Heimskringla - 19.06.1940, Qupperneq 1
The Modern Housewlfe Knows
Quality That ia Why She Selects
“CANADA
BREAD’’
"The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 39 017
LIV. ÁRGANGUR
ALWAY8 ASK FOB—
“Butter-Nut
Bread’’
The Flnest Loaf ln Canada
Rich as Butter—Sweet aa a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 19. JÚNí 1940
NÚMER 38.
Frakkar fara fram á frið
við Þjóðverja
Stjórnin á Frakklandi tilkynti
Hitler s. 1. mánudag, að hún
væri fús til að semja frið.
Stríðinu á Frakklandi var þar
komið, að til þessa úrræðis var
gripið. En jafnvel þó sigur
Þjóðverja í Champagne megi úr-
slita-orusta heita og Frakkland
sé að mestu tekið, er í friðar um-
leitan Frakka svo fyrir mælt, að
því að eins, að um sæmilega frið-
arkosti sé að ræða af hálfu Hitl-
ers, verði friður aðhylstur.
Friðartilboð sitt sendi Henri
Petain marskálkur forsætisráð-
herra Frakka, Franco, einræðis-
herra Spánar, er koma átti því
fyrir augu Hitlers. Franco og
Petain eru sagðir miklir vinir.
Á þriðjudaginn (í gær) var
svo sagt, að Hitler, Mussolini og
Franco ætluðu að hittast í Mun-
ich, að því er haldið var, og gera
uppkast að friðarskilmálunum.
Verði fréttir af iþví komnar
áður en blað þetta kemur út,
verður þeirra getið í sérstakri
frétt.
Á Frakklandi hefir á ýmsu
gengið undanfarna daga.
Síðast liðinn föstudag, tóku
Þjóðverjar París. Gerðist það
með þeim hætti, að Frakkar
lýstu borgina opna eða óháða í
stríðinu og að þar yrði ekki bar-
ist. Þegar þeir gátu ekki lengur
varið borgina, var þetta gert, til
þess að koma í veg fyrir frekari
skemdir. Er hörmulegt til þess
að vita, að fegurstu borgir séu
tættar sundur með sprengjum
og alt það sem til lista er og
prýði, gereyðilagt. Þegar ítalía
fór í stríðið, var Rómaborg einn-
ig lýst óháð. Þegar Þjóðverjar
komust því til Parísar, var þar
engin fyrirstaða. Vopnlausir
lögreglumenn tóku á móti þeim
við hliðin. Gengu Þjóðverjar
því að hverju þar sem þá lysti.
Útvörpuðu þeir um híæl á þýzku,
að París væri tekin eða fallin í
hendur Þjóðverjum. Swastikan
blakti við hún yfir borginni.
En áður en þessi tíðindi gerð-
ust, hafði stjórnin í Frakklandi
flutt sig úr París suðvestur til
borgar, sem heitir Tours. Var
þar búið í góðu yfirlæti í nokkra
daga, en áður en vika var liðin,
varð að flýja þaðan, til borg-
arinnar Bordeaux, nærri suð-
vestur við haf. Þaðan var
skeytið um frið sent til Spánar.
Þegar nazistar höfðu tekið
París óg borgirnar norður og
vestur af henni: Rouen (Rúðu,
þar sem Rúðujarlarnir áttu forð-
um heima), Le Havre og ótal
fleiri og þýzki herinn sótti
óðum suður fyrir austan París,
var úr vöndu að ráða hvað gera
skyldi. Átti Reynaud, stjórnar-
formaður Frakka þá marga
fundi með ráðuneyti sínu um
hvað gera skyldi, hvort halda
ætti stríðinu áfram eða gefast
upp. Var þá jafnframt leitað
álits Bretastjórnar og Roose-
velts forseta um það og hvaða
hjálp mætti frá þeim vænta, ef
stríðinu yrði haldið áfram. —
Roosevelt forseti lofaði vopnum
og varningi og allri aðstoð nema
þátttöku beinni með herliði. —
Bretar voru auðvitað að gera alt
sem þeim var unt. Höfðu þeir
ausið hef inn í landið og vopn-
um. Verða þeir nú, þar sem
Frakkland má heita tapað, að
flytja það aftur heim, eins og
frá Flandern. En hvað sem
þessu líður virðist, sem ráðu-
ueyti Frakka hafi ekki verið á
eitt sátt um að halda stríðinu
áfram. Stjórn Frakka horfðist
í augu við það, að gefast upp
eða flýja land og halda áfram
sem stjórn í fjarlægu landi. út
af þessu virðist Reynaud forsæt-
isráðherra hafa orðið að fara frá
völdum. Hann mun hafa verið
með því, að Frakkland héldi
stríðinu áfram, en semdi ekki
frið við Hitler. Aftur er ætlað
að meiri hluti ráðuneytis hans
hafi verið með því, að semja
frið.
Á sunnudaginn kallar svo Le-
brun, forseti Frakklands, Henri
Petain, marskálk, nafnfrægan
fyrir herstjórn sína við Verdun
í fyrra stríði og biður hann að
mynda stjóm. Petain er 84 ára
gamall. Horfir hann samt ekki
í að verða stjórnarleiðtogi. —
Kvaddi hann í stjórnina með sér
Weygand, yfirhershöfðingja og
fleiri úr hernum. Daginn eftir
að hinn aldni hershöfðingi tók
við völdum, flutti hann fimm
mínútna ræðu í útvarpið og til-
kynti þjóðinni, að svo Væri kom-
ið, að til lítils virtist að berjast
lengur og að hann hefði sent
Hitler orð um að Frakkland væri
fúst til að semja frið, með heið-
arlegum skilmálum boðnum af
hálfu Hitlers.
Norður-Frakkland má nú
heita, að Þjóðverjar hafi tekið
alt að því 90 mílur suður fyrir
París. Sókn þeirra fram eftir
Champagne-héraði, að norðan á
bak við eða vestan við Marginot-
virkin, nálega suður til Sviss,
sleit hersveitir Frakkar sundur
og samband hersins á norður-
vígstöðvunum, við herinn í Ma-
ginot-virkjunum. Magjnot-
virkin eru voldug eins og allir
vita og úr þeim má skjóta úr
hinum miklu byssum bæði aftur
og fram. En nú voru þau ein-
angruð og höfðu ekkert að gera.
Yfirgáfu því hermennirnir þau
og reyndu að berjast með hern-
um annar staðar um Frakkland,
langt fyrir innan eða vestan
virkin.
En þrátt fyrir þetta skakka-
fall, er enn haldið fram, að
Frakkar haldi uppi góðri vörn á
hernaðarsvæðinu, sem heita má
að sé þvert yfir Frakkland, um
90 mílur fyrir sunnan París. Þó
að þeir hafi orðið að hörfa und-
an, hafa þeir ávalt gert það án
þess að herinn tvístraðist.
Sigur Þjóðverja í Frakklandi
er þakkaður hinum mikla fjölda
skriðdreka þeirra og sprengju-
loftskipa. Eru þeir að þessu
leyti svo miklu betur útbúnir en
Frakkar, að 4 skriðdreka (tanks)
hafa á móti hverjum einum
Frakkanna. Og svipað er með
loftherinn. Alls er sagt að um
2 milj. þýzkra hermanna hafi
tekið þátt í stríðinu á Norður-
Frakklandi. Er það eflaust
einnig meira lið en Frakkar
höfðu þar, vegna þess, að í
Maginot-virkjunum varð fjöldi
liðsmanna þeirra að vera og eftir
að ítalía fór í stríðið, urðu 50
hersveitir að sinna þeim. ítalir
unnu auðvitað ekkert á og
reyndu ekki til þess, en her
þeirra á suðaustur landamærum
Frakklands tók svona margar
sveitir frá því að verjast árás
Hitlers á París. Þar sem svona
ólíkt var um herútbúnaðinn, var
ekki von að vel færi. Og þó
hefði leikurinn ójafnari reynst,
ef Bretar hefðu ekki með loft-
her sínum og öðru liði eflt og
stutt Frakka.
Þó komið sé nú þannig, að
ólíklegt sé að Frakklandi sjálfu
verði bjargað, er hitt samt
nokkurt vafamál, hvort hag-
kvæmast sé að þeir semji frið.
Með þeim friði, verða þeir ef-
laust að láta nýlendur sínar,
flug- og skipaflota af hendi. Ef
þeir flyttu stjórnarsetur sitt til
Afríku eða Englands, og björg-
uðu því af hernum sem hægt
væri, en létu Þjóðverja hafa
Frakkland sjálft, væri óvíst
hvernig færi fyrir Hitler, með
brezka og frakkneska flotann á
móti sér. Bretland heldur stríð-
inu áfram, eftir sem áður, og
það er svo langt frá því, að
nokkur endanlegur sigur sé unn-
in með því fyrir Hitler, að taka
þessi smálönd í kringum sig, ef
þeir ekki geta náð í nýlendur
þeirra, að Hitler er jafnvel
hættulegar staddur með þau, en
án þeirra. Það eru yfirráðin á
sjónum, sem frá þessu sjónar-
miði skoðað, varða mestu og
Bretar hafa þau enn, eins og
þeir hafa lengi haft og munu
hafa, óskert.
Það er ekki ómögulegt, að úr
friðargerðinni verði lítið, ekki
sízt ef Hitler er órýmilegur. —
Frakkar geta enn barist eins og
á hefir verið bent, meira að segja
heima fyrir, og með von á vopn-
um frá Bandaríkjunum og vopn-
um og liði ávalt frá Bretlandi,
á Hitler sér ekki góðs von enn af
Bandaþ jóðunum.
Herskyldá í Canada
fyrir innanlands herinn
f i'æðu sem Mackenzie King,
forsætisráðherra Canada hélt á
sambandsþinginu í gær (þriðju-
dag), gat hann þess, að frum-
varp yrði mjög bráðlega borið
upp um að herskylda bæði menn
og auð í Canada í þágu innan-
lands hersins.
Sjálfboða-aðferðin er eftir
sem áður í gildi við öflun í þjón-
ustu í her í Evrópu.
Skráning yfir mannafla í Can-
ada mun því innan skamms fara
fram.
í ræðunni mintist forsætis-
ráðherra ennfremur á stofnun
nýrrar stjórnardeildar, er her-
málastörf annast (National War
Service).
Canadiskur her á íslandi
f gær skýrði forsætisráðherra
Canada sambandsþinginu frá
því, að her frá Canada væri kom-
inn til íslands (The First Con-
tingent of the Canadian Ex-
peditionary Force). Engin frek-
ari skýring fylgdi þessu. En
sunnan frá Oklahoma hlustuðu
nokkrir landar í Winnipeg í
fyrradag á útvarp og var þess
þar getið, að þýzkur fallhlífar-
her væri á leið frá Noregi til fs-
lands til að líta sér eftir flug-
stöð.
Frakkneski sjófloíinn
Blað í New York er um fjár-
mál f jallar (The Journal of Com-
merce) og sem talið er mjög á-
reiðanlegt, getur þess í fréttum
í gær að frakkneski sjóflotinn
hafi verið afhentur Bretum s. 1.
föstudag. Fréttin er óstaðfest
af hlutaðeigandi stjórnum.
Hitler í Munich
Hitler og Mussolini komu til
Munich í gær og þinguðu í tvter
klukkustundir um forlög Frakk-
lands, sem þeir þykjast nú hafa
í hendi sér. Þeir komu sér sam-
an um friðarskilmála, að sagt er.
En hverjir þeir voru, verður
ekki tilkynt fyr en Frakkar hafa
yfrivegað þá og annað hvort
hafnað þeim eða samþykt.
Haldið áfram að berjast
Henri Petain, forsætisráðh.
Frakka og Maxime Weygand,
yfirherforingi, skipuðu herliði
Frakklands í gær að halda á-
fram að berjast, unz tilkynning
um vopnahlé yrði gefin.
Churchill segir að Bretar
berjist uuz sigur sé unnin
í ræðu sem Winston Chur-
chill, forsætisráðherra Breta
hélt í gær, kvað hann þjóð sína
vera ákveðna í að halda stríðinu
áfram, unz sigur væri unnin.
Hitler kvað hann aldrei geta
unnið England. Líkurnar væru
meir til að brezki flotinn svelti
Þjóðverja inni á komandi vetri.
Af 400,000 hermönnum, sem
til Frakklands hefðu farið, væru
350,000 komnir til baka.
Landher Breta kvað hann nú
vera 1^4 miljón manna. Og
hann væri nú vel að vopnum bú-
inn og yrði brátt betur.
Frakkland hvatti hann til að
halda stríðinu áfram, þó stjórn-
in yrði að flytja til Englands.
Watson Kirkconnell
flytur til Hamilton
Það mun nú ákveðið, að Wat-
son Kirkconnell, háskólakennari,
sem um fleiri ár hefir kent
ensku við United College í Win-
nipeg, flytji til Hamilton, Ont.,
tekur hann þar við kenslu við
McMaster-háskólann.
Mr. Watson Kirkconnell er
Winnipeg-búum að svo góðu
kunnur, að burtför hans er þeim
ekkert ánægjuefni. Hann á og
vini á meðal hinna mörgu þjóð-
flokka hér er hans sakna og eru
íslendingar þeirra á meðal. Bók-
mentastarfs hans í þeirra þágu,
munu þeir æ minnugir verða.
Austur mun Mr. Kirkconnell
verða kominn áður haust byrj-
ar, en hvenær hann leggur af
stað höfum vér ekki séð getið
um.
“SÆLUYIKA”
VATNABYGÐANNA
Það mun vera venja í Skaga-
firði á íslandi, að haldin er á
vori hverju svonefnd sæluvika.
Þá streymir fólkið tugum og
hundruðum saman á einn stað.
Þar fara fram í heila viku ýmis-
konar samkomur til uppbygg-
ingar, fróðleiks og skemtunar.
Það er messað, sungið og talað,
leiknir sjónleikir og dansað. —
Fólkið varpar frá sér áhyggjun-
um og hættir allri veraldarívas-
an til þess að auðga anda sinn
við mentabrunna og gleðilindir
sæluvikunnar.
Þegar Guðmundur góði mess-
aði forðum í Svarfaðardalnum,
sáu menn fugl einn svífa yfir
höfði hans fyrir altarinu. En
“menn vissu eigi, hvað fugla
það var, því að menn voru óvan-
ir að sjá heilagan anda.” Við
hérna í Vatnabygðunum ættum
yfirleitt ekki að veraóvanir að
sjá heilagan anda, en við erum
því óvanir, að andans auðæfum
sé helt yfir okkur dag eftir dag,
og kvöld eftir kvöld, svo að
aldrei verði hlé á. Er því ekki
nema von, að okkur fari fyrst í
stað líkt og karlinum, sem voru
boðnir 4 kaffibollar í rykk. Hon-
um varð að orði: Eg held það
væri betra að hafa það minna og
jafnara. Það setti marga hljóða,
er það fréttist, að hér mundi
verða samtímis fjölment kirkju-
þing og samkomur frægs karla-
kórs. En karlinn vildi heldur
drekka alla bollana í einni lotu,
heldur en að missa nokkurn
þeirra. Við viljum heldur fá
eina fimm eða sex fyrirlestra,
þrjár messur, þrjár söngsam-
komur og svo svo marga um-
ræðufundi á fimm daga tíma-
bili, heldur en að sleppa nokkru,
sem getur flutt hressandi
strauma inn í hinar stóru en af-
skektu Vatnabygðir. Allir fs-
lendingar frá Dafoe til Foam
Lake munu nú taka höndum
saman um að fara að dæmi
Skagfirðinga og efna til sælu-
viku, sem beri nafn með rentu.
Eitt þurfa allir að hafa í
huga: Bæði kirkjuþingið iog
heimsókn karlakórsins frá Norð-
ur-Dakota eru mál, sem varða
alla bygðarmenn, hverjir sem
þeir eru og hvar í flokki sem
þeir standa. Auk venjulegra
umrteðufunda verða í sambandi
við þingið fyrirlestrar og erindi,
flutt af ræðumönnum, sem búast
má við miklu af. Á éinni aðal-
samkomu þingsins talar til
dæmis kona, sem tvímælalaust
er með ágætustu ritsnillingum
íslenzku þjóðarinnar, sakir fag-
urs máls og framsetningar, auk
þess sem hún ávalt sýnir skarp-
an skilning á mannlegri skap-
gerð og sálarlífi. Eg á þarna
við Guðrúnu Finnsdóttur skáld
(Mrs. Gísli Johnson) frá Win-
nipeg. Heimsókn hennar ein út
af fyrir sig er merkisatburður
fyrir bygðina.
Þessi samkoma, sem haldin
verður á laugardagskvöldið 29.
júní, verður undir umsjón
kvennasambandsins, en forseti
þess er Mrs. Dr. Björnsson frá
Árborg, sem fyrir löngu er kunn
orðin af framkvæmdum sínum.
Hún mun á þessari samkomu
segja frá austurför sinni til
Boston og kvennaþingi því, er
hún tók þátt í þar. — Samkom-
an er haldin til ágóða fyrir
barnaheimilið að Hnausum, sem
kvennasambandið stendur
straum af, í samvinnu við
kirkjufélagið.
Um söngflokkinn þarf ekki að
fjölyrða. Frammistaða hans við
hátíðahöldin í Bismarck er al-
kunn, söngstjórinn Ragnar H.
Ragnar er nú orðinn “þektur
bæði heima og hér,” sem einn
hinn snjallasti listamaður í
sinni grein og aúk þess rammur
íslendingur af beztu tegund. —
Ferðalag kórsins er öllu öðru
fremur þjóðræknismál. Sérstök
nefnd manna víðsvegar úr bygð-
unum sér um samkomurnar, og
framkvæmdamefnd þjóðræknis-
deildarinnar ljær fyrirtækinu
stuðning sinn. Mjög náin sam-
vinna verður með þessum aðil-
um og þeim, sem vinna að
kirkjuþinginu, til þess að sam-
komur þess og kórsins komi
ekki í bága hverjar við aðra.
Karlakórinn syngur fyrst í Wyn-
yard, daginn áður en kirkjuþing-
ið hefst. Kvöldið eftir syngur
hann í Mozart, en það kveld
verður fyrirlestur fluttur í Wyn-
yard. Á laugardagskvöldið syng-
ur kórinn í austurhluta bygðar-
innar, en samkoma kvennasam-
bandsins í Wynyard. Mun ekki
vera vonlaust um, að einhverjir
af Dakota - söngmönnunum
skemti líka á þeirri samkomu,
án þess að dregið verði nokkuð
af þeim í Leslie. Á sunnudag-
inn eru messur, fundir og fyrir-
lestrar og þá verða menn orðnir
svo vanir því að taka þátt í s'ælu-
vikunni, að þeir tolla ekki heima
fyr en alt er búið. Á mánudags-
morgun verður síðasti þing-
fundur.
Eg vil láta þá ósk og von í
lójsi, fyrir eigin hönd og margra
annara, að fslendingum í Vatna-
bygðum takist að gera sæluvik-
una svo ánægjulega, að hún
MRS. OLAF HANSEN
Fædd 1873—Dáin 1940
Kristín Magnúsdóttir Hansen
andaðist að heimili sínu, 4336
Baker Ave., Seattle, Wash., 29.
maí s. 1. Jarðarförin fór fram
3. júní að viðstöddu fjölmenni,
bæði íslenzku og hérlendu fólki,
séra Kolbeinn Sæmundsson jarð-
söng.
Kristín var ffedd að Parti í
Þingeyjarsýslu. Foreldrar henn-
ar hétu Magnús og Dýrleif, en
hún hafði mjög lítið af þeim að
segja, því hún var mjög ung
þegar hún flutti til Jónasar
Kristjánssonar og Guðrúnar Þor-
steindóttur sem bjuggu á Hraun-
koti í Aðaldal í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Hjá þeim var hún til full-
orðins ára, enda leit hún á þau
sem sína eigin foreldra, og með
þeim fór hún til Ameríku árið
1893. 3. apríl 1903 giftist Stína
(eins og hún var oftast kölluð)
eftirlifandi manni sínum, Olaf
Hansen (af norskum ættum),
var þeirra hjónaband hið allra
ákjósanlegasta enda sýndi það
sig bezt á því hvað hann hjúkr-
aði henni með mikilli ástúð og
nákvæmni í gegnum öll hennar
erfiðu og langvarandi veikindi.
Við sem þektum og unnum
Stínu, viljum þakka honum fyrir
það alt, og eins hvað mikla vin-
semd hann sýndi öllum hennar
vinum ætíð, og nú við burtför
hennar, sem hann unni svo heitt,
samhryggjumst við honum af
heilum hug.
H. K.
verði ekki aðeins bygðinni til
menningarauka, heldur einnig
sönn sæluvika fyrir gesti okkar.
Jakob Jónsson
Dr. Richard Beck forseti Þjóð-
ræknisfélagsins var staddur í
bænum í byrjun þessarar viku.
Hann kom norðan frá Vogar,
Man., s. 1. mánudagsmorgun, en
þar hafði hann verið í þjóðrækn-
iserindum yfir helgina og flutti
ræðu á lestrarfélagssamkomu
bygðarmanna. Hann lét hið
bezta af ferð sinni og sagði að
sér og máli sínu hefði alstaðar
verið vel tekið. Bættust Þjóð-
ræknisfélaginu all-margir nýir
félagar á þeim stöðvum. Dr
Beck sat stjórnarnefndarfund í
félaginu áður en hann hélt heim-
leiðis aftur.
* * * *
Sumarheimili bama á Hnaud-
um hefir séra Guðm. Árnason
gefið “gramophone” ásamt
nokkrum “plötum”. Fyrir þessa
gjöf er innilega þakkað. Börn-
unum verður hún áreiðanlega til
ánægju.
Þess mætti einnig geta, að ef
einhverjir ættu “plötur”, sem
þeir mættu án vera, yrðu þær
vel þegnar. Þær eru aldrei of
margar.