Heimskringla - 11.09.1940, Qupperneq 5
WINNIPEG, 11. SEPT. 1940
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
Sveinn Thorvaldson gerði til-
lögu um að samþykkja nefndar-
álitið. Till. var studd af Ág.
Eyjólfssyni og samþykt.
Forsetinn gat um sýningu á
sunnudagaskólabókum og verk-
efnum, sem væri að finna í sam-
komusal kirkjunnar, og hvatti
menn til að veita henni athygli.
Sveinn Thorvaldson bauðst til að
veita móttöku bókapöntunum, ef
einhverjir vildu eignast eitthvað
af bókum þeim, sem þarna voru
til sýnis.
Þá gat forsetinn þess, að kosn-
ingar embættismanna færu fram
kl. 2 e. h. Bergthór E. Johnson
gerði tillögu um að fundi væri
frestað. Tillagan var studd af
E. E. Einarssyni og samþykt.
Fundi slitið.
Vararit.: séra P. M. Pétursson
Mumsjónarmaður sunnudaga-
skóla: Mrs. Ólafía Melan.
Undirritað;
Thorv. Pétursson
Gísli Einarsson
Th. Nelson
Var þá gengið til kosninga um
hvern af þeim, sem nefndin hafði
útnefnt út af fyrir sig, og með
því að engir aðrir voru útnefnd-
ir voru ofannefndir embættis-
menn endurkosnir í einu hljóði.
Uppástunga Ág. Eyjólfssonar
studd af Á. Thórðarson að end-
urskoðendur reikninga séu kosn-
ir þeir B. E. Johnson og E. E.
Einarsson. Tillagan samþykt og
þeir kosnir.
Ný mál
Sjötti fundur var settur kl. 2
síðdegis fyrsta júlí. Fundarbók
lesin og samþykt.
Forsetinn bað Mrs. Dr. Björns-
son að skýra frá rekstri sumar-
heimilisins að Hnausum.
Mrs. Björnsson tók þá til máls
og gaf ítarlega skýrslu um starf-
rækslu heimilisins. Var það
starfrækt síðastliðið sumar undir
stjórn þeirra Mr. og Mrs. Carl
Frederickson. Skýrði hún frá
fjárhag þess og þakkaði sumar-
heimilisnefndinni fyrir gott
samstarf, sérstaklega kvað hún
þær Mrs. B. E. Johnson og Mrs.
P. S. Pálsson hafa lagt mikið á
sig í sambandi við fjáröflun fyr-
ir heimilið. Fullkomnari skýrsla
um heimilið og starfsrekstur þess
birtist væntanlega með fundar-
gerningum kvenfélagasambands-
ins.
E. Benjamínsson og Á. Thórð-
arson gerðu tillögu um að sam-
þykkja skýrsluna og þakka sum-
arheimilisnefndinni fyrir góðar
framkvæmdir. Tillagan var sam-
þykt með því að allir viðstaddir
stóðu á fætur.
Þá las forseti nöfn þeirra, sem
voru í sumarheimilisnefndinni
fyrir hönd kirkjufélagsins síðast-
liðið ár, og eru þeir þessir: Ólaf-
ur Pétursson ,séra P. M. Péturs-
son, Sveinn Thorvaldson, séra
E. J. Melan, Dr. Lárus Sigurðs-
son og Mrs. B. E. Johnson.
Miss H. Kristjánsson og J. O.
Björnsson lögðu til að þessir
fulltrúar væru endurkosnir og
var það samþykt.
Mrs. Dr. S. E. Björnsson vakti
máls á því, að nauðsynlegt væri,
að meira væri ritað í The Christ-
ian Register um framkvæmdir
okkar og sömuleiðis í blað Gen-
eral Alliance. Forsetinn tók í
sama streng og sömuleiðis Sveinn
Thorvaldson, sem taldi heppi-
legt, að stjórnarnefnd félagsins
sæi um að stuttar ritgerðir um
starf þess væru birtar þar, þegar
nauðsyn bæri til. Forsetinn kvað
heppilegast mundi vera, að ein-
hver sérstakur maður tæki þetta
að sér og þá helst ritari félagsins.
Hvatti hann menn til þess að
kaupa The Christian Register,
sem hann taldi vera ágætt blað.
Sveinn Thorvaldson kvað blaðið
hafa fjóra kaupendur í Riverton
söfnuði, lauk hann lofsorði á
blaðið, og sömuleiðis séra Jakob
Jónsson, sem tjáði sig reiðubú-
inn til að taka á móti áskriftum
fyrir blaðið, ef einhverjir kaup-
endur gæfu sig fram.
Á. Thórðarson og E. Benja-
mínsson lögðu til, að stjórnar-
nefndinni væri falið að kjósa
fréttaritara. Samþykt.
Skýrsla útnefningarnefndar
og kosning embættismanna.
Þá lagði útnefningarnefndin
fram skýrslu sína, sem hér fylgir.
Á kirkjuþingi í Wynyard 30.
júní 1940.
Útnefningarnefndin leyfir sér
að nefnaeftirfylgjandi fólk í
stjórnarnefnd kirkjufélagsins
fyrir næsta ár:
Forseti; séra Guðm. Árnason
Varafors.: Sveinn Thorvaldson
Féhirðir: Páll S. Pálsson
Varaféh.: Capt. J. B. Skaptason
Ritari: séra Eyjólfur J. Melan
Séra E. Melan benti á, að á
næsta ári yrði 50 ára afmæli
frjálslyndu trúarhreyfingarinnar
meðal Vestur-fslendinga og að
víðeigandi væri, að það yrði at-
hugað af þinginu.
Forseti kvað sjálfsagt að taka
þessa bendingu til greina, og
yrði annaðhvort að kjósa nefnd
til þess að hafa undirbúning
málsins með höndum eða að fela
stjórnarnefndinni að sjá um
hann.
M. O. Magnússon gerði tillögu
um að stjórnarnefndinni sé falið
að minnast afmælísins á viðeig-
andi hátt. Tillagan var studd af
| Ág. Eyjólfssyni og samþykt.
Ág. Eyjólfsson mintist á að
1 oft væri skortur á sálmabókum
við guðsþjónustur og hvort ekki
væri tiltækilegt að fá vélritaða
þá sálma, sem oftast væru notað-
ir. Séra E. J. Melan áleit að
\ þetta væri sérmál hvers safnaðar.
Næst lagði tillögunefndin fram
viðaukaskýrslu, sem er á þessa
leið:
Tillögunefndin leggur til, að
eftirfarandi yfirlýsing sé sam-
þykt.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir
þeim áhugá, sem Gunnar Er-
lendsson organisti hefir sýnt á
bættum kirkjusöng, með því að
gefa út safn að kórsöngvum til
notkunar við guðsþjónustur. Vill
þingið beina þeirri áskorun mjög
eindregið til safnaða og söng-
flokka, að þeir vinni að því að
bókin verði keypt og notuð.
Undirritað:
Thorv. Pétursson
Jakob Jónsson
Sveinn Thorvaldson
Séra E. J. Melan gerði tillögu
um að nefndarálit þetta væri
samþykt. Tillagan var studd af
B. E. Johnson og samþykt.
Séra Jakob Jónsson tók þá til
máls og benti á, að P. S. Pálsson
hefði gefið nokkuð af upplaginú
af ljóðabók sinni “Norður Reyk-
ir” til sumarheimilisins. Kvaðst
hann hafa bókina til sölu og kost-
aði hún einn dollar, gjöfin kæmi
ekki að notum nema bókin væri
keypt.
Séra Jakob las ítarlega skýrslu
! yfir starf sunnudagaskóla Quill
Lake safnaðar. Að því loknu var
tekið 15 mínútna fundarhlé.
Fundur var aftur settur kl.
hálf fimm.
Tillögunefndin bar fram til
samþyktar eftirfarandi ályktun:
Vegna þess að þetta er hið
fyrsta kirkjuþing, er kemur sam-
| an eftir fráfall þeirra séra Rögn-
valdar Péturssonar og séra Ragn-
ars Kvaran, vill þingið votta að-
standendum þeirra samúð sína
og viðurkenna um leið hið mikla
I starf, sem þessir brautryðjendur
hafa unnið í þágu frjálslyndrar
kirkju.
Þingið felur forseta að flytja
þeim frú Hólmfríði Pétursson og
frú Þórunni Kvaran þessa kveðju
! þingsins bréflega.
Undirritað:
Philip M. Pétursson
Jakob Jónsson
Sveinn Thorvaldson
E. E. Einarsson
J. O. Björnsson og M. O.
Magnússon gerðu tillögu um að
ályktunin væri samþykt og var
það gert með því að allir við-
staddir risu úr sætum.
Séra Philip M. Pétursson las
þar næst eftirfylgjandi yfirlýs-
ingar í sambandi við ófriðinn.
The Committee on Resolutions
respectfully submits the follow-
ing resolution for consideration:
Whereas grave responsibilites
rest upon us as citizens of the
Dominion of Canada, a member
nation of the British Empire and
one of those democratic nations
engaged in the present interna-
tional struggle.
Be it resolved that the United
Conference of Icelandic
Churches, in annual meeting as-
sembled at Wynyard, Sas., July
lst, 1940,
1. reiterate its belief in the
principles of Freedom and indi-
vidual worth, which is the foun-
dation of all free institutions,
2. express its full confidence
in the ultimate triumph of every
movement based on and in har-
mony with these ideals and of the
ultimate defeat of every agressor
in whatever form that threatens
their existence,
3. pledge its loyalty to every
effort to preserve the element-
ary principles of liberty,
4. call upon the churches to
use every possible means to
fortify the spiritual life of their
members, and to extend beyond
their parochial limits their influ-
ence of each parish church as a
citadel of spiritual strength.
Signed:
Philip M. Pétursson
S. Thorvaldson
Jakob Jónsson
E. E. Einarsson
limi að taka á móti gestum á
þetta kirkjuþing.
Að lokum tók til máls séra Jak.
Jónsson og talaði um þýðingu
þessa þings sérstaklega og þýð-
ingu slíkra samfunda yfir höfuð.
Taldi hann það, sem gert væri á
slíkum þingum þýðingarmikið,
þó að vitanlega alt, sem á þeim
væri rætt og ráðgert kæmist ekki
í framkvæmd. Góðar hugsanir
gætu aldrei dáið, og þó að störf
vor væru í molum, væri eitthvert
það afl til í þessari tilveru, sem
léti hið góða rætast.
Séra P. M. Pétursson lagði til,
að stjórnarnefnd væri falið að
samþykkja ólesna fundargern-
inga. S. Thorvaldson studdi. —
Samþykt.
Lét þá forsetinn syngja sálm-
inn nr. 634 og sagði að því loknu
þinginu slitið.
G. Árnason
E. J. Melan
FRIÐÞJÓFUR
I.
Er það Kölski, eða hinn sem
fellur?
Hvor sem er, þá heyrist mikill
skellur t
Verða ljósar leynivaldabrellur:
Lýðnum afl í stæltum vöðva
svellur.
II.
Geysar fram með fjölda múg,
Frjósöm skelfur jörðin;
Sáir eldi borg og bú,
Blóði vökvar svörðinn.
Hvernig fer með Friðþjófs múg,
Frelsarann í honum:
Ef að Fjandinn félli nú
Fyrir stórveldunum?
sitt vistlegt og aðlaðandi fyrir
sig og sína. Hún var glaðlynd
og dagfarsprúð og veitul á
hverskyns þjónustu ástmennum
sínum til handa. Mun hennar
sárt saknað í vinarhópi en þó
mest af þeim er lengst og mest
nutu iðju hennar og árvekni.
Hún var jarðsungin frá útfar-
arstofunni í Ferndale þann 29.
júlí af undirrituðum.
H. E. Johnson
ISLANDS-FRÉTTIR
Rimur af Perusi meistara
Finnur Sigmundsson magister
hefir gefið út rímur af Perusi
meistara eftir Bólu-Hjálmar, en
eins og kunnugt er, orti Bólu-
Hjálmar nokkrar rímur og eru
nú með þessari útgáfu, komnar út
allar rímur hans, sem komið hafa
í leitirnar.
Hafa rímurnar af Perusi meist-
ara geymst í tveim handritum í
Landsbókasafninu.
Þeir munu vafalaust vera
margir, sem hafa gaman af rím-
um og verður útgáfa þessa rímna-
flokks þeim kærkomin dægra-
stytting, eins og þær voru höf-
undinum dægrastytting meðan
hann var að kveða þær í skamm-
deginu norður í Bólu.
—Alþþl. 26. júlí. -
HITT OG ÞETTA -
Læknir kom til sjúklings, er
hafði legið fyrir dauðanum, og
'segir, þegar hann sér hann, við
■ konu hans: “Hann er dáinn, aum-
inginn”. En öllum viðstöddum
varð bylt við, er sá látni reis upp
í rúmi sínu og segir;
“Ónei, nei, það er eg reyndar
ekki.”
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO.. LTD.
BlrgQlr: Heory Ave. Ea*t
Sími 95 551—95 562
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
Kona hans gall þá við:
“O, sussu — sussu, þegiðu
maður. Heldurðu að læknirinn
viti þetta ekki betur en þú!”
* * *
Hva ðer hjónabandið? Þessi
spurning var einu sinni rædd í
samkvæmi. Roskinn maður og
reyndur svaraði því á þá leið, að
það væri að gefa kvenmanni
helminginn af mat sínum gegn
því að fá hinn helminginn mat-
reiddan.
* * *
Nýgift frú: “Viltu kaupa
músagildru um leið og þu kemur
heim.”
Jón: “Eg sem kom með eina í
seinustu viku”.
Frúin: “Já, en það er mús í
henni”.
* * *
“Vinur minn frá Aberdeen
sendi mér mynd af sér í gær.”
“Hvernig lítur hann út?”
“Eg veit það ekki enn. Eg er
ekki búin að láta framkalla film-
una.”
* * *
“Kæri Jim,” sagði móðirin í
bréfi til sonar síns, sem hafði
gerst hermaður. “Eg vona að þú
mætir stundvíslega á morgnana
og látir ekki herdeildina bíða
eftir þér á máltíðum.”
Tillaga B. E. Johnson studd af
Mrs. Dr. S. E. Björnsson, að
þessi yfirlýsing sé samþykt. Til-
lagan samþykt.
Tillögunefndin hefir, sam-
kvæmt uppástungu Mrs. Dr. S.
E. Björnsson, tekið til athugun-
ar, hvað unt væri að gera til
þess að styrkja líknarstarf Unit-
arasambandsins meðal flótta-
manna og annað líknarstarf
vegna ófriðarins. Nefndin legg-
ur fram eftirfarandi tillögur og
ályktanir:
1. Þingið skorar á presta og
söfnuði að helga þessu máli eina
guðsþjónustu eða samkomu, þar
sem fólkið sé frætt um málið og
samskota leitað til starfsemi líkn-
arnefndar Upitarasambandsins
(Untiarian Serv. Committee).
2. Stjórnarnefnd kirkjufél.
sjái um, að greinar verði jafn-
framt skrifaðar um málið í ísl.
blöðin.
3. Þingið hvetur einstaklinga
og félög innan kirkju vorrar til
að styrkja eftir mætti þá líkn-
arstarfsemi, sem fram fer í bygð-
arlögum þeirra.
4. Þar sem ástæða er til að
ætla að skortur kunni að verða á
íslandi, á ýmsum nauðsynjum,
vegna einangrunar og erfiðrar
aðstöðu á ófriðartímum, skorar
þingið á alla Vestur-íslendinga,
bæði félög og einstaklinga, að
fylgjast sem bezt með ástandinu
á íslandi og gera alt, sem í þeirra
valdi stendur til aðstoðar, eftir
því sem þörf gerist.
Undirritað;
S. Thorvaldson
Marja Björnsson
Jakob Jónsson
P. M. Pétursson
E. E. Einarsson
Samþykt.
Þá flutti Gísli Einarsson fyrir
hönd Riverton safnaðar þinginu
boð frá þeim söfnuði um að halda
næsta kirkjuþing í Riverton.
Þá bar séra E. J. Melan fram
tillögu þess efnis að þakka Qill
Lake söfnuði og kvenfélagi safn-
aðarins fyrir frábærlega góðar
viðtökur. Tillagan var studd af
mörgum og samþykt í einu
hljóði. Ö. O. Magnússon mælti
nokkur orð í þessu sambandi og
kvað það hafa verið óblandna á-
nægju fyrir alla safnaðarmeð-
Margir gráta erfi ár:
Allir dýrka náinn,
Flestir munu fella tár
Á foringjann sinn dáinn.
Ef að losnar embættið
Illur bætist skaðinn:
Mig, ef velja viljið þið
Vininn hans í staðinn?
/• /• N.
DÁN ARFREGN
Þann 22. júlí s. 1. andaðist, á
sjúkrahúsi í Bellingham, húsfrú
Steinunn (Christine) S. Baker
frá Mountain View-sveit í Wash-
ington-ríki. Dauðameinið hlotn-
aðist af byltu er olli stórmeiðsl-
um.
Steinunn var fædd að Fremri
Fitjum í Miðfriði, Húnavatns-
sýslu þann 7. febr. árið 1869. Hún
var dóttir Finns Finnssonar
bónda á Fremri-Fitjum en móð-
irin hét Guðrún Árnadóttir. Hún
ólst upp með föður sínum þar til
hún fór til Ameríku árið 1887.
Dvaldi hún fyrst í vist, í Winni-
peg og gekk þar á kveldskóla til
að læra ensku og fleira. Eftir
þrjú ár þar eystra flutti hún
vestur að hafi — til Seattle —
árið 1890.
Þann 18. nóv. 1890 giftist hún
Magnúsi S. Baker og nokkru
seinna fluttu þau hjónin til Bell-
ingham, en höfðu þar skamma
dvöl. Árið 1899 settu þau sam-
an bú að Mountain View skamt
frá Ferndale, Wash., og hafa bú-
ið þar síðan.
Þau eignuðust þrjá syni; dvel-
ur einn heima, Pétur að nafni en
tveir eru skipstórar, Finnur og
Andrew, og eiga heima norður á
Vancouver-eyjunni í British
Columbia. Auk eiginmannsins
og sonanna þriggja átti hún tvö
systkin á lífi: Pétur Finnsson og
Mrs. Kristín Líndal, bæði í
Blaine héraðinu.
Steinunn sál. (Hún hafði tekið
upp nafnið Christine meðal
enskumælandi fólks.) var. hin
mesta sæmdar kona í hvívetna,
og vinsæl mjög. Manni sínum
reyndist hún hin ástríkasta og
umhyggjusamasti lífsförunautur
og börnum sínum hin bezta móð-
ir. Hún var kona iðin og verk-
hög með afbrigðum og varði öll-
um stundum til að gera heimili
INNKÖLLUNARMENN HEIMSXRINBLU
í CANADA:
Amaranth...........r....................J. B. Halldórsson
Antler, Sask......................«K. J. Abrahamson
Ámes..................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg..................................G. O. Einarsson
Baldur.................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville...............................Björn Þórðarson
Belmont....................................G. J. Oleson
Bredenbury...............................H. 0. Loptsson
Brown.................................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge...._______________________H. A. Hinriksson
Cypress River.............................Páll Anderson
Dafoe.....................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man...................~..K. J. Abrahamson
Elfros________________________________J. H. Goodmundson
Elriksdale...............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.......................Rósm. Ámason
Foam Lake................................H. G. Sigurðsson
Gimli......................................K. Kjernested
Geysir.................................. Tím. Böðvarsson
Glenboro....................................G. J. Oleson
Hayland..................................Slg. B. Helgason
Hecla...................................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídal
Húsavík..................................John Kernested
Innisfail........................................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar..................................S. S. Anderson
Keewatin...........................................Sigm'. Björnsson
Langruth..............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................................Th. Guðmundsson
Lundar..............................................D. J. Líndal
Markerville......................... Ófeigur Sigurðsson
Mozart...................................S. S. Anderson
Oak Point...............................Mrs. L. S. Taylor
Otto......................................J3jörn Hördal
Finey.....................................s. S. Anderson
Red Deer...............................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík...................................
Riverton............................................Björn Hjörleifsson
Selkirk, Man............Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
Sinclair, Man.........................K. J. Abrahamson
Steep Rock..........................................Fred Snædal
Stony Hill.........................................Björn Hördal
Tantallon.................................O. G. Ólafsson
Thomhill..............................Thorst. J. Gíslason
Víðir....................................Aug. Einarsson
Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis......................Finnbogi Hj álmarsson
Winnipeg Beach...........................John Kernested
Wynyard..................................S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM:
Bantry...................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier and Walsh Co..................Th. Thorfinnsson
Grafton................................Mrs. E. Eastman
Ivanhoe.............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....
Milton---------------------------------------S. Goodman
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain...............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 E 24th SL
Point Roberts...........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Mlddal, 6723—21st Ave. N W.
Upham....................................E. J. Breiðfjörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba