Heimskringla - 11.06.1941, Blaðsíða 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. JÚNl 1941
Stjórnarnefnd Sambandssafnaðar í Winnipeg, sem nú
er að undirbúa 50 ára afmælishátíð safnaðarins, æskir
þess, að fornir vinir og félagsmenn sem f jarri búa og henni
er ekki kunnugt um hvar eru, skrifi sér línu eða söfnuð-
inum. Nefndinni er mjög kært að sjá sem flesta á minn-
ingarhátíðinni, en frá þeim, sem þar geta ekki verið, væri
henni eigi síður kært að heyra. Minningarhátíðin fer
fram 15. og 16 júní. Bréf skal skrifa utan á til forseta
safnaðarins:
Bergþórs E. Johnson
1016 Dominion St., Winnipeg, Man., Canada
FJÆR OG NÆR
MESSUR í ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
Messur í Winnipeg
Sunnudaginn, 15. þ. m. fer
fram sérstök hátíðaguðsþjón-
usta í Sambandskirkjunni í
Winnipeg kl. 2 e. h. í tilefni af
50 ára afmæli frjálstrúar
kirkjunnar í Winnipeg. Söng-
flokkurinn syngur sérstaklega
æfða söngva, undir stjórn söng-
stjórans Péturs Magnús. Miss
Lóa Davidson syngur einsöng.
Við orgelið verður organisti
safnaðarins, Gunnar Erlends-
son. Ræðumenn verða séra
Guðmundur Árnason, séra Eyj-
ólfur J. Melan og prestur safn-
aðarins, séra Philip M. Péturs-
son, sem flytur ræðu á ensku.
Morgun guðsþjónustan fer
fram eins og vanalega kl. 11
f. h. Umræðuefni prestsins
verður “To Struggle is to Live”.
Fjölmennið við báðar guðsþjón-
usturnar, kl. 11 og kl. 2.
Við seinni guðsþjónustuna
verður mönnum veitt móttaka
í söfnuðinn.
Kl. 7 fer fram heimboð safn-
aðarins til allra vina hans. —
Skemt verður með myndum,
ræðum, söng og veitingum.
• * *
"Öldur” í Argyle bygð
Leikurinn “öldur” verður
sýndur í Bru Hall í Argyle-
bygð á miðvikudagskvöldið þ.
18. júní. Það gleður leikflokk-
inn frá Winnipeg að geta heim-
sótt Argyle-búa og endurnýjað
vinskap frá siðustu ferð, og um
leið sýnt ágætan leik. Gleymið
ekki að koma í Brú Hall þann
18. þ. m.
* * *
Hið fimtánda ársþing Sam-
bands íslenzkra frjálstrúar
kvenna verður haldið laugar-
daginn þ. 28. þ. m. að Riverton,
Man. Flytja þar erindi Dr.
Friðgeir Ólason og frú Ólason,
sem einnig er læknir. Talar
hann á skemtisamkomu að
kveldinu um “Sveitarlíf á Is-
landi” en erindi frúarinnar er
enn óákveðið, en verður nánar
auglýst síðar. Fleiri erindi
verða fiutt á þinginu og verður
það alt auglýst í næsta blaði
ásamt skemtiskrá kveldsam-
komunnar.
Mr. S. Thorvaldson. M.B.E..
frá Riverton var staddur í bœn-
um s. 1. föstudag. Hann er eft-
irlitsmaður sigurláns tökunnar
þar nyrðra. Spurðum vér hann
hvernig lántakan gengi; kvaðst
hann mjög ánœgður með hvað
þar hefði verið vel brugðist við
henni, I Árborg. Hnausum, Riv-
erton og Helka. hefðu $25.000
komið inn á 4 dögum (frá þvi á
mánudag og til föstudagsins).
Úr öðrum bœjum og bygðum
umdœmisins voru ekki greini-
legar fréttir komnar á föstu-
dag. En Mr. Thorvaldson lét
von sína í Ijósi um að einnig
þar myndi reyndin verða svip-
uð og í áðurnefndum bœjum.
• • •
Á fundi s. 1. sunnudag í Sam-
bandskirkjunni, voru þeir er
hér eru nefndir kosnir af hálfu
safnaðarins sem fulltrúar á
kirkjuþing Hins Sameinaða
Kirkjufélags íslendinga í Norð-
ur Ameríku, sem haldið verður
í ár í Riverton:
Fulltrúar:
B. E. Johnson
Hannes Pétursson
Dr. M. B. Halldórson
Guðbjörg Sigurðson
Hlaðgerður Kristjánsson
Varamenn:
Mrs. B. E. Johnson
Guðmundur Eyford
Mrs. J. F. Kristjánsson
Miss Elín Hall
Mrs. Jochum Ásgeirsson
• • •
Kveðjusamsæti fyrir frú Sig-
ríði, ekkju Guðmundar M. K.
Björnssonar ^ar haldið í Riv-
erton síðasta laugardagskveld
af kunningjakonum hennar. Er
hún að flytja alfarin til bróður
sins, Dr. Jóhannesar Pálssonar,
vestur í fylki. Ávarp til heið-
ursgestsins var flutt af Arn-
heiði Eyjólfsson og gjafir svo
afhentar. Skemtu svo konur
sér við spil og kaffidrykkju
fram eftir kveldinu. Verður
frú Björnsson mikils saknað af
mörgum vinum hennar og óska
þeir henni allra heilla í fram-
tíðinni.
• • •
Jón bóndi Gíslason frá Bred-
enbury, Sask., kom til bæjarins
fyrir helgina með son sinn Jón
til lækninga; hann verður skor-
inn upp á morgun.
Dr. og Mrs. Matthías Matt-
híasson komu með son sinn
John Stevens að heimsækja
foreldra læknisfrúarinnar, Mr.
og Mrs. Helgi Johnson, 1023
Ingersoll St. Þeim samferða
var Mrs. Neil Bardal með son
sinn Ófeig Njál, eftir nokkurra
vikna kynnisför hjá systur
sinni í Rondeau, Wis. Hana
sóttu suður að landamærum
systkini hennar hér í borg og
mágur, Mr. Oliver Olson Jr.,
en læknishjónunum dvaldist af
farbanni við landamærin, en
sumar sögurnar þaðan minna
á það sem fór fram við landa-
mæri Rússlands, þegar skrif-
finna valdið stóð í blóma, og þá
var hlegið að og hneykslast á
af hinni upplyftu veröld. Dr.
M. hafði skamma viðdvöl, enda
hefir doktorinn mikla aðsókn í
Rondeau, fór heimleiðis á laug-
ardaginn, en kona hans varð
hér eftir.
• * *
Frá Mountain, N. Dak., voru
hér á ferð um miðja s. 1. viku:
Thorlákur Thorfinnsson, Árni
Johnson og dóttir hans, Norma,
og Mr. og Mrs. Björn Olgeirs-
son; þau skruppu norður til
Lundar að finna fornvini og
létu vel af viðtökunum.
• • •
Júlíus Hólm frá Húsavík,
Man., og Lára Aðalheiður
Árnason, dóttir Mr. og Mrs.
Guðjón W. Árnason, Gimli,
Man., voru gefin saman í
hjónaband þ. 7 júní af séra
Bjarna A. Bjarnason á heimili
hans í Gimli. Heimili ungu
hjónanna verður við Húsavík.
• • •
Mrs. Elizabet Margaret Wal-
terson i Selkirk lézt að heimili
sínu 7. þ. m. Hún var ættuð
úr Húnavatnssýslu á íslandi,
fædd 1874. Kom til Canada
1893. Giftist Thorvaldi Wal-
terson 1896. Hún lætur eftir
sig 7 börn á lífi, öll uppkomin.
Eru þrír synir hennar nú í
canadiska hernum. Hún var
jörðuð 10. júní frá heimilinu og
kirkjunni í Selkirk, að við-
stöddu fjölmenni. Nánari æfi-
minning verður birt síðar.
• • •
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði Ólafssyni í Selkirk,
þann 7. júní, Benjamín Frank-
lyn Guðmundsson frá Árborg,
Man., og Grace Sesselja Jónas-
son, frá Riverton, Man. Fram-
tíðarheimili ungu hjónanna
verður í Árborg, Man.
• * *
Veitið athygli!
Samtali um ísland og íslenzk
málefni, milli þeirra Thor
Thors, aðalræðismanns Islands
í Bandaríkjunum, og Valdi-
mars Björnsonar útvarpsþuls í
Minneapolis, verður útvarpað
yfir WCAL útvarpsstöðina kl.
9.30 að morgni á fimtudaginn
12. þ. m. Bylgjulengdin er 770
kilocycles. Að kveldi þessa
sama dags, kl. 8.45, verður
þessu fróðlega samtali útvarp-
að yfir KSTP útvarpsstöðina;
bylgjulengd 1500 kilocycles.
íslenzkri guðsþjónustu, er sr.
Guttormur Guttormsson flytur,
verður útvarpað á sunnudag-
inn þann 15. þ. m. yfir WCAL
stöðina frá kl. 6 til 7 Central
Standard Time, og aðstoðar
þar kvennasöngflokkur Hjart-
ar Lárussonar.
Um “picnicið” er það að
segja, að það hefst í Minne-
haha skemtigarði um hádegis-
bil, og er til þess ætlast að
fjölskyldur komi þangað með
matföng sín.
Munið eftir
að sala á heimatilbúnum mat
verður haldin í neðri sal Sam-
bandskirkjunnar á Lundar,
föstudaginn 13. júní n. k. Sal-
an bærjar kl. 11 f. h. Til sölu
verður: brúnt brauð, vínar-
terta, pæ og alskonar sæta-
brauð, mysuostur, skyr, candy
og ísrjómi. Einnig verður þar
kaffi til sölu.
Kvenfélagið “Eining”
• • •
Mrs. Bert Clark frá Los
Angeles, Cal. kom til bæjarins
um helgina og dvelur hér
þriggja vikna tíma. Hún kom
að heimsækja systur sínar Mrs.
A. E. Jones og Mrs. K. Aust-
man. Mrs. Clark var áður en
hún giftist, Clara Oddsson, er
hér átti áður heima og margir
munu minnast sem lítillar
stúlku er á samkomum skemti
hér oft af list með fiðluspili.
• * *
Mr. og Mrs. Sig Björnson og
dóttir þeirra frá Grand Forks,
N. Dak., komu til bæjarins s. 1.
fimtudag og dvöldu fram á
sunnudagskvöld. 1 för með
þeim voru Mr. og Mrs. W. L.
Dornberger frá Sioux Falls, S.
Dakota.
* * •
Síðast liðinn mánudag kom
Andrés Gíslason vestan frá
British Columbia þar sem hann
vinnur við smíðar í þjónustu
sambandsstjórnarinnar. Hann
er sonur Davíðs sál. Gíslasonar
og Guðrúnar konu hans, er
lengi bjuggu við Hayland, Man.
Móðir Andrésar kom með hon-
um og fóru þau rakleiðis norð-
ur til Hayland, þar sem hún
verður hjá börnum sínum en
hann fer vestur aftur. Þau
komu á bíl að vestan.
* • •
Síðastliðinn sunnudag, 8.
júní, voru þau Daniel Sigmund-
ur Sigmundson og Lillian
Freda Sigurdson gefin saman
í hjónaband af séra Rúnólfi
Marteinssyni. Brúðguminn er
sonur Mr. og Mrs. Gísli Sig-
mundson að Hnausa, Man., en
brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
S. E. Sigurdson í Winnipeg.
Giftingin fór fram á heimili
Sigurdsons hjónanna, að 291
Lipton St.', að viðstöddum
nokkrum hóp nánustu ætt-
ingja ogi annara vina. Að
vígslunni lokinni var öllum
boðið í veglegt samsæti í
Moore’s Restaurant. Var þar
framreidd dásamleg máltíð,
ræður fluttar, ljóð sungin. —
Samsætinu stýrði Mr. Sigurd-
son, en auk hans fluttu tölur
þeir Gísli Sigmundson, Kelly
Sveinson, séra Rúnólfur og
brúðguminn. Þetta var yndis-
leg samverustund öllum sem
þar voru. — Heimili ungu hjón-
anna verður að Hnausa, Man.
• • •
Dr. Ingimundson verður
staddur í Riverton þann 17.
þ. m.
• • •
Messuboð
Messað verður í kirkju
Breiðuvíkursafnaðar í Hnausa,
næstkomandi sunnud. 15. júní,
kl. 2 síðd. Væntanlega verður
safnaðarfundur eftir messu.
S. Ólafsson
• • •
Séra K. K. Ólafson flytur ís-
lenzka guðsþjónustu í Van-
couver sunnudaginn 15. júní
kl. 3.1*5 e. h. Eins og áður
verður þessi messa í dönsku
kirkjunni á Burns stræti og
nítjándu götu. Við þetta tæki-
færi verður altarisganga. Allir
velkomnir. K. K. ó.
F Á I Ð . . .
LÉTT STERK
MJÚK HLÝ
EATON’S “Lady Fair”
Angora Ull
EATON STIMPLUÐ VARA
ÞRJÁR ÓLIKAR TEGUNDIR
"Lady Fair" fínt spunna Angora
(100 prósent kanínu hár) *7Cp
V2‘oz- hnykill............... *
"Lady Fair" Angora. (70 prósent kanínu hár,
30 prósent ull) CQp
V2 oz. hnykill...............
"Lady Fair" Angorine OQ p
1 oz. hnykill ...............
______________Prjónavörudeildin, á öðru gólfi, Donald
<T. EATON C?.™
ÞINGB0Ð
19. ársþing Hins Sameinaða Kirkjufélags Islendinga
í Vesturheimi, verður sett föstudaginn 27. júní 1941
i kirkju Sambandssafnaðar í Riverton, Man. kl.
8.00 e.h. og stendur yfir til mánudags, 30. júni.
Söfnuðir sem eru í kirkjufélaginu, eru kvaddir til
að senda fulltrúa á þingið, einn fyrir hverja 50 safn-
aðarfélaga eða brot af þeirri tölu.
Á þinginu mæta einnig fulltrúar sunnudagaskóla
og ungmenna-félaga.
Samband íslenzkra frjálstrúar kvenfélaga heldur
þing sitt um þingtímann.
Dagskrá þingsins verður auðlýst í næstu blöðum.
GUÐM. ÁRNASON, forseti
EYJÓLFUR J. MELAN, ritari
Látið kassa í wMMmmmm W Æ. i 2-qIasa C p
Kœliskápinn WwmWMMAW flösku "jV*
' M GOOD ANYTIME
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eða 34 557
7241/2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
I minningu um
Einar G. Martin frá Garði
F. 16. jan 1880—D. 10. júní 1940
Hvert spor sem við göngum í
Garði
Þín handtök við sjáum þar,
Og minnumst með söknuð og
þakklæti
“Þín” sem frá okkur tekinn var.
Sigrún Martin og börn
Guðmundur
Baldvin
Magnús
Arnfríður
Vilberg og
Franklin (borgað)
* # #
Messur við Lundar
Sunnudaginn 15. júní: Otto,
messa og safnaðarfundur kl.
11 f. h. Lundar, messa og safn-
aðarf. kl. 2.30 e. h. B. A. B.
• • *
Bretar hafa náð í tvö skip
ennþá, er vistir og vopnabirgð-
ir höfðu fyrip herskipið mikla,
“Bismarck”. Hafa þá alls 5 af
fylgiskipunum náðst og eitt
tundurskip; þykir líklegt að
fylgiskipin hafi ekki verið mik-
ið fleiri.
+---——--------------
MESSUR og FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar
Messur: á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Fundir 1.
föstudag hvers mánaðar.
Hjólparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
Kvenfélagið: Fundir annan
þriðjudag hvers mánaðar,
kl. 8 að kveldinu.
Söngœfingar: Islenzkri söng-
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskveldi.
Enski söngflokkurinn á
hverju föstudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: Á hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þjóðrœknisfélaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
VIÐ KVIÐSLITI
Til linunar, bóta og styrktar
reynið nýju umbúðirnar, teyju-
lausar. Stál og sprotalausar. —
Skrifið: Smith Manfg. Company,
>J)ept, 160, Preston, Ont.
INNKÖLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA'
Amaranth...............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask..........................JC. J. Abrahamson
Árnes.................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg...................................G. O. Einarsson
Baldur............................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville................................Björn Þórðarson
Belmont................................... G. J. Oleson
Bredenbury................................H. O. Loptsson
Brown................................Tborst. J. Gíslason
Churchbridge____________________________ _H. O. Loptsson
Cypress River............................Guðm. Sveinsson
Ibrfoe........................—............S. S. Anderson
Ebor Station, Man.....................K. J. Abrahamson
Elfros--------------------------------J. H. Goodmundson
Eriksdale..................................Ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.......................Rósm. Ámason
Foam Lake...............................H. G. Sigurðsson
Gimli......................................K. Kjernested
Geysir..............................................Tím. Böðvarsson
Glenboro...................................G. J. Oleson
Hayland................................ Slg. B. Helgason
Hecla.*................................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídal
Húsavík..................................
Innisfail.............................ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................ S. S. Anderson
Keewatin...........................................Sigm. Björnsson
Langruth................................ .Böðvar Jónsson
Leslie...............................................Th. Guðmundsson
Lundar.....................................d. J. Líndal
Markerville........................... ófeigur Sigurðsson
Mozart....................................s. S. Anderson
Narrows..................................,.S. Sigfússon
Oak Point............................... Mrs. L. S. Taylor
Oakview................................... s. Sigfússon
Otto........................................Björn Hördal
Pioey......................................S. S. Anderson
Red Deer..............................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..................................
Riverton..............................Björa Hjörleifsson
Selkirk, Man------------Mrs. David Johnson, 216 Queen St.
Silver Bay, Man..........................Hallur Hallson
Sinclair, Man.........................k. J. Abrahamson
Steep Rock...................................Fred Snædal
Stony Hill..................................Björn Hördal
Tantallon................................
Thornhill.............................Thorst. J. Gísiasojj
Víðir.....................................Aug. Einarsson
Vancouver.............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis................................___S. Oliver
Winnlpeg Beach.............................
Wynyard..................................S. S. Anderson
f BANDARÍKJUNUM:
Bantry..................................E. J. BreiðfjörB
Bellingham, Wash...................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash._.....................Magnús Thordarson
Cavalier and Walsh Co.................
Grafton..................................Mrs. E. Eastman
Ivanhoe...............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....
Milton.....................................S. Goodman
Minneota..............................Miss C. V. Dalmann
Mountain.................................Th. Thorfinnsaon
National City, Calif........John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts, Wash......................_.Ásta Norman
Seattle, Wash...........J. J. Middal, 6723—21at Ave. N. W.
Upham................................... E. J. Breiðf jörð
The Viking Press Ltd.
Winnipeg Manitoba