Heimskringla - 13.08.1941, Síða 8
8. SIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 13. ÁGÚST 1941
FJÆR OG NÆR
MESSUR I ÍSLENZKU
SAMBANBSKIRKJUNUM
Messur í Piney
Séra Philip M. Pétursson
heldur guðsþjónustur í Piney,
Man., að öllu forfallalausu,
sunnudaginn 17. þ. m. á vana-
legum stað og tíma. Eru menn
í Piney góðfúslega beðnir að
láta það fréttast.
# # *
Messa í Wynyard
Messað á íslenzku í Wynyard
kl. 2 e. h. sunnudaginn þann
17. þ. m. (næsta sunnudag).
Ræðuefni: Solon Islandus í
ljósi kristindómsins.
H. E. Johnson
# # •
Dr. Eggert Steinþórssyni og
frú Gerðu konu hans, var boð-
ið vestur til Glenboro um síð
ustu helgi af séra Agli Fáfnis, i
gistivináttu nokkra daga. Dr.
Steinþórsson hefir nú tveggja
vikna hvíld frá störfum á Win
nipeg General Hospital, þar
sem hann er við fullnaðarnám i
læknisfræði.
* # *
Gestir í bænum í dag eru
Mr. S. Thorvaldson, M.B.E.,
Riverton; Dr. of; Mrs. S. E.
Björnsson frá Árborg og börn
þeirra.
* * *
Á fslendingadeginum á Gimli
var Harold Blöndal, sonur dr.
og Mrs. A. Blöndal, staddur.
Hann er í flugher Canada
eystra, hefir þar radio-störf
með höndum, en var hér
hvíldardögum sínum.
# * *
Heimleiðis héldu í lok s. 1.
viku Gunnar B. Björnsson,
Valdemar Björnsson og Mr. og
Mrs. B. Jones, frá Minneota,
Minn., eftir viku dvöl í bænum.
Allir gestirnir voru hér á ís-
lendingadeginum á Gimli.
# * *
Sonur fæddist Mr. og Mrs
O. B. Björnsson, 42 Evanson
St., á Grace-spítalanum 26.
júlí. Honum hefir verið gefið
nafnið Björn Franklin.
• * *
Mr. Lárus Melsted, sonur Mr.
og Mrs. Sig. Melsted í Winni-
peg, var staddur í bænum
tveggja vikna tíma nýlega og
var á íslendingadeginum á
Gimli. Hann er í flugher Can-
ada og dvelur eystra. Annar
sonur Mr. og Mrs. S. Melsted,
Thor, hefir nýlega verið kall-
aður til herþjónustu í flughern-
um. Þriðji sonur þeirra, Her-
mann, gekk fyrir nærri tveim
árum í herinn, og hefir^verið
nokkra mánuði í Englandi.
Tveir hinir fyrnefndu hafa
myndatöku úr lofti með hönd-
um fyrir herinn.
» * *
Mr. Magnus Paulson, kona
hans og tvö börn frá Toronto,
dvelja hér í sumarfríi sínu. —
í>au eru hjá Mrs. M. Paulson,
móður Magnúsar, að 784 Bev-
erley St. Mr. Paulson starfar
hjá stóru fjársýslufélagi
eystra, hann mun halda heim-
leiðis í lok ágústmánaðar.
Gefin voru saman í hjóna-
band 26. júlí í Rivervew United
Church í Vancouver ungfrú
Sophie Austford, dóttir Mr. og
Mrs. H. Austford í Mozart,
Sask., og Mr. Clifford Peter
Martin, sonur Mr. og Mrs. H.
Martin, Wynyard, Sask. Rev.
J. Paton gifti. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður
í Vancouver.
* * *
Fyrirlestraferð Dr. Richards
Beck vestur að hafi
Dr. Richard Beck, forseti
Þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi kom til Winnipeg
Hann kveðst alstaðar hafa átt I 26 júlí s. 1. voru gefin saman
hinum ágætustu viðtökum að j í hjónaband af séra Eyjólfi J.
fagna og sendir alúðarþökk og Melan að heimili Mr. og Mrs.
kveðju öllum þeim, sem'jónas Ólafssonar, Árnesi, Mrs.
Látið kassa í
Kœliskápinn
greiddu götu hans og gerðu
honum ferðina ánægjulega.
Dr. Beck sat fund stjórnar-
nefndar Þjóðræknisfélagsins
hér á þriðjudagskvöldið, en
hélt heimleiðis til Grand Forks
í morgun.
# # *
Dr. Ingimundson verður
staddur í Riverton þann 19.
þ. m.
* # #
Þessar prentvillur slæddust
á mánudagskvöldið úr fyrir-|inn í grein dr. Eggerts Stein-
þórssonar í síðasta blaði: “Hve
lestraferð sinni um Vestur-
Canada og á Kyrrahafsströnd-
inni, en alls flutti hann 17 ræð-
ur og erindi á ferðinni og heim-
sótti allar deildir félagsins í
Saskatchewan og sambands-
deild þess í Bellingham, Wash.
Hann var aðalræðumaður á
íslendingadögum í Church-
bridge, Sask.; Blaine, Wash.; og
Vancouver, B. C. Auk þess Minningarrit
hröð kjör hefir hún (þ. e. ætt-
jörðin) búið börnum sínum”;
átti að vera hörð kjör. Enn-
fremur: “Engin þjóð önnur ó-
skróða sögu landnámsmanna
sinna; á að vera: á skráða sögu
o. s. frv. Höf. er beðinn afsök-
unar á þessu.
flutti hann (á íslenzku) erindi
um islenzk menningar- og þjóð-
ræknismál á þessum stöðum:
Leslie og Wynyard, Sask.;
Markerville, Alta.; Point Rob-
erts og Seattle, Wash. Ræður
um sama efni flutti hann í
fjölmennum samsætum, sem
íslendingar í Bellingham og
Blaine héldu honum.
Ræður á ensku, um Island
og íslenzka menningu, flutti
hann á University of Saskat-
chewan í Saskatoon, á Kenn-
araskólanum (Western Wash-
ington College of Education) í
Eellingham og fyrir eftirfar-
andi félög í Vancouver: Can-
adian Men’s Club, Canadian
Women’s Club og American
Women’s Club, en hinn síðast-
nefndi félagsskapur hélt hon-
um virðulegt samsæti. Á
fundi Rotary-klúbbsins þar í
borg flutti hann ræðu um Nor-
eg (“The Spirit of Norway
Lives On”), og í ársveizlu
sænskra söngmanna á Kyrra-
hafsströndinni, í sambandi við
ársþing þeirra í Bellingham,
talaði hann um norrænar
menningarerfðir.
Hinar ensku ræður dr. Becks,
ekki sízt í Vancouver, vöktu
mikla athygli og fluttu öll stór-
blöðin þar itarlega útdrætti úr
þeim og vinsamleg ummæli um
þær. Á vesturleið flutti “Ed-
monton Bulletin” einnig ítar-
legt viðtal við hann um ís-
landsmál, sömuleiðis blaðið
News-Tribune” í Tacoma,
Wash., er hann var þar stadd-
ur.
Ríkisútvarpið canadiska —
(CBC) útvarpaði einnig frá
Vancouver á fimtudaginn við-
tali við dr. Beck um ísland.
Honum bárust einnig beiðnir
um ræðuhöld frá ýmsum öðr-
um meiriháttar félögum bæði
í Vancouver og utan borgarinn-
arar, en varð að hafna þeim
vegna þess hve tími hans var
takmarkaður.
Fjölmenni mikið hlýddi á
margar ræður dr. Becks og
lætur hann hið besta af að-
sókninni að samkomum sinum
víðsvegar í bygðum Islendinga.
Þeir, sem eignast vilja 50
ára minningarrit Sambands-
safnaðar, geta eignast það með
því að senda 50^ til Davíðs
Björnssonar, 702 Sargent Ave.
Ritið er mjög eigulegt, með
myndum og ágripi af sögu
kirkjunnar á íslenzku og ensku.
# # *
Bréf
Mrs. Emma von Renesse í
Árborg, hefir beðið Hkr. að
birta eftirfarandi bréf:
Clairmont, Alta, 31. júli
Emma von Renesse,
Árborg, Man.
Kæra frú Renesse:
Hér með læt er P. O. ávísan
fyrir $15.00 til Barnaheimilis-
ins á Hnausum. Þetta á að
Sigurrós Johnson frá Odda í
Árnesi og Richard L. Amer frá
Árnesi. Viðstaddir voru vinir
og nánustu ættingjar. Sátu
þeir veizlu fram á kvöld.
* # *
Upp úr lestri
Ekki er beysið orða lag
hjá andlegu flækingunum;
dönsku skotið dóna tal
drýpur af orðhákunum.
• * *
Messa í Mikley
Séra Bjarni A. Bjarnason
messar væntanlega í kirkju
Mikleyjar lúterska safnaðar
annan sunnudag, 24. ágúst, kl.
2 e. h. Fer þá fram ferming og
altarisganga.
# # #
Guðsþjónustur í Vatnabygð-
um i Saskatchewan
Wynyard kl. 3 e. h. (á isl.)
Kandahar kl. 7.30 e. h. (á
ensku). Allir hjartanlega vel-
komnir.
B. Theodór Sigurðsson
SARGENT TAXI
and TRANSFER
SÍMI 34 555 eSa 34 557
724V2 Sargent Ave.
Contracts Solicited
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Björgvin Guðmundsson
tónskáld heiðraður.
Á fundi bæjarstjórnar 27.
mai, var svohljóðandi ávarp til
Björgvins Guðmundssonar tón-
skálds samþykt með atkvæð-
um allra viðstaddra bæjarfull-
trúa:
“Björgvin Guðmundsson, tón-
skáld. í tilefni af nýafstöðnu
hálfrar aldar afmæli yðar, vill
bæjarstjórn Akureyrar færa
yður hugheilar framtíðaróskir
og jafnframt tjá yður alúðar-
þökk og fylstu viðurkenningu
, fyrir hin ágætu skáldverk yðar
* ! c
tvær trillur og í smíðum eru
tveir 15 smálesta Jrélbátar.
—Mbl.
* * *
Hveitið komið
Skip er nýkomíð hingað frá
Ameríku með fullfermi af ýmis-
konar kornvöru og annari
nauðsynjavöru. M. a. er í skip-
inu yfir 500 tonn af hveiti og
kom það sér vel, því að lítið
var orðið til af hveiti í landinu
og sums staðar alveg þrotið.
En þar sem hveitið er komið,
verður nú upphafið köku- eða
kaffibrauðsbannið, sem gilt
hefir síðan seint í apríl. Verður
sennilega birt tilkynning um
þetta í dag.—Mbl. 28. maí.
VIÐSKIFTI ÍSLENDINGA
OG BRETA FYRIR
450 ÁRUM
vera í minningu um tvo fyrir j í tónum og orðum.
löngu dána vini, þá Thorvald Sem lítill viðurkenningar-
heitinn Thorvaldson, bróður
Sveins og Thorbergs Thor-
valdsona, og Magnús heitinn
Brynjólfsson, lögmann. Mér
finst það væri gott fyrir nútíð-
ar ungdóm að halda á lofti
nöfnum okkar mestu og bestu
manna.
Og ekki sízt þeirra sem börð-
ust til menta gegn um fátækt
og erfiðleika, eins og alment
var á þeir tímum.
Það er engin efi að Thor-
valdur heitinn hefði orðið einn
af okkar frægustu og mestu
Vestur-ísiendingum hefði hon-
um enst aldur til.
Og Magnús án efa hefði skip-
að dómarasæti í N. Dak., hefði
hann ekki fallð frá á besta
aldri.
Virðingarfylst,
Magnús G. Guðlaugson
* • *
Á laugardaginn var, 9. ágúst
voru gefin saman í hjónaband j og skiftust þannig:
vottur fylgja hér með krónur
2000,00, sem vér vonum, aft
þér þiggið.
Bæjarstjórninrii er Ijóst, að
slík störf sem yðar verða eigi
metin til fjár, enda eigi unnin
með það fyrir augum. Þessa
litlu upphæð ber því einungis
að skoða sem lítinn vott um,
að oss er Ijóst, að verk yðar
verðskulda alþjóðarþökk.”
—ísl. í maí.
# # *
Jóhannes Jónasson
(skáld úr Kötlum) er vara-
maður Eins Olgeirssonar á Al-
þingi og tekur þar sæti hans.
—lsl. 2. maí.
• # *
Mannfjöldinn á íslandi
Við síðasta manntal (2. des.
1940 og nú i nýútkominni
skýrslu) reyndist ibúatala
landsins 121,387. Þar af voru
85,668 búsettir í kaupstöðum
Heimsókn til EATON’S
nýmóðins skóadeilda
til að kynnast barnaskóm
Hafið þér séð hinar nýgerðu nýmóðins deildir af
barnaskóm á fimta gólfi? Rúmgóðar . . . miklar birgð-
ir . . . loftræsting . . . þar er hópur æfðra manna að
veita á yður. Hvernig skórnir passa, er með X-geislum
skoðað. Komið með barn yðar til vor. Heilbrigði fóta
þeirra er trygg hjá oss.
Ein stærsta deildin af þremur, er UNGBARNA
SKÓDEILDIN, með sínum miklu birgðum af mýkstu
skóm. Hér geta foreldrar valið úr eftir vild og farið
sér eins hægt eða fljótt og þeir vilja.
Rétt við hliðina á aðaldeildinni fyrir drengi og
stúlkur, er eldri stúlkna deildin, þar sem sérstök at-
hygli er gefin nýjum tízkum. Margar vel þektar teg-
undir til sýnis.
—Bamaskódeildin á fimta gólfi.
T. EATON C9,
UMITEQ
þau Guðlaug Lilja Irene Eyjólf-
son, dóttir þeirra Mr. og Mrs.
Stefán Eyjólfson í Riverton,
og Thomas Raymond Hodgson
í Winnipeg. Hjónavígslan fór
fram að heimili brúðgumans,
996 Banning St. Séra Valdi-
mar J. Eylands gifti.
* * *
Dánarfregn
Jón Hreggviður Jónsson
Henry, um nærfelt 40 ár bóndi
við Petersfield, Man., andaðist
að heimili sínu, þann 4. ágúst,
eftir að hafa stritt við van-
heilsu hin síðari ár. Útför
hans, er var fjölmenn fór fram
þann 6. ágúst, frá heimilinu,
og Wakefield Anglican graf-
reit. Þessa þróttmikla íslend-
ings mun verða minst nánar
síðar.
* • •
Hvít og svört regnhlíf tap-
aðist á Islendingadeginum á
Gimli. Vill frómur finnandi
gera svo vel og tilkynna fund-
1 inn í talsíma númer 33 038.
• • •
Sunnudaginn 24. ágúst mess-
ar séra Sigurður Ólafsson í
Steep Rock, Man. Messan nán-
ar auglýst á staðnum heima
fyrir.
Reykjavíg .....38,094
Akureyri ...... 5.542
Hafnarfirði..... 3,707
Vestm.eyjum .... 3.579
Siglufirði .... 2,883
ísafirði'...... 2,863
Neskaupstað .... 1,097
Seyðisfirði . 903
Hefir íbuatala landsins auk-
ist um 12,487 síðustu 10 ár, en
það er 11.5 af hundraði. öll
fjölgunin kemur á kaupstað-
ina, því að í sveitum og kaup-
túnum hefir fólklnu fækkað
um 86 á sama tíma. Mest er
fækkunin í Dalasýslu, 11 af
hundraði. 1 Reyajavik og
kureyri er fóll«sfjölgunin 32% 1
síðustu 10 ár.—Isl. í maí.
• • •
150 smálesta vélskip
bygt á Akureyri
Akureyri 17. maí.
Kaupfélag Eyfirðinga setti á
sstofn á síðastliðnu hausti
skipasmíðastöð á Akureyri. Nú
er þar verið að leggja kjöl að
150 smálesta vélskipi, sem
Skipaútgerð KEA byggir.
Yfirmaður er Gunnar Jóns-j
son.
Þess má geta að í Skipasmíða'
stöðinni var nýlega fullgerður,
13. smál. bátur, smiðaðar þar
íslendingar og Bretar hafa
,fyr á öldum haft ýms viðskifti
jSaman, eins og kunnugt er af
j sögunni, og gekk á ýmsu í þeim
i viðskiftum. Eftirfarandi grein,
| sem skýrir nokkuð frá viðskift-
íum íslendinga og Breta fyrir
1450 árum, eða vorið 1491, birt-
j ist nýlega í breska blaðinu
i“Yorkshire Post”:
I “Henry VII. í Shene skrifaði
l jarlinum af Oxford á þessa
lleið í aprílmánuði 1491:
j “Þér eigið að sjá um að'allir
ifiskimenn í yðar umdæmi hafi
leyfi vort til að leggja úr höfn
til íslands, eins og fyrirskipað
var fyr á tímum . . . vér kunn-
gerum yður að vor í alla staði
elskaði frændi, konungur Dan-
j merkur, hefir kvartað til vor i
! ítrekuðum bréfum út af þvi, að
er þegnar vorir komu til nefnds
Islands, sem er í hans ríki, þá
steli þeir og ræni þegna hans
þar, gegn rétti og sæmilegri
framkomu.
“Þess vegna skulu hinir
nefndu fiskimenn vera ábyrgir
gagnvart yður, og þér svarið
til þess gagnvart oss, að þeir
hafi ekki meðferðis meira af
mjölmat, en til eigin þarfa, né
aðra hluti, sem bannaðir eru,
og einnig að þeir hvorki við
i komu sína, veru sína, eður
í burtferð frá nefndri eyju, taka
Jneitt með sér nema það, sem
þeir hafa greitt fyrir eða samið
um og þeir skulu koma vin-
gjarnlega fram við þegna hins
fyrnefnda frænda vors, án þess
að ræna þá eða ónáða þá lík-
amlega eða eignir þeirra; vér
viljum að nefndir fiskimenn
fari þangað frjálsir ferða sinna,
og að skipanir vorar, sem fara
í gagnstæða átt, skulu úr gildi
numdar; en að öðru leyti bjóð-
um vér að skilmálar vorir um
ferðir þeirra séu haldnir”.
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG
ISLENDINGA
Forseti: Dr. Richard Beck
University Station,
Grand Forks, North Dakota
Allir Islendingar í Ame-
ríku ættu að heyra til
Þ j óðrœknisf élaginu
Ársgjald (þar með fylgir
Tímarit félagsins ókeypis)
$1.00, sendist fjármálarit-
ara Guðmann Levy, 251
Furby St., Winnipeg, Man.
1 '#################################•
John Vere, jarl af Oxford,
gaf því, samkvæmt bréfi þessu,
sem ritað er fyrir nær 500 ár-
um, út svofelda skipun þann 10.
apríl 1491:
“Eg gef hér með John Rowe,
marskálki flotaráðs míns, fult
umboð og vald til að handtaka
alla þá fiskimenn, sem ætla sér
til íslands, þar til þeir hafa
gert fulla grein fyrir ferð sinni
og gerst ábyrgir gagnvart mér,
samkvæmt boði lávarðar míns
og konungs, um fyrirætlanir
þeirra á fyrnefndu ferðalagi.”
—Lesb. Mbl.
HITT OG ÞETTA
Skemtileg saga gengur um
þessar mundir í London um
Montagu Norman, yfirbanka-
stjóra Englandsbanka. Hann á
að hafa verið að skoða
sprengjugýg ein mikinn, sem
komið hafði rétt hjá bankan-
um, er lögregluþjónn ávarpaði
hann og spurði, hvað hann
væri að forvitnast á þessum
slóðum og hvort hann ætti
þarna nokkurt erindi.
“Já,” sagði Norman, “eg
starfa í bankanum.”
“Nú, einmitt,” sagði lögreglu-
þjónninn, “þá væri ráðlegt að
reyna að koma sér inn og láta
hendur standa fram úr erm-
um.”
# # *
Þá 18 mánuði, sem amerískir
hermenn tóku þátt í heims-
styrjöldinni, dóu um 50 þúsund-
ir þeirra í eða eftir bardaga
við óvinina. Á sama tíma fór-
ust í heimalandi þeirra 91 þús-
und manns — við ökuslys.
* * *
Líttu fram á við — og ham-
ingjan fylgir þér!—Dickens.
.....................
| INSURANCE AT . . .
REDUCED RATES
Fire and Automobile =
| STRONG INDEPENDENT |
B
COMPANIES
| McFadyen I
| Company Limited |
I 362 Main St. Winnipeg |
5 =
Dial 93 444 I
OmmmloimimiioiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiimuiiiimmioiiiimmiE*
Njótið lífsins í fullum skilningi!
Það stendur á sama hvar þú ert, lífið verður
dauft, ef þú kennir sársauka á fótum. Njót
lifsins í fullum skilningi með því að brúka
skó keypta hjá Macdonalds. Það eru skór sem
fara vel á fæti, eru þægilegir og líta vel út.
"You Are As Young As Your Feet"
Macdonald
SHOE STORE LTD.
492-4 MAIN STREET