukklstur og annast um útf&r-
lr. Allur útbúnaður s& bestl. _
Ennfremur selur hann aLlskonar
mlnnJsvarða og legstelna.
843 SHERBROOKE 8T.
Phone: 86 607 WINNIPEO
thl watch shop
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watcheg
.Marriage Licensea Issued
699 Sargent Ave.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dume Ave. Phone 94 954
Fresb Cut Flowers Dally
Plants In Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Deslgns
Icelandlc spoken
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
l$4 BANNINO ST.
Phone: 26 480
Office Phone Res. Phone
21 169 48 551
Dr. K. J. AUSTMANN
309-310 Medical Arts Bldg.
Eye, Ear, Nose and Throat
Office Hours: 9—12 a.m.
Evenings—by appointment only.
SÖGULEGIR
FRÓÐLEIKSMOLAR
Fyrstu tildrög til sveitarst jómar
í Siglunes-héraðinu
Fundur var haldinn á Siglu-
nes-skóla á laugard. 15. febr.
1919. Voru þar mættir allmarg-
ir bændur úr Siglunes-bygð.
B’undarstjóri var kosinn Jónas
K. Jónasson en skrifari Guðm.
Jónsson.
Forseti lýsti því yfir að verk-
efni fundarins væri að ræða um
stofnun sveitarstjórnarfélags í
Siglunes umdæmi.
Eftir nokkrar umræður var
það samþykt með öllum atkvæð-
um að bjóða til almenns fundar
á Hayland samkomuhúsi fyrir
alt það svæði er hið tilvonandi
sveitarstjórnarfélag nær yfir,
ekki síðar en síðasta marz næst-
komandi. Var fundarstjóra fal-
ið á hendur að boða fundinn á
þeim tíma sem hann áliti hent-
ugast.
Fleira kom ekki til umræðu.
Var svo fundi slitið.
J. K. Jónasson, forseti
Guðm. Jónsson, skrifari