Heimskringla - 07.08.1940, Blaðsíða 3
heimskringla
3. SfÐA
WINNIPEG, 7. ÁGÚST 1940
Ferðalagið hafði staðið yfir
þrjá vikur eða rúmlega það. —
Þrátt fyrir allar rigningarnar og
kuldann, sem smýgur svo ónota-
lega gegn um merg og bein þarna
austur frá, þegar hinn hráslaga-
legi vindur stendur af sjónum,
var það í alla staði hið skemti-
legasta. Vitanlega þyrfti maður
mikið lengri tíma en við höfðum
til að geta skoðað sig vel um.
Það hefði mátt eyða öllum þeim
tíma, sem við höfðum til ferða-
lagsins, í borg eins og Boston,
að maður ekki tali um New York,
og sjá eitthvað nýtt á hverjum
degi. Þarna í austurhluta Banda-
ríkjanna er menningin mikið
eldri en hún er nokkurs staðar í
vesturhluta Bandaríkjanna eða
Canada. En þrátt fyrir það þó
tími væri naumur, munu allir,
sem í bílnum voru þessar þrjár
vikur á þessari fjögur til fimm
þúsund mílna ferð, hafa séð
meira en nokkru sinni fyr í
nokkurri einni ferð. Maður
hefði kosið að hafa lengri við-
dvöl sums staðar í borgunum
austur frá, en þess var auðvitað
ekki kostur. En ferðalagið gekk
að óskum frá byrjun til enda,
engar tafir og ekkert óhapp af
neinu tæi, skemtilegt samferða-
fólk og ágætar viðtökur hjá öll-
um, sem maður kom til eða hitti
að máli. Hvað er ákjósanlegra
en þetta á einni ferð?'
Ferðinni lauk í Winnipeg á
sunnúdagskvöld. Og hér lýkur
frá henni að segja. Hafi eitt-
hvað gleymst, sem hefði átt að
vera sagt, bið eg þá, sem hlut
eiga að máli, að virða á betri
veg, eins það ef einhvers staðar
er skakt með nöfn farið. Mér
varð það á í byrjun sögunnar, að
eg fór rangt með nafn Sissu, hún
heitir Marion fyrsta nafni, en
ekki Lillian. Bið eg hana fyrir-
gefningar á þessu. En bæði eru
nöfnin fögur og vel við hennar
hæfi.
Hafi þeir svo þökk, sem hafa
haft þolinmæ^i til að lesa þessa
kafla til enda, og hafi einhver j
haft skemtun af því, þá njóti j
hann hennar vel og lengi eins og
við, sem í ferðinni vorum, njót-
um vel og lengi endurminning-
anna frá góðri og langri ferð.
ABRAHAM LINCOLN
Eftir Náttfara
Framh.
SVEITAR LÖGMAÐURINN
“í djúpi hugans kænn að kafa
kom með perlur hann að landi;
geislum skygn og skarpur andi
skaut á rökkur myrkra stafa.
Hverja réði hann rún sem vildi,
en—reikning hjartað aldrei
skildi.—(Gr. Th. um Brynj-
ólf Pétursson andaðan).
Joshua Speed hét maður og
átti heima í Springfield. Hann
var kaupmaður og verzlaði með
flestar nauðsynjar. Það var eng-
in nýlunda fyrir Speed að sjá ó-
kenda menn í búð sinni, því
Springfield lá í þjóðbraut og var j
sjálfur í hraðvexti. En eitt sinn
stóð þó maður við búðarborðið,
sem honum varð starsýnt á. Hann
var hár, sem drangur og horaður
eins og villigöltur í vorharðind-
um, næstum því aðdáanlega ó-
fríður en aðlaðandi þó, fátæk-
lega búinn — en samt eitthvað
höfðinglegt við hann. Maður
þessi lagði fölur á rúmfatnað —
helst gamlan og brúkaðan rúm-
fatnað og nauðsynlega ódýran.
Hann kvaðst enga peninga hafa
en vera kominn til höfuðstaðarins
til að stunda lögmensku. Tækist
sér að hafa ofan af fyrir sér
skyldi hann greiða honum skuld-
ina við fyrsta tækifæri, að öðrum
kosti fengi hann hana kannske
aldrei. Hann sagði til nafns síns
og kvaðst heita Abraham Lincoln
frá New Salem. Kaupmaður
horfðist I augu við komumann-
inn. Hann sá í þessum sálar-
spegli svo hrekklausa einlægni,
svo djúpstætt þunglyndi að hon-
um gekst hugur við og tók nauð-
leitar manninn að sér, sem þurf-
andi bróður. Speed var valmenni
mikið og hann og Abraham urðu
trygða vinir til æfiloka.
Lincoln tók nú að stunda lög-
mensku í félagi með, og undir
eftirliti eldri og reyndari manns,
sem Stuart hét. Það var altítt að
yngri menn gengu í þjónustu
annara sér til lærdóms og æfing-
ar. Menn segja að tækifærin séu
meiri nú til fanga og frama en
nánar athugað mun það þó ekki
reynast. Abraham hefði naum-
ast komist í lögmannsstöðu nú á
dögum án langrar skóla setu. —
Hann hefði orðið að ljúka prófi
upp úr alþýðuskóla og upp í mið-
skóla, upp úr miðskóla og upp í
lærðaskólann (college), upp úr
lærða skólanum og upp í háskól-
ann. En þrátt fyrir öll þessi
próf hefði hann þurft að standa
fyrir dómnefnd lögfræðjnga í
því ríki, sem hann ætlaði sér að
reka lögfræðistörf og svara ótal
spurningum áður honum yrði
veittur réttur til að færa mál
fyrir rétti. Alt þetta nám kostar
mikinn tíma og mikla peninga
enda útilokar það flesta frá stöð-
unni. Sama gildir um allar eða
flestar lærðar stéttir. Það er
líka tilgangurinn að bola sem
flestum frá, svo hinir eldri fái
atvinnu. Þetta gildir ekki ein-
ungis meðal mentamanna heldur
hjá öllum faglærðum mönnum.
Verkamannafélögin gera mikið
að því að útiloka nýliða frá at-
vinnu, svo eldri félagar fái henn-
ar notið.
Nei, tækifærunum fækkar með
ári hverju, fyrir þeim er leitast
við að ryðja sér brautir með eig-
in atorku, þrátt fyrir alla gjálfur
mælsku og staðlausar fullyrðing-
ar um betra líf og bætta hætti.
Frá þessu meini stafar þurrotn-
un þjóðmeiðanna er lyfjar þeim
elli fyirr aldur fram. (Eg mun
síðar víkja að þessu atriði nokkru
nánar í sambandi við hugsjóna-
stefnur amerísku frumherjanna).
En eg vil árétta það aftur að
Lincoln hefði, með sínum tak-
mörkuðu tækifærum, aldrei kom-
ist í lögmanns stöðu nú á tímum
og þessvegna heldur aldrei orðið
landi sínu og þjóð slík heillastoð,
sem hann reyndist, um sína daga.
“Með lögum skal.land byggja,
en með ólögum eyða”, svo hljóð-
ar hið forna spakmæli. Lögin eru
sett til að grundvalla og viðhalda
réttlæti og á réttlætinu aðeins
getur friður haldist. Það var því
sízt að undra þótt Gyðingar—og
reyiídar fleiri fornþjóðir — eign-
uðu guði öll sín lög. Þetta má
líka til sannsvegar færa. Mann-
leg lög eru í verunni einungis
mannlegar tilraunir til að upp-
götva og starfrækja lög náttúr-
unnar í mannlegum félagsskap.
Þau ættu því að byggjast á vís-
indalegu innsæi og endurmati á
þjóðfélags þörfum verðandi tíð-
ar. Því fer þó allfjarri að þessu
sé sint heldur eru gamlar venjur
og úreltir fordómar látnir gilda
sem lög fyrir lifandi lýði. Þetta
gagnaði föður mínum og afa og
því skyldi það þá ekki mér hlýða.
En lífssveiflurnar eru margar
og margvíslegar í heiminum svo
eitt getur verið þarflegt og nægi-
legt í dag þótt það sé alls ekki
að ári liðnu. Boðorðin hafa að
líkindum verið nægileg sem lög
fyrir hina frumstæðu Hebrea, í
fornöld. i raun og veru er full
ástæða, fyrir Gyðinga að mikl-
ast af sínum tíu lagaboðum því
þau leggja grundvöllinn að
öllu lagasmíði síðari alda. Ann-
ars er það með öllu rangt að
skoða boðorðin sem alt gildandi
lög fyrir Gyðinga. Þau voru
einungis nokkurskonar grund-
vallarlög en út frá þeim voru
margar lagasetningar samdar,
sumar viturlegar aðrar harla fá-
kænskulegar. Hegningar voru
yfirleitt ómannúðlegar og að-
ferðin til að fella dóma talsvert
villumannaleg. Fram eftir öll-
um öldum var sýkn og sekt
manna ákveðin eftir alskyns
jarðteiknum, t. d. með því að
drekka eitur eða bera glóandi
járn. Var hugmyndin að guð
myndi vernda þá saklausu frá
grandi.
En jafnframt þessu þektist
þegar í fornöld önnur aðferð,
kviðdómur, er ákvað hvort ein-
staklingurinn væri brotlegur
gagnvart lögunum. Drög til
slíkra dómþinga finnast hjá forn
Egyptum en þar sátu þrjátíu
valdir menn í dómi. Það gæti
verið fróðlegt fyrir þá — og þeir
eru alt of margir — er ímynda
Framh. á 7. bls.
Þér Sem notið radio úti í sveit, látið
oss g-era við það á verði sem í bæjum
gerist.
Við greiðum burðargjald á öllum
batteries keyptum af oss.
Kadio eru prófuð borgunarlaust á
heimili yðar, hvar sem er í Greater
Winnipeg.
Ný og brúkuð radio seld á góðum
skilmálum.
WESTEBN RADIO ELECTHIC
Keevvatin & Logan ' Sími 27 758
NATIONAL STOCK TAKING
NEEDS NATIONAL REGISTRATION
CANADA BIÐUR alla borgara sína, hverrar þjóðar sem eru, karl og konu, yfir 16 ára aldur, að skrásetja
sig 19., 20. eða 21. ágústmánaðar. Skráningaskrifstofur verða opnar frá kl. 8 f. h. til kl. 10 e. h.
Ástæðan til þessarar skráningar er sú, að koniast að fullri vissu um mannafla þjóðarinnar svo að
hægt sé að kalla hann og gera Canada mögulegt, að gera alt sem hún getur til verndar þessu landi og til
happasæls reksturs stríðsins.
Hér eru spurningarnar, sem þér verðið beðinn að svara. Bréfspjaldið fyrir konur, verður svipað, en þó
með nokkrum nauðsynlegum breytingum. Hyggið vandlega að spurningunum nú, svo að yður sé hægt
að gefa greið og fullkomin svör skráningamanni.
SKRÁNINGADAGAR:- 19, 20 OG 21 ÁGÚ8T
Date of Registration
1940 •
Electoral District No. POLLING DlVISION No. !.
Month Day Year
1. Sumame...................................................................Given Names......................................................
(Print in block lcttcrs)
2. Permanent Postal Address (if avvay from usual residence when filling in card give name of usual residence)
Strect and Numbcr
Rural Route and Poat Office
Town or City
Province
3. Age last birthday..,
Date of birth..
Year Month Day
4. Conjugal conditions: Single............Married.................Widowed................Divorced................
5. Of what dependents (if any) are you the sole support:—
(a) Father................(b) Mother....*............(c) Wife............-—«....(d) Number of children under
16 years................~.(e) Number of other dependents.......................(f) Do you contribute
partial support to any one.........................................................................!......
6. Country
of
birth
of
(a) Yourself...........................................................Place.
(b) Your father........................................................Place
(c) Yourmother..........................................................Place..
7. Nationality or country of allegiance:—British subject (a) by birth?...............................................
(b) by naturalization?.......................(c) Foreign citizen?....................v....(d) If naturalized, in
what year?............................(e) In what place?....................................(f) If not Dritish
subject, to what country do you owe alleg:ance?....„...........................................................
(g) If an immigrant, in what year did you enter Canada?........................................................
8. Racial origin...............................................
9. Language or languages: (a) Do you speak English?.................. (b) French?.....................
(c) What other language can you speak, read and write?...........................................
10. Education: (a) Primary only.................(b) Primary and Secondary................(c) Vocational
Training (Business College, Technical High School)...............................................
(d) College or University Degree?....................... '
11. Is your general health (a) good?............(b) fair?.............(c) bad?............ 12. If blind,
deaf, dumb, crippled or otherwise physically disabled, state nature of disability.................
If permanently disabled, are you in receipt of a þension?.......................In respect of War
Service?..........Workmen’s Compensation?........................Old Age or Blind?................
Other? (Specify)...................................-..............................................
13. Class of occupation: (a) Are you an employer of labour other than domestic?......-................
If so, state busíness.......................................(b) Are you working on own account,
but not employing labour?............If so, state business......................................
(c) Are you an employee? (1) working at usual occupation............. (2) working at other than
usual occupation...............(3) unemployed................. (d) Not working because pensioner,
dependent, retircd, independent means............................................................
(Spjci^J
14. Occupation or Craft:— 'Years of expcrience in
(a) Present occupation?....................................................f (a).................
(b) What is your regular oecupation?.......................................-s (b)..............
(c) What other work can yoq do well?.......................................( (c).............
(d) If an employee, who is your present employer? Name................................................
Address..................................................... Nature of business where e'mployed?
(state preciscly) ..........................................-....................................
(e) If éxperienced in a skiltcd industrial occupation or profession, describe specifically the type or types
of work in which you are spccially cquipped by training orexperience...............................
15. Unemployment: (a) How many weeks did you work in the past 12 months?.......................
(b) If out of work now, state number of vveeks since last employcd in any occupation other than work
performed in retum for direct relicf...?....................(c) Are you totally incapacitatcd
for employment?............................................................—..............
16. (al) Were you brought up on a farm?..............(a2) Until v/hat age?—..........(bl) Have you
worked on a farm?__________(b2) How long............(b3) In what province or country.........
(cl) Can you handle horses?...........(c2) Drive a tractor?...........(c3)Use farm machinery?
........... (c4) Can you milk?............(c5) Are you able to do other farm work?...........
17. Is there any particular occupation in which you would like to be specially trained?..........................
18. Defence Services: (1) Have you previously served in any Naval, Military or Air Forces?...........
Ifso, state: (a) Forces of what country.........................................................
(b) Approximate dates between which services performed..........................................
(c) Unit..............................(d) Rank hcld...............................(2) If retired or
discharged, give reasons therefor..............................................................
(3) Have you been rejected for military service in the present war?..........................—
t (a) Why?.......................................(b) Where?..................................i-------
Hér er yðar tækifæri að leggja yðar skerf fram í þjóðar þágu.
Til þess að skráningastarf þetta verði sem kostnaðarminst, æskir stjórnin samvinnu allra þjóðlega sinnaðra
manna við skráningarstarfið. Þér getið hjálpað með því að finna skráningamann plássins og bjóða honum
aðstoð yðar.
Hvar fer skráning fram
Skránin&arskrifstofum er komit5 á fót í hverri kjördeild eins
og í síbustu sambandskosningum.
Og þeir sem skrásetja sig, eru betSnir ab gera þab á þeim
stafi í sinni kjördeild, sem þeir át5ur hafa greitt atkvœ'Öi En
skyldi sá er sig skrásetur, ver«a at5 heiman, í Öbru fylki cða
héraði, á skráningardegi, getur hann eða hún fengið sig skrá-
setta þar sem hentast er, ef nægileg grein er gerð til skráninga-
manns fyrir, hvernig á stendur.
Skráningarviðurkenning yðar
Hverjum manni eða konu sem spurningum
öllum svara viðunanlega, verður afhent viður-
kenning fyrir skráningunni af skráningamanni.
Þetta er lítið bréfspjald, sem hver maður verður
að bera á sér heima og að heiman.
Hegning fyrir að vanrækja skráningu —Vanræksla í ats skrásetja sig, kostar hvern mann og konu, giftan e«a ógiftan, yfir 16 ára aldur,
sekt, er ekki skal fara yfir tvö hundruö dollara, eöa fangavist, sem ekki skal fara yfir þrjá mánutii. Ennfremur skal hann greitSa fyrir hvern dag
fé er ekki fer yfir tiu dali fyrir hvern dag frá skráningardegi, sem hann er óskrásettur.
Gefið ut með leyfi HON. JAMES G. GARDINER
Ráðherra herþjónustudeidarinnar