Heimskringla - 19.02.1941, Side 3
WINNIPEG, 19. FEBR. 1941
HEIMSKRINGLA
3. SÍÐA
að baki hinna óðu herforingja,
er upphlaup gerðu. Og hin
helzta af þessum félögum, svo
sem “Hinn svarti dreki” hafa
einnig umráð yfir hergagna-
verksmiðjum Japans; og í sam-
bandi vð þær yfir tveimur
fréttablöðum í Tokio. Með
friðarspilli við völd allsstaðar
glæðist hagur hergagnasmiðj-
anna. Verður því auðvelt að
viðhalda óttanumú en óttinn
eykur atvinnu smiðjanna.
Á síðustu tveimur árum höf-
um vér fengið, — svo talin séu
aðeins fá dæmi — dráps-geisl-
ann, sem feldi sauðahjörð í
hálfrar mílu fjarlægð, og hlyti
því að eyðileggja heilan her-
flokk á eins kílómeters færi;
lands- og lagar “tankinn”, sem
fer yfir fljót og vötn og myndi
sópa burtu aðalherstöðvum
áður en hermenn kæmust á
vígvöll; og hina hljóðu sprengju
flugvél, sem mannlaus og þögul
kemur að næturlagi og leggur
heilar borgir í ösku. Þar að
auki fengum við fréttir um
ýmsa smámuni, svo sem sótt-
kveikjur, banvænar tegundir
af gasi og “kemisku” regni,
þar á meðal eina tegund nefnda
“acetyl-chlorine”, sem dregur
allan mátt úr manni; ósýnlega
geisla, sem loka hreyflum í
flugvélum, og nú síðast kerfi
af reykjarslæðum er búa til
gervi landslag, svo að flugmað-
ur sem staddur er yfir Berlín
t. d. hyggur að hann sé yfir
Póllandi, Rússlandi eða hvar
sem vera vill nema yfir Berlín.
Mikið er látið af þeim umbót-
Um sem gerðar hafi verið á á-
rásar-hergögnum, svo sem flug-
vélum, skriðdrekum og kafbát-
um og hver voði friðsömum
þjóðum sé búinn af þessum á-
höldum í höndum samvizku-
lausra múgmorðingja. Það er
ekki úr vegi, að athuga rólega
hve mikið gildi sú ógnun hefir.
Fyrst af öllu, hótununin ger-
ir ráð fyrir snöggri árás, af
einhverri einræðisþjóðinni. Á-
rásin verður að vera snögg; því
í fyrsta lagi hafa þær þjóðir
ekki ráð á nægu fjármagni til
að standast langvarandi stríð;
og í öðru lagi, þegar stjórn ein-
hverrar þjóðar heldur sér við
völd með skrumi, ofbeldi og
ofsa, hefir sú þjóð ekki þolgæði
til að heyja langt stríð. Ógnun-
in bendir á hve árásar-vopnin
séu kröftugri en varnarvopnin;
en í því efni höfum vér stað^
reynd. Og til að færa sönnur
á mál vort, þurfum vér ekki
lengra að leita, en til Spánar,
þar sem nýjustu vopnin hafa
verið reynd til hlítar.
Látum oss athuga flugvél-
arnar fyrst. Oss hefir verið
sagt að mögulegt væri að sópa
Lundúnaborg burtu á einni
nóttu, með grúa af flugvélum
er sendu niður sprengjur, eða
einkum ef þær notuðu “ther-
rnite” eða eldkveikju-skeyti.
En nýjustu sprengju-flugvélar
Þjóðverja og Itala, hafa látið
sprengjum rigna á Madrid ótal
sinnum. Yfir 200 flugvélar
tóku þátt í einni slíkri árás, og
niörg hundruð af eldkveikju-
sprengjum, gerðum úr þessu
Voðalega efni “thermite”, sem
sagt er að bræði stein, eða
jafnvel “asbestos”, voru látin
falla víðsvegar um borgina. En
all-flest steinhúsin í Madrid
standa enn; og eftir svo sem
eina viku hætti fólkið þar að
gefa gaum að aðvörun um árás
úr lofti. En það er annað sem
vér gátum lært af Spanska-
stríðinu, og sem dregur úr ótt-
anum við loft-árásir; t. d. varn-
ir heima fyrir. Vér vitum, að í
striðinu mikla, fyrir 20 árum
voru byssur til flugvélavarnar
mjög ónógar. En í hitt ið fyrra
fluttu Þjóðverjar til Spánar
byssu sem skaut hinar hrað-
fleygu vélar stjórnarinnar nið-
Ur eins auðveldlega eins og
dúfur væru. Þjóðverjar og
ftalir notuðu Spán eins og til-
rauna-stöðvar, um leið og þeir
studdu Gen. Franco. En sú
byssa opnaði augu manna; það
er svensk byssa, smíðuð í verk-
smiðjunni í Bofors. Hún notar
88 millimetra skeyti og hittir
markið í 30,000 feta hæð. Til
þess að vera ekki í skotmarki
fyrir hana þyrftu sprengju-
drekarnir að fljúga svo hátt, að
j þeir gætu ekki hitt mark sitt á
j jörðu niðri. Auk þess geta fáir
sprengjudrekar flogið svo hátt.
Það er auðvelt að fara með
J þessa Bofors-byssu. Hana má
■ flytja stað úr stað 40 mílur á
Jkl.stund; og má setja hana upp
lá 5 mínútum. Og vegna þess
j að Þjóðverjum reyndist þessi
byssa svo vel á Spáni, hefir
breska stjórnin nú samið við
Bofors-verksmiðjuna um kaup
á öllum þeim byssum sem hún
smíðar á næstu þremur árum.
Fleiri varnartæki hafa einnig
verið fundin upp. Má þar til
telja áhald til að reikna ná-
kvæmlega út fjarlægð og af-
stöðu flugvélar í loftinu og til
að miða rétt á þær. Báðir að-
ilar hafa notað “ósýnlegt rann-
sóknarljós” eins konar upp-
götvara sem segir til um nær-
veru fulgvéla, af infra-rauðu
geislunum, hitageilsunum, sem
vélarnar senda út frá sér. —
Sprengjudreki getur komið, í
svarta myrkri, fyrir ofan skýin,
en þetta áhald, með sinum
“therma-couple” útbúnaði, svo
næmum að hann finnur hitann
af kertisljósi í fimm mílna
fjarska, mundi fljótt finna þann
dreka.
Þetta gengur þannig koll af
kolli. Varnir finnast gegn hin-
um nýju drápsvélum; þeim er
kastað í ruslakistuna, en aðrar
nýjar smíðaðar. Alt þetta er
til hagnaðar fyrir hergagna-
smiðjurnar; en til tálmunar
öðrum umbótum í félagslífi
þjóðanna. Það er óþarft að
fara frekar út í þetta mál um
vopn og verjur. Þó mætti minn-
ast lítillega á hinar banvænu
gas-tegundir, sem heiminum
hefir verið ógnað með. Sam-
kvæmt ummælum hinna helstu
efnafræðinga, hafa engar nýjar
gastegundir verið fundnar upp
síðan 1918. Mustarð gas er
ennþá þeirra tegunda áhrifa-
mest. En það hefir verið reikn-
að út, að flugdreki sem spúði
einu tonni af því í hverri ferð,
þyrfti að fara 37,375 ferðir til
að flæma fólkið úr New York.
Svo er sóttkveikju-sáningin.
Öllum bekteríu-fræðingum ber
saman um, að sú árásar-aðferð
sé mjög óhagkvæm. Sótt-
kveikjur eru eins og tvíeggjað
sverð, sem getur auðveldlega
sært þann er veldur því. Kólera
og bóla t. d. stöðvast ekki við
landamæri.
Telja mætti margt fleira,
sem hefir verið notað til að
hræða fólk. En þessi dæmi
eru nægileg.
Meðan hergagnaverksmiðjur
eru eign einstakra manna eða
félaga; meðan hagnaður er í
hræðslu og ráðaleysi þjóðanna,
en enginn hagnaður í friði og
spekt, verður óttanum haldið
við með allskonar hryðjulegum
sögum. Þeim er sáð út um
heiminn eins og drekatönnun-
um í þjóðsögunni, sem sagði að
þar sem ein tönn féll til jarðar
spratt upp vopnaður hermað-
ur. Og eina ráðið til að þagga
þær niður, er að taka her-
gagnasmiðjurnar úr eign ein-
stakra manna og félaga; því
þau smíða drekatennur jafn-
framt fallbyssuskeytum. Og
þau valda oftast stríðunum.
Þessi ofanskráða grein var
birt fyrir hér um bil þremur
árum í tímaritinu “John Bull”
en nýlega endurprentuð í “Cur-
rent Digest” og úr því er hún
hér þýdd.
B. Th.
ABRAHAM LINCOLN
Eftir Náttfara
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU— |
útbreiddasta og f jölbreyttasta |
fslenzka vikublaðiö
»##################################<
Framh.
En alt þetta ógnaræði magn-
aði aðeins hatrið en gat ekki
bugað mótspyrnuna þótt menn
væru ofsóttir og skaðsemdar
bækur brendar, var samt sem
áður ógerningur að útiloka all-
ar umræður um málið, jafnvel
í Suðurríkjunum.
Maður er Helper nefndur, er
ritaði bók, “The Impending
Crisis” er reifði málið frá hag-
fræðislegu sjónarmði. Hann
sýndi fram á að búskapnum
hrakaði stöðugt í þrælahalds
ríkjunum. Hann bygðist næst-
um algerlega á eyðileggjandi
rányrkju. Bændur legðu svo
mikið fé í þræla sína að þeir
þrengdust til að þrautpína land
ið. Alla áherslu yrði að leggja
á framleiðslu, sem greiðlega
seldist á heimsmarkaðnum og
þessvegna þyrfti að flytja flest-
ar nauðsynjar inn í landið. —
Helper sýndi ennfremur fram á
að verðmæti allrar uppsker-
unnar af tóbaki, baðmull, syk-
urreir, hrísgrjónum og hampi í
Suðurríkjunum, jafnaðist ekki
við heyfenginn í Norðurríkjun-
um þótt því væri einatt slegið
fram að akuryrkjan í suðrinu
væri í meiri blóma en annar-
staðar í landinu. Þá benti
þessi höfundur á að hið bundna
fé í þrælunum gerði það að
verkum að alger þurð skapað-
ist á veltufé svo iðnaður gæti
ekki þrifist þar. Þegar landið
gæti ekki framar framleitt við-
unandi uppskeru keyptu þræla-
höfðingjarnir sér meira land
svo þeir gætu haldið þýi sínu,
en einnig þetta land mundi
upp urið að framleiðslu getu og
yrði með tímanum að eyði-
mörku.
Við svona bækur var höld-
unum afar illa en þeir gátu
ekki heft útbreiðslu þeirra, þar
sem þær ræddu um þeirra vel-
ferðarmál á hlutrænan hátt.
Öðru máli var að gegna með
skáldrit, svo sem “Kofa Tómas-
ar frænda” eftir frú Harriet
Elizabeth Beecher Stowe. Sag-
an lýsir, sem kunnugt er, hörm-
ungum þrælanna á svo átakan-
legan hátt að bókin vakti mjög
almenna samúð manna með
kjörum þeirra, bæði hérlendis
og út um allan heim. Það var
bannað að selja hana í Suður-
ríkjunum, en hún varð svo víð-
fræg að flesta fýsti að lesa og
gerðu það hvað sem öllu banni
leið.
Öreigar Suðurríkjanna liðu
hvað mest við þrælahaldið, því
þeir gátu sama sem enga at-
vinnu fengið og kaupgjald þar
var nálega helmingi lægra en
annarstaðar í landinu. Hvítir
verkamenn áttu þar af leiðandi
við hina mestu örbirgð að búa
svo jafnvel þrælarnir litu niður
á þá og kölluðu hvíta úrhrakið
(The White Trash). Alstaðar
sunnanlands var rótgróin fyrir-
litning borin fyrir þeim er unnu
líkamlega vinnu. Hinir fátæku
bændur, er enga þræla héldu
til að erja var skipað í sama
flokk og nefndust þar “crack-
ers” og þóttu naumast með
mönnum teljandi. Þetta skap-
aði mjög hættulega stéttaskift-
ing. Undir niðri voru sunn-
lensku burgeisarnir engu síður
hræddir við hvítu öreigana en
þræla sína. Fjallabúarnir í
Tennesee og Norður-Carólínu
ríkjum líktust hálfsiðuðum
villumönnum og gjarnir til
hermdarverka. Þannig var á-
Standið í þrælahalds ríkjunum.
En andróðurinn gegn þræla-
haldi kom þó vitanlega fyrst
og fremst frá Norðurríkjunum
og frumbygðum Vesturlands-
ins. Hann hafði magnast mjög
á síðustu árum. í upphafi var
þrælahald leyft í flestum ef
ekki öllum fylkjunum. Kvek-
arar urðu fyrstir til að banna
það sín á meðal, á síðari hluta
hinnar átjándu aldar. Wash-
ington, Jefferson og fleiri voru
henni mótfallnir en héldu samt
sjálfir þræla af því þeim virtist
þeim betur borgið í sinni um-
sjá en lögðu svo fyrir að þeim
skyldi slept úr ánauð eftir sína
daga.
Kaupsýslumenn Norðurríkj-
anna ráku arðvæna verzlun við
hina suðrænu burgeisa og öm-
uðust við öllum afláts æsing-
um, því þeir óttuðust að með
því yrði hagsældum hinna
sunnlenzku bænda hnekt og
verzlun þeirra gengi til þurðar.
Afláts hreyfingin festi fyrst
rætur hjá mentamönnum og
rithöfundum, t. d. voru Nýja-
Englands skáldin þeir: Whit-
tier, Lowell, Longfellow,
Holmes og Bryant mjög á-
kveðnir aflátsmenn. Notuðu
þeir list sína óspart til að efla
samúð almennigs með þrælun-
um og hér fór sem oftar er
skáldin taka að yrkja einhverja
skoðun inn í fólkið, þá verður
árangúrinn auðsær.
Sögufræðingar hafa gefið
þessu of lítinn gaum og eignað
fremur hina vaxandi andstöðu
Norðurríkjanna þeim óþægind-
um er íbúarnir hlutu af stroku-
þrælum. Árlega sluppu all-
margir þrælar úr ánauð og
leituðu sér undankomu til Can-
ada með aðstoð velviljaðra
manna, í Norðurríkjunum. Þá
myndaðist hin svokallaða neð-
anjarðarbraut fyrir samtök
þeirra er vildu liðsinna þeim,
þar sem einn skaut flótta-
mönnum frá sér til annars þar
til þeim var borgið. Þetta var
gagnstætt öllum lögum og
sunnanmenn kröfðust þess á-
kveðið að hinum brotlegu yrði
stranglega hengt. Gekk nú
ekki á öðru en fangelsunum,
stefnum og málavafstri er urðu
þreytandi mjög eftir því sem
þetta faraldur óx.
Alt þetta varð til að efla ó-
vinsældir þrælahöfðingjanna
og nú tóku margir að ljá afláts-
mönnum liðsyrði er áður höfðu
atyrt þá. Frá 1829 til 1840
höfðu aflátsmenn verið alment
fordæmdir og enda ofsóttir
jafnt norðan lands sem sunnan.
Samkomustaðir þeirra voru
brendir og átján hundruð borg-
arar af betra tagi — svo eg við-
hafi orð sagnfræðinganna —
gerðu þá yfirlýsingu í Boston
borg, sjálfri Aþenu Bandarikj-
anna, að aflátssinnar væru
uppreisnarskríll, sem verð-
skulduðu hvers manns fyrir-
litning og bæri að hegna. En
frá og eftir 1840 fer þetta að
taka mikíum breytingum. —
Fleiri ágreiningar gerðust milli
Suður - og Norðurríkjanna. —
Þeir syðra vildu lága tolla þar
sem þeir fluttu mest alt af
nauðsynjum sínum inn og ótt-
uðust hátt verðlag ef útlendum
iðnaðarvörum væri bægt frá í
Bandaríkjunum. Norðlingarn-
ir voru aftur á móti, yfirleitt
hátollamenn því þeir vildu
vernda hinn unga, ameríska
verksmiðju iðnað.
Alt þetta skifti þjóðinni í
andvíga flokka þar sem hver
beitti allra bragða að knýja sín
málefni fram.
Framh.
TAKIÐ EFTIR!
Þjóðvegurinn nr. 14, sem
liggur gegnum Vatnabygðina
endilanga er nú ófær og að
öllum líkindum verður það
þangað til að vorsólin bræðir
snjóinn og klakann. Þangað
til verður aðsetur mitt að Foam
Lake. Það er miklu hentugra
vegna lestanna á C. P. R. Utan-
áskrift mín er nú Box 153 Foam
Lake, Sask. (Sími 25). Foreldr-
ar sem hafa í hyggju að láta
ferma börn sín þetta ár geri svo
vel að komast í samband við
mig sem allra fyrst. Mér þætti
vænt um að hafa hópa í allri
Vatnabygðinni frá Foam Lake
til Kandahar. Öll ungmenni
eru hjartanlega velkomin.
Vinsamlegast,
Carl J. Olson
KVEÐJU ÁVARP FRÁ
SYNI TIL MóÐUR
(Ólafur Th. P. Björnsson
d. 2. des. 1940)
í huganum móðir eg fer á þinn
fund,
Nú fengin er bót allra meina,
Mig gerir hraustan og léttan í
lund,
Lífgjafa uppsprettan hreina.
Þín ástúð og blíða til yndis var
mér
Eigi þó mætti eg dvelja hjá þér.
Ýmsum er jarðvistin örðug og
köld
Ei er þó neinn um að saka,
Síðar mun eilífðin greiða þau
gjöld
Og gefa hið mesta til baka.
Sérhver til farsældar arfgeng-
ur er
Indæl er námstíð og framþróun
hér.
Umhyggja þín var sem angandi
rós
Og ylur þinn vermdi mitt
hjarta.
Á braut minni varstu sem lýs-
andi Ijós
Og leiðandi vegstjarnan bjarta.
Æ hvað eg gleðst þegar útlegð-
in dvín,
Elskaða móðir, þú kemur til
mín.
Fagnandi í ljósinu fá munt þú
hér,
Fullnæging mannkosta þinna,
Því að þitt göfuga innræti er
Aumum til líknar að vinna,
Drotni þú treystir í daganna
þraut,
Dygðanna verðlaun þér falla í
skaut.
Aths.: Æfiminning Ólafs birt-
ist nýlega í Hkr., átti kvæði
þetta að fylgja, en barst of
seint. Er það því nú prentað.
ÞORSTEINN SIGYALDI
BJÖRNSSON
Hinn 6. des. s. 1. andaðist að
heimili Mrs. J. Johnson, Víðir,
Manitoba, Þorsteinn Sigvaldi
Björnsson. Hann var fæddur
27. júlí 1878. Foreldrar hans
voru Björn Jónsson Vatnsdal,
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO.. LTD.
Birgðir: Henry Ave. East
Sími 95 551—95 552
Skrifstofa:
Henry og Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
DOMINION
RISA ASTERS
Hin nýjasta tegund
45cf GILDI — 15<f
KYNNINGAR TILBOÐ
Hin allra fínustu Asters. Einn pakki
hver, Crimson, Shell-pink, Azure-
blue, vanaverð 450, fyrir aðeins 150
(eða 6 sérstæðir litir 250) póstfrítt.
Tapið ekki af þessu kostaboði.
FRÍ—Hin stóra 1941 útsœðis og
rœktunarbók. Betri en nokkru
sinni fyr. Skrifið í dag.
DOMINION SEED HOUSE
Georgetown, Ontario
og kona hans Jóhanna Símon-
ardóttir. Þau fluttu til Vest-
urheims 1883. Tóku land í
Fljótsbygð og nefndu Keldu-
land. Þau áttu mörg börn, en
nú er á lífi ein dóttir Mrs.
Kristín Pálsson, er býr í Víði-
tungu í Fljótsbygð. Hálfbræð-
ur Sigvalda heitins eru Jóhann
Tímóteus, nýlega látinn, og
Þórður Guðjón, sem er búsettur
skamt fyrir sunnan Riverton.
Sigvaldi heitinn ólst upp hjá
föður sínum og tók við búi
hans eftir hans dag, 1905, en
hætti brátt búskap, og vann
lengi við landmælingar og hin
síðustu árin átti hann heima
hjá systur sinni, Mrs. Pálsson.
Hann var ókvæntur. Sigvaldi
heitinn Björnsson var vel lát-
inn maður og vinsæll af öllum,
sem þektu hann. Trúr í öllum
verkum sínum og skylduræk-
inn, vel skynsamur og bók-
hneigður mjög og var vel fróð-
ur um margt. Með honum er
hniginn í valinn góður drengur,
sem margir sakna, en sennilega
er sárastur harmur kveðinn að
systur hanSf sem um þessi ára-
mót sér á bak tveimur bræðr-
um sínum, er um undanfarin
ár hafa búið á heimili hennar.
Sigvaldi heitinn var jarðaður
frá Sambandskirkjunni í River-
ton, 9. des., og dvílir í Riverton
grafreitnum.
E. J. Melan
osososeeeogseeeeeeoðeeeoðc
KAUPIÐ HEIMSKRINGLU
LESIÐ HEIMSKRINGLU
BORGIÐ HEIMSKRINGLU
soccooooseaccccccccccccceoi
Velkomnir til
RAFLJ0SA B0RGARINNAR
Gestir Þjóðræknisþingsins munu taka eftir
hinni miklu raforkunotkun Winnipeg-borgar. Hún
á sér stað vegna þess að City Hydro gerði íbúunum
kleift, að fá orku ódýrari en nokkur staðar í þess-
ari álfu. Auk þess hefir félagið á hverju ári lagt
nokkurt fé í hinn almenna bæjarsjóð og með því
spornað við skatthækkun.
City Hydro er í þakklætisskuld við Islend-
inga, er ávalt hafa sýnt mikinn áhuga fyrir starfi
þess og stutt hafa það. Félagið á stuðning þeirra
ekki hvað minst að þakka gengi sitt.
CITY HYDRO
Eign Winnipeg-borgar
Sýningarstaður: Skrifstofur:
Portage og Edmonton Sts. 55 Princess Street