Heimskringla - 09.04.1941, Qupperneq 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 39 017
LV. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 9. APRIL 1941
+——.— ----------—-—
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
NÚMER 28.
« - HELZTU FRETTIR < -
Nokkur orð til íslenzkra kjósenda
Kæru vinir:—
Eins og þér munuð hafa veitt athygli, bæði í þessu
blaðl og öðrum, hefi eg ákveðið að sækja um þingmensku
í Winnipeg í fylkiskosningunum 22. apríl.
Eg hefi verið tilnefndur sem stuðningsmaður núver-
andi samvinnustjórnar í Manitoba. Eg er með því, að
leggja flokksstjórnar fyrirkomulagið á hilluna í fylkis-
málum þessa stundina af tveim ástæðum. 1 fyrsta lagi á
nú þjóð þessa lands í stríði og hvorki eg né aðrir höfum
nokkra hneigð eða tíma til að hugsa um flokksmálin. 1
öðru lagi þurfa allir pólitískir flokkar fylkja Vesturlandsins
að standa saman, unz skýrsla Rowell-Sirois nefndarinnar
hefir verið lögleidd, og krefjast þess, að umbæturnar í
skattaálagningu, sem þar er farið fram á, verði sem fyrst
að veruleika. Á þeim tíma sem eldri fylki Canada samein-
uðust fyrir nærri 75 árum, lögðu leiðtogar flokkanna niður
vopn sín og flokkaríg allan, svo allir gætu unnið saman að
sameiginlegri velferð þjóðarinnar. Á þessari sömu sam-
vinnu er nú aftur fylsta þörf og verður um nokkurt
óákveðið skeið.
Með þetta í huga, leita eg nú stuðnings yðar, landar
góðir í þessum kosningum, sem allra annara, er sannfær-
ingu hafa fyrir því, að samvinnu tilraun sé þess verð, að
gefa henni gaum og sé það heilbrigðasta og farsælasta
fyrir þjóð þessa lands.
Yðar með vinsemd og virðingu,
on
Nazistar ráðast á
Júgóslafa og Grikki
Hitler hefir nú sent sveitir
sínar í Austiir-Evrópu af stað á
móti Grikkjum og Júgóslöfum.
Árásina hóf hann á Pálma-
sunnudag.
I fyrstu árásunum hefir Hitl-
er unnið lítið á. Hann hefir
sótt á Júgóslavíu að austan, frá
Ungverjalandi og Búlgaríu.
Júgóslafar hafa hörfað und-
an á einum eða tveim stöðum
um 20 eða 25 mílur, og bjuggu
sig til varnar upp í f jalllendinu.
Aðrar sveitirnar héldu suður
til Salóniki. Þar mættu Grikk-
ir þeim og lofther frá Bretum.
Þurftu Þjóðverjar um þröngan
dal að fara og er sagt, að af
þeim hafi fallið fjöldi her-
manna. Grikkir tóku 8 skrið-
dreka af þeim og 7 flugför voru
skotin niður. Grikkir og Bret-
ar hafa sjáanlega verið þarna
sterkir fyrir.
Fjórar flugárásir voru gerð-
ar á Belgrade, höfuðborg Júgó-
slavíu. Ollu þær miklum brun-
um í borginni.
Stjórnin í Júgóslafíu, hefir
flutt sig til Grikklands.
Einu fréttirnar sem af þessu
berast, eru ajmaðhvort frá
Sviss eða Tyrklandi.
Hitler segir ástæðuna fyrir
þessu Balkanskaga-stríði þá,
að koma Bretum burt úr Ev-
rópu. Hann fýsti ekki að fara
í þetta stríð, en úr því sam-
vinnu var neitað um að koma
Bretum út úr Balkanlöndun-
um, hefði hann ekki átt annars
úrkosta. Þetta segir hann nú
þjóðunum, sem hann er að
brytja niður og reynir með því
að telja þeim trú um að ást
hans til þeirra sé ekki þorrin
fyrir þessu.
Tyrkir standa hlutlausir hjá
og Rússar. Það væri betur að
þær aldrei kendu á yfirgangi
nazista eins og hinar smærri
þjóðirnar hafa gert. Tyrkja
bíður auðvitað að verja sig
seinna og þá að líkindum einir.
Það er eins og um sé að gera,
að Hitler þurfi aldrei að berj-
ast nema við eina þjóð í einu.
En hvorki Rússar né Tyrkir
kaupa sig með hlutleysi frá
stríði við Þjóðverja þó þeir
haldi það.
1 fréttum frá Berlín er þýzku
þjóðinni sagt frá því, að þarna
megi ekki búist við eins skjót-
um úrslitum og í Vestur-
Evrópu.
Addis Ababa fallin
Bretar tóku Addis Ababa,
höfuðborg Blálands, s. 1. laug-
ardag. ítalska liðið sem þar
var fyrir, flýði norðvestur í
land. 1 Eritrea eru tvær her-
sveitir enn ósigraðar og eru
Bretar að eltast við þá. Haile
Selassie getur líklega bráðum
farið heim til sjn; hann er í
Blálandi um 120 mílur norður
af hinni gömlu höfuðborg.
Herstyrkur Júgóslafa
Herstyrkur Júgóslavíu, sem
á þrem stöðum á nú hendur að
verja fyrir Þjóðverjum, er sem
hér segir:
Landher 1,500,000; hann hef-
ir verið aukinn um helming á
s. 1. ári.
Loftherinn: 1500 flugmenn;
1000 flugför, helmingur þeirra
ef til vill af eldri gerð. Sjó-
flotinn: 1 gamalt beitískip, 3
tundurspillar, 8 torpedo skip,
4 kafbáta og nokkra smærri
skotbáta.
Úr Vínarborg er verið að reka
Gyðinga og Tékka hópum sam-
an. Er svo sagt í Zurich, að
verið sé að rýma til með þessu
fyrir þýzku stjórnina, en það sé
í ráði að flytja hana frá Berlín
til Vínarborgar vegna flug-
árása brezka hersins á höfuð-
borgina.
* * *
Tillaga var samþykt á brezka
þinginu 28 marz um að veita
bandarískum borgurum í Bret-
landi og bankarískum ferða-
mönnum brezk þegnréttindi
meðan þeir dvelja á Englandi.
Þetta firrir Bandaríkjamenn
mörgum vanda, sem aðrir út-
lendir ferðamenn verða að
horfast í augu við.
* * *
Rauði krossinn í Canada
sendi nýlega vistir til Grikk-
lands, eu metnar voru að verði
til $25,000.
* * *
Á fundi í Roblin, Man., s. 1.
viku tapaði S. E. Rogers út-
nefningu. Hann var leiðtogi
Social Credit flokksins til að
byrja með og riúverandi þing-
maður. Sá er sækir nú er W.
J. Westman, er um mörg ár
hefir verið þingmaður; keppi-
nautarnir við útnefninguna
höfðu báðir gott orð að segja
um Bracken-stjórnina. Rogers
er ekki talinn líklegur að fást
meira við stjórnmál.
* * *
Oddur Ólafsson núverandi
þingmaður fyrir Rupertsland
kjördæmi, sækir ekki í þessum
kosningum um þingmensku. í
stað hans hefir verið valinn D.
R. Hamilton, hann er liberal-
progressive og vinur samvinnu-
stjórnarinnar og verður likleg-
ast einn um totann þar nyrðra.
Kjördæmi þetta ætti að leggja
niður sem slíkt og sameina
öðrum; það er ekki nógu mapn-
margt til að vera kjördæmi.
Þar eru aðeins námaverka-
menn, sem félögum eru háðir,
sem námaiðnað reka, sem
styrktur er af stjórninni á ýms-
an hátt. Að greiða þar at-
kvæði öðruvísi en með fylkis-
stjórninni, þýddi atvinnutap.
* * *
Páfinn er sagt að muni út-
varpa á páskadaginn nýjum
tillögum um frið. Hversu vel
sem páfinn meinar, eru litlar
líkur til að hann geti fyrir hönd
öxulþjóðanna boðið neinn rétt-
látan frið. Án réttláts friðar er
til lítils um hann að tala.
* * *
Rússar og Júgóslafar gera
vináttusamning með sér um
leið og Þjóðverjar ráðast á
Júgóslavíu. Rússar hættu að
selja Þjóðverjum olíu, daginn
sem nazistar óðu inn í Búlgaríu.
Þeir vita ósköp vel hvað fyrir
Þjóðverjum vakir. Þessi strekk-
ingur þeirra austur, er með það
í huga gerður, að komast yfir
Dardanella sundin og ná olíu-
lindunum í íran, sem Rússar
hafa átt svo greiðan aðgang að
og Tyrkir. Það má vera tals-
vert í boði, ef Hitler tekur það
fyrir þessar olíulindir. En
Rússar eru hræddir, sem þeim
er ekki láandi. Það er nú kom-
ið svo, að samningurinn, sem
Rússar gerðu við Hitler 1939,
er að hafa alt annað en skemti-
legar afleiðingar í för með sér
fyrir Rússa. Það var eitthvað
verið að hrósa Rússum þá fyrir
framsýni og að hafa leikið á
Breta og Frakka. Að fyrir
þeirri framsýni hafi mikið far-
ið, reyna þeir eflaust bráðum.
Með tvær sterkustu flotaþjóðir
á móti sér, Bretland og Banda-
ríkin, verður ríki Hitlers aldrei
feitt af aðflutningum. Og hvert
skyldu nazistar þá leita, nema
til Suður-Rússlands.
Stríðið er byrjað í Austur-
Evrópu. Það er hættulegt
Bretum, því er ekki að neita.
En það er fyrst í stað hættu-
legra Tyrkjum og Rússum.
ÚTVARPSERINDI
Áminst kvöld verða útvarps-
erindi flutt af G. S. Thorvald-
son í þessari og næstu viku
yfir CJRC:
10. apríl, kl. 10.55 til 11.00 að
morgni (Miss Hilda Hesson tal-
ar fyrir hönd G. S. Th. í þetta
sinn og allra úr sama flokki).
15. apríl, kl. 6.05 til 6.10 e.h.
17. apríl, kl. 9.45 til 9.50 e.h.
19. apríl, kl. 10.15 til 10.25 e.h.
UM FLUGHRAÐA
Stærstu flugför heimsins eru
nú framleidd í Bandaríkjunum.
1 köldum skildingum hefir ver-
ið lagt úr fyrir að smíða Doug-
las B-19 sprengjuflugfarið þrjár
miljónir. dala. Hafa þessi miklu
skip verið kölluð “verndari
vesturálfunnar.” Á nú hvað af
hverju að reyna flugfarið. Það
vegur 70 tonn, getur flutt 125
hermenn og lítur út fyrir að
vera að stærð á borð við
“Queen Mary” á þurru landi.
Svo koma önnur flugför, Bell
Aircobra svo nefnd, er met hafa
sett í hraða; þau hafa farið eða
“dýpt” sér 620 mílur á klukku-
stund.
Yfir þessu öllu hrista menn
höfuðin af undrun. Þeir spyrja:
“Hvað tekur næst við?”
Það er daglega talað um 500,
600 og jafnvel 1000 mílna hraða
á klukkustund . . . flug um-
hverfis jörðina . . . ferð til
tunglsins eða marz. Fyrir 20 ár-
um var 100 mílna hraði skoð-
aður stórfenglegur, ef ekki
hræðilegur, jafnvel fyrir flug-
för. Nú fara flugför fjórum
sinnum hraðara en þetta.Ef svo
heldur áfram mætti búast við
800 mílna hraða á næstu 20 ár-
um. Maðurinn á götunni bros-
ir í kamp og bíður eftir að sjá
raunina verða þessa. Hvi ekki?
Það er heldur ekki langt síð-
an, að sérfræðingar í flugvéla-
smíði kímdu sjálfir og spurðu
“Hvíekki?” En nú hrista þess-
ir sérfræðingar höfuðið. “Við
erum ekki komnir brautina á
enda ennþá, en við eygjum
hana.”
Eftir 30 ára stöðugar fram-
farir í flughraða, horfast nú
vísindamennirnir í augu við
þann sannleika, að komið sé að
takmörkum flughraðans. Qg
þó eru ekki nema fáeinir mán-
uðir síðan, að menn komust að
þessari niðurstöðu. Rannsókn-
irnar hafa bandarískir vísinda-
menn haft með höndum. Það
er ekki þar með sagt, að nýir
sigrar í flugi geti ekki beðið
vísindanna. En með þeim að-
ferðum og lögmálum sem nú
eru þekt, virðast takmörkin
ekki langt framundan.
Helztu lögmálin, sem að flugi
lúta, og sem fylgt er enn, mega
heita hin sömu og Leondaro da
Vinci hugkvæmdust fyrir daga
Kolumbusar. Og síðustu 20
árin hefir framförin eingöngu
verið fólgin í umbótum, en ekki
í því að nýir vegir hafi verið
fundnir til loftferða.
Að sigra þyngdina með nögu
stórum vængjum og nógu mikl-
um hraða, virðist nú ef til vill
einfalt. En þegar til hins kem-
ur, að flytja afarmikinn þunga,
verður að auka hraðan og
meira að segja byggja miklu
stærri lendingar-staði en nú
eru, til þess að flugförin geti
tekið flugið. Það eru ekki sízt
vandræðin, sem því fylgja, að
hafa þung og stór flugskip, að
um leið gerist svo miklu erfið-
ara að lenda þeim og að taka
flugið með þeim.
En hraðinn hefir nú samt
sem áður ávalt verið að auk-
ast. Fyrst 100 mílur á klukku-
stund, þá 200, 300, 350, 400 og
450, sem vissulega má alt
furðulegt heita. En þetta hefir
alt kostað nokkuð. Aukinn
hraði hefir haft mikinn aukinn
kostnað í för með sér. Flugfarið
sem Lindbergh flaug einn fyrst-
ur manan á yfir Atlanshafið,
hafði 100 mílna hraða á klst.,
en til þess þurfti 40 hestafla
vél. Flugskip það var nefnt
“The Spirit of St. Louis.” En
til þess nú að auka hraða þess
flugskips um helming, hefði
þurft með 325 hestöfl eða til að
auka hraðan fjórfalt 2600 hest-
öfl.
En þeim aukna krafti, fylgir
svo mikið meiri þungi. Samt
mætti það í sjálfu sér gott
heita, ef annað kæmi ekki til
sögunnar. Vængina og kraft-
inn mætti auka, ef hraðinn eða
þyngd vélanna ekki takmark-
aði það.
Það er orðin sannfæring
manna og reynsla, að núver-
andi flugförum geti ekki verið
ætlaður mikið meiri hraði, en
sá, sem nú þegar er náð. Það
eru ýmsir, sem halda fram að
flughraði loftfara, ætti að geta
náð hraða hljóðsins, um 760
mílum á klukkustund. Þetta
má vel vera að einhverntíma
reynist svo. Sem stendur, fer
að verða óvissa ýms flughrað-
anum samfara, þegar yfir 400
mílur kemur. Það er vísinda-
lega sannað og er það nýjasta,
sem að hefir verið komist, á-
hrærandi flughraða. Eins lengi
og hraðinn fer ekki yfir 400
mílur, er engin breyting á loft-
bylgjunum, þó flugfarið kljúfi
þær. Loftfarið fer í gegnum
þær, sem stöðugan láréttan
straum, sem það klýfur og út af
því ber ekki. Þetta virðist eðli-
legt. En þegar hraðinn fer
fram úr 400 mílum, virðist loft-
ið þynnast fyrir framan flug-
farið, loftagnirnar verða kraft-
minni og loftstraumurinn, sem
klofinn er, verður ekki framar
láréttur, heldur sem iða, sem
óvíst er um hvert sogast, eða
hvert bera loftfarið. Þarna
virðist því hraðinn kominn að
takmörkunum, lögmálið, sem
loftið lýtur, sýnist við þennan
hraða enda. Þá fer að koma
babb í bátinn, og stjórnendur
flugfarsins vita ekkert hvað
gera skal. öll kunn vísindi
standa þarna ráðalaus og vita
ekkert, sem á nokkru lögmáli,
sem þeir þekkja, hvílir, sem úr
þessu geti bætt. Þeir segja
auðvitað ekkert um það, að
ekki getið verið fundin leið til
að yfirstíga þetta með ein-
hverjum nýjum uppgötvunum,
Frh. á 5. bls.
HVÖT
Tileinkað Karlakór íslendinga í Winnipeg.
Hvestu stormsveit, anda vorra áa
út í mollu-þoku-loftið gráa,
upp í hásöng hef þú forna dáð;
feyktu burtu ryki lágra leiða
lyftu jarðar-sál í bláman heiða
að þín saga lifi frægðum fágð.
Búðu skjöld þinn hljóma-gulli glæstu.
Graminn höndum sigurvaldsins læstu
hjálmgerð þín sé Norðra-rúnum rist;
klædd í brynju skreytta skírum málmi
skjóttu beint til marks af þöndum álmi.
Ættar vorrar er það gömul list.
Þá mun Vestri hátt á lofti lita
lands þíns fánann: bláa, rauða’ og hvíta
blaktandi; — í bliki sólar frjáls.
Þó skal af þér ennþá meira krafið:
að þú leggir Bifröst yfir hafið
milli frænda, til hins yzta áls.
Jón Jónatansson
■■■■■Karlakórinn syngur í sönghöll Winnipegborgar 16. apríl