Heimskringla - 21.05.1941, Blaðsíða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 21. MAÍ 1941
FRUR! Viðábyrjumstaðþérverðið
ánægðar með okkar fullkomnu
PERMANENTS
FRI
Vor nýja Microscopic ex-
amination og próíkrullun
er yður trygging íull-
kominnar Permanent, eí
hór yðar tekur ekki Per-
manent, skulum vér lóta
sérfrœðing gera við því.
OG UPP
Innifalið alt,
Shampoo og
Fingerwave
Ný tízka! Nýjar hugmyndir! Ný fegurðar-uppfynding!
SCIENTIFIC
Haírdressing Salon *Saturday
612 POWER BLDG., PORTAGE AND VAUGHAN PHONE 24 861
Viðskifti utan af landi velkomin
Greinina: “Hertaka eða dval-
arlið” eftir Jónas alþm. Jóns-
son, sem birt var 26. feb. í Hkr.,
hefir verið snúið á ensku og
I var birt í Winnipeg Free Press
110. maí. Þýðinguna gerði Mrs.
| A. N. Sommerville. Fylgir
Igreininni mynd af J. J. með
j ágrpi af starfi hans og
gangi eftir þýðarann.
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Við guðsþjónusturnar í Sam-
bandskirkjunni n. k. sunnudag
minnist prestur safnaðarins 100
ára afmælis hinnar áhrifa-
mestu ræðu prestsins fræga,
Theodore Parker, öflugasta
prédikara á hans dögum. Ræða
þessi var kölluð “The Transi-
ent and Permanent in Christ-
ianity” (Hið hverfula og hið
varanlega í kristninni). Hún
var flutt í maí mánuði, 1941,
og fáar ræður hafa haft meiri
eða víðtækari áhrif en þessi,
eða hafa haft áframhaldandi
gildi eins og þessi. Þessi eina
ræða átti mikinn þátt í því, að
móta trúfreléisstefnuna í þeirri
mynd sem hún nú er, eða gera
hana þannig úr garði að hún
væri fullkomlega frjáls og ó-
háð í anda. Sækið messur
Sambandssafnaðar!
* * •
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Riverton sunnud.
25. maí kl. 2 e. h. og í Sam-
bandskirkjunni á Gimli sunnu-
daginn 1. júní kl. 2 e. h. — Á
eftir messunni verður ársfund-
ur safnaðarins.
* * *
Messa verður í Sambands-
kirkjunni í Árborg 8. júní Árs-
fundur safnaðarins verður á
eftir messunni.
* * •
Séra Guðmundur Árnason
messar í Hayland Hall, sunnu-
daginn 25. maí.
* * •
Gifting
Laugardagskvöldið 17. þ. m.
gaf séra Philip M. Pétursson
saman í hjónaband Sólmund
Eyjólf Sólmundsson og Ingunn
Sigriði Nordal. Brúðurin er
dóttir Jóhannesar heitins Nor-
dals sem bjó í Árborg bygðinni
og konu hans, Karitas Schram
nú til heimilis hér í Winnipeg.
En brúðguminn er sonur séra
Jóhanns Péturs heitins Sól-
mundssonar og Guðrúnar Unu
Jónasson konu hans. Brúð-
guminn er í flughernum og er
nú sem stendur staddur við
“McDonald Air Training
School” fyrir norðan Portage
la Prairie.
Dr. Ingmundson verður
staddur í Riverton, Man. þann
27. þ. m.
Leikfélag Sambandssafnaðar
í Winnipeg
kemur til Árborgar með leik-
inn “Öldur” á miðvikudags-
kvöldið þann 28. þ. m. kl. 8.30.
Eins og auglýst var áður varð
leikflokkurinn að hætta við
leiksýning í Árborg fyrir
nokkru síðan vegna vondra
vega. Er nú vonast til að eng-
inn þurfi að sitja heima vegna
þess. Má fólk búast við góðri
skemtun og svo verður dans á
eftir. Einnig verður leikurinn
sýndur á Gimli laugardaginn
7. júní kl. 8.30 að kveldi. Ætlast
hafði verið til að fara tfl Brú í
Argyle-bygð föstudaginn 23. þ.
m. en vegna ófyrirsjáanlegra
ástæða verður því ekki við-
komið. Er fólk þar í bygð
beðið að veita þessu eftirtekt
og láta það berast.
• # •
Samkomu heldur Laugar-
dagsskólinn í Riverton 26. maí,
í Parish Hall; byrjar kl. 8.30
e. h. Soffonías Thorkelsson
segir fréttir frá íslandi, börnin
lesa upp og syngja. Á eftir
verður dans. Inngangur er 35^
fyrir fullorðna, 20^ fyrir börn.
Veitingar ókeypis.
• • •
Þriðjudaginn 13. þ. m. fóru
héðan á samkomu Kvenfélags-
ins í Garðar, N. D., séra Philip
M. Pétursson og Ragnar Stef-
ánsson. Þeir fengu ágætar við-
tökur, eins og tíðkast þar
syðra, og skemtu sér vel, eftir
frásögn þeirra. — Fólki líður
þar yfirleitt öllu vel, og útlit
gott í alla staði.
* # *
Samkoma verður haldin á
Gimli þ. 23. þ. m. til arðs fyrir
Sumarheimili íslenzkra barna.
Þar verða meðal annars kapp-
ræður um það hvort lifnaðar-
hættir nútímans skapi eins á-
nægjulegt heimilislíf og átti
sér stað á fyrstu árum Islend-
inga hér. Ennfremur sýnir frú
E. Steinþórsson myndir frá ís-
landi. Munið! Komið!
• * •
Gefin voru saman í hjóna-
band þ. 18. maí Sigtryggur Roy
McLennan, frá Riverton og
Fmtudaginn 15. maí, voru
þau Halldór Thorberg Hall-
dórson frá Winnipeg og Júlí-
ana Albertína Thorsteinsson
frá Geysir, Man., gefin saman
í hjónaband af séra Rúnólfi
Marteinssyni að 493 Lipton St.
Heimili þeirra verður í Winni-
peg.
Mountain, N. Dak.
16. maí, 1941
Hr. ritstj. Hrk.:
1 nafni “Bárunnar” langar
mig að biðja þig að gera svo
vel að geta þess í blaðinu að
framkvæmdarnefnd deildarinn-
ar hefir ákveðið að biðja með-
inn-ilimi að mæta á fundi í skóla-
J húsinu á Mountain 24. þ. m.,
kl. 8 að kveldinu. Umræðuefni
verða aðallega um Islendinga-
aagshalds 17. júni, og um fyrir-
komulag á söngkenslu, þegar
R. H. R. kemur hingað um
næstu mánaðarmót. — Það er
því áríðandi að fundurinn
verði vel sóttur.
Fyrir hönd framkv.nefndar,
Thorl. Thorfinnson,
(skrifari)
Lótið kassa í
Kœliskópinn
WvmoLa 5c
Jm GOOD ANYTIME
Ágæt samkoma verður hald-
in í Viði samkomuhúsi þ. 30.
maí næstk. Verður þar m. a.
til skemtunar ungmennaleik-
flokkur með hinn þjóðfræga
leik “Þyrnirósa” sem áður hef-
ir verið leikinn í nyrðri bygð-
um N.-lslands og tekist vel.
Þá verða þar negrar með sína
þjóðdansa, sem menn sækja
venjulega eftir að sjá og heyra.
Ennfremur ungmeyja söng-
flokkur frá Árborg og mynda-
sýning frá Islandi, en söng-
flokknum stýrir ungfrú M.
Bjarnason og myndirnar sýnir
frú E. Steinþórsson frá Reykja-
vík. Er sú síðarnefnda dóttir
Jónasar Jónssonar alþingis-
manns, sem allir hér kannast
við. Arður þessarar samkomu
rennur í reksturssjóð Sumar-
heimilis ísl. barna á Hnausum.
Munið að hér er góð samkoma
fyrir gott málefni. S. E. B.
• # •
Myndir af íslendingum hér
og ýmsum atvinnugreinum
þeirra, voru sýndar í Fyrstu
lút. kirkju í gærkveldi. Hafði
sambandsstjórnin látið taka
1 myndirnar á s. 1. sumri. Sýndu
þær bændur og fiskimenn við
störf sín, fjölda myndir ein-
stakra manna, myndir af IjSetel-
búum, Karlakór íslendinga á
þjóðhátíðinni á Gimli, af Gutt-
ormi skáldi á heimili sínu,
blöðunum íslenzku, kaffi-
drykkju og samræðum landa á
Wevel, af háskólanemendum
og próf. Skúla Johnson, af dr.
og Mrs. B. J. Brandson heima,
af íslenzkum réttum, pönnu-
kökum, kleinum, vínarbrauði
o. s. frv. Þótti skemtun góð að
sýningunni. Stóð unga Þjóð-
ræknisfélagið fyrir henni.
# * #
Barnahljómleikar
fimtud. 29. maí
Þjóðræknisdeildin • “Frón”
efnir til barnahljómleika í
Goodtemplarahúsinu fimtud.
29. maí. Barnakórinn syngur
tíu lög undir stjórn R. H. Ragn-
ar. Verður skemtiskráin hin
vandaðasta í alla staði. Rit-
stjóri “Lögbergs” Einar P.
Jónsson flytur stutt erindi “Á-
hrif söngs á siðmenniguna.”
Gifting fór fram á heimili
Mr. og Mrs. Jóhanns Jóhanns-
sonar, norðaustur af Langruth,
laugardaginn 10. maí. Húsið
var prýtt á viðeigandi hátt. —
Brúðguminn var Randolph Lin-
wood Bott og brúðurin, dóttir
Jóhannsons hjónanna, Sigríð-
ur Guðlaug. Hjá brúðguman-
um stóð bróðir hans Francis
Roland Bott og hjá brúðurinni
systir hennar, Guðlaug. Miss
Lilja Guttormsson lék á piano
giftingarlag. Viðstaddir voru
nánustu ættingjar. Heimili
brúðhjónanna verður að Lang-
ruth. Við það tækifæri voru
einnig skírð tvö börn, barna-
börn Jóhannsons hjónanna en
börnin voru Carol Joyce Clark
sem heima á í Winnipeg og
Marlene Anne Jóhannson, sem
heima á í Langruth.
# * *
Til Islendinga
við Manitoba-vatn
Af ýmsum ástæðum varð
Karlakór Islendinga í Winni-
peg að hætta við að hafa hljóm-
leika 'að Lundar á þessu vori.
Karlakórinn þakkar vinum sín-
um þar norður frá, er ætluðu
að annast samkomuna, fyrir
góðvilja þeirra og fyrirhöfn.
Fólk er hér með beðið afsök-
unar á að ekkert gat orðið af
þessari samkomu, en kórinn
vonast til að geta haft sam-
komu þar næsta haust eða
a. m. k. næsta vor.
Stjórnarnefnd Karlakórsins
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
724V2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
DÁNARFREGN
Annie Makara frá Washow Lúðvík Kristjánsson flytur
Bay, Man. Séra Bjarni A.|frumsamdar vísur °S kvæðl
Bjarnason gifti, og fór athöfnin 'K&gnar Stefánsson
fram á heimili hans á Gimli.
Brúðguminn er íslenzkur í
móðurætt og starfar sem véla-
maður á flutningsbátnum
“Barney Thomas” á Winnipeg-
vatni. Brúðurin er af ung-
verskum ættum. Heimili þeirra
verður í Riverton.
----Leikfélag Sambandssafnaðarins i Riverton--
sýnir sjónleikinn
“Onnum kafni maðurinn”
Gamanleik i þremur þáttum, eftir Lúdvig Holberg
I Samkomusal Sambandskirkju í Winnipeg
FÖSTUDAGINN 30. MAI, kl. 8 e. h.
Nokkru af ágóðanum verður varið til styrktar
sumarheimilinu á Hnausum.
Inngangseyrir fyrir fullorðna 50c; fyrir börn 20c
Leikurinn verður ennfremur sýndur:
I Árborg í I. O. G. T. Hall, Föstud. 23. Maí, kl. 9 e. h.
A Gimli I Parish Hall, Þriðjud. 27. maí, kl. 9 e. h.
Aðgöngumiðar fyrir Winnipeg til sölu hjá: Mr. Steindór
Jakobssyni, á horninu á Sargent og Victor Sts.,
og á skrifstofu Heimskringlu.
skemtir
með framsögn, Richard Beck
leikur piano solo og Dolores
Swail og Fred Schmidt syngja
einsöngva. Marian, Marion
Hart og Margrét Sigmar syngja
einsýngva með kórnum en Lily
Bergson og R. Beck leika á
piano með flokknum. Aðgang-
ur verður aðeins 25tf og eru að-
göngumiðar nú til sölu hjá ís-
lenzku verzlununum á Sargent
Ave., nefndarmönnum “Fróns”
og meðlimum Barnakórsins.
R. H. R.
# # #
Guðsþjónustur við Yarbo og
Tantallon sunnudaginn 25. mai,
i Valla skóli kl. 11 f. h. og
ensk guðsþjónusta í Hóla skóla
kl. 3 e. h. S. S. C.
# * #
Messur í Vatnabygðum 25. mai
Mozart kl. 11 f. h. (ísl.).
Foam Lake kl. 3 e. h.
Leslie kl. 7 e. h.
Carl J. Olson
—Wynyard, Sask., Tals. 27.
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði Ólafssyni í Selkirk
þann 14. maí, Walter Calvin,
sonur Mr. og Mrs. August S.
Nordal og Edythe Irene Smith,
dóttir Mr. og Mrs. Ralph Smith,
í Selkirk. Að giftingu aflok-
inni var setin vegleg veizla að
heimili Smiths hjónanna. —
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður í Selkirk.
• • •
S. 1. miðvikudagskveld fór
L.A.C. Haraldur J. Davidson,
til Saskatoon, Sask., til tíu
vikna framhalds- og fullnaðar-
náms við flugskólann þar í
borginni, og að því námi loknu
hlýtur hann titilinn flugstjóri
(pilot). — Halli (svo er hann
ætíð nefndur í vinahóp) gekk
í fluglið Canada s. 1. október,
og var þá þegar sendur til
flugskólanna í Ontario-fylki og
á þeim hefir hann stundað
verk- og bóklegt nám síðan.
Að afloknum ágætis prófum
þar eystra var hann nú fluttur
vestur til fullnaðarnáms í með-
ferð stærri flugvéla (two en-
gine bombers). Fékk hann
tveggja vikna heimfararleyfi á
leið sinni vestur og dvaldi hann
þann tíma hér í borginni í
heimsókn meðal ætfingja og
vina. Halli er á bezta aldri og
bráð vel gefinn til sálar og lík-
ama. Hann vann um mörg ár
hjá T. Eaton félaginu (í lífsá-
bygðardeildinni) áður en hann
gekk í herþjónustu. Foreldrar
hans eru Haraldur F. og kona
hans Ragnheiður Davidson, er
lengi hafa búið að 594 Alver-
stone St., hér í bænum og
margir íslendingar kannast
við.
Þann 6. þ. m. andaðist að
heimili sínu i grend við Wapah-
pósthús í Manitoba bóndinn
Sumarliði Brandsson, því nær
sjötugur að aldri.
Sumarliði var fæddur árið
1872 í ólafsvík í Snæfellsnes-
sýslu á Islandi. Foreldrar
hans voru Brand Guðmundsson
og Guðrún Sigurðardóttir. —
Hann ólst upp í ólafsvík og
stundaði þar sjóróðra unz hann
fluttist vestur um haf. Árið
1904 gekk hann að eiga Guð-
finnu Haraldsdóttur úr Ólafs-
vík. Þau fluttust til Canada
árið 1911 og dvöldu fyrst hálft
annað ár í Winnipeg, en flutt-
ust þá norður til Reykjavíkur-
pósthúss við Manitoba-vatn,
þar sem þau bjuggu næstu
ellefu árin. 1924 fluttust þau
suður með vatninu að Ebb-and-
Flow ármynninu og þar hafa
þau búið síðan.
Þau hjónin eignuðust 9 börn.
Elsti sonur þeirra, Guðbrandur
að nafni, dó 1924, og annar
sonur þeirra, Óli Kristinn, full-
tíða maður og kvæntur, dó
fyrir fjórum árum. Þau, sem
lifa eru: Haraldur og Guðfinn-
ur Sumarliði, báðir giftir hér-
lendum konum og búsettir þar
í nágrenninu. Ingi Magnús,
Friðjón, Ágúst og Huldi Guð-
brandur, allir heima hjá for-
eldrum sínum, og ein dóttir,
Sesselja, sem verið hefir að
heiman nú um nokkur ár.
Sumarliði var dugnaðarmað-
ur mesti og búnaðist vel; hann
var umhyggjusamur fjöl-
skyldurækinn og aldrei óvinn-
andi; hæglátur og dagfars-
prúður og vinsæll og vel látinn
meðal nágranna sinna. Fyrir
nokkru síðan kendi hann sjúk-
dóms þess, sem dró hann til
dauða, sem var hjartabilun. Út-
fararathöfnin fór fram á heim-
ili hins látna og hann var jarð-
settur í Wapah grafreit. Séra
Guðmundur Árnason jarðsöng.
Margir nágrannar hans, ís-
lenzkir og annara þjóða fylgdu
honum til grafar. G. A.
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði,
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag .hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: íslenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Vegna þess að eg hefi ekki
séð þess getið neinstaðar í ísl.
blöðunum sem nú skal greina,
skrifa eg þessar línur. Vestur í
Welsh, B. C., sem er námubær
upp í fjöllum alllangt norður
af Vancouver-borg fór fram
gifting þann 19. febrúar s. 1.
Brúðguminn var Wilbert Bjarni
Johnson frá Brú í Argyle-bygð
í Manitoba, sonur Mrs. Sigrún-
ar Johnson ekkju Stefáns G.
Johnsonar frá “Hólmi” í Ar-
gyle-bygð, en brúðurin er dótt-
ir Mrs. Thorbjargar Goodman-
son ekkju Hans Goodmanson-
ar í Glenboro, Man., og heitir
Kristín Lilja; hún stundaði
hjúkrunarstörf undanfarið en
brúðguminn er vélaviðgerðar-
rhaður. — Giftinguna fram-
kvæmdi Rector Anglican kirkj-
unnar þarna í bænum, Rev.
Brown. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður fyrst um sinn
í þessu þorpi. Vinir víðsvegar
óska til hamingju. Víða dreyf-
ist Islendingurinn,
leit.
í æfintýra-
E. H. F.
#
Messa í Geysir
Séra Bjarni A. Bjarnason
messar væntanlega í kirkju
Geysissafnaðar næsta sunnu-
dag, þ. 25. maí, kl. 2 e. h. Safn-
aðarfundur eftir messu. Fólk
vinsamlegast beðið að fjöl-
menna.
^######################^##########/
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ÍSLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir íslendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
1 #################################( •
Úr bréfum austan frá Tor-
onto, hefir oss verið sagt, að ís-
lendingar í borginni hafi mynd-
að félag með sér, er hafi með
höndum störf í þágu stríðsins.
Allir íslendingar í borginni
munu heyra félaginu til. For-
seti þess er söngkonan Rósa
Vernon. Um félag þetta væru
Heimskringlu kærkomnar
fréttir austan að og eins hitt,
hvað margir íslendingar heyra
því til eða eru í Toronto.
HOLD
EVERYTHING
FOLKS
AND VISIT OUR
$50,000
STOCK
REDUCTION
SALE
BARGAINS FOR ALL
'38 Olds G Sedan. $725
'40 Pontiac Coach .... $975
'39 Plymouth Sedan.. $945
'40 Dodge DeL. Sed. $1.025
SAVE—SAVE
— 1941 —
CHEVROLET SEDAN
VERY SMALL MILEAGE
BIG DISCOUNT
'36Hudson Ter. Sed. $535
'37 Nash Laf. Sedan $550
'3G Chev. Coach __ $525
'35 Desoto Sedan .... $545
TRUCKS
From $95 to $795
6 Cars Less Than $100
6 Cars Less Than $200
3 LOTS—OPEN NIGHTS
215 PORTAGE AVENUE
PORTAGE and LANGSIDE
GRAHAM and EDMONTON
WESTERN
CANADA
MOTORS
LIMITED
GRAHAM & EDMONTON
Phone 86 336