Heimskringla - 11.09.1940, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 11. SEPT. 1940
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
ÍSLANDS-FRÉTTIR
FRÁ VICTORIA, B. C.
í’rh. frá 3. bls.
menn liðna tímans, muni ekki fá
að koma nálægt þeirri “nýsköp-
un” og endurskipulagningu, sem
nú muni fram far í Noregi. Um
þessa yfirlýsingu blaðsins segir
norska útvarpið í London að
norska þjóðin muni aldrei
gleyma því, að enn sé til Noregs-
konungur og lögleg ríkisstjórn,
og að þessir aðilar séu ímynd
hins sjálfstæða og óháða Noregs.
—Alþbl. 16. júlí.
* # *
Iönaðarframleiðslan
á Islandi 1939
Samkvæmt skýrslu Landsbank-
ans fyrir árið 1939 var iðnaðar-
framleiðslan hér á landi það ár
sem hér segir:
7 smjörlíkisverksmiðjur fram-
leiddu 1411 tonn af smjörlíki, 3
ullarverksmiðjur unnu úr 298
tonnum af ull, 4 mjólkurbú unnu
úr 12,490 tonnum af mjólk, 5 nið-
ursuðuverksmiðjur suðu niður
17 tonn af kjöti, 89 tonn af fiski,
788 tunnur af síld, 14 tonn af
krækling, 126 tonn af rækjum,
17 tonn af humar og 368 tonn af
mjólk.
Stærsta verksmiðjan fram-
leiddi 39 tegundir af niðursuðu-
vörum, og munu 2 þeirra hvergi
framleiddar annarsstaðar.
f garnastöð SÍS voru hreinsað-
ar 273,000 garnir, skinnaverk-
smiðjan Iðunn afullaði 63,000
gærur, 4 sútunarverksmiðjur sút-
uðu um 4,600 gærur og 36,300
önnur skinn. — Ölgerðin Egill
Skallagrímsson framleiddi 3,028
hl. af öli, 3 gosdrykkjavork-
smiðjur 3619 hl. af gosdr., og ( 8
verksm. voru framleiddir 179 hl.
af saft.
Sjóklæðagerð íslands fram
leiddi 31,500 stk. sjóklæði og
regnkápur, 2 vinnufatagerðir
84,600 flíkur, 2 skyrtugerðir
21,700 pör af hönskum og 4
prjónastofur 40,100 flíkur, 5
kaffibætisgerðir framleiddu 246
tonn kaffibæti, 7 sápuverksm.
535 tonn af sápu og 2 verksm. 23
tonn af kertum.
2 verksm. framleiddu 394 tonn
af málningu og 50 tonn af lökk-
um, 10 verksm. framl. 60 tonn af
skóáburði, fægiáburði og fægi-
legi, 5 verksm. 237 ton af þvotta-
og ræstidufti, 6 verksm. 49 tonn
af bökunarefni, 4 verksm. 92 tonn
af súkkulaði, 7 verksm. 47 tonn
brjóstsykur, 6 verksm. 16.9 tonn
karamellur, 4 verksm. 14.5 tonn
konfekt, 4 verksm. 54 tonn á-
vaxtasulta, 4 verksm. 352 tonn
kex, 1 verksm. 32 hl. ilmvötn og
hárvötn og 8 verksm. 11.7 tonn
af fegrunarlyfjum.
4 kassagerðir smíðuðu 176,000
kassa, stáltunnugerð 30,900 tunn-
ur, 3 trétunnugerðir 83,800 tunn-
ur. Belgjagerðir framleiddi
3,500 belgi og 21000 stk. stoAm-
fatnað. Hampiðjan spann 148
tonn af garni. 3 veiðarfæraverk-
sm. framl. 18,300 þorskanet, 8,600
tylftir af fiskilínum og 35.7 milj.
öngultauma. 3 skóverksm. gerðu
132,000 pör af skóm, 3 leðurvöru-
verksm. 7,200 töskur, 6900 húfur
og 800 poka o. fl. ísaga framl.
10 tonn af acetylengasi og 17,300
m. af súrefni. Raftækjaverksm.
Hafnarf. framl. 1200 eldavélar og
1500 færanlega ofna, 4 blikk-
smiðjur unnu úr 120 tonnum af
járni, 2.8 tonnum af kopar og
látúni og 2.6 tonnum af tini,
zinki, og blýi, en 1 dósaverksm.
framl. 1.3 milj. stk. af dósum.
12 verksm. framl. 5,502 tonn af
fiskimjöli, 21 frystihús hrað-
frystu rúmlega 300 tonn fiskjar
og 50 lýsisbræðslur bræddu um
4500 tonn af lýsi, mestmegnis
meðalalýsi.—ísl. 26. júlí.
, margt virðist vera harla erfitt.
J En með því erfiði, er mann-
Victoría sem borg og Vancouv- eskjan að reyna að verða að sönn'
er eyjan ásamt suður og vestur
hluta British Columbia, eru þeg-
ar þjóðkunn og óðum að verða
heimsfræg fyrir fegurð, veður-
blíðu og auðlegð náttúrufríð-
inda; en héðan berast sjaldan
fréttir af ísleningum, enda er
um siðferðislegum manni, með
því að hlýða kennaranum góða,
sem ávalt, er reiðubúinn að kenna
hverjum þeim, sem óskar sér að
læra, öðlast smátt og smátt
gleggri sjón og skilning á hinu
dularfulla afli tilverunnar. En
á sama tíma fjarlægjast jarðlífs-
ástæða til þess, nefnilega það að
hér er svo sárfátt af okkar fólki,1 ins óholla ástand. Er það mögu-
svo að engin samtök eða félags-
skapur er mögulegur á meðal
þeirra, nú á seinni árum. En
rétt nýlega var mannfagnaður
haldinn hér, sem nær alt íslenzkt
fólk, sem hér býr sótti, ásamt
fjölda af bæði ensku og öðru
fólki tók þátt í og þykir þess vert
að færa í fréttir.
Tilefnið var það að Mr. Pétur
Christianson og kona hans, Mrs.
Ólína Kristín Guðmundsdóttir,
héldu demansgiftingarafmæli
sitt þ. 11. ágúst s. 1. að heimili
sínu, 2817 Dysart Ave. Þau gift-
ust út á íslandi þannan dag fyrir
sextíu árum á afmælisdag Pét-
urs, og þennan hátíðlega dag
varð hann áttatíu ára. Frá kl. 3
til 6 e. h. komu þangað yfir
hundrað gestir. Húsið var dá-
samlega skreytt blómum, hvelf-
ing mikil og fagurlega gerð var
yfir sætum demantsbrúðhjón-
anna, þar sem þau tóku á móti
lukkuóskum vina og velunnara.
Dætur þeirra, Mrs. Kristín Tur-i
goose, frá Parksville, B. C., og
Miss Jane Christianson, sem býr
hjá foreldrum sínum aðstoðuðu
foreldra sína prýðilega og stóðu
fyrir veitingum. Þar voru líka
þrjú barnabörn, tvo af þeim gift
og ein gullfríð stúlka, ekki
tveggja ára, var fulltrúi fjórðu
kynslóðarinnar. Demanta brúð-
hjónunum bárust margar ágæt-
ar gjafir.
Mr. og Mrs. Christianson komu
til Canada frá íslandi 1887. —
Dvöldu um tíma í Winnipeg en
komu til Victoría fyrir fimtíu
árum og hafa búið hér altaf síð-
an. Þau hafa borið hita og
þunga daganna erfiðir sjúkdómar
og sorgir hafa orðið á leið þeirra
og þau hafa í öllum tilfellum
tekið móti reynslu lífsins með
þolgæði og hreystimannlegu
hjarta, rétt eins og menn og kon-
ur af okkar þjóð, sem við erum
stoltust af. Þau hafa líka áunn-
ið sér virðingu og vináttu fjölda
fólks í þessari borg og nágrenni.
C. S.
HUGTÖK
VEGFARANDANS
Því nær alt, er vér köllum ílt,
getur í sjálfu sér verið heilnæmt
og gott, ef við aðeins kynnum að
meta það, og læra af því að sjá
og skilja, að lífið er ekki leikur,
— Hinn látni var einstakur
eiðursmaður, sem aldrei skifti
<api, hvað sem á dundi, sagði
restur, sem var að jarða herfor-
»gja-
Tveir óbreyttir hermenn í
irkjunni litu hvor á annan undr-
udi og annar sagði: — Heyrðu,
g held að við séum ekki við
ítta jarðarför.
heldur fylgir því djúp alvara; ser'
legt, að eftir því, sem menningin
vex, vaxi eigingirni, óráðvendni,
þrælmenska, þýlyndi, rán, yfir-
gangur, undirhyggja, manndráp,
— og í einu orði, öll sú óhæfa,
sem blessuð sólin blygðast að
stafa sínum alt lífgandi geislum
á.
En blessuð sólin er hlýðin höf-
undi lífsins, og skín að hans boði
og vilja, eins yfir rangláta, sem
réttláta. Ef nokkrir eru til þess
að gefa hinum stóru afbrota-
mönnum enn tækifæri til að þýða
sín frosnu hjörtu, í sólarinnar
alt lífgandi geilsabaði, að ráði
og vilja höfundar lífsins og alls
sem til er.
Það virðist vera dýpri ráðgáta,
heldur en vér mennirnir höfum
til þessa dags getað leyst úr,
þrátt fyrir öll vísindin, hvernig
standi á hinni afar miklu vöntun
á því verulega góða í oss mönn-
unum. Er það fyrir gáleysi,
vanhugsun, minnisleysi á því, að
muna stöðugt, að orsök fylgir
skilyrðislaust afleiðing.
Það er það fyrir óviðráðanlega
eðlishvöt. Eða er það fyrir
skort á vissum sviðum?
Hér má lengi spyrja. En það
mun reynast erfiðara að svara.
En eitt er víst, að manni ber að
forðast af fremsta megni að særa
sinn meðbróðir eða systur, án
þess að bláber nauðsyn liggi til
þess. Jafnvel þó það kunni að
valda eignatjóni, gerir ekki svo
mikið til; vegna þess, að engin
tekur nein jarðnesk auðæfi með
sér, þá héðan er farið, þau rotna
öll með líkamanum. En hvernig
þeirra var aflað fer með sálinni
til fullkomnara lífs.
Það eru andlegu auðæfin, sem
gæti komið sér betur að eiga dá-
lítið til af, ef slíkt væri mögu-
legt. Þegar sú stund ber að
höndum, að um undankomu er
ekki að ræða.
En hin andlegu auðæfi virðast
vera þess eðlis, að erfitt virðist
vera, að láta þau áþreifanlega í
vasana eins og hina jarðnesku
fjármuni. En engu að síður, er
eins og þau fari sjálfkrafa í vasa
sumra, þó munu þeir vera sorg-
lega fáir, er verSa fyrir slíkri
gæfu. En í þesum tilfellum, sem
það virðist eiga sér stað, er fyrir
mannúðar verka lífs stefnu, sem
sá eða sú hefir auðnast að temja
samfara andlegri, og þá eðlilega
líkamlegri áreynslu um leið, því
að alt í nátúrunnar ríki helst í
hendur, andlegt, líkamlegt og
efnislegt.
Ef við gætum tamið svo vort
hvikula eðli eða lyndiseinkun, að
við gætum gefið nákvæmar gæt-
ur að orsök og afleiðing orsakar,
myndum við geta komið í veg
fyrir margvísleg vandræði, er vér
lendum svo oft í, á vorri upp og
niður sléttu eða grýttu lífsleið.
Skóli lífsins er afar erfiður,
þar er aðeins um einn skólakenn-
ara að ræða, er heitir samvizka.
Sá sem aldrei hlustar á rödd
hans, eða slær slöku við að hlusta
á rödd hans, með nákvæmni, er
á ömurleikans leið.
En öllum stendur sá skóli opin
— ekki einungis opin, heldur er
það aðal skyldunámsgrein fyrir
vort jarðneska líf sett af höfundi
lífsins.
Það að reyna að temja sína ó-
stýrilátu geðsmuni, er afar nauð-
synlegt. Þeim, sem tekst það þó
ekki sé nema í smáum stíl, eru
mikilmenni heimsins, enda þó
hvorki þeir né aðrir meðbræður
eða systur þeirra, hafi gefið slíku
gætur. En það mun reynast eitt
af því allra erfiðasta, sem mann-
eskjan reynir að sigrast á, þó
En flestum verður næst, að
horfa á hinn áþreifanlega auð,
sem er óneitanlega eðlilegt eins
og sakir standa og hafa staðið
frá ómuna tíð, svo að þess meir,
sem hugsunin er þjálfuð á þeim
sviðum, þess hungraðri verður
sálin.
Hin svokölluðu jarðsnesku
gæði, eru svo ginnandi og vér
mennirnir svo drambsöm og eig-
ingjörn dýr, að svo virðist, sem
vér í köflum göngum helst til
langt í ágrindarinnar þjónustu.
Líklega fyrir þá ástæðu, að með-
alhófið er vandratað; svo vand-
ratað að vér höfum aldrei getað
fest sjónar á því.
En ágirnd, sjálfselska og
dramb, eru ægilegustu lestir,
enda eru það skyldgetnar systur
Sá, sem er plágaður af slíkum
nornum, er hið auðvirðilegasta
vesalmenni, hversu vel, sem hann
kann að skreyta sinn forgengi-
lega líkama; þá ber faldur hans
klæða með sér, hvern, eða hvað
hann dýrki mest.
Þegar manneskjan reynir að
vera hreinskilin við sjálfa sig,
þá skýrist smátt og smátt, að
yfirlætið, er eyðileggjandi sjúk-
dómur, sem manneskjan hefir
sjálf getið og alið og fóstrað á
leiðslu, sem orðin er að rótgró-
inni hefð eða ástríðu.
Þar til að alger eðlishvata bylt-
ing skeður, verður alt líf á hrörn-
unar skeiði, andlega, efnislega,
og borgaralega skilið.
Að öllum líkum að dæma, verð-
um vér mennirnir ekki megnugir
að framkvæma þá byltingu,
vegna þess, að við erum svo
langt afvegaleidd. Heldur verð-
ur sú bylting að koma frá höf-
undi lífsins og alls sem til er.
Og hún kemur þegar fylling tím-
ans er komin. En þann tíma, þá
stund, það augnablik, veit engin
fyrirfram nema almáttugur guð.
Vér mennirnir erum svo fávísir,
en sjáum þó aldrei fávisku vora;
vér miðum alla hluti við vort
eigið umhorf eða viðhorf. En
sjáum þó naumast fram á vora
fingurgóma hvað þá lengra.
í ys og þys lífsins, er hætt við
að oss detti sjaldan í hug, að um
nokkra lífsbreytingu sé um að
ræða, eða oss sé ætlað að lifa um
eilífð, og að oss á sínum tíma
verði sýndur allur vor liðni lífs-
ferill.
Þá en ekki fyr, gefst oss til
kynna, hvernig lífsbreytni vor
var í jarðheimi, á meðan vér
dvöldum hér hin fáu augnablik.
Ef oss dytti slíkt í hug, og vér
hefðum eða gætum haft það hug-
fast, væri sízt fjarstæða, að oss
gæti stöku sinnum dottið í hug,
að lágmál hins eilífa lífs, sett af
almættinu á morgni eilífðar,
muni ef til vill ekki að öllu leiti
vera í samræmi við það lögmál,
sem hinar skammsýnu síngjörnu
dægurflugur, það eru hinar eig-
ingjörnu mannverur, hafa samið
og staðfest sér og sínum sessu-
nautum í vil.
Þetta kann að þykja fremur
ömurleg lýsing á lífinu En hún
er virkilegur sannleiki hinnar
kristnu menningar, sem að sól
rís í austri, en gengur til viðar í
vestri. Ef sú fræði, er rökfræð-
islega íhuguð, er mögulegt fyrir
æfðustu ráðvanda lögfræðinga að
mótmæla þessum orðum, því sú
fræði var í byrjun villandi póli-
tík. En með nýju nafni.
Veraldarsagan staðfestir fram-
anskráð orð. Kristnin var byrj-
uð af pólitískri valdafíkn. Þeir
sem í móti mæltu, voru tafar-
laust brendir sem villutrúar-
menn, grýttir eða krossfestir.
Menningin þekti ekki í þá
daga öruggari morðverkfæri, en
þessi þrjú.
Hinni kristnu menningu, hefir
því farið óneitanlega fram; því
nú geta morðvargarnir látið
rigna eldi og brennisteini úr loft-
inu, á saklausa menn, konur og
börn. Þó að efninu steli þeir úr
forðabúri náttúrunnar, sem skap-
ari og höfundur alls, sem til er,
ætlaðist til að öll hans börn yrðu
þeirra efna jafnt aðnjótandi, svo
öllum gæti liðið vel. Þessum
grundvallarlögum almættisins,
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrtfstoíuslml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. Er að flnnJ & skrlístofu kl. 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimlli: 46 Alloway Aye. Talsimi: 33 ÍSS Thorvaldson & Eggertson Lögíræðingar 300 Nanton Bldg. Talsími 97 024
Ornci Phons Res. Phon* 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDI.CAL ARTS BUILUINO Orrios Hours : 12 - 1 4 p.m. - 6 r.M. AND BT APPOINTMENT M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugasjúkd&mar Lœtur ÚU meðöl i vlðlögum Viðtalstfmar kl. 2—4 ». h. 7—8 að kveldlnu Simi 80 857 643 Toronto St.
Dr. S. J. Johannesion 806 BROADWAT Talaiml 80 877 Viet&lstiml kl. S—6 a. h. A. S. BARDAL selur likkistur og annast um útfar- lr. Allur útbunaður sú beaU. Enníremur selur hann allalrnwaf. minnisvarða og legsteina. 843 SHERBROOKE ST. Phona: 86 807 WINNIPEO
J. J. Swanson & Co. Ltd. BKALTORB Rental, Insurance and Financial Agenti Síml: 26 821 308 AVENUE BLDG.—Winnipeg Rovatzos Floral Shop 253 Notre Dame Ave. Phone 27 989 Freah Cut Flowere Daily Planta ln Season We specialize in Wedding A Ooncert Bouqueta Sc Funeral Designa lcelandlc spoken
H. BJARNASON —TRAN SFER— Baooaoe and Furnitvra Moving 691 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutnlnga fram og aítur um beelnn. MARGARET DALMAN TEACHER OE PIANO 154 BANNINO ST. Phone: 26 420
DR A. V. JOHNSON dentist 506 Someroet Bldg. Office 88 124 Res. 27 702 410 Medical Arts Bldg. Dr. K. J. AUSTMANN Stundar eingöngu Augna, eyma, nefs og kverka sjúkdóma 10 tii 12 f.h.—3 tU 5 e.h. Skrifs tofusím i 80 887 Heimasími 48 551
einhverntíma að þá skortir, þegar hver einstaklingur fer að íhuga sitt liðna líf, og fer að vigta á metaskál sinnar eigin samvizku öll þau tækifæri, sem vér höfum látið ganga í gegnum greipar vorar fyrir íhugunarleysi. THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Dlamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
feðratrú til, eða ætti ekki að
vera til, sem lögbundin þjóðtrú, 1
fyrir þá ástæðu að afkomendur
vorir eru altaf að læra, og eiga
að vera að læra. Það er lögmál
lífsins. En við aukin lærdóm,
eykst skílningur á hinu dular-*
fulla lífi, sé það skoðað frá raun-
veruleikans sjónarmiði. Þeir,
sem mæla þá vanhugsuðu stað-
hæfingu, að þeirra feðratrú, sé
nógu góð fyrir sig, hljóta
virðist að vísindi og siðmenning vera þeir, sem hafa
hafi gerbreytt, og samið þau
samkvæmt sínum jarðneska mæli-
kvarða, og þeim lögum er hlífð-
arlaust breytt hvar sem því verð-
ur við komið, og aldrei betur en
nú. Hver getur kallað slíkt á-
stand siðmenningu?
En þó almættið hrópi til sinna
viltu barna, og vari þau við af-
leiðing sinna verka, og segi að
hann þurfi ekki á þeirra hjálp að
halda, til að lífláta börnin sín.
Hann geti það svo auðveldlega
sjálfur ef honum ráði svo við að
horfa.
Stjórnendur heimsins virðast
ekki geta gefið neinu eins ná-
kvæmar gætur og efnishyggj-
unni sem er nauðsynlegt sé það í
hófi gert. En án hófs er orsök
í allri vansælu lífsins. Hér býst
eg við að verði spurt, hvað er í
hófi gert? Þeirri spurningu
ætti hver sæmilega siðferðislega
hugsandi sál að geta svarað
sjálfri sér.
Alt í náttúrunnar ríki er stöð-
ugri breyting undirorpið, því
ekkert stendur í stað.
Þeir sem segja ,að þeirra feðra-
brjóstum sinnar eigin afvega-;trú sé nógu góð fyrir sig, finna
takmarkaða íhugun á lífinu
ef þeir hafa þá nokkra hugsun.
En trúa því, sem þeim var sagt
að trúa, á sínum ungdómsárum,
án þess að veita nýjum hugsjón-
um athygli. Með öðrum orðum,
loka hugskoti sínu fyrir öllu
öðru, fyrir takmarkalitla þröng-
sýni. Það er svo mikið hægra,
að taka alt trúanlegt, sem aðrir
segja, en að hugsa alvarlega fyrir
sjálfan sig; og láta svo reka á
reiðanum niður straum lífsins,
að feigðarósi, og verða að and-
legu rekaldi í stað hugsandi sál-
ar.
En einhverntíma, annað hvort
hér eða hér eftir, er hætt að við
rekum okkur á sker, og brjótum
vort lífsfley í spón, og hrekjumst
fyrir stórsjó og vindi stjórnlaus
og stefnulaus.
Þá fyrst verðum við neydd til að
íhuga, hvort sá stjórnlausi hrakn-
ingur muni verða óendanlegur.
Fer þá smátt og smátt við nýja
hugsun á nýjum vegamótum, að
sjást og skiljast, hve hraparlega
við höfum verið afvegaleidd af
þeim, sem oss var innprentað á
ungdóms árum vorum að trúa.
En, sem að fylgdu nákvæm-
lega lögbundinni þjóðtrúarhefð;
sem með vaxandi þekking og
skilning sannast að vera mót-
sagnafull þjóðsaga; sem er þó
víða snildarlega vel sögð, eins og
margar þjóðsögur eru hver á sinn
máta. En sem jafnvel allar hafa
það sama til síns ágætis, kjarn-
laus, innantóm orð, en mikið
málskrúð, er líkja mætti við
syngjandi málm eða hljómandi
bjöllu; það er að segja, ef að
dæma mætti samkvæmt reynsl-
unnar uppskeru. Að endingu
langar mig til að láta hér part úr
ræðu, er flutt var 21. júní 1932
framansögðum orðum til stuðn-
ings, flutt af hinum mæta og
merka Helga Hálfdánarsyni; orð
hans eru þessi:
"Skyldur vorar við Guð föður
eru þessar: Að hreinsa svo ger-
samlega alt rangt úr hugarfari
voru, að ekkert þessháttar geri
vart við sig í líferni voru. Að
rækta í þess stað sanna og heilaga
ást til Guðs sem föður og stjórn-
anda alls; að tala við Guð sem
elskuríkan föður og biðja hann
um styrk og réttan skilning á
lögmáli lífsins.
Að temja svo hugsanir sínar, að
maður finni stöðugt til löngunar
til þess, að ráðfæra sig við hann
um sín andlegu viðfangsefni.
Að hugsa sjálfur bænarorðin,
sem maður flytur honum; að
byrja ekkert starf án þess að
helga það Guði föður, og gera alt
sem gert er með trausti á Guði
og elsku til hans.”
K. K.