Heimskringla - 13.08.1941, Blaðsíða 1
The Modern Housewife Knows
Quality That is Why She Selects
“CANADA
BREAD”
“The Quality Goes in
Before the Name Goes On”
Wedding Cakes Made to Order
PHONE 33 604
--------------
I
1
ALWAYS ASK FOR—
“Butter-Nut
Bread”
The Finest Loaf in Canada
Rich as Butter—Sweet as a Nut
Made only by
CANADA BREAD CO. LTD.
Phone 33 604
LV. ARGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 13. ÁGÚST 1941
NÚMER 46.
* < HELZTU FRÉTTIR * <
KENNARAR Á ÍSLENZKA LAUGARDAGSSKÓLANUM
1 RIVERTON, MAN.
Talið frá vinstri, eru nöfnin þeirra: Florence Rockett,
Marinó Elíasson, Svava Einarsson, S. Thorvaldson, Mrs.
V. F. Benedictson, Eysteinn Árnason.
Stríðið á Rússlandi
Af fréttum frá Berlín að
dæma nokkra undanfarna
daga, hefir litið svo út, sem
komið væri að úrslita orust-
unni og allar rússnesku borg-
irnar á vígsvæðinu (Lenin-
grad, Smolensk, Kiev (Kænu-
garður) og Odsésa) væru að
falla i hendur Þjóðverja. Blöð-
in hér flytja athugasemdalaust
þessar æsingafréttir Þjóðverja
og miklu greinilegar, en fréttir
frá Rússlandi og munu þær þó
til þess eins vera básúnaðar, að
styrkja þýzku þjóðina i trúnni
a sigur, en um hann mun henni
nú þykja uggvænt. Það hefir
komið í ljós upp aftur og aftur
vikum síðar, að fréttirnar hafa
verið tilbúningur. Nú hefir í
þrjá daga verið gerð öll ósköp
úr sókn Þjóðverja í Ukraine
suður við Svartahaf, og talið
alveg víst í Berlínar-útvarpinu,
að Odessa og öll strönd Rúss-
lands við Svartahafið verði
unnin í lok þessa mánaðar.
Þjóðverjar þykjast meira að
segja sama sem búnir að ná
Odessa. Einum sex skipum
hlöðnum vistum og vopnum
sögðust þeir í gær hafa sökt
fyrir Rússum á Svartahafinu.
Það er ekki að efa, að þarna
sækir Hitler eflaust bardagann
harðara en annar staðar. Þar
er til mests að vinna. Þaðan
næðist í gasolíu frá Iran; þar
eru einnig Ukraine-akrarnir.
Þangað er skemst að flytja her
frá Italíu og suðurlöndum Ev-
rópu og Frakklandi, sem Hitl-
er er nú að reka út í stríðið
með sér. En jafnvel þó Hitler
ætli sér þarna að láta skríða til
skarar, er engin vafi á því, að
Rússar hafa ávalt vitað það.
Hitler kemur ekki að þeim þar
óvörum. Að telja sigra sína
við Svartahafið langt fyrir-
fram, er aðeins til að blekkja
með þýzku þjóðina, Frakka og
Japani, sem hann er nú óður
að siga af stað með sér. Rúss-
ar segja fróðir menn að hafi
fyrir austan Odessa á strönd-
inni svo fjölmennan her og þau
ógrynni af skriðdrekum og öll-
um vopnum, að það muni ekki
greiðara þar en annar staðar
að sækja á þá.
Þjóðverjar þóttust fyrir vik-
um síðan hafa gereytt lofther
Rússa. Síðan í byrjun þessar-
ar viku, hafa loftför Rússa á
hverri nóttu sótt Berlín heim
og steypt yfir borgina ægilegu
sprengjuregni. Bretar hjálpa
þeim þar vel og lofa að Berlín
skuli betur þar á kenna, er
bákn-flugvélarnar, þessar sem
uppi í háloftinu fljúga, koma
til sögunnar; þess er sagt að
ekki þurfi heldur lengi að bíða.
Skeytin frá Rússlandi herma
dag eftir dag, að liði Hitlers sé
alstaðar veitt viðnám; það
virðist og satt vera. Rússar
draga ekkert úr hve bardag-
arnir séu harðir, mannfall mik-
ið og eyðilegging vopna, vista,
mannvirkja og bygginga. Að
Hitler endist fram á næsta
sumar eða haustið 1942, segir
Stalin ekki óhugsanlegt, en þá
verði að líkindum af honum
mesti móðurinn. Stalin segir
þetta með stillingu og kvíða-
laus eins og það væri ekki
nema lítill tími af því, sem
hann gerði ráð fyrir, að stríðið
entist.
Notið tímann, látið aldrei
neitt tækifæri ganga yður úr
greipum.—Shakespeare.
Snatar Hitlers
Petain marskálkur, æðsta
ráð Vichy-stjórnarinnar, lofaði
Hitler fullri samvinnu í út-
varpsræðu, er hann hélt í gær.
Hann kvað nauðsyn reka til að
vernda menninguna í Austur-
Evrópu, en það yrði ekki gert,
nema með því að uppræta
kommúnismann.
Jean Darlan aðmiráll hefir
verið fengið alt vald yfir her
Frakka í hendur. Hvernig
hann notar nú þetta vald, er
eftir að sjá.
Petain bað þjóð sína um sam-
vinnu og Bandaríkin að líta
með samúð og skilningi á gerð-
ir Vichy-stjórnarinnar.
Hitler kvað ætla að hafa
fund með öllum þjóðum Ev-
rópu er honum vilja fylgja inn-
an tveggja vikna á ítalíu og
ræða við þær um að berjast
með sér fyrir stefnu nazista.
Sæki Frakkar þennan fund, er
talið víst, að þeir hafi selt sig
Hitler með húð og hári.
Weygand, sem ráðin hefir
haft í Norður-Afríku, er haldið
að hafi orðið að vægja. Hann
hefir verið Breta-sinni. Vichy-
stjórnin telur sjálfsagt að
varna því að Bandaríkjamenn
taki Dakar, á vesturströnd Af-
ríku.
Japanir til í alt
Um 180,000 japansk-ir her-
menn eru nú komnir til frönsku
nýlendunnar suður af Kína
(Indo-Kína). Er talið víst að
þeir muni, eftir að hafa komið
sér þar fyrir, halda vestur í
Thailand (eða Síam). Brezkt
herlið er komið á vesturlanda-
mæri Thailands í Burma og
mun bíða átekta. Bandaríkin
eru enn í efa um að Japan
meini stríð Bretar eru það
ekki og lýstu yfir í þinginu i
gær, að ef Japan æskti stríðs,
skyldi það ekki lengi þurfa að
biðja þess. En Japanir segja að-
eins, að þeir fari sínu fram og
ekkert útlent vald skuli stöðva
eðlilega útþenslu keisaradæm-
isins.
ÚR ÖLLUM ÁTTUM
Willingdon lávarður, er var
landstjóri Canada frá 1926 til
1931, dó í gær í London. Hann
var 74 ára.
* # •
Hertoginn af Windsor og frú
hans hafa í hyggja að heim-
sækja Alberta á þessu hausti,
en þar á hertoginn búgarð, sem
kunnugt er. Þau kváðu þrisvar
sinnum hafa komið til Florida
síðan þau komu til Bahamas-
eyja fyrir einu ári, en hafa ekk-
ert ferðast um Bandaríkin.
• • •
Á sunnudag og mánudag í
þessari viku byrjuðu Rússar að
fljúga til Berlín og steypa
sprengjum yfir borgina. —
Sprengjurnar voru sagðar bákn
mikil. Eldar kviknuðu í.aust-
urhluta borgarinnar af þessum
völdum, en í vesturhlutanum
af völdum sprengja frá brezk-
um flugskipum. öll skip Rússa
komu til baka. Rússar hafa
jafnframt kastað sprengjum á
bæi hvar sem er í austurhluta
Þýzkalands. Bretar gerðu það
einnig í vesturhlutanum. Hitl-
er hefir leikið þetta áður í öðr-
um löndum. Kanske hann eigi
nú eftir, að hitta sjálfan sig
fyrir.
• • •
Á Englandi fórust 22 flug-
menn í flugslysi s. 1. mánudag.
Einn flugmannanna var frá
Winnipeg, F. D. Bradbrooke
kapteinn.
• • •
Nazi-herinn í Grikklandi
kvað hafa verið kallaður mest
allur norður á vígstöðvarnar í
Rússlandi.
• • •
Þýzkt útvarp hlustaði ein-
hver á í New York er þýzku
skildi s. 1. laugardag; sagði það
frá því, að frá Smolensk og
miðvígstöðvunum á Rússlandi
hefðu alls verið fluttir 280,000
særðir Þjóðverjar heim til sín
í ^U-52 flutninga-flugvélum.
* • •
Sá er yfir heilbrigðismálum
manna ræður í Pine Falls,
Man., hefir skipað svo fyrir að
þorpinu skuli lokað fyrir ferða-
mönnum, vegna lömunarsýk-
innar, sem svo mikið er af í
fylkinu, en sem í Pine Falls
hefir enn ekki orðið vart.
• • •
f stríðinu 1914-18 fóru út-
gjöld Canada til hers aldrei yfir
10 af hundraði af öllum tekjum
þjóðarinnar. Allan tímann frá
1914 til 1920, urðu stríðsút-
gjöldin í heild sinni ekki nema
$1,672,000,000.
Á fjárhagsári Canada frá 31.
marz 1941-42, verða útgjöldin
til stríðsins nálægt $2,000,000,-
000. Það eru 35 til 40 af
hundraðú af öllum væntanleg-
um tekjum þjóðarinnar.
Við þessi útgjöld bætist svo
allur stjórnarkostnaður: sam-
jands-, fylkja- og sveitastjórna.
Það er ekki mikill efi á því, að
með honum bættum við verða
útgjöld Canadamanna 50 af
hundraði til hers og stjórna í
landinu á árinu.
Að hagur Canada er enn ör-
uggur og hver eyrir af inn-
I lendu fé og útlendu er tryggur,
er ef til vill víxlaeftirlitsnefnd-
inni fyrst og fremst að'þakka,
sem stofnuð var í sept. 1939.
Hún hefir verndað vel eignir
landsmanna og útlendinga, sem
hér eiga $6,700,000,000. —
Bandaríkjamönnum er greidd-
ur ágóði enn af fé því, er þeir
hafa í canadisk fyrirtæki lagt.
Canada ver miklu fé til vöru-
kaupa í Bandaríkjunum. Á
yfirstandandi ári er óhætt að
gera ráð fyrir að þau viðskifti
nemi $1,000,000,000, eða einum
sjötta af öllum tekjum Canada-
manna. Héðan er að vísu mik-
ið af vörum selt suður, en við
viðskiftahalla má þó fyllilega
búast, er nemi $450,000,000.
Nauðsynjar til stríðsins eru
keyptar í stórum stíl syðra.
En auk þessa sér Canada
fyrir þrem fjórðu af kostnaðin-
um af vöruframleiðslu hér fyr-
ir Breta. Canada hefir sagt
Bretum að sofa rólegum út af
þessari skuld og þann reikning
megi jafna eftir stríðið. Á
þessu fjárhagsári munu vöru-
lánin til Breta nema $800,000,-
000. Hálf biljón ($500,000,000)
er lánið nú þegar.
Hagur Canada stendur því
ennþá traustum fótum, þrátt
fyrir útgjöldin sem eru há mið-
uð við mannfæðina. Má það
efalstu þakka framsýni og var-
færni þeirra, er efnanna gæta,
en einnig eflaust fúsum vilja
almennings í að styðja hverja
tilraun er ætluð er að flýti
fyrir falli Hitlers, hvað mikil
fórnfærsla sem því er samfara.
• • *
Byrd aðmíráll skýrir frá því
að síðasti suðurheimsskauts-
leiðangur hans hafi verið far-
inn til þess að undirbúa inn-
limun einnar miljón ferkíló-
metra lands í Bandaríkin.
Byrd segir að á hinu nýja
landflæmi séu hentug skilyrði
til að gera flotabækistöðvar,
sem nota megi til að vernda
siglingar fyrir Cape Horn og
siglingaleiðirnar til Indlands-
hafs.
• • •
Á dögunum flaug fyrir, að
Mitchell Hepburn, forsætisráð-
herra í Ontario, hafi boðist
staða á Englandi. Geti því
skeð, að hann segi forsætis-
ráðherrastöðunni lausri. Starf-
ið sem honum er ætlað, er í
þeirri deild ráðuneytisins, er
um vistaforða landsins sér. —
Fregnritum svaraði Hepburn
hvorki al né á, er spurðu hann
um þetta.
RÓM í EINN DAG
Árborg hefir að minsta kosti
verið Róm í einn dag. Þangað
lágu allar götur s. 1. sunnudag.
í hvaða átt sem litið var, bar
jóreykina við loft. Upp úr há-
degi varð ekki þverfótað úti
fyrir samkomuhúsi þorpsins
fyrir bílum. Inni var sem nærri
má geta rúmið ekki meira. Þar
höfðu bygðar-búar flestir eða
allir safnast saman, og fjöldi
Winnipeg-íslendinga, í því
skyni, að halda þeim dr. Sveini
Björnssyni og frú hans, Marju
Björnsson silfurbrúðkaup.
Kl. 2.30 e. h. voru silfurbrúð-
hjónin leidd til þess öndvegis,
(er þeim hafði verið fyrirbúið
fyrir miðju borði uppi á ræðu-
palli, en þar var alt blómum
skreytt hátt og látt og ýmsri
annari borð og stofu prýði.
I nærri þrjár klukkustundir
skiftust á ræður og söngvar.
Samsætinu stjórnaði Mr. B. M.
Pálsson, lögfræðingur og fórst
það mjög viðeigandi og skipu-
lega; en umsjón söngs á milli
ræðanna höfðu Miss Bjarnason
í Árborg og Mr. og Mrs. Gourd,
er bæði syngja íslenzka söngva,
þó íslenzk séu ekki og eru fé-
lagslífi bygðarinnar mikill
styrkur.
Hin mikilsmetnu sæmdar-
hjón, Dr. og Mrs. S. E. Björns-
son hafa nú átt heima um tutt-
ugu ár í Árborg. Njóta þau
almennra vinsælda og góðhugs
sambygðarfólks síns og allra,
sem annars hafa átt kost á að
kynnast þeim. Þau hafa bæði
staðið mjög framarlega í ís-
lenzkum félagsmálum og ynt
þar af hendi ómælt starf. Frú
Björnsson hefir um fleiri ár
verið forseti Sambands ís-
lenzkra frjálstrúar kvenna og
auk þessa verið forseti stjórn-
arnefndar Barnaheimilisins á
Hnausum frá stofnun þess. Á
sú mikla stofnun velgengni
sína eflaust mikið framsýni og
óviðjafnanlegum dugnaði frú
Björnsson að þakka. Hún hefir
og haft forustu margra annara
mikilsverðra mála, sem hér
yrði of langt upp að telja. Dr.
S. E. Björnsson hefir og ekki
legið á liði sínu, er góð íslenzk
mál hafa á góðum stuðnings-
manni þurft að halda. Hann
hefir um mörg ár verið í stjórn-
arnefnd hins Sameinaða
Kirkjufélags Islendinga í Vest-
urheimi, er nú í stjórnarnefnd
Þjóðræknisfélagsins og hefir
verið forvígismaður mikill
Sambandssafnaðarins í Árborg
frá því hann kom í bygðina
Alls þessa, auk góðs viðmóts
alkunnrar gestrisni á heimili
Björnsson hjónanna, og ljúfr-
ar þátttöku þeirra yfirleitt í
öllu því, sem að heill samferða-
manna þeirra hefir stuðlað, var
nú minst, og reynt að þakka
silfurbrúðhjónunum í þessu
samsæti með ræðum fluttum
þeim, kvæðum og söng. Þeir
sem kvæði fluttu voru: Gutt-
ormur skáld J. Guttormsson,
Guðm. O. Einarsson verzlunar-
stjóri og E. P. Jónsson, ritstjóri
Lögbergs. En ræður fluttu
þessir: Frú Guðrún Finnsd.
Johnson, (hlýtt og fagurt á-
varp og þakklæti til frú Björns-
sonar fyrir starf hennar í frjáls-
trúarmálum); frú Andrea
Johnson (mælti fyrir minni
silfurbrúðurinnar); frú Emma
von Renesse og Mrs. Gourd (er
þökkuðu frú Björnsson starf
hennar í bygðar- og félagsmál-
um). Þá mælti Mr. S. Thor-
valdson, M.B.E., nokkur orð til
dr. Sveins Björnssonar og af-
henti honum hring dýran frá
Frímúrurum. Aðrir ræðumenn
voru: séra Guðm. Árnason
(flutti minni silfurbrúðgum-
ans), séra Philip M. Pétursson,
Einar P. Jónsson, Stefán Ein-
arsson, Páll S. Pálsson, Jón
Laxdal, Sveinbjörn Björnsson
og Ásmundur P. Jóhannsson.
Minningargjafir (souvenirs)
voru silfurbrúðhjónunum af-
héntar frá gestum og ýmsum
félögum.
Áður en sezt var að kaffi-
drykkju, töluðu silfurbrúðhjón-
in nokkur orð til gesta og
þökkuðu vinahótin.
Samsætið var skemtilegt. —
Sumir ræðumanna voru bráð-
fjörugir, eins og væru ungir í
annað sinn, og tíma til að láta
sér leiðast höfðu engir.
Þegar líða tók að miðaftni,
fóru menn að tínast heim,
þakklátir í huga fyrir skemti-
lega dagstund og sérstaklega
þó að hafa veizt tækifæri, að
tjá dr. og Mrs. S. E. Björnsson
þakklæti sitt, vinátu og virð-
ingu, fyrir alt sem þau hafa
svo göfugmannlega ger.t fyrir
mannfélag sinnar bygðar.
Þegar fólk þorir ekki að
segja það, sem það hugsar fer
svo að lokum, að það hugsar
ekki um hvað það segir.—Zeno.
• • •
Flestir eru vonsviknir yfir lif-
inu . . . og láta vonbrigðin hafa
áhrif á sig. — Dickens.
• • •
• • •
Þau dönsuðu og hann hvísl-
aði í eyra henni:
— Að dansa við yður, það er
eins og að vera kominn upp til
himna.
— Enn eruð þér nú ekki
komnir hærra en á tærnar á
mér, sagði hún.
NEMENDUR Á ISLENZKA LAUGARDAGSSKÓLANUM í RIVERTON. MAN.
Þessi hópur hefir sett sér það mark og mið, að nema til hlítar íslenzku, af því að hún
er tunga foreldra þeirra og málið sem talað er af “minstu og merkustu þjóðinni í heimi”,
eins og borgarstjóri Fiorella la Guardia í New York hefir sagt um íslenzku þjóðina.